Vísir - 19.06.1936, Blaðsíða 2
Verkfalisóeirðir
balda áfrarn 1 Belgfn.
VerkfallsmaSur skotinn til bana. Verkfalls-
menn grýta lögreglubifreið, er þeim mishepn-
ast að ná félögum sínum frá lögreglunni. —
VlSIR
Ntti, . umUK
O
London í morgun. FB.
Horfurnar í Belgíu hafa ekki
batnað enn, að því er símfregn-
ir frá Briissel herma í morgun,
vegna, þess, að til frekari óeirða
hefir komið. Einn (verkfalls-
manna hefir beðið bana í við-
ure^gn við lögregluna, og víða
hefir verkfallsmönnum og lög-
reglunni lent saman. En með-
an svo er, þykir illa horfa um
að fullur friður komist á, þrátt
fyrir samkomulag það, sem
orðið hefir milli fulltrúa verka-
manna og atvinnurekenda, fyr-
ir milligöngu ríkisstjórnarinn-
ar, svo sem áður hefir verið
getið.
Atburður sá, sem menn eink-
um óttast, að muni hafa illar
afleiðingar, þ. e., að hann verði
til þess að gera verkfallsmenn
beiskari og espa þá upp, gerð-
ist í Quaregnon, litlu þorpi
skamt frá Mons, en þar hefir
London i morgun. FB.
í öllum ríkjunum þremur,
sem i Litla bandalaginu eru,
Tékkóslóvakíu, Rúmeníu og
Júgóslavíu, óttast menn mjög
áform þau, sem stöðugt er unn-
ið að bak við tjöldin, til þess
að koma Habsborgaraættinni
að völdum á ný í Austurríki.
Benes, ríkisforseti Tékkósló-
vakiu, liefir haldið ræðu um
þetta efni, og hefir ræðan vak-
ið mikla athygli, því að hún
þykir benda til þess, sem og
fyrri ummæli lians og annara
merkra stjórnmálamanna í
Litla bandalaginu, að það muni
grípa til binna öflugustu gagn-
ráðstafana, ef til þess kemur,
Vaskleg
björgun.
Fjórtán ára drengur kastar
sér tii sunds og bjargar 6
ára dreng frá druknun.
Fjórtán ára drengur úr Súg-
andafirði, Hörður Friðberts-
son, bjargaði nýlega frá drukn-
un 6 ára dreng, er féll út af
bryggju, og var kominn að
druknun. — Var mikið slraum-
fall, og bar drenginn frá
bryggjunni, en Hörðúr kastaði
sér til sunds og gat haldið
honum á floti, þar til bát-
ur kom þar að.
f Súgandafirði hefir afli
verið afar litill hingað til. —
Tólf vélbátar, 30 smálesta, fara
á síldveiðar með herpinót.
(FÚ.).
Mentaskólinn
á Akureyri.
Akureyri, 18. júní. — FÚ.
Mentaskólanum á Akureyri
var slitið i gær kl. 14. Nítján
stúdentar voru brottskráðir —
þar af úr máladeild 13 innan-
skóla og 2 utanskóla, en úr
stærðfræðideild 3 innanskóla og
verið óeirðasamt. Verkfalls-
maðurinn mun liafa tekið þátt
í spellvirkjum, og lenti honum
og lögreglumanninum saman.
Greip lögreglumaðurinn til
skammbyssu sinnar og skaut
verkfallsmanninn til bana.
Konu nokkurri, er viðstödd var,
varð svo mikið um, að hún
fékk hjartaslag ogbeið bana af.
Skömmu síðar stöðvuðu
verkfallsmenn lögreglubifreið,
sem í voru, auk lögreglu-
manna, verkfallsmenn, sem
teknir höfðu verið höndum.
Verkfallsmenn reyndu að ná
félögum sinum af lögregl-
unni, og er það mistókst, hófu
þeir árás á bifreiðina, með
grjótkasti, en lögreglumennirn-
ir gripu þá til skotvopna sinna
og skutu á verkfallsmenn, og
komust svo undan. (United
Press —FB).
að reynt verður að setja mann
af Habsborgaraættinni á valda-
stól í Austurríki eða Ungverja-
landi.
