Vísir - 29.04.1938, Síða 2

Vísir - 29.04.1938, Síða 2
VÍSIR Bresk herskip (i frjils afnot al frakkneskom höfn- nm og breskar flogrélar bækistöövar i Frakklandi. Bresk'frðnskn sanmingnenm miðar vel ðfram, frðnsku ráðhsrrarnir fara væntanlega heimieiðis í dag. EINKASKEYTI TIL VÍSIS. London í morgun. egar eftir komu frakknesku ráðherranna, Daladiers og Bonnet til Lundúna, hófu þeir viðræður sínar við bresku stjórnina. Stóðu viðræðurnar allan daginn í gær og fram á kvöld. Fram- haldsumræður verða í dag og að þeim loknum fara ráð- herrarnir heimleiðis. Þótt ekki hafi verið gerð grein fyrir umræðunum, sem fram fóru í gær, í opinberri tilkynningu, má full- yrða, að mikilvægt samkomulag hafi náðst um víð- tækari hernaðarlega samvinnu Breta og Frakka en áður. Verður varnarbandalag þessara þjóða enn öfl- ugra en áður. Morgunblöðin fullyrða, að samkomulag hafi náðst um það, að ef til þess komi að ráðist yrði á Frakkland, yrði lofther Frakklands og Bretlands sameinaður und- ir stjórn bresks herforingja, en landher Breta og Frakka undir stjórn frakknesks herforingja. Ennfremur er ráðgert að stofna flugstöðvar fyrir breskar hernaðarflugvélar í Frakklandi og senda til Frakklands fjölda marga flugvélaflokka til æfinga í Frakklandi, m. a. hinar hraðfleygu Bristol-flugvélar. Það er jafnvel talið, að þetta muni verða upphaf þess, að Bretar hafi framvegis allmikinn hluta f lughers síns í Frakklandi. Þá hefir náðst samkomulag um, að koma á fót feikna miklum, sameiginlegum birgðastöðvum, þar sem geymt verður bensín, skotfæri og margt annað, sem herirnir þarfnast, ýmiskonar hráefni o. fl. Ennfremur er ráðgerð mjög aukin samvinna her- skipaflota Bretlands og Frakklands. Er gert ráð fyrir, að bresk herskip hafi frjáls afnot af frakkneskum höfnum, en Frakkar hafi aukinn herskipastól á Mið- jarðarhafi. Þá er loks gert ráð fyrir mjög aukinni f járhagslegri samvinnu, með tilliti til þeirra fyrirætlana, sem hér hefir verið getið. United Press. Grein Stalisis: Ráðstjórnarríkin og heimsfriðurinn. VÍSIR ÐAGBLAÐ Útgefandi: BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H/F. Ritstjóri: Kristján Guðlaugsson. Skrifstofa: Hverfisgötu 12. Afgreiðsla: Austurstræti 12. S í m a r: Afgreiðsla 3400 Ritstjórn 4578 Auglýsingastjóri 2834 Verð 2 krónur á mánuði. Lausasala 10 aurar. Félagsprentsmiðjan h/f. ,Föstu tökin‘ AÐ var skýrt frá þvi í blöð- unum í gær, að launadeiian á Siglufirði væri nú á mda kljáð, og hefði henni lokið með því, að kaupgjaldið við síldar- verksmiðjur ríkisins liækkaði að verulegum mun. Meiri hluti verksmiðjustjórn- arinnar, fulltrúar stjórnarflokk- anna, samþykti kauphækkun- ina. Þannig var séð fyrir því, að ekki þyrfti að koma til kasta löggjafarvaldsins,.að binda enda á málið eins og í togaradeilunni, eða að reyna opinberlega á hin „föstu tök“ ríkisstjórnarinnar. Én það er eigi að síður auðvitað mál, að það er einmitt rikis- stjórnin, sem hefir fengið meiri- hluta verksm iðj us tj órnarinnar, eða fulltrúa Framsóknarflokks- ins, til þess að samþykkja kaup- hækkunina. Þannig hafa þá kommúnisla- forkólfarnir á Siglufirði, sem formaður Framsóknarflokksins var að Iýsa i blaði sínu á dögun- um, svínbeygt ríkisstjórnina og Framsóknarflokkinn. —Flokks- skútan hefir á siglingu sinni efi- ir stjórnmálaelfunni, sem sagt var svo skáldlega frá í Tímadag- blaðinu, lent of nærri „vinstri bakkanum“. Og hvort sem það er nú heldur, að formaðurinn sjálfur hafi látið töfrast af man- söngvum rauðu dísarinnar á „Lorelei-hamrinum“ vinstra megin elfunnar, og honum því fatast skipstjórnin, eða að há- setarnir hafi ærst af söng þess- um og hrifsað af honum stjórn- völinn, þá hefir endirinn orðið sá, að skútunni hefir verið siglt í strand á þeirri „óbilgjörnu klöpp“, sem mest har að varast. En hvað söng hún þá, rauða disin á „óbilgjörnu klöppinni“, sem svo gat töfrað skipshöfn- ina á Framsóknarfleyinu? Sam- kvæmt frásögn Tímadagblaðs- ins var sá „Ieiðslu-töfrasöngur“ á þessa leið: Ef eg fæ ekki 40 þús. kr. í launauppbót af sjómannastétt landsins, sem ber miklu minna lir býtum en í fyrra, þá stöðva eg alla vinnu á Siglufirði með ofbeldi. Eg vil ekki vinna og eg ræðst með ofbeldi á annað fólk ef það vill vinna. Eg hirði ekk- ert um, þó að fólkið svelti. Sjálf get eg farið á sveitina og siðan á landið. Eg hirði ekkert um þó að síldin grotni í skipunum við bryggjurnar. Eg skeyti ekkert um það, þó að sjómennimir fái sem minst fyrir strit sitt á sjón- um. Þegar þeir koma að landi með hlutinn sinn, sem er hálfu minna virði en í fyrra, þá mæti eg fram á bryggju og segi: Ef þið sjómenn góðir, viljið ekki vera svo vænir að taka af ykkar litla hlut 40 þús. kr. og gefa mér i ofanálag á þá tæpu hálfa mil- jón, sem eg fékk 1 fyrra, „þá verður engin síld brædd hér á Siglufirði í sumar“. Það er þessi „leiðslu-löfra söngur“, sem dáleitt hefir skips- höfnina á Framsóknar-fleyinu og skipstjórnarmennirnir með „föstu tökin“ liafa glúpnað fyrir. Þegar sjómennirnir átlu í hlut, dugði enginn slíkur „töfra- söngur“. Við þá sögðu þeir með „föstu tökin“, að þeir skyldu enga kauphækkun fá, nema síldin hækkaði í verði. En kommúnistaforkólfarnir, sem ætla að fara á sveitina, ef þeir fá ekki það sem þeir vilja, eiga að fá kauphækkun þó að síldin verði einskis virði. — Og því veldur rauða disin á Lorelei- hamrinum, með sínum „leiðslu- töfrasöng“. F armannadeilan. SaltMnr Iiggur nndir skemdmn 1 e. s. Hekln. Héðlnn Taldlntarsson bannaði að hrejfa við flsklnnm. Þegar stýrimannaverkfallið hófst var byrjað að skipa út í e.s. Heklu, sem hér liggur, nokkurum hluta saltfisksfarms, sem skipið átti að flytja til Englands fyrir Ólaf Gíslason & Co. Mun liafa verið búið að skipa út talsvert á annað hundr- að smálestum, en alls var það um 1000 smálestir, sem flytja álti út. Þar, sem liér er um að ræða óverkaðan saltfisk, sem þolir ekki langa geymslu, var ákveðið að leigja annað skip til þess að fara með fiskinn, og var norskt skip fengið til þessa. En form. Dagsbrúnar lagði bann við því, að fiskurinn í Heklu yrði lireyfður. Barst eig- endum skipsins tilkynning um þetta í gærkveldi. Horfir þvi svo, að fiskurinn muni verða ónýt vara. Skip það, sem leigt var til að flytja út fiskinn er komið, og verður skipað út í það þeim hluta fisksins, sem ekki var kominn út í Heklu. Mun útskip- un fisksins byrja síðdegis í dag. ! Skip leigt til að flytja út fisk, sem Brúarfoss átti að taka. Til þess að flytja út um 800 kassa af fiski, sem Brúarfoss átti að taka í Vestmannaeyjum, varð að leigja skip, því að einn- ig þessi fiskfarmur hefði skemst, ef hann hefði ekki komist áleiðis í tæka tíð. Var leigt skip til þess að flytja hann út. Hefir ekki komið til slikrar óbilgirni í Vestmannaeyjum sem hér, að gripið er til slíkra ráða, að stöðva út- flulning framleiðslu, sem liggur undir skemdum. En það getur vitanlega ekki haft nein áhrif á cndanlega lausn farmannadeil- unnar, þótt sú vara, sem hér um ræðir sé flutt á mark- að. Afli var ágætur á suma báta í