Vísir - 01.02.1937, Blaðsíða 2
VÍSIR
TtSIR
DAGBLAÐ
Útgefandi:
BLAÐAÚTGÁFAN
VlSIR H.F.
Ritstj.: Páll Steingrímsson.
Skrifstofa I ^usturs(ræti 12.
og afgr. I
S í m a r :
Afgreiðsla 3400
<' Ritstjórn. 4578
Auglýsingastjóri 2834
Prentsmiðjan 4578
Verð 2 kr. á mánuði.
í •: Lausasala 10 aurar.
Félagsprentsmiðjan.
Öngþveiti.
Stjórnarblöðin liafa þessa
dagana borið fram ýmsar
spurningar viðvikjandi hag
Kveldúlfs. Af skrifum blaðanna
br augljóst, að mörgum þeirra
spurninga geta þau svarað sjálf.
Það er sami maðurinn, sem
skrifar í bæði blöðin um Kveld-
úlf, og skrif hans bera það með
sér, að hann er kunnugur ýms-
um gögnum, sem eru í opin-
berri vörslu, en þó er óheimilt
að nota i sambandi við blaða-
deilur. En honum „hentar bet-
ur“, að láta svo sem hann viti
ekki alt sem hann veit, og hann
spvr þvi um sumt, til þess að
gefa mönnum ranga hugmynd
um það. Þannig spyr hann t. d.
hvort skuldir Kveldúlfs séu ekki
„hátt á sjöundu miljón“. Hann
gerir ráð fyrir þvi, að því verði
ekki svarað og að þvi verði þá
trúað að skuldirnar séu 7 mil-
jónir!
En þó að stjórnarblöðin
spyrji margs, eru þau ófús að
svara, ef þau eru spurð. Þannig
hafa þau verið spurð um það,
livernig ráðstafað mundi verða
eignum Kveldúlfs og atvinnu-
rekstri, ef liann yrði „gerður
upp“. Það hefir verið spurt um
það, hvort þessi atvinnurekstur
mimdi þá verða þjóðnýttur og
rekinn af rikinu, eða þá eign-
irnar seldar einstökum mönn-
um eða fyrirtækjum og togur-
unum ef til vill tvístrað. Þess
eru dæmi frá fyrri árum, að
togarar, sem gerðir hafa verið
út hér, hafa verið seldir til
ýmsra annara staða á landinu,
þegar eigendur þeirra hafa orð-
ið að hætta rekstrinum, en út-
gerðarstöðvar þeirra hér verið
lagðar í eyði. Það er því að von-
um, að um það sé spurt, hvort
eins mundi verða farið méð
togara Kveldúlfs og aðrar eign-
ir, ef hann yrði að stöðva rekst-
urinn. En við því fæst ekkert
svar, annað en iþað, að það sé
„svo sem ekki í fyrsta sinni,
sem slíkt kemur fyrir hér á
landi.“
Af liálfu framsóknarmanna
liefir þessu verið svarað á þá
leið, að „öll þjóðin“ viti það,
að framsóknarflokkurinn sé
„yfirleitt algerlega mótfallinn
ríkisrekstri í framleiðslu“, og
alveg sérstaklega „ríkisrekstri
togaraútgerðarinnar“. Hinsveg-
ar hafi bankarnir „þrásinnis áð-
ur gert togarafélög upp“ ná-
kvæmlega á sama hátt“! Þann-
ig hafi það verið um „Kárafé-
lagið, Sleipnisfélagið og Njörð“,
og enginn ríkisrekstur komið í
slaðinn, togararnir verið í
einkarekstri eftir sem áður!
Það er rétt, að bankarnir hafa
„gert upp“ þessi togarafélög.
En er það nú alveg fullvist, að
þeir hafi breytt hyggilega i því?
Skipin hafa verið seld hinum og
þcssum, sum út úr bænum og
sum aðeins að nafninu til, og
eru í rauninni rekin á ábyrgð
bankanna. En útgerðarstöðvar
allra þessara félaga, Viðey, Hagi
og Njarðarstöðin, samtals að
minsta kosti miljón króna virði,
e’ru í eyði og arðlausar. Ef
svipaða meðferð ætti að hafa á
Kveldúlfi, þá er alveg áreiðan-
legt, að það yrði til stórtjóns
einmitt fyrir lánardrotnana, og
niðurdrep fyrir atvinnulíf bæj •
arins.
Af liálfu alþýðúflokksins hafa
cngin svör fengist við þessu.
