Vísir - 14.10.1937, Side 2
VÍSIR
VtSIR
DAGBLAÐ
Útgefandi:
BLAÐAÚTGÁFAN
VtSIR H.F.
Ritstj.: Páll Steingrímsson
Skrifstoft) . . ,
, } Austurstr. 12
og afgr. J
Símar:
Afgreiðsla 3400
Ritstjórn 4578
Auglýsingastjóri 2834
Prentsmiðjan 4578
Verð 2 kr. á mánuði.
Lausasala 10 aurar.
FélatrsDrentsmiðian.
Dýrt spaug.
FINNUR Jónsson skrifar nú
í AlþýðublaSið um það,
hve dásamlegur árangur hafi
orðið af afskiftum þess opin-
bera af síldarsölunni.
Eins og kunnugt er, hefir
Síldarútvegsnefnd einkarétt til
sölu á „maté“-síld til útflutn-
ings. Auk þess hefir nefndin
heimild til að ákveða lágmarks-
verð á allri annari síld, sem seld
er á erlendum markaði, og til
þess að takmarka útflutninginn.
Nú hefir horið allmikið á um-
kvörtunum yfir því, hvernig
nefndinni liafi farið úr hendi
salan á „maté“-síldinni. Hún
hefir veitt einstökum mönnum
og firmum einkaleyfi til að
selja síldina í einstökum lönd-
um og jafnvel í heilum heims-
álfum, gegn skuldbindingu
þeirra um að kaupa, við á-
kveðnu verði, tiltölulega lítið
síldarmagn, að eins nokkur
þúsund tunnur, til að selja i
hverju landi, þar sem ætla
mætti að markaður væri fyrir
miklu meira. En þegar svo á
reynir, bregðast þessir einka-
leyfishafar, krefjast lækkunar
á umsömdu verði og neita að
öðrum kosti að standa við gerða
samninga!
En þegar Finnur Jónsson,
formaður síldarútvegsnefndar,
kveður sér hljóðs, til þess að
bera liönd fyrir höfuð nefndar-
innar, þá víkur hann ekki einu
orði að þessari „lilið“ málsins.
Hinsvegar fer hann mörgum
fögrum orðum um það, hvað
vel hafi tekist til um sölu
þeirra síldar, sem nefndin kom
hvergi nærri sölunni á!
Af þessu verður nú að eins
dregin sú ályktun, að því minni
afskifti sem nefndin hafi af
sölu síldarinnar, því betur sé
þvi máli borgið. Og þessi á-
lyktun styðst líka við reynslu
fyrri ára eða frá tímum gömlu
sildareinkasölunnar. En hennar
æfiferli lauk með þvi, að is-
lensk saltsíld var orðin svo að
segja óseljanleg. Og í ýmsum
löndum, þar sem áður liafði
verið talsverður markaður fyrir
hana, var markaðurinn alger-
lega lokaður. Á þeim árum var
hinsvegar fyrir forgöngu ein-
stakra manna, en ekki einka-
sölunnar, byrjað að maté-verka
síld hér á landi, og selja þá síld
til Þýskalands. Næstu árin, eftir
að einkasalan Iagðist niður, fór
þessi síldarsala til Þýskalands
vaxandi, og pólski markaðurinn
bættist við. En þá var fundið
upp á þvi snjallræði, að fela
síldarútvegsnefnd einkasölu á
allri maté-síld, og síðan hafa
þessir markaðir gengið meira
og meira saman, ár frá ári. Og
nú eru allar horfur á því, að
endalok matésíldarsölunnar í
höndum síldarútvegsnefndar,
ætli að verða þau sömu eins og
saltsíldarsölunnar í höndum
gömlu einkasölustjórnarinnar.
Að sjálfsögðu geta verið
ýmsar orsakir til þess, að
svona tekst til um sölufram-
kvæmdir i höndum ríkiseinka-
sölu. En vafalaust veldur fyrir-
komulagið sjálft mestu þar um.
