Vísir - 31.03.1938, Blaðsíða 3

Vísir - 31.03.1938, Blaðsíða 3
VlSIR / sóknarstjórn meó hlut leysi sosialista? Brjóstvitid a ad uægfja i atviunumálarádhorra- stödunni. Talið var í morgun, að niðurstaða væri fengin á samn- ingum Framsóknarmanna og sósíalista um það, á hvern hátt ríkisstjórnin verður skipuð, a. m. k. fyrst um sinn. Niðurstaðan er sögð vera sú, að sósíalistar taki ekki aftur sæti í ríkisstjórninni en veiti Framsóknarflokknum hlutleysi. — Á fundum flokkanna voru þeir tveir möguleikar ræddir. að nýr maður kæmi inn í stjórnina frá sósíalistum, og var þá einna frekast talað um Stefán Jóhann Stefánsson í því sambandi, eða að flokkurinn veitti aðeins hlutleysi. Tillitið til hinna róttækari afla meðal sósíalista hefir orð- ið yfirsterkara, því í yfirstand- andi bardaga um völdin innan Alþýðuflokksins, telja and- stæðingar Héðins Valdimars- sonar sér heppilegra, að vera ekki í stjórnaraðstöðu. Raun- ar gerir hlutleysi það að verlc- um, að flokkurinn verður fylli- lega meðábyrgur á öllum gerð- um stjórnarinnar, og lilýtur að verja þær sem sín eigin verk. Framsóknarm. munu láta það gott heita, að liafa hlutleysi sósíalista, en það mun all-al- menn skoðun meðal þeirra, að stjórnin verði fremur völt. Meðan sósíalistar voru i ríkis- stjórninni, drógu þeir i tvö skifti ráðherrann út úr rikis- stjórninni. En er látið var svo heita, fyrir siðustu kosningar, að samvinnunni væri slitið, sagði ráðherrann þó aldrei af isér, svo sem frægt er orðið. En verði ágreiningur milli flokkanna nú, er ekki um það að ræða fyrir sósíalista, að draga burtu ráðherra, heldur verða þeir að sýna andspyrnu sína með því að hætta hlutleys- inu, og þar með er stjórnin fallin. Hræðast sumir Fram- sóknarmenn, að ýmsir meðal sósialistar hafi tilhneigingu til að nota lilutleysið sem svipu á st j ómarf lokkinn. Allmikill ágreiningur hefir verið um það, hver skyldi verða ráðherra eftir Harald Guðmundsson, og ef velja liefði átt ráðlierra i það sæti, eftir þekkingu og viti, hefði enginn maður fundist i röðum Tíma- manna, sem hafði nægilega þekkingu á sjávarútvegsmál- um, — sem eru mesti þáttur- hafði óbilandi trú á þeim mál- stað, sem hann barðist fyrir, og fylgdi honum fram með feslu og þrautseigju, en af fullri prúð- mensku og lipurð. Þessir hæfi- leikar hans sköpuðu honum þá foringjastöðu, sem hann liafði innan Alþýðuflokksins,. og virð- ingu og traust og vinarhug utan hans. Jón Baldvinsson var í einka- lífi sínu með afbrigðum vinsæll maður, enda vildi hann öllum vel og hvers manns vandræði leysa, cf liann mætti. Hann var fæddur alþýðumaður og þó leyndi sér hvorki í fasi né fram- komu hinn kynborni liöfðingi i ættir fram. Með þessum orðum vil eg flytja hinum látna foringja og starfsbróður hinstu lcveðju Al- þingis. Við kveðjum hann allir með hrærðuin huga. inn í starfi atvinnumálaráðli. En svo sem kunnugt er, er þessi flokkur vanur að láta sér nægja brjóstvitið, og er talið, að einn hinn mest áberandi meðal brjóstvitringanna í Tímaflokknum, Skúli Guð- mundsson, lireppi sætið. Allianee Fran^aise. Fundur var lialdinn í Allian- ce Francaise fimtud. 