Vísir - 18.05.1937, Blaðsíða 3
VISIR
Nægilegt vatn til að hægt sé að
byrja framkvæmdir fæst bráðlega.
TT ndanfarið hefir verið unnið að því að gera full-
komna áætlun um lagningu hitaveitu um allan
Reykjavíkurbæ.
Síðustu mánuðina hefir verið borað eftir vatni með nýj-
um jarðnafri og er gert ráð fyrir, að með þeim borunum verði
fengið nægilegt vatn til að hita upp bæinn.
Nýr jarðnafar, til aö nota við
boranir eftir vatni, kom fyrir ára-
mótin. Helgi Sigurðsson verkfræS-
ingur hefir tjáS Vísi, að enn væri
ekki fullkomlega séS, hvernig tæk-
ist me‘ö þá borun, sem nýi nafar-
inn hefir veriS notaSur við. En
eftir reynslunni væri þaS víst, aS
vatnsmagnið ykist hlutfallslega viS
holufjöldann, og borinn, sem nú
er notaSúr, er 8 þumlunga gildur,
eða helmingi gildari en sá nafar,
sem fyr var notaður.
Helgi taldi að nægilegt vatn
mundi bráölega fást til að hægt
væri að byrja á framkvæmd hita-
veitunnar.
LEITIN AÐ HEITA
VATNINU.
Það var á miðju árinu 1928 að
byrjað var að bora eftir heitu vatni
inn hjá Þvottalauguin. Til þess
var þá notaður bor sá, sem „Gull-
leitarfélagið" átti og finna átti með
gullið í Vatnsmýrinni forðum
daga. Var nú reynt til þrautar
hvert ekki mætti fá nægilega mik-
ið af heitu vatni nærri bænum, áð-
ur en leitað yrði til fjarlægari
staða.
Boranirnar hér í grend leiddu
það i ljós, að naumast mundi hægt
að fá nægilegt vatn á þessum stöð-
um, en hinsvegar var þó talið rétt
að taka vatnið frá laugunum til
notkunar sérstaklega og var það
gert. Með því að taka Lauga-vatn-
ið var hægt að fá nokkra reynslu
um, hvernig hitaveita gæfist og
veitt ýmsar leiðbeiningar um fram-
kvæmd hennar.
Hitaveitan frá Laugunum var
opnuð seint á árinu 1930 og fæst
nú hiti þaðan í 58 hús, og eru
þar á meðal stórbyggingar svo
sem Austurbæjarskólinn, Landspi-
talinn, Laugarnesskólinn og Sund-
höllin.
En er séð varð áð vatnið í grend
Reykjavíkur yrði eltki nægilegt,
var leitað lengra austur á bóginn,
og að öllu athuguðu þótti Reykja-
og Reykjahvolslönd í Mosfells-
sveit álitlegust og festi bærinn
kaup á hitaréttindum þar.
Síðan 1932 hefir verið haldið á-
fram að bora þar eftir vatni og nú
er búið að fá þar 115 lítra á sek-
úndu af vatni. Til samanburðar má
geta þess að það vatn, sem notað
er úr Laugunum er aðeins 15 litrar
á sekúndu.
TAFSAMT VERK.
Leitin að heita vatninu hefir
verið tafsamt verk og örðugt á
marga lund. Það verður að að-
gæta það, að hitaveita eins og sú,
sem hér er um að ræða, er alger
nýlunda og ekki hægt að styðjast
við reynslu annarsstaðar frá. Hita-
veitan er einstök í sinni röð. ís-
lenskir verkfræðingar eru hér að
brjóta nýjar brautir, og slílc byrj-
un hlýtur að vera tafsöm og kref j-
ast mikillar gætni hjá þeim, sem
eiga að framkvæma hana. Það er
ekki eingöngu sjálf leitin að vatn-
inu, sem er örðug viðureignar.
Spurningin um einangrun leiðsl-
urinar á langri vegalengd til bæj-
arins hefir verið all-erfið en nú
má segja, að hún sé leyst.
