Vísir - 23.10.1936, Blaðsíða 3
Bókarfregn.
Elín Sigurðardóttir. Kvæði.
Reykjavík. 1936. —
Félagsprentsmiðjan. —
Fyrir örfáum dögum barst
ljóðabók þessi mér í hendur.
Er eg leit bókina, minntist
(“g fyrslu samfunda minna við
höfund bennar. Það var i
sjúkrastofu á Vífilsstöðum.
'Systir mín lá þar rúmföst, og
dvaldi eg hjá henni er hvatleg,
sviphrein kona gekk inn í her-
hergið. Hún kom ofan úr hlið-
inni með væna lyngkló, kröka
af berjum, handa hinni sjúku
vinkonu sinni. Eg man ennþá
bliðusvipinn og brosið hennar
og það var þetta Iítla atvik, sem
kom svo skýrt fram í huga
minn þegár Ijóðin hennar bár-
ust til mín, eins og hvitar dúfur
með: laufblað i .nunni, iðgrænt,
angandi laufblað frá vermireit
hjarta, er ann hinu fagra og
treystir hinu góða. Rvæði Elín-
ar Sigurðardóttur bera þessu
vott. Þau eru auðug af feg-
urð og mildi, hvort heldur þau
fjalla um fjóluna, sem horfir
til himins með bláu augunum
sinum og „minnir á alt hið
æðsta, er auga og hjarta sér“
(bls. 11) eða skáldkonan fylgir
sumrinu úr garði með hinu
gullfagra kvæði, Við sumarlok
(bls. 28).
Kvæðið, 1 apríl, (bls. 8) færir
oss vængjaþyt vorsins, er sveip“
ast að sál skáldkonunnar ög
vekur þar „eilifa þrá upp fyrir
hamraná bröttu að ttá, langt
frá þvi lága og sniáa“. Skáld-
konan lýsir alveldi vorsins,
það er henni fulltrúi lífsins, já
fulltrui hjrts mikla meistara
sem skóp himin og jörð og
alla þá dýrð, sem vorið vekur,
ljóðinu lýkur með bæn um
„gróandans liag, þá gæfu að
vaxa hvern einasta dag lil
Guðsríkisgróðurs að kveldi“.
I kvæðinu: Eg fagna þér
sumarsins sæla, staðnæmist
skáldkonan andspænis æsku-
minningunum. Hún man „æsk-
unnar unað“. Bergmálið, bróð-
urhuginn, liraunið sem áldrei
hafði hlotið neitt gróðurmagn,
— „en mosinn fann miskunar-
þrána, að mega vinna þar
gagn“, — „og hraunið fékk líf-
ræna liti, að Ieggja alt lijarta
Við stein. Það gerir ei annað en
elskan, sem óskar að græða
hvert mein“. Hér er fagurlega
bent á kærleikseðlið, sem fórnar
sér fyrir aðra, sem lifir til þess
eins að likna.
Iívæði Elínar Sigurðardóttur
eru yfirleitt andlegs eðlis. Þar
er að vérki næm, vakandi sál,
sem finnur til, og skilur, vonar
°g trúir, þnátt fyrir þung and-
v<)rp úr djúpinu, — í þeim slær
iilýtt bjarta, fult af samúð með
öllu særðu og smáðu; „þungar
eru þjáningar í bygðum og
borgum, en þyiigst að vera or-
sök í annara sorgum“.
Iívæðið: „Ljúfi líknar andi,
(hls. 13) er álakanleg mynd af
fárviðri í heimi sálarinnar,
ölduróti, lífsháska, þar sem ör-
smátt lífsfleyið berst við brim
og boða. Trúin sér þó til sólar
og bænarandvörp berast í gegn
um brimgnýinn: „Sendu sálna
faðir, sáttageisla niður. Bylgja
i liugans liafi, hrópar nú og
biður“.
Hugurinn hlýnar við að lesa
þessi ljóð, og það þvi fremur,
þegar um það er hugsað, að
böfundur þeirra, hefir árum
Saman kannað djúp þjáning-
rmna, þvi að liætt er við að
Uieira en 30 ára barátta við ill-
vigan sjúkdóm skiljií eftir
eymsl og ör. Eigi að siður er
l}jart yfir kvæðum Elínar,
heiðríkja, sem sannar enn á ný
að „andinn getur hafist hátt,
þótt höfuð lotið verði.“
Kvæðin eiga erindi til allra.
