Vísir - 22.09.1938, Page 2

Vísir - 22.09.1938, Page 2
VISIR Bresk blðO skora á Chamberlain að sýna ekki frekari undaniátssemi við Hitler. Andstaðan gegn miðlunap- tlllögunum fei» vaxandi. EINKASKEYTI TIL VÍSIS. London í morgun. Chamberlain forsætisráðherra fór í dag árdegis til Þýskalands, loftleiðis. Var hann væntan- legur til Köln á hádegi og til Godesberg, þar sem hann og Hitler ræðast við, nokkuru fyrir kl. 3. Horfurnar í það mund, sem þessar örlagaþrungnu viðræður byrja, eru ískyggilegri en nokkuru sinni. Tékkneska stjórnin hefir að vísu samþykt tillögur Frakka og Breta, en að eins vegna þess að sendiherrar þessara þjóða lögðu svo hart að henni, að stjórnin yrði undan að láta, þó með því fororði, að framtíð hinnar nýju Tékkóslóvakíu yrði trygt svo vel sem auð- ið væri. En með þessum tillögum, sem hér liggja fyrir, er um það að ræða, að Tékkar láti Súdetahéruðin af hendi við Þjóðverja. En nú hafa Ungverjar og Pólverjar borið fram kröfur fyrir sína þjóðernisminnihluta — gera kröfur til þess að fá þessi héruð. Þjóðverjar eru hlyntir þessum kröfum. Þýsku blöðin ræða um að afmá Tékkóslóvakíu af kortinu. í dag spyrja menn: Hvað gerir Hitler? Styður hann þessar kröf- ur Ungverja og Pólverja nú þegar og gerir Chamberlain þann- ig erfitt fyrir, eða verður málið útkljáð innan þeirra takmarka, sem þeir ræddu um það í Berchtesgaden á dögunum. Kröfur Ungverja og Pólverja kunna að valda miklum erfiðleikum. Stefna Chamberlains fær stöðugt harðari dóma víða og mót- spyrnan harðnar í Englandi. Meðal Tékka er sorg og gremja ríkjandi og æsingar í garð Breta og Frakka og óvíst er hvað þeir kunna til bragðs að taka í örvæntingu sinni. Jafnframt verður Frökkum, Rúmenum og fleiri þjóðum ljósari hin stór- pólitísku áform Hitlers — að verða öllu ráðandi á meginland- inu. Þannig er í stuttu máli ástatt, er þeir ræðast við á ný Hitler og Chamberlain. Samkvæmt áreiðanlegustu helmildum fer Cham- berlain með fjölda margar nýjar tillögur til Godes- berg. Eru þær í höfuðatriðum þessar: 1. Alþjóðanefnd verði falið að afmarka hin nýju landamæri Tékkóslóvakíu og sjá um þann flutning íbúa héraða milli, sem nauðsynlegur reynist. 2. Súdeta-sjálfboðasveitirnar verði afvopnaðar þegar í stað. 3. Birt verði sameiginleg áskorun allra hlutaðeig- andi, þ. á. m. Hitlers f. h. Þjóðverja, um að allir sameinist um að halda friðnum svo að unt verði að koma hinni nýju skipun á æsingalaust og rólega. 4. Teknar verði ákvarðanir um ráðstafanir til verndar hlutleysi og sjálfstæði hins nýja tékltneska ríkis og verða sumar þessar ráðstafanir að líkindum viðskifta- og fjárhagslegs eðlis. Stjðnin i littoslóuðliii! sm af sér. London, kl. 11 í morgun. FU. Síðustu fregnir frá Prag herma, að stjórn Tékkóslóvakíu hafi sagt af sér. Tilkynnti borgarstjórinn í Prag þetta með há- tölurum víðsvegar um borgina. Það er ekki búist við, að dr. Hodza myndi nýtt ráðuneyti. VÍSIR DAGBLAÐ Útgefandi: BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H/F. Uitstjóri: Kristján Guðlaugsson. Skrifstofa: Hverfisgötu 12. Afgreiðsla: Hverfisgötu 12. (Gengið inn frá Ingólfsstræti). S I m a r : Afgreiðsla 3400 Ritstjórn 4578 Auglýsingastjóri 2834 Verð 2 krónur á mánuði. Láusasala 10 aurar. Félagsprentsmiðjan h/f. Bækur og félög. D ókaútgáfa er mikil hér á landi samanborið við fólksfjölda, en elcld er sú útgáfa kostamikil að sama skapi. Er skemst frá því að segja, að mikið af bókum þeim, sem gefnar eru út