Vísir - 16.01.1937, Page 2
VÍSIR
Bretar óttast stríð
óvakíu
Vilja Þjódverjar koma
þar af stað byltingu?
Hættulegur undLii»F6diii%
Einkaskeyti til Vísis.
London, í morgun.
Breskir stjórnmálamenn óttast nú mjög, að næsti or-
ustuvöllur álfunnar verði Tékkóslóvakía — þar berjist
kommúnistar annarsvegar og fasistar og nasistar hins-
vegar, með þeirri afleiðingu að alt fari í bál og brand
í álfunni, ef það fer þá ekki svo, að Spánarstyrjöldin
leiði til Evrópustyrjatdar.
Ásakanir þær, sem þýsk blöð birta nú daglega á hend-
ur Tékkóslóvökum um að þeir komi upp flugvöllum og
flugskýlum til notkunar handa rússneska flughernum
í næstu Evrópustyrjöld, hafa haft mjög ill áhrif og
þykja líklegar til þess aðspilla mjög sambúð Þjóðverja
og Tékkóslóvaka. Auk þess, sem þýsku blöðin halda því
fram, sem að framan greinir, fullyrða sum þeirra, að
rússneskt herlið sé komið til Tékkóslóvakíu.
Sem svar við þessum ásökunum hefir stjórnin í Prag
boðið bresku stjórninni að senda þangað hermálasér-
fræðinga til þess að kynna sér, hvort ásakanir Þjóðverja
hafi við nokkuð að styðjast. Ríkisstjórnin bfeska hefir
þegið þetta boð.
Morning Post segir, að endurnýjun ásakana Þjóð-
verja í garð Tékkó-SIóvaka, geti haft hinar alvarlegustu
afleiðingar, og valdi þær miklum áhyggjum bæði í Par-
ís og London, einkum vegna þess, að þýsku blöðin hófu
svipaða árásarstarfsemi rétt áður en Þjóðverjar hófu
stuðningsstarfsemi sína við spænsku uppreistarmenn-
ina. Er því haldið fram að þeir Þjóðverjar, sem lengst
vilja fara í þessa átt, geri sér vonir um að liægt verði
að hrinda af stað byltingu í Tékkóslóvakíu, en afleið-
ingin af því gæti orðið sú, að Tékkóslóvakía yrði, eins
og Spánn, nýr orustuvöllur nasista og kommúnista. —
(United Press).
Hertoginn hefir dvalið í Wien sem gestur Rotschild baróns
síðan hann lét af konungdómi.
Uppreistarmenn hefja harða
árás i háslólahverfmii.
semja lög um baxm
vid föp sfálfboöaliða"
VtSIR
DAGBLAÐ
Útgefandi:
RLAÐAÚTGÁFAN
VÍSIR H.F.
Ritstj.: Páll Steingrímsson.
Skrifstofa 1 Austurstræti 12.
og afgr, I
a r :
Afgreiðsla 3400
Ritstjórn 4578
Auglýsingastjóri 2834
Prentsmiðjan 4578
Verð 2 kr. á mánuði.
Lausasala 10 aurar.
Félagsprentsmiðjan.
Kærleiks-
heimitið
Þjóðin hefir nú haft tækifæri
til í tvö ár, að fylgjast með
sambúð Framsóknar og jafn-
aðarmanna. Höfðu margir spáð
illa um sambúðina þegar í byrj-
un, en ekki hafa þær spár ræsl
að öðru leyti en því, að hinir
friðsömu og rólyndu framsókn-
armenn mundu jafnan vægja
frekar en að rjúfa heimilisfrið-
inn. Lengi framan af heyrðist
pkki stygðaryrði á heimilinu og
ekki lét þar orðinu hærra. En
fullyrðingar um gagnkvæmt og
órjúfandi vinfengi hafa jafnan
verið á hraðbergi og bestu penn-
ar heimilisins hafa kepst um að
halda því á lofti að flest sé sam-
eiginlegt um hagsmuni bænda
í sveitum og alþýðu við sjávar-
siðuna. Sambýiingarnir hafa
gert sér far um að gera hvorum
öðrum sem mest til þægðar.
