Vísir - 27.09.1935, Page 2
V ISÍR
l))» mmxOLSEN^l
C I ÆTAR I O I ONDLUR B
f
Ásgeir SigurOsson,
fyrverandi aðalræðismaður Breta hér á landi, andað-
ist í gær eftir langvinnan sjúkleik.
Þessa merka manns verður nánara getið hér í
blaðinu síðar.
RAOsfunduFinn
i gæp,
Fulltrúi Italíu ekki viðstaddur. Skipun þrettán
manna nefndar til skýrslugerðar o. s. frv. —
Fimm manna nefndin á að vera reiðubúin til
þess að hefja samkomulagsumleitanir á ný.
Genf í gærkveldi.
Á hinum opna fundi Þjóða*
bandalagsins í dag var ákveðiS
einróma, en fulltrúi Ítaiíu var ekki
viístaddur, aS íara aö eins og mælt
er fyrir í 3. og 4. li'ö 15 gr. sátt-
mála bandalagsins, um undirbún-
ing skýrslu um deiluna o. s. frv.,
eins og sagt var í skeytinu í morg-
un. Einnig var samþykt, aö skipa
brettán manna nefnd til þess aö
ganga frá skýrslunni og undirbúa
tillögur um lokaafgreiöslu. Loks
var ákveöiö, aö ráöiö héldi áfram
fundahöldum sínum, en frestaöi
þeirn ekki aö sinni. — Á hinúm
lokaöa fundi ráösins var ákveðiö,
aö fimm manna nefndin skyldi
vera reiöubúin til þess aö hefja
samkomulagstilraunir á ný.
(United Press—FB)
itoös
í skyndiheimsókn
Göhring.
hjá
Berlin 27. sept.
Gömbös, forsætisráöherra í Ung-
Svar Breta
við orðsendingu Frakka
verjalandi, kom til Berlín í gær
loftleiðis, til viðtals við Göhring.
Talsvert er urn skyndiheimsókn
þessa rætt og er hún stjórnmála-
lega talin mikilvæg.
(United Press—FB).
var afhent í gær. — Bretar
ætla að taka þátt í samtök-
um þjóðabandalagsins gegn
hvaða þjóð sem gerist frið-
rofi.
London 27. sept.
Svar breskú ríkisstjórnarinnar
við orösendingu frá Frökkum við-
víkjandi afstöðu Bretlands, ef til
meginlandsstyrjaldar kæmi, var
afhent Corbin, sendiherra Frakk-
lands á fimtudag. Aö: því er Unit-
ed Press hefir fregnað er svarið í
samræmi við ræðu þá, er Samuel
Hoare, utanríkismálaráðherra
Breta flutti í Genf, er hann lýsti
yfir því, aö Bretar ætluöu að fram-
fylgja sáttmála Þjóðabandalagsins
í öllum atriöum. Bretar munu því
styðja Þjóðabandalagið og taka
þátt í samtökum þess án tillits til
þess hvaöa þjóö það er, sem-gerist
friðrofi. En Frakkar vildu leggja
áherslu á að fá skýr svör við
vegna óttans við Þjóðverja.
(United Press—FB).
GÖMBÖS
Bitlingalýðurinn
vill fá ný húsaieignlög.
Eins og áður hefir verið vikið
að hér í blaðinu, hóf Alþýöublað-
ið máls á því á dögunum, að hús-
næðisekla mikil væri yfirvoíandi
hér í bænum og að húsaleiga á
smáxbúðum færi stórum hækkandi.
Dagblað Framsókifarmanna tók
þegar á næsta degi í sama streng,
er, notaði tækifærið til að minna
á það, um leið, að endur fyrir
löngu hefði það af visku sinni og
alkunnri velvild til Reykvíkinga
cg föðurlegri umhyggju fyrir hag
þeirra, lagt á ráðin um það, með
hverjum hætti yrði best varist
„húsaleiguokrinu" hér í bænum.