En ofan á þá mörgu örðugleika,
sem hlutu að vera bundnir við
þessa nýbyrjun, bættist annað, og
það var óvild yfirvalda og ráða-
manna í garð hitaveitunnar.
RAUÐA LIÐIÐ HEFIR TAFIÐ
EITAVEITUNA UM MEIRA
EN ÁR.
Þegar vissa þótti fengin fyrir
því, að nauðsyn væri að fá gildari
bor, var hafist handa um útveg-
un hans. En þá rak bærinn sig á
örðugleika, sem leiddu til alvar-
legrar tafar fyrir framgang þessa
mikla nauðsynjamáls.
Bærinn sendi leyfisbeiðni til
gjaldeyrisnefndar um innflutning á j
jarðbor og var fyrsta beiðnin send j
9. ágúst 1935. Beðið var um að fá j
að flytja borinn inn frá Svíþjóð,
því þar væru til fuUsmíðáðir bor-
ar, sem þóttu hentugir að gerð til
þess að leita með þeim eftir vatn-
inu hér.
Það tók marga mánuði fyrir
nefndina, að afgreiða leyfið, og er
það loks kom um vorið árið eftir,
þá var ekki leyft að flytja borinn
inn frá Svíþjóð, eins og beðið
hafði verið um og hentugast var,
heldur skyldi borinn keyptur í
Þýskalandi.
Rauðliða-meirihlutinn í nefnd-
inni tók það á sig að segja verk-
fræðingúm bæjarins fyrir um það
hvar best væri að kaupa borinn
og bættist því þessi meðferð á
lcyfinu ofan á þá margra mánaða
töf, sem orðin var.
Nú var leitað til Þýskalands 0g
var þá enginn bor þar til, sem
bægt var að nota hér og tók það
undir hálft ár að fá bor smíðaðan,
aí þeirri gerð, sem hér var hægt '
að nota.
Sú töf, sem varð á verkinu fyr-
ii þessar aðgerðir rauðliðanna,
varð meira en eitt ár.
í lok s.l. árs var borinn síðan
tekinn til notkunar og mun með
honum vera hægt að fá fljótlega
nægilegt vatn til að hægt sé að
ráðast í að leiða það í bæinn.
Þessi árs töf hefir haft mikla
þýðingu fyrir hitaveituna. Alt efni
til hennar hækkar sífelt i verði og
ef svo færi, sem margir spá, að
ófriður geti skollið yfir, þá er fyr-
irsjáanlegt að stöðvun hlýtur að
verða á þessu nauðsynjamáli.
1
SPREN GITILR AUNIR.
Rauðliðar hafa einnig gert ým-
islegt annað til að spilla fyrir hita-
veitunni. Þeir hafa reynt að skapa
óeiningu og ófrið í kringum hana
líkt og þeir hafa gert í kringum
Sogsvirkjunina og Sundhöllina.
Eitt sinn komu rauðliðar upp
með áætlun um hitun frá Henglin-
um og töldu að hún mundi koll-
varpa öllu því, sem „íhaldið" hefði
talið að rétt væri að gera. Sprengi-
tilraun þessi var þó kveðin niður
og hefir ekki síðan verið á þessa
áætlun þeirra minst.
Það hefir kornið fram i stóru og
smáu, að rauðliðar vildu tefja sem
rnest fyrir þessu máli, sem sjálf-
stæðismenn hafa haft forgöngu
i. Þeir hafa í einu og öðru sýnt
því óvild og tortrygni. Atvinnu-
málaráðherrann, Haraldur Guð-
mundsson, neitaði eitt sinn að sam-
þykkja fjárhagsáætlun bæjarins,
nema lagðar væru fyrir hann á-
kveðnar upplýsingar um áætlanir
til hitaveitunnar. Ráðherrann
treystist þó ekki í þetta skifti til
að stöðva framkvæmdir bæjarins.
FRAMKVÆMD HITAVEIT-
UNNAR ER UNDIR ÞVÍ KOM-
IN, AÐ SJÁLFSTÆÐISMENN
SÉU VIÐ VÖLD.