Lifsreyndir menn finna þar
bergmál sinna eigin hugsana;
æskumenn finna þar heilræði
og laðandi bendingar, vil eg
hér minna á kvæðið: Skugginn,
(hls. 20).
„Láttu ekki skuggánn,
skyggja á sannleikann,
vilt hefir það margan
valinkunnan mann.
Hleyptu honum ekki
í liuga þinn inn,
hann getur ráðist
á lijartafriðinn þinn.
Láttu ekki skuggann
skera úr því,
hvað hjartanu er hollast
heiminum i“.
Eg hefi rétt að eins gripið
niður á stöku stað i kvæðunum,
en eg vona að menn fái sér
bókina, er eg tel að verðskuldi
góðar viðtökur. Frágangur all-
ur er í besta lagi. Innbundin
kostar bókin kr. 5,50. Heft 4
kr. Hún er tilvalin tækifæris-
gjöf, og fæst hjá bóksöþim.
Reykjavik, 18. okt, ’36.
Guðrún Lárusdóttir.
Einokunar-
verslunin
gamla.
Skúli landfógeti Magnússon
var ekki i miklum vafa um
það, af hverju hún stafaði
fyrst og fremst, hin mikla og
almenna fátækt hér á landi, t.
d. í Gullbringusýslu og Kjósar-
sýslu. — Hann segir svo á ein-
um stað í lýsing sinni á þess-
um sýslum, er liann hefir gert
grein fyrir hnignan efnahags-
ins og vesaldómi fólksins:
„Skyldi það nú verá ómaks-
ins vert, að brjóta lengur heil-
ann um meginástæðuna fyrir
fólksfækkuninni í sýslum þess-
um og liina afar þungbæru,
jafnvel óeðlilegu fáækt manna,
sem hefir i svo mörg ár svift
þá nauðsynlegum kröftum til
að leita sér eðlilegrar lífsbjarg-
ar á sjó og landi. Hvorki jarð-
skjálftar, jarðeldar, snjóar né
skriðuföll, eigi heldur harðir
vetur, rekísinn frá Grænlandi
eða meðfædd leti, er megin-
ástæðan, ekki heldur óhóf um
brennívín, tóbak eða dýran
fatnað! — Alt þetta vekur
mikla eftirtekt, af því að fá-
tæktin er orðin svo óskapleg,
að menn geta ekki veitt sér
nauðsynlegusu föt og fæði, og
því síður veitt sér liófsamleg-
ar skemtanir, þar sem þeir húa
við þungbærari vinnu og erf-
iðari kjör en siðmentir íbúar
nokkurs annars lands í Evrópu
nú á tímum. — En liitt er ann-
að atriði, hvort einokunar-
versluninni verði komið *í það
horf, að hún geti nokkurn tíma
hætt það, sem hún liefir eyði-
iagt.“ '
Skúli landfógeli var áreiðan-
lega þeirrar skoðunar, að fá-
tækt þjóðarinnar og vesaldóm-
ur væri að langmestu leyti ein-
okunarversluninni að kenna.
Skoðun lians var sú, að versl-
unareinokun væri bölvun
lands og lýða. Og vafalaust
mundi hann hafa sömu skoð-
un á verslunareinokun vorra
daga.— Honum mundi þykja
einokunar-dótið liér á landi
undarlegar skepnur, en jafn-
framt stórliætlulegar þjóðinni,
efnahag hennar og menningu.
Gyðingaofsóknir
í Runieníu.
Eins og í niörgum öðrum
löndum álfunnar hafa Gyðing-
ar í Rúmeníu löngum verið of-
sóttir. Svo virðist, sem ofsókn-
irnar á hendur þeim sé að auk-
ast í seinni tíð. Það líður varla
svo vika, segir i grein kunns
amerísks blaðamanns, að ekki
komi til árása á Gyðinga ein-
hversstaðar í Rúmeníu. Andúð-
in gegn Gyðingunum bindur
hægriflokkana saman þótt ann-
ars sé margt, sem aðskilur þá.
