Vísir - 15.07.1938, Síða 2
VlSIR
VÍSIR
ÐAGBLAÐ
Útgefandi:
BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H/F.
Ritstjóri: Kristján Guðlaugsson.
Skrifstofa: Hverfisgötu 12.
Afgreiðsla: Hverfisgötu 12.
(Gengið inn frá Ingólfsstræti).
Símar:
Afgreiðsla 3400
Ritstjórn 4578
Auglýsingastjóri 2834
Verð 2 krónur á mánuði.
Lausasala 10 aurar.
Félagsprentsmiðjan h/f.
Örðugleikar
og
hluídrægni.
pleslir þykjast sjá fram á
* vaxandi örðugleika með af-
komu landsmanna, jafnvel þótt
síldveiðamar fari betur en nú
horfir. Dýrtíðin fer vaxandi.
Tollar og skattar hafa hækkað
stórlega. Lánstraust þjóðarinn-
ar erlendis er glatað. Vanskilin
við útlönd fara hraðvaxandi.
Gjaldeyrismálin eru í fullkom-
inni óreiðu í höndum núverandi
stjórnar, sem þó lætur ekkert
færi ónotað til að syngja inn-
flutningshöftunum lof. Það er
fyrir löngu komið á daginn, að
höftin eru gersamlega ómegnug
að halda innflutningnum í sam-
ræmi við gjaldeyrisástandið.
Stjórnin ræður nú ekkert við
hið mikla skipulagningarbákn,
sem hún hefir sett af stað i
gjaldeyris- og innflutningsmál-
unum. Það er vaxið henni yfir
höfuð og það er vel á vegi með
að sigla i strand öllu viðskifta-
og atvinnulífi þjóðarinnar.
Þegar svona er komið, mundi
hver einasti heilsteyptur stjóm-
málamaður, sem metur meira
alþjóðarheill en flokksliags-
muni, viðurkenna gjaldþrot
þeirrar fjármálastefnu, sem
öllu er nú að koma i öngþveiti.
Þeir menn sem til þessa hafa
haldið þessari gjaldeyrisþrota-
stefnu til streitu, mundu vaxa
að manndómi, ef þeir hefðu
hugrekki og drengskap til að
viðurkenna mistök sín. Öllum
getur missýnst. En því lengur
sem afglöpin halda áfram, því
dýrari verða þau þjóðinni.
Hver einasti athugull Fram-
sóknarmaður, hlýtur að hafa
komið auga á það, að innflutn-
ingsliöftin bjarga ekki þjóðinni.
Það er öllum ljóst. En liitt er
einnig alþjóð ljóst, að sam-
vinnufélögin tapa ekki á þeim.
Þau hafa aldrei séð slík upp-
gangs ár og hin þrjú siðustu,
þau árin sem mest hefir verið
hert á höftunum. Mörgum verð-
ur á að spyrja hvort þetta
sé ein aðalorsök þess að fram-
sóknarstjórnin heldur dauða-
haldi i haf taskipulagið, þótt það
sé nú sýnilega að draga þjó'ð-
ina að harmi gjaldþrots og fjár-
bagslegrar niðurlægingar.
Daglega heyrist umi það rætt,
að gjaldeyrir sé ófáanlegur í
hönkunum og innflytjendur fái
ekki að greiða nauðsynjavörur.
Menn missa viðskiftasambönd
sín vegna vanskila, sem stafar
af gjaldeyrisskorti. En meðan
þessu fer fram, er hér eitt fyrir-
tæki, Samband ísl. samvinnu-
félaga, sem getur greitt allar
sínar vörur og þarf ekki að
lenda í vanskilum, vegna þess
- ftf. ii . - -V'. '• Wó * **-
að sambandinu er heimilað að
nota sinn eigin gjaldeyri. Slík
fríðindi liefir ekkert annað fyr-
irtæki á landinu i neitt svipuð-
um mæli. Samhandið notar
elíki að eins sinn eigin gjaldeyri,
seni inn kemur fyrir vörur
félaganna, heldur kaupir það
sjávarafurðir i stórum stíl, svo
sem lirogn og harðfisk og not-
ar gjaldeyrinn í sínar þarfir.
Slíkur gjaldeyrir ætli þó ekki
siður að koma öðrum að not-
um. Það fer illa saman almenn-
ir erfiðleikar og opinher hlut-
drægní.
Það er ekki lastandi þótt ein-
hverjum takist að forðast van-
skil erlendis, en það er gersam-
Iega óþolandi, að einu fyrirtæki
sé gefin sérstök fríðindi með
gjaldevri meðan allir aðrir inn-
flytjendur í landinu verða að
lenda í stórkostlegum vanskil-
um vegna gjaldeyrisskorts. Þess
verður að krefjast, án nokkur-
ar undantekningar, að sömu lög
gildi fyrir alla í þessu landi.
