Vísir - 08.06.1936, Side 2
VISIR
'N
Deilan um
síldarverðið.
\
Nýtt sjómannafélag nauðsynlegt. „ViS
þurfum að „hrista upp“ í félagsskap
okkar“, segir gamalreyndur sjómaður.
Samkonmlag milii íramieið^
endi og Yerkamanna 1
Frakklandi.
Verkföllin verða þó ekki öll til lykta Ieidd í
dag. Laun hækka um 7—15% og 40 klst.
vinnuviku með fullu frídagakaupi verður
komið á.
London í morgun.
Framleiðendur í Frakklandi
liafa gengið að aðalkröfum
verkamanna og er samkomu-
lagið upphaf þess, að verkföllin
verði til lykta leidd, þótt búist
sé við, að nokkur tími líði, uns
búið er að ná samkomulagi um
einstök verkföll, því að misjafn-
ar kröfur hafa verið fram born-
ar.
Salengro innanríkismálaráð-
herra tilkynti stuttu eftir mið-
nætti í útvarpi og á annan hátt,
að samkomulag hefði náðst
milli fulltrúa sambands verk-
lýðsfélaganna og sambands
framleiðenda og atvinnrekenda.
Hafa liinir síðarnefndu fallist á,
að komið verði á 40 klst. vinnu-
vilcu og fái verkamenn eins fyr-
i r það greidd laun alla lögboðna
fridaga. Ennfremur viðurlcenna
framleiðendur réttindi verka-
manna til þess að hafa með sér
skipulagsbundinn félagsskap og
samtök og nefndir í verksmiðj-
unum til þess að ^æta hags-
muna sinna og koma fram fyrir
hönd verksmiðjufólksins við
(Yfirlit helstu viðburða frá því
síðdegis á laugardag).
Horfurnar í Austur-Afríku.
Horfurnar þar liafa verið
hinar ískyggilegustu að undan-
förnu og liafa fregnir verið
mjög ósamhljqða. Fregn frá
Oslo, sem birt var i Vísi á laug-
ardag, hermdi samkvæmt fregn-
um frá Iíína, að Kantonstjórnin
liefði sagt Japönum stríð á
hendur. Úlvarpsfregnir á laug-
ardag síðdegis segja, að Kan-
tons tjórnin neiti því, að ætla að
segja Japönum stríð á hendur
en annars sé það ráðgáta hvað
sé að gerast í Kína og fregnir
þaðan ósamhljóða.
Schusnigg og Mussolini
hafa átt tal saman í liöll nálægt
Florence, segir FÚ-fregn, en
ekki talið, að þeir hafi tekið
mikilvægar ákvarðanir.
Nýjar óeirðir í Palestina.
í Haifa, Jerúsalem og Jaffa
hafa orðið nýjar óeirðir af
völdum Araba og tóku konur
þátt i þeim. Svo er að sjá sem
lögreglunni veiti betur.
Verkföllin í Frakklandi. —
Matvælaskortur var ekki telj-
andi í París á laugardag, nema
helst á grænmeti. Fleiri blöð
eru aftur farin að koma út og
lofa þau framkomu stjórnar-
innar og afskifti af verkfallinu.
Sumir verkfallsmenn telji sig
hafa fcngið kröfur sínar upp-
fyltar og 'hafa horfið til vinnu
aftur, en aðrir bætst i hóp verk-
fallsmanna, einkum járniðnað-
ar- og kolanámumenn. Seinustu
fregnir lierma, að samkomulag
hafi náðst. (FÚ.).
Póstferðir í Abessiniu. —■
ítalir eru nú að reisa pósthús
víða í Abessiniu og ætla þeir sér
að koma á fót reglubundnum
póstferðum um alt landið.
Graziani er og að gefa út ýms
lög að ítalskri fyrirmynd. (FÚ).
stjórnir verksmiðjanna. Loks
hafa atvinnurekendur fallist á,
að laun hækki frá 7—15%.
Með þessu er ekki sagt, að öll
verkföllin verði til lykta leidd í
dag. Það er jafnvel húist við,
að þó nokkur tími líði, uns þau
hafa öll verið leidd algerlega til
lykta, þar sem ærið misjafnar
kröfur liafa verið bornar fram
af verkfallsmönnum, en það er
talið, að miklu vænlegar horfi
vegna samkomulags þess, sem
að framan um getur. (United
Press—FB).
