Vísir - 05.12.1935, Qupperneq 3
VlSIR
Hiifoas
Og
jarðfræði íslands.
1 myndablaði því sem sagt er
að allravíðast muni koma —
Illustrated London News —
var fyrir nokkrum mánuðum,
ein síða helguð myndum af ís-
lenskum fossum. Háifoss var
þar eldci, og er svo víðar, þar
sem sýndar eru myndir af því
á íslandi sem helst þykir þess
vert; t. d. má nefna bók Gunn-
ars Gunnarssonar, Sagaöen. Má
af slíku ráða, að foss þessi sé
ekki eins frægur og vert væri.
Þvi að Háifoss á skilið að vera
frægastur þeirra fossa sem hér
á landi eru. Virðist mér enginn
sá foss sem eg hefi séð, vera niá-
lægt því að komast til jafns við
hann. Og í hvert skifti sem eg
hefi að honum komið, hefir
mér virst hann langtum svip-
meiri en mig minti hann væri.
Og ekki spillir það til, liversu
fossbergið umhverfis er mikil-
fenglegt og stórfróðlegt. Utan
við fossinn er jarðfall eða berg-
fall stórkostlegt og hefir þar
brotnað niður hamrabrún há-
lendisins. Ekki man eg nú að
nefna hversu víðáttumikið jarð-
fall þetta er, en hitt man eg vel,
hversu langt og erfitt mér fanst
það yfirferðar er eg var þar
með vinum mínum Hlíðar-
bræðrum, Páli og Guðmundi,
sem voru að sýna mér fossinn.
Jarðfall þetta heitir Hraunið,
og er það nafn fornt, þvi að
hraun í nútimamerkingu þess
orðs, er þarna ekki. í ritgerð
sem eg skrifaði um þetta og
kom 1895 í tímariti sem hét
Naturen og Mennesket og nú er
löngu undir lok liðið, er jarð-
fall þetta nefnt Hrunið, af mis-
skilningi nokkrum, og væri þó
réttnefni ef á myndunarsöguna
er litið. Hraunið er síðasta við-
bótin af því tagi við Suðurlands-
undirlendið, og má þar sjá af-
leiðingarnar af nokkuð stór-
kostlegum jarðskjálfta. Menjar
jarðskjálftanna miklu og ill-
ræmdu sem urðu haustið 1896,
má einriig sjá þarna, því að þá
hrundu niður björg þau sem
spilla hylnum undir fossinum.
Er fróðlegt að bera þau verks-
ummerki saman við Hraunið.
Hafi munurinn á jarðhræring-
unum verið að því skapi, sem
ekki er ólíklegt, mun jarð-
skjálftinn, sem fyrir 2—3000
árum saxaði á hálendisbrúnina
svo að Hraunið varð til, hafa
Á stjórnarárum sjálfstæðis-
flokksins voru skuldir ríkis-
sjóðs lækkaðar um nálega
helming eða um 8 milj. kr.
Með því voru vaxtaútgjöld rik-
issjóðs lækkuð sem því svarar.
Samtímis voru tollarnir á nauð-
synjavörum lækkaðir. Ef sjálf-
stæðisfl. hefði farið með völd
úfram, liefðu skuldir rikissjóðs
sennilega verið greiddar að
fullu á næstu árum, eða sem
því svarar lagt til framkvæmda,
sem lán hafa verið tekin til og
nauðsynjavörutollar hefði ver-
ið lækkaðir.
Það er að minsta kosti aug-
Ijóst, að viðhorfið hefði þá ver-
ið alt annað en nú, og auðveld-
ara að afla f jár til nauðsynlegs
stuðnings atvinnuvegunum og
styrktar atvinnuleysingj um
en nú, þegar skattaáþjánin
er orðin svo mikil, að jafnvel
hinir ráðandi flokkar yerða að
viðurkenna, að lengra verði
ekki gengið í því efni og þegar
lánstraust þjóðarinnar er ger-
samlega þorrið.
verið ærið stórfeldur, og vafa-
samt hvort nokkurt hús á ís-
landi mundi uppi standa, ef
slíkur kæmi aftur.
