Vísir - 04.09.1937, Qupperneq 3
TlSIR
f
Verð á kartöflnm er hér nú 100% hærra en
15. september 1 fyi’ra.
VÍSIR vakti máls á því 27. ágúst, strax og Græn-
metiseinkasalan hafði birt verð sitt á kartöfl-
unum, að hið ákveðna verð, 40 krónur hver
100 kíló, væri óhæfilega hátt. Venjulegt verð hér á þess-
ari vöru, um það leyti sem nýja uppskeran kemur á
markaðinn, er helmingi lægra.
Dagblað framsóknarflokksins
réðist að Yísi með sinni venju-
legu prúðmensku og þeim mik-
ilmenskutón, sem þetta blað
hefir tamið sér eftir kosning-
arnar. Blaðið hefir í heitingum
í sambandi við það , að vakið
hefir verið mál's á því, að eiu-
liVer allra náuðsynlegasta
héysluvara almennings er seld
með óhóflegu verði. Það segir
meðal annars: „Sjaldan hefir
ótímabærari krafa verið fram-
fl'utt af nokkru stjórnmálablaði,
en krafa Vísis um lækkun kar-
töfluverðsins eins og alt er í
pottinn búið“. Að dómi fram-
sóknarblaðsins er það „ótima-
bær“ krafa að kartöfluverðið sé
lækkað úr 40 kr.! Blaðið segir
ennfremur: „Vísir og flokkm*
hans þarf ekki að ætla að hann
fái nokkru þokað um stefnu
þá, sem upp hefir verið tekin í
þessum málum“. Það er aug-
ljóst, að það er ætlunin að halda
uppi hinu háa lcartöfluverði.
Hverjum hugsandi manni,
sem les slik skrif í aðalblaði
stjórnarinnar, lilýtur að verða
það ærið áhyggjuefni hvernig
ýmsum málum er nú komið
hér. Einhver nauðsynlegasta
neysluvara fólksins, kartöflur,
er lögð undir einkasölu. Þessi
stofnun ákveður verðið og get-
ur enginn keypt vöruna ódýrar
en hún ákveður. Á öðru ári sem
þessi stofnun starfar, hækkar
hún verðið á innlendu kartöfl-
unum um 100%. í fyrra aug-
lýsti Grænmetisverstunin i
Lögbirtingablaðinu 15. septem-
ber þetta lágmarksverð:
y
Kr. Kg.
15/9_31/10 .. 19,00 hver 100
1/11—30/11 .. 20,00 — 100
1/12—31/12 .. 21,00 — 100
■£* f
Nú er verðið 5. september kr.
40 hver 100 lcg. Almenningur
verður að gera sér Ijóst hvað
hér er að gerast. Þessi vöruteg-
und hefir verið látin í hendur
einkasölu, sem hefir vald sam-
kvæmt Iögum að álcveða verðið.
Alt eðlilegt framboð er liindrað
og neytendurnir geta enga vöm
sér veitt gegn ákvörðun einka-
sölunnar, hversu ólióflegt sem
verðið er. Þetta er sönn mynd
af ríkisrekstri.
Flestum verður á að spyrja,
á hverju liið háa kartöfluverð
Ijyggist. Blað framsóknarflokks-
ins segir að bændur og kar-
töfluframleiðendur verði að fá
þetta liáa verð. Um það skal
ekki deilt liér og síst skal það
eftir talið, að bændur fái sann-
gjarnt verð fyrir afurðir sinar.
En svo virðist sem sumir stjórn-
málaflokkar álíti að ekld þurfi
að taka tillit til annara stétta
þjóðfélagsins. Ef bændur og
kartöfluframleiðendur eru illa
sladdir og þurfa að fá hátt verð
fyrir þessa framleiðslu sína, þá
má líka minna á, að það eru
smælingjar við sjóinn, í bæjun-
uin, sem eru engu betur settir
og verða að neita sér um aðal
fæðutegund sína, ef þeir eiga að
greiða 40 kr. fyrir kartöflutunn-
una. Hinn mikli fjöldi neytend-
anna i bæjunum hefir sinn rétt
til að fá þessa vöru með hóf-
legu verði ekld siður en fram-
leiðendurnir til að fá skynsam-
legt verð fyrir framleiðslu sína.
