Vísir - 20.05.1937, Page 2

Vísir - 20.05.1937, Page 2
VlSIR VÍSIR DAGBLAÖ Útgefandi: BLAÐAtJTGÁFAN VlSIR H.F. Ritstj.: Páll Steingrímsson. Skrifstofa I ^us^urs^ræ^j 12. og afgr. I S í m a r : Afgreiðsla 3400 Ritstjórn 4578 Auglýsingastjóri 2834 Prentsmiðjan 4578 Verð 2 kr. á mánuði. Lausasala 10 aurar. Félagsprentsmiðjan. Hey í harðindum Það vakti talsverða athygli og ekki síður undrun manna, er einn af bæjarfulltrúum social- ista, algerlega ótilknúður og af fúsum og frjálsum vilja, að þvi er virtist, tókst það á hendur, á bæjarstjórnarfundi i vetur, að sýna fram á það, hve ómetan- legt gagn ríkisstjórnin og stjóm- arflokkarnir hefðu unnið landi og þjóð með hmflutningshöft- unum og þeirri verðhækkun á ýmsum nauðsynjavörum al- mennings? sem af þeim stafaði. Gat ræðumaður þessi ekki nóg- samlega varað menn við þeirri hættu, sem liann taldi yfirvof- andi, ef l>eir menn kæmust til valda í landmu, sem líklegir vær til l>ess að vilja afnema höftin og leiða yfir þjóðina þá skelfilegu verðlækkun á nauð- þurftum almennings, sem það mundi hafa í för með sér. Þótti þessi ræða bæjarfulltrú- ans að öllu hin furðulegasta, jafnvel fiokksmönnum hans sem andstæðingum. Fóru og aðrir fulltrúar socialista mjög hjá sér, meðan á flulningi ræð- unnar stóð, og ekki virtist blað þeirra telja sér eða málstað flokksins neinn feng að lienni og lét það hennar að litlu getið í frásögn sinni af fundinum. En socialistar liafa tii skamms tíma verið mjög andvígir öllum innflutningshöftum, og gert þess þá grein, að þau lilytu að auka á dýrtiðina i landinu og alla erfiðleika almennings, og mætti því ekki grípa til shkra óyndisúrræða nema í ítrustu neyð. En þessu sneri nú bæjar- fulltrúi þeirra, sá, sem fram fyrir skjöldu gekk á bæjar- stjórnarfundinum, öllu i villu fyrir þeim, er hann kvað upp þann dóm sinn um innflutnings- höftin, að höfuðannmarkarn- ir, sem á þeim hefðu verið fundnir, væru þeirra höfuðkosl- ir. Og þessi bæjarfulltrúi social- ista hefir nú reynst að vera það, sem fágætt er talið, „spámaður í sínu föðurlandi“, því að nú hcfir blað socialista, fyrir hönd flokksins, tekið upp kenningu hans sem sína kenningu, og lagt blessun sina yfir þáð, sem i upp- hafi var að eins „einstaklings- framtak bæjarfulltrúans“. ( Stjórnarhlöðin tvö, málgögn framsóknarmanna og socialista, keppast um það þessa dagana, hvort þeirra geti eignað sínum flokki meiri „heiðurinn“ fyrir það að hafa komið innflutnings- höftunum á og haldið þeim uppi. Lýsir það þó litlu bræðra- þeli af hálfu socialista, að vera þannig að ásælast þetta „ein- asta lamb“ fátæklinganna i Framsóknarflokknum. En í annan stað staðfesta þeir með þvi hið fornkveðna, að „alt er hey í harðindum“. Og sú var tíðin, að aðþrengdir atvinnuleys- ingjarnir i landinu mundu liafa vænst annara hjargráða sér til lianda af liálfu socialista, en að þeir hefði úti allar klær til þess að sprengja upp verðlagið á lífsnauðsynjum þeirra. En svo aðþrengdir sem at- vinnuleysingjamir