Vísir - 08.04.1938, Blaðsíða 2
VISIR
VfSIR
DAGBLAÐ
Útgefandi:
BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H/F.
Ritstjóri: Kristján Guðlaugsson.
Skrifstofa: Hverfisgötu 12.
Afgreiðsla: Austurstræti 12.
S í m a r:
Afgreiðsla 3400
Ritstjórn 4578
Auglýsingastjóri 2834
Verð 2 krónur á mánuði.
Lausasala 10 aurar.
* Félagsprentsmiðjan h/f.
Eindrægni.
k bæjarstjórnarfundinum í
“ gær kom fram tillaga frá
bæjarfulltrúum Sjálfstæðis-
flokksins, um ívilnanir af hálfu
bæjarins til handa togaraútgerð-
inni, í sambandi við yfirlýsingu
flokksins, sem birt var á dögun-
um. Urðu nokkurar umræður
um tillöguna, og var henni vel
tekið af öllum ræðumönnum,
enda var hún að lokum sam-
þykt með öllum greiddum at-
kvæðum.
í umræðum þessurn tóku þátt
fulltrúar þriggja flokkanna
Sjálfstæðisflokksins, Alþýðu-
flokksins og Kommúnista-
flokksins, en fulltrúi Fram-
sóknarflokksins var farinn af
fundi, þegar umræðurnar hóf-
ust.
Enginn ágreiningur var um
það, að nauðsyn bæri til, að ráð-
stafanir yrðu gerðar, bæði af
hálfu ríkis og bæjar, til þess að
rétta við hag togaraútgerðar-
innar. En í þessari samþykt
bæjarstjórnarinnar er það skil-
yrði sett fyrir ívilnununum af
bæjarins hálfu, „að ríkið lélti
undir með útgerðinni af sinni
hálfu, svo að viðunandi sé.“ En
með því er að sjálfsögðu átt við
það, að af útgerðinni verði létt
sköttum og öðrum gjöldum til
ríkissjóðs, svo sem frekast er
fært talið.
Að sjálfsögðu er ætíast til
þess, að útgerðin verði undan-
þegin tekju- og eignarskatti til
ríkissjóðs, á sama liátt og út-
svörum til bæjarsjóðs. En þó að
ekki sé um það að ræða, að út-
gerðin þurfi að svara slíkum
sköttum, meðan hag hennar er
eins komið og nú, þá getur það
varðað afkomu hennar í fram-
tíðinni miklu, að hún verði gerð
skattfrjáls uin nokkur ár, og
henni heimilað, að nota aílan
þann ágóða, sem verða kynni á
rekstri liennar, til þess að lækka
skuldirnar, sein á hana hafa
hlaðist. En tilgangur þessara
ivilnana er að koma hag útgerð-
arinnar á „tryggan fjárhagsleg-
an grundvöll“, ef verða mætti,
en ekki að eins að fleyta henni
áfram í sama skuklafeninu sem
hún er komin í. En til þess þarf
að sjálfsögðu meira en að und-
anþiggja hana sköttum, sem
hún þarf að svo komnu ekki að
sfanda straum af. Það verður
fyrst og fremst að létta af henni
þeim gjöldum, sem hún verður
nú að greiða, án tillits til af-
komu hennar, svo sem tollum af
innfluttum nauðsynjum hennar
og útflutningsgjöldunum. Og
með samþykt bæjarstjórnar-
innar ætti það að vera trygt, að
því fáist framgengt á Alþingi,
því að þeir þrír stjórnmála-
flokkar, sem að þessari samþykt
stóðu í bæjarstjórninni, hafa
nægilegt atkvæðamagn á Al-
þingi til þess að ráða úrslitum
málsins, jafnvel þó að aðrir
flokkar þingsins legðust óskiftir
á móti.
Það er þannig full ástæða til
að fagna því, hversu samliuga
bæjarstjórnin var um afgreiðslu
málsins. Og þó að þar kæmi að
vísu ekkert fram um afstöðu
Framsóknarflokksins, af því að
bæjarfulltrúi flokksins var ekki
viðstaddur, þá verður að vænta
þess, að hann skerist heldur
ekki úr leik í þessu efni, þegar
á reynir, og sú rannsókn á hag
útgerðarinnar, sem flokkurinn
liefir krafist, er komin í fram-
kvæmd, og leitt hefir verið í
Ijós, svo að ekki verði um deilt,
liversu brýn þörfin er.
Sameiginlegar hlut-
leysisreglur, sem ís-
land kann að gerast
aðili að.
Oslo 7. apríl.
