Vísir - 23.04.1938, Side 3
V I S I R
Yiðbiínaður ríkisstjórnarinn-
ar gegn yfirvofandi ófriði.
Grænmetisversl. rikisins fullnægir ekki eftirspurn nm útsæði.
Innilegt þakklæti fyrir auðsýnda samúð og hluttekningu
við andlát og jarðarför sonar míns og bróður okkar,
Þorsteins.
Óskar Þorsteinsson og systkini.
aðeins Loftui».
TIL LEIGU:
Á þeim erfiðu tímum, sem nú standa yfir og framundan eru,
keppast allar þjóðir við að tryggja öryggi borgaranna gegn yfir-
vofandi ófriði, og nægir í því efni að skírskota til bræðraþjóð-
anna á Norðurlöndum, og' þá ekki síst Norðmanna. íslenska
ríkisstjórnin ein og stjórnarflokkarnir fljóta sofandi að feigðar-
ósi og hefjast ekki handa, þótt ísland sé allra landa verst sett
með öflun og framleiðslu lífsnauðsynja. Höfðatölureglur sam-
fara hlutdrægni í úthlutun innflutningsleyfa er látið nægja til
að draga fram hlut samvinnufélaganna meðan unt er, en um
bjargráð til handa þjóðinni í heild er ekki hugsað. Hagsmunir
samvinnufélaganna eru settir framar þjóðarhagsmununum, og
hlutdrægnin fær ein að njóta sín til fulls.
Þetta er í stuttu máli stefna
stjórnarflokkanna, en nú hefir
„samviska þeirra“, kommún-
istarnir, vakið þá af þessum
blundi, með þvi að bera fram
tillögu í þinginu um skipun
nefndar til að athuga hvaða
ráðstafanir sé unt að gera til
að mæta yfirvofandi kreppu
og stríði.
Tillaga þessi var tekin á dag-
skrá í sameinuðu þingi í gær,
og gat fjármálaráðherra þess,
að stjórnin væri tekin að hugsa
málið og hefði í huga að skipa
nefnd, er skvldi athuga leiðir
til úrlausnar, en, bráðlega
myndi stjórnin láta frekar til
sín heyra.
Það er ekki nema gott eitt
um það að segja, að mál þessi
séu nú tekin til athugunar, en
gjarnan hefði það mátt fyr
vera, enda liafa sjálfstæðis-
menn hvatt til þessa undanfar-
ið í ræðu og riti.
Eitt af því, sem norska ríkis-
stjórnin og héraðsstjórnirnar
hafa hvatt og styrkt menn til,
er að auka til stórra muna
framleiðslu grænmetis og garð-
ávaxta, þannig, að landið yrði
sjálfu sér nóg í þessu efni.
Þetta hefðum við íslendingar
einnig getað gert og átt að
gera með því að hér eru sæmi-
leg skilyrði til grænmetisrækt-
ar, en til þessa höfum við orð-
ið að flytja inn í landið all-
mikið af grænmeti, sem við
hefðum átt að geta ræktað
sjálfir.
Á síðari árum hafa orðið
allverulegar framfarir i þessu
efni hér á landi og liefir t. d.
kartöflurækt aukizt til muna,
og menn verið hvattir til að
auka þá ræktun með styrkjum,
sem að visu hafa reynst mun
óverulegri en látið var í veðri
vaka uppliaflega. Þessi aukn-
ing liefir þó hvergi nærri
reynst nægjanleg, ef vel á að
vera, og verður því að halda
áfram á þessari braut þannig,
að framleiðslagarðávaxta nægi
að fullu lianda landsmönnum,
en hvaða líkur eru til þess, að
svo megi verða?
Samkvæmt lögum nr. 34, 1.
febr. 1936, var ríkisstjórninni
heimilað, að taka i sínar hend-
ur innflutning á kartöflum og
öðrum garðávöxtum frá 1. maí
1936 að telja, enda skyldi þá
öllum öðrum óheimilt af flytja
þessa vörutegundir til landsins.
Þar sem hér var um einka-
sölu að ræða, notaði ríkis-
stjórnin að sjálfsögðu heimild
þessa og Græmnetisverslun
ríkisins tók til starfa. Sam-
kvæmt lögunum var verslun
þessari heimilað að reisa
geymslu og markaðsskála i
Reykjavík fyrir kartöflur og
aðra garðávexti. Skálinn var
bygður, en í stað þess að þar
væru að staðaldri íslenskir
garðávextir á boðstólum, hefir
skálinn verið leigður undir
allskonar sýningar, sem ekkert
eiga skylt við garðrælctina.
