Vísir - 08.06.1936, Blaðsíða 3
VlSIR
InDflQtningnr
á erlendo knafððri
eða
skrælingjabúskapur.
Okkar gamla búskaparólag,
sem bygðist á því, að fóðra bú-
peninginn eingöngu á heyi,
hvernig svo sem gafst að afla
þess í misjöfnu árferði, var í
sjálfu sér rétlnefndur skræl-
ingjabúskapur. Á hverju vori
sem út af bar með árferði voru
skepnur bændanna aðfram-
komnar af hor og féllu að meira
og minna leyti, ef eittlivað bar
út af með vorveðráttuna; kýrn-
ar fóru ekki heldur varhluta af
þessu, þær voru magrar og nyt-
lágar á vorin þó þær oftast
skrimtu af, og gerðu lítið gagn.
Nú er sem betur fer þetta bú-
skaparlag fordæmt fyrir löngu,
og þótt eftir eimi af þvi ennþá
á stöku stað, eru allir sam-
mála um að fyrirdæma það. En
það,sem mest liefir bætt umbú-
skaparlagið er notkun innlends
og útlends kjarnfóðurs. Það
þekkist hvergi í siðmenningar-
löndum að fóðra búpening á
lieyi eingöngu, hvað þá á sliku
heyfóðri sem hér er oftast völ
á, sinu, útheyi, hröktu heyi og
skemdu, eins og oft vill verða.
Hér á landi þarf þó einkum að
vanda fóðrun búfjárins vegna
vorhretanna, það er ekki til
neins að láta svo sem liér sé alt
i lagi, þó til séu menn, sem hafa
ekki þurft að berjast við hina
liörðu veðráttu, en hafa komist
á eldi við töðustall ríkissjóðs
og láta þaðan í ljósi litla samúð
með þeim, sem ennþá verða að
berjast við rosann og umlileyp-
inginn. Þá er það staðreynd, að
hér á láridi er ekki hægt að
bjargast svo vel sé við heygjöf
banda afurðafériaði; sá fénaður
sem lielst getur lifað á slíku
fóðri er geldfé og hross, sem
ekki eru brúkuð að vetrinum,
en allar þær skepnur sem eiga
að svara afurðum þurfa kjarn-
fóður, hvort heldur eru lamb-
fullar ær, brúkunarhross eða
mjólkurkýr. Að sumu leyti má
bjargast við hið innlenda kjarn-
fóður: Síldarmjöl, lýsi og karfa-
mjöl eða fislcimjöl, þanda ám
og að nokkru leyti handa brúk-
unai’hrossum, en handa mjólk-
urkúm sem eiga að svara góð-
um arði og gefa af sér mikla og
góða mjólk, er ekki hægt að
nota þessi fóðurefni til kjarn-
fóðurs nema svo sem að %
hluta. Svo er það heldur ekki
neinn hagur eða sparnaður, að
nota þessi fóðurefni eingöngu
vegna þess að þetta er verslun-
arvara sem er seljanleg í út-
löndum og því góð búhyggindi
að selja nokkuð af lienni og fá
erlent fóður í staðinn, til að
blanda og bæta fóðrið.
Fari svo, að haldið verði fast
við innflutningsbann á erlendu
kúafóðri eins og innflutnings-
nefndin er búin að lióta, eru
það ný fjörráð sem framin eru
gagnvart mj ólkurf ramleiðend-
um í Reykjavík o. fl. kaupstöð-
um,vegna þess aðþeirrabúskap-
ur cr að svo miklu leyti bygður
á þvi fóðri, enda mundi slíkt
bann gera nauðsynlegan niður-
skufð á kúm, sem nerna mundi
% lil % af öllum kúm liér i
Rcykjavik, Hafnarfirði og
Kjósar- og Gullbringusýslu.
