Vísir - 29.05.1937, Page 2
VlSIR
■
TiIIögup Breta nm vopna'
lilé á Spáni verda að engu.
-o-
Rússar telja vopnalilé ótímabært
EINKASKEYTl TIL VÍSIS.
London í morgun.
Tillögum Breta um vopnahlé á Spáni, meðan ver-
ið væri að koma á brott þaðan öllum sjálf-
boðaliðum og öðrum, sem berjast í herjum
uppreistarmanna og stjórnarsinna, hefir verið þannig
tekið, að mjög slæmar horfur eru nú á, að þær nái
fram að ganga.
liis. Sídpsbi hi
il
Fær ekki sama
rétt og aðrar
hert o g afrú r.
EINKASKEYTI TIL VÍSIS.
London í morgun.
Að því er United Press
hefir fregnað er í
vændum opinber til-
skipan varðandi titil Mrs.
Simpson, eftir að hún hefir
gifst hertoganum af Wind-
sor. Mun Mrs. Simpson ekki
verða aðnjótandi réttinda,
sem enskar hertogafrúr
njóta, og er þetta brot á
gömlum venjum, því að
konur sem giftast breskum
hertogum fá rétt til að bera
samskonar titil og menn
þeirra, sé þeir æðri stéttar.
Kona hertogans af Wind-
sor verður því einni óheimilt,
af konum þeim, sem gifst
hafa breskum hertogum, að
nota hertogafrúartitilinn. Á-
kvörðun þessi mun hafa ver-
ið tekin að aflokinni ráð-
stefnu hjá konungi. — Senni-
legt er, að Mrs. Simpsoa
verði sömu réttinda aðnjót-
andi og aðalsmeyjar.
United Press.
G oodtemplararegian á Akranesi
fimtugf i dag*.
M
ikil hátíðahöld á Akranesi á morgun. Slúkurn-
ar í Reykjavík, Hafnarfirði og Borgarnesi
sækja heim stúkurnar á Akranesi.
m i i rnmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmammmmi
VÍSIR
ÐAGBLAÐ
Utgefandi:
BLAÐAÚTGÁFAN
VlSIR H.F.
Ritstj.: Páll Steingrímsson.
Skrifstofa I ^usturstræti 12.
og afgr. |
S í m a r:
Afgreiðsla 3400
Ritstjórn 4578
Auglýsingastjóri 2834
Prentsmiðjan 4578
Verð 2 kr. á mánuði.
Lausasala 10 aurar.
Félagsprentsmiðjan.
Vel að verið.
Daginn sem útsvarsskráin
nýja kom út, „sannaði“ Alþýðu-
blaðið, að því er það sjálft sagði,
að útsvörin í Reykjavík væri nú
orðin 143 kr. á mann, þar með
talin börn i reifum og karlæg
gamalmenni. Eyddi blaðið tals-
verðu máli að þvi að færa „sönn-
ur“ á þetta, en hljóp þó svo iá
tölunum, sem það notaði til
þess, að nokkur vafi virtist leika
á þvi, að niðurstaðan gæti verið
rétt, og var að því vikið liér i
blaðinu á dögunum. Nú hefir
Alþýðublaðið sjálft sýnt fram á
það, að því muni hafa orðið
nokkuð á í útreikningum sínum,
og jafnvel skotið mjög yfir
markið eða sannað of mikið,
eins og það er kallað.
I gær birtir blaðið „kafla úr
fjárhagsáætlun bæjarins fyrir
árið 1937“, og kveðst gera það
af því, að „menn sem lítið hugsa
um opinber mál“ kynnu
„vegna fáfræði“ að glæpast á
einhverjum „lygasögum“ um út-
svörin. Birtir blaðið þennan
kafla úr fjárliagsáætluninni
eins og það segir að hann liafi
verið „samþyktur af meirihluta
bæjarstjórnar í desember 1936,
gegn atkvæðum Alþýðuflokks-
manna í bæjarstjórninni“, og
vekur síðan skilmerkilega at-
hygli á því, að samkvæmt hon-
um hafi útsvörin verið „áætluð
kr. 3847970.00, en þau verði
alt að 10% hærri eða rúml. 4
milj. og 200 þús. kr.