Nú er komið vor og menn
fara sem óðast að undirbúa
garðræktina og skyldu menn
ætla að nægilegar birgðir af út-
sæði lægju fyrir, en þvi mun
fara mjög fjarri. Birgðirnar
munu vera það talonarkaðar,
að með engu móti mun vera
unt að fullnægja eftirspurn-
inni, og verður verslunin því
að úthluta útsæðinu á gersam-
lega ófullnægjandi hátt.
Það má gera ráð fyrir að
verslunin eigi ekki ein sök á
þessum mistökum, heldur fel-
ist sökin aðallega hjá gjaldeyr-
is- og innflutningsnefnd, sem
hefir ekki lieimilað ríflegri
innflutning exr þetta, en al-
menningur fær ekki skilið slík
búvisindi þessarar stjórnar-
stofnunax’, og allra síst virðist
hér um viðbúnað að ræða til
að nxæta afleiðingum ófriðar,
ef hann skylli á.
Það er takmarkalaust hirðu-
leysi frá hendi þessara ríkis-
stofnana, að sinna þessum mál-
um svo slælega sem raun er á
orðin, og þess verður að krefj-
ast, að úr þessu verði bætt, ef
unt er, þannig að almenning-
ur eigi kost á að rækta garð-
ávexti, svo sem frekast verður
við lcomið, og takmarkið, sem
keppa verður að, er að landið
framleiði sjálft nægjanlega
garðávexti handa þjóðinni,
þannig að hún þurfi ekki að
vera háð innflutningi þessara
lífsnauðsynja.
BæjciF
fréttír
□ „Helgafell“ 5. 9384267—VI—2.
Messur á morgun:
í dómkirkjunni: Kl. n, síra
Bjarni Jónsson (ferming), kl. 2,
síra FriSrik Hallgrímsson (fernx-
iiig). _
í fríkirkjunni: Kl. 12, síra Árni
Sigurðsson (fernxing).
í Hafnarfjarðarkirkju: Kl. II,
síra GarSar Þorsteinsson (bama-
guösþjónusta).
í Laugarnesskóla: Kl. 11.30,
barnagutSsþ jónusta.
1 kaþólsku kirkjunni: I Reykja-
vík: Lágmessa kl. 6)4 og 8. Há-
rnessa kl. 10. Kvöldguðsþjnusta
með prédikun kl. 6. — í Hafnar-
firði: Hámessa kl. 9, kvöldguðs-
þjónusta nxeð prédikun kl. 6.
Af veiðum
koixxu í morgun Egill Skalla-
grínxsson með 112 föt lifrar og Ot-
ur með 80 föt. Þórólfur og Geir
eru væntanlegir í dag.
Skíðaferðir.
K.R.-ingar fara í skíöaför kl.
7)4 í kvelcl og kl. 9 í fyrramálið,
ef veðui'útlit verður gott. Farnxið-
.ar fást á sanxa stað og undánfarið.
—- Í.R.-ingar fara einnig í fyrra-
máliS kl. 9 að KolviSarhóli. Lagt
upp frá Sö.luturninum og farmiSar
rást í Stálhúsgögn.
Veðrið í morgun.
í Reykjavík 4 st., íxxestur hiti í
gær 8, minstur í nótt 4 st. Úrkonxa
í gær og nótt 6,2 mm. Heitast á
landinu í morgun 12 st., á Dala-
tanga, minstur hiti 3 st., á Sandi.
Yfirlit: Nærri kyrrstæð lægð milli
Vestfjarða og Grænlands. — Horf-
ur: Faxaflói: Suðvestanátt, stund-
um allhvass. Eljagangur.
Skipafregnir.
Gullfoss fór frá Kaupmannahöfn
í gær. Goðafoss er væntanlegur til
Vestm.eyja fyrir hádegi á morg-
un. Brúarfoss og Lagarfoss er á
Akureyri. Dettifoss er í Hamborg.
Selfoss fór í morgun til Akraness
og útlanda.
Árekstur
varð í gær kl. 8.15, á gatnamót-
unx Laugavegs og Smiðjustígs. Var
fólksbifreið á leið niður Bergstaða-
stræti og ætlaði þvert yfir Lauga-
veginn, eix hin kom niður Lauga-
veg og ók á hana nxiðja. Skemdust
báðar nokkuð, einkunx sú, er á vár
ekið. Kastaðist hún upp á gangstétt
og á húshorn.
Dronning Alexandrine
konx til Kaupmannahafnar kl. 8
í nxorgun.
