Vísir - 06.02.1937, Blaðsíða 2
VÍSIR
DAGBLAÐ
Ctgefandi:
BLAÐAtJTGÁFAN
VÍSIR H.F.
Ritstj.: Páll Steingrímsson.
Skrifstofa 1 . . . .. , „
, . } Austurstræti 12.
og afgr. |
S í m a r :
Afgreiðsla 3400
Ritstjórn 4578
Auglýsingastjóri 2834
Prentsmiðjan 4578
Verð 2 kr. á mánuði.
Lausasala 10 aurar.
Fél^gsprentsmiðjan.
Samfylkingin
Stjórnarflokkarnir hafa nú
um langt skeið lagt mikla stund
á að reyna að þvo sig „hvíta“
af öllu samneyti við kommún-
isla. AlþýðusamJiandsþingið var
látið liafna „samfylkingar“-til-
boðinu með miklum atkvæða-
mun, og síðan hefir Alþýðu-
blaðið verið látið sverja þess
marga dýra eiða, að hvað sem
á dynur skuli það aldrei lienda
Alþýðuflokkinn, að hann láti
tælast til slikrar sambúðar við
kommúnistaflokkinn.
Framsóknarmenn hafa talað
um það eins og það gengi guð-
lasti næst, að bendla þá við
nokkurar ráðagerðir eða fyrir-
ællanir um nokkura samvinnu
við kommúnista . Og Jónas
Jónsson hefir svo að segja undir
eiðs till)oð vitnað það, að ekk-
ert væri. fjær hugsunarhætti
framsóknarmanna en að blanda
þannig blóði við „ofbeldisstefn-
urnar“. Ilermanni Jónassyni
varð það á í ógáti i haust, að
fela Einari Olgeirssyni að greiða
aikvæði fyrir sig á bæjarstjóm-
arfundi. En Jónas liefir nú frið-
þægt fyrir þetta glappaskot
Jians með því að láta reka nokk-
ura unglinga úr Laugarvatns-
skóla, fyrir kommúnistiskan of-
heldishugsunarhátt, sem fram
lcom í þvi, að þessir „litt þrosk-
uðu unglingar“ liugðust að
kúga „sterkasta skólamann
landsins“ til þess að skifta um
skoðun. Og hvað þarf þá lengur
vitnanna við um það, segir Jón-
ás, hvort Framsóknarflokkur-
inn sé „dulbúinn byltingar-
flokkur“, eins og haldið hefir
verið fram um mörg ár af sjálf-
slæðismönnuin. „Framsóknar-
floklcurinn er eini flokkurinn,
sem á margvíslegan hátt vinnur
í orði og verki hvíldarlaust
gegn boðun ofbeldisstefnunnar-
segir Jónas. Og með þeim orð-
um tileinkar hann Framsóknar-
flokknum allan „heiðurinn“
fyrir það, að þessir „litt þrosk-
uðu unglingar“ voru reknir úr
Laugarvatnsskóla!
En þrátt fyrir alla þessa eið-
stafi stjórnarflokkanna, þá vita
menn það, að raunveruleg
„samfylking“ þeirra og komm-
únista er þegar ákveðin og að
hún verður komin í fram-
kvæmd áður en næstu alþingis-
kosningar fara fram. Og það er
þegar farið að „rofa“ fyrir því
í framkvæmdinni.
Undanfarna daga hefir Al-
þýðuhlaðið og málgagn komm-
únista, að vísu ekki í „bróður-
einingu” á yfirborðinu, heldur
hvort um sig á sinn hátt, flutt
lesendum þann fagnaðarboð-
skap, að nú dragi óðum að þvi,
að allur verkalýður í landinu
„sameinist“ í órjúfanlegri heild.
Og tilefnið til þessa boðskapar
er það, að verkamannafélögin
tvö á Siglufirði, „krata“-félagið
„Þróttur“ og kommúnistafélag-
ið „Verkamannafélag Siglu-
fjarðar“ hafa sameinast á þann
hátt, að félagsménn V. S. hafa
gengið i „Þrótt“, og meðal
þeirra formaður kommúnista-
flokksins á Siglufirði, sem einn-
ig á sæti í miðstjórn Kommún-
istaflokks Islands.
Þannig liafa þá kommúnistar
telcið „sameiningar“-tilboði því
er þeim var gert á alþýðusam-
bandsþinginu, um leið og „sam-
fylkingar“-tilboði þeirra sjálfra
var liafnað. Og sú „sameining
verkalýðsins“, sem boðuð er
með samruna verkamannafé-
laganna á Siglufirði, er þá einn-
ig fyrirboði urn sameiningu Al-
þýðuflokksins óg kommúnista-
flokksins, sem grundvöllur var
lagður að á alþýðusambands-
þinginu í liaust. Fyrir nokkur-
um árum „klufu“ socialistar
verkamannafélagið á Siglufirði
af pólitískum ástæðum og
stofnuðu félagið „Þrótt“. Klofn-
inginn og stofnun hins nýja fé-
lags réttlættu þeir með því, að
ómögulegt væri að hafa nokk-
ura samvinnu við forsprakka
kommúnista í gamla félaginu.
