Vísir - 19.11.1936, Blaðsíða 2
VÍSIR
„AO gefnn tilefni".
Nýjap loftíipásir á Madrid.
50 menn blða bana og særast.
London, í morgun.
Snemma í morgun (fimtudagsmorgun) gerðu uppreistar-
menn ioftárás á Madrid og vörpuðu flugmennirnir niður
sprengikúlum í miðhluta borgarinnar og þar í grend. Markmið
þeirra nú sem og raunar áður virðist hafa verið, að eyðileggja
símastöðina. Fjöldi husa í nágrenni stöðvarinnar skemdist og
kviknaði í sumum þeirra, en á símastöðinni sjálfri urðu minni
skemdir en ætla mætti. Þó brotnuðu rúður í hundraðatali o.s.frv.
í nokkurum húsum kviknaði á Granviasvæðinu að afstaðinni
loftárás.
Um fimtíu menn biðu bana og særöust í loftárásum þessum,
að því er giskað er á.
Fyrir suðvestan borgina er haldið uppi ógurlegri fallbyssu-
skothríð af báðum aðiljum, — (United Press. — FB.).
i
Þjóðabandalagið dregjð inn í Spánarmálin.
Útvarpsstöðin í Yalencia hefir tilkynt, að Caballero-stjórnin
hafi sent Þjóðabandalaginu mótmæli út af því, að ítalir og
Þjóðverjar hafa viðurkent stjórn Franco’s sem ,hina löglegu
stjórn Spánar, — (United Press. — FB.).
CALLE DE ALCALA
ein af aðalgötunum 1 Madrid.
Stórskotalið uppreistaimanna undirbýr nýja sókn.
Tímadilkurinn var í vandræð-
um með forsíðuna sína um dag-
inn og gat þá ekki fundið annað
. beíra til uppfyllingar en að birta
grein, með gleiðletraðri fyrir-
sögn, sem átti að vera rógur
um útgerðarmenn og starfsemi
þeirra. Blaðið hélt því fram, að
innflutningsleyfin fyrir ísfisk
til Englands væri ekki notu'ð
vegna þess að útgerðarmenn
vildu ekki afla gjaldeyris handa
ríkisstjórninni, én létu togarana
liggja við hafnargarðana. V'ísir
upplýsti í málinu, að flestir af
þeim togurum, sem inni eru,
liggja þar til viðgerðar, eftir
langa og erfiða sumarvertíð og
einnig til undirbúnings undir
„klössun“ hjá erlendu skipaeft-
irliti. Það var einnig bent á það,
að liöfuðástæðan til þess, að
Englandsleyfin væri ekki meira
notuð en raun er á, væri sú, að
Fiskimálanefnd hefði sett á-
kveðið liámarksmagn, sem
livert skip mætti flýtja í ferð
og því hafði það tafist, að leyfin
yrðu notuð. Þetta hámark var
sett 1200 vættir i ferð og mátti
ekki frá því víkja, þótt bent
væri á fyrirsjáanlegan halla af
tiltekinni ferð, nema meira
magn fengist flutt.Sumarvertíð-
in leið og haustið kom og þá
vantaði mikið til þess, að við
værum. búnir að flytja það
magn ísfiskjar til Englands,
sem okkur var heimilt. Hér við
bættist, að Englendingar gáfu
vilyrði fyrir viðbótarinnflutn-
ingi, sem þó ekki komst i fram-
kvæmd fyrir andstöðu keppi-
nauta okkar, Hefði viðbótarinn-
flutníngurinn fengist, hefðu
takmarkanir Fiskimálanefndar
komið útgerðínni enn ver, og er
þó nóg sem komið er.
Það er ekki fyr en nú fyrir
nokkrum dögum, að Fiskimála-
nefnd sendir út tilkynningu, þar
sem það er tekið fram, „að
gefnu tilefni“, að útgerðarmenn
megi flytja ótakmarkað magn
í ferð, „eins og verið hafi und-
anfarna mánuði“. Hvað orðin
„undanfarna mánuði“ þýðir i
þessu sambandi, er ekki gott að
átta sig á. Nefndin virðist ekln
leggja venjulegan skilning í
þetta orðasamband, eftir fram-
komu hennar gagnvart út-
gerðarmönnum síðastliðnar
vikur. -— f sumar biður h.f.
Kveldúlfur um leyfi til flytja 70
tonn í hverri veiðiferð, sem far-
in sé til Hull. Út af því skrifar
Fiskimálanefnd félaginu bréf í
ágúst og birlist liér lcafli úr því:
-----„Vér viljum tilkynna
3Tður, að vér sjáum oss ekki
fært að veita mismunandi
magn eftir því hvar landað er
í Englandi og getum lieldur
ekki aukið magnið frá þvi,
sem nú er ákveðið, en það er
hámark 60 tonn eða 1200
vættir í hverri veiðiför.
