Vísir - 17.09.1938, Blaðsíða 2
VlSIR
VÍSIR
DAGBLAÐ
Útgefandi:
BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H/F.
Ritstjóri: Kristján Guðlaugsson.
Skrifstofa: Hverfisgötu 12.
Afgreiðsla: Hverfisgötu 12.
(Gengið inn frá Ingólfsstræti).
S í m a r :
Afgreiðsla 3400
Ritstjórn 4578
Auglýsingastjóri 2834
Verð 2 krónur á mánuði.
Lausasala 10 aurar.
Félagsprentsmiðjan h/f.
Ófriðar-
hættan.
AÐ er sagt, að sú ákvörðun
forsætisráðherrans breslca,
að fara á fund Hitlers, til þess
að ræða við hann um það, með
hvaða ráðum mætti takast að
afstýra ófriði, hafi fengið „mis-
jafna dóma“. Enginn vafi er þó
á þvi, að með þeirri ákvörðun
og framkvæmd hennar eru tek-
in af öll tvímæli um það, að
Bretum muni full alvara um, að
láta einskis ófreistað, til þess að
koma i veg fyrir styrjöld. Það
mætti því ætla, að þessi ráða-
breytni mæltist hið besta fyrir
meðal allra einlægra friðarvina
og lýðræðissinna. En svo furðu-
lega vill til, að það er einmitt
í frásögur fært, að það sé eink-
um „í hinum frjálslyndari hlöð-
um“, sem vart verði nokkurra
efasemda um það, að för ráð-
herrans til Þýskalands hafi ver-
ið vel ráðin og uggs um árang-
ur hennar.
Það getur nú engum dulist,
að sé styrjaldarhætta yfirvof-
andi, þá er ekkert ráð liklegra
til þess að afstýra henni, en það,
að aðilarnir talist við og reyni
af heilum hug að jafna deilur
sínar. En af því að þetta hefir
einatt verið lagt undir höfuð,
ög deiiuaðilar hafa ekki talið
það virðingu sinni samboðið, að
hafast annað að, til að afstýra
vandræðum en að setja liver
öðrum úr fjarska „ákveðna
kosti og að lokum úrslitakosti“,
þá hafa styrjaldir oft og einatt
brotist út, þó að þeim hefði vel
mátt afstýra, ef skynsamlegra
ráða hefði verið leitað til þess.
Með ákvörðun breska forsætis-
ráðherrans er brugðið út af
aldagamalli óvenju í stjórn-
málaviðskiftum þjóðanna, og
er hún þvi likleg til þess að
marka tímamót í sogunni og
tryggja friðinn í heiminum bet-
ur en nokkuð annað, sem til
þess hefir verið gert áður.
„Uggurinn" um árangurinn
af för Ghamberlains til Þýska-
lands stafar af því, að menn
óttast að hagsmunir Tékkósló-
vakíu hljóti að verða fyrir borð
bornir, ef samningar eigi að
geta tekist við Þjóðverja, því að
slikir samningar muni ekki tak-
ast nema með þeim hætti, að
Sudeta-héruðin verði skihn frá
Tékkóslóvakíu og sameinuð
Þýskalandi. Hinsvegar þurfti
Chamberlain nú ekki að fara til
Þýskalands, til að ná slikum
samningum, og þessi för hans
er því sönnun þess, að bresku
stjórninni sé full alvara um að
gera alt sem í hennar valdi
stendur til þess að deilan verði
leyst með öðrum hætti. Annað
mál er það, hvort það tekst. En
lakist það ekki, þá er þó engu
spilt, þó að ítrustu tilraunir hafi
verið til þess gerðar, að leysa
deiluna friðsamlega.
