Vísir - 10.12.1935, Blaðsíða 3
VÍSIR
Óðinn.
SíSari hluti árgangsins 1934
(júlí-—desember) er nú kominn ut
fyrir skömmu.
Hefst blaöifS á smágrein (með
mynd) af hinum nýja borgarstjóra
Reykjavíkur, Pétri Halldórssyni.
— Þá er grein um „SamsætiS í
Glaumbæ 10. júní 1934“» er sóknar-
börn héldu presti sínum, síra Hall-
grími Thorlacius, í minningu þess,
að hann hafSi þjónað Glaumbæj-
ar- og VíSimýrar-kalli um 40 ára
skeiö. Síra H. Th. varö sjötugur
um þetta leyti og mun nú hafa
látiö af prestsþjónustu. Hefir hann
veriS vinsæll meSal sóknarbarna
sinna og aldrei sókt um ann-
aS prestakall, eftir aS hann kom
aS Glaumbæ. En áSur hafSi hann
veriS prestur aS Ríp í Hegranesi
um 6 ára bil. —
ÓSinn flytur aS þessu sinni, svo
sem venja hans hefir veriS frá
upphafi, minningargreinir (meS
myndum), um ýmislegt fólk, lífs
og liSiö, og auk þess kveSskap, m.
a. kvæöi um Stefán frá Hvítadal,
eftir Jens Sæmundsson. Guttorm-
ur J. Guttormsson á þarna leikrit
í einum þætti og heitir þaS „Bylt-
ingin“. — V. G. (Vigfús GuS-
mundsson) skrifar langa grein um
„Reynifellshjónin, Árna og GuS-
rúnu“. Árni fæddist 1824 og and-
aðist 1891. Hann var sonur GuS-
mundar Brynjólfssonar í Árbæ í
Rangárvallasýslu og Ingibjargar
konu hans Árnadóttur, bónda á
Brekkum á Rangárvöllum. —
Síra FriSrik FriSriksson heldur
áfram hinum fróðlegu og skemti-
legu ævisöguþáttum sínum
(Starfsárin II.). RæSir kafli sá,
sem 'ÓSinn flytur nú, mestmegnis
eSa einvörSungu um starf síra
. FriSriks hér heima fyrir, m. a. um
K. F. U. M. í HafnarfirSi eSa starf
hins ágæta æskulýSsleiðtoga þar.
— Síra FriSrik kemur til dyranna
eins og hann er klæddur, hispurs-
laus, einlægur, opinskár og skemti -
legur — alveg eins og hann er
sjálfur í öllu líferni sínu og aS
eölisfari. — Þykir nálega hverj-
um manni hinn mesti fengur í ævi-
söguköflunum, jafnt þeim, sem aS-
hyllast trúarskoSnir höf. og öSr-
um. Undan því einu hefir veriS
kvartaS, svo aS sá viti, er þessar
línur ritar, aS höf. sé alt of spar
á ártölin. Fyrir þær sakir geti ó-
kunnugir oft og einatt ekki áttaS
sig á því, hvar nú sé komiS frá-
sögninni (aS tímanum til) — nema
meS sérstakri eftirgrenslan eSa
'rannsókn. Þykir þetta nokkur
ljóSur á ágætu verki og aS öSru
leyti mjög fróölegu. —
Varnarróðstafanir ítala
oegn retsiaðaerðunum.