Hlyti slíkt að nema mildu þjóð-
artjóni, þar eð það mundi or-
saka landbúnaðarkreppu i þessu
plássi, þar sem áður hefir ver-
ið best stæður búskapur, meiri
en dæmí eru til annars staðar á
landinu í seinni tið.
Heyið af nýræktartúnum í
Reykjavík er ekki fullgild taða,
heldur mætti segja, að það væri
mitt á milli þess að vera taða
og úthey; kýr sem ætti að fóðra
á slíku fóðri eingöngu, mundu
ekki mjólka nema svo sem %
af þeirri ársnyt sem þær annars
mjólka. Auk þess er kjarnfóðr-
ið miklu ódýrari hluti fóðursins
en heyið og muridu því þeir
2000 1. sem væntanlega fengist
úr kúnni yfir árið með tómri
heygjöf, verða eins dýrir eða
dýrari en 3000 1., ef fóðrað er á
sama liátt og áður. Geta menn
sannfærst um þetta með þvi, að
bera saman, að i vetur hefir
sama verð verið á 1 kg. af töðu,
oft skemdri, hrakinni og orn-
aðri, eins og 1 kg. af maísmjöli
eða rúgmjöli. Þetta innflutn-
ingsbann á erlendu kúafóðri
mundi því þýða sama og reglu-
legt sveltiboð fyrir þessa fram-
leiðendur, nema þeir liafi við
eilthvað annað að styðjast.
Þetla tæki frú þeim atvinnu og
lifibrauð eða það sem eftir er
af því og mjólkurlögin hafa
ekki þegar tekið. Sú upphæð
sem um er rætt að spara, það
er að segja á mjólkurframleið-
endum í Reykjavík, er hér um
bil 2000 til 2500 ensk pund eða
40—50 þús. ísl. kr. ef miðað er
við að fullnægja nauðsynlegri
þörf, en það mjólkurmagn sem
tapaðist, ef þetta vantaði, mundi
nema alt að 800.000 litrum og
auk þess álitlcgri upphæð i
kjöti, samtals að verðmæti í
krónum yfir 400.000. En liklega
finst hinni heiðruðu innflutu-
ingsnefnd meiri þjóðhagsbót
að verja þessu fé fyrir brennivín
eða tóbak!! Eða vill hún láta
þjóðina snúa aftur til hins
forna skrælingjabúskaparlags
einokunartímans, þegar ekki
fékst i verslunum landsins mat-
vara, ekki svo mikið sem rúgur,
en nóg var alt af til af brenni-
víni og tóbaki. Nei, sem betur
fer skortir ökkur ékki erinþá
erlcndan gjaldeyri fýrir okkar
nauðsynjum, ef honum væri
ekki varið jöfnum höndum eða
fremur fyrir óþarfa.
Menn verja þetta gerræði
með því, að þá færist þessi
framleiðsla upp í sveilirnar og
að markaður fáist í staðinn fyr-
ir mjólk austan úr Árnes- eða
Rangárvallasýslum. En þó þetta
væri rétt, þá er notaður erlend-
ur gjaldeyrir fyrir bíla, gúmmí,
olíu og bensín sem notað er til
að lina saman og flytja mjólk-
ina lil Reykjavíkur frá þessum
stöðum; er eleki sannað ennþá
hvort sú upphæð er miklu
minni en hin sem fer í erlent
kúafóður til að framleiða mjólk
í Reykjavik og því ekki vist að
tilvinnandi sé að raska atvinnu-
horfum fjölda manna þess
vegna, með þvi líka þetta bann
mundi ekki standa nema mjög
stuttan tíma og verða til þess
eins að trufla atvinnu manna
um skeið. Svo, má í þessu sam-
baudi athuga, að ennþá virðast
bændurnir fyrir austan ekki
bafa liaft mikla búbót af þessu
mjólkurskipulagi, auk þess
sem langt er frá, að það sé
rekið sem fjárhagslega heil-
hrigt fyrirtæki, þar sem það
lifir á styrk úr ríkissjóði og frá
einstaklingum hér syðra, ján
þess þó að geta svarað voxtum
af slofnkostnaði, hvað þá greitt
af borgun. FIu tningskostnaður-
inn að og frá mjólkurbúunum
er eðlilega því til fyrirstöðu, að
þelta geti borið sig og stendur
sig vitanlega eftir því ver, sem
mjólkursölusvæðin eru aukin.
