Vísir - 05.02.1938, Side 3
LEIKHÚSIÐ.
Fy rirvinnan.
Lcikrit í 3 þáttum, eftir W.
Somerset Maugham.
Leikfélag Reykjavíkur hafði
frumsýningu á „Fyrirvinn-
unni“ fimtud. 3. þ. m.
Er leikritið hnittið og skemti-
legt með afbrigðum. Leikfélag-
ið á þakkir skiíið, fyrir að hafa
sýnt það, enda kunnu leikhús-
gestir að meta það og guldu
leikendum þakkir með dynj-
and lófataki, bæði við þátta-
skifti og fyrir einstakar setn-
ingar, sem voru smellnar og
vel sagðar.
Efni leiksins skal ekki rak-
ið, en aðeins minst á frammi-
stöðu leikendá, sem var prýði-
leg. Aðalhlutverkið, „Fyrir-
vinnuna“, leikur Ragnar Ilvar-
an. Leikur hans er rólegur,
glæsilegur og heldur athygli á-
horfandans jafnt og þétt. Konu
hans, Margery, leikur Soffía
Guðlaugsdóttir. Hún tekur
myndarlega á hlutverki sínu,
eins og hún er vön, og er
skemtilega óeinlæg og utan-
garna, er á móti blæs.
Börn þeirra leika þau Alda
Möller og Indriði Waage. Hef-
ir Indriði einkum orð fyrir
ungu kynslóðinni um gagnrýni
á foreldrum og þess háttar ó-
þörfu rusli, og er hann mjög
skemtilegur i þessu hlutverki.
Alda Möller hefir ekki langan
leikaraferil að baki sér, en full
ástæða er til að vænta góðs af
henni, eftir leik hennar í þessu
lilutverki að dæma.
Brgnjólfur Jóhannesson leilc-
ur Alfred Granger, sem er mjög
fyndinn og slcemtilegur að eig-
in áliti. Fögnuðu áhorfendur
lionum ákaft, þegar er liann
kom inn, liress og sprækur og
mikill á ferðinni. Konu hans,
Dorothy, leikur Arndís Björns-
dóttir. Kýmni hennar er hárfín
og markviss, og brást ekki lield-
ur i þetta sinn.
Börn þeirra léku þau Regína
Þórðardóttir og Gunnlaugur
Ingvarsson. Frú Regína er
mjög skemtileg í þessu lilut-
verld, og í síðasta þætti er leilc-
ur hennar hæði fjörugur og til-
breytingaríkur. Gunnlaugur er
lítt vanur leikari og hlutverk
lians viðaminst, og má vel við
una leik hans í svona vanda-
sömu leikriti.
í hyrjun leiks i fyrsta þætti
heyrðist ekki vel til leikend-
anna, og má vafalaust kenna þvi
um, að þarna voru með að
verki hinir óvanari leikendur,
sem ekki hafa ennþá tamið sér
nægilega skýrt tungutak. Er á
leið leikinn, og liinir vönu leik-
endur komu til skjalanna,
hvarf þetta.
Somerset Maugham er best
þektur hér sem skáldsagnahöf-
undur. Skáldsögur lians eru á-
gætar, en ekki sérlega skemti-
legar. En sé leikrit lians öll
eins skemtileg og „Fyrirvinn-
an“, má óhikað telja liann með
allraskemtilegustu leikritahöf-
undum. Leikritið er gáfuleg,
fyndið og mikið umliugsunar-
efni. Verður dálítíð fróðlegt að
sjá, livernig því verður tekið,
þvi að það er nokkur próf-
steinn á hæfileika leikhúsgesta
til að meta prýðilegt leikrit og
snjallan leik.
Ragnar Kvaran hefír sett
leikinn á svið, og er verkið
honum til sóma.
adeins Loftur.
VISIR
Alþýðublaðið dæmir framkomu
Héðins Valdimars-
sonar „öheyrilega“.
Fiskiféiao íslðnds.
