Vísir - 15.08.1936, Blaðsíða 3
KEPPENDUR Á OLYMPISKU LEIKUNUM.
Fpó
Rússlandi.
Rauðu greyin hérna eru við
og við að tala um það, hvilík
einstök sæla það sé. að eiga
heima í Rússlandi. Þar sé nú
ekki atvinnuleysið og dýrtíðin.
Þar liafi allir nóg að gera og
allir hiátt kaup. Og þar sé alt
ákafíega ódýrt. Einliver munur
á vöruverðinu þar, eða t. d. hér
‘á Íándi. —
En þetta er víst ekki allskostar
rétt hjá rauða dótinu. fremur
en annað. — Þess má til dæmis
ygeta þvi til sönnunar, að ekki
sé þar tiltakanlega „ódýrt að
lifa“, að norskur sjómaður, sem
kunniigur er í Rússlandi og hef-
ir komið þar iðulega að undan-
förnu, segir svo nýlega í bréfi
til foreldra sinna heima í Nor-
egi:
„Hér fæst nú ekki nýtt kjöt,
hvað sem í boði er. Maður verð-
ur að sætta sig við niðursoðið
kjöt og þykir það ekki gott.
Pelta niðursoðna kjöt er nú líka
senn að þrotum komið. Annars
er verð á kjöti og grænmeti hér
í Rússlandi óhæfilega hátt.
Kjötpundið fæst ekki undir 4
rúblum, svo að ef við hér (á
skipinu) ætlum að gæða okkur
á kjöti einhvern daginn, þá
kostar það ekki undir 80—100
krónum. Það er þrisvar eða
fjórum sinnum meira en sann-
gjamt getur talist. Svona er
okrað á fólki. Eg skal nefna
annað dæmi: Enginn getur ver-
ið án eldspýtna til lengdar. Þetta
vita þeir hér eystra ekki síður
en aðrir. Riðji eg um eldspýtna-
búnt í búðum hér, þá er mér
sagt að það kosti 80 aura. Eg
er hræddur um, að það þætti
dýrt í Noregi.“
Mikið er nú um það talað í
erlendum blöðum, að siðleysi og
kynferðisglæpir fari vaxandi í
Rússlandi. Er það baft eftir
ýmsum blöðum Sovjetríkisins,
þeim er ekki má senda úr landi.
— Þar er því haldið fram, að
æskulýðurinn sé látinn kynnast
kynférðislífinu mjög snemma
— alt of snemma — og afleið-
iiigin verði sú, að krakkarnir
fari að hugsa um þessa hluti
milclu fyr en ella, en það liefni
sin grimmilega. Fræðslan um
kynferðismálin leiði til þess, að
unglingarnir verði mjög
snemma lialdnir hættulegum
losta-fiðringi og margir hirði
ekki um, að leggja nein bönd á
forvitni sína í kynferðilegum
efnum. Piltar og stúlkur fari að
hafa kynferðis-mök saman
miklu fyrr en áður hafi tiðkast.
Sumum unglingum þyki blátt
áfram merkilegt og sómasam-
legt, að byrja á þessu sem allra
fyrst. Strákur einn, sem staðinn
hafði verið að mökum við telpu
á sínu reki, var spurður að þvi,
livers vegna hann hefði gert
þetta. Hann svaraði: „Mér hefir
verið kent, að eg ætti að gera
skólalærdóm minn arðberandi.
Það hefi eg reynt að gera, jafnt
í þessu sem öðru.“
—o—
Hinir ungu, rússnesku „vík-
ingar“ í ástamálum hafa marg-
ir hverir verið staðnir að við-
bjóðslegum siðferðis-afbrotum.
— Almenningur gerir sér Ijóst,
að þarna muni mikil og alvar-
leg liætta á ferðum. En strákar
og stelpur skeyta ekki um slíkt.