En til þess væri að eins eitt ráð,
og það væri að setja húsaleigulög,
og láta þar til skipaða nefnd á-
kveða alla húsaleigu ! Og í nokkuð
„herralegum“tón áminti blaðið svo
Alþýöuflokkinn að lokum um það,
að fara í þessu efni að ráðum ■
þeirra, sem vitið hefði meira. Virö-
íst Alþýðublaðið í gær líka vera
komið að þeirri niöurstöðu, að
flokkurinn eigi að láta sér þetta að
kenningu verða, og heitir í auð-
rnýkt stuðningi sínum við hið góöa
málefni!
En hvað er þá hæft í þessu, að
húsaleigan í Reykjavík sé að
hækka?
Vísir' hafði nú gert ráð fyrir
því, að nokkur húsnæðisekla kynni
að verða í bænum í haust, vegna
þess hve stórkostlega hefir dregið
úr húsabyggingum. Af því gat svo
leitt að leiga hækkaði á einstökum
íbúðum. Það var því hugsanlegt að
Alþýðublaðið hefði að einhverju
leyti rétt fyrir sér um þetta. Hins-
vegar vakti þessi „samdráttur"
Tímadilksins og Alþýðublaðsins,
og bollaleggingar þeirra um ný
húsaleigulög, grunsemdir um það,
að ef til vill væri meira gert úr
húsnæðisvandræðunum og húsa-
leiguhækkuninni, en tilefni væri
til, í þeim tilgangi að fá átyllu til
þess að vekja upp gamla húsa-
leigulagadrauginn. Þessvegna fór
Vísir að grenslast eftir því, hvað
hæft rnundi vera í því, sem Al-
þýðublaðið hafði um þetta sagt, og
leitaði upplýsinga um það hjá
þeim mönnum, sem gagnkunnug-
astir eru í bænum í þessum efn-
um.
Samkvæmt þeim upplýsingum,
sem blaðið hefir þannig fengið,
virðast vera heldur meiri örðug-
leikar á því nú, að fá smáar íbúð-
ir, heldur en, undanfarin haust, og
þó miklu minni en vænta mætti.
Og það er fullyrt, að leigan á ó-
dýrustu íbúðunum hafi ekkert
hækkað, og að húsaleigan yfirleitt
muni standa í stað. Hinsvegar er
það kunnugt, að kröfur almenn-
ings til allra húsnæðis-„þæginda“
fara sívaxandi. En meiri þægind-
um fylgir hærri húsaleiga. Og það
á auðvitað ekkert skylt við al-
menna hækkun á húsaleigu, þó að
fólk, sem skiftir um íbúð, og fær
„þæginda“-íbúð í staðinn fyrir
þægindalausa, verði að greiða
hærri húsaleigu en áður. —< En yf-
irleitt tekur fálk ekki þægindalaus-
ar íbúðir á leigu, fyrr en það er
gengið úr skugga um, að 'þáð geti
ekki fengið annað betra, fyrir við-
ráðanlega leigu, og af því getur
það stafáð, að húsnæðiseklan virð-
ist vera rneiri en hún er í raun og
veru. Og í annan stað getur af
þessu sprottið umtal um hækkun
á leigunni, bygt á röngum sam-
anburði á leigu fyrir þægindalausa
íbúð, sem farið er úr, og leigu fyr-
ir íbúð með öllum þægindum en
sama herbergjafjölda.
Þannig má gera ráð fyrir því, að
þetta blaðaskraf um húsnæðis-
vandræði og húsaleiguhækkun sé
á litlum rökum bygt. En það kem-
ur að sjálfsögðu hinum soltna bitl-
ingalýð stjórnarflokkanna í góðar
þarfir, að þessu sé haldið á loft.
