Vísir - 13.12.1935, Blaðsíða 2

Vísir - 13.12.1935, Blaðsíða 2
VlSIR HTHHM iiíinmc SVARTUR hhiiuio ^TU: Sfj ópnapskpáp- bpotið. Eins og áöur hefir veri'ö skýrt frá, eru stjórnarflokkamir nú a‘ö Teyna aö knýja fram breytingar á þingsköpum Alþingis, sem fela í sér brot á stjórnarskránni og miöa aö því aö hefta málfrelsi þing- manna, meira en áöur hefir veriö gert. Stjórnarskrárbrotiö felst í því, hvernig eigí aö túlka skýr á- kvæöi stjórnarskrárinnar, svo aö þau fái alt aöra merkingu en í þeim getur falist. í 48. gr. stjórnarskrgrinnar segif svo, aö lögmæt ályktun verði ekki gerö, í hvorugri þingdeildinni, nema meira en helmingur þing- manna séu á fundi og greiði þar atkvæði. En í þingsköpum á nú aö mæla svo fyrir, aö þó aö nokkr- ir þingmerui, sem á fundi eru, greiði ekki atkvæði, eða neiti aö greiöa atkvæöi, þá skuli þó taliö, að þeir greiöi atkvæði, eöa með öörum orðum, að ákvæöi stjórnar- skrárinnar þýði ekki annaö en það, aö til þess að lögmæt ályktun veröi gerö, þurfi meira en helmingur þingmanna aö vera á fundi. — En til hvers er þá verið að taka það fram, að auk þess að ineira en helmingur |)ingmanna þurfi að vera á fundi, þurfi einnig meira en helmingur þeirra aö greiöa þar atkvæði? Því skilyröi væri auðvit- að alveg óþarft og rangt að bæta við, ef ekki væri ætlast til þess að því væri einnig fullnægt. Og auð- vitað er sú „skýring", aö þeir þingmenn, sem neita að greiöa at- kvæði, taki með þvi þátt í at- kvæöagreiðslunni eöa „greiði at- kvæði“, eins og 48. gr. stjórnar- skrgrinnar ætlast til, alveg röng. Þar getur ekki verið átt við annað en það, að þeir greiöi atkvæöi ann- aö hvort með eöa á móti. Því er tiú haldið fram, að tneð þessum hætti geti afgreiðsla þing- mála orðið svo tafsöm og erfið, aö ekki sé við unandi.’ En þaö er fullkomiuu misskilningur, að • ákvæöi stjórnarskrárinnar séu yf- irleitt miöuö viö það fyrst og fremst aö afgreiðsla þingmála geti ‘orðið sem allra auöveldust eða !greiðust. Þvert á móti miða ýmis ákvæði hennar beinlínis að því að torvelda afgreiðslu þingmála. Og þaö er auðvitað af því, aö stjóm- arskráin leggur höfuðáherslu á, aö málin séu sem grandgæfilegast athuguö, og afgreiðsla þeirra ekki flaustrað af, án þess að trygt sé, svo sem auðið er, að þau hafi fylgi þingmeirihluta, samkvæmt grundvallarreglum þingræðisins. Þannig torveldar aö sjálfsögðu skifting þingsins í deildir alla af- greiðslu mála stórkostlega, en tryggir jafnframt fullkomnari gagnrýni. Sama er aö segja um fyrirmæli stjórnarskrárinnar um afgreiðslu mála í sameinuðu þingi, þar sem ekkert lagafrumvarp ööl- ast fullnaðarsamþykt nema með '/ atkvæða. Og í fullu samræmi við þetta er það ákvæði, að engin lög- rnæt samþykt verði gerð, nema rneira en helmingur þingmanna sé á fundi og greiði þar atkvæði, því að tilgangur þess ákvæðis er að tryggja það, eins og frekast er unt, að ekkert mál nái frarn að ganga, nema það hafi fylgi þing- meirihluta. Ef því ákvæði er ekki fullnægt, getur einatt farið svo, að minni hluti þings ráði úrslitum mála og traðki með því þingræð- inu. Það skiftir engu í þessu máli, þó að þetta skilyrði stjórnarskrár- innar um þátttöku minni hluta þingmanna í atkvæðagreiðslu, hafi verið rangt túlkað fyrr á tíinum, og þó að