Vísir - 30.12.1936, Side 4
VÍSIR
STORSTRÖMSBRÚIN
milli Sjálands og Falsturs er eitt hið mesta mannvirki sinnar tegundar í Norður-Evrópu og
þótt víðar sé leitað. Myndin er tekin, þegar síðustu samskeyti liöfðu verið tengd saman. Fóru
fram hátíðarliöld af því tilefni, sem var útyárpað. Myndin hér að ofan var tekin við það tæki-
færi. —
Ný bók:
Séð og lifað
Endurminningar Indriða Einarssonar.
Verð 15,00 heft, 20,00 ib.
Bókaverslun Sigfúsar Eymundssonar
og BÓKABOÐ AUSTURBÆJAR BSE.
Laugavegi 34.
Hitt og þetta.
23 menn bíða lífláts í Sing-Sing.
Þ. 4. januar og næstu daga
þar á eftir verða 23 menn tekn-
ir af lífi í Sing-Sing, — fangelsi
New York ríkis. — Meðal þeirra
eru níu piltar unir 21 árs. Aldrei
fyrr í sögu fangelsins hafa svo
margir Unglingar beðið lífláts.
Ilinn yngsti þeirra er að eins
17 ára. Hann drap smákaup-
mann nokkurn og tæmdi síðan
f járhirslu hans, en i henni voru
9 dollarar. Piltur þessi var nem-
andi í gagnfræðaskóla og var
iðulega að lesa um glæpamann-
inn Dillinger og v,ar auknefndur
„Iitli DiIIinger“ af félögum
sínum. Hefir mjög verið
um það rætt af þessu tilefni í
amerískum hlöðum, hversu
mikil hætta sé í því fólgin fyrir
unglinga, er blöð og útvarps-
stöðvar flytja stöðugt langar og
ilarlegar frásagnir um glæpa-
menn, þannig lagaðar, að i þeim
gætir oft aðdáunar nokkurrar
fyrir afhrotamönnunum.
Palos-málið.
Baskastjórnin hefir orðið við
tilmælum Þjóðverja um að láta
af liendi þýska skipið Palos sem
tekið var á aðfangadag og flutt
Áheit
á Slysavarnafélag íslands. Frá
H. H. 1. Reykjavík kr. 2,00. Hóp-
ur úr Ferðafélagi Islands í hring-
ferð um landið kr. 45,00. Kristinn
Árnason, Kagarhóli, v. Blönduós,
kr. 10,00. Ónefndur, Reykjavik, kr.
5,00. N. N. L. Reykjavík kr. 5,00.
N. N. Reykjavík kr. 5,00. Jón kr.
10,00. Salome kr. 5,00. Afhent af
Jóhanni Jónssyni, |BúSardal, kr.
11,25. Kristinn Gíslason, Eyrar
bakka kr. 10,00. Ragna ÞórSar-
dóttir, HögnastöSum, kr. 2,00.
Daníel Þorsteínsson, Frakkastíg
15, kr. 2,00. S. H. kr. 100,00. N. N.
Reykjavík kr. 3,00. A.: J. & H. H.
Keykjavík kr. 35,00. N, N. Reykja-
vík kr. 50,00. — Kærar þakkir.
J E. B.
VISIR
kemur út snemma á morgun.
Auglýsingahandritum sé skilað á
afgreiðsluna fyrir kl. 7 og í sein-
asta lagi í prentsmiðjuna fyrir kl.
9 í kvöld.
til Bilbao. Þýska herskipið
Köningsberg kona til Bilbao
með beiðni um lausn skipsins
fyrir hönd þýsku Stjórnarinnar.
Baskastjórnin neitar þó að
láta af hendi spánskan farþega
sem var með Palos, þar sem
farþegi þessi liafði eyðilagt
skírteini sín. Emjfremur neitar
hún að láta af hendi hluta af
farmi skipsins, er hafi verið
bannvara. í opinberri tilkynn-
ingu sem gefin hefir verið út í
Berlín er sagt að enn sé ekki
til fullnustu gengið frá samn-
ingum við Baslcastjórnina um
lausn skipsins og varnings þess.
——... *. --------- -• — *
llAPAt'fUNDIf)]
Tapast liefir, á 2. í jólum,
gyltur viravirkisermahnappur, á
Framnesveginum. Uppl. i síma
2495. (586
Lyklar í Ijósgulu leðurhylki,
töpuðust um jólin. Skilist á afgr.