Oslo í dag.
Samkomulagið verður lögfest.
Samkomulagið milli verka-
manna og atvinnurekenda verð-
ur lögfest. Verkfallsmenn voru
orðnir 750.000 í gærkveldi. Tal-
ið er líklegt, að vinna verði haf-
in á ný í flestum verksmiðjum
og vinnustöðvum á morgun. —
(NRP. —FB.).
FFalcklands-
banki.
Nýr aðalbankastjóri. Tann-
ery, sem frá fór, gerður að
heiðurs-bankastjóra.
London í morgun.
. Á ráðherrafundi í morgun
var La Beyrie dómari útnefnd-
ur aðalbankastjóri Frakklands-
banka í stað Tanner\% sem hefir
verið gerður að lieiðurs-aðal-
bankastjóra. (United Press—
FB).
Stórkost-
legt slys í
Búkarest.
Sætapallar hrynja. 300
manns meiðast eða bíða
bana.
Oálo í dag.
Samkvæmt skeyti til Dag-
bladet varð stórslys í Bukarest
í gær, er skátaflokkar gengu
fyrir Karl konung. Gríðarstór
ræðu- og sætapallur hrundi og
er giskað á, að þarna liafi verið
um 3000 manns. Alt komst í
uppnám og felmtur mikill
greip marga viðstadda. Giskað
er ó, að um 300 manns hafi beð-
ið bana eða meiðst, flest af því
konur og börn. (NRP. — FB.).
Ötan af landi
Þríburafæðing.
Ólafsvík 7. júní. FÚ.
Sigurást Friðgeirsdóttir, kona
Þorkels Sigurgeirssonar í Skál-
holti á Hellissandi fæddi þrí-
bura síðastliðna nótt, sveinbarn
14 merkur, meybarn 11 merk-
ur og sveinbarn 12 merkur. —
Konu og börnum líður vel í dag.
Berlín í morgun FÚ.
Óeirðirnar í Palestínu.
í gær færðust óeirðirnar í
Palestínu aftur í aukana. Sér-
stök brogð voru að þessu í Jaf-
fa, Haifa op fleiri borgum. Ara-
bar liafa sett fram kröfur um
áframhaldandi og aukna bar-
áttu gegn hinni bresku umboðs-
stjórn og innflutningi Gyðinga.
Vísir kom að máli núna fyrir
helgina við gætinn og reyndan
sjómann og mæltist til þess, að
bann léti í ljós skoðun sína á
deilu þeirri, sem nú er risin út
af verði bræðslusíldar á vertíð-
inni í sumar. — Tók liann þvi
vel og leyfði að eftir sér væri
haft það sem liér segir:
Tuttugu ár.
Það munu nú liðin 20 ár sið-
an er stofnað var til fyrsta sjó-
mannaverkfallsins hér á landi
og var það víst fyrsta verkfall-
ið, sem íslendingar höfðu af að
segja.
Forsprakkarnir í því verkfalli
voru þeir vinirnir og samherj-
arnir, Jónas frá Hriflu og Ól-
afur Friðriksson. Eg veit nú
ekki til, að þeir hafi liaft hina
allra minstu þekkingu á útgerð
eða neinu því, er að sjósókn lý—
ur, en hitt skildist mér þá þeg-
ar, að hatur þeirra í garð at-
vinnurekanda gæti tæplega ver-
ið heilbrigt, og veit eg ekki til,
að sú skóðun fari í bága við
neitt, sem fram hefir komið í
sambandi við athafnir þessara
manna síðan.
Þessir tveir menn, Jónas og
Ólafur, munu hafa verið vega-
litlir um þessar mundir og úr-
kula vonar um, að þeir kæm-
ist áfram, sem kallað er, af eig-
in hæfileikum eða dugnaði. Þeir
rnunu hafa verið eldheitir
kommúnistar og eru það lík-
lega enn. Báðir höfðu dvalist er-
lendis og komist á snoðir um,
að þar kæmi það ekki ósjaldan
fyrir, að óvaldir menn, hæfi-
leikalitlir og ómerkilegir • á all-
an liátt, gæti með frekju og
ýmsum brellum orðið foringj-
ar verkafólksins. Fólkinu væri
ætlað að trúa skjalli þeirra og
skrumi um blessun öreigaríkis-
ms, og þá ekki síður níði og
rógi um atvinnurekendur. Og
þetta tækist oft og einalt. Síðan
yrðu þessir óvöldu dónar for-
ingjar lýðsins og bærist svo
jafnt og þétt upp á við til hárra
launa og valda.
