Vísir - 02.10.1935, Side 3
V ISIR
Stj órnmálamennirniF í Genf
og breska píkisstjóFnin bú-
ast viö ófriði milli Ítalín og
Abessiníu þá og þegai9.
Mikilvægup fundur í bresku
Fíkisstj ÓFniimi í dag.
Bretar eru í þann veginn að spyrja Þjóðverja
og Bandaríkjamenn um afstöðu þeirra, ef
bandalagið beitir samtakamætti sínum. Bret-
ar draga í efa, að æskilegt sé að framkvæma
þvingunarráðstafanir gegn ítölum, nema
Bandaríkjamenn og Þjóðverjar lofi að að-
stoða ekki friðrofann á nokkurn hátt.
London 2. okt.
Stjómmálamennimir í Genf eru
nú sannfærðir um, að styrjöldin
milli Ítalíu og Abessiniu skelli á
J)á og þegar. Að því er United
Press hefir fregnað frá áreiðanleg-
um beimildum er Bretastjóm í
þann veginn að spyrjast fyrir um
það hjá ríkisstjórninni í Banda-
ríkjunum og einnig hjá þýsku rík-
isstjóminni, hver afstaða þeirra
mundi verða, ef Þjóðabandalagið
tæki ákvörðun um að beita sam-
takamætti gegn friðrofa með því
að banna siglingar til ítalskra
hafna.
Það er fullyrt, eftir áreiðanleg-
um heimildum, að Bandaríkin muni
fallast á takmarkaða aðstoð, þ. e.
ekki taka þátt í hemaðarlegum
refsiaðgerðum, en hinsvegar er eigi
ljóst enn hvaða stefnu Þjóðverjar
taka. Þvf að eins, að Þýskaland og
Bandaríkin undirgangist, að að-
stoða ekki friðrofann á nokkurn
hátt, er það dregið mjög í efa af
áhrifamiklum breskum stjómmála-
mönnum, að æskilegt sé að láta
refsiaðgerðir koma til fram-
kvæmda. (United Press. — FB).
Anthony Eden verður falið, að tilkynna
Þjóðabandalaginu, að Bretar ætli ekki að
hafast neitt að einir.
Samkvæmt áreiðanlegum heim-
ildum mim breska stjórnin á fundi
sínum í dag lýsa yíir því, að stefna
hennar sé hin sama og sú, er fram
kom í ræðu Samuels Hoare í Genf,
en jafnframt ákveða, að Anthony
Eden, Þjóðabandalagsráðherra
Bretlands, verði falið að lýsa yfir
því og leggja áherslu á það, að
Bretar ætli sér ekki að' hafast neitt
að einir — og því að eins að sam-
komulag verði um samtök innan
Þjóðabandalagsins.
Breska ríkisstjórnin telur ófrið
milli ítala og Abessiniumanna yf-
irvofandi og mun að líkindum
ganga frá fyrirspurnum þeim, sem
vikið var að hér að framan, til
Þýskalands og Bandaríkjanna, um
stefnu þeirra, ef samþykt verður
að framkvæma refsiaðgerðir gagn-
vart Itölum, hefji þeir árásarstríð
á hendur Abessiniumönnum. —
(United Press. — FB).
María Markan
syngur í Hamfeorg
við ágætar undirtektir. —
Hamborg 2. okt.
Söngur og leikur Maríu Markan
í kveld í Schiller-óperunni var
mikill sigur og hlaut hún fult fang
blóma að launum fyrir framúr-
skarandi söng sinn að honum
loknum.
Kristjánsson.
ötan af landL
—0—
Vegabætur.
Stykkishólmi 1. okt. (FÚ).
Síðastliðinn sunnudag fór bif-
reið úr Stykkishólmi kring um
Álftafjörð og inn að Dröngum á
Skógarströnd. í bifreiðinni voru
6 manns. Óku þeir eftir fjörunni
í kringum fjörðinn, en síðan eftir
þjóðveginum, þegar komið var inn
hjá Narfeyri. Þurftu þeir lítið eitt
að ryðja á þessari leið.
Nú er verið að gera við brúna á
Valshamarsá, svo að hún verði bíl-
fær, og verður þá allgóður bílveg-
ur frá Dröngum í Hörðudal. í
sumar hefir verið unnið við að-
gerð og ruðning á þessum vegi
fyrir 3000 krónur. Lagði ríkissjóð-
ur fram 1500 krónur, sýslusjóð-
ur Snæfellsness- og Hnappadals-
sýslu 450 kr., og Skógarstrandar-
hreppur 1050 kr. Til þess að af-
kasta sem mestu fyrir þessa pen-
inga, lögðu Skógstrendingar á sig
þá kvöð að taka aðeins kr. 4.50
fyrir hvern vinnudag.