24. þ. m. Fundurinn hófst með því, að hinn nýkjörni forseti félagsins, lierra Pétur Þ. J. Gunnarsson, stórkaupmaður, ávarpaði fé- lagsmenn nokkrum orðum og mintist ennfremur látins fé- laga, D. Sch. Thorsteinsson læknis, sem ætíð liafði verið áhugasamur félagsmaður; ver- ið um nokkurra árá skeið vara- forseti félagsins, og einnig á tímabili annast frönskukenslu fyrir það. Því næst flutli herra Jean Haupt, sendikennari i frönsk- um fræðum við Háskóla ís- lands fróðlegt og skemtilegt er- indi um Suður-Frakkland. Sýndi liann þaðan ágætar skuggamyndir. í sambandi við erindi sitt, las liann einnig upp bundið og óbundið mál, eftir suma af þektustu rithöfundum Frakka, sem sótt höfðu yrkis- efni sín til þessa hluta Fraklc- lands, þar sem vagga þeirra , hafði staðið, svo sem F. Mistral og A. Daudet. Var allur flutn- ingurinn hinn besti, og gerðu fundarmenn góðan róm að. Þá söng frú Annie Ch. Þórð- arson nokkur frönsk lög. Und- irspilið annaðist ungfrú Anna Péturss. Skemtu menn sér liið besta við að lilusta á þær. Að því loknu settust menn að kaffidrykkju, en eftir það var dans sti^inn Ifram eftir kvöldi. Stjórnarskifti í Rúmeníu. London, 30. mars. FÚ. F orsætisráðherra Rúmeníu sagði af sér í dag og skömmu síðar var honum falið að mynda nýtt ráðuneyti. Það er álilið að tilgangurinn sé sá, að mynda ráðuneyti yngri manna, með hliðsjón af því, að nú er gengin í gildi hin nýja stjórn- arskrá, sem Carol konungur hefir samið. London 31. mars. FÚ. Allir stjórnmálaflokkar í Rú- meníu hafa verið leystir upp af ráðuneytinu. Yfirklerkur Grísk-kaþólsku kirkjunnar í landinu, dr. Myron Christea, er ennþá forsætisráðherra. aðeins Loftur. XailiÉ liríyrar Karlakór Akureyrar er hing- að kominn á söngför sinni um Vestur- og Suðurland og söng i Gamla Bíó siðastl. þriðjudag við dágóða aðsókn. Áður en söngskemtunin hófst, ávarpaði Haraldur Norðdalil kórinn og heilsaði siðan Karlakór Al- þýðu liinum norðlensku söng- bræðrum sínum með söng. Áskell Snorrason. Karlakór Akureyrar er átta ára gamall. 1 honum eru 38 söngmenn. Einvalalið er þetta ekki. Innan um eru þó góðir raddmenn, eins og einsöngvar- ar kórsins, þeir Sverrir Magn- ússon, sem hefir sérlega blæ- fagra tenórrödd, og Jón Berg- dal. Tenórraddirnar eru lit- daufar, og ekki gætir sérstak- lega mikils raddvals i hinum röddunum. Bassarnir nutu sín þó sæmilega. Ivórinn ræður yf- ir „píanó“ og upp i „mezzo- forte“, en „forte“ getur hann ekki sungið, livað þá lieldur „fortissimo“. Við þetta eru honum allþröngar skorður sett- ar, þegar þarf að beita styrk- leikahlutföllum í söngnum (t. d. „Ólafur Tryggvason“). Er það því skiljanlegt, að kórinn geti ekki náð þeim tilþrifum i sönginn, sem þeir kórar sýna, er hafa þessi mismunandi styrkleikastig á valdi sínu. Af þessum ástæðum tókust bezt þau lögin, sem sungin voru veikt. Á söngskránni eru 30 lög, þar af 16 íslensk, og