Vísir - 08.10.1936, Síða 2

Vísir - 08.10.1936, Síða 2
' 1 3 IR Bavdagarnip um Oviedo. Stjórnarliðar hafa náð járnbrautarstöðinni í norðurhluta borgarinnar á sitt vald. — Bar- dagar héldu áfram í Oviedo allan daginn í gær. London, í morgun. Fregnir frá Santander, sem er hafnarborg á norð- urströnd.Spánar, herma að árásunum á Oviedo liafi verið haldið áfram í gær (miðvikudag). Var gerð loftárás á borgina og þyí næst hófst ógurleg fall- byssuskothríð frá því snemma morguns og fram eftir degi. Mikið var barist um járnbrautarstöðina í norðurhluta borgarinnar og fór lið það, sem frá var sagt í gær, og hafði dyna- mithandspreng jur að vopn- um, á stúfana kl. 4 e. h. og gerði árás á eimreiðaskýli járnbrautarstöðvarinnar, sem hafði verið varið af miklu kappi. Lögðu hand- sprengjumeiinirnir skýlið í eyði og einnig hús nokkurt skamt frá, þar sem upp-, reistarmenn höfðu „vél- byssuhreiður“. Með sókn þessari er talið, að náðst 'hafi mikilvægustu staðir til þess að ná fullu valdi á borginni. — Önnur sveit náði einu af útjaðrahverf- um borgarinnar á sitt vald og sótti hersveit þessi að borginni norðaustan frá. (United Press. — FB.). Rússar og hlutleysis- samningurinn. Þeir telja sig lausa allra mála, ef vissum þjóð- um haldist uppi að brjóta samninginn með því að láta uppreistarmenn fá vopn og skotfæri. London, í morgun. Tilkynt hefir verið opin- berlega, að rússneska ráð- stjórnin hafi afhent orð- sendingu þeim ríkisstjórn- um, sem standa að hlut- leysissamningnum svo kall- aða, orðsendingu þess efn- is, að ef eigi verði þegar í stað komið í veg fyrir, að vissum þjóðuin haldist uppi að brjóta í bág við á- kvæði samningsins, telji Rússar sig lausa allra mála og ekki bundna við samn- inginn að einu né neinu leyti. (United Press. — FB.). Dppreistarmenn hóta grimmilegri árás á Madrid London, 7. okt. FÚ. Uppreistarmenn dreifðu í dag milljónum flugrita yfir Madrid, þar sem liótað er grimmilegri árás á borgina, bæði úr lofti og á landi, innan fórra daga, nema að hún gefist upp. Flóttinn frá Madrid. í útvarpsfréttum uppreistar- manna er sagt, að flóttinn frá Madrid sé þegar hafinn, en að aðeins öldruðu kvenfólki, ikirnum og þeim karlmönnum sem fyrir aldurs sakir eða ör- kumlunar eru ekki vopnfærir, sé leyft að fara úr borginni. Svikráð. Dómstólar. t Madrid hefir stjórnin nú gert ráðstafanir til þess að koma í veg fvrir svikráð við stjórnina ' innan borgarinnar. Tíu nýir dómstólar hafa verið skipaðir, til þess að fara með slik mál, ef þeir borgarbúar, sem hafa samúð með uppreist- armönnum, setja sig upp á móti stjórninni. i Loftárásin í fyrradag. Uppreistarmenn halda þvi fram, að í loftárásinni á Mad- rid í gær hafi þeir gert mikið tjón á járnbrautarstöðvum, setuliðsstöðvum, víggirðingum og vopnaverksmiðjum. , i i Hefir Franco 150.000 manna her? Það er álitið, að Franco hers- höfðingi liafi nú safnað 150 þúsund manna liði umhverfis Madrid, og muni hefja sókn sína til borgarinnar fyrir alvöru síðari liluta þessarar viku. Þá er einnig gengið út frá því, að