Einkanlega hefir þeim lekist
vel í því að halda að heimilis-
mönnum sínum öllum bitling-
um og stöðum, sem fært hefir
verið að veita. Jafnaðarmenn
hafa jafnvel gengið svo langt að
leggja tolia á nauðsynjar alþýð-
urinar til þess að framsóknar-
menn gæti reist nokkur nýbýli.
En áður höfðu jafnaðarmenn
barið sér á brjóst og sagt að
tollar væri fundnir upp af auð-
valdinu til þess að kúga alþýð-
una. Má af þessu sjá hversu
jafnaðarmenn hafa langt geng-
ið til samkomulags. Ekld virð-
ast framsóknarmenn hafa verið
ófúsir til að halda friði og sátt
á heimilinu, þvi að þeir hafa
látið í hverju máli undan síga,
ef þess var krafist. Brutu þeir
svo mjög odd af oflæti sínu, að
mörgum fanst nærri ganga full-
kominni auðmýkt og niðurlæg-
ingu.
En hina síðustu daga hafa
gerst þau alvarlegu tiðindi á
þessu kærleiksheimili, að skó-
sveinn jafnaðarmanna, Rútur
að nafni, sem jafnan hefir frek-
ar óhreinleg verk með höndum,
réðist með strákslegum hætti á
formann Framsóknar og bar
honum á brýn ósannsögli. Meiri
svívirðingu er vart hægt að gera
orðvöndum og sannleikselsk-
andi mánni, sem ekki má vamm
sitl vita, enda reiddist hann
mjög, sem vonlegt var. Varð af
þessu háreisti mikil á kærleiks-
heimilinu, og enn þungt liugs-
andi margir, sem eiga afkomu
sína undir því að friðurinn
haldist. Skósveinn jafnaðar-
manna gljúpnaði mjög þegar
formaður framsóknarmanna
byrsti sig og er nú mjög af hon-
um dregið enda er ekki barna-
meðfæri að bregða formanni
framsóknár um ósannsögli.
Eins og kunnugt er hefir kær-
leiksheimilið tekið sér yfirráð
tveggja aðal bankastofnana
landsins. Hefir bróðurlega verið
slcift valdinu yfir þessum tveim-
ur stofnunum þannig, að fram-
sókn liefir lagt til æðsta mann-
inn í aðra stofnunina en jafnað-
armenn í hina. Nú hafa þau
vandræði steðjað að báðum
þessum hönkum undir yfir-
stjórn framsóknar og jafnaðar-
manna, að fé hefir liorfið eða
starfsmenn hafa orðið herir að
óreiðu. Engum kom til hugar
að kenna kærleiksheimilinu um
þessar misfellur, þótt æðstu
rnenn hvorrar stofnunar ætti
þar heíma. En hér sannast liið
fornkveðna, án er ilt gengi
nema heiman hafi. Rútur, sem
vanur er orðinn moldarverkun-
um, fyltist vandlæting og ætlaði
að láta á sér bera með því að
hera fram dylgjur á hendur
framsóknarmönnum fyrir
stjórn þeirra í stofnuninni.
Þetta þoldi formaðurinn illa
sem vonlegt var og bað skó-
sveininn líta sér nær, þvi hafi
óreiða verið í stofnun þeirri
sem framsókn ræður yfir þá sé
hún ekki minni í þeirri sem er
undir yfirráðum jafnaðar-
manna. Þetta minnir dálítið á
það er einn strákur segir frá
óknyttum annars.
Þjóðin hlustar á og hrosir.
Hún veit að á þessu fyrirmynd-
ar kærleiksheimili hennar
verður húið, þrátt fyrir stóru
orðin, að semja frið fyrir 15.
febrúar. —
ERLEND VlÐSJÁ.
Síðasti
sáttmálinn.
Hinn margræddi Miöjaröarhafs-
sáttmáli Breta og ítala hefir ver-
iS. birtur og hljó'Sar hann svo í
orSréttri þýSingu:
„Ríkisstjórn hans hátignar kon-
ungs Breta og ríkisstjórn Italíu,
sem hafa longun. til, í þágu friöar
og öryggis, aö bæta samkomulag
sín á milli og milli allra Miöjarð-
arhafs-ríkja, hverra rétt og hags-
muni þær virða:
VIÐURKENNA aö frjálsar
siglingar út og inn og um MiS-
jarðarhaf er höfuönauösyn hinum
ýmsu ríkjum Bretaveldis svo og
Italiu, og aö þessir hagsmunir
hvors ríkis koma hvergi í bága
hvorir viö aíSra;
SKULDBINDA sig til aö virða
réttindi og hagsmuni hvors um
sig á nefndu svæði;
SAMÞYKKJA aö nota áhrif
sín til að kveða niður hverskonar
starfsemi er miðar til þess aS
sundra þeirri ’samvinnu sem yfir-
lýsingu þessari er ætlaö aö grund-
valla.