Brotabrúnir hálendisins, slik-
ar sem koma svo fagurlega
fram þarna við Þjórsárdalinn,
þóttu áður, og alt þangað til um
aldamótin siðustu, næsta verð-
litlar frá jarðfræðilegu sjónar-
miði. En þær hafa þó raunar
stórfróðlega sögu að segja, þeg-
ar menn læra að þekkja og
greina sundur bergtegundirnar,
þrátt fyrir þær miklu breyting-
ar af jarðlúta og öðru, sem gert
höfðu þær svo torlœnnilegar, að
jafnvel hinir færustu jarðfræð-
ingar höfðu skoðað þær, hver
eftir annan, án þess að skilja
nokkuð í þeim.
II.
Alhr sem kynnast vilja ís-
lenskri náttúru þurfa að skoða
Háafoss, og býst eg við, að fáir
muni þeir verða, sem ekki lang-
ar til að sjá hann oftar en einu
sinni. Og Eimskipafélagið ætti
að styðja að frægð fossins háva
með því að láta næsta skip silt
heita hans nafni. Vildi eg þess
óska, að það skip yrði svo
merkilegt, að ekki bæri síður
af öðrum skipum félagsins en
Háifoss af öðrum fossum lands-
ins. Segi einhver, að ekki séu
nú tímar til að tala um slíkt, þá
er þar til að svará, að þeir tím-
ar gætu auðveldlega orðið.
Breyttir tímar eiga fyrst og
fremst rót sina í bættu hugar-
fari, aukinni þekkingu —
þegar til batnaðar er. Hér
á Islandi hefir, þrátt fyrir allan
vornæðing, VSxið upp vísir
nýrrar þekkfngar og þó í fullu
samræmi við það sem hefir
hér áður orðið og aldrei kulnað
með öllu út. Enginn getur um
það efast, að svo hefir farið
sem eg sagði fyrir löngu, að
óheillavænlegt mundi reynast
að gefa þessu engan gaum.
Geri menn nú á hinn veginn og
munu þá ekki lieldur bregðast
afleiðingarnar. Farsælda Frón
mun ísland fljótt verða, þegar
þjóðin fer að átta sig á sjálfri
sér og lilutverki sínu. Og full
þörf mun verða góðra skipa til
að flytja hingað alla þá sem
landið vilja gista þegar Baldur
verður aftur kominn, eins og
skáldið (William Morris) kvað.
4. des.
Helgi Pjeturss.
Frá Alþingl
Efrí deild.
Þar var tekið til 3. umr. frv.
til 1. um bráðabirgðatekjuöflun til
ríkissjóðs. Jón A. Jónsson tók til
máls og hélt langa og ítarlega
ræðu um skattamál landsmanna og
sýndi fram á, til viöbótar við það
sem áður hafði verið sagt, við
fyrstu umr, hve mikið óráð slíkar
skattaálögur væru og hve lítið
væri fyrir því hugsað hvar þær
kæmu niður og hvaða áhrif þær
hefðu á hag almennings. Breyt-
ingartilögur hafa komið fram við
þelta skattafrv. frá Pétri Magnús-
syni og Guðrúnu Lárusdóttur, en
tími vanst eigi til neinna umræðna
þeim viðvíkjandi, því fundi var
slitið kl. 2 vegna útvarpsumræðn -
anna frá fundi í sameinuðu þingi.
Neðri deild.
íFrv. til 1. um alþýðutryggingar
var til 2. umr. Héðinn Vald. liélt
ræðu sem framsögum. meiri hl.
allsherjarnefndar, og vill sá hluti
nefndarinnar samþ. frv. með litl-
um breytingum. Minni hlutinn vill
samþ. slysa-, elli 0g örorkutrygg-
ingarnar og eins slysatrygging-
arnar, en atvinnuleysistrygging-
arnár ekki. Færá þeir þau rök fyr-
ir því að slíkar tryggingar séu
erfiðar og dýrar í þjóðfélagi, þar
sem atvinna er jafn bundin við
árstíðir og raun er á hjá okkur.
