Vísir - 24.06.1938, Blaðsíða 3

Vísir - 24.06.1938, Blaðsíða 3
VlSIR Heimsókn þýsku knattspy rnumannanna. Hvernig móttökum verður hagað. Móttökunefnd Þj óðverj anna boðaði blaðamenn á fund sinn í gær og skýrði þeim frá tilhög- uiiinni á dvöl Þjóðverjanna hér. Dagskráin er á þessa leið: Sunnudagur 26. júní: Borg- arstjórn býður gestina vel- konma að Hótel Borg kl. 3. Síð- an er móttökuhátíð að Stú- dentagarðinum, þar sem Þjóð- verjamir búa, og tala þar: For- seti í. S. í., formaður K. R. R. og form. móttökunefndar. Mánudaginn 27. þ. m.: Farið um bæinn, skoðuð söfn, Sund- höllin o. þ. u. 1. Kl. 8V2, fyrsti kappleikur: Úr- valsliðið. Þriðjudaginn 28. þ. m.: Farið til Hafnarfjai'ðar kl. 1. Um kveldið sitja Þjóðverjarnir boð í Oddfellowhöllinni lijá Ger- maníu. Miðvikudag 29. þ. m.: Skoðuð fiskstöð Kveldúlfs í boði félags- ins. KI. 8V2, 2. kappleikurinn, við íslandsmeistarana, Val. Fimtudag, 30. þ. m.: Farið til Þingvalla í boði ríkisstjórn- arinnar. Föstudag, 1. júlí: Farið að Álafossi og skoðuð liitaveitan. Kl. 9, 3. kappleikurinn, við Víking. Laugardag 2. júlí: Ekið að Gullfossi, Geysi og Sogsfossum í boði bæjarstjórnar Reykja- vikur. Sunnudag, 3. júli: Þeim degi geta Þjóðverjarnir ráðstafað eftir vild. Mánudag, 4. júlí: Kl. 8 fjórði kappleikurinn, við úrvalsliðið. Þriðjudag, 5. júlí: Óráðstaf- að. Miðvikudag, 6. júlí: Dans- leikur að Hótel Borg um kveld- ið. Fimtudagur, 7. júlí: Brott- farardagur. Á mánudagskveld mun Lúðrasveit Reykjavíkur leika frá kl. 8, áður en leikur hefst. Guðjón Einai’sson verður að líkindum dómari alla leikina, en Þjóðverjunum liefir verið boðið að dæma í tveim Þeirra. Ýmsar breytingar og endur- bætur hafa verið gerðar á vell- inum, t. d. hafa pallarnir verið auknir, salernum komið fyrir o. þ. h. og hefði ekki verið van- þörf á að þessu væri kipt í lag fyrir löngu. Búningur úrvalsliðsins verð- ur hinn sami og í Þýskalands- förinni iá árunum: Hvít skyrta með íselnska fánanum á brjóst- inu, svartar buxur og svart- röndóttir sölckar. Læknir mótsins verður Axel Blöndal. Móttökunefndin ætlaði að setja upp klukku á vellinum, svo að bæði keppendur og áhorfendur gæti betur fylgst með, hvað leik liði, en þetta V.erður ekki hægt að sinni, sak- ir þess að verk í slíka klukku fást ekki hér. Á því leikur enginn vafi, að aðsókn verður mikil að þessum leikjum, eins og jafnan er þeg- ar erlendir íþróttamenn sækja okkur heim. Samfara því safn- ast jafnan mikill fjöldi bifreiða og reiðhjóla fyrir utan völlinn og er mikill trafali fyrir um- ferðina. Nú verður þessu breytt þann- ig, að reiðhjólum öllum er ætl- aður sértsakur staður og bif- reiðum einnig. Verða menn að haga sér eftir þessu og er varla nokkur vafi á því, að menn munu taka vel í þetta, því að hjólakösin og bifreiðaraðirnar fyrir framan völlinn eru öllum öðrum hvimleiðar, en eigend- unum einum. Loks er þetta: Ryðjist ekki inn á völlinn í