Vísir - 28.05.1936, Page 3
VlSIR
StórTiðburðnr
í tónlistarlífi
borgarinnar.
Síðan Jón Leifs kom hingað
með Hamborgarliljómsveitina
iiér um árið, munu Reykvíking-
ar ekki liafa átt von á merki-
legri viðburði í tónlistarlífi bæj-
arins, en komu Pragkvartetts-
ins hingað í næstu viku, til þess
að lialda hér þrjá hljómleika.
Prag-kvartettinn er, eins og
kunnugt er, einn af fremstu
strok-kvartettum nútimans. —
Okkur, sem leitað höfum að
fegurð lífsins fyrst og fremst í
verkum tónmeistaranna, finst
eins og ævintýri séu að gerast
með þjóð vorri, er slikir af-
burða listamenn sækja okkur
heim. Við erum ekki því vön,
að merkir heimsviðburðir á
tónlistarsviðinu gerist hjá okk-
ur, og hlýtur það þess vegna að
vera verulegt gleðiefni öllum
borgarbúum, sem ánægju hafa
af góðri tónlist, að svo framúr-
skarandi tónlistarmenn heim-
sækja okkur. Það er ekki unt
að fá okkur til þess að gleyma
einn dag dægurþrasi og inn-
flutningsvandræðum, ef þess-
um glæsilegu listamönnum
telcst það ekki.
Um strok-kvartetta sem tón-
list er óþarft að fjölyrða, flest-
ir unnendur tónlistar vita, að
það er hið fullkomnasta allra
tónaforma. Þó má minna á það,
að það var einmitt í því formi,
sem Beethoven, heyrnarlaus og
einangraður frá umheiminum,
samdi sín síðustu verk, þar sem
hinar dýpstu og fegurstu liugs-
anir og tilfinningar hafa verið
skráðar í tónum.
Allur bærinn verður að fagna
þessum tignu og gáfuðu gest-
um sínum.
27. maí.
Sig. E. Markan.
‘V
1 Snæfellsass
fer Ferðafél. Islands skeniti-
ferð um Hvítasunnuna, eins og
tilkynt liefir verið í blöðunum.
Hér er um óvanalegt tækifæri
að ræða og sennilega um ein-
hverja mestu og liestu Ferða-
félagsferðina á sumrinu. —
Farið verður á laugardags-
kvöld kl. 7 liéðan á Lax-
fossi og til Arnarstapa, en það
mun vera um 5 klst. sigling.
Á Arnarstapa er sérkennilegt
landslag, m. a. hinn viðfrægi
„Söngliellir“. Þarna geta þeir,
er vilja, lialdið kyrru fyrir, og
munu þeir hafa nóg að skoða,
en aðrir munu fara lengra, vest-
ur og norður fyrir jökul, til
Ólafsvíkur, og slcíðafólkið mun
ætla sér upp á jökulinn. Margt
manna hefir þegar skrifað sig
á lista i Bókaverslun Sigfúsar
Eymundssonar og eru allar
horfur á, að þálttakendur verði
rnargir og mega menn húast
við liinni ánægjulegustu ferð.
— Laxfoss mun að likind-
um fara héðan kl. 7 á laugar-
dagskveld, en ekki kl. 6, eins
og í fyrstu var ráðgert.
Fundur norrænna hagfræðinga.
Einkask. frá Khöfn.
27. maí. FÚ.
Á fundi norrænna hagfræð-
inga, sem haldinn er í Kaup-
mannahöfn, hefir Þorsteinn
Þorsteinsson hagstofustjóri
flutt rækilegt erindi um mann-
tal á íslandi. Þar að auki liefir
Þorsteinn lagt fram á fundin-
um skriflegt yfirlit um liúsa-
gerð á Islandi, og hefir það að
geyxna mikinn liagfræðilegan
fróðleik.
I 0 O.F. 5=1185288V2 = 9 II
Veðrið í morgun.