•Það liefir mikið verið um það
rætt í erlendum blöðum að
undanfömu hverjar ráðstafanir
ítalir muni gera í varnarskyni
gegn refsiaðgerðunum. Litils-
háttar hefir verið að þessu vikið
í skeytum, sein hingað hafa bor-
ist, en ekki er úr vegi að kynna
sér það nokkuru nánara, og
einkum hverjum augum Italir
sjálfir líta á þessi mál. Einn af
fréttariturum stórblaðanna am-
erísku gerir þessi mál að um-
talsefni i löngu skeyti frá Róma-
horg í fyrra mánuði og verður
efnis þess að nokkuru getið hér,
þar sem nýjar refsiaðgerðir
vofa yfir, ef ekki næst sam-
komulag um tillögur þær, sem
þeir Hoare og Laval hafa komið
sér saman um, og lagðar verða
fyrir stjórn Italíu, stjórn Abess-
iníu og ráð Þjóðabandalagsins
nú í yfirstandandi viku, eins og
hermt er í skeytum í gær og i
dag. Fréttaritarinn, sem að
framan var minst á, segir á
þessa leið:
„Það er alment viðurkent hcr
(þ. e. i Rómaborg) að refsiað-
gerðirnar muni baka ítölum
milda erfiðleika. En hversu
miklir sem þeir erfiðleikar
verða og hvað liart sem þjóðin
verður að leggja að sér af völd-
uin þeirra, mun hún taka því
sem að liöndum ber með festu
og stillingu. Þjóðinni er ljóst
livað í liúfi er, en hún ætlar
ekki að sitja auðum liöndum
og láta erfiðleikana dembast
yfir sig, heldur hefjast handa
um gagnráðstafanir þegar í
stað, og nota tækifærið um leið
til gagngerðrar endurskipulagn
ingar á viðskifta- og fram-
leiðslufyrirkomulagi Iandsins.
Varnarráðstöfununum má
skifla í þrjiár greinar. í fyrsta
lagi verður reynt að draga úr
neyslu ýmissa framleiðsluteg-
unda eftir þvi sem fært þykir
og nauðsyn krefur. í öðru lagi
verður reynt að notast sem mest
við innlenda framleiðslu i stað
þeirrar erlendu framleiðslu, sem
nú verður liætt að flytja til
landsins. í þriðja lagi verður
skift um markaði. Árið 1934
nam innflutningur ítala á verk-
smið j uvarningi (manuf actured
goods) 1.541.000.000 lírum (um
$134.000.000). Þvi er haldið
fram hér, að þennan stóra lið sé
hægt að strika út af útgjalda-
bálkinum. Á sama ári fluttu ít-
alir inn fyrir 1.534.000.00 lírur
liálfunnar vörur (semi-finished
goods). Þvi ér einnig haldið
fram hér, að ítalir geti liætt við
þennan innflutning að mestu og
framleitt það, sem nauðsynleg-
ast er af þessu sjálfir, að minsta
kosti um nokkurn tima. Rikis-
stjórnin lieldur þvi fram, þrátt
fyrir það að Ítalía sé ekki auð-
ugt land, að það sé eftirtektar-
vert, liversu skilyrðin hafi verið
bætt til þess að þjóðin geti
bjargað sér sjálf á þessu sviði.
En þólt mörgum muni finnast
mikillar bjartsýni gæta í því,
sem sagt er, hvað Ítaíir geti í
þessum efnum, verður eklci ef-
ast um fasta ákvörðun þeirra í
að spara sem mest og erfiða sem
mest, til þess að draga úr áhrif-
um refsiaðgerðanna. Og vegna
þessarar öflugu ákvörðunar, og
fram hjá mikilvægi hennar
verður ekki gengið, er því hald-
ið fram, að takast muni að
draga stórkostlega úr innflutn-
ingnum, einkanlega á því sviði
scm að framan var um rætt. Og
víst er um það, að afar mikið af
slikum varningi liefir verið flutt
inn, sem hægt er að komast af
án, eða notast við heimasmíðaða
muni í staðinn o. s. frv. ítalir
liafa lagt sig talsvert eftir því að
benda Frökkum á, hverjar af-
leiðingar þetta hafi fyrir þá, í
von um að gera þá sem deigasta
við að samþykkja refsiaðgerðir
og framfylgja þeim. Þeir benda
á, að árlega hafi Italir flutt inn
óhófsvarning frá Frakklandi
fyrir stórfé á ári hverju, gim-
steina, skartvarning hverskonar,
tískuldæðnað, vín o. m. fl.