hálfleik, eins og oft vill brenna við hér á kapp- leikjum. íslendingar hafa jafn- an þótt löghlýðnir og þeim hef- III. 4. Landsþing K. I. skorar á kvenfélög landsins að gæta þess vandlega, að heimilisiðnaðar- munir þeir, sem þau senda til ir þótt það hól gott, en við verð- um að sýna hinum erlendu gestum, að þetta er engin skrumauglýsing, heldur stað- reynd. Ættu allir menn að taka saman höndum um að gera Þjóðverjum dvölina sem ánægjulegasta og láta þá ein- göngu hafa gott af okkur að segja, er þeir koma heim til sín aftur. Fjáreigendur. BreiÖholtsgirðingin verður smöl- uð um hádegi á morgun. Fjáreig- éndur verða að taka fé sitt og reka á afrétt. Prestastefna hófst hér í bæ í gær með guðsþjónustu. Síra Halldór Kol- beins flutti ræðu og síra Fr. Rafnar vígslubiskup var fyrir altari. Af dagskráratriðum má nefna: Skýrslur biskups um kirkju- mál liðið ár. Skýrsla um barnalieimili þjóðkirkjunnar (Ásm. Guð- mundsson prófessor), og erindi hans, Næsti áfanginn, í kirkj- unni í gærkveldi. í dag var byrjað með morg- unbæn (sr. Ól. Magnússon). Þá komu skýrslur um inessugerð- ir. Erindi: „Nýtt viðhorf og nið- urstöður í trúarbragðavisind- um“ (Sigurbj. Einarsson), og Hyrningarsteinn trúar vorrar (dr. J. H. biskup). í dag kl. 4!/ó liefst fundur að nýju og flytur þá sr. Bjarni Jónsson erindi er liann nefnir: „Tveir ritningarstaðir“. Veðrið í morgun. Hiti í Reykjavík n stig. Mestur hiti 12 stig, minstur 3 stig (Gríms- ey, Skálar á Langanesi). Mestur hiti í gær 13 stig, minstur í nótt 7 stig. Sólskin í gær 10,1 stund. — Yfirlit: Grunn lægð um 600 km. suður af Reykjanesi á hreyfingu NA-eftir. — Veðurútlit: Suðvest- urland: Austan kaldi. Úrkomulaust. Faxaflói, Breiðafjörður, Vestfirðir, Norðurland: Hægviðri. Léttskýjað. Skipafregnir. Gullfoss er í Kaupmannahöfn. Goðafos er væntanlegur til Vést- mannaeyja um hádegið á morgun, hingað annað kveld. Brúarfoss kom að vestan og norðan í morgun. Dettifoss kemur til Grimsby í dag. Selfoss er á útleið. Höfnin. Skonnorta, sem hér hefir verið að lesta hrogn, fór í gær. Fertugsafmæli á í dag Jón Dalmansson gullsmið- ur, Vitastíg 20. Valsmenn og aðrir, er kynnu að eiga ógöll- uð Valsmerki (nælur), eru vinsam- legast beðnir að lána félaginu þau fram í næsta mánuð, að hin nýju merki koma. Þeir, sem gætu sint þessu, gjöri svo vel og afhendi merkin til Axels Þorbjörnssonar c/o H. Biering, Laugaveg 3, eða Hólmgeirs Jónsonar, Kiddabúð, Þórsgötu 14. Félag matvörukaupmanna fer skemtiferð í Skíðaskálann á laugardaginn kl. 4. Lagt verður af stað frá Steindóri. Félagsmenn á- mintir um að vitja farmiða til Sí- monar Jónssonar, Laugaveg 33. Nokkrir miðar óseldir. Synodusfyrirlestur í dómkirkjunni flytur síra Árni Sigurðsson, fríkirkjuprestur, um andlegar framtíðarhorfur, kl. síðd. Allir velkomnir. Það skal tek- ið fram, að fyrirlestrinum verður ekki útvarpað. Knattspyrnufél. Víkingur 1. fl. æfing hjá A- og B-liði kl. yfi í kvöld. U.M.F. Velvakandi fer gönguferð að Kleifarvatni og i Krýsuvík næstkomandi sunnudag. Uppl. hjá ferðanefnd félagsins. Ríkisskip. Súðin var á ísafirði í morgun. Esja fer í kveíd kl. 8 til Glasgow. Næturlæknir. er í nótt, i stað Öfeigs Ófeigs- sonar, Grímur Magnússon, Hring- braut 202. Sími 3974. Útvarpið í kvöld. Kl. 19.20 Hljómplötur: Frægir söngvarar. 