VÉR VILJUM EKKI LENG-
UR ÞOLA NEINA HLUT-
DRÆGNI. — VÉR HEIMTUM
AÐ EITT SÉ LÁTIÐ YFIR
ALLA GANGA.
Jafnffamt sendif MitleF 100.000 menn til Rínarhéfaðanna
til þess ad koma iipp nýjnm víggifdingnm gegnt
Magfnet^víggÍFdlngnniim í Frakklandi6
EINRASKEYTI TIL VÍSIS
London, í morgun.
Daily Express skýrir frá því, að fregnir hafi borist um það
til London frá áreiðanlegum heimildum, að Hitler hafi
fyrirskipað að senda þegar í stað 100.000 menn úr hin-
um ýmsu vinnustöðvum landsins, til Rínarbygðanna, í því
augnamiði að vinna þar að því að koma upp víggirðingum,
andspænis Maginotvíggirðingunum í Frakklandi, sem eru mestu
Iandamæravíggirðingar, er nokkuru sinni hafa verið gerðar og
var það f jölda margra ára verk að ganga frá þeim. Það vakir
þó ekki fyrir Hitler að koma upp slíkum víggirðingum í Rínar-
héruðunum, enda eru skiIjTði til landvarna betri í Rínarbygð-
um en í Frakklandi við landamæri Þýskalands. Mundi það og
taka langan tíma og ógrynni f jár þurfa til að koma upp slíkum
víggirðingum, en Þjóðverja mundi skorta fé til þess að ráðast
í slíkt fyrirtæki. Hefir Hitler því horfið að því ráði að treysta
landvarnir í Rínarbygðum sem allra best að auðið er og verður
lögð áhersla á, að hraða verkinu sem mest. Daily Express segir,
að því eigi að verða lokið þ. 15. ágúst, eða á einum mánuði.
Vekur það allmikla furðu, að hafist skuli handa um að treysta
landvarnir Rínarbygðanna nú.
Flugdagurinn á
sunnudaginn.
Sex svifflugup og 3 vélflugup á
loffci samtímis.
Á sunnudaginn verður mikið um dýrðir á Sandskeiðinu. Þá
verður þar háð fyrsta flugmót á íslandi og taka þátt í því sex
svifflugur og þrjár vélflugur. Sýnir það best hve mikill kraftur
og áhugi er í félögum Svifflugfélagsins, sem aðallega sjá um
mótið, að leggja í að halda svona mót, með þátttöku utan af
landi og frá öðrum löndum.
Blaðamönum vár í gær boðið upp á Sandskeið og eftir því
sem við sáum þar og heyrðum, munu þeir ekki verða fyrir von-
brigðum, er fara uppeftir á sunnudaginn.
Fjðtir íslendingaar
fara til Wembíey.
Jafnframt, segir Daily Express, hafa verið gerðar ráð-
stafanir til þess, að tilhlutan Hitlers, að undirbúa gífur-
lega aukningu flugflotans. Vakir það fyrir Hitler, að þýski
flugherinn hafi 6000 nýjar flugvélar af fullkomnustu gerð
við hendina, ef ófriður brýst út.
Þ. 22. þ. m. fara f jórir Islend-
ingar utan með Esju. Eru það
þeir Jónas Halldórsson og Ingi
Sveinsson sundmenn, Jón Páls-
son þjálfari og Erlingur Páls-
son yfirlögregluþjónn, er verð-
ur fararstjóri.
Tíðihdamaður Vísis hitti Er-
ling að máli í morgun og spurði
hann um förina. Sagðist honum
svo frá:
I liaust sem leið fengum við
hoð um að taka þátt í Evrópu-
sundmeistaramótinu, sem fer
fram í Wembley í London þ. 6.
—13. ágúst n. k.
S. R. R. sem hafði málið til
meðferðar, áleit að bestu sund-
menn okkar hefði erindi þang-
að og er nú svo komið, að á-
kveðið hefir verið að Jónas tek-
ur þátt í 400 m. og 1500 m.
sundi með frjálsri aðferð og
Ingi Sveinsson í 200 m. bringu-
sundi. Æfðu þeir sig og einnig
fleiri efnilegir sundmenn og
voru þeir reyndir fyrir rúmri
viku, en því miður reyndust
þeir tveir einir svo góðir, að
rétt þætti að senda þá. Var
reynt að fá góðan mann á 100
m. frj. aðf., en tókst ekki.
Styrkur liefir fengist til far-
arinnar, en Erlingur Pálsson'
mun kosta för sína sjálfur.
— Hvernig haldið þér að ár-
angurinn verði ?
— Um hann er erfitt að segja.