Hinsvegar má gera ráð fyrir
því, að flestum ábyrgum stjórn-
málamönnum stórveldanna
þyki það geta orkað mjög tví-
mælis, hvort réttur Tékkósló-
vakíu til Sudeta-liéraðanna sé
meira virði en að komist verði
lijá nýrri lieimsstyrjöld. Það
fer að sjálfsögðu mjög eftir þvi
hvort Tékkóslvakía getur stað-
ist sem sjálfstætt ríki, þó að
þessi héruð verði frá henni skil-
in, eða hún hlyti þá að liðast í
sundur. En Sudeta-héruðin eru
alþýsk liéruð, og væri því eðli-
legast að þau sameinuðust
Þýskalandi, enda erfitt fyrir þá,
að beita sér á móti því, sem
halda vilja í fullum heiðri
sjálfsákvörðunarrétti þjóðanna,
eins og Bretar og Frakkar hafa
gert.
En að öllum líkindum verð-
ur það ekki Chamberlain eða
breska stjómin, sem tekur úr-
slitaákvörðunina um þetta. Það
hlýtur að koma til kasta Frakk-
Iands fyrst og fremst. Frakkar
hafa tekist á hendur skuldbind-
ingu um að vernda sjálfstæði
Tékkóslóvakíu og annara ríkja
„Litla-Bandalagsins“ sem stofn-
að var fyrir forgöngu þeirra.
En um þau ríki öll er svipað
ástatt eins og um Tékkóslóvak-
íu, að því leyti, að íbúar þeirra
eru af ýmsum þjóðflokkum, og
vofir því væntanlega yfir þeim
öllum sama hættan í sambandi
við la-öfur þjóðemismeirihluta
í einstökum héruðum þeirra.
Og fyrir þá sök er líka meiri
hætta því, að ekki fáist frið-
samleg lausn á Sudeta-deilunni
í Tékkóslóvaldu, með þeim
liætti, að Súdeta-héruðin verði
sameinuð Þýskalandi, jafnvel
þó að slík lausn mætti teljast
sanngjörn á þeirri deilu.
Um það, hvort til ófriðar
dregur, virðist því alt muni
velta á því, hvort samkomulag
getur náðst um aðra lausn deil-
unnar. En alt er í óvissu um það
að svo komnu.
Messur á morgun.
I dómkirkjunni kl. n, sira Ólaf-
ur Olafsson.
I fríkirkjunni kl. 2, síra Árni Sig-
urðsson.
I fríkirkjunni i Hafnarfirði kl.
2, síra Jón Auðuns.
Veðrið í morgun.
I Reykjavík 5 st. hiti. Mestur
hiti 7 stig, á Sandi, Reykjanesi og
Fagurhólsmýri; minstur 3 st. á
Raufarhöfn og Patreksfirði. Mest-
ur hiti í Rvik í gær 10 stig, minst-
ur 2. Sólskin 2,2 st. — Yfirlit:
Ný lægð að nálgast frá Suður-
Grænlandi. — Horfur: Suðvestur-
land, Faxaflói, Breiðafjörður, Vest-
firðir: Stilt og bjart veður i dag,
en þyknar upp með sunnanátt i nótt.
Skipafregnir.
Gullfoss er á leið til Kaupmanna-
hafnar frá Leith. Goðafoss er. i
Hamborg, Bruarfoss í Reykjavík,
Lagarfoss í Kaupmannahöfn. Detti-
foss kom til Húsavíkur kl. 12. Sel-
foss var á Dalvik í morgun.
Höfnin.
Kolaskip kom í gær og cements-
skip frá Svíþjóð í gærkveldi, til
hafnarinnar.
Strandferðaskipin.
Esja fór í strandferð í gærkveldi
austur um land til Siglufjarðar.
Kemur sömu leið til baka. Súðin
var á Siglufirði í gær á vesturleið.
Leiðrétting.
Af vangá misritaðist í augl. frá
skemtiklúbbnum Piccador í blaðinu
í gær: Hljómsveit Bjarna Böðvars-
sonar, en átti að vera Hljómsveit
Oddfellowhússins, undir stjórn
Bjarna Böðvarssonar.
Chamberlain vill fallast á
Sudeta-héruðin ef 80 %
atkvæði með samein-
Lokunartími
að Þyskaland fái
íbuanna greiða
sölubúða
er kl. 6 í dag.
KORNRÆKTIN:
mgunm.
Rádstafanii* Tékka til þess
að bæla niður óeirdin* Sudeta
geta liaft binar alvarlegustu
afleiðingai*.