Nú hafa þeir tekið þessa for-
sprakka kommúnista inn í sitt
félag, af því að ekki er lengur
um neinn ágreining við þá að
ræða og engir örðugleikar á
samvinnu við þá.
Skripaleikur sá, sem nú er
leikinn í blöðum socialista og
kommúnista, og hnakkrifrildi
þeirra um það, hvort það séu
heldur socialistar eða kommún-
istar, sem hafi komið þvi til
leiðar, að 'félögin á Siglufirði
sameinuðust og hvorir þeirra
hafi reynt að koma í veg fyrir
það, getur engan blekt. Það er
kunnugt, að málefnalegur á-
greiningur er nú enginn orðinn
milli forsprakka kommúnista
og socialista hér á Iandi. Social-
islabroddarnir hafa tekið upp
stefnuskrá kommúnista, og
framfylgja lienni af engu minna
lcappi en kommúnistar sjálfir,
þeirri skemdar- og niðurrifs-
starfsemi, sem kommúnistar í
öllum löndum beita scr fyrir.
Þeim ber elíkert annað á rnilli,
en hégómlegur metingur um
það, hverjir eigi að „teljast fyr-
ir“. En kommúnistar geta ekki
komist undan þvi, að ldýða fyr-
irskipunum „miðstöðvarinnar í
Moskva“ um samvinnu við so-
cialista. Og vegna óseðjandi
valdafíknar taka socialista-
broddarnir þeirri samvinnu
fegins hendi, í Iaumi, eins og
flokksbræður- þeirra á Spáni
gerðu opinberlega. — En hvort
það er kallað „samfylking“ eða
„saineining“ skiftir engu máli.
Hinsvegar verður væntanlega
ekki um að ræða fullkomna
sameiningu socialista bg Fram-
sóknarflokksins í bráðina. En
ætli það verði þá ekki úr að Iok-
um, að „samfylking“ verði með
framsóknarmönnum og hinum
sameinuðu socialistum og
kommúnistum þrátt fyrir brott-
rekstur hinna „litt þroskuðu“
unglinga frá Laugarvatni?
ERLEND VÍÐSJÁ.
Krýning
Georgs VI.
Nú hefir verið ákveðið aö krýn-
ing Bretakonungs skuli fram fara
12. maí í vor. Mun mörgum vera
forvitni á að heyra hvernig sú há-
tíö fer fram og skal því að nojckru
sagt frá því hér.
KrýningarhátíSin á a‘ð standa
yfir í ii vikur og á krýningin aiS
fara fram 12. maí. AS kvöldi þess
dagsj ætlar Georg konungur a'ð
EINKASKEYTI TIL VÍSIS.
London, í morgun.
Uppreistarmenn skýra frá því í tilkynningum sinum
um orusturnar við Malaga, að þeir sæki ffam í áttina til
borgarinnar á sex stöðum, frá Alhama, Archidona,
Anticfuers, Venaraubia, Ronda og Marbella.
I dag, segir í tilkynningu i gærkveldi, sóttu hersveitir
vorár fram, og eru nú hvergi fjær Malaga en 20 mílur
enskar.
I fregnum frá Madrid er frá því skýrt, að ákaft sé
barist á Malagavígstöðvunum, einkum við 0 jen. Lát-
lausri skothríð er haldið uppi á varnarstöðvar st jómar-
hersins við Fuengirola, en st jórnin heldur því fram,
að uppreistarmönnum hafi ekki orðið mikið ágengt og
Iierlínan við Malaga megi heita óbreytt. (United Press).
Herskip stjörnarinnar á leið til Malaga.
EINKASKEYTI TIL VlSIS.
London í morgun.
Samkvæmt fregnum, sem hingað hafa borist frá Gibralt-
ar, eru herskip stjórnarinnar, sem voru í Kartagena, lögð af
stað þaðan. Fóru þau þaðan í gær (föstudag). Eins og getið var
í skeytum í gær hafði flotaforingi uppreistarmanna hvatt sjó-
liðsmenn stjórnarinnar til þess, í útvarpsræðu, að gefast upp
og sigla skipum sínum til hafna uppreistarmanna, og mundu
þeiin þá verða gefnar upp sakir. Fregnin um brottför stjórnar-
herskipanna frá Kartagena vekur milda athygli, því að alment
i l er lalið, að þau muni ætla til Malaga. Þar með er þó ekkert um
það sagt, að sjóliðsmenn á herskipunum ætli að ganga í lið með
uppreistarmönnum. Um ferðir skipanna hefir ekkert verið
látið uppi. En það má þó telja fullvíst, að herskipin hafi lagt
af stað til Malaga, en f jögur beitiskip, sem uppreistarmenn hafa
á sínu valdi eru undan Malaga, Canaris, Baleares, A. L. Tirante
og Cervera. Er eins líklegt, að herskip stjórnarinnar Ieggi til
atlögu við herskip uppreistarmanna. (United Press).