ÁÍalfHndnr |ess var
haldlnn í gær.
Socialistar eg-na Héðin með
daglegnm svÍTÍrdingiim.
P ins og kunnugt er er sterk
w hreyfing uppi innan Al-
þýðuflokksins, sem vinnur að
því að Héðinn Valdimarsson
verði rekinn úr flokknum.
Þessi hreyfing hefir enn þá
sem komið er meira aðhafst bak
við tjöldin en að hún hafi kom-
ið opinberlega fram, en nú virð-
ist margt benda til þess, að kraf-
an um brottrelcstur Héðins
verði ekki lengur þögguð niður.
Alþýðublaðið lét þau orð
falla fyrir fáum dögum, að und-
irróðursstarfsemi sú sem þróast
hefir innan Alþýðuflokksins og
unnið hefir að sameiningu með
kommúnistum, yrði naumast
lengur þolað.
í gær gengur þetta blað sósí-
alista feti framar. Það gerir
starfsskrá Héðins og kommún-
ista, sem haldið var leyndri þar
lil Þjóðviljinn birti hana í gær,
að umtalsefni og telur efni
hennar miða að því að „falsa
kosningaúrslitin“. Sú grein
starfsskrár Héðins & Co. sem
hér er átt við er um það, að
„fari svo að svo miklar breyt-
ingar verði gerðar á listanum
(þ. e. A-listanum) að menn
komi inn i bæjarstjórn í annari
röð en á listanum er, skal sá
flokkur, sem missir sæti vegna
þessara breytinga, fá varamann,
er stöðugt sitji i bæjarstjórn-
inni, í stað þess sætis sem hann
hefir mist.“
Eins og við horfði fyrir kosn-
ingar bjuggust margir i herbúð-
um Héðins við, að kommúnist-
ar yrðu strikaðir út af óánægð-
um sósíalistum og þetta á-
kvæði var sett til að tryggja
kommúnistum sæti sarnt, þótt
kjósendur liefðu látið í ljósi með
útstrikunum að þeir vildu ekki
kommúnista.
Um þetta ákvæði í leynisamn-
ingi Héðíns segir Alþýðublaðið í
gær:
„Hér var um fáheyrt brot á
lögum og lýðræði að ræða og
óheyrilegt, að nokkur Alþýðu-
flokksmaður skyldi láta hafa sig
til þess að skrifa undir slíkan
samning. (Leturbr. Alþbl.).
Alþýðublaðið er hér ekki
myrkt í máli. Það kveður upp
ú'r með að það sé „óheyrilegt“
að Héðinn og Sigfús Sigurhjart-
arson hafi skrifað undir samn-
inginn við kommúnista.
Aðstaða Héðins Valdimars-
sonar er ekki öfundsverð um
þessar mundir.
Eftir þann mikla ósigur, sem
hann beið á sunnudaginn var,
verður hann nú að þola dagleg-
ar ásakanir um „óheyrilega"
framkomu undírróður og „fals-
anir“ í blaði þess flokks, sem
hann enn ]iá telst tíl.
Sjómannakveðja..
FB. föstudag.
LagSir af stað áleiðis til Eng-
lands. VellíSan. Kærar kveSjur.
Skipverjar á Snorra goða.
Sameináða.
Áætlun Samema'öa gufuskipafé-
lagsins fyrir þetta ár er nýkomin
út. Dronning Alexandrine er ein
í ferSum og fer eingöngu hra'S-
fei'Sir. Ferðir hennar verða eins
og að undanförnu, kemur hingað
þriöja hvern sunnudag, og eru
ferðirnar 16 á þessu ári.
inn Valdimarsson. Er aðalefni
þess, að Stefán Jóhann hafi
svikið stefnu fulltrúaráðsins og
kommúnista, og staðfestir með
ummælum sínum alt það, sem
kommúnistar hafa áður haldið
fram um brigðmælgi sósíalista.