Vísis gegn fundarlaunum. (594
Peningaveski hefir tapast á
leiðinni frá Alþýðubókasafn-
inu að Gróðrarstöðinni. Finn-
andi beðinn að hringja í síma
3072. — (604
Tapast hefir vasaúr, i gær,
merkt: „O. M.“, einnig Masta-
reykjapípa. Uppl. í síma 9114.
(606
vinnaH
Stúllía óskast i vist, vegna
veikinda annarar. Grettisgötu
56, miðhæð. (588
Barngóð stúlka • óskast um
óákveðinn tima Filippía Krist-
jánsdóttir, Njálsgötu 80. (591
Stúlka óskar eftir ráðskonu-
stöðu. Uppl. í síma 2486. (596
Góð stúlka óskast til að sjá
um lítið heimili. Tilboð, merkt:
„Góð“ sendist Vísi fyrir kl. 4 á
fimtudag. (603
Dugleg stúlka óskast í vist
nú þegar. Fátt í heimili. Gott
kaup. A. v. á. (611
m
Hafnfirðingar. Allskonar kex
og kökur í mestu og ódýrustu
úrvali, einnig skyr, rjómi og
smér, daglega hjá Pétri,
Reykjavikurveg 5. (440
linNSPTH
ST. FRÓN nr. 227. — Áramóta-
fund með guðsþjónustu held-
ur stúkan Frón nr. 227 í Góð-
templarahúsinu á gamlárs-
kveld kl. 9. Séra Garðar
Svavars prédikar. Félags-
mönnum er heimilt að taka
með sér gestj, enda eiga aljir
aðgang að samkomunni, bseðj
félagar og aðrir, þar á meðal
menn utan reglunnar, og er
þess vænst, að félagsmenn
fjölmenni. Menn eru beðnir
að hafa með sér sáhnabækur.
Eftir guðsþjónustu fer fram
upptaka nýrra félagsmanna,
þeirra, er þess kunna að óska.
(602
(TILK/NNINGAD]
Sundhöllin á Álafossi er opin
alla daga frá kl. 10 árd. lil 9y2
síðd. Best að baða sig í sund-
laug Álafoss um áramótin. —
(595
Heimatrúboð leikmanna —
Hverfisgötu 50. Áramótasam-
komur. Á gamlárskvöld: Sam-
koma kl. 10 e. h. Á nýársdag:
Almenn samkoma kl. 8 e. li. —
Hafnarfirði, Linnétsstíg 2. Á ný-
ársdag: Almenn samkoma kl. 4
e. h. Allir velkomnir. (601
Hjálpræðisherinn. í kvöld kl.
8,j/2 opinber jólatréshátíð. —
Söngur, hljómleikar og upp-
lestur. Allir velkomnir. (608
Einldeypur maður óskar eftir
litlu lierbergi á leigu nú þegar.
Uppl. í síma 3256. (592
Lítið herbergi með innbygð-
um skáp til leigu. Uppl. í síma
1579. — (593
2 herbergi og eldhús til leigu
í Skerjafirði. 55 kr. Sími 1909.
(597
Stúlka óskar eftir litlu her-
bergi. Uppl. í síma 2326. (599
Stofa með sérinngangi og
1—2 lítil herbergi, til leigu nú
þegar á Njálsgötu 98. (600
Góð stofa með nútíma þæg-
indum til leigu. Sími 3413. (605
Góð stofa með nútímaþæg-
indum til leigu. Sími 3413. (609
Til leigu nú þegar, litið for-
stofuherbergi. — Uppl. í sima
4485 kl. 8—9 í kvöld. (607
2 stofur og eldhús til leigu.
Uppl. í síma 2578. (612
KKAUPSKAPDtl
Taða óskast til kaups. Uppl.
i síina 3899, kl. 10—4. (587
Skautar, áfestir a skó, nr. 39,
til Sölu. A. v.'á. (589
4 lampa Philipstæki til sölu,
með tækifærisverði. r— • Uppl.
Óðinsgötu 18. ■ (590
Föt á stóran niann til sölu.