Jónas og Ólafur munu nú
hafa hugsað sér, að leika sama
leikinn hjá okkur. Um árang-
urinn þarf ekki að ræða. Hann
er augljós öllum mönnum.
Síðan þetta gerðist hafa
margir og ómerkilegir labba-
kútar bæst í ,,fóringja-liópinn ‘
og allur hefir þessi skari talið
sig vera að vinna fyrir alþýð-
una! En mér hefir altaf fund-
ist, að þeir legði miklu meiri
stund á, að vinna fyrir sjálfa sig
en okkur, sjómenn og verka-
menn. Við liöfum bara verið
verkfæri, sem þeir hafa reynt
að nota og notað — því miður
— sjálfum sér til framdráttar.
Síldarverðið.
Það liefir verið reiknað út, af
mönnum, sem eg rengi ekki, að
Iiæfilegt væri, að rikisbræðsl-
urnar borguðu okkur sjómönn-
um (og útgerðarmönnum) 6
kr. fyrir hvert mál síldar, er
selt væri til bræðslu nú i sumar.
Eg er nú reyndar þeirrar skoð-
unar, að óhætt sé að borga
meira, jafnvel alt upp í kr.
6.30—6.50. En hvað um gildir.
Útgerðarmenn og sjómenn fara
ekki hærra en það, að heimta
6 kr. Sýnir það gætni og sam-
viskusemi, því að vissulega væri
þörf fyrir liærri borgun. En nú
hefir 6 kr. verðið verið heimtað
og er þá að standa við þá kröfu,
þó að freistandi væri að fara
bærra. Niður úr 6 kr. má alls
ekki fara.
Mér hefir skilist, að Jónas frá
Hriflu liafi talið kr. 3.50 hæfi-
iega borgun handa okkur sjó-
mönnum. Hærra en í 4 kr.
mætti alls ekki fara og munu
„foringjar“ sjómanna hafa ver-
ið sömu skoðunar fyrst í stað,
þeir Sigurjón Á. Ólafss., og aðr-
ir slikir. Þeir urðu þó fljótlega
hræddir, er þeir lieyrðu hljóðið
í okkur sjómönnum, og smám
saman dröttuðust þeir upp í kr.
5.30. Það þótti þeim líka „yfir-
l'ljótanlegt“ verð, eins og einn
þeirra sagði.
En ekki fengu þeir einn ein-
asta sjómann til að fallast
á þetta „yfirfljótanlega“ verð,
er á fund kom í sjómannafélag-
inu. Tveir menn, hvorugur sjó-
maður og báðir á háum laun-
um, ýmist frá sjómönnum, rík-
issjóði eða bæjarsjóði eða frá
þeim öllum, voru svo litilþæg-
ir, að þykja þetta ágæt kjör
lianda okkur, sem öflum síld-
arinnar með mikilli vinnu, á-
hættu og erfiði. Þessir tveir
kappar voru þeir Sigurjón A.
Ólafsson, sem sjómenn hafa
baft á framfæri sínu árum sam-
an, og Ólafur Friðriksson, sá er
áður var nefndur. Þessum pilt-
um þótti okkur fullborgað, ef
ekki ofborgað, með 5.30, þegar
hægt er að borga 6.30 eða jafn-
vel meira! —- Sá höfðingsskap-
ur má ekki gleymast og skal
ckki gleymast.
Nýtt sjómannafélag.
Sigurjón A. Ólafsson er for-
maður sjómannafélagsins og
höfum við, af fátækt okkar, lagt
honum til margan málsverðinn
og liiið fengið i aðra hönd. Þessi
maður leggur það til, að okkur
sjómörinum sé greitt 70 aurum
lil Icr. 1.20 minna fyrir livert
mál síldar, en leikur einn er að
borga, samkvæmt mjög varleg-
um útreikningum kunnugustu
manna. Það er óneitanlega liart
fyrir okkur sjómenn, að vera
að dragnast með slíkan mann
og hafa af honum kostnað. —
En eg hefi ekki heyrt þess getið,
að Sigurjón hafi sayt af sér for-
mensku sjómannaíélagsins enn-
þá og hefði það þó verið sóma-
samlegra fyrir hann, er hann
var ber orðinn að því, að reka
erindi annara gegn hagsmun-
um okkar og rétti.