En athugavert er, að Héðinn
segir berum orðum, að Jón
Baldvinsson hafi komið þvi til
leiðar, að hann fengi ekki bor-
ið hönd fyrir höfuð sér i Al-
þýðublaðinu, og hafi hann
skrifað grein út af deilum
þeim, sem nú standa yfir, en
Jón bannað Alþýðublaðinu að
birta greinina.
Ef þetta er rétt, þá hefir
Jón Baldvinsson nú „kastað
hanskanum“ að Héðni.
Virðist því sú hreyfing
innan Alþýðuflokksins, sem
vill láta ósigrana bitna á
Héðni, nú hafa byr meðal
foringjanna. En fyrst svo er,
má vera, að innan skamms
megi vænta ýmsra atburða.
Eftir er að kjósa
framkvæmda-
nefnd.
Fundur var lialdinn i Odd-
fellowhúsinu i gær, til að kjósa
í sýningarráð fyrir New York-
sýninguna 1939.
Á síðasta fundi um þetta mál
liafi nefnd verið skipuð til að
tilnefna 10 menn i ráðið, og
var listi hennar samþyktur en
á honum voru þessir menn:
Hallgrímur Benediktsson,
Eggert Kristjánsson, Aðal-
steinn Kristinsson, Helgi Pét-
ursson, Helgi Bergs, Thor
Thors, G. Vilhjálmsson, Matt-
hías Þórðarson, Ásgeir Þor-
steinsson og Finnur Jónsson.
Ríkisstjórriin tilnefnir 5
menn, og eru þeir þessir: Jón-
as Jónsson, Steingr. Steinþórs-
son, Emil Jónsson, Jón Bald-
vinsson og Árrii Friðriksson.
Hver af hinum kjörnu full-
trúum má tilnefna varamann
i sinn stað.
Ráð þetta skal kjósa þriggja
manna framkvæmdanefnd, en
ráðið á að koma saman innan
skamrns, og kveður Jón Bald-
vinsson það saman.
Bæjarstjóm Vestmannaeyja,
hín nýkjörna, hélt fyrsta fund
sínn í fyrradág. Forseti bæjar-
stjórnar var lcosinn Ástþór Matt-
híasson. Enn fremur var kosiö í
ýmsar nefndir o. fl.
Trúlofun.
Nýlega hafa opinberað trúlofun
sína ungfrú Jónína Siguröardóttir,
Flókagötu 5 og Guðmundur Stef-
ánsson, Hverfisgötu 64.
Aðalfundur Fiskifélagsins
var haldinn í gær í Kaup-
þingssalnum. Geir Sig-
urðsson skipstjóri setti fund-
inn í forföllum Kristjáns Bergs-
sonar, forseta félagsins, sem
nú liggur í sjúkrahúsi.
Fundarstjóri var kosinn
Benedikt Sveinsson, en ritari
Arnór Guðmundsson. Skýrsla
forseta um störf félagsins á
liðnu ári var lesin upp af Geiri
Sigurðssyni. Starfsmenn Fiski-
félagsins giáfu skýrslur um störf
sín á árinu: Ámi Friðriksson
fiskifr. (sem starfað hefir und-
angengin 6 ár hjá félaginu en
nú veitir forstöðu fiskirann-
sóknum Atvinnudeildar Háskól-
ans), Þorsteinn Loftsson vélfr.
og dr. Þórður Þorbjamarson.
Niðurstaða þorskrannsókna s. 1.
ár varð sú, að búast mætti við
betra aflaári í ár, en síðustu ár
eða síðan árið 1932. — Voru
skýrslurnar yfirleitt hinar fróð-
legustu og vöktu mikla athygli.
Skákþlng
íslendinga
I gærkveldi fór fram fjórða
umferð í Skákþingi Islendinga
og fóru leikar sem hér segir
í meistaraflokki: Ásmundur
Ásgeirsson vann Guðhjart Vig-
fússon, Einar Þorvaldsson
vann Eggert Gilfer, og Bald-
ur Möller vann Steingrím Guð-
mundsson. Baldur er nú hæst-
ur með 3 vinninga, — og liefir
að auki eina biðskák með mikl-
um möguleikum.