Hitt veit „öll þjóðin“, að hann
mundi kjósa rikisrekstur togar-
anna, ef hann fengi að ráða, og
þá lildega með svipuðum hætti
og gert er ráð fyrir í frumvarpi
flokksins um útgerð ríkis og
bæja, sem „atvinnubætur“ fyr-
ir verstöðvar viðsvegar um
land. j
Það eru þannig i rauninni
ekki miklar líkur til þess, að
síjórnarflokkarnir gætu komið
sér saman um þetta. Og ef
Kveldúlfur yrði „gerður upp“,
er sennilegt, að atvinnurekstur
sá, sem liann hefir haft með
höndum, stöðvaðist um lengri
eða skemri tíma, eða þá alger-
lega, og logarar hans hverfa úr
landi, og af þvi leiða stórfelda
aukningu atvinnuleysis og ör-
birgðar í landinu. Og þannig er
spurningin um það, hvað við
eigi að taka, svo örlagaþrungiri,
að ekki verður við það unað,
að henni sé látið ósvarað eða þá
svarað „út í liött“.
.... -•■—•. ----------
ERLEND VÍÐSJÁ.
* "
Nýlenduþörf -
hráefna-
skortur.
ÞjóSverjar gera, sem kunnugt
er, æ háværari kröfur um nýlend-
íir. Þeim hefir alla tíS, aS vonum
sviSið þ'að mjög, aö nýlendur
þeirra voru af þeim teknar í heims-
styrjöldinni, og engri þeirra skil-
a5 aftur. Þegar ÞjóSverjar eign-
uSust nýlendur w Afríku á sinni
tí'S höfSu aSrar þjóSir náS undir
sig bestu löndunum til nýlendu-
stofnunar. Þjóþverjar voru seinni
tii. Nú gera þeir æ háværari kröf-
ur um nýlendur 0g þaS er enginn
efi á, aS þeir munu halda kröfum
sinum fast fram. Þeir hafa séð
hvaS ítölum hefir orSiS ágengt
meS því aS hvika í engu frá sín-
um kröfum í þeSsu efni, þótt vit-
anlega verSi ekki um þaS sagt,
hvort ÞjóSverjar muni beita
vopnavaldi eins og ítalir til þess
aS ná á sitt vald landi eSa lönd-
um, þar sem gnægS er hráefna.
Eh hráefnaskorturinn er talinn ein
höfuSorsök þess, aS ÞjóSverjum
sé lífsnauSsyn aS fá nýlendur. Nú
er þaS aS vísu komiS á dagskrá,
aS ná samkomulagi um, aS allar
þjóSir hafi aSgang aS hráefna-
lindum heimsins, en jafnvel þótt
eitthvert samkomulag næSist þar
um, er alls ekki víst, aS ÞjóSverj-
ar láti niSur falla kröfur sínar um
nýlendur, því aS þeir líta og á
þaS sem uppbót fyrir þaS ranglæti
og vanvirSingu, er þeim var ger
meS friSarsamningunum, ef þeir
fengi kröfum sínum um nýlendur
teknar til greina.
En hráefnaskorturinn er þaS;
liöfuSatriSi, sem einna mest er um
rætt nú, og bæSi Göring og dr.
Schacht hafa talaS um hann í ræS-
um þeim, er þeir fluttu til þess aS
krefjast þess, aS Þýskaland fengi
nýlendur aftur.
En þegar um þaS er rætt, aS
lönd eins og Italía og Þýska-
land eignist nýlendur eSa fái um-
HITLER.
LITVINOFF.
Xiitvinov rœdir í marga
klukkutíma við sendi-
herra Rússlands i
Berlín.
-o-
EINKASKEYTI TIL VÍSIS.
London í morgun.
Ræða Hitlers við setningu ríkisþingsins hefir orðið bresk-
um stjórnmálamönnum vonbrigði og létu margir þeirra í
Ijós síðdegis í gær, að þeir telji áhrif hennar munu verða til hins
verra, að því er friðarmál álfunnar snertir. Með ræðu Hitlers
hafi Þjóðverjar reynt að „loka dyrunum“, þ. e. koma í veg
fyrir frekari tilraunir til þess að koma á varanlegum friði í
álfunni. Meðal stjórnar-embættismanna Bretlands gætir sárra
vonbrigða yfir ræðunni og þeir óttast, að stefna sú, sem Hitler
hefir tekið gagnvart Rússum, leiði til þess, að gagnlaust verði
að reyna að vinna að nokkurum vígbúnaðarjtakmörkunum, og
nú hefjist algerlega takmarkalaus vígbúnaður á sjó, landi og
í lofti. (United Press).