I Reykjavik 8 stig, Bolungar-
vík 4, Akureyri 15, Skálanesi
13, Vestmannaeyjum 7, Sandi
8, Kvígindisdal 6, Ilesteyri 6,
Gjögri 4, Blönduósi 7, Siglunesi
3, Grímsey 4, Raufarhöfn 8,
Skálum 5, Fagradal 8, Papey
13, Hóluin í Hornafirði 15,
Fagurliólsmýri 13, Reykjanesi
9. Mestur liiti hér í gær 11 stig, ^
minstur 7. Urkoina 0.3 mm.
Sólskin 3.5 st. — Yfirlit: Lægð
við austurströnd íslands á
hreyfingu suðaustur eftir. —
Horfur: Suðvesturland, Faxa-
flói: Stinningskaldi á útnorð-
an og síðan norðan. Léttir til.
Breiðafjörður: Utnorðan og
síðan norðan kaldi. Urkomu-
laust. Vestfirðir, Norðurland,
norðausturland: Stinningskaldi
á úlnorðan og siðan norðan.
Dálítil rigning. Austfirðir, suð-
austurland: Breytileg átt fyrst,
síðan norðan kaldi. Úrkomu-
laust og sumstaðar léttskýjað.
Indriði Einarsson
ritliöfundur var meðal far-
þega á Goðafossi í gærkveldi
og var förinni heitið til Akur-
eyrar. En þangað liafði honum
verið boðið að koma og dvelj-
ast nokkura daga. Stóð til að
hann færi nokkuru fyr, en af
því gat ekki orðið ýinsra orsaka
vegna. Ráðgerði hinn hálfniræði
unglingur að standa við á Ak-
ureyri vikutíma, en leggja því
næst leið sína vestur í Skaga-
fjörð. Kvaðst liann ekki geta
stilt sig um að heilsa upp á
æskustöðvarnar, enda ekki að
vita nema bið gæti á því orðið,
að hann færi aftur norður í
land.
j Sjötugsafmæli
á í dag frú Þórunn Flygenring
frá Hafnarfirði. Hún er nú bú-
sett hér í bænum, kom liingað
nýlega frá Kaupmannaliöfn. En
þar átli Iiún lieima síðustu ævi-
ár eiginmanns sins, liins mikil-
hæfa framkvæmdamamis Aug.
Flygenrings. Og þar andaðist
hann.
Vér erum mörg, sem minn-
umst heimilis frú Þórunnar í
Iiafnarfirði, þar sem góð og
göfug húsmóðir veitti forstöðu
og fagnaði gestum með ógleym-
anlegri alúð og híbýlaprýði. Eg
er einn í þeirra tölu, sem þakk-
látir eru fyrir það, að liafa
kynst heimili liinna merku og
mikilhæfu Flygenrings-hjóna,
og geymi minningar um þau
kynni meðal þeirra sem kær-
astar eru fi(á náms- og skóla-
árum mínum.
Frú Þórunn liefir verið styrk
kona, stilt og' hugprúð í blíðu
og stríðu. Vinir liennar fagna
því, að hún nýtur á efri sínum
þeirrar liamingju að vera um-
kringd stórum ættargarði barna
sinna, tengda- og barnabarna,
virl og elskuð af þeim öllum.
Á. S.
Farþegar á Goðafossi
vestur og norður: Ungfrú
Steinunn Sigmundsd., Sigríður
Jónsdóttir, Símonía Kristjáns-
dóttir, María Hertervig, Martlia
Þorvaldsson, Jónína Steinþórs-
dóttir, Kristjana Sigurðardóttir,
Sólrún Hannibalsdóttir, Mildríð
Falsdóttir, Guðrún Matthias-
dóttir, Martha Eyjólfsdóttir,
Hóhnfríður Árnadóttir, Óskar
Einarsson og frú, Guðm. Guð-
mundsson og l’rú, Elísabet Guð-
mundsdóttir, Guðrún Lárus-
dóttir, Oddur Björnsson, Guðm.