Heyskapur. Slátrun. Fé heldur
rýrt.
Blönduósi 1. okt. (FÚ)
Fréttar. útvarpsins á Blönduósi
skrifar: Heyskap í Húnavatns-
sýslu lauk víðast um fyrri helgi.
Heyfengur var tæplega í meðal-
lagi. Er hann þó talinn betri og
meiri en síðastliðið sumar, enda
var nýting ágæt eftir höfuðdag.
Slátrun er byrjuð hjá öllum versl-
unum er sláturfé taka. — Hjá
Kaupfélagi Hffnvetninga verður
meira fryst af kjöti en nokkuru
sinni fyr.Sauðfé’ reynist fremur
létt. — Bráðapest hefir allvíða gert
vart við sig.
Brúðkaup.
Rangaárvallasýslu 1. okt. (FÚ)
Brúðkaup Helgu Björgvinsdótt-
ur og Þórarins Þórarinssonar, guð-
fræðings frá Valþjófsstað fór fram
að Efra Hvoli síðastliðinn laugar-
dag. Síra Erlendur Þórðarson
vígði brúðhjónin í Stórólfshvols-
kirkju. Var það um nón. Síðan
var haldin vegleg veisla að fornum
sið fram til óttu. Meðal annars er
þar var til skemtunar var íslenskur
tvísöngur. Fjöldi heillaskeyta
barst víðsvegar að. — Boðsgest-
irnir voru fult hundrað.
BÚSTAÐASKIFTI.
Kaupendur Vísis, þeir er bú-
staðaskifti hafa nú um mánaða-
mótin, eru vinsamlega beðnir að
tilkynna afgreiðslunni í Austur-
stræti 12 (Sími 3400) hið nýja
heimilisfang, svo að komist verði
hjá vanskilum á blaðinu.
Veðrið í morgun.
í Reykjavík 9 stig, Bolungarvík
5, Akureyri 5, Skálanesi 4, Vest-
mannaeyjum 7, Sandi 7, Kvígind-
isdal 7, Hesteyri 2, Gjögri 7,
Blönduósi 6, Grímsey 3, Siglunesi
2, Raufarhöfn 4, Skálum 2, Fagra-
dal 3, Papey 5, Hólum í Homa-
firði 5, Fagurhólsmýri 5, Reykja-
nesi 7, Færeyjum 8. Mestur hiti
hér í gær 12 stig, minstur 5. Sól-
skin í gær 8,5 st. — Yfirlit: Djúp
lægðarmiðja um 400 km. suður af
Vestmannaeyjum á hreyfingu
austur eftir. — Horfur: Suðvest-
urland, Faxaflói, Breiðafjörður:
Hvass norðaustan fram eftir deg-
inum, en síðan lygnir. Úrkomu-
laust. Vestfirðir: Hvass norðaust-
an í dag, en lygnir í nótt. Rign-
ing eða slydda norðan til. Norð-
urland, norðausturland : Allhvass.
norðaustan. Rigning í útsveitum.
Austfirðir, suðausturland: Hvass
norðaustan. Rigning.
Eftirgjafir.
iBæjarstjórn eða bæjarráði hefir
nýlega borist erindi frá oddvita
Dyrhólahrepps, þar sem þess er
óskað, að bærinn gefi eftir „fá-
tækraskuldir hreppsins að nokkru
leyti“. Era slíkar beiðnir til bæj-
arsjóð Reykjavikur frá hreppsfé-
lögum víða utn land orðnar ærið
tíðar, og hefir ekki annars orðið
vart, en að bæjarsjóður verði
greiðlega við öllum þessháttar til-
mælum. Ber slíkt vitni um mikla
rausn og örlæti.
Aflasölur.
Hafsteinn seldi ísfisk í Englandi
í gær fyrir 831 stpd. Gyllir seldi
í Cuxhaven í gær, 110 smálestir,
fyrir 29.450 ríkismörk.
Bæjarstjórnarfundur
verður haldinn á morgun á
venjulegum stað og stundu. —
Kommúnistinn í bæjarstjórn hefir
óskað þess, að fátækramál verði
tekin til umræðu. Annars er fund-
arefnið fundargerðir nefnda og
bæjarráðs og ennfremur útsvars-
mál. 1
78 ára
verður á morgun, 3. okt., Einar
Jónsson, Baldursgötu 1.