Ræða Hitlers er mjög umrædd einnig utan Bretlands, ekki
síst ummæli hans í garð Rússlands. Litvinov utanríkissendi-
herra ráðstjórnarinnar, sem nú er á leið til Moskva frá
Genf, hafði margra klukkustunda viðdvöl í Varsjá, til þess að
ræða við Suryz sendiherra sovét-stjórnarinnar I Berlín, en
Surjz var kvaddur til Varsjá gagngert til þess að ræða við
Litvinov. Fullyrt er, að þeir hafi rætt um ræðu Hitlers, og
fleira, er varðar sambúð Rússa og Þjóðverja. Litvinov gefur
því næst Stalin skýrslu um viðræðurnar við heimkomuna til
Moskva. (United Press).
Kafli sá úr ræðu Hitlers um afstöðu gegn Rússum, sem átt
er við í skeyti U.P. er skv. F.Ú.-frétt á þessa leið.
„Herra Eden sagði, að breska stjómin vildi koma i veg fyrir
að Evrópa klofnaði í tvo helminga. En þéssi klofning Evrópu
og jafnvel alls heimsins ef þegar fullkomnuð staðreynd. Fyrsti
klofningurinn orsakaðist af Versalasamningnum, sem skifti
þjóðunum í tvo flokka: sigurvegara og sigraða og frekari klofn-
ingur hefir orsakast af boðun hinnar bolsivistísku kenningar
sem ekki einskorðar sig við eina þjóð, lieldur Ieitast við að ná
ítökum um öll lönd. Fyrir herra Eden er bolsevisminn e. t. v.
hlutur, sem einskorðast við Moskva, en fyrir okkur er hann
^ pest, sem við ætlum að berjast á móti. Hann hefir reynt að ná
ítökum í Þýskalandi og reynir það enn. Við lítum á bolsevisin-
ann sem allieimshættu og munum verjast honum. Og eg krefst
þess af verkalýð Þýskalands, að hann eigi engin mök við þessa
stefnu. Eins lýsi eg yfir þvi, að liverskonar samband okkar við
Rússland væri þýðingarlaust fyrir okkur. Hver myndi t. d. geta
hugsað sér, að þýskir hermenn yrðu nokkurntíma sendir til að-
stoðar liinu bolsevistíska ríki?. Eins myndurn við aldrei taka
við hjálp af þess hálfu.“ — FÚ.
Ræða Delbos.
, London, í gær.
Delbos, utanríkisráðherra Frakka, hélt ræðu í kvöld sem var
svar við ræðu Hitlers í gær. Hann* kvaðst vera glaður yfir því
að geta sagt það, að í ræðu Hitlers liafi ekki verið neinir brodd-
ar til Frakklands. En Frakkland og Þýskaland væru ekki einu
löndin í Evrópu, og það væri síður en svo skynsamlegt að ætla
sér að útiloká Sovét-Rússland með nálega 200 miljónir íbúa í
tölu Evrópu-ríkjanna. Hann kvaðst verða að mótmæla þvi sem
Hitler liefði sagt, að það varðaði engan annan en Þýskaland
um það, hvaða vígbúnað Þýskaland áliti sér nauðsynlegan. Þvert
á móti æskti allur heimurinn jiess að vita það. — (FÚ.).
ráS yfir löndum, til þess aS full-
nægja hráefnaþörf sinni, segir í
kunnu bresku blaSi, er vert aS
minna á, aS Bretar fái ekki nánd-
ar nærri öll þau hráefni, sem þeir
þarfnast úr sínum eigin löndum.
S.l. ár t. d. framleiddu bresku ný-
lendurnar lítinn hluta þeirra hrá-
efna, sem Bretar nota, og jafnvel
þótt sjálfstjórnamýlendurnar og
Indland sé taliS meS, framleiSa
öll þessi lönd aSeins % af þeim
hráefnum og matvælum, sem Bret-
ar flytja inn. Þetta mun koma
flestum erlendum þjóSum á óvart,
segir blaSiS, og gerir nánari' grein
fyrir hráefnainnflutningi (Breta,
en hér er rúm fyrir. En úr því svo
ér um Breta í þessu efni, er eigi
líklegt, aS þeir verSi tilleiSanlegir
til þess aS stySja kröfur ÞjóSverja
um nýlendur, vegna tals þeirra um
hráefnaskort.
Skipafregnir.
Gullfoss er í Reykjavík. GoSa-
foss var væntanlegur aS vestan og
norSan kl. 3—4 í dag. Dettifoss
fór frá Kaupmannahöfn í dag.
Selfoss er á leiS til Reykjavíkur
frá útlöndum. Lagarfoss fór frá
ísafirSi í morgun.. Væntanlegur
til Reykjavíkur 3. febr. Brúarfoss
er ál eiS til Leith. Esja var viS
Flatey á jBreiSafirSi í gær. Kári
kom frá Englandi í nótt.