Alþýðublaðið í gær var að
heimska sig á þvi að verja kar-
töfluverðið. Mun mörgum al-
þýðumanninum finnast slík
skrif koma úr hörðustu átt.
Ætti ritstjórinn að kynna sér
hvernig litið er á þetta mál á
verkamannaheimilunum í bæn-
um áður en hann tekur sér fyr-
ir hendur aftur, að telja mönn-
um trú um, að íhaldsblöðin
heimti kartöfluverðið lækkað
til óþurftar fyrir alþýðuna.
Þvi trúir enginn.
Síldveiöaraar.
Togararnir leita
heim af veiðum.
Allnr
skipanna
W8nr þó enn eftir því
a8 veiðlveinr iiatni.
Er siidveiðnnnm að
ai ljúka að fnlln?
30 milj. krðna til
norrænnar sam-
vinnn.
Osló, 3. september.
Formaður ElectroIux-félagS-
ins í Stokkhólmi, Wennergren,
hefir gefið 30 miljónir kr. til
sjóðsstofnunar til eflingar nor-
rænni samvinnu og til vísinda-
starfsemi á Norðurlöndum.
Þessari gjöf —- bæði vegna þess
hversu upphæðin er há og til-
gangurinn göfugur — er líkt
við Rockefeller-gjafirnar og
sjóðstofnun Nobels.
Dagbladet hefir spurst fyrir
um það hjá forstjóra Elektro-
lux, hvort Norðmenn mundu
njöta góðs af sjóðstofnuninni,
og komst hann að orði á þá
leið i svari sínu, að sjóðurinn
mundi styrkja þær rannsóknir,.
sem fram fara í Noregi og eru
i samræmi við tilganginn með
s j óðsstofnuninni.
„Eg vona“, sagði Wenner-
gren, „að gjöfin leiði til þess, að
Norðurlandaþjóðirnar hnýlist
traustari vináttu- og samvinnu-
böndum. Það er nokkurskonar
Þjóðabandalag Norðurlanda,
sem eg, kona mín og börn, höf-
um fyrir augum — þjóðabanda-
lag til eflingar menningu Norð-
urlanda.“ — NRP.-FB.
Keflavík. — FO.
Til Keflavíkur konm í dag 4
bátar með samtals 166 tunnur
síldar. — Síldin veiddist nú
míklu grynnra en áður, eða 20
30 mílur vestur af Skaga í slað
45—50 mílna áður. — FÚ.
Siglufirði.
Kl. 12 í dag Mðu á Siglufirði
12 skip með 33—40 þús. mál af
síld innanborðs. ÖH skipin verða
affermd í kvöld. — Nokkur skip
eru hætt veiðum og farin heim-
Ieiðis. Katla fór úr Siglufirði á-
leiðis til Hamborgar með 1200
smálestir síldarmjöls. Else Ess-
berger fór fná Siglufirði í dag
áleiðis til Þýskalands með 1750
smlestir síldarlýsis. Hvortveggja
farinurinn var frá ríkisverk-
smiðjunum.
Norðaustan hvassviðri er nú
norðanlands, úfinn sjór og eng-
in veiði. Síldveiðaskipin liggja
í liöfn og flest bíða þau eftir
að veðrinu sloti, til að ganga
úr skugga um, hvort síldin sé
að fullu horin, eða hvort veiði
hels áfram, þrátt fyrir óveðrið.
Vísir liefir átt tal við frétta-
ritara sinn á Siglufirði og fór-
ust honum svo orð:
Engin skip hafa lagt úr höfn
á Siglufirði til veiða um noldc-
urn tíma. Þau liggja inni og
bíða þess, að ógæftunum linni
og aftur gefi til veiða.
Hér er ekki um annað talað,
en það livort síldin fari nú í
þessum óveðurskafla eða ekki.
Sjómenn eru slciftra skoðana
um það. Sumir telja, að ýms
inerki séu til þess, að síldin
muni á förum, en aðrir telja, að
noklcur veiði muni verða, ef ó-
gæftirnar haldi elcki því lengur
áfram. ,
Allir eru þó þeirrar slcoðunar,
að liéðan af sé ekki að búast
við mikilli síldveiði, þótt bráð-
lega kunni að gefa til veiða.