eru i lífsbar- áttunni, eftir síðustu þriggja ára óstjórn og áþján ríkisstjórn- ar hinna „vinnandi stétta“, þá virðast socialistar þó hljóta að vera enn aðþrengdari í sinni pólitisku lífsbaráttu, ef þeir þykjast nú ekki geta talið sér annað meira til ágætis, en að þeir séu líklegastir allra stjórn- málaflokkanna til þess að við- halda og auka dýrtíðina í land- inu, enda muni þeir einskis láta ófreistað til þess að koma í veg fyrir það, að verð lækki á þurft- arvörum almennings, jafnvel ekki beinna þvingunarráðstaf- ana, þó að þeirra væri engin þörf af öðrum ástæðum. En það virðist nú vera orðin sameigin- leg krafa socialista og fram- sóknarmanna, að haldið verði fast við innflutningshöftin fyrst og fremst til þess að halda við dýrtíðinni í landinu. •----................ ERLEND VÍÐSJÁ: Rússneskir fascistar. Þaö hljómar næstum ennþá ó- kunnuglegar, ef talað er um rúss- neska fascista, heldur en þó minst sé á þýska kommúnista. BæSi þýskir kommúnistar og rússneskir fascistar eiga þaS sam- eiginlegt, aS þeir eru dauSadæmd- ir. ef þeir finnast innan viS landa- mætin, en hafa félög í öSrum löndum og síðan leynistarfsemi í föðurlandinu Rússneski fascistaflokkurinn er fámennur hópur, sem nefnir sig V. F. P. — en það þýöir: „Foscista- flokkur allra Rússa,,. Flokkurinn rekur starfsemi sina aSallega meS- ai landflótta manna frá Rússlandi og er fjöldi þeirra meSlimir flokks- ins. V. F. P. flokkurinn hefir tekiS þaS eftir andstæSingum sínum, að geraj áætlun. Sú áætlun var til fjögra ára og var um þaS, hverju flokkurinn skyldi afreka í barátt- unni fyrir þjóSernisvakningu í Rússlandi. FormaSur flokksins, Rodzalovsky, hefir sagt í blaSa- grein, aS sú ætlun væri til lykta leidd meS góSum árangri. Hann endar grein sína á þessa leiS: „Vér erum á réttri leiS. Fjand- menn vorir urSu fyrir tjóni og láta ótta í ljósi. Stefnan er í áttina fram á viS og þaS þarf aS stefna enn hraSara aS markinu.“ G. P. U. hefir oft gert mikinn usla í liSi V. F. P. flokksins. Laun- sendlar flokksins hafa veriS hand- teknir og skotnir vægSarlaust. En flokkurinn heldur starfi sínu á- fram, þótt sennilegt sé aS sú hreyf- ing, sem aS lokum steypir blóS- stjórn Stalins, komi ekki aS utan, heldur skapist í landinu sjálfu. Norski aðalræðismaðurinn lieimsótti þ. 15. maí, sain- kvæmt fyrirmælum þar að lút- andi, forsætisráðherra íslands og bar fram, fyrir hönd norsku ríkisstjórnarinnar, hjartanleg- ustu hamingjuóskir í tilefni af 25 ára rílcisstjórnarafmæli kon- ungs Islands og Danmerkur. — (Tilk. frá Norsku aðalræðis- mannsskrifstofunni. — FB). Ræða Eden’s í gærkveldi. „Hættur vofa yftr álfunni, sem geta tiaft alvaplegap afleiðiiigap66, EINKASKEYTI TIL VÍSIS. London, í morgun. Stjórnmálaritstjórar blaðanna gera mjög að umtalsefni ræðu, sem Anthony Eden utan- ríkismálaráðherra hélt í gærkveldi, í viðurvist fulltrúa albresku ráðstefnunnar, en í þessari ræðu gerði hann utanríkismálahorfur að umtalsefni. I ræðu sinni komst hann svo að orði, að