Vestmannaeyjum í dag, en mjög misjafn. Vélbáturinn Von kom með 30 smálestir of þorski. Sjómenn telja mikinn fisk enn þá. (FLJ í gær.) Spánn. fllé á bardögum f Katalonín. London 29. apríl. FÚ. Uppreistarmenn á Spáni við- urkenna, að stjórnarherinn veiti uppreistarmönnum öfluga mót- spyrnu á austurströndinnni. — Iiefir uppreistarmönnum ekkert miðað þar áfram undanfarnar tvær vikur. Stjórnin tilkynnir, að henni hafi ekki einungis tek- ist að hefta algerlega framsókn uppreistarmanna i Katalóníu, beldur hafi uppreistarmenn al- gerlega lagt niður alla sókn á þessum vígstöðvum. í Barcelona hefir klukkan ver- ið færð fram um tvær klukku- stundir, til þess að spara raf- magn, vegna þess, að nokkur bluti orkuveranna, sem borgin fær rafmagn sitt frá, er í hönd- um uppreistarmanna. Patreksfjarðar-togararnir hafa nú farið 3 veiðiferðir hvor. Gylfi kom í gær með 106 föt Iifr- ar, en hefir fengiÖ alls 345 föt. — Vörður kom á þriðjudag með 107 föt, en hefir fengið alls 263 föt. Góður afli er í flóanum á trillu- báta. — (F.Ú.). Kína. Arásir Japana við Lnnghai-járnlirantina árangnrslansar. London 29. apríl. FÚ. Chiang Kai Shek hefir sagt, að baráttan um Lung-hai járn- brautina niuni verða til lykta leidd innn fimm vikna. Hann segist treysta kínverska hern- um til þess að reka Japani af höndum sér. Allar árásir Jap- ana undanfarið hafa verið ár- angurslausar, segir hann, og séu þeir nú búnir að eyða bestu kröftum sínum, en IGnverjar hafi aðstöðu til þess að gera þeim aflutninga erfiða. VÉLBÁTUR SEKKUR. Vélbáturinn Skúli fógeti V.E. 185, 12 smálestir að stærð, sökk í dag skamt vestan við Vest- mannaeyjar, en bátverjar 8 að tölu, björguðust alhr. Skipstjóri Ólafur Vigfússon. Vélbáturinn Muggur, skipstjóri Páll Jónas- son, bjargaði skipshöfninni. Niðurl. Við lifum ekki aðeins i einu ríki, heldur i ríkjakerfi, og þeg- ar til lengdar lætur, er óhugs- andi að Ráðstjórnarlýðveldin geti lialdist við, við hliðina á li eims véldissinnuðum (imperi- alistisk) ríkjum. Að lokum hlýtur annaðhvort að bera sig- ur úr býtum, og þangað til er það óhjákvæmilegt að til ægi- legustu árekstra dragi milli Ráðstjórnarlýðveldisins og hinna borgaralegu ríkja. Það þýðir, að hin ríkjandi stétt, ör- eigarnir, ef þeir vilja ríkja og munu ríkja, verða að sanna það með hernaðarlegri skipulagn- ingu“. — Og ennfremur: „Við erum umkringdir af mönnum, stéttum, ríkisstjórn- um, sem draga enga dul á hatur sitt gegn okkur. Við verðum að hafa það hugfast, að árásin er sífelt yfirvofandi“. Hér er sterldega að orði kom- ist, en heiðarlega og sannleikan- um samkvæmt, án allrar skreytni, eins og Lenins var von og vísa. Á grundvelli þessara for- senda er svo að orði komist í „Vandamál Leninismans“ eftir undirritaðan: „Úrslitasigur socialismans er fólginn í fullkomnu öryggi gegn ihlutunartilraunum og þá einn- ig gegn afturhaldinu; því til- raun til endurreisnar auðvalds- fyrirkomulagsins er því aðeins alvarlegs eðlis, að hún njóti ut- anaðkomandi stuðnings, þ. e. stuðnings frá hinu alþjóðlega auðvaldi. Því er stuðningur við byltingu okkar af hálfu verka- manna í öllum löndum, og ef vel á að vera, sigur þessara verkamanna, að minsta kosti í nokkrum löndum, óhjákvæmi- legt skilyrði fyrir fullu öryggi bins fyrsta sigrandi lands gegn íhlutunartilraunum og aftur- haldi, óhjákvæmilegt skilyrði fyrir úrslitasigri socialismans. i Sannarlega væri það lilægi- : legt og heimskulegt að loka aug- unum fyrir þeirri staðreynd, að við erum umkringdir auðvalds- ríkjum, og