„Alls þessa“, segja ítalir nú,
„getum við án verið — og varið
fénu til annars.“
Rikissjjórnin hefir þegar skip-
að svo fyrir, að allir sérfræðing-
ar landsins skuli, hver á sínu
sviði, leggja lið sitt til þess, að
þjóðin geti bjargast upp á eigin
spýtur, notað sína eigin fram-
leiðslu í stað erlendrar. Rikis-
stjórnin viðurkennir, að í viss-
um greinum geti Italir ekki orð-
ið sjálfbjarga, en geri sér vonir
um að geta fengið það, sem ekki
fæst frá refsiaðgerðalöndunum,
annarstaðar frá. Á það er bent,
að að eins fjórar þeirra þjóða,
sem ekki taka þátt í refsiaðgerð-
unum, keyptu 25% af útflutn-
ingi ílala 1934, en frá þessum
þjóðum fluttu ítalir inn 30% af
innflutningnum. Þessar þjóðir
eru Bandaríkjamenn, Japanar,
Brasilíunienn og Þjóðverjar. En
sumar þessar þjóðir hafa þegar
gert ráðstafanir, sem ganga i
svipaða átt og refsiaðgerðirnar.
Aukin vörukaup eru ráðgerð við
Austurríki og Ungverjaland og
kolakaup við Þýskaland. Það er
von ítalskra hagfræðinga og
allra leiðandi ítala, að með
sjálfsaga, sjálfsafneitun, sparn-
aði og erfiði, geti ítalir komið
svo ár sinni fyrir borð, að refsi-
aðgerðirnar sligi þá ekki, og að
þeirra vegna komist riýtt og
betra skipulag á í Italíu.“ -
Afengis—
bpuggun vi@
Patreksfj öpö.
F. Ú. í gær.
Síöastliöinn föstudag geröi
iBjörn Blöndal, löggæslumaöur,
húsrannsókn hjá Magnúsi Jóns-
syni, bónda á Hfaöseyri viö Pat-
reksfjörð. í fjósinu fanst um 50
lítra kvartil fult af áfengislegi í
gerjun og í gangi noröaustur af í-
búöarherberginu fanst annað kvar-
til jafn stórt, einnig fult af áfeng-
islegi í gerjun. Þá fundust brugg-
unartæki í heyhlöðunni og hálf-
flaska af heimatilbúnu áfeVigi
fanst i stofu í íbúðarhúsinu.
Sýnishorn voru tekin og afhent
Efnarannsóknarstofu ríkisins. til
rannsóknar. — Magnús meðgekk
aö hafa byrjað að brugga fyrir
jól 1933 og hafa gert það af og
tii fram til þessa dags. Þriggja
pela flösku af brennivini lcvaðst
hann hafa selt fyrir 5—6 krónur
gegn peningum eða vörum.
Þá gerði löggæslumaður síðast-
liðinn laugardag húsrannsókn hjá
Þórarni Helga Fjeldsted í Rakna-
dal við Patreksfjörð..— Þar fund-
unst í fjósi tveir stampar samtals
um 100 lítra og á eldhúsgólfi einn
stampur 20 lítra — allir fullir af
áfengislegi i gerjun. Einnig fanst
í eldhúsi lítið eifl af heimabrugg-
uðu áfengi. — Loks fundust
bruggunartækin falin í búrinu.
Sýnishorn voru tekin og afhent
Efnarannsóknarstofu ríkisins til
rannsóknar.
Þórarinn meögekk að hafa
byrjað að brugga í nóv.mánuði
J933 °8' gert það af og til fram
til þessa dags. — Flöskuna kvaðst
hann hafa selt fyrir 2 krónur til
kr. 3,50 hverja gegn peningum eða
vörum. Sumt kvaðst hann þó hafa
lánað én aldrei fengið borgað.