til skemtilesturs almenningi, eru nauða-Iélegar og jafnvel sumar stórskaðlegar vegna óvandaðs efnis og bjagaðs máls. Hafa sumir menn það að atvinu sinni, að gefa út dreggjar erlendra bókmenta, í þýðingum, sem málsins vegna ætti að banna með lögum. i Hér á landi hafa um langan tíma starfað þrjú bókafélög, sem í öndverðu voru stofnuð tit þess að færa almenningi í land- inu góðar og heilnæmar bók- mentir. Þessi félög eru Bók- mentafélagið, Sögufélagið og Þjóðvinafélagið. Félög þessi hafa vafalaust að ýjnsu leyti unnið þarft verk áður fyr, en því verður ekki neitað, að þau virðast nú um langt skeið hafa mist sjónar á hlutverki sínu. Þau eru orðin að steingerfing- um og lifa á fornri frægð, enda gera þau, að Þjóðvinafélaginu undanteknu, enga tilraun til að sinna þeim kröfum, sem al- menningur í landinu gerir nú til útgáfu bóka til fróðleiks og skemtunar. Bækur Bókmentafélagsins og Sögufélagsins eru nýútkomnar fyrir þetta ár. Flestir landsmenn þekkja þessar bækur, — sem koma út í smáheftum frá ári til árs. Annálar og Safn til sögu tslands hefir verið að koma út siðasta mannsaldurinn, fáum til ánægju eða uppbyggingar. Af Bókmentafélagsbókunum er Skirnir sú eina, sem er lesandi. Af bókum Sögufélagsins á þessu ári er sú merkasta nafnaskrá við Þjóðsögurnar, sem félagið hefir verið mörg ár að gefa út. Hinar bækurnar eru meðal ann- ars ómerkilegur þjóðsagnasam- tíningur, sem verið hefir á prjónunum í mörg ár, og hvert liefti er hvörki fugl né fiskur, því að á það vantar upphaf og endir. Slík bókaútgáfa sem þessi er fyrir löngu úrelt orðin og menn eru yfirleitt orðnir þreyttir á henni. Fáir munu halda heftun- um saman, þvi að menn verða að biða mörg ár áður en bæk- urnar fást allar og hægt er að binda þær inn. Flestir munu því lítið um heftin hirða og jafnvel alveg kasta þeim burt. Á þann hátt er miklu fé kastað á glæ, vegna óhaganlegrar bókaútgáfu, sem því verður engum til gagns. Gömul dómasöfn, alþingisbæk- ur, annálar og annað slíkt, eru ekki bækur sem alþýða manna sækist eftir til lesturs, né er nokkur sérstök þörf á að eiga. Þær eru frekar fyrir þá, sem þurfa að nota þær sem heimild- ir við vísindaleg eða söguleg ritstörf. Ef félög þau, sem nefnd hafa verið, vildu sinna hlutverki sínu í samræmi við kröfur 20. aldar- innar, þarf að gerbreyta útgáfu- starfsemi þcirra. Heftaútgáfan ætti að hverfa, en i þess stað ætti að gefa út bækur í heilum bindum, bækur, er einhver hef- ir gagn og gaman af að lesa. Vegna þess hversu útgáfustarf iélaganna er orðið á eftir tím- anum, hafa risið hér upp bóka- útgáfufélög í pólitískum jarð- vegi, sem hafa það markmið að útbreiða ákveðnar stefnur, svo sem kommúnisma. Slilc útgáfa er aðeins grímuklædd flokks- barátta og hennar höfum við síst þörf. En þátttakan í þessum félögum sýnir að almenningur vill alt annað frekar en eilífðar- heftin sem Bókmentafélagið og Sögufélagið hafa sent félögum sínum síðasta aldarfjórðunginn. ðmaltit slys. Telpa verður með hendina milli stafs og hurðar og fingurbrotnar. Um kl. 2 í gær varð telpa frá Vestmannaeyjum, sem stödd er hér í bænum, fyrir þvi slysi að fingurbrotna. Var hún stödd við dyrnar á tóbaksversl. London við Austurstræti studdi liend- inni þannig, að hún varð milli stafs og hurðar, er hurðin féll að stöfum, og fingurbrotnaði. Lögreglan fór með telpuna lil Óskars Þórðarsonar, sem bjó um hendina. Telpan heitir Anna Hjálmarsdóttir. Lamb flnst skotlð í Vatnagötðnm. Urn