í öðru lagi eru fjárhagsörðug-
leikarnir svo miklir að ríki og
bæjarfélög geta ekki lagt af
mörkum stórar upphæðir, minst
150 þús. kr. árlega, til slíkra trygg-
inga í kaupstöðum. Nær væri, ef
fé væri til, að leggja það í að
skapa aukna atvinnu með þjóðinni.
Ennfremur telur frsra. minnihlut-
ans að atvinnuleysismeðgjafir í
kaupstöðum miði til þess að auka
þann fólksstraum úr sveitunum,
sem án fyrirhyggju og forsjár hef-
ir undanfarið offylt kaupstaðina.
Annars var frv. ekki rætt að þessu
sinni frekar en það, að H. Vald.
hélt framsöguræðu sina, því að
henni lokinni var umræðu frestað.
EldMsnmræðnr
( gærkveldi.
Haldið var áfram í eldhúsinu í
gærkveldi og héldu umræður á-
fram á þeim brautum, sem mark-
aðar voru í frumræðum daginn áð-
ur. Sjálfstæðismenn lögðu einkum
áherslu á að rekja í sundur undan-
farandj fjármálaóstjórn og sýndu
fram á með glöggum rökum hvert
stefndi i þeim efnum und ir þeim
klíkuyfirráðum, sem nú skipa lög-
um í landi. Þeir báru saman stjórn
þessara rnála á árunum '24—'27 og
þá óhófseyðslu og sukk, sem ríkti
á Jónasarárunum, og áframhald-
andi skatt-píningu og kúgun at-
vinnuveganna undir yfirstjórn Isy-
steins Jónssonar. Sjálfstæðismenn
komu einnig inn á afurðasölumálin
og alla þá handvömm og sukk, sem
þar hefir átt sér stað, þeir átöldu
stjórnina fyrir bitlingaveitingar og
óhóflega eyðslu í hinar og þessar
nefndir. Þeir deildu harðlega á ein-
okunarstefnuna og þá lítilsvirð-
ingu á einstaklingsfrelsi og fram-
taki, sem lýsti sér í gerðum núver-
andi valdhafa. J. Bald. sagði
reyndar í ræðu út af ummælum
sjálfstæðism. um of dýrar og of
margar nefndir, að þessar ádeilur
væru einungis sprottnar upp af
því að þeir sæi ofsjónum yfir
gagnsemi og dugnaði nefndanna!!
Ólafur Thors hafði talað um nauð-
synina á því að bændur sjálfir
fengju stjórn afurðasölumálanna í
sínar hendur og að þeim bæri að
fara að þekkja "sinn vitjunartíma
um það, að styðja ekki lengur þá
stjórn, sem svo illa kæmi fram
gagnvart þeim, eins og hefði sýnt
sig í framkvæmd afurðasölunnar.