Nú eru um 35 þús. manns í
bænum, og með því að deila 35 í
4200 fæst krónutala úlsvaranna
á mann, og er lmn 120. Útsvörin
eru þannig 120 kr. á mann, en
ekki 143, eins og Alþýðublaðið
liafði haldið fram. Hefir blaðinu
þannig tekist að hnekkja ræki-
lega þeirri lygasögu, og þarf
þá enginn að glæpast á henni
framar, jafnvel þó að liún sé
endurtekin í þessari grein blaðs-
ins, og elcki einu sinni þeir,
„sem lílið hugsa um opinber
mál“ og leggja það í vana sinn
að lesa Alþýðublaðið.
En þó að útsvörin séu þannig
talsvert lægri „á- mann“ en
Alþbl. hefir haldið fram, þá eru
þau eigi að síður þungur baggi,
og mjög að vonum, að bæjar-
búar vildu mikið til vinna, að
þau gæti lækkað. Annað mál er
það, livort þeir vilja vinna það
til, að fá sorialistum völdin í
liendur, og treysta því í algerðri
blindni, að þá mundu þau
læklca. Hinsvegar er nú séð fyr-
ir því í þessu sama tölublaði
Alþýðublaðsins, að menn þurfi
ekki að ganga blindandi að
neinu i því efni.
Á þriðju síðu blaðsins eru
tvær greinar, um stjórn bæjar-
mála, önnur um óstjórn sjálf-
stæðismanna á Reykjavík og
bin um afburðastjórn socialista
á Neskaupstað. I fyrri grein-
inni er fastlega skorað á alla al-
þýðu í bænum, að sameinast
um það, að hrinda af sér ánauð
„íhaldsins“, því að „öllmn liugs-
andi mönnum“ sé það ljóst, og
allir „sjáandi sjái“, að nú verði
að „hverfa af þeim brautum til-
viljana og fálms“ sem gengnar
liafi verið og til dæmis „dugi
ekki það fádæma fálm“, sem
rikt hafi í framfærslu þurfa-
manna. Þar þurfi „skipulagn-
ingar“ við, og einliverra annara
ráða en að jafna sifelt hærri og
liærri úlsvörum niður á borgar-
búa. I síðari greininni er svo
gerð grein fyrir binu glæsilega
fordæmi, sem socialistar liafi
gefið með stjórn sinni á Nes-
kaupstað í Norðfirði. Segir þar
frá þvi, að socialistar hafi haft
meirihluta í bæjarstjórn Nes-
kaupstaðar síðan í ársbyrjun
1929, og á þeim tima hafi þessi
kaupstaður ráðist í meiri fram-
kvæmdir en nokkurt annað
bæjarfélag. Þar hafi verið bygt
barnaskólaliús og rafstöð, sem
að visu er nú ekki einsdæmi,
jafnvel án þess að aðstoðar rík-
issjóðs njóti við. Þar hafi verið
keypt stór fiskgeymsluhús og
bryggja, fiskmjölsverksmiðja
og loks togarinn Brimir árið
1936. Og hver er svo hinn glæsi-
legi árangur af þessu öllu?
Árið 1930 segir blaðið að fá-
tækraframfærið í Neskaupstað
hafi verið 20 þús. krónur, en ár-
ið 1936, þegar Brimir var keypt-
ur var það orðið 52 þús. „eða
meira en öll niðurjöfnuð og
innheimtanleg útsvör í bæn-
um“!