Yfirlýsing þessi er gerö i þágu
friöarins og er ekki beint gegn
neinu ri,ki“.
I sambandi viö yfirlýsingu þessa
gaf Mussolini Bretum yfirlýsingu
um þaö, að af hálfu ítala skyldi
ekkert veröa gert til þess að breyta
núverandi landamæraskipun Spán-
ar né spænskra nýlendna.
Þótt undarlegt megi viröast, er
sáttmáli þessi aö miklu leyti aö
þakka hinum heimsfræga frétta-
ritara Lundúnablaösins „Daily
Mail“, Mr. G. Ward Price. Hann
átti tal vi’ö Mussolini í Rómaborg
hinn 4. nóvember síöastliöinn. I
því samtali tók Mussolini fram, aö
hann óskaði gjarnan aö gera
„gentleman agreement“ viö Breta
um réttindi og hagsmuni hvors um
-sig í Miðjaröarhafinu. Samtal
þetta vakti almenna athygli í Bret-
landi og háværar raddir komu
Aðvöran tll almennlngs.
Af sérstökum ástæðum vill
Barnaverndamefnd Reykjavík-
ur aðvara almenning um eftir-
fylgjandi atriði:
1. Að láta livorki lykla að hús-
um eða hirslum, né heldur pen-
inga liggja á glámbekk þannig,
að óviðkomandi hafi aðgang að
þeim eða freistist til að taka þá
að ófrjálsu.
2. Að gæta þess svo vel sem
unt er, að hafa sem minst við-
skifti við þau börn og unglinga,
er ekki geta gert grein fyrir sér
eða þekkjast ekki og sem ástæða
gæti verið til að tortryggja um
heimildir að munum þeim eða
peningum, sem þau liafa með-
ferðis.
3. Að láta ekki börn, innan 10
ára aldurs, sem ekki hafa fengið
blaða- og bókasöluleyfi, selja
blöð eða bækur á götum úti án
leyfis nefndarinnar. (Sbr. lög
nr. 43, 23. júní 1934).
4. Að láta ekki böm, innan 12
ára aldurs, hafast við á götum
úti eftir kl. 10 að kvöldinu til,
án þess að fullorðnir séu í fylgd
með þeim. (Shr. Lögreglusam-
þykt Reykjavíkur, 19. gr.).
Barnaverndarnéfnd
Reykjavíkur.
fram um þaö, aö Bretar yrði að
taka upp a.ftur sitt forna vinfengi
viö ítalíu og knýta aftur þau viö-
skiftabönd sem sundruðust þegar
refsiaögeröirnar komu til sögunn-
ar.
iBretar hafa að vísu ekki enn
viðurkent yfiráð ítala í Abessiniu.
En Miðjarðarhafssáttmálinn er
fyrsta skrefið í þá átt. Þegar Bret-
ar viðurkenna opinberlega hið nýja
landnám ítala þá gleymir heimur-
inn fljótt að Abessinia hafi nokk-
urn tíma verið sjálfstætt ríki.
til aðstodap Mr.
Veal.
Meðal farþega á Brúarfossi er
enskur leynilögreglumaður, sem
verður Mr. Veal til aðstoðar við
athuganir í sambandi við pen-
ingahvörfin í Landsbankanum.
Yfirlieyrslur fóru ekki fram
í gær og í dag verða engar yfir-
heyrslur.
Eins og getið var í blaðinu í
gær kom A. J. Johnson að starfi
sínu í bankanum í fyrradag.
Jón Halldórsson hefir ekki tek-
ið við sínum störfum aftur, en
það er vegna þess. að hann ósk-
aði eftir nokkurra daga fríi og
var það leyft.