I þessu sambandi viljúm
vér vekja athygli yðar á því,
að skip yðar Gyllir landaði
í Englandi 30. f. m. 1706 vætt-
um. Er það 506 vættum meira
en til var ætlast, er löndunar-
leyfi togara var símað út.
Enda þótt það hafi ekki ver-
ið skriflega tilkynt, að magn-
( ið mætti ekki fara fram úr
1200 vættum, mun yður þó
hafa verið kunnugt um, að
löndunarlejdin voru miðuð
við þetta magn.
Það má ef til vill segja, að
ekki þýði að sakast um orð-
inn hlut, en vér viljum þó
vekja athygli yðar á þessu og
benda yður á jafnframt, að
framvegis má magn það, er
skip yðar landa í Englandi,
ekki fara fram úr 1200 vætt-
um í ferð. Viljum vér óska
staðfestingar yðar á því, að
þér gerið ráðstafanir lil þess
að eftir þessu verði farið.
Verði ^misbrestur á þessu,
mun Fiskimálanefndin nejrð-
ast til að síma löndunarleyfi
fyrir tiltekið magn i hverri
ferð, en það er lilutur, sem
æskilegt væri að komast lijá
í lengstu lög.“
Þessi bréfkafli er birtur hér
í heild, til þess að menn geti
fengið lækifæri til þess að
kynnast „tóninum“ í fyrirskip-
unum þessara nefndarherra. í
ágúst er það skorinort tekið
fram, að framvegis fáist ekki
leyfi fyrir meiru en 1200 vætt-
um og svo er því bætt við, að
verði því ekki hlýtt, neyðist
nefndin til þess að gera ráð-
stafanir, sem reyndar sé best
að komast hjá. Og síðan hefir
Jvvedlúlfur ekki fengið neina til-
kynningu um að flytja mætti
meira magn. Slík er ráðs-
menskan, sem sett er yfir ís-
lenska útgerðarmenn.
Um mánaðamótin sept.—okt.
neitaði nefndin einnig h.f.
Reykjaborg um að flytja meira
magn en tilskilið var. Forráða-
menn skipsins bentu nefndinni
á, að það væri beint skilyrði
fyrir því að ferðin gæti borgað
sig, að leyft yrði að flytja meira
magn. Skrifstofustjórinn viður-
kendi þessar ástæður forstjór-
ans, en sagði þó, með góðlátleg-
um axlalyftingum, að það væri
nú sama — nefndin hefði á-
lcveðið þetta og frá því yrði ekki
vikið.
Útgerðarmenn hér í bænum
hafa ekkí fengíð neínar tilkynn-
ingar frá Fiskimálanefnd fyr
en nú i nóv. um að flytja mætti
meira magn ísfiskjar til Eng-
lands en verið hefði. Það sýn-
ist þó eðlilegt, að félag eins og
h.f. Kveldúlfur hefði fengið
bréflega tilkynningu um þessa
stefnubreytingu nefndarinnar,
eftir að forstjórarnirhöfðufeng-
ið slíkt bréf frá nefndinni,er hér
er birt. Þessi tilkynning nefnd-
arinnar fyrir fáum dögum, að
„gefnu tilefni“, virðist fram
komin til þess eins, að breiða
yfir óverjandi starfshætti hjá
þessari socialista-nefnd.
En svo kemur Tímadilkurinn,
vesalingur, og fyllir út forsíð-
una sína með rógi um útgerð-
armenn, fyrir að hafa ekki veitt
upp innflutn ingsleyf in til Eng-
lands! Það átti að stafa af óvilja
útgerðarmanna til að afla land-
inu gjaldeyris! Þetta lieimsku-
lega blaður snýst gegn Fiski-
málanefnd, sern Tímamenn og
socialistar þrengdu upp á is-
lenska útgerð, henni til skaða,
„skapraunar og ekki ósjaldan til
skammar i viðskiftum utan
landsins. Útgerðarmenn hafa
„að gefnu tilefni“ krafist þess,
að nefndin yrði lögð niður og
þeim sjálfum fengin forusta
sinna eigin mála. Og þeir munu
lialda áfram að kreíjast þess, að
gefnum nýjum tilefnum frá
hinum rauðu nefndarherrum.
KvenmanDslík
fanst í Örfirisey í rnorgun um
kl. 10. Líkið var í nærldæðum
einum og var óupplýst, er blað-
ið átti tal við lögregluna, um
hvaða konu er að ræða. Hún
mun hafa verið á fertugs aldri,
eftir h’kum að dæma.
London í morgun.
