Vísir - 27.02.1937, Síða 2

Vísir - 27.02.1937, Síða 2
VÍSIR VÍSIR DAGBLAÐ Otgefandi: BLAÐAÚTGÁFAN VlSIR H.F. Ritstj.: Páll Steingrímsson. Skrifstofa I Austurstræti 12. og afgr. | S í m a r : Afgreiðsla 3400 Ritstjórn 4578 Auglýsingastjóri 2834 Prentsmiðjan 4578 Verð 2 kr. á mánuði. Lausasala 10 aurar. Félagsprentsmiðjan. Undan straumnum. Einn þektasti stjórnmálamað- ur Frakka sagði í merkilegri ræðu í franska þinginu í gær, að lýðræðið mundi líða undir lok í Frakklandi ef fjármála- stefnu Blum-stjórnarinnar yrði lialdið áfram. í nokkur ár hafa sósíalistar þar í landi ráðið svo miklu um fjármálastefnu franska þingsins, að engum umbótum eða sparnaði á út- gjöldum ríkisins hefir verið hægt að koma í framkvæmd. Eyðsla ríkisins hefir á hverju ári farið langt fram úr tekjum þess. Skattar og tollar liafa ver- ið liækkaðir hvað eftir annað, en skatt- og tollstofnarnir liafa hrugðist og tekjur af þeim orð- ið miklu minni en gert var ráð fyrir. Þetta er fyrirbrigði sem jafnan sýnir sig þegar þunginn á tekjustofnunum er orðinn of mikill. Ríkið hefir orðið að taka Jivert stórlánið á fætur öðru til þess að útborganir þess þyrftu ekki að stansa. Útgjöldin hafa vaxið með ári hverju og fjár- straumur rikisins hefir um skeið skapað velmegun sem hyggist á ólieilum grundvelli, því að á hak við þá vehnegun felst hvorki aukin atvinna né vaxandi framkvæmdir. Nú er svo komið að hjólið getur ekki snúist með þeim tekjum sem ríkið fær frá borgurunum og • starfrækslu þeirra. Alt útgjalda- kerfi socialistanna, sem átti að veita velmegun út til fjöldans, er vaxið þeim yfir höfuð. Einn frægasti hagfræðingur Evrópu, próf. Cassel, segir að Frakkar séu á hraðri Ieið til fjáriiags- legrar glötunar. Islensku stjórnarflokkamir, ásamt ríkisstjórninni með reynslulausan fjármálaráðherra í broddi fylkingar, hafa í tvö ár lialdið hinni sömu eyðslu- stefnu socialista, sem nú er að leiða Frakkland út í fjárhags- og þjóðfélagslegt öngþveiti. Þetta er stefna socialista, þeirra manna’ sem hvergi hafa sýnt að þeir heri skyn á heilbrigða og haldgóða fjármálastjórn. Fjár- málaboðorð þeirra eru andvana fóstur, Ioftsjónir og ímyndun, sem enga stoð hefir í veruleik- anum og fer í bága við hið efnalega þróunarlögmál þjóð- anna. En þessir menn eru skelegg- ir í „skipulagningu“ sinni. Þeir lieita því að nú skuli látið sverfa til stáls. En það verður engin ein stétt, sem fær að súpa seið- ið af ráðsmensku þeirra. Þegar fjármálastefna socialista hrynur i rústir, þá kemur þungi og erf- iðleikar viðreisnarinnar á bak allri þjóðinni. Gangan verður þung til baka á rétta braut, þar sem hið eðlilega jafnvægi þjóð- arstarfsins fær að njóta sín. Hverjum manni hlýtur að vera það ljóst, að vaxandi op- inber eyðsla, sihækkandi skatt- ar og auknir tollar er ekki sú stefna sem ber heillavænlegan árangur, þegar þess er gætt að fé það sem þannig er tekið af horgurunum fer alt í óarðber- andi rekstur. Þessi stefna er röng. Hún getur ekki endað nema á einn veg. Iiún getur að- eins endað með uppgjöf og í öngþveiti. — Fjármálastefna stjórnarinnar þarfnast vaxandi tekna fyrir ríkissjóðinn ár frá ári. Stjórnin hefir ekki lengur vald á rásinni, stefnan ber nú stjórnina ofurliði. I fyrra var lagður á bensínskattur til þess að auka vegagerðina og hann var til eins árs. Nú rennur þessi skattur beint í ríkissjóð en veg- irnir ganga úr sér. I fyrra var lagður á tollur, sem nefndur var „viðskiftagjald“, á flestar nauð- synjar. Hann átti að ganga til verklegra framkvæmda og var lagður á til eins árs. Skatturinn er nú framlengdur en nú