Flest skipin eru þó látin bíða til
að vita livort ekki rakni úr, en
einstöku slcip er alveg hætt.
Margir smærri bátar, tvilemb-
ingar, sem hér eru kallaðir, eru
hættir veiðum. Með suma þeirra
er það svo, að þeir hafa rifið
nætur sínar og svarar ekki!
lcostnaði að gera að þeim, þegar
. komið er fram á þennan tíma.
Það ýtir ef til vill undir suma,
að reyna eitthvað áfram, að
lieyrst hefir að sala á
síld sumstaðar erlendis,
þar sem lítil söluvon var orðin,.
hafi eilthvað glæðst, en hvort
hér er um nolckra verulega
möguleilca að ræða mun vera
allsendis óvíst.
Þrír saltsíldar- og matéssíld-
arfarmar eru farnir eða eru um
það bil að fara út, og fara þeir
til Þýskalands, Póllandsog Belg-
íu.
Síldarverksmið j urnar hér
eiga næga vinslu í eina 14 daga
enn. Eru allar þrær fullar eins
og er, og var síðasta slcipið, sem
beið, losað í gær.
Raufarhafnarverksmíðjan er
full, en el’ til vill er eitthvað lít-
ilsliáttar liægt að bæta við á
Seyðisfirði og Norðfirði.
Á Austfjörðum eru menn nú
farnir að veiða millisíld og hef-
ir sú veiði gengið all vel.
Ekki munu skip héðan að
norðan fara suður í Faxaflóa til
veiða, nema þá, að þvi hagstæð-
ari veiði verði þar. (
Sem sagt er mikill' „spenn-
ingur“ í mönnum hér á Siglu-
firði nú, en fleiri munu þeir
Veðrið í morgun.
í Reykjavík io stig, Bolungar-
vík 7, Akureyri 7, Skálanesi g,
Vestmannaeyjum 8, Hellissandi 7,
ICvígindisdal 8, Hornvík 6, Kjör-
vogi 5, Blönduósi 7, Siglunesi 6,
Raufarhöfn 7, Skálum 8, Fagra-
dal 8, Papey 9, Hólum í Hornafir'ði
10, Fagurhólsmýri 10, Reykjanesi
11. Sólskin hér í gær 5.0 st. Mest-
ur hiti hér í gær 16 stig, minstur
í nótt 7 st. Yfirlit: Lægð við suð-
austur- og austurströnd íslands á
hægri hreyfingu norðaustur eftir.
Nýtt lægðarsvæði sunnan við
Grænland. Horfur: Strðvestur-
land: Breytileg átt og hægviðri.
Sumstaðar skúraleiðingar síðdeg-
is. Faxaflói, Breiðafjörður: Norð-
austan og norðan gola. Úrkomu-
laust og víðast bjartviðri. Vest-
firðir: Norðaustan gola. Víðast
úrkomulaust. Norðurland, norð-
austurland: Norðan og norðaust-
an gola. Skýjað loft og sumstaðaji
dálítil rigning. Austfirðir, suð-
austurland: Norðan gola. Víðast
léttskýjað.
Messur á morgun.
í dómkirkjunni kl. 11, síra
Bjarni Jónsson.
í fríkirkjunni kl. 2, síra Árni
Sigurðsson.
í fríkirkjunni í Hafnarfirði kl.
2, síra Jón Auðuns.
í Landakotsskóla: Lágmessa kl.
6)4 og 8. Hámessa kl. 10. Engin
síðdegisguðsþjónusta.
í kaþólsku kirkjunni í Hafnar-
firði: Hámessa kl. 9. Engin síð-
degisguðsþ jónusta.
Verðlaun:
Farseðiil ti! útianda.
í sambandi við auglýsingar á fyrslu síðu, verða gefin verð-
laun fyrir rétta ráðningu.
I liorni liverrar augíýsingar er einn bókstafur. Þegar allir
þessir siafir eru telcnir saman er hægt að mynda úr þeim sex
nöfn á vörutegunum og verslunum:
1. Hreinsar klæði.
?
2.
