Vísir - 12.02.1937, Blaðsíða 4
VÍSIR
I»EGAR EG BARÐIST FYRIR
SPÆNSKU STJÓRNINA.
ákvaö eg að lialda niina leið.
Rússarnir huðu mér að starfa
með þeim, en þeir liöfðu ný-
íisku rússneskar flugvélar. Þeir
höfðu og sína eig'in flugstöð.
Þeir voru prýðilega þjálfaðir og
agi hinn besti hjá þeim. Höfðu
þeir eins lítið saman að sælda
'við Spánverja og þeim var auð-
ið. Mér geðjaðist i alla staði vel
að þeim. Þeir voru hestu dreng-
ir. En boð þeirra þáði eg eklci.
Eg komst til Barcelona heilu
‘Og höldnu. Konan mín var kom-
in til Spánar. Saman rejmdum
við nú að komast á brott. 1 Fort
Bou vorum við liandtekin af
því, að vegabréf okkar voru
ekki stimpluð í Kataloniu, en
*við höfðuni farið til Barcelona.
líóttina, sem við vorum í fang-
elsinu, var gerð loftárás á Fort
Boui. Og það er ekki gaman að
vera lokaður inni, þegar loftá-
rás stendur yfir.
Það gerðist margt sögulegt,
er við reyndum að komast til
Frakklands eins og fyrr var að
vikið. Og viða var litið á okkur
sem njósnara af Spánverjum.
En loks komumst við til Fralck-
lands, og þar var gott að koma.
f.O.O.F. 1 = 118212872 = E K.
Veðrið í morgun.
Hiti uin land alt. I Reykjavík
•6 stig, Bolungarvík 7, Akureyri
7, Skálanesi 5, Vestmannaeyjum 6,
Kvígindisdal 4, Hesteyri 7, Gjögri
6, Blönduósi 8, Siglunesi 3, Gríms-
ey 2, Raufarhöfn 4, Skálum 3,
Fagradal 4, Papey 5, Hólum í
Hornafirði 3, Fagurhólsmýri 3 og
Reykjanesi 5. . Mestur hiti hér í
;gær 6 stig. mest frost 8 stig. Úr-
koma 12,4 mm. Yfirlit: Djúp lægð
og stormsveipur vestur af Reykja-
nesi á hreyfingu norðaustur eftir.
Horfur: Suðvesturland, Faxaflói,
Breiðafjörður, Vestfirðir: Sunnan
•og suðvestan átt með snörpum
-skúrum og síðan éljagangi. Norð-
airlajid, norðausturland, Austfirð-
iir: Hvass sunnan og suðvestan.
Þíðviðri. Víðast úrkomulaust. Suð-
austurland: Hvass sunnan 0g suð-
vestan. Rigning í dag, en skúra-
veður í nótt.
Skipafregnir.
Gullfoss var á Önundarfirði í
smorgun. Goðafoss er á leið til
Hull frá Vestmannaeyjum. Brúar-
foss fer frá Leith í dag áleiðis til
Vestmannaeyja. Dettifoss er á leið
til Vestmannaeyja frá Hull. Lag-
arfoss er á leið til Kaupmanna-
hafnar frá Austfjörðum. Selfoss
er á leið til útlanda. Belgaum kom
frá Englandi i gærkveldi. E.s.
Edda kom frá útlöndum í gær-
kveldi. G.s. Island fór vestur og
norður í gær. Lyra fór í morgun.
B.v. Gullfoss kom frá útlöndum í
nótt.
Samsöngur.
Vegna ágætrar aðsóknar endur-
tekur karlakórinn „Kátir félagar“
söngskemtun sína í Gamla Bió n.
k. sunnudag kl. 2.
Ungfrú Unnur óladóttir
Nesi, tekur að sér fótsnyrtingu.
Hefir hún dvalið í skóla Dr.
.Scholl’s í Stokkhólmi, og numið
á lækningastofu hans.
Rangæingamót
verður haldið í Oddfellowhúsinu
laugardaginn 20. þ. m., og hefst
það með borðhaldi kl. 7,30. Til
skemtunar verða ræðuhöld, söng-
ur og dans. Sjá nánar i auglýsingu
hér í blaðinu í dag.
ögmundur Jónsson
(Guðmundssonar kjötmats-
manns) hefir nýlega lokið prófi í
byggingaverkfræði við Háskól-
ann í Berlín með I. einkunn. Hann
hefir tekið vatnavirkjun sem sér-
grein.