Ágústsson, Gunnlaug Tlioraren-
sen, Þóra Havsteen, Pétur Söb-
stad, Þórður Helgason,, Óskar
Jónsson, Helgi Herm. Eiriksson,
Leifur Þórarins, Eiríkur Eiríks-
son, Lýður Jónsson, Jóhann
Hafstein, Jakob Hafstein,
Gunnl. Pétursson, Þorvaldur
Guðmundsson o. fl.
Skipafregnir.
Gullfoss er á útleið. Goðafoss
var á Patreksfirði í dag. Detti-
foss kom til Hamborgar í morg-
un. Brúarfoss er væntanlegur
til Vestmannaeyja í fyrramálið.
Lagarfoss er á leið til Aust-
fjarða frá útlöndum. Selfoss fór
frá Hamborg í gær áleiðis til
Antwerpen. Esja kom til
Hornafjarðar í gær á austur-
leið. Súðin var á Breiðdalsvík í
gærkveldi. Væntanleg hingað
aðra nótt. M.s. Dronning Alex-
andrine er væntanleg að vest-
an og norðan á morgun.
Reylcjaborg kom frá útlöndum
í nótt. Hannes ráðherra kom af
veiðum i morgun með 72 tn.
lifrar eftir 12 daga útivist. Geir
fór á ísfiskveiðar í gær.
M ýtísku
dðmotðsknr
komnap.
Komið fyrst -
veljið best.
tliiDölifaliusil
Bankastr. 7
HarOfisknr
úrvals
hefir aldrei verið ljúffengari.
Versl. Vísir.
mmmummmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmnmmmmam
Tilkynning
frá stjðrn Sjfikrasamlags Hafearfjarðar.
Samkvæmt lögum um sjúkratryggingar frá 1. febr. þ. á.,
ber öllum bæjarbúum sem eru fullra 16 ára að aidri að greiða
ákveðin mánaðargjöld í sjúkrasamlagssjóð, frá 1. apríl þessa
árs að telja.
Eru þessi gjöld ákveðin af Tryggingarstofnun ríkisins kr„
3.00 á mánuði til bráðabirgða hér í Hafnarfirði.
Er því hér með skorað á alla þá, sem samkvæmt framan-
sögðu, eru gjaldskyldir til sjúkrasamlagssjóðs Hafnarfjarðar,
að greiða þessi gjöld sín á skrifstofu samlagsins, Brekkugötu
9, hér í bænum og veita viðtöku kvittunarbókum samlagsins.
Skrifstofan var opnuð til afgreiðslu mánudaginn 25. þ. m.,
kl. 10 árdegis.
Afgreiðslutími verður kl. 10—12 f. hád. og kl. 1—5 e. hád.
alla virka daga nema á laugard. kl. 10—12 f. h. og kl. 1—3
e. h, frá 1. okt. til 1. júní.
Sími skrifstofunnar er 9066.
Hafnarfirði í maí 1936.
F. h. sjúkrasamlagsstjórnarinnar.
Guðjón Gunnarsson,
form.
Happ drætti
Samsæti
til lieiðurs Pétri M. Bjarnar-
syni, kaupni., verður haldið í
Oddfellowliúsinu á 70 ára af-
mæli hans, 3. júní n. k., að til-
hlutan nokkurra vina hans. —
Áskriftarlisti liggur frammi hjá
Jóhannesi Norðfjörð úrsmið,
Laugaveg 18. Þeir, sem ætla sér
að verða þátttakendurur, vitji
aðgöngumiða fyrir kl. 4 á laug-
ardag, 30. þ. m. x.
Þorskar hafs og lands.