Sjálfstæðismenn í bæjarstjórn
Reykjavíkur hafa frá upphafi ver-
ið forgöngumenn hitaveitumálsins.
Skilyrðin fyrir hitaveitunni hafa
verið rannsökuð gaumgæfilega og
markvíst og nú má segja að sá
grundvöllur sé lagður, sem byggja
megi á.
Reykjavík er einnig svo vel
fjárhagslega stæð, að hún mun
hafa bolmagn til að hrinda hita-
veitunni í framkvæmd að loknum
öllum undirbúningi. En það er
ekki öðrum en sjálfstæðismönnum
að þakka, að Reykjavík er svo vel
stæður bær, sem hún er.
En hitt er víst, að næði óstjórn
rauðliða í f jármálum að ná völdum
í Reykjavíkurbæ, þá væri ekki
lengi verið að eyðileggja mögu-
leika bæjarins til að hrinda stór-
málum, eins og hitaveitunni í fram-
kvæmd.
í kjölfar rauðliðanna hefir siglt
fátækt og getuleysi og það mundi
einnig koma niður á þessum fram-
kvæmdum, ef óstjórn þeirra kæm-
ist að.
Áframhaldandi völd rauðliða í
landsstjórn þýða tafir á hitaveit-
unni, eins og hingað til hefir verið.
Þeir sem því vilja stuðla að því
að mestu framfaramál Reykjavík-
ur nái fram að ganga, fylkja sér
einhuga um Sjálfstæðisflokkinn
við kosningarnar 20. júní. Með yf-
irráðum þeirra er mestu nauð-
synjamálum bæjarins best borgið.
Sjálfstæðisflokkurinn í Hafnarfirði
hefir opnað kosningaskrifstofu í
Strandgötu 39 (á'ður útbú Lands
banka íslands). Skrifstofan er opin
alla daga, og þangað ættu menn að
snúa sér viðvíkjandi Alþingiskosn
ingunum.
Kosningaskrifstofa Sjálfstæð-
isflokksins er í Varðarhúsinu.
Skrifstofan er opin allan dag-
inn. Þar (geta menn fengið allar
upplýsingar kosningunum við-
víkjandi. Símar skrifstofunnar
eru 2339 og 2907.
Sjálfstæðismenn, sem vita af
flokksmönnum er dvelja erlend-
is, eru beðnir að gefa upplýs-
ingar um það á kosningaskrif-
stofu Sjálfstæðisflokksins
Varðarhúsinu. Símar 2339 og
2907.
Silfurbrúðkaupsdag
eiga í dag frú Guörún og Ólafur
Blöndal, verslunarmaður, Holts-
götu 31.
IRADDIR FRÁ
LESENDUNUM
Pistill úr sveit
Laugardal, í apríl 1937.
Hér í uppsveitum Árnessýslu
hefir veturinn orðið allstrang-
ur; haustið var kalt og úrfella-
samt og lagði því fénaður fljótt
af. Um mánaðamótin nóv. og
des. lögðust að hin verslu harð-
indi með hagleysum og illviðr-
um. Komust allar skepnur þá
á fasta gjöf. Héldust þau harð-
indi nær óslitin í 17 vikur, eða
til marsmánaðarloka.
Menn voru yfirleitt frekar vel
húnir að heyjum undir vetur-
inn. Heyskapur var dágóður sið-
astliðið sumar og heyfyrningar
almennar eftir hinn ágæta vet-
ur í fyrra. Varð því afkoma
hænda með hey í vetur fremur
góð. Fóðurbætir, aðallega síld-
armjöl, var talsvert gefið í vet-
ur; einnig voru nokkrir bilar af
lieyi keyptir niður í Flóa og
fluttir hér uppeftir, og var það
meira gert til vara, en af brýnni
þörf. Síldarmjölið telja menn
hér ágætan fóðurbæti, bæði
hvað fóðrun og heilsu sauðfjár-
ins snertir.
Upp úr páskum brá til þíð-
viðra og austanáttar, sem síðan
hefir haldist; er nú jörð örísa
og víðast búið að sleppa sauðfé
hér í Laugardalnum, og mun
það vera vel undan vetri geng-
ið hér um slóðir.