Að afloknum fundi utanríkis-
málaráðherra Norðurlanda í
Oslo voru gefnar út samhljóða
tilkynningar um fundinn í höf-
uðborgum Norðurlanda. — Ut-
anrikismálaráðherrarnir voru
allir á sama mái um það sem
fyrrum, að Norðurlönd skyldi
ekki taka neinn þátt í hernaðar-
legum samtökum, sem á kynni
að verða komið af þjóðum, er
skipuðu sér í flokka í því skyni,
og ef til styrjaldar kæmi í álf-
unni, voru utanríkismálaráð-
herrarnir sammála um, að
Norðurlönd skyldi gera alt, sem
i þeirra valdi stæði til þess að
forðast að dragast inn í styrj-
öldina.
Ráðherrarnir voru sammála
um að ráðleggja hver sinni rík-
isstjórn að samþykkja uppkast
það að samhljóða hlutleysisregl-
um fyrir Svíþjóð, Finnland,
Danmörku og Noreg, og loks
að endanlegri samþykt hlut-
leysisreglnanna verði frestað
stuttan tíma, með tilliti til ís-
lands, þar sem ríkisstjóm Is-
ands hefir óskað þess að fá að
taka til athugunar möguleikana
á að setja samskonar reglur að
því er ísland snertir. (NRP—
FB). —
Bðk mn Gunnlang
Biðndal.
Hinn þekti danski listfræð-
ingur Christian Rimestad hefir
gefið út bók urn Gunnlaug
Blöndal listmálara með sýnis-
hornum af mörgum myndum
lians. I bókinni er einnig ítar-
legt lesmál þar sem Rimestad
gerir grein fyrir því hve ein-
kennilega sjálfstæður listamað-
ur Blöndal sé, þrátt fyrir áhrif
bæði frá frönskum og norsk-
um málurum. (FÚ).
Hvallýsissala Norðmanna.
Sölusamlagið hefir selt 107.-
000 smálestir af norsku hval-
lýsi til Þýskalands. Verðið er
12—15 sterlingspund smálestin.
Wino Sörensen forstjóri segir i
blaðinu Vestfold, að enda þótt
verðið sé lágt leiði salan af sér,
að greiðara verði um þátttöku i
livalveiðunum á næstu vertíð.
SÖluverðið er undir núverandi
framleiðsluverði. (NRP—FB).
i flugfhernadarmálum, ogf fá frá þeim heruadarflugfvélar eftir þörfum.
EINKASKEYTI TIL VlSIS.
London, í morgun.
Stjórnmálafréttaritari Daily Telegraph skýrir í
blaði sínu í morgun frá fyrirhugaðri sam-
vinnu Breta og Bandaríkjamanna í flughern-
aðarmálum. Vekur fregn þessi mikla athygli. Að því er
stjórnmálafréttaritari blaðsins segir hefir breska stjórn-
in spurst fyrir um það í Washington, hvort Bretar
mundu geta fengið hernaðarflugvélar í Bandaríkjun-
um, til notkunar í flugher sínum, heima fyrir og í ný-
lendunum.
Að Bretlandsstjórn fer fram á þetta sýnir, að
hún leggur svo mikla áherslu á að hraða hinum
lofthernaðarlega vígbúnaði, að hún telur þörf á,
að leita aðstoðar Bandaríkjanna til þess að stækka
og efla flugher sinn sem mest og á sem skemstum
tíma, vegna þess hversu langt er komið vígbúnaði
sumra Evrópustórvelda í lofti.
Stjórnmálafréttaritari Daily Chronicle skýrir frá því,
að sér hafi verið sagt, að ameríska stjórnin hafi lýst
sig reiðubúna til þess að aðstoða bresku stjórnina í
þessum málum eftir fremsta megni — og það í svo stór-
um stíl sem þörf krefði, jafnvel þótt Bandaríkjamenn
yrðu að takmarka framleiðslu hernaðarflugvéla til eigin
þarfa.
MESTA OFVIÐRII 20 ÁR
í BANDARlKJUNUM.
EINKASKEYTI.
London í morgun.
P ÁRVIÐRI mikið hefir geis-
* að um austur- og mið-
hluta Bandaríkjanna og alt
suður tilTexasfylkis. Er þetta
mesta ofviðri,sem komið hef-
ir að vori til í Bandaríkjunum
undanfarin 20 ár.
I Ohio og Illinois hefir
snjókoma verið mikil og
valdið umferðarerfiðleikum í
Chicago, Toledo og Nðw
York. I suðurríkjunum hafa
flóð víða gert* mikinn usla.
— Hvirfilvindur banaði 11
mönnum í Aliceville í Ala-
bama. Víða varð manntjón og
eignatjón af völdum óveðurs-
ins. United Press.
FLOKKUR SUDETEN-ÞJÓÐ-
VERJA GENGUR AF ÞINGI.