Hann fer eftir því, hvernig
menn eru upplagðir, svo og
gegn hvaða mönnum kept er í
fyrstu, en piltarnir eru báðir
góðir sundmenn og Jónas mjög
framarlega á Norðurlanda-
mælikvarða.
Laugin í Wembley er opin,
21° heiít vatn I henni ’
"t r
Ferðafélag íslands
fer skemtiför austur á Síðu að
morgni 20. þ. m. þriggja daga ferð
fram og til baka. Ódýr ferð. Allar
upplýsingar á skrifstofu Kr. Ó.
Skagfjörðs, Túngötu 5. Farmiðar
að Gullfoss og Geysis-förinni verða
seldir á Steindórsstöð bæði föstu-
dag og laugardag til kl. 9.
Næturlæknir:
Sveinn Pétursson, Garðastræti 34,
sími 1611. Næturvörður í Reykja-
víkur apóteki og Lyfjabúðinni Ið-
unni.
Lúðrasveit Reykjavíkur
leikur fyrír framan Bernhöfts-
bakarí kl. 9 í kvöld.
HEFIR GÖRING STUNGIÐ UPP Á ÞYÍ, AÐ BRETAR OG
ÞJÓÐVERJAR GERI MEÐ SÉR FLUGMÁLASAMNING?
Enda þótt því sé neitað af bresku stjórninni, er því haldið
fram í Daily Express, að Göring hafi snúið sér til kunnra
breskra manna, sem verið hafa í heimsókn í Þýskalandi, og
rætt við þá um skilyrðin til þess, að Bretar og Þjóðverjar gerð-
ust aðilar að slíkpm samningi.
Þjóðverjar eru nú að sannfærast um, segir Daily Ex-
press, að þeir hafa ekki lengur neina möguleika til þess
að sigra í vígbúnaðarkapphlaupinu við Breta, vegna fjár-
skorts og hráefnaskorts.
Muni því Þjóðverjar leita samvinnu um takmörkun vígbún-
aðar í lofti, en jafnframt leggja höfuðáherslu á að treysta land-
varnirnar.
United Press.
Italsknr flogbátsr ferst.
Sextán farþegar og fjórir flBgmenn farast
EINKASKEYTI TIL VlSIS.
London, í morgun.
Rómaborgarfregnir herma, að ítalskur flugbátur
í ferðum milli Sardinia og Róm — einn af
stærstu flugbátum ítala, sem notaðir eru til
farþegaflutninga, — hafi farist. Hrapaði flugbtáurinn
í sjó niður.
Sextán farþegar druknuðu og f jórir flugmenn. Slys-
ið varð í gær. Meðal farþeganna voru tvær systur,
frænkur Yalle, undirflugmálaráðherra.
Sex lík hafa fundist. Tundurspillar og flugvélar leita
enn á svæðinu, þar sem flugbáturinn fórst.
United Press.
Hann lenti heilu 09
höldnu í New York
í gær.
London, 14. júlí. FÚ.
Howard Hughes, ameríski
flugmaðurinn, og félagar hans
fjórir, eru nú á leið frá Minnea-
polis í Bandaríkjunum til New
York (fregn þessi var móttekin
kl. 4.20, ísl. tími). Eiga þeir nú
eftir nokkurra klukkustunda
flug til New York og er þar
mikill viðbúnaður til þess að
fagna þeim. Eru menn farnir
að safnast saman í þúsundatali
í nánd við flugvöllinn, þar sem
þeir lenda. Flugmennirnir lögðu
af stað frá Fairbanks í Alaska
tveimur stundum eftir komu
sína þangað, en þar lentu þeir
stuttu fyrir miðnætti síðastliðið,
eftir íslenskum tíma.
Fyrsu sex klukkustundirnar
eftir burtför þeirra frá Fair-
banks fréttist elckert lil þeirra
og var giskað á, að þeir mundu
ætla að lenda i nánd við Winni-
peg, en þeir lentu i nánd við
borgina Minneapolis í Minne-
sota kl. 1% e. h. Skýrðu þeir
frá því, að ólag hefði komið á
loftskeytatæki flugvélarinnar,
er þeir flugu yfir Klettafjöll.
Þeir höfðu ’að eins hálfrar
slundar viðdvöl í Minneapolis.
London, 14. júlí. FÚ.
Samkvæmt útvarpsfregnum
Frá því um lielgi hafa um 20
piltar og tvær stúlkur legið við
uppi á Sandskeiði og notið
kenslu Þjóðverjanna. Eru þeir
þrír: Baumann verkfræðingur,
foringi fararinnar, Ludwig,
flugkennari og listflugmaður,
og Springbock, svifflugmaður.
Meðal „útilegumannanna“
eru fimm Akureyringar, — en
fleiri eru væntanlegir i dag að
norðan — og er ein stúlka þar
á meðal. Eru samtals 3 stúlkur
í félaginu á Akureyri, en ein
liér. Samtals eru félagar í Svif-
flugfélagi Reykjavikur 37—38.