Frá þjóðliagslegu sjónarmiði
muriu þvi vafalaust mest verð-
mæti i að hagnýta mjólkina
heima á býlunum eða vinna þar
úr henni, ]iví verðmæti þeirrar
mjólkur sem lengst er flutt fer
alt í flutningslcostnað.
Þegar deilt er um afurðasöl-
una er af sumum til þess gripið,
að segja að þetta og þetta séu
sérliagsmunir sem menn séu að
berjast fyrir; væri ástæða til að
athuga hvað í rauninni eru sér-
liagsmunir einstakra manna og
hvað þjóðarhagsmunir og hvort
ekki þetta fer oftast saman, eða
hvort sérhagsmunir pólitískra
prangara eru réttliærri og þjóð-
inni þarfari en sérhagsmunir
þeirra framleiðenda, sem vinna
að því, að framleiða viðurværi
lianda þjóðinni.
Indriði Guðmundsson.
Knattsiiyrmtmót Islands
Valur sigrar Víking með 5:1.
Fyrri hálfleikur.
Vindur var suðaustlægur og
liöfðu Víkingar heldur undan
vindi að sækja og þó meir er á
leikinn leið. Strax sýndu sig all-
miklir yfirburðir Valsunga, sér-
staklega í sainleik og liallaði
heldur á Víking; þó niislókst
Valsungum, eins og oft hefir
viljað hrenna við, þegar þeir
nálguðust markið.
Eftir að hallað hafði á Vík-
ingsmarkið nokkuð stöðugt,
komust Valsungar með knött-
inn að Víkingsmarkinu. Mark-
vörður náði hendi til holtans, en
fékk ekki stöðvað hann, og
Valsungur skotraði honum í
mark. Víkingar gerðu nú
skorpu, og fengu snarpt upp-
lilaup og alveg að marki Vals,
og Árui Jóusson skoraði í hom-
ið. Eftir þetta fengu Víkingar
nokkur upplilaup, og slapp
Valsmarkið nauðulega. En eft-
ir nokkurn tíma fór aftur að
halla á Víldng, án þess þó að
Valsungar kæmust að markinu,
og það voru liðnar 36 mín. þeg-
ar markið kom; Óskar Jónsson
skoraði eftir samleik fast að
markinu. 2 mín. seinna skoraði
Öskar aftur, úr samskonar upp-
hlaupi. Er 43 mín. voru af leik,
skoraði Magnús Bergsteinsson,
frá hægra væng. Marlcvörður
liafði hlaupið úr markinu. Hálf-
leiknum lauk með 4:1 í hag
Vals.
C.
Seinni hálfleikur.
Valsmenn höfðu heldur und-
an vindi að sækja, en Víkingar
vörðust vel og skoruðu Vals-
ungar ekki nema eitt mark,
seint í liálfleiknum.
Leiknum lauk því með sigri
Vals 5:1.
Mótið lieldur áfram í kveld,
og keppa þá K. R. og Fram.
D.
10 O.F. 3 = 118688 =
Veðrið í morgun.
I Reykjavík 8 stig, Bolungar-
vík 7, Akureyri 9, Skálanesi 5,
Vestmannaeyjum 7, Sandi 8,
Kvígindisdal 6, Hesteyri 8,
Gjögri 10, Blönduósi 10, Siglu-
nesi 10, Grímsey 9, Raufarhöfn
6, Fagradal 7, Papey 5, Hólum
í Hornafirði 6, Fagurhólsmýri
6, Reykjanesi .7. Mestur Iiiti hér
í gær 11 stig, minstur 5. Úr-
koma 1.4 mm. Sólskin 11.6 st.