samskonar ákvæði í stjórnarskrá annara þjóða séu það enn þann dag í dag. Þessi ranga túlkun á stjórnarsrkánni var leið- rétt hér fyrir 20 árum, og það er fullkomin óhæfa, að taka hana nú upp aftur, eftir að hún er orðin öllum augljós og leiðrétting hefir verið gerð á henni. En ef hins- vegar ákvæði stjórnarskrárinnar þykir of óþjált þá verður að fara þá leið, að fá því breytt, Ef það er þá talið til bóta, að færa lög- gjöfina í það horf, að þingræðinu sé ver borgið og einræðishug- myndum gefið undir fótinn. Frá vígstöðvonnm. London 12. des. (FÚ) Samkvæmt opinberri tilkynn- ingufrá Badoglio hershöfðingja hefir alt verið með kyrruin kjörum á báðum vígstöðvunum í Abessi- niu í dag. í frétt frá Áddis Abeba segir, að keisarinn hafi í dag farið í njósnar- flug, en síðan horfið aftur til Dessié. Abessiniukeisari hefir sæmt belgiska liðsforingjann, sem særð- ist á dögunum, er loftárásin .var gerð á Dessiéborg, stríðsorðu A- bessiniu. ítalir reka sænska trúboða úr ný- lendum sínum. Kalundborg 12. des. (FÚ) Sænskum trúboðum í Eritreu og ítalska Somalilandi hefir nú verið visað þaðan úr landi, og bannað að reka starfsemi sina. Hafði þeim að vísu fækkað nokkuð upp á síð- kastið, vegna þess að ítalska stjórnin hefir haft horn í siðu þeirra og yfirvöldin gert þeim sem erfiðast fyrir. Er aðstoð sú, sem sænski Rauði Krossinn, og ein- stakir sænskir menn hafa veitt A- bessiniu talin orsök þessa brott- reksturs. Ný eiaekun skattur. Þjóðnýting útlendra reiðafarþega. --- Það, sem landslýðurinn er orð- inn vanastur að fá frá núver- andi valdlíöfum, eru nýir skatt- ar, nýir tollar og nýjar einka- sölur. Skipulagsnefnd atvinnu- mála eða „Rauðka“, sem ef til vill mætti kalla einskonar ráðu- neyti sósíalista við hliðina á stjórnarráðinu, hefir undirbúið og samið ýmsar af þeim tillög- um. sem gengið hafa í þá látt að framkvæma stefnu sosíalista liér á landi, og frá henni er einn- ig komið frv. um Ferðaskrif- stofu rílcisins, sem er komið í gegnum e. d. Alþingis og liggur nú fyrir nd. Þessi fyrirliuðaða skrifstofa „hefir ein rétt til þess að starfrækja ferðaskrifstofu fyrir erlenda menn“, eins og stendur í frv. Ennfremur á hún að starfa að kynningu landsins út á við og hafa eftirlit með gistiliúsum. ) > Rógurinn um núverandi skrifstofur. Hermann forsætisráðherra stóð upp í e. d. um daginn og helti sé út yfir starfsemi þá, sem einstakir menn hafa haldið hér uppi í því skyni að taka á móti erl. ferðafólki. Ráðherr- ann viðhafði mjög niðrandi um- mæli um þennan rekstur án þess þó að tiltaka nokkur dæmi. Enn þó svo sé eða þó svo væri, að nokkur misbrestur væri á meðferð erl. ferðamanna hér, þá eru aðrar leiðir til þess að koma i veg fyrir slíkt, heldur en sú að þjóðnýta þessa starfsgrein. Aðgætandi er i þessu sambandi að skrifstofur eins og þessar, eru tiltölulega ný starfsemi hér á landi og því ekki ástæða til þess að krefjast þess,að þær hafi þegar í slað náð því að fullnægja öllum kröfum. 