Kaffikvöld
heldur knattspyrnufél. „Valur“
fyrir 1. og 2. flokk næstk. mánu-
dag kl. 8)4, í húsi K.F.U.M. Is-
lenska knattspyrnumyndin ve'rður
sýnd, upplestur o. fl. Valsmenn,
fjölnxennið.
Vegna veikindaforfalla
hjá Leikfélagi Reykjavíkur, verð-
ur revýan „Fornar dygðir“ sýnd
annað kvöld.
Utborgun
tekjuafgangs
hefst n. k. mánudag á eftirfarandi stöðum:
í Reykjavík: Skólavörðustíg 12 (skrifstofan).
1 Hafnarfirði: Strandgötu 28.
1 Keflavík: í sölubúðinni.
í Sandgerði: í sölubúðinni.
í Reykjavík verðúr borgað út til félagsmanna frá kl.
4—5 e. h. alla virka daga nema laugardaga, en ulanfé-
lagsmenn, sem eru að vinna sig inn i félagið, eru beðn-
ir að koma til viðtals á skrifstofuna kl. 10—11 f. h.
Reiðhjól
Efni í hin mjög eftirspuröu reið-
hjól er nú komið heim. Við höf-
um nú hjól til af öllum stærðum
Tökum gömul hjól í skiftum.
Örninn
Laugavegi 8.
Vesturgötu 5.
HIPAUTCERÐ
e
9
fer austur urn land þriðjudag-
inn 27. þ. xn.
Tekið á móti vörum fram til
hádegis á mánudag.
Drengjahlaupið.
Keppendur og starfsnxemx eru
beðnir að íxxæta kl. 10 í síðasta lagi
í Fimleikahúsi Mentaskólans.
Drengjahlaup Ármanns
hefst á morgun kl. io)4 árdegis
lxjá Iönskólanum. Þessi leið veröur
hlaupin: Frá Iðnskólaxxunx vestur
Vonarstræti, suöur Suöurgötu.um-
hverfis íþróttavöllinn, Suðurgata,
Skothúsvegur, Fríkirkj uvegur,
Lækjargata og lýkur hlaupinu
undan Amtmannsstíg. Keppendur
í drengj ahlaupinu eru að þessu
sinni 43 að tölu og hafa aldrei ver-
’ið jafnmargir. Þeir eru frá þess-
um félögum: K. R. 14 keppendui*,
Á. 8, Í.B. 5 og F.H. 16.
„Skím, sem segir sex“.
Þessi bráðskemtilegi gamanleik-
ur verður sýndur á morgun kl. 8
og hefst aðgöngumiðasalan í dág.
Athygli
skal vakin á auglýsingu í blað-
inu í dag frá Ólafi Þorgrímssyni,
lögfræðingi. Annast hann kaup og
sölu fasteigna og verðbréfa.
útvarpið í kveld:
19.50 Fréttir. 20.15 Erindi: „Ei-
íífðarbylgjan", gamanleikur (Al-
freð Andrésson, Marta Indriða-
dóttir, Valur Gíslason). 20.45
Strok-kvartett útvarpsins leikur.
21.10 Hljómplötur: Kórsöngvar.
21.30 Útvarpshljómsveitin leikur
gönxul danslög. 22.00 Danslög.
Næturlæknir:
Daníel Fjeldsted, Hverfisgötu
46, símí 3272. Næturv. í Reykja-
víkur apóteki og Lyfjabúðinni Ið-
unni.
Næturlæknir
aðra nðtt: Gísli Pálsson, Lauga-
vegi 15, sími 2474. Næturvörður
í Laugavegs apóteki og Ingólfs apó-
teki.
Helgidaglæknir:
á morgun: Páll Sigurðsson, Há-
vallagötu 15, sínxi 4959.
Sími: 4661.
Bifreiðastððin ðRIN
Sími 1430
Eggert Claessen
hæstaréttarmálaflutningsmaður
Skrifstofa: Oddfello'whxlsinu.
Voixarstræti 10, austurdyr.
Sími: 1171.
Viðtalsími: 10—12 árd.
Altaí
sama
tóbakið f
Bpistol
Bankastr.
Útvarpið á morgun.
Kl. 9.45 Morguntónleikar: Tón-
verk eftir Mozart og Chopin (plöt-
ur). 14.00 Messa i Dómkirkjunni.
Ferming. (Sira Friðrik Hallgríms-
son). 15.30 Mi'Sdegistónleikar, ýnxs
lög (plötur). 17.40 Útvarp til út-
landa (24.52 m.). 18.30 Barnatínxi.