geng- ur liann í ríkissjóð og verklegu fi'amkvæmdirnar bíða. Þetta er glötunarstefna. Ef þjóðin vill ekki fljóta undan straumnum þangað til alt er komið í óefni, verður hún að heimta að breytt sé um fjár- málastefnu þegar í stað. Annars á viðskifta- og atvinnulíf þjóð- arinnar sér ekki uppreisnarvon í bráð. Margt ilt fylgir rangiátri rík- isstjórn. ERLENP VÍÐSJÁ. Dýrt verkfall Flestum er enn í fersku minni verkfalliö hjá General Motors verksmiöjunum í Ameríku. Yfir too þúsund manns tóku þátt í því og það kostaði um tíu miljónir króna hvern dag. Strax og verk- fallinu var lokið lýsti félagið yfir að launagreiðslur þess mundu aukast um ioo miljónir króna á ári. Afleiðing þessarar hækkunar á vinnulaunum er gert ráð fyrir að verði sú, að bifreiðar hækki í verði, auk þess sem almenn verð- hækkun á öllum málmum hlýtur að hafa áhrif í sörnu átt. Svo mikill þáttur er starfsemi General Motors í atvinnulífi Bandaríkjanna, að strax og það fréttist, arð samningar hefði tekist milli verksmiðjustjórnarinnar og verkamanna hækkuðu hlutabréf yfirleitt á kauphöllinni, Wall Street. Sá maður sem mestan þáttinn átti í því að samningar tækist, er forstjóri General Motors, W. S. Knudsen, sem er danskur að ætt. Hann (kom til Ameríku fyrir 38 árum með 12 dollara í vasanum og var það aleiga hans. Nú er hann forstjóri eins hins stærsta og vold- ugasta iðnaðarfyrirtækis í heimin- um, sem veitir hundruðum þús- unda fasta vinnu alt árið við að srníða bifreiðar, auk tuga þúsunda sem hafa atvinnu af að selja bif- reiðarnar í öllum löndum heims- ins. Knudsen er hverjum manni vinsælli og er sagt frá því, að á fundi sem hann hafði með blaða- tnönnum meðan á verkfallinu stóð, lét hann það í ljós, að verst þætti sér að vita af verkamönnum sín- um koma tómhenta heim á hin- um venjulegu greiðsludögum. Kveldskemtun heldur Kvæðamannafél. Iðunn í Varðarhúsinu annað kveld ,kl. 8y2. Sjá augl. Frakkar ótta.st vígbúnad Itala Hafa Italir augastað á Tunis? EINKASKEYTI TIL VlSIS. London, í morgun. O ímfregn frá Rómaborg í morgun hermir að í hinu opinbera málgagni stjórnarinnar hafi í gærkveldi birst tilskipun þess efnis, að frá og með laugardags- kveldi að telja sé bannað að fljúga yfir Panterillaeyju og landhelgi eyjarinnar. Þessi fregn vekur hina mestu athygli, því að þótt Paneterilla sé í rauninni að eins nakin klettaey, sem mun hafa myndast í öndverðu við eldsumbrot, þá hefir hún mikilvæga sjóhernaðarlega þýðingu. Eyjan er 44 mílur frá Afríkuströndum og er þaðan stutt til hemaðarstöðvar Frakka í Tunis, Biserta, en nú hafa komið getgátur fram um það oftlega í seinni tíð, að ítalir hafi augastað á Tunis og vilji leggja Tunis undir sig, en þar er margt ítalskra manna. Þá liafa pólitískir fangar verið hafðir í haldi á eyjunni og hafa komið fram getgátur um, að flytja eigi þá á brott, en koma upp kafbátastöð og flugvéla á Panterilla. En hvað sem hið sanna er um tilgang ftala er vitanlegt, að Frökkum mun ekki lítast á þau áform, sem ítalir hafa í huga? að því er Panterilla snertir, og munu telja þeim beint gegn sér. — (United Press). Rúmenar kalla sendi- lierra si i Madrid iieim. Of mikil samúð hans meö fascistum. EINKASKEYTI TIL VÍSIS. London í morgun. Það hefir vakið mjög mikla athygli, að rúmenska stjórnin hefir kallað. heim frá Madrid sendiherra sinn þar, Florescu, fyrv. dómsmálaráðh. Honum er gefið það að sök, að hann hafi sent blómsveiga — um Henda- ye í Frakklandi — til þess að leggja á kistur nokkurra fall- inna rúmenskra fasista sem bar- ist höfðu með uppreistarmönn- um á Spáni. Einnig er fullyrt, að