London 8. apríl. FÚ.
Flokkur Henleins gekk í gær
af þingfundi í Prag. Ástæðan
fyrir því er talin vera sú, að þeir
flokkar, sem styðja stjórnina,
höfðu samþykt á fundi sinum
ályktun um það hve langt
skyldi ganga í þvi að fullnægja
kröfum Sudeten-Þjóðverja.
Samþyktu flokkarnir að synja
þeim um fullkomið sjálfsfor-
ræði, ennfremur að engin breyt-
ing skyldi gerð á utanríkismála-
stefnu stjórnarinnar og loks að
taka skyldi fjæir allan áróður
gegn stjórninni. Flokkur Hen-
leins neitaði að taka þessa sam-
þykt til grundvallar fyrir við-
ræðuni við stjórnina. Ekki hef-
ir verið skýrt frá því opinber-
lega hvers þeir krefjast sér-
staklega, sem stjórnin ekki vill
ganga að, en mælt er að þeir
liafi farið fram á að Tékkósló-
vakía segði upp vináttusamn-
ingum sínum við Rússland.
Benes, forseti Tékkóslóvaldu,
sagði i ræðu, sem hann hélt í
gærkveldi, að stjórnin gerði sér
ennþá vonir um það, að lcomast
að samkomulagi við Sudeten-
Þjóðverja.
United Press.
HARÐARI MÓTSTAÐA FRÁ
HENDI RAUÐLIÐA Á SPÁNI.
London 8. apríl. FÚ.
Mótstaða stjórnarhersins á
austur Spáni hefir farið vax-
andi síðastliðna tvo sólar-
hrnga, og er framsókn upp-
reistarhersins tafin, að minsta
kosti um slundar sakir. í frétt
frá Barcelona er talið um gagn
árás af hálfu stjórnarhersins
í grend við Tortosa.
JAPANIR I VANDA.
London 8. apríl. FÚ.
Japanir liafa nú verið þrjár
vikur að reyna að ná Su-chow,
við austurtakmörk Lung-hai-
járnbrautarinnar á sitt vald,
en virðast engu nær takmark-
inu nú, en fyrir þremur vik-
um. Kínverjar segja, að tvær
japanskar herfylkingar (divi-
sions) séu á þessum stöðvum
og séu mjög illa staddar.
NORÐMENN AFLA SÉR
MARKAÐS FYRIR KÆLDA
SÍLD I NEW YORK.
Norska blaðið „Tidens Tegn“
skýrir frá því, að tilraunir þær,
sem Norðmenn liafi gert í vet-
ur með það, að senda kælda síld
til New York og Brooldyn liafi
hepnast miklu betur en menn
þorðu að vonast eftir. Segir
blaðið að síldin hafi likað ágæt-
lega og telur að gera megi ráð
fyrir að Norður-Ameríka geti
orðið svo góður markaður, að
útflutningur kældrar síldar
þangað geti orðið fastur útflutn-
ingsliður áður en langt um líð-
ur. — FÚ.
Fregnum að Schussnigg sé
vitskertur mótmælt í Wien.
Franska blaðið „Paris Soir“
birti fyrir nokkrum dögum þá
fregn, að Schussnigg fyrver-
andi Austurríkiskanslari befði
orðið vitskertur og væri nú á
geðveikrahæli. Þessu er mót-
mæll í Vín ogfullyrt, að Scliuss
nigg sé heill heilsu. Fréttarit-
ara „Paris 'Soir" í Vín, sem er
Blumstjórnin fellur í dag.
Alvarlegar hopfup 1 innan- og
utanríkismálum.
Myndun nýppar stjórnar verður Kradad svo
sem auðið er.
EINKASKEYTI TIL VfSIS.
London í morgun.
Morgunblöðin í París telja víst, að Blumstjórnin
muni biðjast lausnar í dag. Hvetja þau til
þess, að myndun nýrrar stjórnar verði hraðað
sem mest vegna þjóðaratkvæðisins í Austurríki og
Þýskalandi á morgun. Ennfremur vegna þess hversu
verkföll eru nú víða háð í Frakklandi og miklar æsing-
ar í sambandi við þau. Verkföll eru nú háð í 24 verk-
smiðjum, en verkfallsmenn eru 250.000 talsins.
United Press.
London 8. apríl. FÚ.
Alvarlegt ástand er að skap-
ast í Frakklandi. Fjármálanefnd
öldungadeildarinnar hefir felt
frumvarp Blum stjórnarinnar
og engum dettur í hug, að það
nái samþykki í öldungadeild-
inni, þegar það kemur þar til
umræðu í dag.