að hugsa sem svo, að fjendur vorir utanlands, t. d. fasistar muni ekki sæta lagi að fara með vopnaða árás á hend- ur okkur. Þannig geta að eins blindir gortarar eða dulbúnir ó- vinir hugsað, sem vilja svæfa þjóðina. Jafnskoplegt væri að neita því, að þeir myndu ekki, ef þeim tækist vigbúin innrás að einhverju leyti, afnema ráðs- stjórnarfyrirkomulagið í þeim liéruðum, sem þeir tækju her- skildi, og koma borgaralegu skipulagi aftur á laggirnar. Endurreistu ekki Denikin og Koltssliak borgaralegt skipulag í héruðunum, sem þeir niáðu á vald sitt? Eru fasistar ef til vill betri en Denikin og Koltsshak? Meðan við erum umkringdir auðvaldsskipulaginu liggur ! hættan við vopnaðri innrás og afturhaldstilraun svo í augum uppi, að þeir sem neita því að hún sé til eru annaðhvort hrein- ustu græningjar eða dulbúnir fjendur, sem vilja dylja illvilja sinn bak við gortið, og gera sér far um að afvopna þjóðina. Getur sigur sosialismans í ein- hverju landi talist endanlegur, ef auðvaldið ræður í löndunum sem að því liggja og það er ekki fullkomlega trygt gegn inn- rás og afturhaldi? Það er víst, að svo er ekki. Þannig er ástatt með spurn- inguna um sigur sósíalismans í sérhverju landi. Af því leiðir, að þessi spurn- ing snertir tvö aðgreind vanda- mál: a) vandamál innanríkis- mála vorra þ. e., livernig við brjótum borgarastéttina á bak aftur og byggjum upp fullkom- inn sósíalisma, og b) vandamál utanríkismála vorra, þ. e. hvern- ig við tryggjum land okkar gegn vopnaðri íhlutun og endurreisn auðvaldsskipulagsins. Fyi’ra vandamálið liöfum við þegar leyst, þar sem borgarastéttinni hafa þegar verið gerð full skil, og sósíalisminn er kominn á í öllum aðalatriðum. Það köllum við sigur sósíalismans, eða rétt- ara sagt, sigur sósíalistiskrar uppbýggingar i landinu; Við getum sagt, að þessi sigur sé úr- slitasigur, ef land okkar lægi á eyju og væri ekki umkringt af fjölda auðvaldsríkja. Þar sém við nú búum ekki á eyju lieldur i heilu ríkjahverfi, sem er að mjög verulegu leyti fjandsam- legt landi sósíalismans og skap- ar íhlutunar og afturlialdshættu, þá segjum við skýrt og skorin- ort, að sigur sósíalismans í land- inu er ekki neinn úrslitasigur. En af þvi leiðir, að hitt vanda- málið er fyrst um sinn ekld leyst og krefst úrlausnar. Enn- fremur: Síðara vandamálið get- um við ekki leyst á sama hátt og hið fyrra þ. e. eingöngu af eigin ramleik. Síðara vandamálið er að eins hægt að leysa með því að sam- eina harða baráttu öreigalýðs allra Ianda, enn þá harðari bar- áttu allrar alþýðu Ráðsstjórnar- ríkjanna. Það verður að efla og styrkja hin alþýðlegu öreiga- lýðssambönd verkamannastétt- ar Ráðstjórnarríkjanna við verkalýð hinna borgaralegu landa; það verður að skipu- Ieggja pólitískan stuðning verkalýðsins í borgaralegu löndunum við verkalýð lands vors, ef hernaðarleg árás kynni að vera gerð á land vort, alveg eins og verður að skipuleggja alhliða stuðning af hálfu verka- lýðsins í okkar landi við verka- lýðinn í borgaralegu löndunum? við verðum að auka og efla rauða herinn og rauða loftflot- ann á öllum sviðum. Við verð- um að halda þjóðinni vígbúinni og reiðubúinni andspænis hætt- unni við hernaðarlega árás, svo að engin ,tilviljun“ og engin „hrekkjabrögð“ fénda okkar geti komið okkur á óvart. Það sést af bréfi yðar, að fé- Iagi Urosshenko hallast að öðr- um, ekki fullkomlega léninisk- um skoðunum. Hann lieldur því fram, að þegar séð verður, að

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.