Bjarni Guðmundsson, Alþýðu-
liúsinu. Sími 3318. (598
019) - 'U0A bignqjofyi
— -jj -ui -o ump3H -SíI Vx
•jq 1 So •jji 1 gnBA ‘joIblKgmís
giguBq ‘ipf^BinBu ‘jjnq 1 jqfq
-njsoq ‘jjnq 1 iplqnpfuioj ‘gquA
‘jofqBqiiQ : pipAqsjniiUBjq y
Daglega nýtt fiskfars i búð-
um Sláturfélags Suðurlands.
Kommóður, klæðaskápar,
tauskápar, barnarúmstæði,
borð, stór og smá, blómasúlur.
Ódýra húsgagnabúðin, Klappar-
stíg 11. Sími 3309. (238
Húsmæður, borðið pönnu-
fisk. Verulega ljúffengur og ó-
dýr. Munið okkar ágæta fisk-
fars og laxapylsur. Fiskpylsu-
gerðin. Sími 3827. (67
Leikfangasalan er í Veltu-
sundi 1. Elfar. Sími 2673. (854
Forn salan,
Hafnarstræti 18, sélur með
tækifærisverði ný og noluð hús-
gögn og lítið notaða karlmanna-
fatnaði.
Kvikmyndasýningar.
Tökum að okkur að
sýna kvikmyndir fyrir
stærri og smærri sam-
kvæmi. Tilvalið fyrir jóla-
trésskemtanir. Skemtileg-
ar barnamyndir. Pantanir
mótteknar í sima 4683.—
Amatörversl. Þorl. Þor-
leifssonar, Austurstræti 6.
FÉLAGSPRENTSMIÐJAN
'EIN STÆÐIN GURINN. 60
•frá Rósagerði. Hún varð fyrir góðum láhrifum
þar eins og ávalt. Það var svo kyrt og rólegt
þar og gótt andrúmsloft, að það liafði bætandi
áhrif á hana að koma þar.
Þetta var um júníkvöld. Logn var og fagurt
veður. Það var angan í lofti og glaðlegt fugla-
kvak hvarvetna. Kvöldsólin varpaði gullrauð-
um loga á vikina. Það var komið undir sólarlag.
Veðrið og alt, sem fyrir augun bar, var svo dá-
samlegt, að Sara komst í það skap, að hún
gleymdi öllu mótlæti. Henni fanst móðir nátt-
úra rétta sér hlýja, mjúka hönd. Þrátt fyrir alt
var sælt að lifa.
En það er oft á slíkum stundum, þegar menn
eru glaðir og sáttfúsir í anda og ala góðar von-
ir, að eilthvað ilt kémur óvænt fyrir. — Eins
og forlögin grípi inn í skemtilegan leik, til þess
að spilla gleðinni. Alt í einu heyrði Sara þrusk
í runna og á næsta andartaki kom svarti Brady
1 ^t)s‘ ^>cSar fundum þeirra bar saman átti Sara
’Ho eins skamt ofarið heim.
„Afsakið mig, ungfrú,“ sagði Brady, „eg var
á leiðinni lil Sunnuhlíðar og_“
„Hvað — er nokkuð að? Konan yðar lasin?“
„Nei, þakka yður fyrir spurnina. Henni líður
vel.“
Hann hikaði eins og hann værl í vafa um,
livort hann ætti að halda áfram. En svo tók
hann rögg á sig. j
„Það er um Molly Sehvyn, sem eg vildi tala
við yður — vegna þess, að læknirinn er ekki
heima og —“
„Um MoUy?“
Söru fanst i svip, að hún gæti ekki dregið
andann.
„Hvað er að, Brady? Er nokkuð að? Svarið
mér fljótt?“
„Nú, ungfrú góð,“ sagði Brady, „eg sá hana
rétt í þessu fara með Ivent í bílnum hans. Þau
fóru í áttina til London og'— “
Brady þagnaði og virtist vera í vafa um
hvort hann ætti að lialda áfram, en gerði það þó:
„Já, sjáið þér, ungfrú Tennant, þar sem Kent
er kvæntur maður finst mér liggja í augum
uppi, að ekki sé alt með feldu.“
Sara var svo reið, að liún átti erfitt með að
Jála á engu bera. Hvílíkur bjálfi liún er, sagði
liún við sjálfa sig, að fara út að skemta sér með
Kenl þessum. Ef eitthvað óvænt kæmi fyrir,
bíllinn bilaði eða eitthvað annað kæmi fyrir,
var það nóg tilefni til þess að koma öllum róg-
tungum í Monkshaven af stað — mannorð
Molly yrði þá ekki mikils virði.