Fénaðarhöld hafa verið ágæt
hér í vetur og lieilbrigði sauð-
fjár í besta lagi. Síðan farið var
að gefa fé inn á haustin orma-
lyf dr. Dungals verður varla
nokkursstaðar vart við maga-
eða meltingarkvilla i sauðfé,
sem áður voru hér algengir.
Á einstöku stað liefir bólað
hér á lungnaveiki og ein og ein
kind drepist á bæ, og hefir það
verið svo mörg undanfarin ár,
að fráteknum tveim síðustu ár-
um, en ótti og uggur manna
við þessa veiki er nú miklu
meiri en áður, vegna jiinnajr
hörmulegu reynslu af veikinni
í Borgarfjarðarsýslu og víðar.
Væri óskandi að takast mætti
að stemma stigu fyrir veikinni,
áður en hún fer yfir fleiri héruð
en orðið er. I Grimsnesi er sagt
að fé muni eitthvað lasið á
stöku bæ. Hefir verið talað um,
að koma þar upp girðingu fyrir
grunað fé. 1 þá girðingu verður
svo ef til vill tekið fé af grunuð-
um bæjum utan sveitar. T. d.
liefir verið talað um að reka
þangað alla gemlinga frá Stíflis-
dal í Þingvallasveit, en þar hefir
að minsta kosti ein kind tekið
veikina (lamb í haust). Verður
sjálfsagt bráðlega afráðið um
áðurnefnda girðingu.
Heilsufar fólks hefir verið
gott í vetur fram að þessu, en
nú er influensan komin víða hér
um og má kallast væg; fæst af
fólki sem liggur í henni, en
margt hálflumpið 3—4 daga.
Við eldri menn hér til sveit-
anna sem hvorki erum gæddir
skipulagsgáfu né höfum hrifn-
ingu eða áliuga fyrir þjóðnýt-
ingu, en fáum öðru hverju að
lieyra óminn frá Alþingi i út-
varpinu, getum varla varist
þeirri hugsun, að svona eigi Al-
þingi ekki að vera.
Eg, sem þessar línur rita, hefi
nokkuð fylgst með störfum
þingsins um 50 ára skeið, og við
nána athugun get eg ekki fund-
ið, að neitt þing hafi verið háð
á þeim árum jafn ómerkilegt
og þing það, sem nú liefir verið
frestað. Frumvörp voru bor-
in fram, eitt af öðru, sem
voru fyrirfram ráðin af dögum,
þingið sat viku eftir viku, 'án
Fimleika-
mót íslands
• \
hófst í gær í íþróttahúsi Jóns
Þorsteinsssonar, með sýningu
flokks pilta úr héraðsskólanum í
Reykholti, undir stjórn Þorgils
iGuðmundssonar íþróttakennara.
Mótið átti að fara fram á íþrótta-
vellinum, en veðurs vegna gat það
ekki orðiðl, en flokkur sá, sem
sýndi í gær, þurfti að fara úr bæn-
um í dag. Forseti í. S. í., B. G.
Wáge, setti mótið. Að sýningunni
lokinni afhenti hann hverjum
keppanda heiðursskjal til minning-
ar um þátttöku sina i mótinu, en
auk þess var kennaranum og
flokknum i heild afhent minning-
arskjal. Mótið heldur áfram í kveld
kl. 8J/2 í íþróttahúsi Jóns Þor-
steinssonar, og sýna þá þessir
flokkar: Kvennaflokkur' Ármanns,
Drengjaflokkur Austurbæjar-
barnaskólans, Úrvalsflokkur telpna
úr K. R. og Úrvalsflokkur drengja
úr Ármanni. — Sýning piltanna úr
Reykholtskóla tókst prýðilega og
var flokknum fagnað vel og þakk-
að með lófataki. Sérstaka athgyli
vöktu synir kennarans, 9 og 12 ára.
Hjúskapur.