Þannig hefir þá fátækrafram-
færið í Neskaupstað meira en
21/2 faldast á þessari blómaöld
socialismans og skipulagningar-
innar, og er orðið svo mikið, að
bæjarstjórnin hefir gefist upp
við að afla tekna til þess að full-
nægja því. Nú er 52 þús. kr.
fátækraframfæri í Neskaupstað,
miðað við fólksfjölda, að visu
ef til vill ekki meira en fátækra-
framfærið í Reykjavík, en áreið-
anlega miklu ineira miðað við
gjaldgetu og alla aðstöðu. Og
verður því að álykta af þessu,
að það væri að fara úr „öskunni
í eldinn“, að fela socialistum
forsjá Reykjavikur. Enda er það
alkunnugt, að svo liefir farið
alstaðar þar sem socialist-
ar liafa komist til valda, að all-
ur atvinnurekstur einstaklinga
liefir Iagst í kaldakol, ýmist
vegna þess að hann liefir sligast
undir álögunum, eða af því að
athafnamennirnir hafa flúið.
Hinsvegar hefir skipulagningar-
fálm socialista og hæjarrekstur
verið þess alls ómegnugur að
koma í staðinn, og smátt og
smált veslast upp í skuldadík-
inu.
ERLEND VÍÐSJÁ:
Sjáífböðalið
ar á Spáni.
í einkaskeyti til Vísis er í dag
rætt um afstöðu rússnesku stjórn-
arinnar til tillaga bresku stjórn-
arinnar, um vopnahlé á Spáni,
meSan veriS væri aö kveöja það-
an alla hermenn erlendra þjóöa og
sjálfboöali'Sa, úr herjum uppreist-
armanna og stjórnarinnar.
Svar rússnesku stjórnarinnar er
ekki í þá átt, aS vonir manna auk-
ist um að tillögurnar nái fram aS
ganga. ÞjóSverjar og ítalir hafa
heldur ekki neinn áhuga, síSur en
svo, fyrir aS fallast á heimílutn-
ing hermanna sinna. Þær þrjár
þjóSir, sem veitt hafa mestan
hernaSarlegan stuSning á Spáni
eru þannig ekki hlyntar tillögun-
Nú herma fregnir frá
Moskva ,að Potemkin hafi
afhent undir-sendiherra
Breta í Moskva svar rúss-
nesku stjórnarinnar við
fyrirspurnum Breta við-
vík jandi vopnahléi á Spáni.
í svari sínu segir rússneska
stjórnin, að það sé ótíma-
bært að gera tilraun til þess
að koma á vopnahléi, því að
eins og sakir standa virðist
ekki unt að sjá um, að fyr-
irmælum um slíkan brott-
flutning yrði fylgt. Auk
þess hefði þær þjóðir, sem
sent hefði herlið til Spánar,
ekki fallist á tillögurnar, og
uppreistarmönnum væri
alls ekki treystandi til þess
að halda vopnahlé.
United Press.
Kæra Spáoverja
á henflur Itðlnm.
LRP., 28. maí.
Kæra spænsku stjórnarinnar
á hendur ítölsku stjórninni var
tekin til umræðu á fundi Þjóða-
bandalagsráðsins í kvöld. Eden
sagði í ræðu er hann flutti um
málið, að stjórnir Evrópuríkj-
anna gætu ekki talið tilgangi
hlutleysissáttmálans náð fyr en
hver einasti útlendingur, sem
herðist á spænskri grund, væri
fluttur þaðan á brott, og Spán-
verjar fengju tækifæri til þess,
að ráða sjálfir sinni eigin fram-
tið. En um þetta mál væru nú
hinar ýmsu stjórnir í Evrópu að
ráðgast. Eden kvaðst gera sér
vonir um, að takast mætti að
miðla málum milli hinna
tveggja si>önsku aðila horgara-
styrjaldarinnar, en engin spor
hefði verið stigin i þá átt, enda
væri ekkert unt að gera i þá átt,
fyr en að allri erlendri íhlutun
um borgarastyrjöldina væri
lokið, og bráðabirgðarvopnaldé
samið. En allar slíkar málaleit-
anir hefðu mætt ákveðinni mót-
stöðu beggja aðila.
Del Yayo sagði, að ef Þjóða-
bandalagið vildi eiga von um
nokkra framtíð, þá yrði það að
taka þetta mál föstum tökum.
Spánverjar, sagði liann, berð-
um og styrjaldaraöilarnir sjálfir
eru þeim og mótfallnir.