FÍugvélar þær, sem verið hafa
uppfrá að staðaldri, eru átta að
tölu. Þar af eru 6 svifflugur og
tvær hreyfilflugur. Eru hreyf-
ilflugurnar báðar, svo og ein
svifflugan, tveggja mann för.
Auk þess sem allir, sem upp-
frá hafa verið, hafa lært svif-
flug, hafa fimm menn stundað
nám á hreyfilflugvél, aðallega
hjá Þjóðverjunum.
Til þess að menn geti glöggv-
að sig á öllnm þeim prófum,
sem minst er á í sambandi við
svifflug', skal hér hirt hvað út-
heimtist til þess að ná hverju
prófi um sig.
A-próf: Lýtalaust 30 sek.
flug í beina stefnu, en áður 5
flug, hvert yfir 20 sek., með
sömu skilyrðum.
B-próf: 5 hringflug, minst 1
mínútu hvert, með lendingu við
ákveðið mark.
C-próf: 5 min. flug án þess að
tapa liæð og lending við ákveð-
ið mark.
aC-próf: Fimm flug, ekkert
undir 5 min. og til samans eina
klukkustund.
Silfur-C-próf: Flug i 5 st.
samfleytt, komast í 1000 metra
liæð, eftir að slept er dráttar-
laug, og 50 km. flug yfir land
í beinni loftlínu milli staðanna.
GulI-C-próf: Þetta próf er af-
ar sjaldgæft og munu ekki hafa
það fleiri menn í heiminum en
fjórir: 10 klst. flug, 250 km.
yfir land og 3000 m. hæð.
frá New York eru linattflugs-
mennirnir lentir heilu og
höldnu. Ógurlegur mannfjöldi
hafði safnast saman til þess að
fagna þeim og voru fagnaðar-
lætin meiri en dæmi eru til við
komu flugmanna til New York.
Flugmennirnir lentu klukkan
5.37 e. li. eftir íslenskum tima.
Flugmennirnir voru 3 sólar-
hringa, 19 klukkustundirf og ca.
17 mínútur í hnattfluginu.
Áður en blaðamenn komu
uppeftir og meðan þeir dvöldu
þar, gerðist þetta:
Ivjartan Guðhrandsson fór
upp í Zögling (rennifl.) og hélt
sér á lofti í 36 mín.
Leifur Grímsson fer upp
í sömu flugu og flýgur í 22 mín.
og aftur í 25 mín.
Þá fór Kjartan upp í svif-
flugu. Var þá kl. 1.05, og fékk
skipun um að koma ekki niður
fyr en eftir 5 klst, og lcom hann
niður ld. 6.07, eftir 5 klst. og
Ivær mín. Var liann að jafnaði
í 400 metra hæð, en komst hæst
i 860 m. hæð.
Meðan Kjartan var uppi flaug
Leifur tvisvar, 16 mín. í hvert
skifti, og hafði þá lokið aC-
prófi.
'Þá flaug Bj. Pálsson og náði
í annari atrennu 12 mín. flugi
og C-prófi.
Þá flaug Hafliði Magnússon
og náði C-prófi i fyrstu atrennu
með 34 mín. fulgi.
Þessir þrír fóru upp í skóla-
vél.
Þessu næst flaug Leifur, og
átti að vera uppi fimm stundir
eins og Kjartan, en er hann
hafði flogið um 40 mín. lægði
vindinn og breytti átt, svo að
hann lenti. Hafði hann þá verið
uppi í 42 mín.
En á meðan flaug Hafliði
tvisvar, i 12 mín. og 8 mín., og
hafði þá lokið þrem af fimm
flugum, til að ná aC-prófi.
(Skv. heimildum Ludwigs
yfirf lugkennara.)
Að lokum var blaðamönnum
hoðið að fljúga í þýsku hreyfil-
flugunni og stjórnaði Baumann
henni.
Eins og Vísir hefir skýrt frá
áður, hefir nefnd manna, skip-
uð fulltrúum allra flugfétag-
anna, unnið að undirbúningi
flugdagsins og liefir hún orðið
margliáttaðs stuðnings aðnjót-
andi, bæði hjá einstaklingum og
fyrirtækjum, og þakkaði Guð-
brandur Magnússon, er aðallega
var leiðsögumaður hlaðamanna,
blöðunum sérstaklega fyrir
stuðning þeirra við þetta mál-
efni.
79 ára
verSur í dag ekkjan SlgríÖur
Þorláksdóttir, Iiallveigarstig 9.
Silfurbrúðkaup
eiga á sunnudaginn Anna Jóns-
dóttir og Sveinbjörn Angantýsson,
innheimtumaður, BræSraborgarstíg
49. —