Vísir - 20.07.1938, Síða 2
V I S I R
Mapgip menn fénusí, en ó-
kannngt en nm enðanlegt
tjén á mðnnam og eigimm,
London, í morgun.
Frá Aþenuborg er símað, að miklir landsjálftar
hafi orðið í Grikklandi í nótt. Eignatjón varð
mjög mikið og allmargir menn biðu bana. —
KI. 2.15 í nótt kom feikna harður landskjálftakipp-
ur og stóð hann yfir í 20 sekúndur. í Aþenuborg lék
alt á reiðiskjálfi og á um 50 fermílna svæði kringum
borgina, bæði á meginlandinu og ýmsum eyjum. Einna
mest tjón varð af völdum landskjálftakippsins í Oro-
pos, 40 mílur til norðausturs frá Aþenuborg, þar sem
hús í þremur smáborgum stórskemdust eða
hrundu til grunna. Þegar kippurinn kom þustu
íbúarnir óttaslegnir út úr húsum sínum. Meiddust
sumir þeirra, en nokkurir fórust í húsum, sem
hrundu.
Allmörg hús hrundu á Chaekis á Euboea, en ó-
kunnugt er um eignatjón og manntjón þar.
í Aþenuborg varð tjónið af landskjálftunum ekki
mikið. Fólk varð mjög skelkað og þusti úr húsum út
á götuna.
United Press.
Deilnr Breta og Þjóðverja
verða leiddar til iykta,
ef Tékkóslóvakiumálin
fá friðsamlega lausn.
SIGURBOGINN í PARÍS.
Frá dvöl bresku kon-
ungrsbjónanna i
Stóppólitisk viðfangsefni.
London, í morgun.
Lundúnadagblöðin í morgun gera ráð fyrir því,
að innan skamms verði endurnýjaðar tilraun-
irnar til þess að ná samkomulagi um öll helstu
ágreiningsmál Breta og Þjóðverja. Telja þau, að við-
horfið hafi breyst þannig, að líkur bendi í þessa átt,
vegna viðræðna Widemanns kapteins og Halifax lá-
varðs s. 1. mánudag, en Widemann fór til London með
munnlega orðsendingu frá Hitler til Halifax lávarðs.
Times segir, að Hitler hafi látið í Ijós einlæga
ósk um, að tilraunir verði gerðar til þess að bæta
sambúð Breta og Þjóðverja. Ennfremur, segir
Times, lætur Hitler í ljós þá skoðun sína, að deil-
urnar út af Tékkóslóvakíu ætti að vera unt að leiða
til lykta með friðsamlegu móti.
Halifax lávarður er sagður hafa tekið á móti orð-
sendingu Hitlers með þeim ummælum, að um leið og
hann þakkaði orðsendinguna vildi hann benda á, að
Þjóðverjar ætti að beita sér meira til þess að vinna að
friðsamlegri lausn vandamála álfunnar. Um Tékkó-
slóvakíu sagði Halifax, að ef ddlurnar í Tékkóslóvakíu
yrði leystar friðsamlega, án íhlutunar frá öðrum þjóð-
um, mundi skapast betri skilyrði til þess að endurnýja
samkomulagsumleitanirnar milli Breta og Þjóðverja.
United Press.
DAGBLAÐ
Útgefandi:
BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H/F.
Ritstjóri: Kristján Guðlaugsson.
Skrifstofa: Hverfisgötu 12.
Afgreiðsla: Hverfisgötu 12.
(Gengið inn frá Lngólfsstræti).
S í m a r :
Afgreiðsla 3400
Ritstjórn 4578
Auglýsingastjóri 2834
Verð 2 krónur á mánuði.
Lausasala 10 aurar.
Félagsprentsmiðjan Ii/f.
Ömurlegasta
eyðslan.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ getur þess
“ í gær að atvinnuleysingjar
liér í bænum séu nú skráðir 400
að tölu, en á sambærilegum
tíma á fyrri árum liafi þeir ver-
ið miklu færri. í Hafnarfirði
munu atvinnuleysingjar nú vera
um 200 eða fleiri með því að
ríkisstjórnin hefir látið stöðva
vinnu við Suðurlandsbraut, og
er þvi ekki um neina opinbera
vinnu að ræða til handa Hafn-
firðingum.