Og það er ekki að eins síldar-
salan, sem seld er þeirri „for-
dæmingu“. Alveg sömu söguna
er t. d. að segja um freðfisks-
söluna. Fiskimálanefnd tók sér
í hendur einkarélt til útflutn-
ings og sölu á freðfiski til Pól-
lands og Ameríku, með þeim
árangri, að þessir freðfisks-
markaðir, sem menn gerðu sér
miklar vonir um, liafa algerlega
„lokast“ fyrir íslenskum fiski,
og á útflutningstilraunum
nefndarinnar til þessara landa
liefir orðið tap, sem skiftir
hundruðum þúsunda i íslensk-
um krónum. En Iivað á tapið að
vcrða mikið á þessu einokunar-
brölti, áður en horfið verður
frá því?
ERLEND VlÐSJA:
Réttindi Pólverja í
Danzig
hafa veriS virt a'S vettugi, segja
bresk blöS, og hefir það vakiö
mikla gremju í Póllandi.
Groner, hinn þýski forseti Ges-
tapo-lögreglunnar í Danzig, gaf þá
fyrirskipun öllum á óvart, að
handtaka pólska póstmenn í borg-
inni, er þeir voru að bera út bréf
og blöð. Jafnframt var fyrirskip-
uð skoðun á póstsendingum til
Danzig frá Póllandi. Póstmennirn-
ir voru fluttir til aðalbækistöðv-
ar Gestapo, bréfatöskur þeirra
tæmdar, bréf skoðuð o. s. frv.
AS nokkrum klukkustundum liðn-
um voru póstmennirnir látnir Iaus-
ir, en þeim var jafnframt tilkynt,
að þeir yrði ákærðir fyrir að bera
út „ólöglegan póst“. Slíkar hand-
tökur fóru tvívegis fram. í síðara
sinnið opnaði lögreglan bréf, sem
í voru opinber pólsk skjöl.
Pólverjar telja þessa framkomu
lögreglunnar frekleg brot á sátt-
málunum, sem gerðir voru 1931
og 1922, svo og samkomulaginu
1923 sem áttu aðl tryggja Pólverj-
um friðhelgi í póstmálum í Dan-
zig.
Ríkisstjórnin hefir mótmælt at-
ferli lögreglunnar í Danzig opin-
berlega.
Samandregoar frétíir,
Þýska ríkissljórnin hefir í
gær látið sendiherra sinn í
Briissel aflienda belgisku ríkis-
stjórninni orðsendingu þess
efnis, að Þýskaland skuldbindi
sig til þess að viðurkenna og
virða hlutleysi Belgíu og sjálf-
stæði. NRP.-FB.
Belgiska stjórnin hefir til-
kynt japönsku stjórnnini,að hún
hafi veitt samþykki sitt til þess,
að niu velda riáðstefnan verði
haldin í Brussel 25. október.
Hefir belgiska stjórnin boðið
japönsku stjórninni að taka
þátt í fundinum. Japanska
stjórnin hefir enn ekki svarað.
NRP.-FB.
Frá Shanghai er símað, að
Japanir hafi gert nýja árás á
Shanghaihverfið. Japanir bjóða
kínverskum hermönnum, sem
leggja niður vopn, einn dollar
hverjum. Fréttastofan Havas
birtir fregnir um kínverskan
sigur í orustunni við Shanghai.
NRP.-FB.
Byltingaráform á Ítalíu.
Níu menn dæmdir til
fangelsisvistar.
EINKASKEYTI TIL VÍSIS.
London í morgun.
Fregnir frá Rómaborg um fangelsisdóma yfir
nokkurum andstæöingum fasictastjórnarinn-
ar ítölsku vekja fádæma athygli, því aS dóm-
arnir leiða í Ijós, að áformað hefir verið að koma af
stað byltingu með það fyrir augum, að koma á nýju
stjórnarfyrirkomulagi í landinu. Þeir, sem dæmdir
hafa verið til fangelsisvistar, eru níu mentamenn, og
voru þeir dæmdir í alt að 10 ára fangelsi hver. Þeir,
sem minsta hegningu fengu, voru dæmdir í eins árs
fangelsi. Fimm menn voru sýknaðir.