En eins og sakir stóðu var ekkert annað hægt
að gera en koma í veg fyrir, að Brady ætlaði
þetta verra en það var, og óska þess, að Molly
kæmi aftur sein fyrst heilu og höldnu.
„Jæja, Bradý,“ sagði Sara kuldalega nokk-
uð, „eg held, að Kent sé aðgætinn bílstjóri. Eg
efast ekki um, að liann muni koma henni heim
heilu og höldnu. Við þurfum vart að hafa á-
hyggjur af þessu."
Brady liorfði á hana með einkennilegu augna-
ráði.
„Þér hafið ekki skilið mig, ungfrú,“ sagði
hann þrálega. „Þau voru með talsverðan flutn-
ing með sér í bílnum. Hann ætlar sér fráleitt að
koma henni lieim aflur. Kent staðnæmdist við
Cliff gistihús til þess að fylla bensíngeymana
og hann tók að auka hálfa tylft af bensín-
dúnkum.“
Söru varð nú þegar Ijóst hvað gerst liafði
Molly hafði strokið að heiman með Kent.
Hvað alt varð auðskilið nú. Það, sem Brady
hafði sagt, varpaði skýru ljósi á svo margt,
sem hún hafði ekki skilið. Söru varð nú ljóst
hvers vegna framköma Molly hafði verið svo
einkennileg að undanförnu. Hvert smáatvik
varð nú að hlekk í samanhangandi keðju.
Kent hafði smám saman verið að flækja hana
í net sín — og nú hafði Molly strokið að heim-
an, án þess að skeyta um það, hverja sorg hún
bakaði foreldrum sínum, og hverjar liættur
kynni að verða á vegi hennar. Kannslce hafði
hún ekki gert sér ljóst livað hún var að gera —
hverjar afleiðingarnar myndi verða.
Vafalaust hafði Molly farið til fundar við
Kent i Oldhampton, þegar Sara bjóst við henni
að Grænavatni. Og kannske hafði hún þótst
vera miklu lasnari en hún var í raun og veru,
til þess að geta losnað við alt erftirlit síðdegis
þann dag — engan mundi gruna neitt, ef hún
væri kyrr í bólinu. Og kannske hafði hún not-
að tækifærið til þess að senda skeyti eða tala við
Kent i sima, er hún fór með skeytið fyrir föð-
ur sinn.
Sara varð fölari og áliyggjufyllri á svip þvi
lengur sem hún hugsaði um þetta og andartak
var sem henni sorlnaði fyrir augum og hún
riðaði við, en Brady rétli stcrklega hönd sína
og studdi hana.
„Svona, ungfrú góð,“ sagði hann hlýlegar en
búast mátti við, „verið kaldar og ákveðnar,
ekki dugar annað. Þau komast heldur ekki langt
skal eg segja yður. Eg fylti nefnilega bensin-
geyminn lians Kents, ef eg segi yður alveg
satt, og í bensíndúnkunum, sem hann heldur
að séu fullir, er að eins slatti.“
Brady glotti meinlega.
„Kent kemst aldrei lengra en 80 mílur — i
lengsta lagi, nema hann fái bensin til viðbótar."
Það mátti nsestum heita svo, að tillit Söru
væri ástúðlegt, er liún nú horfði framan í Brady.
„Hvers vegna gerðuð þér þetta, Brady?“
spurði hún skjótlega.
„Kent liefir átt dálítið inni hjá mér í þrjú
ár og eg gleymi aldrci að greiða gamlar skuldir.
Eg skuldaði yður líka eittlivað, ungfrú Tenn-
ant. Eg hefi ekki gleynit hvernig j)ér tókuð
máli mínu, þegar skógarvörðurinn ætlaði að
koma mér í svartliolið fyrir veiðiþjófnað.“
Sara rétti honum hendina og Brady varð að
íaka í hana á móti, þótt honum fyndist það í
rauninni óhæfa, Þar seiu hendur hans voru
nærri svartar af olíu og feiti.
„Þér hafið endurgoldið skuld yðar, Brady —