Uppreistarmenn halda áfram
sókn sinni inn í Madrid, úr há-
skólahverfinu, enda þótt þeim
miði hægt áfram. Stjórnin segir
þó eklcert um bardaga á þessu
svæði, né lieldur um framsólm
uppreistarinanna, en aftur á
móti segir hún frá bardögum
suðvestan við borgina, þar sem
hún vinni á.
Þrjátiu flugvélar uppreistar-
manna gerðu harðvítuga loftá-
rás á borgina kl. 2 í nótt. Nokkr-
um klukkustundum áður hafði
verið kastað niður flugritui7i,
þar sem borgarbúar voru hvatt-
ir til þess að leita hælis i norð-
vesturhluta borgarinnar, sem
mundi verða talinn hlutlaust
svæði, en í þessurn borgarhluta
er breski sendiherrabústaðurinn
og þarhafa einnigmargar sendi-
sveitir aðsetur sitt. ,
Flugvélarnar köstuðu sprengj-
um yíir miðbik borgarinnar, og
gerði mikinn skaða. FÚ. ,
Spænskir „uppreistarmenn
taka tvö rússnesk skip.
Oslo miðvikudag.
Spænsk herskip á valdi upp-
reistarmanna hafa tekið tvö
rússneslc herskip og flutt þau
til Comarina-flóa. Rannsókn
uppreistarmanna hafði ekki til-
ætlaðan árangur, því að ekkert
af vopnum eða skotfærum
fanst í skipinu, en samt sem áð-
ur var farmur þeirra gerður
upptækur. Annað skipið var á
ileið til Port Said, en hitt til
Ratuín. — Rússneska frétta-
Berlín i gær.
Fréttir frá Toledo herma, að
tiltölulega rólegt sé nú vígstöðv-
unum við Madrid, en að stór-
skotalið uppreistarmanna und-
irbúi nýja sókn. Segir þessi
fregn, að margar sveitir upp-
reis tarhersins liafi komist yfir
Manzaneresfljót og liafist nú
við liandan við Segoviabrúna.
Ilafi skothríð uppreistarmanna
kveikl í fangslsisbjrggingunni og
Montanahermannaskálanum í
norðurliluta borgarinnar.
Útvarpsstöð uppreistarmanna
í Tetuan segir, að aðstaða upp-
reistarhersins á vígstöðvunum
við Madrid sé nú mjög góð, og
að stórskotalið lians hafi vald-
ið miklum skemdum á varnar-
virkjum stjórnarhersins við
Manzanaresfljót. Margar opin-
berar byggingar standi í björtu
báli
Beitiskip uppreistarmanna
hefir skotið í kaf spánskt versl-
unarskip við Spánarstrendur.
stofan heldur því fram, að til-
gangur spænskra uppreistar-
manna sé að koma af stað
deilumáli, er leiði til alvarlegra
árekstra. (NRP—FB).
%
Útavrpsstöðvarnar í Madrid
eyðilagðar.
Oslo miðvikudag.
Fregnir frá Spáni lierma, að
báðar útvarpsstöðvarnar í Mad-
rid liafi skemst í loftárásum
uppreistarmanna á borgina í
nótt er leið. (NRP—FB).
Italía og Þýska-
land Tiðarkenna
stjúrn Franca’s.
London i gær. FÚ.
ítalia og Þýskaland hafa í dag
viðurkennt stjórn Franco liers-
liöfðingja sem hina löglegu
stjórn Spánar. Tilkynningar
þess efnis voru gefnar út að
lieita mátti samtímis í Berlín og
Róm, (eða milli kl. 4 og 5 síðd.
eftir isl. tíma) og voru auk þess
samhljóða, eða á þessa leið:
„Þar sem Franco hersliöfðingi
hefir nú lagt undir sig meiri
hluta Spánar, og þar sem at-
burðir síðustu viku hafa sýnt,
að um ábyrga stjórn er ekki að
ræða í öðrum landshlutum, þá
hefir þýska stjórnin (ílalska
stjórnin) ákveðið að viðurkenna
stjórn Franco hershöfðingja
sem hina löglegu stjórn Spánar,
og skipa fulltrúa til þess að
hefja stjórnmálalega samvinnu
milli stjórnar hans og þýsku
(ítölsku) stjórnarinnar.
Nýr þýskur sendiherra fer
til Spánar.
Berlin, í'morgun.
Eftir að liafa viðurkent
bráðabil’gðástjórn Francos, sem
stjórn Spánar, hefir nú þýska
stjórnin skipað nýja sendisveit
á Spáni og mun hún bráðlega
leggja af stað frá Þýskalandi, en
sendisveit sú sem Þjóðverjar
liöfðu í Alicante hefir verið
kölluð heim. Samtímis hefir ít-
alslea stjórnin lýst yfir viður-
kenningu sinni á stjórn Franc-
os, og skipað nýja sendisveit á
Spáni, en kallað hina fyrri
heim.
