Vísir - 19.10.1937, Qupperneq 3
VlSIR
Sjávariítvegsmálin
á Atþingi.
SjálfstæSsmenn á Alþingi hafa að nýju hafið
sókn í málum útvegsins.
Þeir vilja með stórfeldum iðnaði í sambandi
við útgerðina breyta framleiðslunni í sam-
ræmi við þarfir og kröfur nútímans.
Nú þegar eru fram komin í
þinginu frá Sjálfstæðismönnum
nokkur frumvörp til eflingar og
tryggingar sjávarútveginum.
Fleiri frv. um útvegsmál verSa
lögð fram á næslu dögum.
Frv. um ríkisstyrk til bygg-
inga niðursuðuverksmiðja.
Það frv., sem vekja mun
einna mesta athygli á þessu
þingi, er frv. um byggingar nið-
ursuðuverksmiðja. Aðalfluln-
ingsmaður þess er form. Sjálf-
stæðisflokksins, Ólafur Tliors.
Samkvæmt frv. er ætlast til,
að félög útgerðarmanna og sjó-
manna, og annara þeirra, er
vinna að hagnýtingu sjávarafla
og verslun með sjávarafurðir,
njóti styrks úr ríkissjóði til
þess að reisa niðursuðuverk-
smiðjur á þeim stöðum, sem vel
liggja til móttöku sjávarafla.
Styrkurinn skal vera 14 verðs
bygginga og véla.
í greinargerð frv. er sýnt
fram á það, hve stórkostleg
nauðsyn á því er, að auka verð-
mæti útflutnings, og að beinasta
og besta leiðin til þess sé sú, að
vinna úr sjávaraflanum sem
verðmætastar vörutegundir. Er
skýrt frá því, að Norðmenn,
sem liafa svipuð skilyrði og Is-
lendingar i þessum efnum,
flytja út niðursoðinn sjávarafla
fyrir liátt upp í sömu fjárhæð
og allur útflutningur sjávaraf-
urða frá íslandi nemur, eða fyr-
ir rúmlega 33 miljónir króna
á ári. Einnig er þar sýnt fram
á það, að stórfeldur iðnaður í
sambandi við útgerðina er bein-
asta og álitlegasta leiðin lil
þess að leysa gjaldeyrisvand-
ræðin og létta atvinnuleysisböl-
ið, jafnhliða því að bæta rekstr-
arafkomu úlgerðarinnar.
Frumvarp um bygging húsa
til að hraðfrysta fisk.
Aðalflutningsmaður þessa
frv. er Thor Thors þm. Snæfell-
inga. Yar samhljóða frv. þessu
flutt af sjálfstæðismönnum á
síðasta þingi, en fékk þá ekki
afgreiðslu vegna tómlætis
stjórnarflokkanna og þingrofs-
ins.
Ennfremur er fram komið
frv. um afnám útflutnings-
gjalds af fiski, og þingsályktun-
artillaga um eflingu landhelgis-
gæslu íslendinga og uppsögn á
gæslu Dana hér við land. Þessi
tvö síðast töldu mál voru flutt
af sjálfstæðismönnum á síðasta
þingi, en fengu þá elcki af-
greiðslu.
—o—
Sjiálfstæðismenn hafa frá
fyrstu verið brautryðjendur í
sjávarútvegsmálum. Nálega alt
framtak og öll nýbreytni til cfl-
ingar og umbóta á sviði útvegs-
ins er þeirra verk. Það má því
teljast eðlilegt, að á Alþingi liafa
það einnig verið sjálfstæðis-
menn sem gert hafa velferðar-
mál útvegsins að baráttumál-
um. En því miður hafa stjórn-
arflokkarnir liaft lítinn skilning
á þýðingu þessa stórfelda at-
vinnuvegar, og hafa.því snúist
öndverðir gegn flestum umböt-
um honum til handa. Hafa
varla á síðustu þingum verið
harðari átök um önnur mál en
útyegsmáíin. Hjá Alþýðuflokkn-
um hefir þetta skilningsleysi
snúist í megna andúð og að lok-
urn í fullkomna ofsókn. Gekk
þetla loks svo langt á síðasta
þingi, að Framsóknarflokkur-
inn skarst úr leik, er Alþýðufl.