Síðastliðinn laugardag voru gef-
in saman í hjónaband, af síra
Bjarna Jónssyni, ungfrú Guðríður
Bjarnadóttir frá Hörgsdal á Síðu
og Nikulás Jónsson frá Vorsabæ
í Ölfusi. Heimili þeirra verður á
Reykjavíkúrveg í, Hafriárfirði.
;; ‘ ■
Hjuskapur.
1 dag verða gefin saman í hjóna-
band af síra Arna Sigurðssyni ung-
frú Aldís Brynjólfsdóttir og Björg-
vin Schram fulltrúi. Heimili þeirra
verður á iBlómvallagötu 11.
Næturlæknir
er í nótt Halldór Stefánsson,
sími 2234. — Næturv. í Reykja-
víkur apóteki og Lyfjabúðinni Ið-
unni.
Revykonungurinn Ziegfeld,
heitir mynd, sem Gamla Bíó hóf
að sýna í gær. Myndin styðst að
nokkru leyti við sannsögulega per-
sónu, Florence Zigefield, er eitt
sinn var einn af aðalmönnunum í
skemtilifi New York-borgar. —
Myndin er afar skrautleg svo varla
munu hafa sést hér á mynd feg-
urri skrautsýningar. William Po-
well leikur i myndinni og er fynd-
inn eins og venjulega. Ziegfield-
myndin er skemtileg, létt og fjör-
ug og kemur öllum í gott skap,
sem á hana horfa.
þess að koma neinu fram, sem
til gagns má verða, vitandi vits,
að með þingrofi og nýjum kosn-
ingum, verða störf þess nú að
mestu til ónýtis.
Til þess að minnast á eitt af
mörgu, get eg ekki stilt mig að
nefna síðustu útvarpsumræður
frá þinginu. Þar fengu tilheyr-
endur ágæta mynd af tilhögun
og hagsýni stjórnarflokkanna í
þjóðmólunum.
Á þingi í fyrra flytja þeir
sjálfstæðismennirnir Garðar
Þorsteinsson og Thor Thors
frumvarp til laga unt vinnu-
deilur og gerðardóma í þeim
málum; frumvarpið var samið
með hliðsjón af löggjöf Norð-
urlandaþjóðanna um þau mál
og vandað til þess á allan hátt.
Flutningsmennirnir bjóða jafn-
framt að taka vel öllum miðl-
unartillögum sem fram kynnu
að koma frá öðrum flokkum
þingsins við frumvarpið, og for-
sætisráðherrann lýsir lieldur
velþólcnun sinni á frumvarpinu.
Yitanlega var frumvarpið svæft
i þinginu, svo sem flest það, er
sjálfstæðismenn hafa með
höndum. í stað þess að sinna
liinu framkomna frv. skipar
stjórnin 5 manna milliþinga-
nefnd til að rannsaka löggjöf
annara þjóða i slikum málum.
Að sjálfsögðu voru sósíalistar
Frh. á 4. siðu.
I.O.O.F.=obl-1195188* 1/4=xx
Veðrið í morgun.
í Reykjavík 7 stig, Bolung'arvík
5, Akureyri 6, Skálanesi 9, Vestm.~
eyjum 6, Hellissandi 4, Kvigindis-
dal 5, Hesteyri 6, Kjörvogi 4,
Blönduósi 7, Siglunesi 4, Grimsey
5, Raufarhöfn 7, Skálum 5, Fagra-
dal 6, Papey 6, Hólum i Hornafirði
6, Fagurhólsmýri 6, Reykjanesi 7.
— Mestur hiti hér í gær 9 stigv
minstur 2. Úrkoma 5.0 mm. Sól-
skin 5,4 stg.— Yfirlit: Lægð slcamt
suðvestur af Islandi, á hreyfingu
austnorðaustur. — Horfur: Suð-
vesturland, Faxaflói: Breytileg átt
og rigning í dag, en léttir til með
norðanátt i nótt. Breiðafjörður,
Vestfirðir: Allhvass austan og
norðaustan. Dálítil rigning. Norð-
urland : Stinningskaldi á suöaustan
og síðan austan. Dálítil rigning.