í ræðu sinni réðist dr. Benes
hvasslega á Habsborgaraætt-
ina. Hann sagði, að hún ætti
mesta sök á óeiningunni, sem
verið hefði milli þjóðanna við
Dóná, hún liefði reynt að auka
óvildina og óeininguna milli
þjóðanna við Dóná, lil þess að
treysta valdaaðstöðu sina. Nú
væri enn á ný unnið að því, að
koma manni af þessari ætt að
völdum. Afleiðingin væri auð-
sæ: Friðinum yrði spilt i þess-
um hluta álfunnar. — (United
Press—FB.).
1 utanskóla. Er þetta i fyrsta
skifti er stærðfræðideild skól-
ans útskrifar stúdenta.
Einri utanskólanemi gekk fná
prófi í hvorri deild. Efstur í
máladeild varð Ingvar Brynj-
ólfsson með 1. ágætiseinlcunn
7.51. Að eins einn stúdent hefir
áður fengið svo háa einkunn við
skólann. Efstur í stærðfræði-
deild varð Björn Jónsson með 1.
einkunn 6.21. Að lokinni af-
hendingu prófskírteina flutti
skólameistari ræðu um hræðslu,
er honum þótti nú áberandi i
þjóðlífinu. Boð var að lokum
hjá skólameistara.
Deilupnap á
Akupeypi.
Fimtán skip farin á síld-
veiðar.
FÚ. 18. júní.
Samkvæmt símtali við frétta-
ritara útvarpsins á Akureyri
kl. 16 í dag, var svo komið, að
15 skip voru farin á síldveið-
ar, en 12 skipu biðu þess, að
verkfallinu létti. — Átök hafa
orðið um samningagerðir.
Útvarpið birti nýlega frétt
um samningagerðir Erlings
Friðjónssonar fyrir liönd Al-
þýðusambands íslands, og i
gærkveldi um samningagerð-
ir stjórnar Sjómannafélags
Norðurlands. Frekar verður
ekki birt, fyr en fregnir ber-
ast um lyktir deilunnar, en bú-
ist var við, að deilan mundi
leysast þá og þegar.
Landhelgis^
gæslan.
Tilmæli til enskra stjórnar-
valda um að hlutast til um,
að enskir togarar tregðist
ekki við að nema staðar, ef
varðskipin skjóta aðvörun-
arskotum.
Einkaskeyti frá Kaupmanna-
höfn, 17. júní. — FÚ.
Danska blaðið Börsen flytur
i dag símskeyti frá Grimsby,
sem hermir, að fyrir milligöngu
danska sendiherrans þar liafi
enska utanríkismálaráðuneyt-
inu verið afhent tilkynning þar
sem stjórn Islands kveðst ekki
vilja vera ábyrg fyrir skaða
þeim sem verða kynni á bresk-
um togurum og áhöfn þeirra ef
þeir neita að verða við tilmæl-
um varðskipa um að stansa, ef
þess er krafist, eða setja siggegn
handtöku ef um brot er að
ræða. Segir í skeytinu að það
hafi verið tekið fram í tilkynn-
ingunni, að íslensk varðskip
mundu skjóta, ef fiskiskip
verða ekki við fyrirmælum um
að stansa.
Togaraeigendur og skipstjór-
ar í Grimsby hafa sent utan-
ríkismálaráðuneytinu breska
harðort mótmælaskjal gegn
þessari tilkynningu.
(Ríkisútvarpið hefir borið
þessa frétt undir Hermarin Jón-
asson forsætisráðherra, sem nú
gegnir störfum utanríkismála-
ráðherra og segir hann að það
Iiafi líorið við, að varðskip liafi
orðið að skjóta alt að 15 skot-
um, án þess að skip hafi stans-
að. En tilkynning sú sem hér
um ræðir, segir hann að sé að
eins tilmæli til enskra stjórnar-
valda að hlutast til um, að
skipin sýni ekki þessa tregðu,
því að slys kunni að hljótast af).