19.20 Hljómplötur: Danssýningar-
lög. 19.50 Fréttir. 20.15 Erindi:
Hvaðaix — hvert?, I. (Síra Björix
Magnússon). 20.40 Hljóixiplötur:
Fi'ægir kórar. 21.00 Upplestur:
Sagnir að vestan, (Jón úr Vör).
21.30 Danslög,
ODYRTI
KAFFI 0.80 1/4 kg.
EXPORT (L.D.) 0.65 stk.
Grettisgötu 57.
Njálsgötu 14. — Njálsgötu 106.
K. F. U. M.
Á morgun:
Kl. 10 f. h. Sunnudagaskólinn.
— I V2 e. h. V.-D. og Y.-D.
— 8V2 e. h. U.-D., 14—17 ára
piltar.
— 8% e. h. Almenn samkoma;
þar eru allir velkomnir. —
K.F.U.K.
Á morgun:
Kl. 4 e. li. Y.-D. fundur.
— 5 e. h. U. D. fundur. Sigur-
jón Jónsson talar. — Allar
stúlkui’, 14—17 ára, vel-
komnar.
ferslaoarleyfl
Sá, sem hefir ónotað heild-
eða umboðssöluleyfi, leggi nafn
og heimilisfang inn á afgr.
blaðsins, merkt: „Verslunar-
Ieyfi“.
TVÖ loftlierbergi til leiga á
Hvei-fisgötu 49 frá 14. mai. —*
Uppl. í síma 3338. (639
4 HERBERGJA ibúð til IeigE
með öllum þægindum. UppL
Brávallagötu 4, niðri. (642
2 HERBERGl og eldhxls til
leigu I kjallara. Njálsgötu 52B.
(646
2—3 STOFUR og eldhús líl
leigu 14. maí Reykjavikurvegs
31 (móti Sjóklæðagerðmni). —•
Húsið getur verið til sölu. UppL
á efstu hæð. (647,
RÚMGOTT herbergi í góðis
standi til leigu Iioltsgötu 23
(bænum). (64S
STOFA til leigxx fyrir geymslts
ú liúsgögnum. Uppl. í sima
4586.____________________(656
SÓLARSTOFA hjá SundhöR-
inni til leigu. Bergþórugötu 29,
uppi. (656
2— 4 HERBERGJA íbúð iíS
leigu 14. maí. Uppl. Tjamar-
götu 10 B, uppx. (659
3— 4 HERBERGJA íbúð til
leigu á Laugavegi 87. Matjurta-
garður gæti fylgt. (6fflS
TIL LEIGU tvær íbxxðir, 2
herbergi og eldlnis lxvoi’. UppL
á Öldugötu 41. Jóhannes
Sveinsson. (662
TIL LEIGU 2—4 herbergi og
eldhús og 1 stofa og eldhús
Reykjavikurvegi 7, Skei'jafirSL
(672
2 HERBERGl og eldhús til
leigu Mímisveg 6. Síxni 2501. —
________________________ (675
LÍTIÐ forstofuhei’bei’gi til
leigu 14. maí Njálsgötu 52. (679
TIL LEIGU nxiiini eða stærri
ibúðir. Sæbóli, Seltjarnamesi.
Uppl. á staðnum. (567
FORSTOFUHERBERGI til
leigu á Mai’argötu 1, fyrir reglu-
saman pilt eða stúlku, (687
GOTT 1—2 manna herbergí,
með aðgangi að baði, til leigu.
Þjónusta og ræsting fæst ásama
stað. Tjarnargötu 10 C, III. (689
GOTT sólríkt forstofuher-
bergi til leigu frá 1. maí til 1.
okt. IJelst fyrir liúsgögn. UppL,
í síma 1894 frá kl. 18—20.. (690*
GÓÐ, lítil kjallaraíbúð til!
leigu. Simi 2673. (693'
KJALLARAHERBERGF ta
leigu fyrir einhleypan lcven-
mann. Laugarvatnsliiti. Eldun-
arpláss. Njálsgötu 71. (695
TVÆR séríbúðir, 3—4! her-
bergi, bað, sérmiðstöð og 2—S>
herbergi, til leigu. Uppl. Fjólu-
götu 25, sinxi 4481. (696
GOTT hei'bergi til leigu. fyrír
kvenmann. Uppl. í síma 47881
_______________________ (69?
4 HERBERGI og eldTiús S
kjallara til leigu 14. nxaí á Æg-
isgötu 26. Sími 2137. (69&
LÍTIL íbúð til leigu. Sími
2728,___________________(701
SÓLRÍK hæð, 3 herbergi, eld-
hús og bað, til leigu. Rafmagns-
eldun. Öll þægindi. GarðstæSI
gæti fylgt. Uppl. síma 1118 og:
2303. (704