Og álirif hægri flokkanna eru
stöðugt að aukast. Margir i þeim
flokkum aðhyllast skoðun Hitl-
ers á Gyðingum. Og það verð-
ur stöðugt greinilegra, að fjöl-
meimir flokkar hafa gert það
að stefnuskráratriði, að rýra á-
hrif Gyðinga sem mest,
Það er ákaflega hætt við því,
að áður langt líði, ef andstæð-
ingum Gyðínga vex enn fylgi i
Rúmeníu, muni koma til alvar-
legra Gyðingaofsókna, Víða eru
Gyðingar óvinsælir en óviða
inunu óvinsældir þeirra meiri
en i Rúmeníu, nema ef til vill
í Póllandi og Þýskalandi.
Á 19. öld var það títt, að stór-
jarðaeigendur í Rúmeníu leigðu
Gyðingum jarðir sínar, en lifðu
sjálfir í vellystingum i París
eða Monte Carlo. Gyðingarnir,
sem leigðu stórjarðirnar, not-
uðu aðstöðu sína til þess að
fara illa með smábænduma.
Bændurnir rúmensku hafa
engu gleymt. Þeir hata Gyð-
inga og þess vegna hafa þeir,
sem vilja rýra vald Gyðinga,
mikið fylgi meðal bænda. Gyð-
ingar hafa oft verið ofsóttir í
Rúmeníu t. d. áratugina fyrir
heimsstyrjöldina. í Rúmeniu
hafa lengi verið flokkar, sem
að miklu leyti hafa lifað á Gyð-
ingahalri sínu, t. d. Cuzaflokk-
urinn, kendur við Cuza pró-
fessor, sem til skamms tíma
liafði þó eigi mikil álirif, en er
nú mjög að éflast. Goga-flokk-
urinn, kendur við Oktavian
Goga, sem er bændaflokkur,
hefir nú gert nokkurs konar
liandalag við Cuza. Vaida-Voe-
vod, sem stofnaði þjóðlega
bændaflokkinn, gekk síðar úr
þeim flokki og stofnaði annan
nýjan, sem vinnur á allan liátt
gegn Gyðingum.
Engir þessir flokkar eru stór-
ir, en svo er „járnvarðliðið“,
sem Zela Codreanu hersliöfð-
ingi stofnaði, en hann skipu-
lagði það á sama liátt og Nati-
onalsocialistar í Þýskallandi á-
rásarlið sitt. Járnvarðliðið var
leyst upp fyrir þreinur árum,
þegar Duca forsætisráðherra
var myrtur, en þessi flokkur er
eigi, að siður starfandi enn, þótt
með leynd sé, og hann heldur
uppi öflugum áróðri á liendur
Gyðingum um land alt.
Fjöldi stjórnmálamanna sem
sjá sér hag í því að vera með
þeim, sem mestrar hylli njóta
i þann og þann svipinn, vinna
nú gegn Gyðingum, því að þeir
ætla, að þeir flokkar, sem vinni
gegn Gyðingum slandi nú best
að vígi til þess að afla sér fylgis.
Margir herforingjar íRúmen-
íu eru sagðir hlyntir andstæð-
ingum Gyðinga. En Karl kon-
ungur er það ekld og kennir
þar áhrifa frá hjákonu hans,
Hvað gerip
Krossinn á
Hörmungar þær, er nú ríkja
á Spáni vegna hinnar liræði-
legu borgarastyrjaldar, bafa
gefið Rauða-Kross félaginu nóg
að starfa.
Félagið er algerlega hlutlaust,
og óliáð öllum pólitískum stefn-
um, og hjálpar öllum jafnt, án
tillits til þjóðernis, trúar, eða
stöðu. Sýnir það sig nú, eins og
fyr, að enginn félagsskapur
getur betur hjálpað, er strið ber
að höndum.