þar á meðal 5 eftir sjálfan söngstjórann, Áskel Snorrason. Lögin eru yf- irleitt alþekt hér á landi. Öll eru lögin með islenskum text- um, og er það vel farið, því að reynslan hefir sýnt, að lög með íslenskum textum verða miklu fremur almenningseign. Meðferðin á lögunum af hálfu söngstjórans, var harla mis- jöfn, og skifti með það i tvö horn. Mörg lögin hlutu látlausa og fagra meðferð, en öðrum var mishoðiðhvað snerti hrynj- andann. Kórnum til maklegs lofs skal það tekið fram, að söngurinn var sérlega hreinn og velæfður. Áskell Snorrason lét kórinn syngja nokkur lög eftir sjálfan sig, og báru þau vitni um, að hann er gæddur ljóðrænni gáfu. Eg vil sérstak- lega nefna lagið „Sunnudags- kvöld“, textinn er eftir Huldu skáldkonu. Á Akureyri eru 4 kórar, Karlakórinn Geysir, Ivantötu- kór Björgvins Guðmundssonar, kór Abrahamsens og þessi kór. Þegar á það er litið, að íbúa- talan er ekki nema 4-^-5000 manns, þá verður það ineð sanni sagt, að þar sé gróandi í sönglífinu. B. A. italir rtlbútir til lesi ið heiji irisarstrið. Ræöa Mussolíni í gær. London, 30. mars. — FÚ. Síðdegis í dag liélt Mússólíni ræðu um vígbúnað Itala í öld- ungadeild ítalska þingsins og þykir liún ein liin eftirtektar- verðasta er hann liefir lengi lialdið. Hann mælti m. a. á þessa leið: „Besta vörnin sem auðið er að koma við í ófriði er sú, að ráðast á, og vér erum að búa oss undir það, að hafa á tak- teinum bæði menn og her- gögn fyrir ófrið þar sem skjót- lega verður skorið úr málun- um.“ Þá sagði liann ennfremur að liermannaflutningarnir til Spánar og Libyu hefðu ekki veikt Italíu að neinu marki, „og 1941 mun svo verða komið, að vér höfum átta fj'rsta flokks orustuskip, og fjögur af þeim alveg ný. í því sambandi má minnast þess, að skerfur flot- ans til lausnar Abessiníustyrj- öldinni var allverulegur, en þvi er óhætt að lofa, að í næstu styrjöld mun floti vor ekki liggja aðgerðalaus inni ó höfn- um. Þess má ennfremur geta, að vér höfum 20—30.000 flug- menn á takteinum. Talan ein út af fyiár sig segir ekki mikið, en að því ber að gæta, að hundr- uð þessara flugmanna hafa dýrmæta revnslu sem þeir hafa aflað sér í tveimur styrjöldum, livorri á eftir annari — styrj- öldinni i Abessiníu og styrjöld- inni á Spáni. Og þegar vér för- um út i ófriðinn, þá verðum vér að drotna í loftinu og eyði- leggja miskunnarlaust baráttu- þrelc og sigurvonir óvinaþjóð- anna.“ „Tvenns þarf að gæta í ófriði: árásarinnar og mótstöðunnar. Til skjótra árása verðum vér að reiða oss á flotann, árásar- flugvélarnar, stórskotaliðið og hernaðarlega hagnýtingu vél- byssanna út í ystu æsar. Til þess að skipuleggja mótstöðu- þrek þjóðarinnar verðum vér að færa fólkið úr stóru borgun- um út í smáþorpin og sveitabæ- ina, og vér gerum skynsamlega í því, að bíða ekki til elleftu stundar með slikar ráðstafanir.“ „Það sem máli skiftir i ótölc- um milli þjóða og öllum við- skiftum þeirra, og það eina sem máli skiftir, er máttur þeirra til liernaðarframkvæmda.