Ríkisstjórnin og þingmeirihlutinn
hafa að vísu úthlutað miklum sæg
af beinum og bitlingum til „þurf-
andi“ flokksmanna, en það hefir
orðið til þess, að enn fleiid hafa
orðið „þurfandi", og altaf bætast
fleiri við í hópinn, sem þykjast
vera eins vel að því komnir og
hinir, að fá eitthvert bein að naga.
En það fer nú að þrengjast urn og
möguleikunum að fækka, til þess
að búa til bitlinga. Það þarf því
engan að furða á því, þó að stjórn-
arblöðin þykist. nú hafa unnið
flokkum sínum þarft verk með því,
að finna upp þörfina á því að setja
húsaleigulög á ný, og skipa nýja
nefnd, vellaunaða nefnd, handa
gírugum flokksmönnum1 að setjast
i. — Og nefndin er aðalatriðið.
Hvort nokkur þörf er á' nefndinni,
það er aukaatriði.
Otan af landi.
Stóra-Kroppi 26. sept. ('FÚ)
Níræð kona.
Elsta kona Borgarfjarðar, Mar-
grét Einarsdóttir, Mófellsstöðum,
verður 90 ára á morgun. Flún er
fædd 27. september, 1845, °8' hefir
alið svo að segja allan sinn aldur
á Mófellsstöðum, og verið þar hús-
freyja yfir 50 ár. Maður hennar,
Jón Þórðarson, er dáinn fyrir
mörgum árum. Af börnum þeirra,
sem á lífi eru, er elstur Þórður
blindi, nafnkendur hagleikssmið-
ur. Margrét er óvenjulega ern eftir
aldri, en hefir þó gengið við hækju
með kreptan fót í marga tugi ára.
i
i
Faraldur í sauðfé. 1
Það kom í ljós, er leitað var á
Arnarvatnsheiði, að rnikill faraldur
hafði verið þar í sumar í sauðfé,
frá þeim bæjum þar sem lungna-
pestin geisaði í vor og vetur. Lágu
dauðar ær víðsvegar, og öðrum var
slátrað sem ekki gátu gengið til
bygða. Frá einum bónda fundust
20 ær dauðar, og dauðvona; frá
öðrum átta, og fleiri áttu kind
og kind sýkta.
Síldveiðar Akranesbáta.
Akranesi'25. sept. (FÚ)
Fréttaritaid útvarpsins á Akra-
nesi símar í dag að þessir bátar
hafi komið með síld til Akraness:
Víkingur með 60 tunnur, Ver með
36 tunnur, Valur með 48 tunnur,
Egill með 20 tunnur, Skírnir með
12 tunnur, Höfrungur með 9 tunn-
ur, Ármann með 14 tunnur, Hrefna
með 35 tunnur, Rjúpa með 30
tunnur og Alda með 48 tunnur.
Þegar fréttaritari símaði kl.
18,30 var verið að losa línuveiðar-
ann Jarlinn frá Akureyri. Áætlað
var að aflinn væri 180—200 tunn-
ur.
Hafnarfirði 26. sept. FÚ.
Bruggunarstöð uppi í Esju.
Nýlega lióf hreppstjórinn í
Kjalarneshreppi leit eftir brugg-
unarstöð, er tveir drengir liöfðu
komist eftir að væri fólgin uppi
í Esju. — Fann hreppstjórinn
jarðhús 3 sinnum 3 metra að
flatarmáli, þakið jámplötum. í
húsinu voru allskonar bruggun-
artæki og 3 tunnur og var á-
fengislögur í einni þeirra. —
Málið er í rannsókn lijá lög-
reglunni í Hafnarfirði.
-------—wamnmmm-—--------
Bretai* áforma stórfelda
flotaaukningu.
Þeir ætla innan skamms aS tilkynna undir-
skrifendum Washingtonsáttmálans, að þeir
ætli bráðlega að hefja framkvæmd áætlunar
um stórfelda flotaaukningu.
. BRESK ORUSTUSKIP
í horninu: Sir Bolton Eyres Monsell, flotamálaráðherra Bretlands.
London 27. sept.