Hins vegar mun eittlivað hafa
verið að því gert, að elta sjó-
menn uppi, einn og einn, og
íeyna að fá þá til þess, að bregð-
ast sjálfum sér og stétt sinni,
með þvil að falla frá 6 kr. kröf-
unni og samþykkja smánarboð-
ið um 5.30.
Takist fjandmönnum sjó-
mannastéttarinnar að flelca ein-
Iiverja félaga olckar til þess
háttar svika, þá sýnist mér
liggja beint við, að lofa Sigur-
jóni að hafa þá náunga í friði
og út af fyrir sig. Þeir verða
tæplega mjög margir. — En
aðrir sjómenn ætti þá að segja
skilið við hinn gamla félagsskap
og stofna nýtt sjómannafélag.
Hefir þess að vísu verið þörf
fyrir löngu, en klol'ningur í fé-
laginu hefði m. a. orðið til þess,
að Sigurjón liefði mist spón
úr aski sínum, en við höfum
varla haft brjóst til þess, enda
hefir hann ekki orðið ber áður j
að athæfi, líku því sem nú er j
uppvíst um, Það liefir og lengi '
þótt skringilegt að hafa Ólaf
Friðriksson. í stjórn sjómanna- ;
félagsins. — Við þurfum að
„lirista upp“ í félagsskap okkar.
Og það verður best gert með
því, að stofna nýtt félag.
Mý Rauða
Kross bifmð.
Rauði Kross Islands hefir
keypt nýja sjúkrabifreið og á
nú tvo bíla til sjúkraflutninga
í Reykjavík, en einn á Akureyri.
Nýi bíllinn er mjög vandaður,
með útbúnaði til upphitunar á
sjúkraklefanum, ef ástæða er
til, og sætum fyrir tvo menn
við lilið körfunnar. Nýi bíllinn
er í hærra lagi, með tilliti til
utanbæjarflutninga, um erfiða
vegi. Kaupverðið er kr. 6.515.00.
Fjármálaráðuneytið veitti góð-
íúslega undanþágu frá verð-
tolli og viðskiftagjaldi.
Sjúkraflutningar Rauða
Krossins fara sívaxandi, svo að
einn bíll í höfuðstaðnum getur
ekki annað þeim lengur. Á ár-
inu 1935 vóru fluttir á 13.
hundrað sjúklingar í Reykja-
víkur-bifreiðinni. í tvö skifti
var farið alla leið norður í
Húnavatnssýslu, og oft ýmsar
aðrar langar og erfiðar leiðir. ‘
Nýi bíllinn kemur því í góðar |
þarfir og stóð ekki lengi á að
hann yrði notaður. Daginn eftir
að bifreiðin var flutt á land fór
hún austur í Vík í Mýrdal og
sótti héraðslækninn, sem var ,
þungt haldinn, og var fluttur
á Landspítalann. Fleiri ferðir
hafa þegar verið farnar austur
fyrir fjall, suður í Hafnir og
víðar.
Slökkviliðsmenn Reykjavík-
ur liafa frá uppliafi annast
sjúkraflutningana hér syðra og
leyst það starf prýðilega af
hendi, urídir forustu slökkvi-
liðsstjórans. Á Akureyri hefir
bílstöð í bænum séð um þetta
vandamikla starf. (Tilk. frá
R. Kr. Isl. — FB).
Hnefaleikamót
íslands
fór fram á Iþróttavellinum í
gær. Hafði verið gerður upp-
liækkaður pallur, sem kcpnirn-
ar fóru fram á. Áhorfendur
voru fjöldamargir og slcemtu
sér vel, enda þótt veður kólnaði
mjög er á leið. Keppendur
voru 16 á keppendaskrá, en 5
komu ekki til leiks, og einn nýr
bættist við. Var kept í eftirfar-
andi þyngdarflokkum: Flugu-
vigt (2 kepp.) : Alfred Eliasson
(Á) sigraði Guðbjörn Jónsson
(K. R.). Léttvigt (2 kepp.):
Hallgr. Helgason (K. R.) sigraði
Guðm. Arason (Á.) í veltivigt
gekk Guðjón Mýrdal (Á.) úr, en
Sveinn G. Sveinsson (Á.) flutt-
ist upp í meðalvigt. Sigraði liann
Halldór Björnsson (K. R.).