vildi gera öll togarafélög gjald-
þrota. Sá ágreiningur innan
stjórnarliðsins gefur sjálfstæð-
ismönnum nokkura von um að
umbótatillögur þeirra kunni að
mæta meiri skilningi á þessu
þingi en undanfarið, einkanlega
vegna þess að liin lierfilega út-
reið Alþýðuflokksins við síðustu
kosningar var öllum vitanlega
fyrst og fremst kveðja þeirra
manna, sem hafa lífsuppeldi sitt
af sjósókn, beint eða óbeint.
Sjálfstæðismenn munu því
ekki siður flytja málefni útvegs-
ins djarflega á þessu þingi, en
þeir hafa áður gert.
Alþingi.
I gær voru fundir í báðum
deildum, en aðeins sitt máhð
í livorri til fyrstu umræðu:
I efri deild frv. Sigurjóns
Ólafssonar um breyt. á 1. um
eftirlit með skipum, noldeuð
breytt frá því sem það var borið
fram á síðasta þingi.
I neðri deild frv. um Bygg-
ingarsjóð sveitanna, sem flutt
var á síðasta þingi af Jóni Sig-
urðssyni frá Reynistað, en nú
af Jóni Pálmasyni og Pétri
Ottesen. Fylgdi J. P. frv. úr
hlaði með stuttri ræðu og var
því siðan vísað til landbúnaðar-
nefndar.
Milli 20 og 30 lagafrumvörp-
um og þingsályktunartillögum
frá einstökum þingmönnum
hefir nú verið útbýlt í báðum
deildum, og eru það flest mál,
sem* dagaði uppi á vetrarþing-
inu. Frá ríkisstjórninni hefir
eldcert komið fram annað en
fjárlagafrumvarpið og tvö frv.,
sem flutt eru í e. d. af Páli
Herm. f. h. landbúnaðarráðh.:
Frv. um br. á 1. um Búnaðar-
banka og frv. um sauðfjárbað-
anir, sem bæði voru lögð fyrir
síðasta þing.
Af frumv. þeim, sem fram
eru komin, má ennfr. nefna:
Br. á 1. um alþ.tryggingar (G.
Sv. o. fl.), frv. um byggingu
liúsa til að hraðfrysta fisk, frv.
um vinnudeilur, frv. um lág-
marksverð á sauðakjöti og frv.
um ríkisstyrk til byggingar nið-
ursuðuverksmiðju, sem öll eru
flUít af sjálfstæðismönnum og
óll komu fram á siðasta þingi,
nema bað síðasttalda.
Smokkfiskur
veiðist nú í Steingrímsfirði og
er lagður í frystihúsið í Hólma-
vik. — (FÚ).
a&eíns
Ættarakrá
eftir prófessor Bjarna Þor-
steinsson, prest í Siglufirði, er
auglýst að nýju til sölu þessa
dagana í ýmsum bókahúðum og
hjá kostnaðarmanni hennar.
Ef hefi ekki orðið þess var
lengi, að bók þessi væri á boð-
stólum og hugði eg liana upp-
selda, en úr þvi að hún er nú
aftur fáanleg (og með stórum
lægra verði en áður), þá vil eg
geta liennar nokkurum orðum,
þvi fremur fyrir þá sök, að
liennar var litt eða ekki getið í
blöðum, er hún kom út.
Bókin birtist um það leyti,
sem höfundurinn varð sjötugur
að aldri og þótt lians sjálfs væri
þá maldega minst í blöðunum
og annars staðar og talin nokk-
ur afrek hans, þá var þessarar
bókar ekki getið, lieldur rætt
um þau verkin, sem þjóðkunn
voru áður: starf hans við söng-
listina, tónsmíð og söfnun ís-
leiiskra þjóðlaga.