í einum fjórða hluta álfunnar væri mjög miklar hættur á ferð- um, sem gæti þá og þegar haft hinar alvarlegustu af- leiðingar. Morning Post gerir ræðu Edens að umtalsefni og skýrir þessi ummæli hans á þann veg, að hætturnar, sem hann hefði átt við væri stefnur í þá átt, að þ jóðirn- ar skiftust í tvo flokka, fas- istiska og kommúnistiska, m afleiðingin af þvi hlyti að verða sú, að til árekstra kæmi, er kynni að hleypa öllu í bál og brand í álfunni, því að eins og nú stefndi væri þjóðirnar að eyða þreki sínu til vígbún- aðar, í stað þess að vinna að atvinnu- og viðskiftamál- um, velgengni og friði. — United Press. Krisniboðsfélag kvenna heldur fund í Betaníu kl. 4)4 í dag. Togararnir. Snorri goði kom af veiöum í gær meö 53 tn. lifrar. Reykjaborg- in fór héöan í gær áleiöis til Eng- lands meö saltfisksfarm. Næturlæknir er í nótt Bergsveinn Ólafsson, Hávallagötu 47. Sími 4985. Næt- urvörður í Reykjavíkur apóteki og Lyfjabúöinni Iðunni. Borgarnesför Heimdallar. Athygli skal vakin á því, að sökum þess, hve illa stendur á sjó, ver'Sur ekki hægt aÖ leggja af staÖ jupp í Borgarnes fyr en kl. 10. Útvarpið í kvöld. 19,10 Veðurfr. 19,20 Hljómplöt- ur: Létt lög. 19,30 Erindi Búnað- arfélagsins: Um hænsnarækt, II. (Stefán Þorsteinsson). 20,00 Frétt- ir. 20,30 Upplestur: Flug Lind- bergs yfir Atlantshaf (Þórarinn Guðniundsson stud. med.). 20,55 Einleikur á píanó (Emil Thorodd- sen). 21,15 Frá útlöndum. 21,30 Útvarpshljómsveitin leikur (til kl. 22). Hallgrímssamkoma verður í fríkirkjunni í Hafnar- firði næstkomandi sunnudag kl. 5. Ný yfipliepstjópii skipuð. EINKASKEYTI TIL VÍSIS. London, í morgun. itt hið fyrsta verk hinn- ar nýju stjórnar, segir í simfregn frá Valencia, var að skipa Vi- ! cente Rojo herdeildarfor- i ingja forseta herráðsins. Hefir verið gefin út opin- ber tilkynning um þetta. Vicente Rojo hefir vakið á sér mikla athygli fyrir áhuga og dugnað við að skipuleggja varnir Madrid- borgar. í Mijaja hefir verið falið að hafa með höndum og halda uppi lögum og reglum á öllum þeim svæðum um miðbik Spánar, er stjórnin hefir á sínu valdi. Mijaja átti í gær langar við- ræður við Negrin og hina ráð- herrana, Meðal annars ræddust þeir við Mijaja og Prieto land- varnaráðherra. Prieto hefir þeg- ar hafist handa um að koma stjórn hersins á þann grundvöll, að allar skipanir hennar verði framkvæmdar fljótt og án af- skifta annara. Prieto kveðst munu leggja mikla áherslu á, að herða sóknina gegn uppreistar- mönnum eins fljótt og auðið verður. — United Press. Eyðllegging Amore Vieta London, í gær. Aðstaða herjanna á Baskavíg- stöðvunum hefir engum breyt- ingum tekið frá því í gær. Upp- reistarmenn hafa enn ekki sest að í Amore Vieta, sökum þess að stór liluti borgarinnar brenn- ur enn þá. Uppreistarmenn hafa birt sömu staðhæfingar um Amore Vieta og um Aiva, Guernica og Durango, sem sé, að Baskar eigi sjiálfir sök á eyðileggingu þeirra, og hafi sjálfir kveikt í þeira. Segja þeir, að blaðamenn geti borið