Þegar borgarastyrjöldin
braust út á Spáni í sumar, sendi
Alþjóðanefnd Rauða Krossins í
Genf, Ðr. Junod til Spánar, til
þess að komast eftir að hverju
leyti Alþjóðanefndin gæti hjálp-
að Rauða Kross félaginu til þess
að viðurkenna hlutleysi Rauða
Krossins, og þeirrg manna, er
vinna undir merki hans. Að fá
þá til þess að skuldbinda sig tíl
að misvirða ekki merki félags-
ins, og stuðla að öryggi kvepna
og barna. Til frekara eftirlits
liefir Alþjóðanefndin sent fjóra
fulltrúa til Spánar, og liafa þeir
sest að í fjóruin borgum, Mad-
rid, Barcelona, Burgos og Se-
villa.
Rauði
Spáni?
Er verk þessara manna fyrst
og fremst:
a) Að sjá uin að merki Rauða
Ivrossins sé sýnd fullkomin
virðing.
b) Að setja upp upplýsinga-
skrifstofu, þar sem liægt er að
fá upplýsingar um menn, sem
lalið er að hafi fallið, sem sakn-
að er, eða hafa verið teknir til
fanga.
c) Ráðstafa gjöfum þeim, er
sendar eru frá öðrum löndum
til hjálpar hinum nauðstöddu.
d) Að ráða fram úr vanda-
málum er fyrir koma, og geta
heyrt undir Alþjóðanefnd
Rauða Krossins.
Vegna þessa mikla starfs er
Alþjóðanefndin hefir tekið að
sér, hefir nefiwlin farið þess á
leit við Rauða Kros's félög út um
heiminn, að hjálpa sér eftir
mætti, og hafa urjdirtektir yerið
góðar. Alþjóðasamband Rauða
Krossins í, Paris lijálpar Al-
þjóðanefndinni mjög i þessu
stórfelda starfi hennar.
(Tilk. frá R. Kr, Isl. — FB.).
um land og ágæt heyskapartíð
í júlí-mánuði. — í ágústmánuði
brá tilí úrkomu nokkurar, en
varð ekki mjög að sök. 1 sept-
ember var heyskapartið mjög
ohagstæð, sakir úrkomu og
storma. Hröktust þá hey’ víða,
cn sumstaðar fauk mikið af
heyjum í aftakaveðrinu um
miðjan mánuðinn. Viða var úti
mikið af heyjum löngu eftir
réttir og mun óvíst að þau hafi
náðst i garð, enda hrakin orðin
og lélegt fóður.
Sjómannakveðja.
FB. i dag.
Erum á leið til Englands. Vel-
líðan. Kveðjur.
Skipverjar á Hafsteinn
Næturlæknir
er í nótt Halldór Stefánsson,
Skólavörðustig 12. Sími 2234.
Næturvörður í Reykjavikur
apóteki og Lyf jabúðinni Iðunni.
títvarpið í kveld.
19,10 Veðurfr. 19,20 Hljóm-
plötur: Haust- og vetrarlög.
19*45 Fréttir. 20,15 Bækur og
menn (Vilhj. Þ. GisJason). 20,30
Sumarkveðja og minnittgarat-
höfn vegna mannskaða á sumr-
inu.
I.O.O.F. 1 = I1810238V2 s
Veðrið í morgun:
í Reykjavik 5 stig, Bolungar-
vílc 3, Akureyri 3, Skálanesi 5,
Vestmannaeyjum 5, Sandi 4,
Kvígindisdal 4, Hesteyri 2,
Gjögri 5, Blönduósi 4, Siglunesi
3, Grímsey 2, Raufarhöfn 5,
Skálum 5, Fagradal 5, Papey 6,
Fagurliólsmýri 6, Reykjariesi 5,
Mestur hiti hér í gær 11 stig,
minstur 0. Úrkoma 4,3 m.m.
Sólskin 0.1 st. Yfirlit: Lægð
norðaustur af Langanesi og
önnur yfir Grænlandsliafi. —
Horfur: Suðvesturland, Faxa-
flói, Breiðafjörður: Vestan eða
suðvestan gola. Skúrir. Vestfirð-
ir, Norðurland, norðausturland:
Austan eða norðaustan kaldi.
Rigning eða slydda. Einkum í
útsveitum. Austfirðir, suðaust-
urland: Hægviðri. Víðast úr-
komulaust.
Skipaf regnir. •
Gullfoss kemur til Leith í
dag. Goðafoss kom í nótt að
vestan og norðan. Brúarfoss er
i Loiidon. Fer þaðan á morgun.