Magnús Jónsson
alþm. ræddi í gærkveldi iðnað-
arrpálin á Varðarfundi. Ræddi
hann fjármál og félagsmál iðnað-
armanna og var hinn besti rómur
gerður að máli hans.
De Koch,
Suður-Afrikulæknirinn, sem
gert var ráð fyrir, að kæmi hing-
að til rannsókna á Deildartungu-
veikinni, treystir sér ekki til þess
að koma hingað, að því er hann
segir í bréfi, sem Niels Dungal
lækni hefir Ixirist. En Dungal
hafði mælst til þess, að hann kæmi
hingað til rannsókna á veikinni,
þar eð de Koch giskaði á, að hér
mundi vera um sömu sýki að ræða
og fjársýki, sem í Suður-Afríku
er nefnd „Jaag-Siekte“. De Koch
hefir fengið héðan lungu úr sýkt-
um kindum til rannsókna þar og
fleiri veröa send. Guðmundur
Gíslason læknir, sem vinnur á
rannsóknarstofu í London í vetur,
aðstoðar de Koch við þessar rann-
SÓknÍr- I !
Aflasala.
Ólafur seldi ísfiskafla í Grims-
by i gær, 1457 vættir, fyrir 1010
stpd.
Spegillinn
kemur út á morgun.
„Leið stjórnandans“
heitir fyrirlestur, er Jón Árna-
son prentari flytur í Guðspekifé-
lagshúsinu næstkomandi sunnu-
dag, kl. 9 síðdegis. Mun hann í
fyrirlestri þessum gera grein fyrir
slcoðunum sínum á því, hverjum
eðliskostum og hæfileikum þeir
menn þurfi að vera gæddir, er
hafa vilja mannaforráð 0g stjórna,
hvort sem það er nú í opinberu
lífi eða annarsstaðar, þar sem
minna ber á. Aðgöngumiðar fást
við innganginn eftir lcl. 8 og kosta
1 krónu. <
Næturlæknir
er í nótt Halldór Stefánsson,
Skólavörðustíg 12. S’nii 2234.
Næturvörður í Reykjavíkur apó-
teki og Lyfjabúöinni Iðunni.
Kaupið
timbur, glugga, hurðir og lista
hjá stærslu timburverslun og
trésmiðju landsins. --
Hvergi betra verð.
Kaupið gott efni og góða vinnu.
Þegar húsin fara að eldast, mun koma í ljós, að
það margborgar sig. —
Verslunin selur einnig sement,
saum, þalcpappa, kross-spón,
Treetex og niðursöguð efni í
lirífuhausa, lirifusköft og orf.
Timbupvepslunin
VÖLUNDURH. F.
REYKJAVÍK
Símnefni: Völundur.
Gengið í dag.
Sterlingspund ........ kr. 22.15
Dollar ............... — 4-53þ2
100 ríkismörk .......... — 181.90
— franskir frankar — 21.21
— belgur ............. — 76.39
— svissn. frankar .. — 103.43
— finsk mörk .... — 9.95
— gyllini ........... — 247.06
— tékkósl. krónur .. — 16.08
— sænskar krónur . — H4-3Ó
— norskar krónur .. — m-44
— danskar krónur .. — 100.00
Útvarpið í kvöld.
19,10 Veðurfr. 19,20 Hljómplöt-
ur: Létt lög. 19,30 Erindi: Um
niðursuðu (Ólafur Friðriksson
fyrv. ritstjóri). 20,00 Fréttir. 20,30
Bækur og menn (Vilhjálmur Þ.
Gíslason). 20,45 Kvöldvaka: a)
Jóhannes úr Kötlum: Þjóðsögur.
b) Magnús Jónsson próf.: Upphaf
mormóna á Islandi, I; c) Jón Ey-
þórsson veðurfr.: Kreppan fyrir
50 árum; d) Ragnar Jóhannesson
cand. mag.: Saga eftir Strindberg.
Ennfremur sönglög. (Dagskrá
lokið um ikl. 22,30).
Utan af landL
Síldarverksmiðja á Akranesi.
Akranesi 11. febr. FÚ.
Akurnesingar liafa afráðið
að reisa í vor fulllcomna ný-
tísku lifrarvinslu-, síldar- og
fiskmjölsYerksmiðju. Að fyrir-
tækinu stendur lireppurinn, all-
ir útgerðarmenn og almenning-
ur í þorpinu.