London, í morgun.
Viðurkenning Itala og Þjóð-
verja á stjórn Francos á Spáni
hefir ekki valdið neinum æsing-
um, og er eina spurningin, sem
lögð er fram í þvi sambandi sú,
livort þessi riki muni lialda
áfram að starfa í hlutleysis-
nefndinni. Þýska stjórnin hefir
þegar gefið í skyn, að stefna
hennar í því sambandi muni
haldast óbreytt.
í nótt sem leið, á öðrum tím-
anum, hvesti skyndilega á sunn-
an. Varð veðurliæðin feikna
mikil eða 10-—11 vindstig og
sumstaðar nærri 12. Feikna úr-
lcoma var viða um land, en of-
viðrið fór yfir alt Ia'nd. Undir
morgun dró lil suðvestan áttar
og livesti síðar því austar sem
dró. Úrkoman mun hafa verið
einna rnest á Fagurhólsmýri
undir Öræfum, 76 mm. eftir
nóttina. Hiti var í morgun við-
ast 5—8 stig.
Hætt er við, að miklar
skemdir hafi orðið í ofviðri
þessu. Hér í bænum urðu
nokkrar skemdir, símaþræðir
Salengro
innanpíkis-*
ráðheFFa
Frakka fremup
sjálfsmopd.
London í gær. FÚ.
Roger Salengro, innanríkis-
ráðherra Frakka, fanst i morg-
un örendur, á heimili sínu í
Lille, og hafði liann fallið fyrir
eigin hendi.
Þetta tiltælci ráðherrans er
afleiðing af heiftugum árásum
sem hann liafði orðið fyrir af
hálfu stjórnarandstæðinga, en
þeir báru á hámi að hann hefði
slrokið úr hernum á stríðsárun-
um, og verið dæmdur til dauðá
af herrétti, og væri því land-
ráðamaður. Stjórnin hafðf
skipað nefnd til þess að kynna
sér feril Salengro, og hvað hæft
væri í þessum áburði, og liafði
nefndin lýst því yfir, að hann
væri tilhæfulaus uppspuni. Það
var í sambandi við sýknun
Salengro, sem einri þingmaður
liægri flokkanna fleygði fram
spurningu um daginn í fulltrúa-
deild þingsins, er varð til-þess,.
að 50 þingmenn lentu í lianda-
lögmáli í þingsalnum.
Salengro liafði skilið eftir
hréf til Leon Blum forsætisráð-
herra, og hljóðaði það á þessa
leið: „Þeim tókst ekki að svifta
mig ærunpi, en þeir bera á-
byrgð á dauða mínum. Eg. er
hvorki liðhlaupi né svikari“»
Franco lokar siglingaleið-
inni til Barcelona.
Það þykir eftirtektavert, að
tilkynning Francos um að hann
ætli sér að loka siglingaleiðinni
til Barcelona var gefin út að
eins á eftir vfirlýsingu itölsku
og þýsku stjórnarinnar og er
bent á, að viðurkenning þeirra
á stjórn Francos muni veita
honum betri aðstöðu frá lög-
fræðilegu sjónarmiði, til þess
að framkvæma slíkt hafn-
bann.
Portúgal og Ecuador
koma á eftir.
Tvö ríki liafa áður viðurkent
stjórn Francos, en þau eru Mið-
Amerikulýðveldin Guetamala og
Salvador. En Portúgal og
Ecuador liafa slitið stjórnmála-
sambandi við Madridstjórnina,
enda þótt þíu hafi ekki viður-
kent sljórn Francos.
slitnuðu og rafmagnsleiðslur,
loftnet rifnuðu og rúður brotn-
uðu, m. a. 2 stórar rúður í liúsi
Brauns-verslunar, að sunnan-
verðu iá annari liæð, þar sem er
verslun og verkstæði Yigfúsar
Guðbrandssonar, og að norð-
anverðu (við Austurstræti) á
neðstu hæð, þar sem sjúkra-
samlagið hefir skrifstofur sínar.
Girðingar brotnuðu allvíða í
bænufn. Loftnet loftskeyta-
stöðvarinnar bilaði, svo og net
stuttbylgjustöðvarinnar, en á
hvorugum staðnum var um
svo alvarlega bilun að ræða, að
liætta yrði skeytasendingum. Á
noklcuruin linum liér í bænum
Attaka veSi?
á sunnan skall á í nóít
sem leid,
en snerist til suðvestan áttar með morgninum.
Veðrið fór yfir alt landið og var veðurhæðin
sumstaðar alt upp í 12 stig.
»
í