1. flokkur A: Jón Guðmunds-
son vann Garðar Þorsteinsson,
Hersveinn Þorsteinsson gerði
jafntefli við Óla Valdimarsson,
Helgi Kristjánsson gerði jafn-
tefli við Ingimund Guðmunds-
son. Sæm. Ólafsson átti frí. —
Sæmundur og Helgi eru hæstir
með 2% vinning hvor. — 1.
flokkur B: Egill Sigurðsson
vann Jóliann Snorrason, Sig-
urður Lárusson vann Arnljót
Ólafsson, Hjálmar Theódórs-
son vann Höskuld Jóliannsson,
en biðskák varð milli Jóns Þor-
valdssonar og Óla Hermanns-
sonar. Sigurður Lárusson er
enn hæstur með 3% vinning,
2. flokkur: Guðjón Tómas-
son vann Ólaf Einarsson,
Guðm. Guðmundsson vann
Þóri Tryggvason, Helgi Guð-
mundsson vann Jón Emilsson,
Edvald Blomquist vann Gunn-
laug Pétursson, Jón Barðason
vann Eggert Ísaksson, Guðm.
Einarsson vann Einar Bjarna-
son, Karl Gíslason vann Anton
Sigurðsson, Sigfús Jónasson
vann Kristínus Arndal, Björn
Axfjörð vann Kaj Rasmussen,
Haraldur Björnsson vann Guð-
björn Jónsson, Sigurður Jó-
hannsson vann Svein Loftsson,
Gestur Pálsson vann Ingvar
Eyjólfsson, Ingólfur Jónsson
vann Pétur Jónsson og Jóhann
Bernhard og Hákon Hj. Jóns-
son gerðu jafntefli. Skákir Ste-
fáns Þ. Guðmundssonar og
Bjartmars Kristjánssonar, Þor-
leifs Þorgrímssonar og Aðal-
steins Halldórssonar fóru í bið.
Næst verður teflt á sunnu-
dagskvöld kl. 8. Þá eigast við
í meistaraflokki: Gilfer hefir
livitt á móti Baldri, Steingr.
hvítt á móti Ásmundi, og Guð-
bjartur hvítt á móti Einari.
Teflt verður i Varðarhúsinu.
Alúðar þakkir vottum við öllum þeim, er auðsýndu okk-
ur samúð við andlát og jarðarför mannsins mins og fóstur-
föður,
Sigmundar Guðmundssonar.
Málfríður Jónsdóttir. Jón G. Jónsson.
Messur á morgun:.
í dómkirkjunni: KI. n síra
Friðrik Hallgrímsson, kl. 2 síra
Bjarni Jónsson.
í fríkirkjunni: KI. 2(barnaguös-
þjónunsta) og kl. 5 síra Árni Sig-
urösson.
1 Hafnarfiröi: Kl. 2 sjómanna-
messa, sira Jón AuSuns.
1 Laugarnesskóla: Kl. 10.30
barnaguSsþjónusta. Kl. 5 sjó-
mannamessa, síra Garðar Svav-
arsson.
í kaþólsku kirkjunni: 1 Reykja-
vík: Lágmessa kl 6,30 og 8, há-
messa kl. 10, kvöldguSsþjónusta
meö prédikun kl. 6.
í HafnarfirÖi: Hámessa kl. 9,
kvöldguðsþjónusta með prédikun
kl. 6.
VeSrið í morgun:
í Reykjavík — 1 st., minst frost
í gær — 2 st., mest í nótt — 5. Úr-
koma 1.5 m.m. Kaldast á landinu í
morgun —8 st. á Blönduósi, minst-
ur kuldi — 1 st. í Reykjavík, Vest-
ínannaeyjum, Papey og á Reýkja-
nesi. Yfirlit: Lægöin er nú yfir
Noröurlandi og mun þokast hægt
austur eftir. Horfur: Faxaflói:
Vestan og norðvestan kaldi. Nokk-
ur snjóél.
