Vísir - 12.02.1937, Blaðsíða 2
VÍSIR
uppreistarmexm loka. leidini&i
xnilli • Walexieia Hairid.
Lítil mótspyrna af hálftt
stj órnarsiima.
EINKASIŒYTI TIL VÍSIS.
London í morgun.
Fregn frá Avila hermir, að uppreistarmenn hafi
aftur náð á sitt vald nokkurum hluta þjóðvegarins
milli Valencia og Madrid. Komust hersveitir uppreist-
armanna yfir Jarama-fljót. Að afstaðinni nokkurra
klukkustunda fallbyssuskothríð þeysti riddaralið upp-
reistarmanna yfir ána og neyddi varnarsveitir stjórn-
arinnar til þess að hörfa undan. Hélt riddaraliðið á-
fram sókn sinni alt að skotgröfum stjórnarinnar, en
að svo búnu hófu fótgönguliðssveitir uppreistarmanna
áhíaup. Varð því talsvert ágengt og má þakka það því
að miklu leyti, að riddaraliðsáhlaupið kom stjórnar-
hernum á óvart og ruddi brautina fyrir fótgönguliðið.
Það er tilkynt, að uppreistarmenn hafi nokkurn
hluta vegarins alveg á sínu valdi og allstórt svæði hinu-
megin við hann. En hversu langt þeir komust norður
fyrir hann er eigi kunnugt.
Uppreistarmenn voru mjög undrandi yfir því, að
stjórnarsinnar skyldi eigi veita öflugra viðnám þarna,
þar sem varnarstöðvar þeirra þarna voru mjög mikil-
vægar. Gera uppreistarmenn sér nú vonir um, að geta
stöðvað alla flutninga milli Valencia og Madrid þessa
leið. (United Press).
XJtlendixigum Páðlagt að fapa
þegax* burt ús* Madpid*
Stópopusta í vændum.
EINKASKEYTI TIL VlSIS.
Londno í morgun.
Samkvæmt opinberri tilkynningu, sem birt er í blöðun-
um í morgun, er útlendingum ráðlagt að hverfa frá Madrid.
Verða þeir aðstoðaðir til þess að komast á brott hið fyrsta.
Áköf fallbyssuskothríð í gærkveldi í háskólahverfinu og vest-
urgarðinum bendir til að stórorusta sé í aðsígi. Auk þess er
ákaft barist með vélbyssum og handsprengjum. Ókunnugt er
hvor herinn hóf sóknina. (United Press).
Uppreistarmenn vígja fána.
Þegar uppreistarmenn liafa mist fána er nýr fáni vígður
með miklu tilhaldi. Hermenn og íbúar héraðsins sverja lioll-
ustueiða og kona les upp eiðsformálann, eins og sést á mynd-
inni.
Amelia Earhardt leggur í
hnattflug.
Ráðgerir að vera hálfan mátnu.d
á leiðimtni.
EINKASKEYTI TIL VÍSIS.
VlSIR
DAGBLAÐ
Útgefandi:
BLAÐAÚTGÁFAN
VlSIR H.F.
Ritstj.: Páll Steingrímsson.
Skrifstofa I Austurstræti 12.
og afgr. |
/
S ím a r :
Afgreiðsla 3400
Ritstjórn 4578
Auglýsingastjóri 2834
Prentsmiðjan 4578
Verð 2 kr. á mánuði.
Lausasala 10 aurar.
Félagsprentsmiðjan.
Samræmi.
Allir samfylkingarflokkarnir,
kommúnistar, soeialistar og
framsóknarmenn, virðast vera
sammála um það, að það sé nú
landsfólkinu nauðsynlegast af
öllu, að stærstu atvinnufyrir-
tækin í landinu, sem veitt hafa
mesta og arðbærasta atvinnu,
verði liið bráðasta að velli lögð,
og „gerð upp“. Þau séu „búin
að mergsjúga þjóðina nær til
bana“ og enginn vilji eða þori
að mæla þeim bót, eins og eitt
þessara blaða kemst að orði.