Dettifoss er á leið til Hull frá
Hamborg. Lagarfoss fór frá
Reyðarfirði kl. 10 í morgun.
Selfoss er á leið lil Leith frá
Antwerpen. Esja var á leið frá
Bakkafirði til Þórshafnar í gær.
Sjálfstæðismenn og konur.
Á morgun verður fyrsti
skemtifundur Varðarfélagsins á
Hótel Borg, og liefst kl. 8V2 e.
h. Mjög margt til skemtunar og
fróðleiks. Aðgöngumiðar seldir
í Varðarhúsinu daglega. Trygg-
ið ykkur aðgöngumiða í tíma,
þar eð þeir verða ekki seldir
við innganginn.
Fiskfarmurinn til Sevilla,
sem Sölusamband ísl. fisk-
framleiðenda sendi þangað á
döðgunum, er nú kominn til
Spánar. Var farmurinn greidd-
ur að fullu í sterlingspundum.
Þetta er fyrsti farmuriun, sem
seldur liefir verið tíl Spánar,
eftir að styrjöldin braust út þar
i Iandi. Verðið var töluvert
hærra en annarsstaðar var liægt
að fá.
89 ára
er i dag ekkjan Ingibjörg Sig-
urðardóttir, Þórlaugargerði í
Vestmannaeyjum.
Aflasala.
B.v. Gullfoss hefir selt 1090
vættir af ísfiski í Grímsby fyr-
ir 824 stpd.
Fiskmarkaðurinn í Grímsby
í dag:
Besti sólkoli, pr. box .. 80 sh.
Rauðspetta, pr. box .., 65 —
Stór ýsa, pr. box 40 —
Miðlungs ýsa pr. box ... 30 —
Frál. þorskur pr.20stk. 60 —
Stór þorskur pr. box ... 15 —
Smáþorskur pr. box . .. 14 —
(Tilkynning frá Fiskimála-
nefnd. — FB.).
Skíðafélag Reykjavíkur
heldur framhaldsaðalfund í
kveld kl. 8V2 í Oddfellowhöll-
inni.,
Sumarið
kveður í dag. Framan af
sumri var tíð hagstæð víðast
á Aknreyri.
Kl. að ganga tólf í gærkveldi
komu tveir mjög snarpir land-
skjálftakippir á Akureyri. —
Greip fólk nokkur ótti. Síðar
kom þriðji kippurinn og var
hann vægur.
Bifreiðarslys
í dag.
Laust fyrir kl. 1 í dag varð
piltur á reiðhjóli fyrir bil í
miðbænum, á liorni Austur-
strætis og Póstliússtrætis. Varð
slvsið með þeim hætti, að pilt-
urinn ætlaði að hjóla fram hjá
bílnum, en varð á milli steinsins
á gatnamótunum og bílsins.
Fór reiðhjólið þar ó hliðina, en
pilturinn varð undir því, og fór
afturhjólið á bílnum yfir ann-
an fót piltsins. Var hann fluttur
suður á Landspitala. Pilturinn
lieitir Baldvin Bjarnason og á
heima á Fossvogsbletti 5.
STAKA,
eignuð Jónatan presti Sigurðs-
syni á Slað i Hrútafirði, en ekki
mun vist, að hann sé höfundur-
inn:
Tímarin líður óðum á,
æðsta ráði bundinn.
Dauðinn bíður dyrum hjá,
dýr er náðarstundin.
MÖgdu Lupescu, sem er Gyð-
ingur að ætt.
En horfurnar eru slæmar í
landipu. Og einn af kunnustu
s tj órnmálamönnum landsins,
Avarescu, fyrrverandi forsætis-
ráðherra, hefir nýlega komist
svo að orði í kunnu rúmensku
blaði, að liorfurnar séu hinar
alvarlegustu og framtíð lands-
ins hætta búin. Hann segir jafn-
vel, að vel kunni svo að fara,
að innanlandserjurnar leiði til
þess, að horgarastyrjöld brjót-
ist út þá og þegar.
A111 i
lerÉRBardreaiif
þurfa að lesa bókina um
EDISON.
Betri bók er ekki liægt að gcfa
fermingardreng.