Fyrirvinnan,
eftir W. Somerset Maugham,
verSur sýnd annaö kveld kl. 8 í
Iðnó.
Skipafregnir.
Gullfoss er á leiö til Siglufjarö-
ar frá ísafirSi. GoSafoss er i
Reykjavík. (Brúarfoss er í Kaup-
mannahöfn. Dettifoss kemur til
Grimsby í dag. Lagarfoss var í
morgun á leiS til Djúpavogs frá
Óspakseyri. Selfoss fór frá Leith
i nótt áleiSis hingaS.
65 ára
verSur á morgun Jónas Híro-
nýmusson, Vesturgötu 65.
Messað
í ASventkirkjunni sunnudaginn
6. febrúar kl. 8.30 síSdegis. — O.
J. Olsen.
Óperettan.
Bláa kápan var sýnd í annaö
sinn í gærkveldi fyrir troðfullu
húsi og viö óhemju fögnuö áhorf-
enda. Næst veröur leikið á mánu-
dagskveld kl. 8)4.
S jálf stæðisf élö gin
í HafnarfirSi halda skemtun í
Goodtemplarahúsinu í kveld kl.
8)4. Brynjólfur Jóhannesson leik-
ari og Gisli SigurSsson, söngvari,
skemta. SíSan veröur dansað.
Verslunarmannafélag
Reykjavíkur.
ÁfmælishátíS félagsins, sem
írestaö var laugardaginn fyrir
kosningar, verSur haldin að Hótel
Borg á miövikudaginn kemur. —
Mun ætlun atvinnurekenda flestra
aS opna ekki skrifstofur sínar né
verslanir fyrri en eftir hádegi, kl.
1, svo að menn geta „sofið út"
eftir skemtunina. — FélagiS hefir
stofnaS skrifstofu.á 3. hæS í Ing-
ólfshvoli og er ætlunin meS henni
aS leiSbeina verslunarfólki um at-
vinnu og önnur vandamál.
Ranghermi
var þaö í blaðinu í gær, aS Helgi
H. Eiríksson hefSi veriS kosinn í
stjórn Sjúkrasamlags Reykjavíkur
af hálfu SjálfstæSisflokksins. Átti
að vera dr. med. Helgi Tómasson,
sem átt hefir sæti í stjórninni áSur.
Póstferðir
mánudaginn 7. febrúar: Frá
Reykjavík: Dr. Álexandrine til út-
landa. Fagranes til Akraness.
GoSafoss vestur og noröur. — Til
Reykjavíkur: Lyra frá útlöndum.
Fagranes frá Alcranesi. Grímsness
og iBiskupstungnapóstur.
Útvarpið á morgun.
9.45 Morguntónleikar: Kvintett
í b-moll, Op. 115, eftir Brahms
(plötur). 11.00 Messa í dómkirkj-r
unni (síra Fr. Hallgrímsson). —•
12.15 Hádegisútvarp. 13.00 Ensku-
kensla, 3 fl. 13.25 íslenskukensla,
3. fl. 15.30 MiSdegistónleikar frá'
Hótel ísland. 17.10 EsperantóT
kensla. 17.40 Útvarp til útlanda
(24.52 m.). 18.30 Barnatími. 19,20
Hljómplötur: Dansar úr sónötum.
19.50 Fréttir. 20.10 Norræn kvöld,
I: Danmörk. a) Form. Norræna
félagsins: Ávarp. b) Sendiherra
Dana: RæSa. c) (20.30) Dönsk
tónlist í(endurvarp frá Kaupm-
höfn). d) (21.00) Jón Helgason
biskup: Ræöa. e) Danskir söngv-
ar (plötur). f) Upplestur (Har-
aldur Björnsson, o. fl.). g) Lög
úr „Elverhöj" (plötur). — 22.15
Danslög. 24.00 Dagskrárlok
Helgidagslæknir á morgun:
Björgvin Finnsson. Vesturgötu
41, sími 3940
M.s. Dronning Alexandrine
fór frá Akureyri í gærkveldi á-
leiöis til SiglufjarSar og er nú á
leiS þaSan til Isafjarðar. Skipiö
er væntanlegt hingað á morgun.