Nokkrar þúsundir jafnaðar-
manna fóru kröfugöngu í gær-
kveldi að fundarhúsi öldunga-
deildarinnar og hrópuðu þar
„niður með öldungadeildina,
lengi lifi BIum“. Lögreglunni
tókst að dreifa mannfjöldanum
eftir allmiklar stympingar, en
hann safnaðist saman aftur og
aftur varð lögreglan að skerast
í leikinn. I Lille urðu einnig
nokkrar götuóeirðir, þegar
Bygglngar I Reykjavlk
á árinn 1937.
Sigurður byggingarfulltrúi
Pétursson hefir nýlega afhent
bæjarráði og bæjarstjóm
skýrslu yfir byggingar íReykja-
vik á árinu 1937. Gefur skýrsl-
an nákvæmt yfirlit yfir íbúðar-
hús úr timbri og steini, vinnu-
stofur og verksmiðjuhús, gripa-
og alifuglahús, geymsluhús og
bílskúra, svo og breytingar og
síækkanir á eldri húsum.
I skýrslu byggingarfulltrúans
segir svo:
„Á árinu hafa verið bygðir
1.000.00 fermetrar af timbur-
húsum og 14.409.08 ferm. af
steinliúsum, eða samtals 15.409.-
08 rúmmetrar of timburhúsum
og 119.614.00 rúmmetrar af
steinhúsum, eða fyrir 5% milj.
krónur.
Alls hafa 233 íbúðir bæst við
á árinu, en 146 hús liafa verið
bygð. Þar af eru 96 íbúðarhús,
1 samkomuhús, 14 vinnustofur
og 2 verksmiðjuhús, 2 gi’ipa- og
alifuglahús, 32 geymsluhús og
bílskúrar og ein spennistöð.“
Af eldri húsum hafa 35 verið
stækkuð og er rúmmál þeirra
og flatarmál tekið með i ofan-
greindum tölum. Hinsvegar er
ekki tekið tillit til breytinga á
eldri húsum, sem ekki liafa haft
neina rúmmálsaukningu í för
með sér, og ekki lieldur girð-
inga um lóðir, en til þess hefir
verið varið miklu fé á árlnu.
talinn að vera Gyðingur, liefir
verið vísað úr landi með að-
eins 12 ldst. fyrirvara. — FÚ.
þangað fréttist að fjármál§-
nefnd öldungadeildarinnar hefði
felt frumvarp Blums.
Reiðin gegn öldungadeildinni
er sprottin af þvi, að almenning
grunar að það hafi tekið hönd-
um saman gegn alþýðufylking-
unni sem slikri.
Verkfallsástandið fór enn
versnandi í gærkveldi í París,
með því að þrjár verksmiðjur
bættust í tölu þeirra, þar sem
vinna hefir verið lögð niður. —
Eru nú verkfallsmenn i málm-
iðnaðinum um 50 þúsund, eða
fjórðungur þeirra manna, sem
þennan iðnað stunda. Aftur á
móti hafa 8000 manns horfði
aftur til vinnu sinnar í Suður-
Frakkladi.
Doktopsvöpn
Helga P. Briem fór fram í
lestrarsal Landsbókasafnsins í
gær, og bófst kl. 1V2. Forseti
heimspekideildar, dr. phil. Sig.
Nordal, stjórnaði athöfninni.
Avarpaði hann fyrst áheyrend-
ur með nokkrum orðum, en
siðan tók doktorsefnið til máls.
Lýsti liann því, livernig rit-
ið hefði til orðið, hvernig liann
liefði unnið að því o. s. frv., en
þá tók fyrri andmælandi deild-
arinnar, próf. Árni Pálsson, til
máls. Hann lauk lofsorði á á-
liuga og dugnað H. P. Briem,
en fann nokkuð að tveim
fyrstu köflum ritsins. Er dok-
torsefni bafði svarað Árna
Pálssyni, var % klst. lilé, en
er því var lokið, tók til máls
Guðbr. próf. Jónsson, en liann
var andmælandi „ex offioio“.
Deildi hann fast á doktors-
#fni, en hann svaraði. Að því
búnu talaði siðari andmælandi
deildarinnar, dr. Þorkell Jó-
hannesson. Fann hann ýmislegt
smávægilegt að ritgerðinni, en
fór annars um hana lofsamleg-
um orðum.
Er doktorsefnið hafði svar-
að honum, tilkynti deildarfor-
seti að prófinu væri lokið.
ST J ÓRN ARSKRÁRBREYT-
ING í NOREGI.
Stórþingið samþykti í gær
gegn 24 atkvæðum tillöguna um
breytingu á stjórnarskránni
þess efnis, að lengja kjörtíma-
bilið úr 3 í 4 ár. NRP—FB.