EINKASKEYTI TIL VÍSIS.
London í morgnn.
Chamberlain forsætisráSherra, sem kom heim frá
Þýskalandi í gær, var mjög vel fagnað við
komuna til Hestonflugstöðvar, og var honum
af hent þar bréf frá Georgi VI. konungi. Fór Chamber-
lain á konungsfund í gærkveldi, þá er hann hafði rætt
við nánustu samverkamenn sína í stjórninni.
Samkvæmt áreiðanlegum heimildum tilkynti Cham-
berlain konungi hvað farið hafði milli sín og Hitlers,
er þeir ræddust við í Berchtesgaden, um Tékkóslóvakíu.
Kvað hann Hitler hafa lýst yfir, að hann gæti fallist.
á eftirfarandi skilmála:
1. Tékkóslóvakía láti þegar af hendi við
Þýskaland þau héruð, þar sem 80 af hver jum
100 íbúum eru Þjóðverjar og kref jast sam-
einingar við Þýskaland.
2. Þar sem hinir þjóðversku íbuar lands-
ins eru ekki 80 af 100 skal koma á kantónu-
fyrirkomulagi að svissneskri fyrirmynd.
3. Bretland, Þýskaland, Frakkland og ef
til vill Italía ábyrgist því næst hlutleysi Tékkó-
slóvakíu, um allan aldur.
4. Hlutleysi Tékkóslóvakíu yrði trygt með
svipuðu fyrirkomulagi og hlutleysi Belgíu og
Svisslands.
Hvort samkomulag næst á þessum grundvelli verður að svo
stöddu ekki um sagt. Jafnvel þótt Bretar og Frakkar féllist á
að leysa deiluna á þann hatt, sem að framan greinir, er engan
veginn víst, að Tékkar og Slóvakar fallist á þessa Iausn. Hafa
Ieiðtogar þeirra margsinnis lýst vfir því, að þeir mundu aldrei
fallast á, að landamæri eða hlutleysi Tékkóslóvakíu væri skert.
Og þótt leiðtogar Tékka og Slóvaka létu til neyðast að fallast á
slíka lausn, sem Hitler hefir stungið upp á, er margt sem bend-
ir á, að tékkneska þjóðin uni aldrei þeirri lausn.
Yiðburðir þeir, sem gerst hafa í Tékkóslóvakíu undanfarin
dægur sýna alveg ótvírætt, að leiðtogar Tékka eru ósmeykir
við að gera þær ráðstafanir, sem þeir telja nauðsynlegar land-
inu til öryggis og til þess að bæla niður óeirðirnar í Súdeta-
héruðunum:
Skemtun að Eiði.
verÖur á morgun, ef veður leyf-
ir. Undanfarna tvo sunnudaga hafa
skemtanir farist fyrir vegna ve'Öurs,
og er nú svo langt litSitS á sumar-
ið, að ekki er að vita nema skemt-
unin á morgun verði sú síðasta á
sumrinu. Veðurhorfur eru góðar, og
ætti menn að fjöímenna að Eiði á
morgun.
Mentaskólinn.
verður settur á þriðjudaginn kl. I.
Fimtug
er í dag frú Anna Pálsdóttir frá
Ánanaustum.
Fjeldgaard & Flatau
halda „alþýðudanssýningu" á
morgun kl. 3 í Iðnó, og kosta öll
sæti kl. 2.50, en stæði 1.50. — 1
dag kl. 2>x/2 sýna þau dans fyrir
sjúklingana á Vífilsstöðum, en eft-
ir helgina munu þau sýna fyrir
danska félagið hér.
Lambeth Walk, ..
sem Fjeldgaard & Flatau hafa
sýnt hérna, er mjög vinsæll erlend-
is og hefir fólk hér beðið danspar-
ið að kenna sér dansinn. Dansinn
er kendur við Lambeth-hverfið í
London, og er skopstæling á göngu-
Iagi Lambethbúa, en á þeim er mik-
ill „sláttur", eins og kallað er.
Tónlistaskólinn
verður settur á rnorgun kl. 2, í
H1 j ómskálanum.