Nýja sænska
stjórnin
Stokkhólmi 19. júní. FB.
Ríkisdagur Svía hefir nýlega
samþykt aukin fjárframlög til
landvama, og í stað jafnaðar-
mannastjórnarinnar, sem frá
fór vegna ágreinings um þessi
mál, hefir leiðtogi Bænda-
flokksins, Pehrson, Ríkisdags-
maður, myndað stjórn. Hann
er forsætis- og landbúnaðar-
ráðherra. Utanríkismálaráð-
lierra er K. G. Westman pró-
fessor, mentamálaráðherra Tor
Andrea biskup, og verslunar-
ráðlierra Elof Eriksson, for-
stjóri Atvidabergs fabrikker.
Helge Wedin.
Bpetav og
pefsiaðgerð-
irnap.
Breska stjómin einhuga
um afnám refsiaðgerð-
anna. —
Oslo, 18. júní. FB.
Breska stjórnin samþykti í
gær einróma, að leggja til, að
refsiaðgerðirnar gegn Itölum
verði afnumdar. Mun fulltrúi
Breta bera fram tillögu þess
efnis á fundi Þjóðabandalagsins
í Genf í mánaðarlokin. (NRP.
— FB.).
Konungur íslands og drotn-
ing stigu á land kl. rúmlega
12.30 í gær, og hafði feikna
mannfjöldi safnast saman á
Hafnarbakkanum, en meðfram
götum, alt upp í Pósthússtræti,
liafði fólk raðað sér beggja
megin. Skátar aðstoðuðu lög-
regluna við að halda uppi reglu.
Borgin var vitanlega öll fán-
um skreytt, og að undanförnu
hefir inargt verið gert til að
lirýða liana, liús máluð og girð-
ingar o. s. frv. Heiðursbogi var
reistur við höfnina.
Þegar konungsskipið „Dan-
neJjrog“ sigldi inn höfnina, var
hleypt af 27 skotum á „Ingolf“
og „Hvidbjörnen‘„ sem voru í
fylgd með því. Þegar „Danne-
brog“ lagði að hafnarupp-
fyllingunni (Sprengisandi), lék
Lúðrasveit Reykjavíkur „Ó,
guð vors lands“ og „Kong Chri-
stian“.
Forsætisráðherra bauð kon-
ungshjónin velkomin til lands-
ins. Forsætisráðherrafrúin rétti
drotningunni fagran blómvönd.
Konungshjónin gengu nú, á-
samt Knúti prinsi, Karoline
Mathilde prinsessu og öðru
fylgdarliði upp bryggjuna.
Ifafði verið lagt á liana rautt
klæði, en beggja megin stóðu
Ijósklæddar smámeyjar, upp
undir 70 að tölu, og stráðu
blómum fyrir fætur konungs-
hjónanna. Við heiðursbogann
bauð Pétur Halldórsson, borg-
arstjóri, konungshjónin vel-
komin, og var að þvi loknu
hrópað nifalt húrra fyrir kon-
ungshjónunum. Konungur
þakkaði og mælti á íslensku, og
bað menn hrópa ferfalt húrra
fyrir íslandi. Ifeilsaði konungur
og drotning og fylgarlið þeirra
því næst embætlismönnum,
ræðismönnum erlendra ríkja o.
s. frv.
Landsfundurinn hélt áfram
á Þingvöllum í gær og var af-
ar fjölmennur. Um 300 manns
sóltu fundinn. Ileldur lands-
fundurinn áfram í dag á Þing-
völlum og verða bílaferðir
austur í allan dag við og við.
Á Þingvöllum var óvenju-
lega hátiðlegt. íslenskir fánar
voru dregnir á stöng, bæði i Al-
mannagjá og við Valhöll, þar
sem fundurinn fer fram. Yfir
Almannagjá var strengdur
dúkur með áletruninni Lands-
fundur sjálfstæðismanna.