Esja
var á Raufarhöfn í morgun. —
Skipið er á leiö til Siglufjarðar,
snýr þar viö og kemur sömu leiS
til baka.
„ílandi eldvaðenda
og hinna langlífu“,
heiti fyrirlestur, er herra Ivan
Krestanoff flytur í GuSspekifé-
lagshúsinu annað kveld kl. 9. —;
Þetta land eldvaSendanna og hinna
langlífu er Búlgaría. Mun fyrir-
lesarinn sýna skuggamyndir með
fyrirlestrinum. Herra Krestanoff
er málfræöingur og aö öllu hinn
merkasti maSur. Mun hann mæla
á Esperanto en Þórbergur rithöf-
undur ÞórSarson þýSa mál hans
á íslensku. Líklegt þykir mér, aö
marga muni fýsa aS heyra þenna
fyrirlestur, ekki síst þar sem ætla
má, að hér sé tækifæri til aö fræSr
ast um þaS aS einhverju leyti,
hvernig á að fara aS því, að verSa:
100 ára eð meira! — Giétar Fells.
Fyrirlestur
um Grænland og íslendinga-
bygðir hinar fornu og endalok
þeirra, heldur SigurSur Sigurðs-
son, fyrrum búnaSarmálastjóri, á
morgun kl. 2 e. h. i Nýja Bíó. —1
ÁriS 1923 fór SigurSur til Græn-
lands og fór þá um alla Eystri-
bygS, en í fyrra fór hann aftur
til Grænlands og fór þá um Vestri-
bygö, svo langt norður, sem álitiS
er að íslendingar hafii nokkuru
sinni komiS, til Króksfjaröar-
heiSar. Fyrirlesturinn fjallar einn-
ig um afdrif íslendinga vestur þar.
Mega menn vænta góSrar skemt-
unar við að hlýSa á SigurS, því
aS hann kann frá mörgu aS segja
á þessum slóöum, enda maSur
glöggskygn.
Fiskmjöl til manneldis.
Frá því í júlí í sumar hefir GuS-
mundur Jónsson, verkfræSingur,
unniS aö rannsóknum á fiskimjöli
og notagildi þess til manneldis og
hafa þær rannsóknir borið góðan
árangur. í því tilefni bauS hann
í gær Fiskimálanefnd, bankastjór-
um, ráSherrum og blaöamönnum
aS boröa ýmsa rétti, er frk. Helga
SigurSardóttir, matreiöslukona,
haföi matreitt úr mjölinu. Réttirn-
ir voru þessir: Venjuleg fiskisúpa,
brún fiskisúpa, tómatfiskisúpa,
fiskibuff, fisk„gratin“ og fiska-
bollur. Voru réttirnir ljúffengir.
FiskimjöliS er framleitt úr fisk-
inum meS beinum o. s. frv. Er
hann aöeins slægSur og tekin úr
honum tálknin.
Útvarpið í kveld:
18.45 Þýskukensla. 19.10 VeS-
urfregnir. 19.20 Strokkvartett út-
varpsins leikur. 19.50 Fréttir. 20.11
Kveld Slysavarnafélagsins: Ávörp,
ræSur, söngur, hljóSfæraleikur.
22.00 Danslög.
Næturlæknir:
í nótt: Bergsveinn ólafsson,
Hávallagötu 47, sími 4985. Aðra
nótt: v\xel Blöndal, Mánagötu 1,
sími 3941. NæturvörSur í nótt í
Laugavegs og Ingólfs ápótekum,
en næstu viku í Reykjavíkur apó-
teki og LyfjabúSinni ISunni.