“ Nýjar nafnbætur hafa verið myndaður lianda Italíukonungi og Mússólíni, og ber Iivor þeirra fyrir sig liér eftir titilinn „Marskálkur keisaradæmisins“ auk annara metorða. Akæran gegfn Otto Bchmidt. Osló 30. mars. Hinn kunni vísinda- oð leið- angursmaður í norðurhöfum Otto Schmidt, prófessor, liefir verið ákærður fyrir skemdar- verk og lélega stjórn þeirra mála, sem varða siglingar fyr- ir norðan Rússland og Síbiríu. Hafði Schmidt yfirstjórn þeirra með höndum. Varafor- stjórinn var einnig settur af og Papanin settur í hans stað. — NRP—FB. Jarðarför ekkjunnar, Maríu Gísladótfur, fer fram föstudaginn 1. apríl og liefst með húskveðju frá lieimili hennar, Grjótagötu 14 B, kl. 1 e. li. — Jarðað verður í gamla kirkjugarðinum. — Vilhelmína Jónsdóttir. Alfred Þórðarson. Theodóra Eyjólfsdóttir. IRADDIR frá lesöndunum. HJARTASTAÐUR RE YKJ AVIKUR. Einn er sá staður liér í Reykjavík, er eg liygg að ekki sé metinn sem skyldi. Þessi staður er Arnarhóll. Fegurð þess staðar er þó svo augljós og kostir Iians svo margir og mikl- ir, að furðu gegnir, að hann skuli ekki fyrir löngu vera orð- inn það, sem liann á að vera í vitund bæjarbúa: Hjartastaður Reykjavíkur. Útsýni frá þessum stað er yndislegt yfir hið bláa haf — og yfir höfn, sem ef til vill er fegursta höfn i heimi — og yfirsýn fæst yfir nokkurn hluta miðbæjarins með liið ið- andi líf á Lækjartorgi. Þá hjálp- ar myndastytta Einars Jónsson- ar af Ingólfi Arnarsyni til þess að gera staðinn merkilegan. Listamanninum hefir tekist að láta þögula steininn segja frá nokkurum beztu eðilskostum forfeðra vorra, sem voru livort- tveggja í senn: víkingar og bændur, djarfir til allra dáða en forsjálir um leið, — með ríka útþrá i blóði en tengdir um leið traustum trygðaböndum við ætt og átthaga. Þar sem mynda- styltan er af Ingólfi Arnarsyni, geta Reykvíkingar séð svip og yfirbragð þess borgara, sem á að byggja og erfa þenna bæ, — hins „ideala“ Reykvíkings eða Reykvíkings, eins og liann á að vera. Þrjár skemtilegar götur liggja að Arnarhóli, og má því segja, að einnig að því leyti bjóði hann til sín áliorfendum og áheyrend- um, auk þess sem Arnarhólstún- ið sjálft er tilvalið áhorfenda- og álieyrendasvæði. Upp við myndastyttuna er ágætt rúm fyrir söngflokka og ræðumenn. Þessi slaður er sjálfkjörið há- tíðasvæði Reykjavíkur, þar sem allur mannfagnaður borgarinn- ar, er átt getur sér stað undir beru lofti, á að fara fram, að svo miklu leyti sem því verður við komið. Reykvíkingar: Opnið augu yðar fyrir þessum stað og gerið það sem unt er, til þess að gera hann enn glæsilegri en hann er. En eitt af því er að losa hann við liina leiðinlegu kolabingi, sem rísa rétt lijá honum eins og hortittir eða smekkleysur í fögrum skáldskap, og á vitan- lega í stað þeirra að koma fögur gata, svo að bæjarbúar geti safnast saman utan um þenna hjartastað bæjarins og glatt sig við fegurð hans frá öllum lilið- um. Gretar Fells. Esja fór frá Sauðárkróki í gærkvekli. — Væntanleg hingað n.k. sunnud. Næturlælcnir. Karl Sig. Jónasson, Sóleyjargötu 13, simi 3925. — Næturvörður í Laugavegs apóteki og Ingólfs apó- teki. Útvarpið í kveld. 