Verkalýðsfélögin liafa undan-
farna daga þrávegis liitt rikis-
stjórnina að máli og borið fram
við hana kröfur um atvinnu-
aukningu, en til þessa mun það
hafa borið lítinn árangur, að
öðru leyti en því, að ríkisstjórn-
in mun liafa gefið loforð um
að eitthvað verði unnið austur
í hinni svokölluðu „Síberiu“, en
hinsvegar er ekkert ákveðið um
það, hvenær vinnan hefjist né
Iive margir komist þar að af
atvinnuleysingjunum.
Það er athugavert, að Al-
þýðublaðið er harla ánægt með
þessa úrlausn fyrir hönd verka-
mannanna, og það nefnir ekki
einu orði að rikisstjórnin liafi
neyðst til að draga úr opinber-
um framkvæmdum, sem henni
ber skylda til að framkvæma,
ef alt væri með feldu. Hinsveg-
ar gefur blaðið þá skýringu á
aukningu atvinnuleysisins, að
Reykjavikurbær hafi nú ekki
upp á að bjóða aðra eins at-
vinnuaukningu og í fyrra, er
unnið var að Sogsvirkjuninni,
og sé þvi atvinnuleysið sök
bæjarstjórnar Reykjavikur, en
ekki ríkisstjórnarinnar.
firðinga lætur blaðið sig
vegar engu skifta, og nefnir
ekki einu orði að ríkisstjórnin
hafi látið stöðva vinnu við
Krí s u víkurveginn.
Það má með sanni segja, að
af er það, sem áður var, og að
Alþýðublaðið er furðulega lítil-
þægt fyrir hönd verkamanna.
Sú var þó tíðin, að Alþýðuflokk-
urinn gaf út plagg, — hina svo-
kölluðu 4 ára áætlun — til
framkvæmda á árunum 1935—
1939, og kvaðst flokkurinn þá i
fyrsta lagi mundu beita sér fyr-
ir því „að, hrundið verði þegar í
stað í framkvæmd með löggjöf
og framtaki hins opinbera
auknum atvinnurekstri og
framleiðslu eftir nákvæmri á-
ætlun, er gerð sé til ákveðins
tíma (4 ára) og hafi það mark-
mið að útrýma með öllu at-
vinnuleysinu og afleiðingum
kreppunnar og færa nýtt fjör í
alla atvinnuvegi þjóðarinnar
með aukinni kaupgetu og neyslu
hinna vinnandi stétta og aukn-
um markaði innanlands“.
Þetta var nú aðeins fyrsti lið-
urinn af 36, sem flokkurinn
ætlaði að lirinda í framkvæmd,
og hann fékk lika aðstöðuna til
þess. Haraldur Guðmundsson
varð atvinnumálaráðlierra og
sat í því embætti langa hrið, án
þess að hann fengi nokkru á-
orkað um atvinnuaukningu né
eflingu atvinnuveganna, nema
siður væri, með þvi að miðalda-
pólitík framsóknarflokksins
varð þess valdandi að atvinnu-
vegunum hefir stöðugt hrakað
á þessu tímabili, og enn gengur
hröðum fetum niður á við,
þrátt fyrir það, að alþýðuflokk-
urinn eigi að vera þess megn-
ugur að koma fram með undra-
lyfið, sem á öllu ræður bót, ef
dæmt skal eftir aðstöðu hans til
rikisst j ómarinnar.
Sannleikurinn er hinsvegar
sá, að alþýðuflokkurinn ber á-
byrgðina á þvi ófremdarástandi,
sem rikjandi er hjá atvinnuveg-
um þjóðarinnar. Hann hefir
brugðist öllum gefnum loforð-
um, en unnið markvist að nið-
urrifi, eymd og atvinnuleysi
meðal almennings, enda hefir
það sannast, að ítök hans meðal
kjósendanna liafa farið þverr-
andi ár frá ári og svo mun enn
reynast í næstu kosningum,
hvenær sem þær verða.