Gassprenging
á flóðasvæðinu.
Norskt skip í iiættu.
EINKASKEYTI TIL VÍSIS.
London í morgun. ..
fibessinskur lersli-
ingjasonur gengur i 19
með SpjMórn.
EINKASKEYTI TIL VÍSIS.
London í morgun.
Frá Valencia er símað, að Gh.
L. Etimeru, sonur abessinsks
höfðingja, sem var herforingi í
Abessiniustyrjöldinni, hafi
gengið í útlendingahersveit
stjórnarinnar eða „alþjóðaher-
inn“. Er Etimeru nýkominn til
Valencia.
„Eg hefi gerst sjálboðaliði í
alþjóðahernum“, sagði hann
„sökum þess, að mér er ljóst,
að undir úrslitunum í styrjöld-
inni er framtíð allra frjálsra
þjóða komin og allra þeirra.
þjóða sem nú liafa verið bundn-
ar i þrældóms viðjar“. (United
Press).
Oslo, 5. febr. FÚ.
Of mikil harðfiskframleiðsla.
Norska stjórnin hefir látið
gefa út tilskipun um herslu
þurfiskjar, með það fyrir aug-
um, að hafa hemil á of mikilli
framleiðslu þessarar vöru. Sam-
kvæmt þessari íilskipun er
bannað að byrja herslu á þorslci
í Norður-Noregi og Þrænda-
lögum fyrir 1. mars, en í Lofot-
en fyrir 15. mars.
Hitaveitan.
Mesta framfaramát
Reykjavíknr.
í gær bauS bæjarráð Reykjavík-
ur fréttariturum bla;ða og útvarps
upp að Reykjum til aS skoða hinn
nýja bor, sem bærinn hefir keypt
og tójk til starfa í gær.
Helgi SigurSsson, verkfræðing-
ur; sem umsjón hefir með hita-
og vatnsveitu bæjarins skýrði starf
vélarinnar og ræddi um fyrirhug-
aða hitaveitu, sem bærinn yrði all-
ur aðnjótandi. Rétt neðan við
Reykjatúnið hefir verið reistor
skúr ii metra á lengd, og um 5
á breidd með um 11 metra iháum
turni, ekki ósvipuðum tumum,
sem notaðir eru við oliuboranir. 1
húsi þessu er borvélunum (koniið
fyrir. Borinn sjálfur er þannig
gerður, að neðst er borkróna, sem
er- 8 þml, vítt rör er skefur klöpp-
ina, en stálhöglum er.komið fyrir
á milli til að mylja. Af krónunni
tekur við svokallað kjarnarör, én
upp í það gengur kjarninn sem
skefst úr klöppinni, og er þannig
altaf hægt að fylgjast með hvern-
ig jarðlögin eru. Fyrirofan kjarná-
rörið er 2 þml. rör. Þegar borað
er, er vatni stöðugt dælt niður í
gegnum borinn og verður að nota
til þess sterka vatnsdælu sem dæl-
ir 165 1. á mín með 20 atmosfæra
þrýstingi. Vatnið hreinsar stöð-
ugt holuna og flytur upp sand og
leðju utan við borinn. Borinn sjálf-
ur er hreyfður með 28 hestafla
rafmagnsvél.
Vélin er þýsk og er smíðuð með
tilliti til okkar þarfa, en sérstak-
legaj var nauðsynlegt að hafa hana
létta, svo auðvelt væri að flytja
hana til. Þessi vél er um 1500 kg.
á þyngd, en slíkar vélar eru venju-
lega um 4 tonn. Vélin sjálf kost-'
aði hingað komin 47 þúsundir, en
þar af er 5 þús. kr. tollur og má
það teljast vitavert að íþyngja
slíku þjóðþrifafyrirtæki, sem þessu
með slíkum álögum. Um gang
'Framh. á 4. bls.
EINKASKEYTI TIL VÍSIS.
London i morgun.
Frá Luisville (Kentucky) er
simað, að a. m. k. 6 menn hafi
beðið bana, en um tólf meiðst,
er gassprenging varð i þriggja
hæða húsi þar í borginni. Er
það talin afleiðing flóðanna, að
gaspípurnar sprungu. Bygging-
in gereyðilagðist. — (United
Press). ,
tala í útvarp til þegna sinna, sem
dreyfðir eru um allan hnöttinn.