Þorskveiðarnar liafa brugðist
það sem af er þessu ári. Vétrar-
vertíðin varð svo rýr, að slikt
liefir ekki komið fyrir árum
saman. Þorsluirinn hefir ekki
gengið á miðin. Hann liefir ekki
viljað láta íslendinga veiða sig.
— Hann hefir ekki viljað leggja
lífið i sölurnar fyrir stjórnar-
herrana — fyrir þorskana i
landi! — Og það er svo sem ekki
við sliku að búast. — Þorskur-
inn hefir blátt áfram gert „verk-
fall“. Og hver veit nema hann
lialdi „verkfallinu“ áfram, uns
stjórnarþorskarnir eru grotnað-
ir niður. Hinn ágæti nytjafiskur
kærir sig ekki um að fá óorð af
„nöfnum“ sínum í landi!
Z.
Happdrætti Háskólans.
Endurnýjun til 4. flokks er
liafin. Dregið verður 10. júní.
Ritari hæstaréttar
frá 1. n. m. liefir verið skip-
aður Hákon Guðmundsson,
lögmannsfulltrúi.
Útvarpið í kveld.
19,10 Veðurfr. 19,20 Hljóm-
plötur: Létt lög. 19,45 Fréttir.
20.15 Erindi: Öræfaganga suð-
ur Kjöl 1908 (Lárus Rist kenn-
ari). 10,40 Sónata í d-dúr fyrir
fiðlu og píanó eftir Grieg (Þór.
Guðm. og Árna Ivristjánsson).
21.15 Erindi: Noklcrar stað-
leyndir um landliúnað, II (Pl-
afur Friðriksson, f. ritstj.).
21,35 Utvarpshljómsveitin: Létt
lög (til kl. 22,00).
Næturlæknir
er í nólt Gísli Pálsson, Garði.
Sími 2474. Næturvörður í
Laugavegs apóteki og Ingólfs
apóteki.
Útvarpið árdegis á morgun.
10,00 Veðurfr. 12,00 Hádegis-
útvarp. 15,00 Veðurfregnir.
■■■BBiiaiaiBaiBBiiai
Pepgament
skermar
Búum til allar gerðir af
pergamentskermum.
Mikið úrval fyrirliggjandi.
SkermabúBin
Laugavegi 15.
HHHHBEEIfflEHHHHHnHEBEa:
Háskóla íslands.
Endurnýjun til 4. flokks er hafin.
i
j Dregið verður 10. júní.
| 300 vinningar — 56600 krónur.
Eftir eru á þessu ári vinningar að upphæð
samtals 918 þús. kr.
Vinningarnir eru tekjuskatts- og útsvars-
frjálsir.-
saumaðir eftir pöntun.
Nokkurl úrval fyrirliggjandi.
Skermabúðin
Laugavegi 15.
Fe glamip«
Islensk dýr III, eftir Bjarna Sæmundsson,
700 bls. með 252 myndum, er komin út. —
Verð heft kr. 15,00, ib. kr. 20,00 og 22,00. —
Fæst hjá bóksöhim.
BókaverKlun Sigfúftar Eymimdssonar
->g Bókabúð Austurbæjar, B. S. E., Laugavegi 34.
100000000000000« íOCOOOOOCSSOOCÍCÍÍOÍSOÍXSOCOíÍÖOOeeOOOSjOOOOOÍ
- Best að auglýsa í VÍSI. —
SOOOO«SOOÍ>OOOCOÍ5<SOOOOOÍ>«SOÍ SSSOÍSOÍSGC SOOOOíSOOOOOOeOGOÍSOOSXSOÍ
NEYÐIN í NEW YORK.
Neyð hafði verið meiri i New York á síðastliðnum vetri en um tangt skeið og á þó að jafn-
aði fjöldi manna mjög bágt í þessari miljónaborg um háveturinn. Á mynd þessari sjást at-
vinnuleysingjar, sem hvergi eiga liöfði sinu að lialla og hafa lagst til hvíldar undir hús-
veggjum.