En Iivað á svo að taka við,
þegar þessari miklu nauðyn al-
])jóðar hefir verið fullnægt, og
þessar meinvættir fá eldd leng-
ur „sogið merginn“ ur þjóð-
inni?
Það virðist því miður vera
nokkuð á huldu.
Það á að taka togarana af
þeim, sem nú hafa útgerð þeirra
með liöndum. En liver á ávo að
reka útgerðina?
„Nú erum það við verkamenn
og allir frjálslyndir menn“, sem
verðum að Ieggja atvinnufyrir-
tækin að velli, segja hinir sjálf-
kjörnu forráðamenn alþýðunn-
ar í landinu. En „erum það við
verkamenn“, sem þá eiga að
taka við stjórn og starfrækslu
útgerðarinnar?
„Á undanförnum árum, þeg-
ar auðvaldið hefir bundið fiski-
fiotann við hafnargarðinn mest-
an hluta ársins, þá liafa sjó-
menn verið að slá sér saman,
taka skip og gpra út“, segir biað-
ið, sem vitnað var í hér að
framan. En er þetta þá hjálp-
ræðið, sem öilu á að bjarga,
Hvernig hefir þeim farnast, sjó-
ínönnunum, sem liafa „slegið
sér saman“ og gert út skipin?
Um það segir hlaðið:
„Þá liafa bankarnir heimtað
takmarkalausa ábyrgð og sjó-
menn hafa þurft að veðsetja
hvert „pút og plagg“ ... . “ og
niðurstaðan hefir orðið sú, að
„náttúrlega hefir þetta æfinlega
endað þannig, að bankinn hefir
hirt þetta alt, þegar sjómenn
hafa verið búnir að þræla kaup-
laust á skipunum yfir lengri
tima“!
Þetta er nú svipaðast því að
fara úr „öskunni í eldinn“.
Jafnvel þó að bankinn hefði
nú ekki heimtað veðsetningu á
hverju „púti og plaggi“ og ekk-
ert „tekið“, en „lánað“ skipin
fyrir ekkert, þá virðist afkomu
sjómannanna litlu hetur borg-
ið, með því, ef þeir þurfa að
„þræla kauplaust á skipunum“
og hafa ekkert annað upp úr
því. Það mætti jafnvel ætla, að
þeir hefðu ekki verið ver settir
með því að láta skipin liggja
óhreyfð, bundin við hafnargarð-
ana, eins og „auðvaldið".
En ef þetta er nú svona, að
ekki sé viðlit að gera skipin út,
jafnvel þó að unnið sé „kaup-
laust“ á þeim, hvað gagnar það
þá að taka þau af útgerðar-
mönnunum? Iiver á að standa
siraum af útgerðarkostnaðin-
um ? 1
Þó að útgerðin liafi gengið
erfiðlega í höndum útgerðar-
manna, þá liafa sjómenn þó alt-
af fengið greitt kaup fyrir vinnu
sína. Og hjá stærstu útgerðar-
fvrirtækjunum, sem nú er mest
kappið lagt á að kollvarpa, liafa
sjömennirnir að öllum jafnaði
horið mest úr býtum. Og ef það
er svo, að sjómenn verði að
vinna kauplaust á skipunum, ef
þeir „slá sér saman“ um að
gera þau út, fer það þá ekki að
verða skiljanlegt, að útgerðar-
fyrirtækin liljóti að hafa tapað
á útgerðinni, með því að borga
þeim fullt kaup?
ERLEND VlÐSJÁ.
Bresk-amerískur
viðskiftasamningur
Mr. Runciman, breski verslun-
arráöherrann, var fyrir skömmu í
Washington, og ræddi þar vio
Roosevelt forseta um ýms vanda-
mál, fjárhagsleg og pólitisk. Á-
rangurinn af viöræöum þessum er
sá, aö lagöur var grundvöllur a'ö
vi'ðskiftasamningi. Kemur nú til
kasta amerískra og breskra stjórn-
ar-sérfræöinga aö gera uppkast aö
slíkum samningi, á þeim grund-
velli, sem lagöur var af Mr. Runci-
man og Roosevelt forseta, er þeir
ræddust viö í Washington.