Að því er United Press hefir
íregnað ætlar breska ríkisstjórnin
innan skamms að tilkynna þeim
þjóðum, sem skrifuðu undir Was-
hington-sáttmálann um flotamál,
að (Bretar ætli að hefja fram-
kvæmd stórfeldrar áætlunar um
flotaaukningu, vegna hins mikla
vígbúnaðar annara stórvelda á sjó,
og til þess að nægilegs öryggis sé
gætt til undirbúnings verndar
Bretaveldis hvar sem er á hnettin-
unx. Þetta skylduhlutverk geti
Bretar ekki int af hendi í framtíð-
inni, nema þeir fullkomni og
stækki herskipaflota sinn.
(United Piæss—FB).
í Ölfasi.
Bærinn Grænhóll brann til
kaldra kola síðdegis í gær.
Eldur konx upp í íbúðarhúsinu á
Grænhóli í Ölfusi, síðdegis í gær.
Var húsfreyja ein heirna, ásamt
tveimur ungxxrn börnum og kaupa-
manni, er var við vinnu ú.ti við, er
eldurinn kom upp. Bóndinn var að
heiman. Var réttadagur í Ölfusi
í gær og hafði hann farið í réttirn-
ar.
Eldhús var í kjallara og þar mun
eldurinn hafa kornið upp. Kl. að
ganga sex varð eldsins vart. Var
þaö kaupamaðurinn, sem fyrstur
varð eldsins var. Eldur var þá far-
inn að brjótast út um þakið. Hljóp
hann þegar heinx til þess að að-
vara konuna og börnin, en fór svo
að Sandhóli. Er þar símastöð og
var þringt þaðan til Hveragerðis
og skýrt frá hvernig komið væri.
Sömuleiðis var hringt til Reykja-
víkur og be'ðið um aðstoð. Fóru
tveir slökkviliðsmenn austur með
dælu o, f 1., en er þeir komu aust-
x:r var húsið brunnið, þ. e. alt, sem
brunnið gat, því aö hér var um
steinhús að ræða, einlyft með ris-
hæð og kjaliara. Timburhús og
hlöðu rétt hjá tókst að verja,ænda
var vindur hagstæður. Voru hús
þessi varin af mörinum úr sveit-
inni, sem komið höfðu á yettvang.
Húsið var vátrygt, en innanstokks-
múnir ekki. Nokkru af húsmunum
varð bjargað. Matvæli skemdust
eða eyðilögðust alveg. Húsið var
gamalt og skilrúm og þak úr
tirnbri. Eigi er með vissu kunnugt
urn eldsupptök, en líkur eru til, að
kviknað hafi út frá reykháfi.
JSpetaF og
Abessiniii-
deilan.
Winston Churchill flytur
ræðu. „Alt breska veldið
styður ríkisstjórnina.“ —
1
London í gær. FÚ.
Afstaða ihaldsflokksins enska
til Abessiniudeilunnar kom
greinilega fram í morgun í orð-
um Winston Chursehill, þar
sem hann kemst svo að orði:
„Öll breska þjóðin og alt breska
veldið styður ríkisstjórnina í
þeirri viðleitni hennar að
styrkja vald Þjóðabandalags-
ins. Ótvíræð skylda þjóðarinn-
ar og áhugi hennar fyriraðvarð-
veita friðinn — alt knýr þetta
liana til þess að láta ekld sitt
eftirliggja, til þess að lög megi
ráða í alþjóðaviðskiftum og til
þess að hinum ægiíegum afleið-
ingum ófriðar verði afslýrt“.
Bönsk skólabörn og ísl. þjóð-
söngurinn.
Yfirstjórn skólamála Kaup-
mannahafnarborgar hefir á-
kveðið að hér eflir slculi kenna
öllum nemendum í barnaskól-
um horgarinnar að syngja ís-
lenska þjóðsönginn. (Einka-
skeyli frá Kbh. til útvarpsins).
\