Dómurinn var uppkveðinn af
rétti, sem fær til meðferðar
mál, sem varða velferð og ör-
yggi ríkisins. í ákærunum
gegn sakborningum var komist
svo að orði, að þeir liefði unnið
að þvi, að beitt yrði valdi tíl
þess að breyta stjórnarfyrir-
komulagi landsins og stafi
undirróður þeirra og skoðana-
útbreiðsla af því, að sakborn-
ingar hafi orðið fyrir áhrifum
af kenningum stjórnbylting-
arsinna.
United Press.
Bretar og Frakkar hæna
Jugoslava að sér.
EINKASKEYTI TIL VfSIS.
London í morgun.
"E^orsætisráðherra Jugoslavíu,
dr. Stoyadinovich, kom í
morg-un kl. 9 frá París í
boði bresku stjórnarinnar.
Anthony Eden tók á móti hon-
um á járnbrautarstöðinni á-
samt Kassidolac, sendiherra
Jugoslava. Lundúnaför Stoya-
dinovich vekur alheimsathygli,
vegna þess að Jugoslavar og
Frakkar hafa gert með sér vin-
áttusamning. Er álit manna að
Bretar og Frakkar ætli sér að
hæna Jugoslava sem mest að
sér. Ætlunin með þessari för, er
að ræða ástandið í heiminum,
svo .og .aukin . verslunarskifti
Breta og Jugoslava.
(United Press).
Bretar og Frakkar slaka íil
Brottflutningur sjálfboðaliða á Spáni verður ræddur
í hlutleysisnefndinni.
Enn ein lilraun verður gerð til þess að leysa deiluna um
brottflutning sjálfboðaliða á Spáni, í hlutleysisnefndinni,
samkvæmt tillögu í svari ítala. Er því hér um tilslökun að
ræða, en Bretar og Frakkar munu hafa komið sér saman um
hvaða frestur skuli veittur til umræðu. Náist ekki samkomu-
lag munu Frakkar opna landamærin. Einnig er rætt um að
gera Baleareyjar að áhrifalausu svæði í ófriði. ítalir hafa kom-
ið sér fyrir á Majorca-eyju, og óttast Frakkar, að þeir muni
halda áfram að leggja undir sig eyjarnar. Er jafnvel húist við,
að Frakkar muni leggja undir sig Minorca, með samþykki
Valenciastjórnarinnar. (Samkv. FÚ.).
Roosevelt forseti hefir kvatt
þjóðþing Bandaríkjanna saman
til aukafundar 15. nóvember.
NRP.-FB.
Japanska utanríkismálaráðu-
neytið gaf í dag út opinbera lil-
kynningu vegna árásanna á
vagna bresku sendisveitarinnar
í Nanking, og er þvi lialdið
fram í tilkynningunni, að vagn-
arnir hafi hvorki verið merktir
rétt, né farið þann veg, sem áð-
ur var búið að tilkynna að þeir
mundu fara.
Ýms blöð í Frakklandi gera
ráð fyrir því í dag, að svo kunni
að fara, að franska stjórnin láti
bjóða út einum eða fleiri ár-
göngum af varaliði landsins
vegna þess hve útlitið er
ískyggilegt í alþjóðamálum. FÚ.
Frá London er símað til
Aftenposten, að samkvæmt
skýrslum Lloyds sé smálesta-
tala flutningaskipa í smiðum i
heiminum samtals 2.900.000.
Þar af 40% í smíðum í Eng-
landi. Pantanir fyrir hendi i
breskum skipasmíðastöðvum
eru, miðað við smálestatölu,
15.338 minni en fyrir þremur
mánuðum. NRP.-FB.
Hafnarverkamenn í Perth í
Áslarliu hafa neitað að vinna
við útskipun kola í japanskt
stöðvarskip og 5 hvalveiðiskip,
sem eru á leið til suðurhafa.
Yerða Japanir að senda kola-
skip að heiman frá sér og skipa
kolum í hvalveiðiskipin í rúm-
sjó. Hafnarverkamenn í Ástral-
íu hafa samþykt að vinna ekki
við japönsk skip. NRP.-FB.