Ensk blöð, m. a. Manchester
Guardian, telja aö Mr. Runciman
hafi valið réttarí tíma til þess aö
eiga þessar viðræður viö Roose-
velt. í fyrsta lagi sé aöstaöa
Roosevelts sterkari en nokkuru
sinni áöur, vegna kosningasigurs-
ins mikla í haust sem leiö, en í
ööru lagi hafi stjórn hans hinn
mesta áhuga fyrir því aö efla viö-
skifti þjóöa milli, meö því að vinna
aö því aö draga úr þeim hömlum,
sem um mörg undangengin ár
hafa lamaö öl 1 viðskifti þjóöa
milli. Taki Bretar og Bandaríkja-
menn sameiginlega forgönguna í
aö liöka alþjóöa viðskifti mun þaö
hafa víötæk áhrif. „Bretland er
mjög mikilvægur markaður fyrir
Bandaríkin“, segir Manchester
Guardian, „og enda þótt vér selj-
um minna til Bandaríkjanna en vér
kaupúm þaðan mætti auðveldlega
auka útflutning vorn þangaö. í
Ottawasamningunum er ekkert,
sem brýtur í bág við slíkan samn-
ing“. Blaöiö bendir á, aö meiri
ástæða sé til aö ætla, aö erfiðleika
væri aö vænta vegna samninga
Breta við þjóðir, er þeir hafa gert
viðskiftasamninga viö og er heit-
iö „bestu kjörum“. En væntanleg'a
takist sérfræöingunum að koma í
veg fyrir, að steytt verði á neinu
slíku skeri.
Skandinaviskir sjálfboðaliðar á
leið til Spánar.
Oslo, 11. febrúar.
Frá Dunquerque er símað, að
danska skipið A. P. Bernstorf
sé þangað komið. Á því voru 39
farþegar, þar af 31 sjálfboða-
liðar, sem ætla til Spánar,
danskir, sænskir og norskir.
Þeir fóru með fyrstu járnbraut-
arlest til Parísarborgar. (NRP.
— FB.).
Til friðarmálanna.
Oslo, 11. febrúar.
Nohelsverðlaunanefndin hef-
ir gefið 2000 sterlingspund í
sjóð þann, sem alþjóðanefnd
safnar i um heim allan í þágu
friðarmálanna. (NRP. — FB.).
Fisksala Norðmanna
árið sem leið.
11. febr. FÚ.
Fréttaritari útvarpsins í
Kaupmannahöfn hefir sam-
kvæmt beiðni fréttastofunnar
aflað sér eftirfarandi upplýs-
inga um fiskútflutning Norð-
manna á árinu sem leið:
Af skýrslum þeim sem fyrir
liggja i verslunarmálaráðuneyt-
inu norska kemur í ljós, að fisk-
útflutningur Norðmanna nam á
árinu 1936 77 miljónum króna,
en 75 miljónum 1935, og 70
miljónum 1934. Saltsíldarút-
flutningurinn jókst á árinu að
verðmæti um 54,5 af liundraði
miðað við fyrra ár, útflutningur
nýs fiskjar um 10,7 af hundraði,
nýrrar síldar um 4 af hundraði,
saltfiskjar 3 af hundraði. Hins-
vegar hefir útflutningur á sölt-
uðum fiski í kössum minkað
um 45 af hundraði miðað við
fyrra ár, og harðfiski um 10,1
af hundraði.
Innflutningur nýs fiskjar til
Englands hélst nálega óbreytt-
ur árið sem leið, en óx til muna
til Þýskalands. Svíþjóð keypti
nokkru meira en árið áður,
Finnland nokkru minna. Á
Þýskor sendiherra
hjá Franco.
EINKASKBYTI TIL VÍSIS.
Berlín i morgun.