vitni um það, að því er Amore Vieta snerti. Uppreistarmenn buðu fjórum erlendum blaðamömium til bæjarins, til þess að þeir gætu fullvissað sig um að í honum hefði verið kveikt af Böskum Nýtt Zeppelins' loftfar í smtðnin. Berlín í morgun. Hið nýja Zeppelins-loftfar, L.Z. 130, sem nú er í smíðum í flugstöðinni Friedrichsliafen i Suður-Þýskalandi, hefir und- anfarna daga verið til sýnis al- menningi, og liafa tugir þús- unda skoðað það. Loftfarið er nú að verða fullsmiðað, og er þegar búið að þekja talsverð- an liluta grindarinnar.—FÚ. sjálfum. Fylgdi þeim hervörður uppreistarmanna, en þeir gátu ekki farið inn í sjálfan bæinn, vegna eldsins sem þar logaði. — FÚ. SÓKNIN TIL BILBAO HELDUR ÁFRAM. Berlin í morgun. Fréttir frá uppreistarmönn- um á Spáni herma, að þeir haldi stöðugt áfram framsókn sinni til Bilbao og hafi náð á vald sitt staðnum Itsuria. Segj- ast þeir nú vera komnir á móts við E1 Cayo línuna. Á Madrid- vígstöðvunum segjast upp- reistarmenn hafa varpað sprengjum yfir Aravaca.—FÚ. HÓTUN MOLA HERSHÖFÐINGJA. London í morgun. Baskastjórnin hefir sent lilutleysisnefndinni orðsend- ingu, þar sem liún dregur at- hygli nefndarinnar að hótun- um Mola liershöfðingja, um að liann skuli gera Baskahéruðin að einum grafreit. Baskastjórn- in hendir á, að uppreistarmenn liafi þegar gjöreyðilagt 5 borg- ir, og virðist af því mega ráða, að Mola ætli ekki að láta sitja við orðin tóm. Baskaherinn hefir liörfað skamt undan fyrir uppreistar- mönnum við Gondra fjall. Uppreistarmenn náðu því á vald sitt í gær, eftir að hafa gert stórfelda loftárás á her- sveitir Baskanna. Molivia(?) má nú heita lögð í rústir, eftir loftárás uppreist- armanna í gær. Uppreistarmenn segjast nú eiga eftir aðeins 3 mílur til Plenfia, en það er hafnarbær skamt frá Bilbao, og hafa þeir sótt þangað meðfram strönd- inni.—FÚ. ÍRAR TAKA EKKI ÞÁTT I BRESKU ALRÍKISRÁÐ- STEFNUNNI. 1 ræðu, sem De Valera flutti í þingi Irska fríríkisins í gær, færði hann fram vörn fyrir þvi, að Fríríkisstjórnin tekur ekki þátt i alrikisráðstefnunni í London. Hann sagði, að stjórn- in hefði ekki viljað þola aftur þær móðganir, sem hún varð að sæta á Ottawa-ráðstefnunni 1932, þegar tilraun hefði verið gerð til að sýna fram á, að henni væri ekki treystandi til þess að standa við loforð sín. Ennfremur hefði breska stjórn- in þá notað sér fjarveru írskra stjórnmálamanna til þess að leggja aukatoll á landbúnaðar- afurðir, sem fluttar voru úr Frírikinu til Bretlands. „Vér hefðum gengið burt af ráð- stefnunni,“ sagði De Valera, „ef vér hefðum ekki verið staddir þar sem gestir Kanada- stjórnar.