3.
4.
5.
6.
Mannsnafn.
Dregið verður um það lijá lögmanni liver verðlaunin hlýt-
ur. — Verðlaunin eru 1. farr. farseðill til Bergen, Hull, Kaup-
mannahafnar eða Hamborgar eftir vali vinnanda.
Allar ráðningar verða að koma til blaðsins fyrir miðviku-
dagskveld 15. þ. m. — Ráðningarmiðar birtast i blaðinu á
mánudag og næstu daga. —
Skipafregnir.
Gullfoss er í Flatey. Goðafoss
fer frá Hull í kveld áleiðis hingað.
Brúarfoss er á leið t-il Kaup-
vera, sem búast við því að ekki
verði þess langt að bíða, að öll
skip liætti veiðum.
ALLIR TOGARAR KVELD-
ULFS NEMA EINN BÍÐA.
Vísir hefir átt tal við Ric-
liard Thors og sagði hann, að
Egill hefði farið að norðan í
gærkveldi, en liinir togararnir
mundu biða átelcta og sjá livort
elcki fengist meiri veiði. Fram-
lcvæmdastjórinn lcvaðst eklci
vera trúaður á, að mikið yrði
um veiði úr þessu, og að hk-
legt væri, að „höfuðdagsstraum-
urinn“ gerði út af við veiðina
fyrir fult og alt.
Hjalteyrarverlcsmiðjan hefir
nú fengið 190 þús. mál og Hest-
eyrarverksmiðjan 70 þús. mál.
TVEIR ALLIANCE-TOGARAR
KOMNIR AF VEIÐUM.
Ólafur H. Jónsson forstjóri i
Alliance sagði blaðinu í gær, að
sjómenn á þeim togurum, sem
enn væru fyrir norðan vildu
helst fara að koma suður og
teldu þeir síldveiðinni nú lolcið.
Skipin, sem leggja upp á
Djúpavílc liafa legið í 2 daga í
Reykjarfirði, en tveir togarar,
Hannes ráðherra og Baldur, eru
þegar hættir veiðmm og komnir
liingað. Hinir togararnir bíða
fram um helgi.
Ó. H. J. sagði, að smásíldar
hefði orðið vart og jafnvel ufsa
og teldu sjómenn það merki
þess, að síldin væri á förum.
Togararnir sem komnir eru,
Hannes og Baldur, liafa fengið
19780 og 6800 mál, en hinn síð-
arnefndi bilaði og tafðist lengi
frá veiðum.
Verksmiðjan á Djúpavík hef-
ir fengið 197% þús. mál.
HAFNARFJARÐARTOGAR-
AR KOMA.
Togarinn Venus úr Hafnar-
firði er kominn af veiðum og
hefir liann fengið alls tæp 12000
mál og togarans Jupiter er von
í dag, og hefir hann fengið
12000 mál. ,
Togarinn Otur úr Reylcjavik
er einnig kominn af veiðum.
mánnahafnar frá Grimbsby. Detti-
foss fer til útlanda kl. 8 í kveld.
Lagarfoss fer frá Akureyri í dag.
Hannes rá'Sherra og Baldur komu
af síldveiSum í gær. Geir kom frá
Þýskalandi í gær. Labor (áöur
Roald AmundsCn), hvalveiSamóS-
urskipiö, fór héöan í gær. Esja
fór í morgun í strandferö. Hekla
fór í gær frá Neapel áleiöis til
Englands. Dronning Alexandrine
er væntanleg hingaö seinni part-
inn á morgun.
Rafmagnsverðið.
Rafmagnsstjóri lagöi bráöa-
lirgöatillögu fyrir bæjarráðsfund
í gær þess efnis að hinn almenni
vetrartaxti yrði settur 45 aura til
ljósa, en 12 aura til annarar notk-
unar. Nemur lækkun ljósataxtans
því 5 aurum, ef þetta nær fram
að ganga, en hins taxtans 4 aur-
um. Guðm. Ásbjörnsson vildi, að
kosin yrði nefnd, sem ætti,
samráði við rafmagnsstjóra, aö
athuga hvort frekari lækkun væri
gerleg. Var samþykt aö kjósa
nefnd þessa og voru kosnir í hana
þeir Guðm. Ásbjörnsson og Guðm.