^ Viðkomandi sýslumanni verða
sendar skýrslur um málin til
frekari rannsóknar.
Frásögn þessi er útdráttur úr
skýrslu löggæslumanns.
Mikil sfldveiði.
Nokkur skip komu til
Hafnarfjarðar í gær með
góðan afla.
Hafnarfirði 9. des. FÚ.
Þessi skip komu til Hafnarfjarð-
ar með síld í dag: Bangsi frá
Reykjavík með 160 tunnur, Á-
gústa úr Vestmannaeyjum með
90—100 tunnur, Már frá Reykja-
vík með 40 tunnur og Freyja frá
Súgandafirði, en um afla hennar
er ekki kunnugt. Skipin rnistu öll
mikið af netum sínum, aðallega
vegna mikillar síldar. —■
Síðastliðinn laugardag kom
kolaskip til verslunar Einars Þor-
gilssonar. Bontvörpungurinn Sviði
fór á ísfiskveiðar á sunnudag.
Veðrið í morgun.
í Reykjavík 8 stig, Bolungar- •
vík 9, Akureyri 7, Skálanesi 10,
Vestmannaeyjum 9, Sandi 6, Kvíg-
indisdal 6, Hesteyri 6, Gjögri 11,
;Blönduósi 10, Siglunesi 10, Gríms-
ey 8, Skálum 9, Fagradal 11, Pap-
ey 7, Hólum í Hornafirði 7, Fagur-
hólsmýri 8, Reykjanesi 7 stig.
Mestur hiti hér í gær 11 stig,
minstur 2. Úrkoma 22.7 mm. Yfir-
lit:. Lægð yfir norðaustanverðu
Grænlandshafi á hreyíingu norð-
austur eftir. — Horfur: Suðvest-
urland, Faxaflói, Breiðaf jörður:
Suðvestan kaldi. Skúrir. Norður-
land, norðausturland, Austfirðir:
Minkandi sunnan og suðvestan átt.
Milt og úrkomulítið. Suðaustur-
land: Sunnan og suðvestan kaldi.
Skúrir.
Skipafregnir.
Goðafoss fór frá Hull í gær-
kveldi áleiðis til Hamborgar. Gull-
foss er á leið til Leith frá Kaup-
mannahöfn. Dettifoss kom frá
útlöndum á miðnætti síðastliðnu.
Brúarfoss er væntanlegur að vest-
an og norðan kl. 4—5. Lagarfoss
er ádeið til útlanda frá Fáskrúðs-
firði. Selfoss er á leið til landsins.
. Esja fer í strandferð í kveld. G.s.
ísland kom frá útlöndum i morg-
un. E.s. Kongshaug kom frá Spáni
í gær með salt, ávexti o. fl. Bel-
gaum kom af veiðutn í morgun
með 1300 körfur. Laxfoss fór til
Borgarness í dag.
Happdrætti Háskólans.
Síðasti dráttur ársins hófst í dag
kl. 1 og stendur yfir í dag og á
morgun, — Vinningar eru 2000 að
þéssu sinni. — 500 vinningar verða
birtir í blaðinu i dag, en 1000 á
inorgun. Síðustu 500 vinningarnir
verða birtir á fimtudaginn.
í Hafnarfirði
heldur O. Frenning samkomu í
kveld kl. 8, í Góðtemplarahúsinu.
. Allir velkomnir.
Þýski sendikennarinn,
dr. Iwan, flytur í kveld fyrirlest-
ur í Háskólanum um „Deutsche
Gebirge". Fyrirlesturinn hefst kl.
S.°5 og er lokið kl. 8.50.
V. K. F. Framsókn
heldur skemtifund í kveld í Iðnó
kl. 8J4: Félagsmál, kaffidrykkja,
kvikmyndasýning o. fl.