Fréttaritari útvarpsins skýrir
þannig frá undirbúningi: Samn-
ingar um verkið liafa verið und-
irskrifaðir við vélsmiðjuna h.f.
Héðin i Reykjavík. Siglir for-
stjórinn, Bjarni Þorsteinsson,
með Lyru í dag til þess að gera
innkaup á efni. Verksmiðjan á
að vera fullbújin 31. júlí í sum-
ar, svo að liún geti þá þegar tek-
ið til vinslu reknetasíld úr Faxa-
flóa, er hennj, kann að berast.
Aðkomubátar hafa þegar óskað
eftir að gera sölusanminga um
relcnetasíld i sumar.
Hlutafjársöfnun er ekki að
fullu lolcið. En nú þegar er búið
að skrifa sig fyrir lilutum að
fjárhæð kr. 73 þúsund, en ætlast
er til, að hlutafé verði alt að 100
þúsund krónur. — Áætlað er,
að verksmiðjan uppkomin kosti
um 250 þúsund lcrónur.
Bráðabirgðastjórn verksmiðj-
unnar skipa þessir: Ólafur B.
Björnsson, Sveinbjörn Oddsson,
Ilaraldur Böðvarsson, Þórhall-
ur Sæmundsson og Sigurður
Hallbjarnarson.— Stjórnin von-
ar að liafa nægilegt fé til þessa
fyrirtækis, enda hafa allir aðilar
og ráðandi menn, sem til liefir
verið leitað, sýnt fyrirtækinu
sérstalca velvild, og stuðning.
VÍSIS KAFFIÐ
gerir alla glaða.
KfN§L4fl
Nýtt námskeið í nærfatasaum
hyrjar 15. þ.m. SMART, Kirkju-
stræti 8B. (264
tTILK/NNINCAU
Fíladelfíusöfnuðurinn. Sam-
lcoina í Varðarhúsinu á föstu-
daginn kl. 8(4. Eric Ericson,
Jónas Jalcobsson og Kristín Sæ-
munds. Söngur og hljóðfæra-
sláttur. Alhr velkomnir. (255
Spegillinn kemur út á morg- j
un. Sölubörn afgreidd allan 1
daginn í Bókahúðinni, Banka-
stræti 11. Hafnarfjarðarbörn í
verslun Þorvalds Bjarnasonar.
(257
Færeysk stúlka (19 ára) óskar
að slcifta bréfum við íslendinga
á líkum aldri. Annie Á. Helms-
dal, Thorshavn. Færöerne. (222
Leikfangasalan er í Veltu-
sundi 1. Elfar. Sími 2673. (854
H FÆf) I M
ÍTAPAD'fUNDIf)]
Armbandsúr tapaðist í gær á
leiðinni frá Rauðarárstíg að Fé-
lagsprentsmiðjunni. Skilist í Fé-
lagsprentsm. gegn fundarlaun-
um. (259
%
RtlClSINÆéll
Til leigu nálægt miðbæn-
um sólrik íbúð 4—5 her-
bergi og eldhús með þæg-
indum, frá 14. maí eða fyr,
helst fyrir fámenna, bam-
lausa fjölskyldu. Tilboð,
merkt: „Sólrík íbúð“, ósk-
ast sent á afgreiðslu Vísis
fyrir 15. þ. m.
3ja herbergja íbúð, með öll-
um þægindum, óskast 14. maí.
A- v. á. (261
2 herbergi og eldhús, með
öllum þægindum, óskast 14.
maí í Vesturbænum. Tvent í
lieimili. Tilboð, merkt: „Reglu-
semi og skilvísi“, afhendist af-
gr. Vísis fyrir mándagskveld,
(263
3—4 herbergja íbúð ásamt
stiílknaherbergi óskast 14. mai
n. k. Öll þægindi áskilin. Fyrir-
framgreiðsla. Fátt í heimili. Til-
boð merkt: „Þægilegt“ sendist
afgr. Vísis fyrir n. k. laugar-
dagskvöld. (254
Herhergi óskast um 6 vikna
tíma, nálægt miðhænum. Á-
byggileg greiðsla. Uppl. síma
4144. (256
Geymslupláss, hentugt, fyrir
sylcurtollgeymslu, óskast nú
þegar. Uppl. í síma 2012. (258
HVINNAH
Stúlka tekur að sér að sauma
í húsum. Uppl. í síma 3504. (260
--------------r----------- —
Sjómenn vantar til Grinda-
víkur. Uppl. Bárugötu 29, frá
5—7 í dag. (262
Stúlka óskast í vist hálfan
daginn. Uppl. á Hverfisgötu 123,
hjá Guðjóni Jónssyni. ( (264
Þvottahús Elliheimilisins þvær
vel og ódýrt. Þvotturinn sóttur
og sendur. Hringið í síma 3187.