Það horfir því ekki vænlega um
þessi mál, sem nú eru rædd á fundi
Þjóöabandalagsins í Genf. Friður
á Spáni á að líkindum langt í land,
ef tillögurnar um vopnahlé ná ekki
fram að ganga, sem nú eru litlar
líkur til.
Anthony Eden sagði í ræðu
sinni í Genf í gær, að skilyrðið
til þess að málamiölunartilraun á
Spáni hepnaðist, væri að sam-
komulag næðist um stöðvun allrar
erlendrar íhlutunar og brottflutn-
ing erlendra hemanna.
ust ekki eingöngu fyrir sínu
eigin sjálfstæði, heldur fyrir
frelsi allra þjóða, sem ekki vildu
verða harðstjórn einræðisins að
bráð.
Miklar breyting-
ar á ráöuneyti
Baldwin’s.
J^JEVILLE Chamberlain hefir
myndað nýja stjórn í Bret-
landi. Hann fór á fund konungs
í morgun skömmu eftir að
Stanley Baldwin fór þaðan, og
fól konungur honum þá stjóm-
armyndun. Síðar í dag lagði
hann ráðherralista sinn fyrir
konung, og samþykti konungur
listann.
Nokkrir ráðherrar halda fyrri
emhættum sínum, þ. á. m. ut-
anríkisráðherrann, Mr. Eden.
Þessar eru helstu breytingarn-
ar: Sir John Simon tekur við
f jrrra emhætti Neville Chamber-
lains sem fjármálaráðherra,
Halifax lávarður verður forseti
einkaráðs konungs í stað Mac
Donald. Sir Samuel Hoare verð-
ur innanríkisráðherra í stað Sir
John Simon, en Duff-Cooper
kemur í hans stað sem flota-
málaráðlierra. Ilore Belisha,
áður samgöngumálaráðherra,
verður hermálaráðherra. Runci-
man gengur úr ráðuneytinu og
er gerður að lávarði, en Oliver
Stanley tekur við embætti versl-
unarmálaráðherra.
Fyrsta verk hins nýja ráðu-
neytis var að mæla með því við
konung, að Stanley Baldwin
yrði sæmdur jarstign, og var
þegar gert. Mrs. Baldwin var
sæmd stórkrossi British Empire
orðunnar.
í dag voru liðin 14 ár síðan
Baldwin tók i fyrsta skifti við
embætti sem forsætisráðherra
Bretlands. FÚ.
St
ítalir sigra.
Oslo, 28. maí.
Knattspyrnukepni fór fram í
Oslo , gær milli ítala og Norð-
manna. Italir sigruðu og voru
vel að sigrinum komnir. Skor-
uðu þeir þrjá mörk, þar af tvö í
fyrri hálfleik, en Norðmenn 1,
í síðari hálfleik. ítalir léku af
miklu meiri liraða, svo mikl-
um, að vörn Norðmauna bilaði.
Þeir skoruðu mark sitt þegar
30 mínútur voru af síðari hálf-
leik. Áhorfendur voru 25.000—
30.000. (NRP—FB.)
E-LISTINN ER LISTI SJÁLF-
STÆÐISMANNA!
Fyrsta Góðtemplarafélagið á i
Akranesi, stúkan Vorblómiö nr. 3, J
var stofnað 29. maí 1887. Fyrir
stofnun stúkunnar gekst Gestur
Pálsson skáld, að tilhlutun stúk-
unnar Verðandi nr. 9. Stofnend-
ur voru 23, þar á meöal ein kona,
Kristrún Hallgrímsdóttir á Bjargi.
Af þessum frumherjum Gó'Ö-
templarareglunnar á Akranesi eru
nú að eins tveir á lífi. Er annar
þeirra Ásmundur Þóröarson, út-
vegsbóndi í Háteigi. Var hann
langa ævi forma'öur, en er nú mjög
hniginn aö aldri (86 ára). Er hann
þó ern vel. Hinn er Erlendur, son-
ur Tómasar ,og Kristrúnár á J
Bjargi. Stundaöi hann sjómensku i
lengst af, og er nú kominn yfir
sjötugt og hættur sæförum.