Leynivínsali dæmdur.
1 Ólafur K. Ólafsson, Skólavörðu-
stíg 46, var í gær dæmdur í 2200
kr. sekt og 2ja mán. fangelsi, fyrir
óleyfilega vínsölu. Er hér um ítrek-
að brot að ræða.
Leiðrétting.
I greininni um málvillur eftir
Leikmann, á 5. síðu í blaðinu i
gær, hafði misritast stóll í stað stíll.
Ný frímerki.
1 tilefni af minningardegi Leifs
heppna Eiríkssonar (Leifr Eiric-
son’s Day), sem haldinn verður há-
tíðlegur í Bandaríkjunum þ. 9. okt.
næstk., verða þann dag gefin út
sérstök frímerkjablöð til minningar
um Leif hepna Eiríksson, 2 með
mynd af Leifsstyttunni í Reykja-
vík og eitt með hnattstöðumynd. Á
hverju blaði eru 3 frímerki: 30, 40
og 60 aura, en söluverð hvers blaðs
2 kr. og gengur ágóði þeirra í sér-
stakan sjóð til pósthúsbyggingar.
Upplagið er 200.000 blöð og verða
þau til sölu á pósthúsunum til 9.
okt. 1939 (að honum meðtöldum)
á meðan þau endast og gilda sama
tíma til frímerkinga á póstsending-
um. —
Gfið Dppskera á Sáms-
stfiðnm.
Tíðindamaður frá Vísi átti tal
við Steingrím Steinþórsson bún-
aðarmálastjóra í morgun, en
hann var fyrir nokkuru austur á
Sámstöðum, þar sem kornrækt
hefir nú um mörg ár verið í
stunduð í stórum stíl og með
góðum árangri, undir stjóm á*
gæts manns, Klemenzar Krisk-
jánssonar.
Kornuppskeran stendur nÚ
sem hæst, sagði búnaðarmála-
stjóri, og mun vera búið að slá
% liluta kornakranna, en korni
mun Iiafa verið sáð i 20—30
dagsláttur á Sámsstöðum í ár,
Er það mest bygg og hafrar. Dá-
lítið er og ræktað af vetrarrúgi
og tilraunir eru gerðar með
hveitirækt, en í smáum stíl. Þá'
er og grasfræ ræktað á Sáms-
stöðum, og er grasfræræktín
með mesta móti í ár.
Yfirleitt lítur vel út með þettá
alt. Kornið litur vel út. Það
þroskaðist noklcuð seint, vegná
kuldanna í vor, en náði sér á
strik er á leið. Tjón hefir ekki
orðið teljandi af foki. Hvassviðri
kom þó eystra á dögunum, en
tjón af foki verið litið. Viðri vel
nú um hríð og ekki verði tjón
af foki eða kornið skemmist í
illviðrum, má búast við, að upp-
skeran verði góð.
Korn er ræktað allviða um
land sem undangengin ár og í
mjög stórum stíl í Eyjafirði,
þar sem Kaupfélag Eyfirðinga
liefir gert tilraun með kornrækt
á stóru svæði. Á Hvanneyri í
Borgarfirði var liafin kornrækt
í vor. Þá er kornrækt sem áður
hjá Ræktunarfélagi Norður-
lands á Akureyri. Einstakir
hændur gera og tilraun með
kornrækt.
Allar líkur eru til að komrækt-
in aukist á næstu árum. Fram-
farir þær, sem orðið hafa i þess-
ari grein landbúnaðarins eru
miklar og má þakka það á-
huga og dugnaði margra, ekkl
sist Klemenzar á Sámsstöðum.
1. Þeir hafa sent mikið her-
lið til Súdeta-héraðanna.
2. Þeir hafa fyrirskipað að
leysa upp S. S. félögin eða
sjálfboðalögreglu Súdeta.
3. Þeir hafa fyrirskipað að
Ieysa upp Súdeta-flokkinn.
4. Þeir hafa fyrirskipað
handtöku Henleins, komi
hann aftur til Tékkóslóvakíu.
(Þessi fregn hefir þó verið
borin til baka, og óvíst um
hvort hún er sönn).