Jianu, sendiherra Rúmena í líómaborg verði kallaður heim. Þá er talið, að rúmenska stjóm- in fari fram á, að sendiherrar ftala og Þjóð.verja í Bukarest verði kallaðir heim, vegna fram- komu þeirra nýlega. (United Press). Norræna félagið. Aöalfundur félagsins var hald- inn aS Hótel Borg í gær aS viö- stöddum sendiherra Dana, og aðal- ræðismönnum Finna, Svía og Norömanna. BauS form. félagsins, St. Jóh. St., þá velkomna, en því næst gaf GuSl. Rósinkranz skýrslu um störf félagsins. í staS Pálma Hannessonar rektors, sem nú dvelst erlendis, og hafSi beSist undan endurkosningu, var kosinn Páll ísólfsson tónskáld. AS öSru leyti var stjórnin endurkosin, en hana skipa, auk P. I., Stefán Jóh. Stefánsson form., GuSl. Rósin- kranz, Vilhjálmur Þ. Gislason og Jón Eyþórsson. AS stjórnarkosn- ingu lokinni fluttu ávörp sendi- herra Dana og aSalræðismenn Finna, Svía og NorSmanna. Þá flutti Jansson léktor erindi. Frá lagabreytingum verSur gengið á framhaldsaðalfundi. AS fundar- störfum loknum var stiginn dans. Leiðrétting. I frásögninni um slysið eystra, fyrir 50 árum, sem birtist í Vísi 25. þ. 111., eiga tvær—þrjár línurn- ar í annari málsgrein að hljóða svo: Guðmundur Hreinsson frá Hjálmsholtskoti og Halldór Álfs- son frá Bár. Misritunin er ekki blaðsins sök. G. S. Miija verOur yliflier- foriuoi á öllui víustöSvui. Stjórnarherinn beid ógurlegt manntjón í Oviedo. EINKASKEYTI TIL VÍSIS. London, í morgun. Samkvæmt áreiðanlegum fregnum er talið víst, að Miaja liershöfðingja verði falin yfirherstjórnin af hálfu stjórnarsinna á öllum vígstöðvum. Mun þetta af- leiðing þess, að betur geng- ur fyrir stjórnarhernum síðan er Miaja var falin yf- irherstjórnin á Madridvíg- stöðvunum. London i morgun. Frá Podellano-útvarpsstöð- inni, sem iðulega flytur fregnir frá uppreistarmönnum, segir, að stjórnarsinnar hafi beðið óg- urlegt manntjón í árás sinni á Oviedo. Hafi tala fallinna í liði þeirra verið um 3500, en um 600 særða menn hafi uppreistar- menn tekið til fanga. (United Press). Heimilisiðnaðarfél. íslands. Síðustu bandavinnunámskei'S fé- lagsins á þessum vetri byrjar 8. mars, Iræði dag- og kvöldnám- skeið. Umsóknir komi sem fyrst til Guðrúnar Pétursdóttur, Skóla- vörðustíg 11. — Fult á kvöldnám- skeiöinu, en annað kvöldnámskeiS verður sennilega í apríl. Héraðsskólamótið. Héraðsskólafélögin í Reykjavík halda sameiginlegt mót fyrir hér- aðsskólafólk, sem hér dvelur, sunnudag 28. þ. m. Frú Guðrún Indriðadóttir, fyrv. leikkona, flytur fyrirlest- ur, er nefnist „Huliðsheimar", í húsi Guðspekifélagsins annað kvöld kl. 9. Aðgöngumiðar fást við innganginn og kosta 1 kr. Ármenningar fara á skíði í fyrramálið. Lagt verður af stað kl. 9, frá íþrótta- húsinu. Farmiðar verða seldir á skrifstofu félagsins (simi 3356) frá kl. 5—9 í dag. ALÞINGI. Afnám útflotniogs- gjalús af sjávar- afarðnm. Frv. sjálfstæðismanna um af- nám útflutningsgjalds af sjáv- arafurðum kom til umræðu í n. d. í gær. , Ólafur Thors mælti fyrir frv, og sagði að þó svo liefði farið, að frv. urn sama efni hefði verið felt á undanförnum þingum, þá væri krafan um afnám þessa gjalds svo sjálfsögð, að það yrði ekki staðið á móti henni lengi enn. Flm. vitnaði einnig í álit skrifs tofustj óra skipulagsnefnd- ar atvinnumála, er lét svo um mælt í útvarpsræðu, að það væri fyrsta og æðsta krafa nefndarinnar í þessum málum, að gjaldið yi'ði afnumið. Þegar slík ummæli kæmu frá nefnd, sem væri raunar einskonar flokksnefnd stjórnarflokkanna, þá sýndist svo sem ekki ætti að blása óbyrlega fyrir þessu máli. Fjármálaráðherra kvað von- laust að