(291
IFAUTSKARIKI
Nýr fallegur eilcarlclæðaskáp-
ur til sölu ódýrt. Freyjugötu 39,
niðri. (253
5 manna fólksbíll, Dodge, er
til sölu nú þegar. Uppl. í síma
4825, kl. 11—12 og 5—7. (231
Daglega nýtt fiskfars i búð-
um Sláturfélags Suðurlands.
Forn salan,
Hafnarstræti 18, selur með
tækifærisverði ný og notuð hús-
gögn og lítið notaða karlmanna-
fatnaði.
Kaupi gull og silfur til
bræðslu. Einnig breyti gömlu i
nýtt ef óskað er. Jón Sigmunds-
son, gullsmiður. Laugavegi 8.
(263
Sjómenn! Kaupið sjóbuxur
yðar í Álafoss. Þær endast best
pg eru ódýrastar. (64
FASTEIGNASALA.
Hefi smá og stór liús til
sölu. Góðir greiðsluskil-
málar. Eignaskifti geta
komið til greina. Tek hus
og aðrar eignir í umboðs-
sölu, — Athugið þetta í
tíma. — Til viðtals 11—12
og 4—7.
Sigurður Þorsteinsson,
Bragagötu 31.
FfiLAGSPRENTSMIÐJAN
EINSTÆÐINGURINN. 87
- — það var sem hann hefði hulið sál sína fyrir
- ápyrjancfi augum Söru, sem enn beið.
C Og hafi nokkur vonarneisti enn lifað í sál
'■ Söru, slöknáði liann á þessari stund, þvi að nú
var ekki lengur um það að vilíast, að Garth gat
ekki neitað ásökuninni. En hún reyndi að stappa
i sig stálinu — hun vildi heyra sannleikann af
hans eigin vörum, og hún spurði í angist sinni:
„Er það saft? — Er það satt að þú varst rek-
inn úr hernum fyrir að hafa brugðist skyldu
iþinni — fyrir hugleysi?“
Loks tók hann til máls.
0)ttá, það er satt.“
mælti rólega, af engum hita, en svipur
lians hreyttist og það var ekki í samræmi við
það svar, sem liann liafði gefið henni. Það var
eins og sál hans — hans innri maður — hefði
<eitthvað mikilvægt að segja, eins og hann vildi
sprengja af sér þau bönd, sem járnharður sjálfs-
aginn hafði lagt á hann.
Og Sara fann það á sér, að hann átti í stríði
við sjálfan sig — og hún fann alt í einu til ríkrar
samúðar, meðaumkunar.
„Garth, Garth. Það hlýtur að vera um ein-
Tiverja skýringu að ræða.-----Þú varst ekki
með sjálfum þér, þegar. þetta gerðist. Ó, segðu
■mér. —■“
Hún þagnaði skyndilega og breiddi út faðm-
Jnn á móti honum.
Þegar hún nú hallaði sér upp að honum var
sem skjálfti færi um hann allan. Hann krepti
saman hnefana og mátti í öllu sjá, að liann var
að reyna að hvika í engu fná þeirri stefnu, sem
liann hafði upphaflega tekið, en horfið frá
vegna ástarinnar til Söru.
„Eg var með sjálfum mér þessa nótt í Ind-
landi,“ sagði hann — „því fer fjarri, að eg geti
afsakað mig með þvi að eg hafi ekki vitað hvað
eg gerði. Og að því er skýringar eða afsalcanir
snertir tók herrétturinn alt slikt til greina eftir
því, sem unt var. Eg var ekki dæmdur til líf-
láts og herrétturinn tók því til greina það, sem
vinir mínir höfðu borið fram mér til málsbóta.“
Og eftir nokkura þögn bætti hann við:
„Það er víst talsvert, sem eg get verið þalck-
látur fyrir — finst þér það ekki?“
„Eg veit ekki hvað eg á að halda,“ sagði hún
með nolckurum ofsa. „Mér gat eklci dottið i
hug, að þú mundir — sökkva svo djúpt.“
„Menn grípa stundum til örþrifaráða sér til
bjargar,“ sagði hann beisklega.