Þorsteinn Bjamason
frá Háholti í Gnúpverjahrepp,
rtú til heimilis í Ingólfsstræti 21,
verður 70 ára í dag.
Fimleikaæfingar í. R.
Athygli skal vakin á augl. í. R.
á öðrum stað í blaðinu um að fim-
leikaæfingar hefjist þann 15. þ. m.
Eins og undanfarið verður æft í 1
öllum flokkum. Karlaflokkur,
kvenflokkur, frúaflokkur og Old-
Boys. Þátttaka tilkynnist til Jóns
Kaldal, Laugaveg n, sími 3811.
Gullbrúðkaupsdag
áttu i gær heiðurshjónin Gísli
Sigurðsson og Halldóra Skarphéð-
insdóttir á Vagnsstöðum í Suður-
sveit, Austur-Skaftafellsýslu. Þau
eiga j böm á lífi, öll mesta dugn-
aðar- og myndarfólk.
Næturlæknir
er í nótt Kristín Ólafsdóttir,
Ingólfsstræti 14. Sími 2161. —
Næturvörður í Laugavegs apóteki
og Ingólfs apóteki.
Skip Eimskipafélagsins.
Gullfoss kom til Leith í gær-
kveldi. Goðafoss kom úr hringferð
í gærkveldi. Dettifoss fór frá ITull
í gær áleiðis til Vestmannaeyja.
Lagarfoss og Brúarfoss eru á
Vopnafirði, Selfoss er á leið til
Vestmannaeyja frá útlöndum.
Sig. Nielsson
Bergstaöastræti 30 B, er 70 ára
i dag.
Frá Englandi
eru nýkomnir Max Pemberton
og Hilmir.
Þórólfur
kom af ufsaveiðum í dag.
Féhirðir Sumargjafar
greiðir reikninga vegna dag-
heimilisins kl. 10—12 á morgun,
Ingólfsstræti 14 (niðri).
Kristniboðsfélag kvenna
heldur fund á morgun.
Dansleikur
í sambandi við verðlaunaútbýt-
ingu frá leikmóti Olympsnefndar-
innar verður haldinn í Iðnó í kveld
kl. 10. Starfsmönnum og þátttak-
endum er boðið og öðrum meðlim-
um úr íþróttafélögunum er heimill
aðgangur meðan húsrúm leyfir.
Aðgöngumiðar fást í Iðnó eftir kl.
7 í kveld.
Flutningamir í gær.
Talsverðir flutningar voru hér
í bænum í gær og voru allir bílar
Vörubilastöðvarinnar í gangi allan
daginn. Húsnæðisleysi er nú mun
minna hér í bænum, en að undan-
íörnu og rættist á síðustu stundu
úr fyrir mörgum, sem húsnæðis-
lausir voru. Til fátækranefndar
leituðu færri um húsnæði en nokk-
uru sinni áður.í bæjarhúsunum eru
nokkurar íbúðir lausar. Húsaleiga
hefir ekki hækkað. — Lesið var á
um 630 rafmagnsmæla vegnaflutn-
inga og er það litlu minna en i
vor, en talsvert minna en í fyrra-
haust.
Félagsblað K. R.
Nýlega er komið út félagsblað
K. R. Ætlunin mun að þetta blað
komi út 2svar á ári, þ. e. á starfs-
mótum úti og inni, vor og haust.
Þetta tölublað er myndum prýtt
og fjölbreytt að efni. Um „Starf
og stefnu K. R.“ skrifar form. fé-
lagsins, Guðm. Ólafss. Er greinin
snjallyrt uppörfun til allra íþrótta-
manna. Um „Þýskalandsför ís-
lenskra knattspyrnumanna" ritar
Hans Kragh mjög fjörlega. Þá eru
ennfremur grein um „Að standa í
skilum“ eftir gjaldkerann, Jón Le-
ós og flokkar hann menn í 7
flokka eftir skuldseiglu og skorar
á menn aö komast sem allra fyrst
upp í I. fl. (félagar, sem greiða
strax og með glöðu geði). Þá er
grein eftir Sigurð Halldórsson um
III. fl. K. R. sem gæti heitið:
„Byrjið nógu ungir og nógu vís-
indalega". Loks eru fréttir úr
íþróttaheiminum eftir Sigurð Ól-
afsson og greinar um Ferðanefnd
K. R. og húsnefnd K. R. eftir
Kristján Gestsson. Sérstakt erindi
til félagsmanna eiga tilkynningar
um að innanhúsæfingar byrji 3.
október og að þátttaka í æfing-
um skuli tilkynnast 1. og 2. þ. m.