Yfirlit: Grunn lægð yfir Græn-
landsliafi á liægri lireyfingu
austur. — Horfur: Suðvestur-
land, Faxaflói, Breiðafjörður,
Vestfirðir: Sunnan kaldi. Dálít-
il rigning eða skúrir. Norður-
land: Sunnan gola. Dálítil rign-
ing vestan til. Norðausturland:
Sunnan gola. Úrkomulaust,
Austfirðir, suðausturland:
Breytileg átt og hægviðri. Dá-
litil rigning.
Indriði Einarsson
hefir dvalist á Akureyri sið-
ustu daga. Leikfélag Akureyr-
ar og stúdentafélagið efndu til
mannfagnaðar, honum til lieið-
urrs. — Stúdentafélagið kjöri
liann lieiðursfélaga sinn.
Elsa Sigfúss
söngkona er meðal farþega á
Gullfossi og mun hún lialda
kirkjuhljómleika hér í bænum.
t haust fer hún til Noregs og
mun þá m. a. syngja þar í út-
varp. (FÚ).
Meðal farþega
á Gullfossi, sem nú er á leið
lil landsins er frú Björnsson,
kona Sveins Björnssonar sendi-
lierra, Tlior Thors alþm. Jón
Baldvinsson bankastj., Jón Sig-
urðsson skrifstofustjóri Alþiug-
is, um 20 Þjóðverjar (Bruckn-
er-leiðangurinn) o. fl. Alls um
70 farþegar. (FÚ).
Skipafregnir.
Gullfoss er væntanlegur til
Leith í dag. Goðafoss er vænt-
anlegur til Hull í dag. Brúarfoss
kom að vestan í gær. Dettifoss
kom frá útlöndum í gær. Lag-
arfoss var á Hofsós í morgun.
Selfoss kom til Víkur frá út-
löndum í morgun. Væntanleg-
ur liingað í nótt eða á morgun.
G.s. tsland er væntanlegt til Ak-
ureyrar í dag. M.s. Dronning
Alexandrine er í Kaupmanna-
böfn. Hekla fór frá Piræus á
laugardagskveld áleiðis til Tri-
poli og tekur þar saltfarm liing-
að til lands. Katla er á leið frá
Port Talbot til Vestmannaeyja.
Karlsefni, sem kom af veiðum
s. 1. laugardag, liafði 60 föt lifr-
ar.
Gullverð
ísl. krónu er nú 50.12.
Ferðaskrifstofa ríkisins
opnar bráðlega söludeild fyr-
ir islenska muni, sem hentugir
eru til að selja erlendum ferða-
mönnum. Söludeildin verður
í Tryggvágöíu 28, neðstu liæð.
Frú Anna Ásmundsdóttir sér
uni inóttöku munanna. Sjá nán-
ara í augl.
Gleymið ekki
að kvarta um rottugang í
húsum yðar. — Símið í 3210 kl.
10—12 eða 3—7 næstu tvo dag-
ana.
Bókasafn L. F. K. R.
er í sumar opið hvern mánu-
dag' kl. 4—6 og 8—9 e. li. í Tún-
götu 3.
Bæjarbókasafn Reykjavíkur.
Á bæjarráðsfundi 5. júuí var
með 3:2 atkv. samþykt tillaga
frá Bjarna Benediktssyni um
að breyta nafni Alþýðubóka-
safns Reykjavíkur í Bæjarbóka-
safn Reykjavíkur. Málið komi
til atkvæða bæjarstjórnar.
H úsmæðraf élagið.
Ilúsnefnd Húsmæðrafélags
Reykjavíkur biður konur þær,
er óska að dvelja í sumarbústað
félagsins við Elliðaárnar, um
lengri eða skemri tíma að senda
umsóknir sínar sem fyrst, til
frú Bertu Árnadóttur, Fjölnis-
vegi 18, eða frk. Maríu Maack,
Þingholtsstræti 25.