Þessi þáttur í starfsemi pró-
fessors Bjarna er þó all-veiga-
mikill og ber vitni um víðtæka
ástundun hans á þjóðlegum
fræðum. Hefir það lcostað mikla
elju að viða að til þessarar bók-
argerðar og verið torvelt manni
úli á landshorni fjarri öllum
handrita- og skjalasöfnum, svo
mikil þekking, sem saman er
dregin í bókinni um margar
ættir nútíma-manna. Bókin er
31 örk að stærð eða nær 500
blaðsíður og þvi umsvifamikil,
enda vann höf. að henni um
mörg ár í tómstundum sínum.
I formála bókarinnar telur
liöf. hátt á fjórða tug fróðra
manna, karla og kvenna, austan
hafs og vestan, er „mest og
best“ liafi stutt liann við starfið,
auk margra, sem ekki eru nafn-
greindir. Meðal þeirra, sem
nefndir eru, má fyrst fræga
telja: Hannes Þorsteinsson og
Pétur Zóphóníasson.
Bókin er i tveimur aðalköfl-
um. Fyrri aðalkaflinn grcinist í
fjóra floklca, föðurætt og móð-
urætt beggja foreldra liöfund-
arins. I I. flokki hefst ætt-
rakning á síra Jóni Jóns-
syni eldra á Gilsbakka og
niðjatal hans alt til yngstu
kynslóðar (1929). I þeim flokki
er m. a. Briemsætt og ennfrem-
ur ætt Kolbeins prests í Miðdal,
á þriðja þúsund afkomanda. I
II. fl. er Kalmanstunguætt. I
III. fl. afkomendur Halldórs
prófasts í Reykjaholti, rakin til
nútíma-manna. Einn þáltur
þeirrar ættar er Finsens-ætt.
IV. fl. hefst á Gunnlaugi Niku-
iássyni í Borgarlireppi uin 1700
og raktir afkomendur hans.
Flestir þeirra eru Mýramenn og
Borgfirðingar.
I öllum þessum flokkum
kemur fram fjöldi nafnkunnra
manna víðsvegar um land og
vestan hafs og ýmislegur fróð-
leikur um þá; fæðingardaga
og ártala er getið við nöfn
þeirra þúsundum saman og
margs annars, er þá varðar. Er
hér þvi safnað fræðslu um
mikla ættbálka á 19. og 20. öld,
sem hvergi er kostur að finna á
prenli né í samfeldum rilgerð-
um annars staðar.
Síðari aðalkafli bókarinnar er
í 125 greinum. Rekur liöf. þar
ýmsa kynþáttu ættar sinnar aft-
ur í tímann, svo sem unt hefir
verið, suma alt til forneskju. Er
þar fylgt líkum liætti, sem gert
er í Tímariti Jóns Péturssonar.
Þó eru sums staðar raktir ætt-
leggir ýmist í karllegg eða kven-
legg, svo sem tílt er í gömlum
ættartölum. Þessi liluti ritsins
er miklu styttri en liinn fyrri og
að mestu samansettur eftir
Sýslumannaæfum og fornþátt-
um P. Z. aftan við Ættir Skag-
firðinga. Ýmsar samskeytingar
fornætta eru teknar eftir öðrum
ritgerðum, prentuðum á víð og
dreif, en sumar þeirra hafa í
fyrstu verið settar fram sem á-
giskanir, meira eða minna lík-
legar, en ekki fengist full rök
fyrir. Engu að síður kemur kafli
þessi að góðum notum, einkum
þeim, er ekki liafa þær bækur
handbærar, sem við er stuðst,
og getur flýtt fyrir mörgum,
sem rekja vilja ættir sínar til
fornmanna.
Fyrri aðalkafli er veigameiri,
enda meginhluti bókarinnar.
Oft hefir liöf. orðið að lilíta
framtali annara manna við
niðjatölin, og getur jafnan kom-
ið fyrir, að eitthvað liafi gleymst
úr eða verið ókunnugt sögu-
manni; má og vera, að sumir
liafi eigi liirt um að greina ein-
Iiverja frændur sína, sem þeim
þótti minnstur slægur í. En litið
mun þó um þess konar úrfell-
ingar.