hann muni ekki leggja sérstakt kapp á að ná Bilbao, en sam- eina alla krafta uppreistar- manna um sóknina til höfuð- borgarinnar. •• ,T | Flugsamgöngur milli Madrid og Parísar hófust aftur í dag, eftir að hafa lcgið niðri i tvo mánuði. Gengismálin. London, 7. okt. FÚ. Kauphallir á Ítalíu voru opnar í dag, eftir að hafa verið lokaðar síð- an um fyrri helgi. Viðskifti voru afarmikil. Ferðamannastraumurinn til Frakklands eykst. Síðan gengi franska frankans var lækkað, hefir ferðamanna- straumurinn til Frakklands aukist um 40%. 8 í ræðu, er Chamberlain fjár- málaráðherra Breta flutti í London í gærkvöldi, sagði Iiann m. a. að þær við- iökur, er gengislækkun frank- ans hefði fengið hvarvotna, væru ljósasti vottur þess, í hvert öngþveiti viðskiftamálin voru komin. Atvinnuleysi virðist nú orð- ið landlægt hér hjá okkur. Og við öðru var ekki að búast. Sveitafólkið liefir, fvrir aðgerð- ir núverandi stjórnarflokka, streymt í kaupstaðina og kept um vinnuna við bæjarbúa. Því hefir verið talin trú um, að í kaupstöðunum qg þó einkuin í Reykjavik væri miklu hetra að vera. Þar væri hægt að fá nálega öllum kröf- um fullnægl, bara með því að lisétta að vinna — hefja verk- fall. Atvinnurekendur yrði að láta undan, því að ekki mundu þeir vilja gefast upy við fram- leiðslu verðmætanna. Þeir liéldi að sjálfsögðu áfram, þó að tap væri á rekstrinúm ár eftir ár. Þeir teldi það skyldu sína við þjóðfélagið, áð sjá fólki fyrir atvinnu, meðan þess væri nokk- ur kostur. Framsóknarmenn liafa bein- linis stuðlað að því, að fólkið liyrfi úr sveitum að sjó. Þeir hafa látið mjög af „eyðslulíf- inu“ í kaupstöðunum, einkum bér í Reykjavik. Hér hefði eig- inlega allir alt. Þurfamennirnir gæti komist upp í 7000 króna laun, án þess að drepa liendi i kalt vatn. Hinsvegar yrði sveita- fólkið að vinna nótt með degi og allan ársins hring, en liefði þó hvorki í sig né á. Rægi-tungur „framsóknar- innar“ munu þó ekki hafa ætl- ast til þess beinlínis, að hvísl- ingaleikurinn um alls nægtirnar í Reykjavik yrði orsök þess, að sveitafólkið tæki upp á því, að fara að flykkjast hingað til dvalar. — Hvíslinga-þvaðrið um auðinn hér var einskonar eitrunarstarfsemi. Hugmyndin sú, að kveikja öfund og hatur lil Reykvíkinga meðal sveita- fólksins. Þegar búið væri að gróðursetja öfundina og batrið þótti nokkur von um, að tak- ast mætti að fá flest eða alt fólk i sveitum landsins til þess að kjósa á þing rægirófurnar sjálfar og ýmiskonar „skoffín“ á svipuðu reki. En gálausasti hluti sveita- fólksins þeið ekki boðanna. Því fanst réttara að fara strax og setjast að kræsingunum. Og fólkið þusti til höfuðstaðarins og kepti um atvinnuna við þá sem fyrir voru. Og bráðlega rak að því, að reykvískir atvinnurekendur gátu ekki séð öllu fólkinu fyrir nægilegri vinnu. — Þá hófst atvinnuleysið. Og nú er svo að sjá, sem langt geti orðið þess að bíða, að allir bæjarbúar geti fengið atvinnu, þeir er hennar þurfa og óska eftir því, að vinna fyrir sér, svo að þeir. þurfi ekki að leggjast öðrum til þyngsla. En