Norðausturland, Austfirðir, suð-
austurland: Stinningskaldi á suð-
austan og siðan austan. Rigning.
Skipafregnir.
Gullfoss fer til útlanda í kveld
kl. 8. Goðafoss er væntanlegur til
Vestm.eyja kl. 10 e. h. Dettifoss er
í Hamborg. Selfoss var í Aberdeen
s.l. laugardag. Brúarfoss er í Leith.
Lagarfoss er í Kaupmannahöfn. —
Reykjaborg fór á veiSar aftur á
laugardag. HafSi aflaS um 70 tn.
Af vei'Sunr komu á laugardag Kári
og Skallagrímur meS um 60 föt.
Enskur togari kom inn í gær
vegna bilunar. E/s Lyra kom í
gærkveldi. Bragi kom af veiSum.
í morgun meS 96 tn.
Eldsvoði.
Kl. 1.45 í nótt, var slökkviliðið'
kvatt inn að bakhúsinu við Vatns-
stíg 3. Það er langt tveggja hæða
hús, og þverbygging við annan end-
ann, og var eldur í aðalanddyrinu.
er slökkvilið kom á vettvang. Eld-
urinr. komst upp á efri hæðirnar
og brann þar nokkuð, en mest varð
þó tjónið af vatninu. 1 húsinu eru
þrjú trésmíðaverkstæði og ein kaffi
brensla. — Lögreglan tók til rann-
sóknar i morgun, með hverjum
hætti eldurinn kom upp.
Bústaðaskifti.
Lesendur bláðsins, sem höfðu
bústaðaskifti 14. maí, eru beðnir
að tilkynna það í síma 3400, til
þess að komist verði hjá vanskil-
um á blaðinu.
Þjófnaður.
Réttarhöld halda áfrain í dag yfir
þremur mönnum, sem handteknir
voru aðfaranótt síðastl. laugardags,
fyrir að stela peningaveski af utan-
bæjarmanni, en í veskinu voru 2700
kr., þar af 3 peningabréf með rúm-
um 2000 krónum.
Utanbæjarmaður sá, sem hér er
um að ræða, hafði dvalist hjá kunn-
ingja sínum fram eftir nóttu. Skildi
hann við hann kl. um 4 og ætlaði
að Hótel Borg, en þar hafði hann
leigt sér herbergi. Er hann var á
leið þangað, hitti hann menn á
Hverfisgötu. Voru þeir undir áhrif-
um víns, og eins utanbæjarmaður-
inn. Buðu þeir honum með sér, og
fóru þeir í hús nokkurt og settust
að drykkju. Þegar víníð þraut, gerði
einn mannanna sig liklegan til að
slá utanbæjarmanninn, en eigi varð,
þó af því, og hurfu þeir nú burt
úr herberginu. En er utanbæjar-
maðurinn var einn eftir, þótti hon-
um framferði mannanna grunsam-
legt, og saknaði nú peningaveskis
síns. Hljóp hann þá út og leitaði
lögreglu, en lögreglujrjónn hafði þá
fundið tvo menn inni í porti, og
þótti framferði þeirra grunsamlegt.
Náði utanbæjarm. sambandi við
lögregluþjón þenna, og kom nú í
ljós, að mennirnir, sem lögreglu-
þjónninn var rneð, voru 2 þeirra,
sem setið höfðu að drykkju með
utanbæjarmanninum. Höfðu þeir á
sér uni 200 kr., en veskið sögðust
þeir hafa falið. Hafði lögreglu-
þjónninn upp á því.
Mennirnir, sem sátu að drykkju
með utanbæjarmanninum, voru Jón
Vídalín Markússon, Erlendur Jón
Erlendsson og Mons Olsen.
Það er upplýst, að það var Jón
Vídalín Markússon, sem tók veskið,
Útvarpið í kveld:
19.10 Veðurfr. i9.2oHljómplöt-
ur: Létt lög. 19.40 Garðyrkjutími,
20.00 Fréttir. 20.30 Kveld Kven-
réttindafélags Islands: Ávörp og
ræður, upplestur, söngur, hljóð-
færaleikur.