Farþegar á Brúarfossi
frá útlöndum: Síra Sigurður
Einarsson og frú, Dr. Jón H. Sig-
urðsson og frú, Dr. Jón Steffen-
sen, Mr. Bert Jack, Mr. Ward,
Mrs. G. S. Watson, Þorsteinn Ei-
ríksson, Jón Björnsson, Njáll And-
ersen, Óskar Sólberg, Siguröur
Guömundsson, Benjamín Eiríkss-
son, Ingunn Hoffmann, Klara
Friðfinnsdóttir, Guðrún Sigurðar-
dóttir, Edith Rasmussen, Mr. og
Mrs. Moonshine.
Hjúskapur.
I dag verða gefin saman í hjóna-
band ungfrú Þórunn Kjaran, dótt-
ir Magnúsar Kjarans stórkaup-
manns, og Pétur Ólafsson blaða-
maður, sonur Ólafs heitins Björns-
sonar ritstjóra.
London i morgun.
í gærkveldi gerðu uppreistar-
menn stórfelda gagnárás í há-
skólahverfi Madridborgar, og
var barist grimmilega í nokkr-
ar klukkustundir, en síðan fjar-
aði hardaginn smám saman út.
Um úrslit hans er ekki getið.
Spánska stjórnin hefir tilkynt
að hún geti ekki fallist á það, að
yfiráð gullforða þess sem hún
liefir látið flytja til útlanda
verði á nokkurn hátt tekin úr
hendi hennar, en ítalska stjóm-
in hafði lagt til að hlutleysis-
nefndin sæi um að spánska
stjórnin notaði hann ekki til
h ergagnakaupa.
Þjóiiverjar og Rússar
sklftast á orðnm
Ræðup Kalimin’s og
Himmlers.
London í morgun.
Þegar framkvæmdaráð So-
vét-Rússlands kom saman i gær
til þess að staðfesta hina nýju
stjórnarskrá, flutti Kalinin
framsöguræðuna, og var hún
aðallega árás á fascisma og naz-
isma. Hann sagði að allar stéttir
þjóðfélagsins í Þýskalandi
hefðu verið blektar af nazism-
anum. (
í Þýskalandi réðist Himler,
yfirforingi leynilögreglunnar
þýsku aftur á móti á kommún-
ismann, og sagði, að aðalhlut-
verk leynilögreglunnar væri, að
svifta alla óvini hins þýska rík-
is öllu framlcvæmdavaldi. Þeir,
sem gerðu tilraunir til þess að
útbreiða ln'nar skaðvænlegu
kenningar frá Moskva, yrðu
Heimildarlög frönsku stjórn-
arinnar um bann við því að
franskir þegnar gefi sig fram til
herþjónustu á Spáni voru sam-
þykt móíatkvæðalaust í full-
trúadeild franska þingsins í
gærkveldi. -Lögin veita stjórn-
inni heimild, ekki einungis til
þess að hanna liðsöfnun vegna
spönsku styrjaldarinnar, heldur
einnig til þess að hefta för sjálf-
boðaliða úr landinu.
Breytingartillaga við frum-
varpið, þess eðlis, að þeir sjálf-
boðaliðar, sem þegar eru farn-
ir til Spánar, væru sviftir
frönskum borgararéttindum,
var feld með miklum meiri-
hluta. ,
Dr. Skúll Buðjónsson
yfirlæknir félck í haust gullmed-
alíu frá háskólanum í Oslo fyrir
rannsóknir sínar á iðjusjúkdómum
og þá sérstaklega Lilikose eða
steinryki því er postulínsgerðar-
menn fá í lungun. Dr. Skúli flyt-
ur þ. 21. jan. gullmedalíufyrirlest-
ur um Lilikose og þjóðfélagslega
þýðingu þess í hátíðasal háskól-
ans í Oslo. 22. jan. flytur hann
sérstakan fyrirlestur um Lilikose
fyrir vísindamenn í Ulleval sjúkra-
húsi í Oslo.
miskunnarlaust ofsóttir.
Þýska stjórnin hefir nú
skipulagt söfnun á hverskonar
rusli sem hægt er að hagnýta til
iðnaðar, og verður farið í hús
úr húsi til þess að safna göml-
um fötum, iám-, stál- og kopar-
rusli, gömlum daghlöðum,
flöskum o. s. frv. Meðlimir
„Hitler æskunnar“ eiga að
safna blýhylkjum (túbum),
blý-þynnum o. s. frv. ,