„Af hverju talarðu svo?“ spurði hún harð-
neskjulega, en hún hafði áður mælt við hann.
„Viltu, að eg álíti þig minni mann en réttmætt
er samkvæmt frásögn Elisabeth?“
Hann færði sig nær henni og horfði á hana
og tillit augna hans var einlcennilega kalt og
hart.
„Já, eg vil það,“ sagði hann. „Eg vil, að þú
metir mig eins og vert er — eins litils og verða
má. Eg vil, að þér verði Ijóst hvílíkum manni
þú ætlaðir að giftast, og þegar þú hefir loks
gert þér það Ijóst, muntu fá frið í sál þinni, og
þú getur gifst einhverjum glaðlyndum, heiðar-
Iegum manni, sem Iiefir ekki verið vikið úr
hernum fyrir að bregðast skyldum sínum við
föðurlandið!“
„Aldrei — alla æfi mína — mun eg fó gleymt
því, að eg hefi elskað hugleysingja."
Hún mælti þessi orð allhikandi og svo bar
liún litrandi hendur sínar að andlitinu og huldi
liað, eins og hún vildi1 ekki horfa á hann lengur
og hún stundi þungan.
Hann geklc fram um skref, eins og hann ætl-
aði að ganga til hennar, en sá sig þegar um
hönd og stóð aftur kyrr, hreyfingarlaus, að
undanteknu því, að hann krepti hnefana annað
veifið.
Þegar Sara loks leit á liann aftur bar andlit
bans merki þess, að hann kvaldist sáran — en
liún var svo djúpum sárum særð sjálf, að hún
tólc ekki tillit til þess í hverju sálarstríði hann
átti og Iiún sagði:
„Það er að vakna hatur í huga mínum til þín.“
„Eg vona, að svo fari,“ sagði hann. „Það væri
fyrir bestu.“
„Ef það hefði verið eitthvað annað — hefði
eg kannske getað borið það, Garth, — en ekki
þetta.“
Hún talaði nú í öðrum og mýkri tón, en hann
tók ekkert tillit til þess.
„Þá er gott og vel, að það var ekki — eitt-
hvað annað,“ sagði hann.
Hún skildi það svo, sem hann með þessu
liefði viljað minna hana á loforð hennar. Og
það var viðkvæmasti bletturinn. Hiin hafði
gefið honum loforð sitt í blindni, án þess að
vita hið sanna, en það afsakaði ekki hina
breyttu afstöðu hennar að fullu. Hún hafði
boðist til þess að bera byrðamar með honum
— hvað svo sem hann hefði fyrir sér gert.
„Eg veit — eg veit,“ sagði hún. ,JÞú hefir
fullan rétt til þess að minna mig á loforð mitt.
— Eg ásaka sjálfa mig fyrir það. Það er voða-
legt — að ganga á bak orða sinna.“
Hún var þögul um stund og hneigði höfði.
Hún vildi í rauninni koma sanngjamlega fram.
Hun var hrein og bein. Og hún vildi ekki bregð-
ast þeim, sem hún hafði heitið að styðja. Og
hún reyndi líka að bæla niður þær tilfinningar,
sem vaknað höfðu í huga hennar er liún sann-
færðist um sekt Gartlis.
„Við gætum ekki orðið farsæl í lijónabandi
— úr því sem komið er,“ sagði hún og það var
engu Iíkara en hún væri að neyða sjálfa sig til
þess að segja það, sem hún síst af öllu vildi
láta sér um munn fara. „En ég gaf þér Ioforð
mitt — og ef þú krefst þess, að eg haldi heit
mitt — “
„Eg krefst einskis,“ greip hann hörkulega
fram í fyrir henni. „Þú þarft engar áhyggjur að
hafa í því efni. Þú ert frjáls — eins frjáls og
ef við hefðu aldrei hitst. Eg er fyllilega reiðu-
búinn til þess að beygja mig fyrir þeirri skoðun
þinni, að eg sé ekki til þess hæfur að verða
maðurinn þinn.“
0