1 greinargerð „Rauðku“ fyrir frv. er svo Ijátið um mælt að ónógur skipakostur sé þess valdandi að ekki sé hægt að flytja öllu fleiri ferðamenn hingað á sumrin en gert hefir verið. Það er þá a. m. k. ekki hægt að saka skrifstofurnar um að þær hafi látið ónotuð tæki- færi til flutnings á fólki. Hvað viðvikur brigsli H. J. og fleiri um okur á ferðamönnum hér, þá hafa komið fram mjög ein- dregin andmæli frá lilutaðeig- endum gegn því og þeir lagt fram taxta sina. Ummæli Cooks-skrifstof- unnar. — Þær ferðaskrifstofur, sem hér Iiafa starfað eru flestar um- boðsskrifstofur fyrir erlend einkafirmu svo sem t. d. Cooks- og Bennetts-ferðafélögin, sem eru áhrifamikil alþjóðleg fyrir- tæki í þessari grein. Þessar tvær erlendu skrifstofur hafa mestu ráðið um ferðamannastraum- inn hingað, og Garðar Þorsteins- son upplýsti í gær í n. d. undir umræðum þar, að forráðamenn Cooks-skrifstofunnar hefðu lát- ið svo um mælt, að yrði liér far- ið að einoka viðskiftin á er- lenda ferðamenn, þá myndu skrifstofur þeirra erlendis ekki framar leggja áherslu á að flytja ferðafólk til íslands. Þeg- ar litið er á hve miklu þessi skrifstofa og Bennett-skrifstof- an hafa ráðið og munu ráða um ferðamannastraum til íslands, þá liggur næst að telja þessar undirtektir rothögg á væntan- lega einokun, svo framarlega, sem ekki á að leggja þessa starf- semi, sem þegar hefir gefið og nýr ferðamanna og skattur á bif- nokkurn gjaldeyri og ætli að öllu sjálfráðu að gefa meira, í rústir. Bitlingar og verðhækkun. Þær einkasölur, sem rauðlið- ar hafa stofnað hér, liafa allar haft tvær afleiðingar í för með sér, sem undir eins hafa komið í ljós: í fyrsta lagi hafa þær orð- ið lireiður hitlingamanna stjórn- arliðsins og í öðru lagi hafa þær leitt af sér verðhækkun. Það er engin ástæða til að ætla annað, en að væntanleg Ferðaskrif- stofa ríkisins hafi þetta tvent í för með sér, eins og hinar ein- okanirnar hafa haft. Um bitl- ingana ætti a. m. k. lítill vafi að vera og eftir þeim töxtum, sem sést liafa frá núverandi skrif- stofum, er full ástæða til að halda, að þeir hækki í höndum st j órnar-einokunarinnar. Afstaða sjálfstæðismanna. Stefna sjálfstæðismanna í þessum málum er sú, að þeir vilja leyfa einstaklingum slíka starfsemi sem á þessu sviði, undir nauðsynlegu eftirliti af hálfu þess opinbera, eins og er með allar aðrar starfsgreinar, og telji að viðleitni einstaklings- ins til þess að hæna erlenda ferðamenn að landinu með góð- um viðtökum hér, muni gefa bestan árangur. Hins vegar telja sjálfstm. að ríkisvaldinu beri að leggja kapp iá að auglýsa landið út á við hvort sem það er gert með fræðslubæklingum, út- varpserindum, kvikmyndum eða á annan liátt. Ríkið liefir besta aðstöðu og mest fjármagn til að koma slíku í verk og á þvi að starfa ósleitilega að því og betur en gert hefir verið, því svo má segja að það opinbera hafi látið sig litlu skifta þessi mál, þangað til alt í einu er fundið upp á þvi að gera við- skifti við ferðamenn að ríkis- rekstri. Einstaklingar hafa hins- vegar gert nokkuð af því að aug- lýsa landið með bæklingum og auglýsingum, þó meira verði að því að starfa. j Skattlagning á ferðafólki með bifreiðum. Svo segir i frv. að „til þess að afla skrifstofunni tekna skal greitt stimpilgjald af farseðlum með bifreiðum í áætlunarferð- um, 5 aurar af hverri heilli krónu í andvirði seðilsins“. Það einkennir núv. valdliafa hve þeir eru fundvisir á staði, sem hægt er að reyta út fé. Þeir finna lengi eitthvað, sem hægt er að láta menn „greiða af