Miðað við aðstöðuna. á Al-
þingi liefði það verið eðlilegt, að
kosningar hefðu farið fram í
sumar, en hin veika afstaða Al-
þýðuflokksins réði því, að svo
varð ekki. Flokkurinn vildi
reyna að styrlcja aðstöðu sína á
kostnað hrynjandi atvinnuvega.
Allir hugsandi menn viður-
kenna, að atvinnuleysið er ein-
hver ömurlegasta og óþarfasta
eyðslan innan þessa þjóðfélags.
Hér eru næg verkefni, ef rétt er
á lialdið, en óstjórnin í landinu
er þess liinsvegar valdandi að
verkamenn neyðast til að fara
í hungurgöngur á fund valdhaf-
anna, en fá þar steina fyrir
brauð.
Það nægir Alþýðublaðinu og’
flokki þess, en það þarf meira
til að seðja hungraða atvinnu-
leysingja, og í þvi efni duga
engin undanbrögð frá hendi
þeirrar rikisstjórnar, sem situr
af náð forlcólfa Alþýðuflokks-
ins hér eftir sem hingað til.
Gutíopmur J.
Guttopmsson
kominn hteim
P uttormur J. Guttormsson,
** liið kunna og vinsæla skáld
Vestur-íslendinga, var meðal
farþega á Esju. Mun það öllum
hinum mörgu aðdáendum
Guttorms hér hið mesta fagn-
aðarefni, að liann átti þess kost
að koma lieim. Var honum
veittur styrkur til heimfarar-
innar af því fé, sem á fjárlög-
um er ætlað til aukinna kynna
íslendinga vestan hafs og hér
heima.
Guttormur er bóndi og býr í
Rivertonbygð í Manitoba.
Hann hefir verið mikilvirkur
rithöfundur, gefið út 3 ljóða-
bækur og leikritasafn. Gutt-
ormur er ættaður úr Norður-
Múlasýslu og mun ferðast aust-
ur þangað.
Póstferðir á morgun.
Frá Rvík: Bílpóstur norður, Lax-
foss til Borgarness og Akraness,
Fagranes til Akraness, Dettifoss til
Grimsby og Hamborgar. Til Rvík-
ur: Bilpóstur að norSan, Fagranes
frá Akranesi, Laxfoss frá Borgar-
nesi og Akranesi.
EINKASKEYTI TIL VÍSIS.
EINKASKEYTI TIL VÍSIS.
Breskmn stfrimönnnm
kent að meðböndla
loftvarnaliyssur.
Oslo 19. júlí.
Bresk blöð skýra frá því, að
auk þess sem verið sé að gera
þilför breskra kaupskipa traust-
ari svo að hægt sé að setja á
þau loflvarnabyssur, fái bresk-
ir stýrimenn og aðrir yfirmenn
nú tilsögn í að fara með loft-
varnabyssur. Er sú tilsögn veitt
í London, Glasgow og fleiri
borgum.
Formaður norska útgerðar-
mannasambandsins hefir sagt í
viðtali við Tidens Tegn, að enn
hafi engar ráðstafanir verið
gerðar til þess að setja loft-
varnabyssur á þilför norskra
skipa, ef til slíks kæmi yrði að
gera það að tilhlutan ríkissjórn-
arinnar. NRP—FB.
KJÖTTOLLUR HÆKKAÐUR
í SVÍÞJÓÐ.
EINKASKEYTI FÚ.
Kaupmannahöfn 19. júlí.
Sænska ríkisstjórnin hefir
hækkað innflufningstolla á
kindakjöti úr 15 í 20 aura á
Iivert kg. Breytingin kemur til
framkvæmda þegar í stað.
London 20. júlí. F)Ú,
Georg konungur VI. og Elisa-
bet drotning sátu í gærkveldi
veislu i höll Lebruns Frakk-
landsforseta. í ræðu, sem for-
setinn hélt, gat hann þeirrar
samúðar og þess skilnings, sem
ætti sér stað milli Fralddands
og Englands og lcvað þessar
tvær þjóðir vera tengdar bönd-
um sameiginlegs friðarvilja.