Höf. liefir ekki sjálfur séð
um prentun bókarinnar og eru
þar einstakar smá-misfellur,
sumar teknar úr eldri bókum,
sem mátt hefði lagfæra við
prentun.
Greiðari liefði bókin verið til
nota ef nafnaskrá liefði fylgt.
En kostnaðarauki hefði það
verið.
Eg hefi alls ekki ætlað að
skrifa neinn ritdóm um bókina
með línum þessum, heldur hefi
eg viljað benda fróðleiksmönn
um á gott tækifæri til þess að
eignast merkilega ættartölubók
á auðveldan lnátt. B. Sv.
Hafliði M. Sæmundsson:
Niðurl.
Hver er árangurinn?
Nú mun mörgum vera forvitni
á aS vita hver árangurinn af dvöl
nemendanna i þessum skólum er
yfir höfuð. Ekki er nema nokkur
hluti hans sýnilegur, en þó er rétt
a‘ð geta þess sem augljósast er.
Heildar útkoman er sú, a'ð 8o%
af nemendunum liaf'a yfiru'nniö
alla hneigS til afbrota, aS því er
séS verður, og 92—98%, af sum-
um árgöngum bestu skólanna, hafa
ekki brotiS af sér aftur. Frá eldri
skólunum eru um 20% nemend-
anna fullgildir iSnaSarmenn, um
60% færir um aS vinna viS ein-
hverja handiSn, en 20% einungis
færir um aS gegna störfum sem
algengir verkamenn.
Um áramótin 1936 höfSu veriS
innritaSir í jæssa skóla, vegna af-
brota, 8019 nem. Af þeim voru
6748 drengir og 1271 telpur. En
margir af þessum skólum veita
börnurn viStöku, sem ekki hafa
Alúðar þakldæti til allra, sem sýndu lijálp og virðingu
við jarðarför elsku sonar okkar og bróður,
Ölafs Sumarliða,
Iíristín Ingimundardóttir, Gamaliel Kristjánsson og systur.
Jarðarför konunnar minnar og móður okkar,
Magðalenu Eiríksdóttur,
fer fram fimtudaginn 21. þ. m. og hefst með bæn að heim-
ili liennar, Baldursgötu 27, kl. 1 eftir hádegi.
Hans Bjarnason og börn.
til þess, að SJÖVÁTRYGGING-
ARFÉLAG ÍSLANDS H.F. líf-
tryggir meira en nokkurt ann-
að félag á Iandinu?
að auk þess að bjóða betri
kjör og lægri iðgjöld og vera
eina íslenzka líftryggingarfé-
lagið getur það afgreitt líf-
tryggingar með skemmri fyr-
irvara en önnur félög.
Líftryggingardeild
SjóYátryggingarfélags íslands h.f
Aðalskrifst.:
Eimskip II. liæð.
Sími 1700.
T ryggi n garskr if s tof a:
CARL D. TULINIUS & CO.
Austurstr. 14, II. hæð, sími 1730.
Skólar fyrir afbretabfirn og nnglinga á Esglanái.
brotiS af sér, eins og áSur er get-
iS, og vernda þau þannig frá því
aS lenda á glapstigum. HöfSatalan
er því ekki svo lítil, sem læknast
af ]>essum meinum á Englandi ár-
lega.
Fylgt úr hlaði.
Þeirri reglu er fylgt, aS útvega
nemendum atvinnu eins fljótt og
þeir eru færir um aS yfirgefa skól-
ann, en aftur á móti eru þeir undir
eftirliti hins opinbera í 2—3 ár
þar á eftir. Ef nemandinn er innan
viS 15 ára þegar hann yfirgefur
skólann, er hann undir eftirliti til
18 ára aldurs, en sé hann yfir 15
ára er haft eftirlit meS honum þar
ti! hann er 21 árs. EftrirlitiS er
venjulega í því fólgiS, aS skóla-
stjóri, eSa maSur sem skólinn sam-
þykkir, fylgist meS unglingnum
og leiSbeinir honum undir erfiS-
um kringumstæSum, og er ráSa-
maSur hans og vinur. Ef foreldrar
unglingsins eru ekki færir um aS
veita honum þau lífsskilyrSi, er
nauðsynleg þykja, aS skólavist-
inni lokinni, er honum séS fyrir
vist annarsstaSar.