Þetta sagði J. Bald. að væri „naz-
istisk tillaga“! Slíkar og þvílíkar
voru röksemdir jafnaðarmannafor-
ingjans. Ól. Th. sneri sér annars
helst að Eysteini í umræðunum og
dró fram í dagsljósið þá heit-
strengingu ráðherrans að koma á
greiðslujöfnuði við útlönd á þessu
ári, en 'þaði hefir mistekist hrapal-
lega. —■ Síðan E. J. tók við stjórn
hefir landið ’sokkið 22 miljónum
dýpra í skuldafenið vegna óhag-
stæðs greiðslujafnaðar. Allur fer-
ill þessa ráðherra er ófarir á ó-
farir ofan í baráttunni við þau
viðfangsefni, sem hann átti að
leysa úr. Stjórnarliðar héldu áfram
að veifa þeirri blekkingu framan
í almenning að nýju tollaálögurnar
næðu aðeins til luxusvarnings,
þrátt fyrir það þó svo sé í reynd-
inni að mest af því, sem landslýð-
urinn þarf í sig og á, sé sett undir
þessa nýju hækkun. ITræðslan við
að almenningi sé það sama ljóst,
kemur glögt fram í þessu yfirklóri
rauðu þingmannanna. Bænda-
flokksmennirnir deildu einnig
mjög harðlega á stjórnina fyrir
framkomu hennar í afurðasölu-
málunum og lét Þ. Briem höggin
óspart ríða að höfði landbúnað-
arráðherra. Varnir Herm. Jónas-
sonar voru ærið kjánalegar, enda
er öllum kunnugt, að málstað-
urinn er illur. Andstæðingar
stjórnarinnar sóttu fast á og voru
rök þeirra þung og mikil gegn
málstað stjórnarinnar. — Af hálfu
sjálfstæðismanna töluðu Ól. Thors,
G. Sv., Jakob Möller.
Bændaflokksmennirnir báðir
töluðu aftur, enn einu sinni, en af
hálfu Framsóknarflokksins töluðu
ráðherrarnir báðir og Jónas. Af
hálfu socialista J. Bald., Sig Ein.,
Haraldur atvinnumálaráðherra. —
Það vakti athygli, að enginn þing-
maður taldi' samboðið virðingu
sinni, að ansa Jónasi.
Þóra Friðbjarnardóttir
sjötug.
—O—
Það er erfitt að gera góðverk,
ef sá kvarði er lagður á þau, að
hægri höndin viti ekki hvað hin
vinstri gerir. — Þeir eru víst fáir,
karlar og konur, sem hafa leyst
þessa gestaþraut lífsins. Þó eru
slíkir einstaklingar til, sem betur
fer, en það er erfitt að jiekkja þá
frá fjöldanum, því þeir dylja þessa
hluti fyrir sér og öðrum. En ó-
varikárnin getúr h§nt ftlla, og í
þessu efni nægir, ef nægti liður
í keðjunni segir eftir. — Þessari
skapgerð fylgir sú náðargjöf, að
spyrja ekki um, hver það er, sem
líknarinnar þarf, hvort það er
maður eða málleysingi, ungur eða
gamall, ljótur eða fagur. Það er
aðeins bróðir eða systir, sem ekki
má líða þraut án líknar. —Þannig
er vihkona mín, Þóra Friðbjarn-
ardóttir i Tungu, og þannig hefir
hún ætíð verið þessi sjötíu ár, sem
gengin eru af æfi hennar. — Hún
hefir ekki farið varhluta af ýms-
um erfiðleikum, en svo virðist sem
það hafi aðeins skerpt sjón henn-
ar á vanlíðan annara. — Börnin,
vesalingarnir og málleysingjarnir
eru vinir hennar við fyrstu sýn,
og þá er sjaldgæft að pyngjan sé
svo létt, að ekki sé þar til pen-
ingur handa bágstöddum, ef á
liggur, en eyrir ekkjunnar er sí-
gild mynt.
Þau eru mörg börnin og margir
ínálleysingjarnir sem Þóra Frið-
bjarnardóttir er búin að gleðja
þessi 70 ár, sem af eru -æfi henn-
ar, og eg óska þess og vona, að
hún lifi enn um skeið, til að verma
og gleðja alla vesæla sem verða á
vegi hennar, þó það gangi henni
nær að geta ekki upprætt sársauk-
ann, en það verður svo að vera
fyrst hún er þannig gerð.
Th. A.
til þess aS skera úr því,
hvort Bandaríkjastjórn sé
heimilt, samkvæmt stjórn-
arskránni, að banna olíu-
flutninga til Italíu.
London 4. des. (FÚ).