Áriö 1898 var stofnuö önnur
stúka á Akranesi, stúkan Akurlilj-
an nr. 41. Voru stofnendur 64 og
var helstur forgöngumaöur máls-
ins Kristmann Tómasson fiski-
matsmaöur i Lambhúsum, sem ver-
ið hefir jafnan einn af forvígis-
mönnum Reglunnar á Akranesi.
Stúkur þessar unnu nú ótrauð-
ar aö hugöarmálum Reglunnar og
öörum velferðarmálum bygöar-
innar, og var þeirra starf hiö
merkilegasta. Þar kom, að menn
töldu heppilegra, aö steypa sam-
an stúkunum', og var það gert
1903. Nú starfar á Alcranesi stúk-
an Akurblómiö nr. 3, og var hún
stofnuð 17. nóv. 1910. Er starfsemi
hennar hin glæsilegasta, félagatal-
an er 146. í 'stúkunni vinna og
ýmsir merkustu menn kauptúns-
ins. Má nefna fyrstan æöstatempl-
ar stúkunnar, Níels Kristmanns-
son, hinn mætasta mann. Gæslu-
maöur ungtemplara er Jón Sig-
mundsson, eljumaöur mesti og
vinsæll. Enn ber aö geta Ólafs B.
Björnssonar, umboðsmanns stór-
templars, sem þjóðkunnur er orö-
inn af bindindisstarfseminni í
landinu og af starfsemi til efl-
ingar kristnihaldi og öðrum
merkum þjóðmálum. Þá má
eigi gleyma Pétri Ottesen, einum
helsta manni Reglunnar hér á
landi, sem jafnan er boöinn og
búinn til að berjast fyrir málefn-
um hennar innan þings og utan.
Marga mætti fleiri telja, þótt rúm
leyfi eigi að sinni.
Fyrsta barnastúkan á Akranest
var stofnuð 18. des. 1888. Nú starf-
ar þar barnastúkan Stjarnan nr.
103. Eru félagsmenn 130 og mjög
áhugasamir um málefni Reglunn-
ar. —
Það yröi of langt mál, aö rekja
hér starfsemi Góötemplarafélag-
anna á Akranesi. Verður aö nægja
að geta þess, að flest velferðarmál
bygöarlagsins hafa þau látið til sín
taka, og hefir oft munaö drjúgum
um þau til liðs slíkum málefnum.
Hafa stúkurnar átt heilladrjúgan
þátt í öllum helstu framfaramálum
kauptúnsins og héraösins, heil-
hrigðismálum, siðgæðismálum og
öðrum menningarmálum. Nægir
sem dæmi að minna á Sjúkrasam-
lagið og leikstarfsemi félaganna.
Stúkur í Reykjavík, Hafnarfirði
og Borgarnesi heimsækja stúkum-
ar á Akranesi á morgun, til þess
að minnast með þeim þessa hátíð-
isdags. Gengst stúkan Frón nr. 227
fyrir förinni.
Vísir árnar heilla og blessunar
Góðtemplarafélögunum á Akranesi
á þessum tyllidegi þeirra.
Madur hrapar
í Ólafsvík.
Ólafsvík, 28. maí.
í morgun kl. 9 hrapaði Rand-
ver Kristjánsson í Ólafsvík úr
klettum og dró það liann til
dauða. — Hann var á leið upp í
fjall til þess að taka upp mó,
ásamt bróður sínum Alfons
Kristjánssyni. Þegar upp í hlið-
ina kom, gelck Randver upp i
svonefnda Arnarverpi-kletta til
þess að leita að fýlunga-eggj-
um, og hrapaði hann úr klettun-
um. Þegar að var komið hafði
liann góða rænu og liélt sig
ekki vera mikið meiddan. Var
liann borinn heim í þorpið, og
andaðist hann litlu síðar eða kl.
9.30. — FÚ.