R. Oddsson. Vinna þeir að þessu
máli ásamt rafmagnsstjóra, og
verður tillaga frá þeim væntan-
lega lögð fyrir bæjarráðsfund. Hér
er aðeins um hina almennu taxta
að ræða, ekki tilraunataxta þá,
sem Rafmagnsveitan augl. í sum-
ar.
Kaffikvöld
heldur Félag ungra sjálfstæðis-
manna, Heimdallur, á morgun í
Oddfellowhúsinu. Til skemtunar
verður söngur (6 manna flokkur),
upplestur, Alfreð Andrésson, pía-
nósóló, C. (Billich, ræður og dans.
Aðgöngumiðar kosta 2,00 og
verða seldir í Varðarhúsinu kl.
1—4 í dag og 4—7 á morgun. Hús-
inu verður lokað kl. 11.
Skemtun að Eiði.
Sjálfstæðisfélögin í Reykjavík
og Hafnarfirði halda útiskemtun
að Eiði á morgun og hefst hún kl.
3. — Til skemtunar verða
ræðuhöld, glíma, söngur og
dans. — Árni Jónsson frá
Múla og próf. Bjarni Benedikts-
son tala,, kvartett syngur, og
sumarhljómsveitin leikur undir
dansinum. Veöurútlit er nú betra,
en nokkru sinni í sumar, svo a'S-
vafalaust verða þúsundir manna
að Eiði á morgun. Munið einnig,
að Eiði er besti sjóbaðstaður .
landsins.
Helgidagslæknir
á morgun Ólafur Gislason, Báru-
götu 22, simi 2128. Næturlæknir
næstu nótt Halldór Stefánsson,
Ránarg. 12, sími 2234. Næturv.
í Reykjavíkur apóteki og Lyfja-
búðinni Iðunni.
Næturlæknir
er í nótt Sveinn Pétursson, Ei-
ríksson 19, simi 1611. Næturv. í
Laugavegs apóteki og Ingólfs
apóteki.
S jálfstæðismenn!
Munið Eiði á morgun!
Útvarpið í kvöld.
19,10 Veðurfr. 19,20 Útvarps-
tríóið leikur. 20,00 Fréttir. 20,30
Ferðásaga (Jón Halldórs'son).
20,55 Útvarpshljómsveitin leikur.
21,25 Gamansögur og gamanvís-
ur (Bjarni Björnsson leikari).
21.45 Danslög (til kl. 24).
Útvarpið á morgun.
9.45 Morguntónleikar: a) Sym-
fonia í B-dúr, eftir J. Chr. Bach;
b) Píanó-konsert í d-moll, eftir J.
Seb. Bach; c) Symfonia nr. 34
í C-dúr, eftir Mozart (plötur).
10.40 Veðurfregnir. 12.00 Hádegis-
útvarp. 14.00 Messa í fríkirkjunni
(síra Árni Sigurðsson). 15.30 Mið-
clegistónleikar frá Hótel ísland.
17.40 Útvarp til útlanda (24.52 m.).
19.10 Veðurfregnir. 19.20 Hljóm-
plötur: Þjóðleg einleikslög. 20.00
Fréttir. 20.30 Leikrit: „Biðlar
ekkjunnar“, eftir C. P. Anderson
(Valur Gíslason, Alfreð Andrés-
son, Gunnþórunn Halldórsdóttir,
Þóra (Borg). 21.00 Karlakórinn
„Geysir“ syngur (frá Akureyri):
(söngstj. Ingimundur Ámason).
21.45 Danslög (til kl. 24).
Tilkynning.
Min nýja benzísiafgFeidlu-
stöd vor við Hafnaratræti 23,
©f tekin til stapfa9 og nm
ieiö leggjom vép híöhf ben-
~ ..... zínsfgpeiðsimia vid
Kalkofnsveg.
Hið ísi. steinoiiÐhlataíélag.
Litið hús
í, eða utan við bæinn, óslcast til kaups. Tilboð, með tilgreindri
stærð, verði útborgun, fyrirkomulagi lána, sendist, utanáritað:
Póstbox 143, Reykjavik.