Embættispróf í lögfræði. Bald-
ur Magnússon 1. einkunn Ii6þ&
stig, Baldvin Jónsson 1. einkunn
123 stig, FriSþjófur Johnsen 1.
einkunn 134% stig, Jónas Thor-
oddsen 1. einkunn 126% stig, Odd-
geir Magnússon 2. einkunn betri
101% stig, ÞormóSur Ögmunds-
son 1. einkunn 139% stig, Þor-
valdur Þórarinsson 1. einkunn
115% stig.
Annað Alcazar.
Einanpraðlr npprelstarmenn í víggiitu klaudri.
VIÐ KLAUSTRIÐ í SANTA MARIA.
Eitt af útliliðum byggingarinnar skotið í rústir.
EINKASKEYTI TIL VlSIS.
London í niorgun.
Frá Avila hafa borist fregnir
um það, að til St. Maria hafi
komið flugvél með matvæli og
fleira handa um hundrað fas-
istum, konum þeirra og börn-
um, sem lengi hafa varist árás-
um stjórnarliða. Franco fyrir-
skipaði, að flugvél þessi væri
send til St. Maria, en þangað
hefir ekki komið flugvél frá
uppreistarmönnum síðan í byrj-
un styrjaldarinnar. Þorpið St.
Maria er á miðju svæði, sem
stjórnarherinn hefir á sínu
valdi, en fasistarnir og skyldu-
Mð þeirra hafa búíst til varnar
í víggirtu klaustri. Hafa stjórn-
arsinnar gert margar tilraunir
til þess að ná klaustrinu á sitt
vald, en fasistanir hafa varist af
fádæma hreysti, og hafa þeir nú
mánuðum samán verið þarna
aigerlega einangraðir frá um-
heimnium, uns þeim barst hjálp
nokkur Ioftleiðis í gær.
United Press.
Hundruð manna drnkna
í Missisippldalnum.
Flóðlð stelg hærra í nótt
en dæml ern tll.
eiNkaskeyti til vísis.
London í morgun.
Frá Memphis í Tennessee
er símað, að 350—400
manns hafi drukknað í
flóðunum í Missisippidaln-
um. Laust fyrir kl. 1 í nótt
hafði flætt einu feti hærra
en nokkuru sinni áður svo
að vitað sé. Flóðið í Ohio-
dalnum hefir náð hámarki
sínu við Evansville. Á
hálfrar mílu svæði hafði
verið unnið að því, að
hækka flóðgarða, sem verja
Tiptonville í Tennessedaln-
um, með því að hækka þá.
Yoru hlaðnir ofan á þá
sandpokar. En þessar fyrir-
hleðslur biluðu og Missis-
ippifljótið braust gegn um
flóðgarðana og flæddi yfir
akra, sem er morg þúsund
ekrur að flatarniáh. En alt
íóík hafði verið flutt á brott
af þessu svæði og var þar
því ekki um neitt manntjón
að ræða. Tiptonville er hins
vegar talin í allmikilli
hættu, en þó hafa menn
vonir um, að flóðin nái
þangað ekki, því að tveim-
ur mílum neðar en Missis-
ippi braut flóðgarðana, hef-
ir flóðið brotið sér leið til
árinnar; aftur. — (United
Press).
TaliB aB Bayashi takist
aB mynda stjðrn.
Herinn verður hlntlans.
EINKASKEYTI TIL VÍSIS.
London í morgun.
Fregnir frá Japan bera það
með sér, að all-alment er búist
við, að Hayashi hershöfðingi
muni takast að mynda stjórn,
og er enda búist við, að hann
hafi lokið stjórnarmynduninni
fyrri hluta dags í dag. Herinn
mun ekki vinna gegn Hayashi,
enda mundi honum ekki hepn-
ast stjórnarmynduriin, eins og
nú er ástatt, með herinn í and-
síöðu við sig. Búist er við, að
Saito, sendiherra Japana í Was-
hington, verði utanríkismála-
ráðherra stjórnar Hayashi. —
United Press.
Rússar og Japanir hafa
gagnkvæma skipaskoðun.
Talsmaður japanska utan-rík-
ismálaráðuneytisins bar þær á-
salcanir Rússa í gær, að þeir
væri að baka Japönum erfið-
leika, með því að stöðva jap-
anskar vörusendingar og sigl-
ingar um Vladivostoclc og þar
með spilla því, að Japanir geti
notað allar siglinga- og við-
skiftaleiðir í Austur-Asíu. —
Shigemitsu sendiberra Japana
í Rússlandi befir verið falið að
mótmæla fjessu framferði
Rússa. Rússar segja hinsvegar,
að gremja Japana sé til komin
af þvi, að japönsk skip, sem
komið hafi til Vladivostock,