forsprakkar socialista þóttust kunna ráðin við því, að sjá öllum fyrir atvinnu. Þeir hétu því fyrir kosning- arnar síðustu, að þeir skyldu afnema alt atvinnuleysi þegar í stað, ef þeir kæmi manni í stjórn landsins að kosningum loknum. Þeir kornu manni i stjóm Jandsins. En þeir svikust um að afnema atvinnuleysið. — Þeir báru ekki við að reyna að standa við orð sin að þessu leyti. Hinsvegar snéru þeir sér að því, þessir hálauna-gráðugu og örgu forsprakkar, að smala saman bitum og heinum handa sjálfum sér. Og nú rífa þeir í sig á rikis-kostnað hver og einn. En fólkið fékk ekkert af öll- um kræsingunum. — í þess hlut kom ekkert — nema aukn- ir skattar, auknir tollar og auk- ið atvinnuleysi. — Atvinnuleysið hefir stórum aukist í tíð núverandi stjórnar. Það vita allir. Mundi það þó hafa orðið enn berara, ef sjálf- stæðismennirnir í bæjarstjórn Revkjavíkur hefði ekki knúið fram Sogsvirkjunina, gegn and- róðri og fjandskap núverandi stjórnarflokká. — Þar hafa margir menn haft góða atvinnu siðustu misserin. Þeir hefði bættst í hóp atvinnuleysingj- anna, ef stjórnarflokkarnir hefði fengið að ráða. —o— Allur þorri manna er nú far- inn að sjá til hvers það muni leiða, að láta rauða dótið stjórna íandinu. Fólkið sér og veit, að það leiðir beint til glöt- unar. — Og nú eru menn farnir að tala um það, að heimsækja þá rikisbubbana, Jón Baldvinsson og Héðin, og spyrja þá að því, hve^nig þessu víki við, að þeir skuli ekki hafa gert nokkurn skapaðan hlut til þess, að út- rýma atvinnuleysinu. Þeir hafi lofað því, alveg ótilkvaddir, fyrir kosningarnar 1934, að út- rýma öllu atvinnuleysi á Is- landi í einni svipan, kæmi þeir manni í stjórn landsins. — En þeir liafi ekki einungis svikið það loforð, heldur hafi þeir horft upp á það aðgerðalausir — og sinnulausir um hag al- þýðunnar — að atvinnuleysið ykist til mikilla muna. — Þeir hafa gott af þvi, svikalirapparn- ir, segja menn, að við heim- sækjum þá, tölum alvarlega yfir hausamótunum á þeim og rifjum upp fyrir þeim loforðin og svikin. — Átta italsk- ir flug- tarast. * London í gær. FÚ. Átta ítalskir hernaðarflug- memi fórust i dag, er tvær ítalskar sprengiflugvélar rák- ust á í lofti, við einn hernaðar- flugvöllinn á Ítalíu. Áreksturinn var svo óvæníur, að þeiin er í flugvélunum voru, gafst ekki ráðrúm til þess að grípa til fali- hlífa sinna. Kaupmannahöfn, 7. okt. Einkaskeyti. FÚ. Dóra Sigurðsson hefir nýlega haldið hljómleika með aðstoð manns síns, Har- alds Sigurðssonar, í Oddfellow- höllinni í Kaupmannahöfn. — Blaðið Nationaltidende skrifar um hljómleikana að samvinna þessara tveggja listamanna sé frábær og þrungin af lifandi skilningi; segir blaðið að kvöld- ið hafi orðið Dóru Sigurðsson til gleði, enda sé rödd hennar töfrandi fögur, og tilfinningín fyrir hljómrænni fegurð svo næm, að unun sé á að hlýða. Til útlanda á 1. farrými með einu af Eimskipafélagsskipunumkemst sá, sem verður svo heppinn að vinna einn vinninginn í happ- drætti hlutaveltu sjálfstæðis- manna. Karia^robb. Þeir, sem lesið haf sjálfsæVi- sögu