Eg vil svo enda frásögn mína
og lýsingu á þessum skólum meS
því aS þýSa lauslega bréf frá ein-
um þeirra, sem sent er til foreldra
eSa forráSamanna, þegar nýr nem-
andi innritast.
1
Kæru. foreldrar.
ÞaS var veriS aS innrita son
ySar í skóla minn, og þér þráiS
vafalaust aS vita hverskonar
stofnun þetta er.
Eg sendi yður hér meS útdrátt
úi reglugerS skólans, sem eg vona
fastlega aS megi hjálpa ySur til
aS kynnast honum. Þér getiS skrif-
ast á viS son ySar eftir^vild, og
þér megiS senda honum bækur,
peninga og sælgæti. Þegar þér
heimsækiS hann, megiS þér taka
'hann meS ySur út, ef þér óskiS
ekki eftir aS hafa viSdvöl í skól-
anum. Ef hann kemur sér vel, og
heimili ySar er gott, fær hann aS
lieimsækja ySur á hverju ári í
skólaleyfinu. ÚtrýmiS því úr huga
ySar aS svona skólar líkist fang-
elsi, þá munuS þér betur skilja
og virSa hvaS viS ætlum aS reyna
aS gera fyrir son ySar.
Tilgangur okkar er aS hjálpa
hverjum dreng, er hér dvelur, til
aS fá eins gott uppeldi og ment-
un sem mögulegt er, svo hainn
verSi-fær um aS gegna starfi sínu
í lífinu sem fulltíSa maSur.
Til 14 ára aldurs nýtur liann
skólavistar á hverjum degi og til
viðbótar viS venjulegt nám lærir
hann trésmíSi, málmsmiSi og garS-
yrkju. Hann fær ennfremur æf-
ingu í heimilsstörfum, svo sem aS
búa um rúm, sópa gólf, bæta fatn-
aS o. s. frv. Ef hann er hneigSur
fyrir hljóSfæraslátt mun þaS veita
honum yndi, aS leika á hljóSfæri
í skólahljómsveitinni.
Þegar hann er 14 ára byrjar
hann aS vinna, annaShvort við
smíSar, vélar, garSyrkju eSa heim-
ilisstörf, og er undir venjulegum
lcringumstæSum fær um aS yfir-
gefa skólann 15 ára.
Hann mun einnig verSa hvattur
til íþrótta. Hér eru fjórir íþrótta-
fiokkar og verSur hann meSlimur
í einum þeirra. Þess er vænst, aS
hann geri alt sem hann getur til
aS vinna aS heiSri síns flokks. í
skólanum er mjög fullkomin sund-
laug og drengnum ySar mun verSa
kent aS synda. Hann verðurhvorki
látinn skorta föt né fæSi, og það
mun verSa vakaS yfir heilsu hans.
Þér megiS vera fullviss um, aS
alt verSur gert til aS auka hreysti
hans og heilbrigSi og gera hann
aS manni sem má treysta.
Svona skóli hefir vandasamt
veilk aS vinna, því sérhver diæng-
ur skapar sérstakt úrlausnarefni.
Þér getið hjálpaS okkur mjög mik-
iö, meS því aS gefa okkur upp-
lýsingar um drenginn yðar. Þetta
getiS þér gert bréflega, eSa annaS-
hvort þegar þér heimsækiS skól-
ann eSa viS heimsækjum ySur.
Sá er einn tilgangur skólans,
aS ala upp drengi, sem vilja gera
þaS; sem gott er, og liía sam-
kvæmt einkunnarorSum hans, sem
eru:
„SigraSu hiS illa meS hinu *•
góSa“. (Overcome evil with
Good). Ef viS leggjumst öll á eitt,