Næturlæknir
er í nótt Gísli Pálsson, Garði,
Skildinganesi. Sími 2474.. — Næt-
urvörður í Laugavegs apóteki og
Ingólfs apóteki.
Aflasölur. 1
Júpíter seldi 1040 vættir af ís-
fiski í Grimsby i gær fyrir 1900
stpd. að frádregnum tolli. Max
Pemberton seldi 860 vættir fyrir
1629 stpd.
Jólablað Geislans.
S. D. A. hafa að undanförnu gef-
ið út blað ársfjórðungslega og
nefna það „Geisla“. — Jólablað
þeirra er nú komið út og er hið
prýðilegasta að öllum ytra frá-
gangi. — Blaðið ræðir trúmál frá
sjónarmiði aðventista og er mál-
gagn þeirra í trúmálabaráttunni..
En auk trúmálanna ræðir það
nokkuð önnur mál, er útgefend-
urnir telja góð og gagnleg. — 1
jólablaðinu hefst nýr þáttur:
„Heilbrigði og lífsgleði“ og er
ætlast til að framvegis verði um
þau mál rætt í hverju blaði. Gétur
það orðið að gagni, ef vel er til
vandað. Að þessu sinni er rætt um
„inflúensu“ og ráð við henni, eftir
C. Ottesen yfirlækni (þýtt). Þá er
og þýdd grein um lystarleysi í
börnum, eftir Arthur Collet, lækni.
Þá má og nefna: „Náttblinda og
fjörefnaskortur“ og „Áfengið og
hjartað". K.
M. A.-kvartettinn
syngur í Nýja Bíó annað kveld
kl. 7,15.
Hringurinn
heldur fund miðvikudag 11. des.
kl. S/2 e. h. á Hótel Borg uppi.
Sjómannakveðja.
FB. 10. desember.
Lagðir af stað áleiöis til Eng-
lands. Vellíðan. Kærar kveðjur.
Skipverjar á Venusi.
75 ára
er í dag Hildur Bergsdóttir,
Laugaveg 53B.
Hjálpræðisherinn.
Á morguii: Bænadagur. Sam-
komur: Kl. ioJ-2 f. h., kl. 4 e. h.,
kl. Sy2 e. h. Allir velkomnir.
Útvarpið í kveld.
19,10 Veöurfregnir. 19,20 Þing-
fréttir. 19,45 Fréttir. 20,15 Erindi:
a) Bindindi og skólar (Daníel Á-
gústínusson kennaraskólanemi), b)
1. desember og 1. febrúar (Þórar-
inn Þórarinsson blaðarn.). 20,40
Lúðrasveit Reykjavíkur leikur.
21,05 Erindi: Frá Sviss (Þorsteinn
Jósepsson rithöf.). 21,30 Skýrsla
um vinninga i happdrætti Háskól-
ans. Danslög.
Stjórnarskifti á
Spáni.
Ágreiningur innan stjórn-
arinnar um fjárhagsmála-
tillögur Chapaprieta leiddi
til þess, að hann baðst
lausnar fyrir sig og ráðu-
neyti sitt,
Madrid 9. des.
Chapaprieta f orsætisráðhcrra
hefir beðist lausnar fyrir sig og
ráðuneyti sitt, vegna ágreinings
milli þeirra flokka,' sem taka þátt
í stjórninni, um hinar víð.tæku til-
lögur Chapaprieta á fjárhagssvið-
inu. Zamora ríkisforseti hefir tek-
ið lausnarbeiðnina til greina. (Un-
ited Press—FB).
Flotamálaráð-
stefoan
var sett í gær og Hoare kos-
inn forseti hennar.
Oslo 9. des.
Flotamálaráðstefnan breska var
sett í London í morgun. í henni
taka þátt fimm mestu sjóveldi
heimsins: .Bretland, Bandaríkin,
Japan og ítalía. Hoare utanríkis-
málaráðherra var kjörinn forseti
ráðstefnunnar. (NRP—FB).