19.50 Fréttir. 20.15 Ferðasaga: Gari'gandi norður Sprengisand (Jón Dan verslunar- maður). 20,45 Híjómplötur: a) Tónverk eftir Schubert. b) Sönglög. c) Harmonikulög. 22,00 Dagskrár- lok. íigur sðiuktar af liiisiíi kmna Reykjavík, 14. júní 1938. I. Um! leið og vér, fulltrúai: á 4. landsþingi Kvenfélagasambands Islands, þökkum Alþingi og rík- isstjórn fyrir að liafa viðurkent þörf þjóðarinnar fyrir aukna liúsmæðrafræðslu í landinu,get- um vér eigi látið hjá líða að láta í ljósi óánægju allra kvenfé- lagasambanda landsins yfir þvi atferli, að semja og afgreiða lög um húsmæðrafræðslu í sveitum og húsmæðrakennara- skóla, án þess að gefa konum íhlutunar- og ákvörðunarrétt í máíinu. Jafnframt leyfum vér oss að skora á ríkisstjórnma að skipa liið fyrsta vel hæfar konur til þess að semja eða taka virkan þátt í samningu laga um hús- mæðrafræðslu í lcaupstöðum landsins, er samþykt var í efri deild Alþingis 26. apríl 1938. Virðingarfylst, í stjórn Kvenféksamb. Islands Ragnhildur Pétursdóttir. Guð- rún J. Briem. Guðrún Péturs- dóttir. F. h. Sanfbands borg- firskra kvenna: Svava Þorleifs- dóttir. F. li. Sambands breið- firskra kvenna: Ingveldur A. Sigmundsdóttir. F.h. Bandalags kvenna, Reykjavík: Aðalbjörg Sigurðardóttir. Kristin V. Jac- obson. Fjóla St. Fjeldsted. Lauf- ey Vilhjálmsdóttir. F. h. Sam- hands sunnlenskra kvenna: Herdís Jakobsdóttir. Þjóðbjörg Þórðardóttir. F. h. Sambands norðlenskra kvenna: JóninaSig- urðardóttir. Sólveig Pétursdótt. ir. F. li. Sambands vestfirslcra kvenna: Bergþóra Kristjáns- dóttir. Estíva Björnsdóttir. F. h. Sambands austfirskra kvenna: Elísabet Baldvinsdóttir. F. h. Sambands kvenna í Gullbringu- og Kjósar-sýslu: Ingibjörg Jóns- dóttir. Tillögur þessar voru sam- þyktar á Landsþingi Kvenfé- lagasambands Islands er lialdið var i Reykjavík dagana 11.—16. júní s.l. II. 4. Landsþing Kvenfélagasam- bands Islands skorar á rikis- stjórnina að láta nú þegar end- urskoða skrár yfir innfluttar vörutegundir og breyta þeim i hagkvæmara liorf. Jafnframt skorar landsþing K. I. á ríkis- stjórnina að sjá um, að reyndar húsfreyjur verði kvaddar til þess, að gera tillögur í máli þessu. sölu, séu vandaðir og vel unnir, þar eð vöruvöndun er besta trygging fyrir sölumöguleikum. Sakir sívaxandi örðugleika á innflutningsvarningi til heimil- isþarfa, sem að klæðnaði og rúmfatnaði lýtur, hafa kvenfé- lög landsins beitt sér fyrir því enn meir en nokkru sinni áður, að heimilin vinni sem allra mest sjálf og hefir það verið þeim mikill styrkur, að