I Noregi hefir mikið borið á
þvi undanfarið, að seld hafa
verið ódýr veiðarfæri og hafa
útgerðarmenn vegna erfiðleika
þeirra sem þeir eiga við að
stríða, keypt mjög mikið af
þeim. Síðan farið var að selja
þessi ódýru veiðarfæri, hefir
viljað bera mjög á því, að fiski-
menn hafa tapað óvenju miklu
- * veiðarfærum og þykir það
nda til þess, að þessi veiðar-
færi séu svo ónýt, að ábyrgðar-
liluti sé að selja mönnum þau.
Nú liefir norska stjórnin veiti
20 þúsmid krónur til þess að
gera tilraunir um styrkleika og
gæði veiðarfæra, sem höfð eru
á boðstólum í Noregi og er ætl-
anin að byggja á þeim rann-
sóknum löggjöf sem komi í veg
fyrir það að svikin eða ónýt
veiðarfæri séu höfð til sölu. FÚ.
Norska verslunarmálaráðu-
neytið liefir skipað nefnd til
þess að undirbúa samsölufyrir-
komulag á þorski nýveiddum
og söltuðum í Noregi. Er nefnd-
inni boðið að athuga hvort
möguleikar séu á að koma sam-
sölufyrirkomulaginu á, eldci
siðar en 1939. FÚ.
ítalir eru að koma sér upp 20
nýjum kafbátum á þessu ári.
- (FÚ).
Ákveðið er að kosningar skuli
fara fram 12. desember í Rúss-
Iandi og er kosningaundirbún-
ingur þegar hafinn. (FÚ).
Japanski herinn er nú kom-
inn 250 mílur suður fyrir Peip-
ing. FÚ.
Sex friðarfélög hafa mótmælt
ræðu Roosevelts, og krefjast
þess að Bandaríkin blandi sér í
engar deilur annara ríkja. FÚ.
Breskir blaðamenn þykjast
vita, að ráðherrafundurinn í
gær hafi hafnað viðskiftabanni
á japanskar vörur. FÚ.
Ankakosniog á Englandi
EINKASKEYTI TIL VÍSIS.
London í morgun.
ukakosningin í gær í North-
Islington fór þannig að
frambjóðandi verka-
manna dr. Haden Guest bar
sigur úr býtum. Hann fékk
13.523 atkvæði Frambjóðandi
íhaldsflokksins Sir Wilfred
Sugden hlaut 12.227 atkvæði.
Aukakosningin fór fram vegna
andláts fyrrverandi þingmanns
kjördæmisins, Goodmans of-
ursta. —
(United Press).
Utan af landí,
Fjárkaup Húnvetninga.
Tveir bændur úr Vestur-
Húnavatnssýslu dvöldu á Kópa-
skeri meðan slátrun stóð yfir,
til þess að kaupa lífkindur til
flutnings vestur á Heggstaðanes,
en þar hefir öllu sauðfé verið
lógað vegna mæðiveikinnar.
Keyptu þeir alls 540 kindur sem
fluttar voru á Súðinni 10. þ. m.
rakleitt vestur.
Vænir dilkar.
Aðalslátrun sauðfjár hjá
Kaupfélaginu á Kópaskeri var
lokið 9. þessa mánaðar. Tala
sláturfjiár var 10742 — þar af
dilkar 9562. Meðalvigt dilka-
kjöts var 14,51 kílógramm. —
Þyngsti dilkskrokkur var 25
kilógrömm. Hæsta meðalvigt
hafði Ingimundur Halldórsson
bóndi á Einarsstöðum 17,26
kílógrömm á 39 dillcum. FÚ.
Útflutnin^gur bátafiskjar.
Nýfarnir eru frá Austfjörð-
um togararnir Surprise og Egill
Skallagrímsson, fullfermdir ís-
fiski frá Fáskrúðsfirði og Eski-
firði. Afli hefir þó verið tregur
undanfarið en gæftir ágætar.