Knattspyrnumót íslands.
í kvöld keppa K. R. og Fram.
Mjög spennandi leikur. Lið K.
R. (frá marki og vinstri): Eð-
vald Sigurðsson, Sigurjón Jóns-
son, Georg L. Sveinsson, Ólaf-
ur Kristmannsson, Björgvin
Scliram, Gísli Ilalldórsson,
Bjarni Ólafsson, Gísli Guð-
mundsson, Guðmundur Jóns-
son, Hans Kragh, Þorsteinn
Einarsson. — Lið Fram: Þrá-
inn Sigurðsson, Sigurjón Sig-
urðsson, Ólafur Þorvarðsson,
Harry Frederiksen, Sigurður
Halldórsson, Lúðvik Þorgeirs-
son, Sigurgeir Kristjánsson, Jón
Magnússon, Jón Sigurðsson,
Högni Ágústsson, Nikolai Ant-
onsen.
Tímarit iðnaðarmanna,
3. Iiefti er nýkomið.
ýmiskonar ritgerðir um
armál, afmælisgreinar,
sögubrot o. fl.
Gengið í dag:
Sterlingspund ......Kr.
Dollar .............—
100 ríkismörk .... —
— franskir frankar —
— belgur ........
— svissn. frankar
— finsk mörk . ..
— pesetar .......
— gyllini .......
— tékkósl. krónur —
— sænskar krónur —
— norskar krónur —
— danskar krónur —
Flytur
iðnað-
ferða-
21.15
4.421/2'
177.74!
29.1
74.71
1
9.93
61.07
298.83
18.63
114.36
111.44
100.00
Hjúkrunarkvennablaðið
er nýkomið út (nr. 2, 1936).
Flytur meðal annars erindi eftir
.Jóliann Sæmundsson, lælcnir:
„Flóttinn á náðir sjúkdóm-
anna“.
PlUS XI. ÁTTR.EÍÐUR.
Píus páfi XI. varð áttræður
nýlega. Mynd lians liér að ofan
mun vera hin nýjasta, sem til
Til nýrrar kirkju
í Reykjavík, áheit frá N. N.,
2 kr., og áheit frá N. N. 2 kr.,
afh. sira Bjarna Jónssyni.
Útvarpið í kveld.
19,10 Veðurfregnir. 19,20
Hljómplötur: Létt lög. 19,45
Fréttir. 20,15 Erindi: Frá Mala-
ya-skaga, I: Kvöld í frumskóg-
inum (Sigfús Halldórs frá ;
Höfnum). 20,40 Einsöngur
(Tryggvi Tryggvason). 21,05
Útvarpsliljómsveitin leikur al-
þýðulög. 21,35 Hljómplötur:
Kvöldlög (til kl. 22.00).
Útvarpið árdegis á morgun.
10,00 Veðurfregnir. 12,00
Hádegisútvarp. 15.00 Veður-
íregnir.
Næturlæknir
er í nótt Gisli Pálsson, Garði.
Skildinganesi. Sími 2474. -—
Næturvörður í Laugavegs apó-
ieki og Ingólfs apóteki.
Bréf síra Páls í Selárdal.
íslendingar hafa löngum ver-
ið liinir mestu hj átrúar-belgir,
ekki síður en annara þjóða
menn. Á 17. öld voru galdra-
ofsóknir og galdra-brennur i
algleymingi hér á landi. Ef
maður sýktist snögglega, þótti
ekkert liklegra, en að um gern-
ingaveiki væri að ræða. Ef
skepnur veiktust eða drápust,
þótti vist, að einhver galdra-
maðurinn væri að hefna sin á
eigandanum. Og vesalingar
þeir, sem grunaðir voru um
kukl, voru dregnir fyrir lög og
dóm, sakfeldir og brendir á
báli. Þar var sjaldnast neinn-
ar miskunnar að vænta. Eftir
þvi, sem næst verður komist,
hafa 22 karlar og ein kona ver-
ið hrend fyrir galdra hér á
landi..