geta snúið sér til Heimilisiðnaðarfé- lags íslands um útvegun á á- liöldum og efni til vefnaðar. Er Kvenfélagasamband Islands þakklátt gjaldeyris- og innflutn- ingsnefnd fyrir þann skilning er liún hefir sýnt málum vor- um. Þar sem örðugleikar fara síst minkandi, er oss brýn þörf á að fá öllu rifari innflutning eftirleiðis en hingað til, og beinum þvi til nefndarinnar ósk vorri um, að jafnframt því sem liún veitir innflutningsleyfi, stuðli hún að því, að nauðsyn- legur erlendur gjaldeyrir verði fáanlegur, svo að viðskiftin verði greiðlega rekin. IV. 4. Landsþing K. I. þakkar frú Ónnu Ásmundsdóttur fyrir til- raunir þær, sem hún hefir gert, til þess að afla íslenskum heim- ilisiðnaði markaði erlendis, — skorar fundurinn á ríkisstjórn- ina að gefa þessu gaum og styrkja þessa viðleitni. V. 4. Landsþing K. 1., sem haldið var dagana 11.—16 júni 1938, leyfir sér að beina því til liáttvirtrar fræðslumálastj órnar íslands, að hún hlutist til um það, að við húsmæðra- og kvennaskóla landsins verði tek- in upp kensla um líkamlega meðferð ungbarna og kend helstu atriði uppeldisfræðinnar. Ennfremur að við héraðsskól- ana verði flutt erindi um upp- eldismál. VI. 4. Landsþing K. I. ályktar að liefja nú þegar fjársöfnun með.. al kvenna um land alt, í því skyni að heiðra minningu frú Elínar Briem Jónsson, t. d. með því að láta mála andlitsmynd af henni, er síðan verði geymd í væntanlegum húsmæðraskóla. Ragnhildur Pétursdóttir, fundarstjóri, forseti K. I. Laufey Vilhjálmsdóttir ritari. Svava Þorleifsdóttir, ritari. Maðurinn minn og faðir okkar, Einar Einarsson, blilcksmiðameistai’i, Laugavegi 53 A, andaðist að lieimili sínu, fimtudagimi 23, þessa mánaðar. Sigríður Jónsdóttir og dætur. Húsmæður I Munið að panta strax 1 dagl Þér fáið betri vörur því fyr sem þér gerið pöntunina. Alikálfakjöt Nautakjöt af ungu, KÁLFAKJÖT, DILKAKJÖT, SALTKJÖT, HANGIKJÖT, DILKASVIÐ, KARTÖFLUR, LAUKUR, TOMATAR, RABARBARI, lækkað verð og margt fleira. Vorslunin GOÐALAND, Bjargarstig 16. — Sími 4960. Ný slátrað NantakjOt Nýp Lax Nýpeykt Sauðakjöt Kjöt og fiskmetisgerðiu Grettisgötu 64. Sími 2667. Fálkagötu 2. Sími 2668. Verkamannabústöðunum Sími 2373 Reykhúsið. Sími 4467. Svínakjöt í steik Gullascti Búrfell Laugavegi 48. Sími 1505. í Tomatar GÚRKUR, 5 RABARBARL PERSILLE, ; RADÍSUR. ■ KOt & Flsknr M s Símar 3828 og 4764. [■mb5 Fyrst til Silla & Vaiða — þar er úrralið. Lítlð ino. Engio tðf. Eða bara hringja, sno kemnr hai. CUUeVSUí 5 2 8 S (Fimmtíu og tveir átta fimm), — er símanúmerið, mL NJÁLSGÖTU 106. I matinn: Lax NantakjOt DILKAKJÖT, SALTKJÖT, HANGIKJÖT, KINDABJÚGU, o. m. fl. Símar 1636 og 1834» Ibin Borg i HANGIKJÖT- SVIÐ. DILKARULLUPYLSUR. NðrdalsísMs Sími: 3007. Sykurverö lækkar Félag Matvörukaupmanna ákvað 22. Þ.m*> að LÆKKA verð á SYKRI í Melis steyttup 45 a i g — köggvixin 55 — . Stjórnin.,

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.