“ l. 0.0.F.5 =1195208V2=9 II. Veðríð í morgun. í Reykjavík 10 stig, Bolungar- vík 6, Akureyri 9, Skálanesi 4, Vestmannaeyjum 8, Sandi 6, Kvíg- indisdal 9, Hesteyri 5, Gjögri 4, Blönduósi xo, Siglunesi 4, iGríms- ey 4, Raufarhöfn 4, Fagradal 6, Hólum í Hornafir'ði 8, Fagurhóls- mýri 7, Reykjanesi 8. — lYfirlit: Kyrrstæð lægð fyrir sunnan ís- land;. Horfur: Suðvesturland: Austan átt. Hvass undir Eyjafjöll- um. Dálítil rigning. Faxaflói, Breiðafjörður: Austan kaldi. Víð- ast úrkomulaust. Vestfirðir, Norð- urland: Austan átt. Sumstaðar all- hvass í dag, en hægari í nótt. Dá- lítil rigning útsveitum. Norð- austurland, Austfirðir, suðaustur- land: Austan átt. Sumstaðar all- hvass. Rigning öðru hverju. Skipafregnir. Gullfoss er á útleið. Goðafoss er í Reykjavík. Brúarfoss er á leið til Vestmannaeyja. Væntanlegur þangað urn hádegi á morgun. Detti- foss er í Hamborg. Lagarfoss er i Kaupmannahöfn. Selfoss er á leið til Antwerpen frá Grimsby. Fimtugur er í dag Jóhann P. Jónsson skipherra. Dánarfregn. 1 fyrradag andaðist hér í bæn- um frú Guðrún Skaftadóttir, kona Davíðs Jóhannessonar, eftir all- lainga legu. H'ún var trygglynd kona og vinföst og vel látin. Nýja Bíó sýnir þessi kveldin mikilfeng- lega þýska talmynd, sem nefnist „Svartar rósir“. Gerist hún í Finn- landi eftir aldamótin seinustu, er Finnar voru kúgaðir af Rússum á marga lund. Um þessar rnundir reyndu ungir Finnar með öllu móti að vinna gegn kúgurunum og höfðu Ungfinnarnir svo kölluðu með sér víðtækan, öflugan leyni- félagsskap, en allir, sem á sann- aðist samtök gegn Rússurn, voru vægðarlaust dæmdir í útlegð til Sibiríu eða skotnir. Sagan, sem kvikmyndin byggist á, er áhrifa- mikil. Einn af leiÖtogum finsku frelsissinnanna kemst í kynni við rússneska dansmær, sem höfuðs- rnaður rússneska setuliðsins reynir að korna sér í mjúkinn hjá. Takast ástir með Finnlendingnum og rússnesku dansmærinni og er saga þeirra hin örlagaríkasta. Aðalhlut- verkin leika þau af snild Lilian Harvey og Willy Fritch. a. Harpan heitir rit, sem nýlega hóf göngu sína. Er það barna- og unglinga- blað og er eigandi og útgefandi Drengjakór Reykjavikur. Ritstjóri og ábyrgðarmaður er Marteinn Magnússon. Ritið er prýtt rnörg- urn myndum og er fjölbreytt að efni og líklegt til vinsælda. K. F. U. K. A. D. Aðalfundur annað kveld ld. 8)4. Félagskonur beðnar að fjölmenna á fundinn . „Aldan“. Skipstjórafélagið Aldan heldur fund i K. R. húsinu uppi kl. 8)4 í kveld. Sjá augl. óttast um vélbát. Vélbáturinn „Högni“ fór s. 1. mánudagskveld í róður frá Súða- vík í Álftafirði. Óttuðust menn um bátinn, enda var veður slæmt fyrir Vestfjörðum s. 1. þriðjudag, og voru skip beðin að svipast eftir bátnurn og veita honum aðstoð, ef þörf krefði. Báturinn er 10 smá- lestir. Fjögurra manna áhöfn er á bátnurn. — Um hádegi hafði Slysa- varnarfél. engar fregnir borist af þátnum. Tímarit iðnaðarmanna kom út nýlega, 1. h. 10. árg. — Hefst það á grein, senx heitir „Iðn- aðarmannafélagið í Reykjavík 70 ára“. Þá er „Drápa til iðnaðar- mannafélagsins í Reykjavík, flutt á 70 ára afrnæli þess 3. febrúar T937“- Drápan er orkt af iðnaðar- manni. Af öðru efni ber að nefna: Minni Iðnaðarmannafélagsins, eft- ir formann þess, Einar Erlendsson, grein urn Matthías Matthíasson í Holti, heiðursfélaga félagsins o. m. fl.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.