Síðasti brennudómur liér-
lendis mun hafa verið kveðinn
upp á Alþingi árið 1690. —
Síra Páll prófaslur Björns-
son í Selárdal, einn hinn merk-
asti klerkur á sinni tíð, og Þor-
leifur Kortsson lögmaður,
beittu sér manna mest fyrir
því, að galdramenn væri af
ráðnir og höfðu örugt íylgi
margra manna, enda þótti það
ágætt verk og guði þóknanlegt,
að koma galdramönnum á
bálið.
Það bar til vestur á Selárdal
veturinn 1()69, að konu Páls
prófasts „varð meint og þótti
mönnum af fjölkyngis ásókn
vera“. — „Flýði hún um siðir
bæinn með allmörgu lieima-
fólki; en eftir margar bænir
er.
til guðs í söfnuðum þar vestra
létti því af. Kom það þá í orð,
að Jón Leifsson, drengur einn
úr Arnarfjarðardölum, hefði
þvi valdið, fyrir þá sök, að
liann fékk ekki að eiga vinnu-
konu hennar“. — Strákur með-
gekk, og var brendur þar
vestra. „Kölluðu lögmenn vel
og réttvíslega slíku máli fram
fylgt,“ segir Espólin.
Páll prófastur Björnsson rit-
aði lögmönnum bréf, dags. 7.
júní 1669, og er það á þessa
leið:
„Æruverðugum og virðuleg-
um herrum og landsins höfð-
ingjum, lierra Sigurði Jónssyni
sunnan og austan, og lierra
Þorleifi Kortssyni, mínum
licrrum, með allri alúð! Þegar
jarðskjálftar . ganga, grípur
liver til fastra taka, er til nær,
og eg' nú, bæði min vegna, i
niinum liörmum, sem spurt
munuð liafa, og annara vegna,
sem líkan málahlut eiga, seil-
ist til ykkur heggja, sem fastra
landsins stólpa, mitt i þeim
galdragangi og æði, sem árlega
skekja og skelfa frómra vel-
gengni, og grundvöll kristilegr-
ar kirkju liér á Vestfjörðum,
livar um ekki verður ykkar
herradómi svo tilkynt sem bæri
yðar annríkis vegna og um-
svifa á lögbergi, þó þessi leki
sýnist fyrst ausandi, sem
sökkva ætlar annars þessum
landsparti. Þ\ú beiðist eg i guðs
nafni og lians dýrðar vegna,
að þessi Jón Leifsson, sem eg
lýsi valdan í öllum þeim kvala-
feiknum, sem gengið liafa i
vetur yfir mitt hús, sem máls^
rekstur þar um genginn ljós-
lega vottar, og 12 dánumenn
Iiafa til lykta búið, sleppist
ekki undan réttlátum dómi,
sem galdramönnum hæfir, því
nái hann komast með lifi frá
þessari ódæðu, sem sjálfur
einninn meðgengið liefir, er
vist hann deyði, kvelji og tjón
gjöri mér og öðrum; er það
þá í ykkar ábyrgð, bæði fyrr
og' síðar, ef það af vklcur hlotn-
ast, hann lífi haldi. I annan
máta tilsegi eg ykkur lians
skólameistara, Erlend Eyjólfs-
son, sem þessum Jóni liefir
kcnt hvernin hann skyldi min-
um þessa eymd með göldrum
yfir liella, og annan fleiri gald-
ur honum sem öðrum undir-
vísað. í einu orði: Þessi Er-
lendur óráðvandur, er sekkur
djöfulsins úr hverjum liann
tekur hvað liverr vondur girn-
ist, meistari þeirra, sem lært
liafa og læra vilja, uppsprettu-
brunnur alls djöfuls i þeirri
sveit og kannske víðar, full-
ryktaður og fordæmanlegur,
fullur af djöfli, svo eg meina