byltingar-manssins Trot- ski (sem er nýlega komin út á íslensku) munu hafa veitt þvi sérstaka athygli, hversu grobb- inn karlinn er og ánægður með sjálfan sig. Hann hælir sér með- al annars af þvi, hversu vel hann hafi staðið sig í skóla, ver- ið efstur í bekk o. s. frv. Þá er og svo að sjá, sem liann telji sig verið hafa aðalmann öreiga- byltingarinnar rússnesku og sjálfkjörinn til þess, að taka æðstu völdin í sínar hendur, er Lenin andaðist. Þetta fór þó á annan veg, sem kunnugt er. Stalin gersigraði hinn „mikla manna“, og síðan hefir Trotzki flækst um allar jarðir sem út- lagi. Hann sá ekki við félaga sínum Stalin. Samt er svo að sjá, sem hann telji sig hafa margfalt vit á við sigurvegar- ann. — Og nú skemtir útlaginn Trolzki sér við það, að skrifa lof um sjálfan sig og skammir um aðra. En Stalin telur hann réttdræpan, hvar sem hann kunni að hittast í Rússalöndum. --o— En það eru fleiri kommún- istar grobbnir en Trotzki, karl- sauðurinn. Nýlega hefir íslenskur komm- únisti, fyrv. sálusorgari í Grundarþingum, Gunnar Bene- diktsson, gefið út pésa er hann nefnir: „Sýn mér trú þina af verkum þínum.“ — Ræðir höf. mjög um sjálfan sig í pésanum og fer langt fram úr hinum rússneska æfintýramanni í grobbi og sjálfhælni. Hér eru örfá sýnishorn, grip- in af handahófi: „Eg stóð öllum framar í lietjuskap á vegum sannleik- ans.“ — Gunnar skannnar síra Þor- stein Briem og segir hann sé ekki „sannur maður“ i sínum augum. — „Eg fyrirleit vænm- ina og andaktina, sem síra Þor- steinn hafði hrifið fólkið með. .... En fólkið þráði við- kvæmni og trúarlegan innileika. .... Og fólkið sigraði..... Andi séra Þorsteins koin yfir mig. Ræðurnar urðu hjartnæm- ar, er eg var að útlista lifi|5 og lögmál þess fyrir fólkinu. Yfir setningunum hvíldi hinn skáld- legi blær skilningsleysisins. .. . . Eg skýrði fyrir fólkinu bless- un mótlætiáins og mátt bænar- innar. Hugsunin var nákvæm- Iega sú sama og lijá séra Bjarna, en snildin var vitanlega miklu meiri og kenningunni fylgdi enn sterkari sannfæringarkraft- ur. Með þessu náði eg því að vera talinn einn glæsilegasti predikarinn á Norðurlandi um nokkurra ára skeið.“ Höf. skýrir frá þvi, að hann (og margir guðfræðingar aðrir) hafi tekið upp á því „að fara að rétta djöflinum litla fingurinn.“ — Er á honum að heyra, að alt þessháttar geti verið ærið vara- samt. — En kolski hafði ekki mikið að gera í hendurnar á sira G. B. — „Eg einn sneri við og hafði mig upp úr feninu,“ segir höf. — Hina togaði djöf- ullinn niður í botnlaust díkið. — Þeir voru allir guðfræðingar. „Eg henti mér inn í kosninga- bardagann“ (í Eyjafirði), segir G. B., „slóst fyrir Bernliarði og gerði það svo frækilega, að eg varð helsti trúnaðarmaður Framsóknar þar í sveitinni og einhver styrkasta stoð flokksins í allri sýslunni.“ — „Eg er formaður upprennandi flokks“ (Framsóknarflokksins) „í einu sterkasta kjördæmi hans á landinu; hafði fcngið orð á mig sem eldheitur liugsjóna- maður, hafði sniðugan kjaft og lipran penna.