Unglingarnir liafa hlotið
„fræðsluna“ í skólunum og
halda því fram, að foreldrarnir,
sem kunna þessu illa, sé „garnal-
dags“ og engin ástæða til að
taka hið allra minsta mark á
nöldri þeirra. —
Það er nú sagt, að eitthvað sé
farið að votta fyrir því, að yfir-
vöklin telji sig liafa gefið ung-
dóminum of slakan tauminn, i
þessum sökum sem mörgum
öðrum. En kunnugir telja, að
örðugt muni reynast, að upp-
ræta kynferðisspillingu þá, sem
magnast liefir stórkostlega síð-
an skólarnir tóku upp á því, að
„vekja börnin“ með „kynferðis-
tali“ og öðru slíku. — í kjölfar
kynferðis-óranna sigli oft og
einatt truflun á liugsanalífinu
yfirleitt og geðveiki. Sumir pilt-
anna hafi og fyrirfarið sér, er
þeir voru orðnir leiðir á þessum
Messur á morgun.
I dómkirkjunni kl. 11, prest-
vigsla.
I Iiafnarfjarðarkirkju kl. 5,
sira Garðar Þorsteinsson.
í Landakoskirkju: Lágmessa
kl. 8. Hámessa kl. 10. Engin síð-
degisguðsþj ónusta.
I spítalakirkjunni í Hafnarfirði:
Hámessa kl. 9. Engin síðdegis-
guðsþjónusta.
„frjálsu ástum“ og liálf-út-
brunnin skör, vart fullvaxnir
menn. —
Veðrið í morgun.
í Reykjavik 10 stig, Bolung-
arvík 11, Akureyri 13, Skála-
nesi 7, Vestmannaeyjum 9,
Sandi 10, Iívígindisdal 11, Hest-
eyri 15, Gjögri 11, Blönduósi 13,
Siglunesi 11, Grímsey 11, Skál-
um 10, Fagradal 10, Hólum í
Hornafirði 11, Fagurhólsmýri
11, Reykjanesi 12. Mestur hiti
hér í gær 13 stig, minstur 6. Sól-
skin 7.7 st. Yfirlit: Háþrýsti-
svæði yfir Islandi, en lægð við
Suður-Grænland á hægri lireyf-
ingu austur eftir. Horfur: Suð-
vesturland, Faxaflói, Breiða-
fjörður, Vestfirðir: Hægviðri og
úrkomulaust í dag, en sunnan-
gola og dálílil rigning í nótt.
Norðurland, norðausturland,
Austfirðir, suðausturland: Hæg
suðvestan og sunnanátt. Létt-
skýjað.
Vísir kemur út
á mánudaginn í fyrra lagi.
Eru auglýsendur þeir, er aug-
lýsa þurfa í mánudagsblaðinu,
þvi vinsamlega beðnir að koma
auglýsingum sínum til blaðsms
sem allra fyrst á mánudags-
morgun.
Svifflugfélag íslands
heldur fund fyrir virka félaga
mánudagskveld kl. 20,30 í Odd-
féllowhúsinu uppi. Félagsskýr-
teini verða afgreidd á fundin-
um.
Skipafregnir.
Gullfoss var á Siglufirði í
ínorgun. Goðafoss kemur lil
Vestmannaeyja í nótt. Dettifoss
er á leið til Iiull frá Vestmanna-
eyjum. Brúarfoss fór frá Kaup-
mannahöfn í morgun. Lagar-
foss fór frá Leith í dag áleiðis
til Austfjarða. Selfoss er á leið
frá Dunkuerque til Antwerpen.
Edda fór í dag til fisktöku á
höfnum út um land.
Björn Bjarnarson,
hreppstjóri i Grafarliolti, varð
áttræður í gær. Bjöm er mikill
gáfumaður, hneigðiu- til bók-
legrar iðju og fræðistarfa og
hefir margt ritað um dagana.
Hann er búfræðingur að námi
og hefir verið áhugasamur urrt
málefni landbúnaðarins.
Ferðafélag Islands
fer auk göngufararinnar á
Keili næstk. sunnudagsmorg-
un bílferð út á Reykjanes. Ek-
ið í bílum um Grindavík alla
leið að Reykjanesvita. Á
Frásögn Sigurðar dlafssonar urn úrslit o.fl.