Kl. 8—10 á skrifstofu K. R. Þar fá
i’élagar skírteini sín. Félagið hefir
bætt við sig mjög vinsælli íþrótt,
sem sé hnefleikum. Kennir Þor-
steinn Gíslason þá íþrótt. D.
78 ára
verður á morgun, 3 okt., Einar
Jónsson, Baldursgötu 1.
Gengið í dag:
Sterlingspund .......... kr. 22.15
Dollar................... —• 4.52JÍ
100 ríkismörk .......... —• 181.55
— franskir frankar . — 2g-9l
— belgur............. — 76.39
— svissn. frankar .. — 147.24
— Hrur................ _ 37.45
— finsk mörk....... — 9.93
— pesetar ............ — 62.52
— gyllini............. — 3°6-°5
— tékkósl. krónur .. — i9-°3
— sænskar krónur .. — 114.36
— norskar krónur . . — 111.44
— danskar krónur .. — 100.00
Gullverð
ísl. krónu er nú 48.88.
Nýja Bíó
sýnir þessi kveldin framúrskar-
andi vel leikna og skemtilega
mynd, sem nefnist „Stærsti sigur-
inn hennar". Aðalhlutverkið leik-
ur söng- og leikkonan Martha
Eggerth af mikilli list.
Þ. K. F. Freyja
heldur fund í Iðnó uppi í kveld.
Er þetta fyrsti fundur ársins og
áríðandi að félagskonur mæti.
Gamla Bíó
sýndi í fyrsta skifti i gær stór-
fenglega kvikmynd, sem nefnist
„Synir Englands“. Kvikmyndin
var sýnd fyrir fullu húsi og mun
óhætt að fullyrða, að hér sé um
að ræða einhverja best gerðu kvik-
mynd, sem hér hefir sést. Aðal-
hlutverkið leikur Gary Cooper.
Eftirtektarverð aukam. er sýnd:
Útför Ástríðar Belgíudrotningar.
Smásaga.
Eftir Freeman Wills Crofts.
Snaith verið honum gáta, liann
sjálfur, persónuleiki hans,
fremur en sagan, sem hann
sagði. Lumiey sá það nú, að
mál hans, framkoma öll, hafði
verið ósamkvæmnislegt. Stuncl-
um hafði liann virst ákaflega
amerískur í aðra röndina, talað
eins og persóna i tiu centa
„reyfara“ eða persóna í lélegri
kvikmynd, en stundum hafði
hann talað eins góða ensku og
Lumley sjálfur. Því lengur sem
Lumley hugsaði um þetta alt
saman, því sannfærðari var
hann um það, að Silas Snaith
hefði verið að leika ákveðið
Iilutverk, en ekki tekist það bet-
ur en svo, að hann hafði við og
við komið sjálfur í ljós, þótt
þetta væri nú fyrst orðið sér
ljóst. í stuttu máli, Lumley var
að sannfærast um, að Snaitli
væri alls ekki Ameríkumaður.
Þegar hann var nú að velta
þessu fyrir sér komst hann inn
á þá braut að álykta, að Snaith
hefði ætlað sér að stela frum-
myndinni í Louvre. Hafði hann
ekki talað um að fara til París-
ar? Gat elcki legið þannig í
þessu, að hann ætlaði sér að
stela frummyndinni og eyði-
leggja mynd Arthurs lávarðs?
Og ef grunur félli á liann gæti
hann haldið þvi fram, að mynd-
in í lians fórum væri sú, sem
hann hafði keypt af Arthur lá-
varði? Þannig hafði verið frá
sölunni gengið, að Snaith mundi
liafa allmikilvægt sönnunargagn
í höndum. Lumley hugði, að
svona gæti legið í þessu, og ef
svo væri, var þá ekki eins lik-
legt að grunur félli á sig, fyrir
aðstoð við að fremja afbrot?
Hvernig gæti hann sannað' sak-
leysi silt — að hann hefði eriga
hugmynd liaft um hvað Snaith
ætlaði sér fyrir?
Lumley ákvað nú, að fara
þegar í stað niður í Scolland
Yard og segja þeim alla söguna
þar, og leita ráða leynilögreglu-
manna þar. Með því sannaði
hann, að hann vildi ekki vera
þátttakandi í að brjóta nein lög.
Hann leit á úrið sitt. Klukkan
var á mínútunni liu. Hann lagði
jiegar af stað i bíl og ók til
Scotland Yard.
Hann óskaði eftir að fá að
lala við þann fulltrúann, sem
var á verði.
Honum var vísað í litið her-
bergi. Þar var maður fyrir, há-
vaxinn og kyrlátlegur, er bar
það með sér, að hann var fær
maður og æfður í sinni grein.