ríkissjóður mætti vera án þeirra tekna, sem gjaldið færir honum, og er það sama svarið, sem altaf liefir verið áð- ur gegn frv. Frv. var síðan vísað til sjáv- arútvegsnefndar og 2. umr. , Keflavík 22. febr. 37. Aðalfundur Búnaðarfélags Keflavíkurhrepps var lialdinn í gær. Fundurinn samþykti með öllum atkv. gegn einu, van- þóknum félagsins á jarðræklar- lÖgunum nýju. Stjórn félagsins skipa Valdimar Björnsson, Völl- um, Sigurgeir Guðmundsson hreppstjóri, Njarðvík, og Guðm. Jónsson, Keflavík. Allir bátar liafa róið héðan í tvo síðustu dægur en afli hefir verið mjög tregur. Eitthvað betur mun þó liafa fiskast í dag en í gær. Fréttaritari. Margir hafa kvartað undan því að getraunirnar undanfarið liafi verið of léttar. Til þess að gera þeim til hæfis sem eitt- Dvað erfiðara vilja fást við, verður nú í þetta skifti þrautin gerð þyngri með því að gefa færri leiðbeiningar. Með því að rita niður þá stafi sem eru í horni hverrar auglýs- ingar á forsíðunni, á að vera liægt að mynda 5 orð eða nöfn, sem er að finna í auglýsingun- um sjálfum: 1. Auglýsingatæki. 2, ? Bæjaríréttir Messur á morgun. í dómkirkjunni: Kl. ir, síra Friðrik Hallgrímsson, kl. 5, síra fBjarni Jónsson. í fríkirkjunni: Kl. 2, barnaguSs- þjónusta. Kl. 5, síra Árni Sigurðs- son. I Laugarneskóla verður ekki messa á morgun. I Hafnarfjaröarkirkju: KI. 2, sira GarSar Þorsteinsson. I Landakotskirkju: Hámessa kl. 10. KvöldguSsþjónusta meS pré- dikun kl. 6. í kaþólsku kirkjunni i Hafnar- firSi: Hámessa kl. 9. KvöldguSs- þjónusta meS prédikun kl. 6. Ekki rnessaS í Laugarnesskóla á morgun. En barnaguSsþjónusta kl. 10.30. Veðrið í morgun. í Reykjavík — 5, fBolungarvík — 5, Akureyri — 6, Skálanesi — 4, Vestmannaeyjum — 7, Sandi — 6, Kvígindisdal — 6, Hesteyri — 6, Gjögri — 5, Blönduósi — 5, Siglunesi — 5, Grimsey — 6, Rauf- arhöfn —- 4, Hólum í HornafirSi — 4, Fagurhólsmýri — 3, Reykja- nesi — 6 stig. Mest frost hér í gær 9 stig, minst 4. — Yfirlit: Djúp lægS yfir NorSursjónum og milli Islands og Noregs. — Horf- ur: SuSvesturland: NorSan hvass- viSri í dag, lygnir í kvöld. Létt- skýjaS. Fajxafflóij BreiSafjörSur j Allhvass norSan í dag, lygnir; í kvöld. VíSast bjartviSri. Vest- firSir: NorSaustan kaldi. Dálítil snjókoma norSan til. NorSurland, norSausturland, AustfirSir: AIl- hvass norSaustan og hríSarveSur í dag, en batnandi veSur í nótt. SuSausturland: Hvass norSan í dag, en lygnir í nótt. BjartviSri. Skipafregnir. Gullfoss er á leiS til Leith. GoSa- foss kom til Vestm.eyja kl. 10 í morgun. Brúarfoss var á BorSeyri í morgun. Dettifoss er í Reykja- vík. Selfoss fór frá Leith á há- degi í dag. Lagarfoss er væntan- legur til Leith í dag. Geir kom af veiSum í gær meS 2300 körf- ur. Fór til Englands í morgun. Kolaskip kom í morgun. Áheilt á Strandarkirkju, afhent Vísi: 25 kr. frá J. K. 3. ? 4. ? 5. Vöruheiti. Að þessu sinni verða gefin 150 kr. verðlann er skiftast þannig: , 1 verðlaun .... 50 kr. 1 — .... 25 — 3 — .... 10 — Dregið verður um! það hverir vinningana hljóta. Allar ráðningar verða að lcoma til afgreiðslu blaðsins fyrir kl. 7 síðdegis næstkom- andi föstudagskvöld. VEBÐLAUNASAMKEPPNI VlSIS Laugardaginn 27. febrúar 1937. 1....................................... 2....................................... 3. ..................................... 4 ...................................... 5 ...................................... Nafn áskrifanda ........................ Heimili .............-............. Einkennisstafir —.....-....... Aðeins fyrir fasta kaupendur.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.