“ — Alveg eins og Trotzki. — „Slíkir liæfileikar eru í háu verði í kauphöllum braskaranna, sérstaklega á krepputímum.“ G. B. gefur í skyn, að hann hafi búið til ný trúarbrögð — að vísu í félagi við aðra. Þess hefir víst ekki heyrst getið áður. Annars virðist G. B. ekki trúa á neitt annað nú sem stendur en sjálfan sig og kenningar konnn- únista. Sýnisliorn þau, sem birt bafa vcrið hér að framan, verða að nægja. Þau eru öll tekin úr fyrri hluta pésans, og eru ekkí nema örlitið brot af öllú því góðgæti — ámóta eða öllu hressilegra — sem liöf. sallar á sjálfan sig. En þó að sýnishornin sé ekki fleiri en þetta, má öllum Ijóst vera, að grobbið, sjálfs- ánægjan og sjálfsdýrkunin sé . ekkert smáræði. — Og líklega fer G. B. langt fram úr sálufé- laga sínum og fyrirmynd, Trotzki hinum rússneska, i þraut-leiðinlegu monti og skop- legu yfirlæti. JarðræktarlOgin nýju. Niðurl. Formælendur hinna nýju jarö- ræktarlaga, telja aö hin.nýju lög verSi hvatning fyrir þá, er litiS hafa ræktaS, að leggja nú hönd á plóginn, þar sem þeir, sem ekki ' hafi fengið iooo krónur í styrk, fái nú 20% hækkun, en sá galli er á gjöf Njarðar, að styrkur til túna- slétta lækkar áð mun, en .búast má við að víðast þar, sem lítið hefiir verið unnið að jarðrækt, sé það einna mest aðkallandi, að slétta hin gömlu tún; virðist þvi kald- hæðni örlaganna hafa hleypt heila- l.'úi hinna vísu feðra jarðræktar- laganna í baklás, á því ræktun- arsviði, er þessum bændum lá mest á. ■ Hinn svokallaði jaröræktar- styrkur er nú ekki lengur styrkur í þess orðs venjulegu merkingu, né verðlaun fyrir unnin ræktunar- afrek, eins og gömlu lögiu ætl- uðust til, heldur lán, vaxtalaust að vísu, og talið óafturkræft sem stendur, er hvíli á jörðimú, sem unnið er á. Eg fæ því ekki séð, að leiguliði rnegi taka þennan styrk til sín,.þó hánn hafi unnið jar'ðabæturnar, án sérstaks sam- þykkis jarðareiganda, sein eg tel óvíst að þeir verði fúsir til að veita, en reynist svo, þætti mér ekki ósennilegt, að þessi galli lag- anna kæmi ekki hvað síst niður einmitt á þeim mönnum, sem minstan styrk hafa hloti'ð, og hvað verður þá úr jöfnuðinum? Enda virðist mörgum, að þetta fylgif jár- ákvæði sé sett í þeim einum til- gangi, að ríkinu veitist auðveld- ara að sölsa undir sig jarðeignir bænda. Eg býst heldur varla við, að ákvæði 17. gr. laganna verði til þess að hvetja bændur til að safna miklu af þessu fylgifé á jarðir sínaír, þair sem töluverður hluti þeirrar verðaukningar. sem verða kann á jarðeignum vegna rækt- unar, á að renna til hins opinbera, sé jörðin seld, en lánið eða fylgi- féð, að hvíla á jörðinni eftir sem áður, ekki síst, þar sem bændur sjálfir hafa að engu leyti hönd i bagga með skipun þeirra manna, er meta eiga af hverju verðaukn- ing jarðanna stafar. Jafnvel þeir liændur, sem sitja á jörðum, sem eru opinber eign, sæta nú verri kjörum en áður, þó þessi lög séu samin og sett af þeim mönnum, er telja vilja mönn- um trú um, að bændum væri fyrir bestu,að allar jarðir á landinuværi

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.