Hann spurði Lumley um er-
indi lians.
„Eg liefi lent í dálítið óvana-
legu æfintýri, ef eg svo mætti
kalla það, fulltrúi,“ sagði hann.
„Eg hefi enga sönnun fyrir því,
að hér sé neitt alvarlegt á ferð-
um, en ýmislegt í sambandi við
]>etta, er dálítið grunsamlegt,
svo að eg komst að þeirri niður-
stöðu, að rétt væri að eg hefði
tal af ykkur hér og leitaði álits
ykkar.“
„Vafalaust rétt ályldað. Ger-
ið svo vel að segja mér frá
þessu i höfuðatriðum.“
Og nú tók Lumley til og
byrjaði frásögnina á heimsókn
Silas Snailh’s. Fulltrúinn lilust-
aði á hann með kurteisissvip, en
án þess, að sjáanlegt væri, að
liann hefði nokkurn álmga fyrir
frásögninni, fyrr en Lumley
nefndi nafn Arthurs lávarðar.
Þá brá sem snöggvast fyrir
glampa í augum hans. Hann
fór að veita nánari athygli því,
sem Lumley hafði að segja, en
gætti þess að grípa ekki fram í
fyrir lionum, og lét liann segja
sögu sína á enda.
„Þér hafið skýrt greinilega
frá þessu öllu, Mr. Lumley,“
sagði liann, „og eg get fullviss-
að yður um, að það hafi verið
rétt gert af yður, að leita álits
okkar. Afsakið mig augna-
hlik."
Hann kom að vörmu spori
og var með lionum annar full-
trúi, sem hélt á skjalabunka.
„Þetta er Niblock lögreglu-
fulltrúi", sagði liann, „og geri
eg ráð fyrir, að hann muni
lilýða á frásögn yðar með enn
meiri athygli en eg. Eg vænti
þess, að þér gerið oss þann
greiða, að endurtaka frásögn
yðar?“
Mr. Lumley hóf nú frásögn
sína á nýjan leik og er hér
skemst af að segja, að Niblock
þessi gat vart dulið það, hversu
mikil áhrif frásögnin liafði á
hann, og eru lögreglufulltrúar í
Scotland Yard þó vanir því, að
láta ekki á því bera, livort frá-
sagnir slíkar sem þessar hafa á-
hrif á þá eða ekki. Hannþakkaði
Mr. Lumley fyrir frásögnina
og fór þegar að blaða í skjölum
sínum og tók fram nokkrar
ljósmyndir og rétti Lumley.
„Gerið þér svo vel og litið á
þessar ljósmyndir,“ sagði hann.
Mr. Lumley gerði eins og
hann var beðinn. Ljósmyndirn-
ar, sem voru allmargar, og
límdar á spjöld, virtust vera af
„skikkelsis“ fólki. Hann var
dálítið Irissa á, að sjá myndir af
„svona fólki“ þarna, en undrun
hans verður ekki með orðum
lýst, er hann tók fjórðu mynd-
ina sér i hönd, þvi að hún var
af Silas Snaitli og engum öðr-
um.
„Hafið þér séð hann áður?“,
spurði Nihlock og hló við lítils
háltar og neri saman höndun-
um. „Eg held, Mr. Lumley, að
þér hafið gert miklu betri
,,kaup“ en yður grunaði.“
Hann varð þegar i stað mjög
alvarlegur á svip og virtist mjög
hugsi stundarkom.
„Við verðum að ákveða fyrir-
fram í einstökum atriðum
hvernig við eigum að liaga okk-
ur, þvi að alt er undir því kom-
ið, að okkur verði engin skissa
á“. —
Lögreglufulltrúarnir töluðu
saman í hálfum Iiljóðum i
nokkrar mínútur, en því næst
sneri Niblock sér að Lumley og
mælti: :
„Þér segið, að málverkið sé i
peningaskápnum yðar, Mr.
Lumley? Eg geri ráð fyrir, að
það sé óhreyft, þ. e. a. s., að
ekkert hafi verið hróflað við
því, síðan er þér tókuð við þvi
af Arthur lávarði?“
„Nei. Það hefir ekkert verið
hróflað við þvi.“
„Við verðum að ná i málverk-
ið undir eins. Viljið þér koma
með okkur í skrifstofu yðar
undir eins og afhenda okluir
það ?“
Mr. Lumley og lögreglufull-
trúarnir lögðu af stað þegar i
leigubifreið og óku til skrifstofu
Lumley’s. Fór hann með leyni-