enda ekki vanþörf á þvi, þar sem altaf er stofnað nýtt og nýtt, sem þarf að „greiða til“. En ef nú á líka að fara að hækka bensinskattinn þá má búast við, að þeim fjölda, sem hefir at- vinnu af fólksflutningum innan- lands, finnist ekki vel að sér húið. — Þetta frv. um Ferðaskrifstofu ríkisins er einn liðurinn í ein- okunarstarfsemi socialista. Auð- vilað hafa þeir framsóknar- menn 1 bandi'— það hefir víst ekki enn komið fyrir, að sá flokkur hafi bandað á móti frumvörpum, sem frá „Rauðku“ hafa komið — miklu fremur hafa þeir orðið fyrstir til að dást að afkvæminu þegar nýtt hefir fæðst. Frá Alþíngi í gær. Efri deild. Þar var frv. um ríkisútgáfu skólabóka til 2. umr. Tillaga um að útbýta skólabókum barnaskóla á hvert heimili gegn 5—8 kr. gjaldi var samþykt. Heimild er líka til aS hafa þá meSferö á bókum í æbri skólum en þá er gjaldiö nokkru hærra eöa ca 15 kr. Frv. fór til 3. umræöu. Neðri deild. Þar var fyrst atkvæöagreiðsla um frv. um alþýðutryggingar. Fyrst kom til atkvæSa rökstudd dagskrá frá Gísla Sveinssyni og var hún feld með 17 atkv. gegn 15. Dagskráin var þess efnis að fresta skyldi að lögfesta þet'ta frv. vegna þess hve stórt þaö væri, en stutt liðið frá því það kom fram svo hvorki almenningur né þingmenn hefðu getað gert sér fulla grein fyrir því, og eins vegna þess að slíkar álögur, sem gert er ráð fyr- ir í frv. séu ekki tímabærar vegna fjárhagsörðugleika ríkis og ein- staklinga. Allar breytingatill. frá sjálfstæðismönnum þær, sem veru- legu máli skiftu voru feldar, þar á meðal tillaga frá þeim um að rétt til þeirra hlunninda, sem sjúkra- samlög veita, eigi allir meðlimir þess — engin leiðrétting fékkst á ranglæti frv. Einnig var feld sú till. að stjórn staðfests atvinnuleys- issjóðs skipi þrír menn og skuli einn tilnefndur af því verklýðsfé- lagi, sem sjóðinn hefir stofnað, einn af hlutaðeigandi bæjarstjórn eða hreþpsnefnd og einn af at- vinnumálaráðherra. Alræði social- istanna yfir þessum sjóðum, í bráð og lengd, var lögfest með tilstyrk framsóknarmanna. Magnús Torfa- son greiddi annaðhvort atkvæði með stjórnarliðinu eða sat hjá. Frv. sjálft var samþ. með 17 atkv. gegn 6. Sig. Kristjánsson gerði þá grein fyrir sinni afstöðu að hann teldi mikla bót að ýmsum ákvæðum frv. en þó mjög gallað vegna ákvæð- anna um atvinnuleysistryggingar, og sæti því hjá, en svipaða afstöðu mun fjöldi sjálfstæðismanna hafa tekið. —< Breytingar stjórnarliða á þingsköpum komu næst til um- ræðu og urðu umr. all-heitar. Sjálf- stæðismenn héldu eins og áður uppi skörulegri andstöðu gegn þessum ólýðræðislegu tillögum socialista og framsóknar og töldu að hér væri um hreint stjórnar- skrárbrot að ræða. Sjálfstæðis- nienn lögðu enn sem fyr áherslu á, að reynt yrði að ná sem bestu samkomulagi milli flokkanna um þessi mál, en Th. Th. tók aftur dagskrá sína til 3. umr. ef verða mætti að einhver málamiðlun gæti orðið milli umræðna. Frv. var vís- að til 3. umr. Frv. til ferðaskrif- stofu ríkisins og frv. til 1. um klak- sjóð voru til 1. umræðu. ....... ................ Samvirma milli Kgl. hollenska flugfélagsins og Pan-American Airways um farþegaflugferðir yfir Atlantshaf. Oslo 12. des. Frá Haag er símað til Norsk Telegrambyraa, að hollenska flug- félagið og1 Pan American Airways hafi náð samkomulagi um sam- vinnu til þess að halda uppi flug- ferðum yfir Norður-Atlantshaf. Eigi er kunnugt hvaða leiðir verða farnar í flugferðunum enn sem komið er. Riiser-Larsen kapteinn á í samningum við stjórnarvöldin í Bandaríkjunum og stjórn Pan- American Áirways um þessi mál, fyrir Noregs hönd, en öll þessi mál eru enn á byrjunarstigi. (NRP— FB). soíHXSOOOísossc!seooíJí*-<in£iC5inoí CSSSQOOOOOOOÍSOOOCOOOOOOOOOOÍ Skautap nýkomnir, — birgðir takmarkaðar. — Verzl. B. H. Bjarnason. Vasahnífap SKEIÐAHNÍFAR, • SKÆRI, ú fallegt úrval. ’T Verzl. 4 Bjarnason. ocsossesssssossssesotsesssescsoossocscsaoc SOSSSHSSSOSSOSSOOSSSSSSSSSSSSSSSSSSOSSSSSSS Amerískur blaðamaður skrifar blaði sínu frá Berlín í s. 1. mán- uðr á þessa leið: Frá stjórninni heyrist lítið þessa dagana viðvíkjandi Þjóðabanda- laginu, en þó stjórnin sjálf láti ekki frá sér heyra um bandalagið og þau mál, er það hefir með höndum, kemur þó ýmislegt fram um þau í blöðum, sem að nokkru leyti geta talist málgögn hennar. Og þessi blaðaummæli benda til, að þótt margir hér telji að afleið- ingarnar af störfum bandalagsins verði nýjar styrjaldir, séu ábyrgir stjórnmálamenn farnir að hugleiða starfsemi bandal. meira en áður, og þá m.a. það hver hagur Þýskalandi mundi að því verða, að ganga í Þjóðabandalagið á ný, ef -þessi stofnun yrði endurskipulögð. Þetta breytta viðhorf er skiljanlegt af ýmsum ástæðum. í fyrsta lagi hef- ir það breytt viðhorfinu, að Þjóða- bandalagið er ekki stofnun, sem aldrei lætur til sín taka, þegar þörf krefur, eins og álit fjölda manna var, heldur stofnun, sem er í fullu fjöri og lagði sitt þunga lóð á metaskálarnar í mikilvægu máli, Abessiniudeilunni. Ákvörð- unin um refsiaðgerðir — að svo margar þjóðir sem raun varð á komu sér saman um þær — kom mönnum á óvart og neyddi gagn- rýnendur og fjandmenn Þjóða- bandalagsins hér til þess að breyta gagnrýnisaðferðum sínum, en það gerðu þeir með því, að byrja að hamra á því, að hér væri um pappírssamþyktir að ræða, sem ekki væri framkvæmanlegar. Á því er ekki nokkur vafi, að stefna Breta er það sem mestu máli skiftir, í augum Þjóðverja. — Við Breta fremur en nokkra þjóða aðra vilja Þjóðverjar nú nána samvinnu og „þriðja ríkið“ er undir það bú- ið að taka stór skref til þess áð koma því til leiðar, að þessi nána samvinna takist. í einni ritstjórn- argrein í þýsku blaði stóð, að Þjóðverjar ætti að veita stefnu Breta athygli, hvað sem liði við- horfinu til bandalagsins og vanda- mála þess. Bretar hafa gefið í skyn, að þeir séu fúsir til þess að ihuga breyt- ingar á stjórnarskrá Þjóðabanda- lagsins, og losa hana við þá agn- úa, sem á henni eru, vegna Ver- salasamninganna. Næði það fram að ganga væri brott feldar orsakir þær, sem Þjóðverjar á undanförn- um þremur árum hafa talið rétt- læta það, að þeir gengu úr Þjóða- bandalaginu. Menn heyra því oft haldið fram hér, að ef hægt væri að koma í veg fyrir alt „bak- tjaldamakk“ innan vébanda Þjóða- bandalagsins og misnotkun hins ófullkomn sáttmála þess í eigin- hagsnjunaskyni af einstökum stór- þjóðum mundi verða greiðari leið fyrir Þjóðverja að snúa aftur til Genf. Þjóðverjar halda því að sjálf-

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.