London 9. des.
Flotamálaráðstefnan var sett í
morgun af Stanley Baldwin for-
sætisráðherra .Forseti ráðstefn-
unnar var kosinn Hoare utanrikis-
málaráðherra, en varaforseti Eyr-
es-Monsell flotamálaráðherra.
(United Press—FB).
Snjóftódið
• 4» ---1 ■ -irrti» i,ina»«i, i.m
Kolaskaga*
Oslo 9. desember.
Frá Moskva hafa borist fregnir
um það, að þrjár stórar byggingar
hafi gereyðilagst á Kolaskaga af
völdum snjóflóðs. Fjöldi ntanna
var í húsum þessum, er snjóflóð-
ið kom og fórust margir þeirra.
Urn 90 lík hafa náðst úr rústunum,
eri 44 mönnum hefir verið bjargað,
suntum mikið meiddum. (NRP—
Berlín í morgun. (FÚ).
KRISTJÁN X. á dýraveiðum.
Berlín í morgun (F.Ú.Æ)
Jafntefli milli Aljechins og Euwe.
Baráttunni um heimsmeistara-
tignina í skák, ntilli þeirra Alje-
chins og Euwe heldur enn áfram
í Amsterdam. í gær lauk 28. unt-
ferð þannig, að þeir komu sér sam-
an um jafntefli. Hefir þá Euwe /
unnið alls 9 skákir en Aljeoliin 8,
en il hafa orðið jafntefli.
Flest ensk blöð bönnuð á ítalíu.
London 9. des. (FÚ)
Opinberlega er tilkynt í Róm, að
friðarsamningatillögur þær, sem
Laval og Sir Santuel Hoare hafi
kontið sér saman um í París, hafi
enri ekki verið sendar ítalíustjórn.
Öll ensk blöð, nenia Morning
Post, Daily Mail og DailyExpress
hafa verið bönnuð í Italíu.
Ejnar Munksgaard og íslensk
fornhandrit.
Kaupmannahöfn 8. des.
Einkaskeyti til F. Ú.
Ejnar Munksgaard, bókaútgef-
andi í Kaupmannahöfn, heldur á
miðvikud. kemur erindi í háskól-
anum í Lundi um íslensk forn-
handrit. Sýnir hann skuggamyndir
af handritunum í sambandi við
fyrirlesturinn. Sænsk-ísl. félagið
hefir gengist fyrir því, að Munks-
gaard yrði boðið að halda fyrir-
lestur í Lundi.
Markaðsleit Norðmanna.
Kaupmannahöfn 8. des.
Einkaskeyti til F. Ú.
Norska stjómin heldur áfram
viðleitni sinni til þess að vinna
norskum fiski aukinn markað í
Englandi. Norska viðskiftamála-
ráðuneytið hefir nú nýlega ákveð-
ið, að sfofna nýtt embætti í New-
castle, þannig að þar verði fram-
vegis fisksöluráðunautur, er vinni
að því, að kynna norskar fisk-
vörur og auka sölu á þeim. Ráðu-
nautnum er ætlað, að senda skýrsl-
ur til Noregs um það, hvernig
horfur eru á hverjum tínra, og
leiðbeina þannig útflytjendum.
Togarasmíðar.
Kaupmannahöfn 9. des. FÚ.
Einkaskeyti.
Norska viðskifta- og siglinga-
málaráðuneytið tilkynnir, að i
Hull hafi verið bygðir 16 nýir tog-
arar í ár, og að 30 séu í smíðum.
í Þýskalandi er verið að byggja
fjóra nýja togara.
Enska flotamálaráðuneytið hef-
ir þegar keypt nokkra af togurum
þeim, sem í smíðum eru, og hina
nýjustu, með það fyrir augum að
vopna þá og nota þá í þjónustu
hersins til þess að leggja. sprengi-
dufl á þeim svæðum sem. Bretland
kynni að vilja loka.