Mál verður nú höfðað í Banda-
ríkjunum til þess að fá það prófað
fyrir dómstólum, hvort stjórninni
er það heimilt samkvæmt stjórnar-
skránni, að banna olíuflutninga til
Ítalíu. Heitir sá Giordano, er málið
höfðar, og er ritstjóri ítalska
(Bandaríkjablaðsins Italo Pro-
gresso. Málið er höfðað gegn með-
limum hergagnaeftirlitsnefndar-
innar, og vill ritstjórinn fá álykt-
tm hennar um olíubannið dæmda
dauða og ómerka. Cordell Hull,
'utanríkismálaráðherra og 4 öðrum
ráðherrum er stefnt til að mæta í
málinu.
Reykjavík
forfedra voppa.
Félagið Ingólfur efndi til
skuggamyndasýningar i Yarð-
arhúsinu í gær, lil þess að sýna
gamlar myndir frá Reykjavik.
Mátti heita, að húsfyllir væri, og
hefir það þó vafalaust dregið úr
aðsókninni, að eldhúsumræðum
var útvarpað í gærkveldi. Dr.
theol. Jón biskup Helgason
hafði sýnt stjórn Ingólfs þá góð-
vild, að skýra myndirnar, en
biskupinn er kunnastur sögu
Reykjavikur núlifandi manna,
og voru skýringar lians gagn-
orðar og stuttar, eins og nauð-
synlegt var, en mjög skemtileg-
ar og fræðandi. Myndasýning
félagsins „Ingólfur“ í sumar var
liin ánægjulegasta, en eg hika
ekki við að fulhmða, að almenn-
ingur hafi miklu meira gagn af
slíkri sýningu sem þessari, þeg-
ar ágætur maður skýrir liverja
mynd um leið og hún er sýnd.
Auk þess njóta myndirnar sín
ljómandi vel á tjaldinu og
sjást þar hæfilega stækkaðar, til
þess að menn geti notið þeirra
sem best má verða.
Það var ánægjulegt að vera á
sýningunni í gærkveldi, ékki að
eins að sjá myndirnar og heyra
skýringarnar af munni biskups
vors, heldur að sjá það jafn
greinilega og raun varð á,
liversu ánægja manna var mik-
il, þvi að á hvers manns andliti
var ánægjubros, er menn héldu
heim, og allir voru að tala um
það, sem þeir höfðu séð á sýn-
ingunni. Var þarna margt gam-
alla Reykvíkinga, og talsvert af
ungu fólki. Þegar klukkustund
var liðin, var sýningin í raun-
inni búin, en nokkurar „plötur“
voru þá enn ósýndar og var því,
að ósk allra viðstaddra, lialdið
áfram, uns engin mynd var
ósýnd. Biskupi þökkuðu menn
með lófataki ágætar skýringar,
en hann þakkaði mönnum
komuna fyrir hönd „Ingólfs“.
Sýningin verður vafalaust end-
urtekin.
a.
Vetrarhjálpin hér í bænum er nú
aS hefjast. Stefán A. Pálsson um-
boösmaSur hefir veriö rá'ðinn for-
stöðumaður hennar í staS Þór-
steins Barnasonar, sem hafSi for-
stöSuna í fyrra. Framkvæmda-
nefnd skipa nú Ásmundur GuS-
mundsson guSfræSiprófessor, Ámi
SigurSsson fríkirkjupr., Magda-
lena Guðjónsdóttir skólahjúkrun-
arkona, ÞuríSur Þorvaldsdóttir
skólahj úkrunarkona, Magnús V.
Jóhannesson fátækrafulltrui, Þór-
steinrí Bjarnason körfugerðarmaS-
ur og framkvæmdarstjórinn Stefán
A. Pálsson umboðsmaSur.
Vetrarhjálpin hefir skrifstofu í
húsi viS Skúlagötu, beint á móti
sænska frystihúsinu (þar sem áður
var kolaverslun Olgeirs FriSgeirs-
sonar) Sími 1490. Er skrifstofan
opin fyrir almenning frá kl. 2til
4 alla virka daga, og er fram-
kvæmdarstj órinn ávalt til viStals á
þeim tíma.