20.15 Erindi: Frá Grænlandi, I (Sigurður Sigurðsson, f. búnaðar- málastjóri). 20.40 Einleikur á píanó (Emil Thoroddsen). 21.00 Frá út- löndum. 21.15 Útvarpshljómsveitin leikur. 21.45 Hljómplötur: Kirkju- leg tónlist. 22.15 Dagskrárlok. Land mflt tksfla- manna. I gær fóru skíðastökkin fram í Hvanneyrarskál. Þátt- takendur voru 17, allir að norðan. Sjö frá Skf. Siglfirð- ingi, 7 frá Skf. Siglufjarðar og 3 frá Skf. Ólafsfjarðar. Hver lceppandi stökk tvisvar og fer liér á eftir hve hver maður stökk lengst: Lengra stökkið metrar: Þorv. Ingimarsson, Ól. . . 30.5 Björn ólafsson, Sf........31.5 Stefán Þórarinsson, Sf. .. 36.5 Kx. Ólafsson, Ó1...........33.0 Ásgr. ICristjánsson, Sf. ... 34.5 Þork. Benónýsson, Sf. ... 34.0 Jónas Ásgeirsson, Sf......37.0 Ketill Ólafsson, Sf........36.0 Ólafur Stefánsson, Ól. ... 28.5 Óskar Sveinsson, Sf.......36.0 Jón Þorsteinsson, Sf......43.5 (en féll) Alfreð Jónsson, Sf.........34.5 Jóhann Sölvason, Sf.......40.5 (en féll) Sveinn Sveinsson, Sf......36.5 Rögnv. Ólafsson, Sf.......33.0 Helgi Sveinsson, Sf.......34.5 Jón Stefánsson, Sf.........33.0 (Samkv. FÚ). Bœtar frétfír I.O.O.F. 5 = 1193318V2 =9.11 Veðrið í morgun. í Reykjavik 1 sl., mestur hiti í gær 1, minstur í nótt o st. tJrkoma í gær 4,9 mm. Heitast á landinu í morgun 2 st., Reykjanesi, Fagur- hólsmýri og Vestmannaeyjum, en kaldast — 3 st., á Hellissandi og Kvigindisdal. — Yfirlit: Grunn lægð yfir Vestfjörðum, hreyfist hægt í norður og fer minkandi. — Horfur: Faxaflói: Suðvestan og vestan kaldi. Eljagangur, en bjart á milli. Jarðarför Tóns Baldvinssonar, bankastjóra og forseta sameinaðs Alþingis, fór fram í dag að viðstöddu miklu f jöl- menni. — Silfurskildir bárust frá t Alþingi, Alþýðusambandi íslands,. Útvegsbanka Islands, Prfcntarafé- laginu, Alþýðubrauðgerðinni, Sjó- mannafélagi Reykjavíkur og skyld- fólki hins látna. Kransar bárust frá: Konungi vorum, Rikisstjórn ís- lands, Danska ráðuneytinu, íslenska hluta ráðgjafarnefndarinnar og danska hluta sörnu nefndar, danska ræðismanninum, Bæjarstj. Reykja- víkur, Jóni Krabbe konungsritara, sendiherra Islands í Kaupmanna- höfn, Höjgaard og Schultz, Garðari Gíslasyni, Hallgrími Benediktssyni & Co., Sambandi íslenskra Sam- vinnuf élaga, Ríkisprentsmiðj unni Gutenberg, stjórn Landsbanka Is- lands, Framsóknarflokknum, verka- kvennafélaginu Framsókn, Bakara- sveinafélagi íslands, starfsfólki Út- vegsbankans, starfsmönnum Al- þingis og fleirum. — Skrifstofum var alment lokað eftir hádegi og fánar voru dregnir í hálfa stöng á fjölda húsa. — FÚ. Skipafregnir. Gullfoss er á leið til Vestmanna- eyja frá Leith. Goðafoss var i Vest- mannaeyjum í morgun, á útleið. Brúarfoss er í Kaupmannahöfn. Dettifoss fer vestur og norður í kveld. Lagarfoss er á leið til Ham- borgar. Selfoss er á leið til Ant- werpen.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.