Fundurinn í gær var settur
af formanni flokksins, Ólafi
Tliors alþm., en fundarstjóri
var kosinn Jón Ólafsson alþm.
Dr Stykkisbðlmi.
Stykkisliólmi 18. júni. FÚ.
Línuveiðarinn Alden fór í
nótt frá Stykkishólmi áleiðis
til Siglufjarðar á síldveiðar.
Skipsliöfnin er úr Stykkis-
hólmi, nema skipstjóri, stýri-
maður og vélamenn. Skip, sem
stunda handfæraveiðar úr
Stykkishólmi, hafa aflað sæmi-
lega undanfarið, og ágætur afli
er nú á smábáta, sem róa úr
Stykkishólmi.
Að svo búnu var ekið til bú-
staðar forsætisráðherra, til mið-
degisverðar.
1
í fylgd með konungshjónun-
um eru:
Prins Knud og Caroline Mat-
hilde.
Hirðdama, frk. Seliested.
Hirðdama, frk. Pontoppidan.
Kammerherra, Oberst Dreyer.
Kommandör Grut.
Ceremoniemester, kammer-
herra, Trampe greifi.
Adjutant, Ritmester,Schaum-
burg.
Ad j utant, Orlogskapta jn FoSs.
Konungsritari Jón Svein-
björnsson.
Yfirlæknir Dr. med. Johan-
sen.
Kommandörkaptajn Lemb-
cke.
Kommandörkaptajn Evers.
Orlogskaptajn Örsted.
1 dag.
Kl. 10 árdegis var lagt af stað
frá hafnarbakkanum, áleiðis til
Þrastalundar, þar sem snædd-
ur er hádegisverður. 1 förinni
með konungshjónunum eru
ráðherrar og alþingismenn,
sendiherra Dana og sendiráð,
blaðamenn o. fl.
Við hádegisverðinn í Þrasta-
lundi verða, auk þeirra, er get-
ið liefir verið um, sýslumaður-
inn í Árnessýslu, prófastur og
prestur, hreppstjóri, oddviti og
læknir héraðsins.
Kl. 13.30, að loknum hádegis-
verði, er lagt af stað til Geysis,
og er þar drulddð kaffi. Eftir
dvölina við Geysi heldur kon-
ungsfylgdin til Laugavatns, þar
sem gist verður, en aðrir gest-
ir halda til Reylcjavíkur.
Pétur Magnússon flutti er-
indi á fundinum um landbún-
aðarmál, Tlior Tliors um sjáv-
arútvegsmál, Bjarni Benedikts-
son um ríkisrekstur og ein-
staklingsframtak, Jón Pálma-
son um landbúnað og framtíð
þjóðarinnar og Jóhann Þ. Jós-
efsson um sildarútveginn.
Að kveldverði loknum var
fundinum haldið áfram. Fund-
arstjóri var Jón Auðun Jóns-
son. Umræður voru nú frjáls-
ar. Stóðu þær yfir fram á nótt.
í dag verður skilað áliti
nefndar um skipulag flokks-
ins.
Frá Seyöisfirði.
Seyðisfirði 18. júní.
Óvenjumikil atvinna
hefir verið i Seyðisfirði und-
anfarnar vikur, vegna síldar-
bræðlustöðvarinnar og vatns-
veitu bæjarins.
Beitusíld
veiddist dálítið, og þorskafli er
nokkur, en gæftir óstöðugar.
Sláttur
byrjaði í dag.
Græumeti, —
BFennivím
Eitt af „þarfaverkum“ rauðu
stjórnarinnar er það, að stofn-
setja einokun á grænmeti. Og
því næst er Sambandi isl. sam-
vinnufélaga fenginn í hendur
einokunar-réttur grænmetisins,
að því er mönnum liefir skilist.