Sigurður Ölafsson, vélsetjari í 'Félagsprent-
smiðjunni, liefir dvalist í Berlín að undanförnu,
eða síðan er ólympisku leikarnir hófust. —
Hann cr góður og gegn íþróttamaður, áhuga-
samur og réttorðúr, manna nákvæmastur í frá-
sögnum. t—
S. Ó. liefir sent Vísi bréf það, er fer liér á
eftir, ritað í Berlín 3.—5. þ. m.:
Til að efna hálfgefið loforð ætla eg að skrifa
Vísi Iiér með fáeinar línur um leikana, þótt tim-
inn sé nauniur. Eg veit að fólkið lieima hefir
gaman af að frétta eillhvað af þeirri merkilegu
viðureign, sem hér fer fram þessa dagana. Leik-
arnir liófust 1. ágúst og voru þar jdir 100 þús.
manns saman komnir. Við, eg og félagar mínir,
komum út á leikvanginn kl. um 3, en þó var
þá næstum orðið fullsetið. Var opnunarathöfn-
in afar hátiðleg, enda var mikill fögnuður
þarna, sérslaklega meðal Þjóðverja, sem liafa
verið um 60—80% af áhorfendunum. íþrótt-
irnar hófust ekki fyr en daginn eftir, þ. 2. ágúst.
Þann dag var kept til úrslita í 4 greinum og fór
það sem hér segir:
Kúluvarp.
1. Hans Woellke, Þýskal. (nýtt Ol.met) 16.20 m.
2. Sulo Bárlund, Finnl.............. 16.12 —
3. Gerhard Stöck, Þýskal............15.66 —
4. Samuel Frances, U. S. A.......... 15.45 —
5. Jack Forrance, U. S. A.......... 15.38 —
6. Dimitri Zaitz, U. S. A.......... 15.32 —
Kúluvarpið var sem sé einvígi milli Bárlunds
og Woellke’s, sem búðir voru yfir 16 metra.
Bárlund leiddi kepnina með 16.03 þar til Wo-
ellke fór fram úr honum í fimta kasti með
16.20, en Bárlund bætli við sig upp i 16.12 og
gat ei betur. Bandaríkjamennirnir voru ekki
eins góðir og búist hafði verið við.
_____ Hástökk.
1. Cornelius’O. Johnson, U.S.A. (n.Olm.) 2.03 m.
2. David Altritton, U. S. A..........2.00 —
3. Delos Thurber, U. S. A............2.00 —
4. Kalevi Kotkas, Finnl............2.00 —
5. Kimio Yata, Japan .............. 1.97 —
6. Yosliiro Asakumar, Japan; Hiroshi
Tanaka, Japan; Gustav Weinkötz,
Þýskal. og Lauri Kalima, Finnl.
voru allir fjórir jafnir á 1.94 m.
Jolinson og Albritton eru báðir negrar. John-
son var langbestur og fór altaf yfir í fyrsta
slökki, en hinir þrír næstu voru líkir; þó er lík-
legt, að Bandaríkjamennirnir liefðu stokkið
enn hærra ef veðrið hefði verið hlýrra. Einn ís-
lendingur tók þátt í þessari grein. Var þaö Sig-
urður Sigurðsson frá Vestmannaeyjum.' Hann
stökk 1.80 m., en hafði ekki liærra. Fyrir neðan
hann voru 46 keppinautar, sem ekki höfðu fai’ið
ylir nema 1.70 m. Sigurður stökk nú með nýju
stökklagi, sem hann hafði lært af Ameríkum.
2—3 dögum fyrir kepnina — og má það því
tcljast viðunanlegur árangur af lionum, eftir
svo stuttan tíma.
100 metra hlaup.
1. James C. Owens, U. S. A..........10.3 sek.
2. Ralph Metcalfe, U. S. A..........10.4 —
3. Martinus Osendarp, Hollandi......10.5 —
4. Frank Wykoff, U. S. A.
5. Erich Borchmayer, Þýskal.
6. Lennart Strandberg, Svíþjóð.
Owens hafði í undanrás hlaupið á 10.2 sek.,
cn í úrslitalilaupinu var veðrið ekki eins hlýtt
og þá fór svo, að Owens varð að láta sér nægja
að hafa unnið á 10.3 sek. Svíinn Strandberg var
afar óheppinn á þessu leikum. Hann liafði unn-
ið sinn titil á 10.7 og 1. millihlaup á 10.5. En
sama dag og úrslitahlaupið átti að fara fram,
meiddist hann talsvert í fæti. Þó varð hann 3. i
semifinal og komst i úrslitahlaupið. sem beðið
var eftir með mikilli eftirvæntingu. Strand-
berg var cnn annar eða þriðji eftir 60-70 metra,
en þá þoldi fóturinn ekki lengur áreynsluna og
liann varð að slá af ferðinni. — Einn Islending-
ur, Sveinn Ingvarsson, var með í þessu hlaupi.