Eins og venja er til við slík tæki-
færi fara konungur og drottning
nteð fylgd sinni um ýmsar götur
Lundúnaborgar á leíð til kirkjunn-
ar sem krýningin fer fram i. Að
þessu sinni er leiðin sem farin
verður yfír 10 kílómetrar. Hafa
félög og einstakir menn lagt í mik-
inn kostnað við það að láta smíða
áhorfendapalla fram með öllum
þeim götum sem konungsfylgdin
fer um. Er hvert sæti á þessum
pöllum selt fyrir mikið fé. Þar
sem hægt er lengst að horfa á
íylgdarliðið, eru sætin seld fyrir
verð er samsvarar mörgum hundr-
uðum króna. Einnig er seldur að-
gangur að gluggum og verönd-
um hvarvetna þar sem konungs-
fyldin fer fram hjá. Er þegar selt
því nær hvert sæti sem hægt er
að fá við göturnar.
Hátíðin hefst 5. maí, eða viku
á undan krýningunni, með því að;
konungur með hirð sinni tekur á
móti gestum. Önnur slik móttaka
fer fram næsta dag en hin þriðja
og síðasta 1. júlí. Daginn fyrir
krýninguna ganga fyrir konung
og tjá honum hollustu sína allir
forsætisráðherrar samveldisland-
Norska skipið Rigel liefir
sent frá sér neyðarmerki og
beðið um aðstoð, og hefir skip^
ið Saperino farið á vettvang
Rigel til aðstoðar. Hafði Rigel
lent í ofviðri og farmur færst
til í skipinu, og hallast það svo
mikið, að skipverjar telja stór-
hættu á ferðum. Au-
Aðalfundur
Bókbindarafélags Reykjavíkur
var haldinn í fyrrakveld. Stjórn
félagsins var öll endurkosin, en
hana skipa: Jiens GuðibjöfnSson,
form., Guðgeir 'Jónsson, gjald-
keri og Sveinbjörn Arinbjarnar,
ritari.
G.s. Island
fór í gærkveldi kl. 7j4 frá Leith
áleiðis hingað til lands. Það er
væntanlegt hingað á þriðjudag.
anna, fulltrúar Indlands og
nýlendnanna. Veislu heldur kon-
ungur í höll sjnni 10. maí fyrir
stórmenni ,Bretaveldis og fulltrúa
erlendra ríkja. Önnur slík veisla
verður haldin daginn eftir krýn-
inguna. Flestir fulltrúar erlendra
ríkja munu dvelja í Buckingham-
höll sem gestir konungs og drottn-
ingar.
Öll borgin verður skreytt á ýms-
an veg og verður sú skreyting lát-
in standa til 27. maí. Ýmsar bygg-
ingar Ix>rgarinnar verða upplýstar
á hverju kvöldi í vikutíma. Veisl-
ur verða margar. Einnig verða
her- og flotasýningar. Útlending-
ar munu koma til London svo
hundruðum þúsunda skiftir, enda
hafa flest gistihús þegar leigt öll
sín herbergi þann tíma sem krýn-
ingarhátíðin stendur.
9ý soinkepni. 690 króRur.
1 dag hefst önnur samkepni blaðsins. Vinningar eru svo
sem hér segir:
1 vinningur á 100 kr.
3 vinningar - 50 —
5 ---- - 25 —
10 ------ - 10 —
25 ---- - 5 —
Á fyrstu síðu blaðsins eru 48 smáauglýsingar. 1 neðra
horni hverrar auglýsingar er einn bókstafur. Þegar allir þess-
ir stafir hafa verið teknir niður, á að vera hægt að mynda
úr þeim nöfn á vörum eða verslunum, svo sem hér segir:
1. Sum hús hafa það í hverju lierbergi.
2. Erlent vöruheiti.
3. Á borðið.
4. Nafn á verslun í Miðbænum.
5. ???
Allar ráðningarnar er að finna í auglýsingunum sjálfum.
Ráðningum sé skilað til afgreiðslu blaðsins í siðasta lagi
fyrir hádegi á mánudag 15. þ. m.
Aðeins fastir lcaupendur geta tekið þátt í samkepninni.
Hringið í síma 3400 og gerist kaupendur í dag.
VERÐLAUNASAMKEPPNI VlSIS
laugardaginn 6. febrúar 1937.
1.......................................
2......J................................
3. .....................................
4 ......................................
5 ......................................
Nafn áskrifanda ........................
Heimili ..........................
Einkennisstafir ..............
Aðeins fyrir fasta kaupendur.