Þokast nú óðum í þá áttina*
sem áður var, á einokunartím-
anum gamla, að „verslunar-
leyfin“ gangi kaupum og sölum..
Afhending stjórnarinnar á
einkasöluréttinum er í raun og;
veru ekkert annað en brask
með leyfi til þess að mega selja
grænmeti. Svipar þar mjög tiL
liinna fornu verslunarhátta, er
tíðkuðust á tímabiii verslunar-
einokunarinnar gömlu. Fer
þetta alt mjög nærri þvi, senu
menn höfðu búist við af núver-
andi valdhöfum.
Og auðvitað liefir verð á
grænmeti farið upp úr öllu
valdi jafnskjótt og einokunin
var komin á laggirnar. Það,
sem áður kostaði 60 aura, kost-
ar nú eða kostaði á döggnum 2
krónur eða meira. Það sem áð-
ur kostaði 75—80 aura, kostar
2.50—2.75 og annað eftir því.
Hækkunin er nokkurnveginn
sannur spegill af verslunarhátt-
unum, þar sem einokun ríkir.
Það er ávalt segin saga, að ein-
okaðar vörur sé seldar miklu
liærra verði en frjálsar. Fyrir
því er margföld reynsla. Og
elcki nóg með það, að verðið
hækki, heldur hafa einokunar-
verslanir að jafnaði miklu lak-
ari vörur á boðstólum, lieldur en
tíðkast í frjálsri verslun og.
samkepni. —
Nú er svo komið á voru landi,
að tæplega er hægt að fá nýja
ávexti. Þeir.fást eklci fluttir til
landsins, eða þá mjög af skorn-
um skamti. Því er borið við, að
gjaldeyrisskortur valdi. Það sé
öldungis ómögulegt að láta af
hendi erlendan gjaldeyri, þegar
verja eigi honum til þess, að
kaupa fyrir hann ávexti! Þjóð-
ina vanti tilfinnanlega erlendan
gjaldeyri. Þvi litla, sem til falli,
verði að verja íil þess, að
kaupa fyrir allra mestu nauð-
synjarnar. Þær verði að ganga
fyrir öllu öðru.
Og hverjar eru svo allramestu
nauðsyn j arnar ?
Að því er séð verður, mun
þykja einna mestu máli skifta,
að til sé jafnan i landinu nægar
birgðir af tóbaki og áfengi.
Brennivínið er sá „lífrétt-
ur“, sem sjálfsagt þykir að
ávalt sé til og það i ríkum mæli.
Þó að alt annað bresti, þá er þó
fyrir þvi séð af mikilli um-
hyggju, að alt af geti menn —■
„meðan einn eyrir hrekkur“ —-
drukkið sig fulla, heimilum sín-
um og þjóðfélaginu til „upp-
byggingar“.
En sumum finst þetta eitt-
hvað öfugt. Þeir geta með engu
móti skilið, að þjóðinni sé betra,
að vera grænmetislaus og á-
vaxtalaus, heldur en brennivins-
laus. — Þeir vita af reynslunni,
að þeir eiga bágt með að vera
án.grænmetis og ávaxta, nýrra
og niðursoðinna, og þeir trúa
því ekki, að brennivín.pg annað
áfengi geti talist nauðsynjavara.
Þeir þykjast dags daglega sjá
hér á götum borgarinnar sorg-
leg dæmi þess, að brennivínið
muni ekki sem ákjósanlegust
nauðsyn j avara.
En valdhafarnir og þeir aðrir,
sem með gjaldeyrismálin fara,
virðast þeirrar skoðunar, að
brennivínið megi þó ekki vanta,
hvað sem öllu öðru Iíði.
Það er alvarlegt mál, að
þjóðin (— og þá auðvitað kaup-
staðabúar fyrst og fremst—)
skuli nú hafa verið sama sem
Dp. Benes og
Habsbopgapfi r.
Benes varar viS hættunni, sem af því mundi
stafa, ef Habsborgaraveldi yrði endurreist. —
Landsfundur
Sjálfstæðismanna.