Eru þaS vinsamleg tilmæli for-
"stöSumanns og nefndarmanna aS
bæjarbúar bregSist nú vel viS eins
og áður. Sérstakleg'a skal á þaS
minst aS fatnaSargjafir allskonar,
dúkar, föt, sem hægt er aS breyta
o. s. frv. er þakksamlega þegiS, og
vonast eftir aS þær gjafir komi
sem fyrst, svo hægt sé aS sauma
fatnaSi handa fátækum heimilum
fyrir jólin, þar sem mest þörf er á.
Gjöfum er veitt móttaka í franska
spítalanum, eSa sent eftir þeim, ef
tilkynt er í síma Vetrarhjálparinn-
ar 1490.
ítalska
stjórnin
gefur út tilkynningu um,
að hún hafi ekki gefið
Standard Oil nein einka-
söluréttindi á bensíni á It-
alfu.
London 4. des.
ítalska ríkisstjórnin hefir birt
tilkynningu þess efnis, aS þaS sé
rangt, aS hún hafi veitt eSa ætli
aS veita Standard Oil Company í
New York einkasöluréttindi á
bensini á Ítalíu og segir í tilkynn-
ingunni, aS þetta hafi ekki viS
nein rök aS, stySjast. Eins'og sím-
aS var í morgun hafSi United
Press fregnaS samkvæmt heimild-
um, er U. P. hefir ekki reynt aS
óáreiöanleik, aS samkomulag hefSi
náSst milli Ítalíustjórnar og undir-
félags Standard Oil í New Jersey
um útvegun oliubirgSa o. s. frv.,
en forseti Standard Oíl í New
York, er U. P, spurSi um þetta
neitaði, aS fregnin hefSi viS rök
aS styöjast. (United Press—-FB).
Árekstur á sj ó
Oslo 4. des.
Frá Ramsgate er sjmað til Sjö-
fartstidende, að tankskipiS Buckin-
um frá Arendal hafi rekist á
breska tankskipið Corinthus fyrir
austan Goodwing vitaskipiö. BæSi
skipin sködduðust viS áreksturinn.
Kom gat á hliðina á Buckinum, en
skipiS gat haldiö áfram til London.
(NRP—FB).
Ofviðri á
Norðupsjó.
Oslo 4. des.
Miklir stormar hafa verið á
Noröursjó aö undanfömu. E.s.
Gulhaug er nýkomiS til Stavanger
ineS kola- og koksfarm frá Eng-
landi.'Öllum þilfarsfarminum, 125
smálestum, skolaSi fyrir borö. —
(NRP—-FB).
1.0.0 f
Veðrið í morgun:
í Reykjavík —4 stig, Bolungar-
vík o, Akureyri —3, Skálanesi 3,
Vestmannaeyjum 2, Sandi —1,
Kvígindisdal —4, Hesteyri —1,
Gjögri o, Blönduósi —2, Siglu-
nesi 1, Grímsey 1, Raufarhöfn 1,
Fagurhólsmýri 1, Reykjanesi —4
stig. Mestur hiti 1 stig. Mest frost
3 stig. Yfirlit: LægS aS nálgast
úr suðvestri. Horfur. Suövestur-
land, Faxaflói, BreiSafjörSur,
Vestfiröir: Vaxandi austan 0 g
suðaustanátt og þyknar upp í dag.
Snjókoma og síSan rigning í nótt.
NorSurl., norSausturland, AustfirS-
ir: Noröan og noröaustangola í
dag, en vaxandi austan eSa suö-
austanátt í nótt. Úrkomulítið.
Suðausturland: Hægviöri í dag, en
þyknar upp meö vaxandi austan
eöa suSaustanátt í nótt.
Símabilanir.
Símaslit uröu í gærkveldi milli
Leirvjkur og Kirkwall, en eigi
kunnugt hér í morgun nánara um
bilanirnar. Reykjavík hafSi ekki
samband viS SeySisfjörö í morgun
vegna bilana, nema þráSlaust sam-
band. Má búast viS aS skeytum frá
útlöndum seinki eitthvað.
85 ára
er í dag Sólveig Níelsdóttir,
Elliheimilinu Grund.