Kundt, þingleiðtogi Súdeta,
hefir sagt í viðtali við United
Press, að þar sem Chamberlain
Hlutaveltu
heldur K. R. á morgun kl. 5 síð-
degis í K.R.-húsinu. Eins og áður
hafa K. R.-ingar vandað mjög til
hlutaveltunnar og telja hana bestu
hlutaveltu ársins. Má nefna aðal-
drættína: Rafmagnseldavél, far-
seðil til Kaupmannahafnar, matar-
forði til vetrarins, farseðill til Ak-
ureyrar, mikíð af peningum, margs-
konar nauðsynjarvara og vefnaðar-
vara og þúsundir ágætra muna ann-
ara. Munu bæjarbúar fjölmenna í
K.R.-húsið á morgun og freista
gæfunnar og styrkja um Ieið híð
þróttmikla íþróttafélag, sem nú er
bráðum 40 ára.
og Hitler hafi komið saman á
fund til þess að ræða deilumál-
ið, sé það ekkert höfuðatriði,
hvort starfsemi flokks eða
flokka sé leyfð, eða ekki. Ef um
það eitt er að ræða, til að út-
kljá deilumálin, hvort friður
helst eða styrjöld verður, má
segja, að hvorki Tékkar né
Þjóðverjar geti ráðið hver verða
örlög þeirra, en um það þarf
ekki að efa, sagði Kundt, að
Hitler og Chamberlain munu
gera það, sem í þeirra valdi
stendur, til þess að leysa málið
hið fyrsta.
Kundt neitaði því, að hann
væri að stofna nýjan flokk, sem
nefnist Geieman bæheimskl
flokkurinn.
United Press.
Næturlæknir í nótt.
Axel Blöndal, Mánagötu 1, sími
3951. — NæturvörÖur í Laugavegs
apóteki og Ingólfs apóteki.
Helgidagslæknir.
Alfred Gíslason, Brávallagötu 8,
sími 3894.
Næturlækni'r aðra nótt.
Daníel Fjeldsted, Hverfisgötu 46,
sími 3272. — Næturvörður í
Reykjavíkur apóteki og Lyfjabúð-
inni IÖunni.
Útvarpið í kvöld.
Kl. 19.20 Hljómplötur: Kór-
söngvar. 19.50 Fréttir. 20.15 Upp-
lestur: „Gerska æfintýrið" (Hall-
dór Kiljan Laxness rithöf.). 20.40
Hljómplötur: a) Gátu tilbrigðin,
eftir Elgar. b) Lög leikin á orgel.
21.35 Danslög.
Útvarpið á morgun.
Kl. 11.00 Messa í dómkirkjunni
(Ræða: Ólafur Ólafsson kristni-
boði. Fyrir altari: Síra Friðrik
Hallgrímsson). 12.15 Hádegisút-
varp. 17.40 Útvarp til útlanda
(24.52 m). 19.20 Hljómplötur: Lög
leikin á harpsichord. 19.50 Fréttir.
20.15 Erindi: Síldin í sumar (Árni
Friðriksson fiskifr.). 20.40 HÍjóm-
plötur: Lög fyrir fiðlu og píanó
(Kreisler og Fischer). 21.00 Upp-
lestur: „Gerska æfintýrið", II.
(Halldór Kiljan Laxness rithöf.).
21.25 Danslög.
í Siglufirði f
var undanfarinn sólarhring salt-
að í 3156 tunnur — þar af matjes-
síld aðeins um 100 tunnur. Rek-
netaveiðin var 2878 tunnur. —■ Es.
Selfoss hleður í Siglufirði síld’, til
Belgíu. (FÚ.).
■lllllllllHllHlnlllinillllllHlHliiiiiiiiiiiiinmniiiiBiiiiiiiimniiiiimiiiniiifiiiniiiiiiiiiiinniiiniiiiiiii
1 HattaversloD Margrétar Levi I
I er flott í Lækjargíjto 2. |
Slgplður Helgadóttip. S
ÍiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniimiiiiiiiiHiiiiniiimiillllllllllllllllllllllllliiiiiiiiiiiiM