Sú fregn hefir verið staðfest,
að Fiauple Will hafi verið skip-
aður sendiherra Þjóðverja í
þeim hluta Spánar, sem Franco
hefir á sínu valdi. (United
Press).
Ítalíu seldu Norðmenn 3,830
smálestir af harðfiski, miðað
við 6,250 smálestir 1935. Af
norskum saltfiski keypli Port-
úgal 16,725 smálestir á árinu
1936, en 10,502 smálestir árið
1935. Saltfisksalan til Spánar
féll aftur á móti úr 12,215 smá-
lestum árið 1935 niður í 8,850
smálestir 1936. Útflutningurinn
til Argentínu féll úr 3,930 smá-
lestum árið 1935 niður í 2,262
smálestir, og útflutningurinn
til Kúba féll einnig, úr 3,940
smálestum niður í 2669. Hins-
vegar óx útflutningurinn til
Brasilíu örlítið, úr 1,665 smá-
lestum upp í 1,719 smálestir.
London í morgun.
Fregn frá New York í morg-
un hermir, að Amelia Earhardt,
flugmærin heimsfræga, ætli í
linattflug, samtals 27.000 e. m„
með viðkomu á 8 stöðum. Hún
leggur af stað frá Oakland í
Kaliforniu, fer þaðan til Hono-
lulu, Howard-eyju, Lea á Nýju
Gineu, Darwin og Oakar og
Fjárlðg norskn stjúrn-
arinnar.
HvaRsyrt Baprýnl hægrl
manna.
Oslo, 11. febrúar.
Fjárlaganefnd Stórþingsins
hefir skilað álitum um fjárlaga-
frumvarpið. — Hægrimenn í
nefndinni gagnrýna livasslega
tillögur ríkisstjórnarinnar og
hafa boðað, að þeir muni leggja
til, að frumvarpið verði endur-
sent rikisstjórninni til íhugun-
ar á ný. Hægrimenn lcrefjast
þess að söluskatturinn verði af-
numinn, svo og rentuskatturinn.
Ennfremur krefjast þeir þess,
að ríkisstjórnin geri ítarlegri
grein fyrir afstöðu sinni til
landvarnarmálanna. — Bænda-
flokksmenn í nefndinni eru á-
nægðir með tillögur ríkisstjórn-
arinnar um framlög ríkisins til
verklegra fyrirtækja, nýbýla-
stofnunar og nýræktar o. s^frv.
Bændaflokksmennimir leggja
áherslu á, að nauðsynlegt sé, að
vextir verði Iækkaðir og að því
þaðan . um .Miami .eða Nýja
Mexico-ríkin í Bandaríkjunum
tii Oakland. Harry Manning,
sem til skamms tíma var stýri-
maður á Ss. American Banker,
verður með Amelíu Earhardt £
flugferðinni. Hún segir, að þetta
sé tilraunaflugferð, og verði
engin tilraun gerð til þess að
setja met. Hún ráðgerir, að
hnattflugið standi yfir í hálfan
mánuð. (United Press).
Inflnensan rénar i Mor-
eyi og Danmörku.
Færist í vöxt í Svíjþjóð.
Kaupmannahöfn, 11. febr.
Inflúensan færist í vöxt í Sví-
þjóð. Um 30 ný tilfelli koma
daglega fyrir í Stokkhólmi. En
liún er í rénum bæði í Noregi
og í Danmörku, en þar sýktist
103.000 manns í desembermán-
uði.
Einkaskeyti. FÚ.
er landvarnamálin snertir gera
þeir ráð fyrir því, að ríkisstjórn-
in heri fram sérstakar tilögur
landvörnunum til styrktar. —
Vinstrimenn telja of djarft
stefnt í útgjaldaáttina og að það
ætti að vera auðið að lælcka
bæði beina og óbeina skatta. —
Alþýðuflokksþingmennirnir í
nefndinni eru í öllu fylgjandi
frumvarpi stjórnarinnar.
(NRP. — FB.).
I
f