Var Sveinn einhver besti linefa-
leikamaðurinn, er kepti á þessu
móti. Stefán Bjarnason (K. R.)
sigraði Ludv. Nordgulen (Á.)»
Var Nordgulen ámintur af dóm-
ara fyrir að brjóta leikreglur.
Sveinn var dæmdur meistari í
þessum þyngdarfloklci, án þess
að þeir berðist liann og Stefán.
I léttþungavigt sigraði Ingvar
Ingvarsson (K. R.) Óskar Þórð-
arson (Á.). Var viðureign þeirra
hin harðasta og lauk með þvíy
að Óskar var studdur af Iiólini.
í þungavigt sigraði Vilhjálmur
Guðmundsson (K, R.) Aðal-
stein Þorsteinsson (F). K. R^
á því 3 meistara, en Ármann 2.
Fyrir mótinu stóðu K.R. og Ár-
mann og fór það vel fram að
öðru leyti en því, að óstundvís-
in, sem jafnan ríkir hjá „land-
anum“ var öllum til leiðinda.
Voru tafir milli viðureigna alt
of mildar, og fundu menn mjög
til þess, er kalt gerðist í veðri er
á leið.
íslenskur
Grænlands-
leidangup.
Keflavík 6. júní. FÚ.
I gær fór til Grænlands frá
Keflavík, vélbáturinn Snorri
goði. Gunnar Óláfsson í Vest-
mannaeyjum á bátinn en hluta-
félag Óskars Halldórssonar ger-
ir bátinn út á fiskveiðar við
Grænland í sumar. Báturinn fer
til Færeyingahafnar á vestur-
strönd Grænlands og hittir þar
danska stöðvarskipið Artic, sem
er farið fyrir nokkrum dögum
þangað. Báturinn á aðallega að
veiða lúðu og verður hún fryst
í stöðvarskipinu, en auk þess á
báturinn að stunda saltfiskveið-
ar og verður saltfiskurinn ým-
ist lagður á land í Færingahöfn
eða í stöðvarskipið. Auk Snorra
góða fylgir stöðvarskipinu Fær-
eysk fiskiskúta og 5 doríur,
hver með 5 rnanna áhöfn.
Á Snorra goða er 11 manna
skipshöfn — alt íslendingar:
Finnbogi Kristjánsson, skipstj.,
Markús Sigurjónsson, stýrimað-
ur, Ebbi Friðriksson, bryti,
Guðjón Jónsson, vélstjóri, og
hásetar Axel Sveinsson, Jón Sig-
urðsson, Guðjón Gíslason, Óslc-
ar Arngrímsson, Gísli Jónsson,
Guðmundur Elífasson og Daði
Björnsson. Skipshöfnin er ráðin
upp á hlut, þannig að hver mað-
ur fær 15 krónur á hverja smá-
lest af lúðu og 7 kr. á hverja
smálest af saltfiski. Auk þess
fær skipshöfnin einn þriðja
liluta af lifrinni. Sldpsmenn
fæða sig sjálfir. — Snorri goði
hefir bæði þorskalínu, þorska-
n et og síldarnet og verða gerðar
tilraunir í sumar, livort liægt er
að veiða þorsk eða síld i net við
Grænland. — Snorri goði er, 24
smálestir að stærð með 64 hest-
afla vél. — Gunnar Thordarson
frá Isafirði er um borð í danska
Stöðvarskipinu og verður þar
umsjónarmaður skipsliafnar og
útgerðarmanns í sumar.
Gullflóttinn frá Frakklandi
er enn ískyggilega mikill. Ný-
lega fór skip frá Frakldandi til
New-York með gullstengur inn-
anborðs, sem námu 820 miljón-
um franka að verðmæti.
f kvöld kl. &% keppa
)