Georg lconungur svaraði á
frönskii'. Hann gat þess, að vin-
áttubandalag Frakka og Breta
beindist ekki gegn neinu öðru
riki. Hinsvegar væru ríkin ein-
huga um það, að leita lausnar
á þeim stjómmálalegu og við-
skiftalegu örðugleikum, sem nú
væru uppi i heiminum.
Halifax lávarður, sem er í
fylgd með konungshjónunum,
mun í dag eiga tvö viðtöl við
Bonnet utanríkismálaráðherra
Frakka. Mun hann segja Bonn-
et frá einkasamtali, er hann hafi
á heimili sínu i London við Wi-
edemann kapt., trúnaðarmann
Hitlers. í Berlín er því haldið
fram, að Lundúnaför Wiede-
manns sé farin í einkaerindum
aðeins, en samkvæmt Reuters-
fregn einni, er hann þangað
sendur til þess að kynna sér af-
stöðu Breta gagnvart málefn-
um Tékkóslóvakíu. Wiedemann
er sagður hafa lagt fyrir Hali-
íax lávarð sjónarmið Hitlers í
þeim málum. Þýska blaðið „Na- '
tional Zeitung“ segir, að þessar
viðræður ætti að geta orðið
framhald þeirra viðræðna
breskra og þýskra stjórnmála-
manna, sem slitið var, þegar
sameining Austurríkis og
Þýskalands átti sér stað.
Bresk blöð flytja langar grein-
ar um heimsókn konungshjón-
anna ensku til Parísar og þýð-
ingu hennar fyrir eflingu sam-
bands og vináttu milli Frakk-
lands og Bretlands. í grein, sem
„Daily Express“ skrifar i þessu
tilefni, er sagt, að það séu
Frakkar, sem óski liernaðar-
bandalags við England, og að
vísu séu margir áhrifaríkir Eng-
lendingar talsmenn slíks banda-
lags, eins og t. d. Winston
Churchill, upphafsmaður hug-
myndarinnar. Blaðið endar
grein sína með þessum orðum:
„Yarist þetta hernaðarbandalag
og öll önnur Iiernaðarbanda-
lög“. *
Skipatökup
Franeos.
Oslo 19. júlí.
Skipið Favorit, sem var tek-
ið af togurum Franco i Gibralt-
arsundi og flutt til Ceuta, kom
til Stavanger í gær. Skipið lá
liálfan mánð í Ceuta. „Það er
leiðinlegasti mánuðurinn, sem
eg liefi lifað á æfi minni“, sagði
skipstjórinn. „Við fengum ekki
að fara á land eða i heimsóknir
í önnur sldp, en okkur var ekki
sýnd nein áreitni. Við fengum
dagpeninga frá Francostjórn-
inni og skorti ekkert. Þá voru
i Ceuta fimm skip, sem liinir
vopnuðu togarar Francos höfðu
tekið og flutt þangað, tvö rúss-
nesk, tvö norsk og eitt danskt.
Rússnesku skipin voru þegar
máluð á ný og skipshafnirnar
sendar á brott. Daglega var
komið með skip, en flestum
slept aftur. Engin ensk eða hol-
lensk skip var komið með, en
flest þeirra, sem flutt voru til
Ceuta, voru með kolafarm, og
mun yfirvöldin hafa grunað, að
þau ætti að fara til Valencia
og Barcelona eftir umskipun í
| höfn utan Spánar. NRP—FB.
NORRÆN
TÓNSKÁLDA-SAMKEPNI.
Bandalagi islenskra lista-
manna liefir borist tilkynning \
um að „Félag konunglegu
hljómsveitarinjiar“ i JCaupm.-
liöfn efni til samkepni með nor-
rænum tónskáldum vegna 25
ára afmælis félagsins. Kept
verður um „sinfoniskt“ tón-
verk fyrir stóra hljómsveit, eklti
styttra en 20 mín. né lengra en
40 mín. og er íslenskum tón-
skáldum einnig leyfileg þátt-
taka. Samkepnin er leynileg og
handritin sendist undir dulnefni
til konunglega leikliússins i
Kaupmannaliöfn fyrir 26. mai
1939. Nánari upplýsingar fást
hjá Bandalagi íslenskra lista-
manna. (FB).