Lenti hann í 6. riðli og varð þar fimti á ca. 11.1
sek. Ospidi frá Lichtenstein varð 3.4 metra á
eflir honum.
Spjótkast (kvenna).
1. TiÍly Fleischer, Þýskal. (n. 01.m.) 45.18Yn.
2. Luise Krúger, Þýskal........... 43.24.—.
3. Marja Kwasnienska, Pólland .... 41.80 —
4. Herrtiine Bauma, Austurríki ... . 41.66 —
5. Sadako Yamamoto, Japan .......... 41.45 —
6. Lydia Eberhart, Þýskal...........41.37 —
Þýsku stúlkurnar voru langbestar i þessari
iþróttagrein, enda unnu þær stórsigur.
10.000 m. hlaup.
1. Ilmari Salminen, Finnl........30.15.4 mín.
2. Arvo Askola, Finnl............30.15.6 —
3. Volmari Isohollo, Finnl....... 30.20.2 —
4. Kohei Murakoso, Japan ........ 30.25.0 —
5. James A. Burns, Stóra-Bretland 30.58.2 —
6. Juan Zobala, Argentínu........ 31.22.0 —
Murakoso hafði forystuna mestalt hlaupið,
en þegar eftir voru 3—4 hringir af 25, fóru
Finnarnir fram úf honum og hlupu liann af sér.
Sleggjukast.
1. Ivarl Hein, Þýskal. (n. Ol.m.) .... 56.49 m.
2. Irwin Blask, Þýskal............ 55.04 —
3. Oscar Warngárd, Svíþjóð........ 54.83 —
4. Alfons Kontanen, Finnl.........51.90 —
5. Wijliam J. Rowe, Bandar. ...... 51.66 —
6. Donald Favour, Bandar..........51.01 —
í þessari íþróttagrein varð bardagi milli Þjóð-
verjanna og Svíans. Þeir báru allir gersamlega
af öðrum keppinautum sínuin, ekki að eins í
einu kasti, heldur i öllum. Ameríkumennirnir
voru heldur ekki eins góðir í þessari grein eins
og við var búist.
100 metra hlaup (kvenna).
1. Helen H. Stephens, U. S. A......11.5 sek.
2. Stanislava Walariewicsovna, Póll. 11.7 —
3. Káthe Krausz, Þýskal............ 11.9 —
4. Marie Dollinger, Þýskal.
5. Annette Roger, U. S. A.
6. Emmy Albus, Þýskal.
Slephens bar mjög af keppinautum sínuín,
svo að Idrottsbladet í Stokkhólmi leyfði sér að
halda því fram, að þaö gæli ekki ált sér stað, að
hún væri kvenmaður.
Kringlukast (kvenna).
1. Gisela Mauermayer, Þýskal.
(nýtl heimsm.) ................ 47.63 m.
2. Jadniga Wajsówa, Pólland........ 46.22 —
3. Paula Mollenhauer, Þýskal....... 39.80 —
4. Ko Nakamura, Japan.............. 38.24 —
5. Hida Míneshíma, Japan .......... 37.35 —
6. Birgit Z. Lundström, Svíþjóð .... 35.92 —
Tvær þær fyrstu báru sérstaklega af og þó
einkum Mauermeyer.
800 metra hlaup.
1. John Woodruff, U. S. A.... 1 mín. 52.9 sek.
2. Mario Lanzi, Italía......... 1 — 53.3 —-
3. Philip A. Edwards, Canada 1 — 53.6 —
4. Kazimierz Kucharski, Póll. 1 — 53.8 —
5. Cliarles C. Hornlostel, U.S.A. 1 — 54.6 —
6. Harry W. Williamson, U.S.A. 1 — 55.8 —
Veðrið var ekki gott, þegar úrsli tahlaupið fór
fram, liafði rignt og var þvi kalí; einnig var
talsverður vindur. — Wordruff er negri. Hann
hafði i millihlaupunum náð 1.52,7 og var þvi
búist við betri tima í úrslitahlaupinu. Bardaginn
var harður um 4 fyrstu sætin. Frh.
Sigurður S. Ólafsson.