Á Fáskrúðsfirði
er slátrun að verða lokið. Slátr-
að er um 2000 fjár. (FÚ).
Kýr ein á Fáskrúðsfirði
bar í nótt þremur kálfum —
öllum fullburða og meðalstór-
um. Kúna á Stefán Pálsson
verkamaður. (FÚ).
Síldartorfa.
I gær sá fiskibátur stóra síld-
artorfu skamt undan Raufar-
hafnarhöfða. Bátverjar töldu
það millisíld. FÚ.
Gjaldeypis-
veralunin.
Ný peglugerð.
I Lögbirtingablaðinu liefir
verið hirt ný reglugerð um
g j aldeyrisverslun.
I fyrsta lagi tekur hún fram,
að allir, sem koma til landsins
frá útlöndum, skuli gefa
skýrslu um þann erlenda gjald-
eyri, sem þeir liafi meðferðis og
skuldbindi sig til að afhenda
hann bönkunum .
í öðru lagi er ákvæði um
bann gegn útflutningi ísl. pen-
ingaseðla, sem er að vísu ekk-
ert nýtt, en er nú vafið í nokkru
meiri umbúðir en áður var.
Mega menn slcv. hinni nýju
reglugerð aldrei hafa meira
rneð sér af íslenskum pening-
um lil útlanda, en nemur fæði
og þjónustugjaldi á skipinu og
má sú upphæð ekki fara fram
úr 350 kr. báðar leiðir.
Allir, sem til útlanda fara,
eiga að gefa skýrslu um það,
live mikinn gjaldeyri þeir hafi
meðferðis og fær Gjaldeyris-
nefnd þær skýrslur.
Tolleftirlitsmenn eiga að
„framkvæma eftirlit til að
tryggja það, að íslenskur gjald-
eyrir sé ekki fluttur út né frá
útlöndum hingað“, en ekki er
nánara sagt um hve langt þaS
eftirlit nær. Ennfremur ber
póstmönnum að hafa eftirlit
með bréfa- og böglasendingmn,
til að koma í veg fyrir útflutn-
ing gjaldeyris.
Þessar nýju reglur munu
koma að litlu lialdi og peninga-
straumur sá sem verið hefir út
úr landinu mun lialdast. Regl-
urnar sýnast ekld vera þannig,
að líldegt sé að þær nái tilgangi
sínum. Shkar skýrslugerðir og
yfirlýsingar, sem gert er ráS
fyrir, verður namnast annað en
formið eitt og eru þessar reglur
eitt dæmið enn um það hvem-
ig nú er hrúgað upp gagnslitl-
um Iagaboðum, sem eru í raun-
inni eldd annað en formflækja,
er á engan hátt grefur fyrir þaS
mein, sem tilgangurinn er aS
lcomast fyrir.
Það er öllmn vitanlegt, að
mikið af íslenskum peningum
er flutt út og vixlað þar með
20—30% afslætti, og þau bönn,
sem á shku liafa verið, hafa
ekki komið að lialdi, og því er
hin nýja reglugerð sett.
Knattspynmmót í II. 11.
fyrir Norðlendingafjörð-
nng.
Knattspymumóti í fyrsta
flokki fyrir Norðlendmgafjórð-
ung lauk á Akureyri síðastlið-
inn sunnudag. —
Þátttakendur voru: íþrótta-
félagið Magni í Grenivík, Þór á
Akureyri og Knattspyrnufélag
Akureyrar á Akureyi’i. Kept var
um Valsbikarinn. Úrslit urðu
þau að Þór hlaut 4 stig; Knatt-
spyrnufélag Akureyrar eitt
stig og Magni eitt stig.
Alls liefir verið kept 8 sinnum
um bikarinn, og hefir Knatt-
spyrnufélag Alcureyrar unnið
hann sex sinnum, Magni ehiu
sinni og Þór einu sinni. —
FÚ.
Næturlæknir
í nótt Bergsveinn Ólafsson, Há-
vallagötu 47, sírni 4985. Næturv.
í Laugavegs og Ingólfs apótekum.
aðeins Loftup.