hádegí í gær var lögregl- unni tilkynt, að í Vatnagörðum hefði fundist lamb, sært af byssuskoti í hægra læri, en vinstri fótur var brotinn af sömu ástæðu. Náðu menn lamb- inu og var því lógað, en þá kom í ljós hvernig ástatt var um það. Lögreglan hóf i gær rann- sókn í málinu, en enginn virðist hafa orðið var þess, er valdur er að þessu illvirki, né heldur heyrt skothvell. Fingterðirnar. Eins og frá var skýrt í Vísi á dögunum fóru þeir Agnar Kofoed-Iíansen og Bergur G. Gíslason norður til Akureyrar á flugvélinni, sem keypt var af þýska flugleiðangrinum, til þess að athuga lendingarskilyrði landflugvéla á leiðinni. Daginn eftir athuguðu þeir lendingar- staði í Skagafirði. Síðan fóru þeir Björn Eiríks- son og Albert Jóhannesson norður á eftir þeim í tvíþekj- unni Blue Bird. Á sunnudaginn var ákveðið að báðar flugvélarnar færi hingað suður og að þessu sinni austur um land. Komu þær hingað í gær. aðeíns Loftup, Stjórnmálamenn í London eru smeykir um, að Hitler muni herða á kröfum sínum og krefj- ast frekari sundurlimunar Tékkóslóvakíu, en í ráði var, þ. e. að hann muni taka upp kröf- ur Ungverja 0|g Pólverja. Ennfremur, að hann muni kref jast þess, að dr. Benes, rík- isforseti Tékkóslóvakíu, biðjist lausnar, og að í Tékkóslóvakíu verði komið á fót ríkisstjórn, sem vinveitt sé Þýskalandi. Lundúnadagblöðin í .morgun hvetja Chamberlain mjög til einbeitni gagnvart Hitler og vara hann við. afleiðingum þess, ef hann féllist á frekari sundur- limun Tékkóslóvakíu, en blöðin búast við kröfum frá Hitler um það. Óttast þau, að frekari sundurlimun mundi leiða til ó- friðar, því að Tékkar gæti ald-> rei sætt sig við slíkt. United Press. Miklll TlðbónaSnr í Þýskalandi undir komn Chamberkins. FU. í gær. Sir Horace Wilson og Willi- am Strang fara með Chamber- lain, lögfræðilegur ráðunautur utanríkismálaráðuneytisins og einskrifari Chamberlains. Sir Neville Henderson leggur af stað frá Berlín í dag áleiðis til Godesberg. Chamberlain mun verða kominn til Iíöln kl. 12 á morgun og mun því verða kom- inn til Berchtesgaden í tæka tíð, en fundur hans og Hitlers hefst þar ld. 3 e. h. Frá Þýskalandi berast fregnir um mileinn viðbúnað til þess að taka sem virðulegast og hlýleg- ast móti Chamberlain. Almenn- ur frídagur verður í Godesberg og göturnar skreyttar. Fólki liefir verið sagt að raða sér meðfram vegunum til hallar- innar, þar sem viðræðurnar fara fram, og hylla Chamber- lain innilega. Þýsku blöðin gefa í skyn, að gengið verði að öllum kröfum Þjóðverja og ætla, að kröfur Ungverja og Pólverja verði teknar til athugunar og jafnvel úrlausnar um leið. Eitt þýsku blaðanna segir, að Tékkóslóvak- ía verði altaf byrði á Evrópu. Oeirðir i Prag. London, í gær. — FÚ. F j ölmennir mótmælaf undir og' kröfugöngur voru lialdnar í Prag í gærkveldi til þess að and- mæla þeirri stefnu stórveldanna að bregðast Tékkóslóvaldu. Varð að gera sérstakar ráðstaf- anir til þess að verja sendisveit- arbústað Bretlands, Frakldands og Þýskalands og hótelið þar sem Runciman lávarður dvelst. Heyrðist mannfjöldinn kalla: Niður með Frakkland og Bret- land og önnur óvinsamleg um- mæli, en annars fóru kröfu- göngur þessar friðsamlega fram. Mr. Winston Churchill hefir ráðist mjög á bresk-frönsku til- lögurnar, sömuleiðis Anthony Eden og Sinclair leiðtog'i frjáls- vnda stjórnarandstöðuflokks- ins. Þegar Churcliill kom frá Par- ís, átti hann viðal við blaða- menn, og sagði að lillögumar væru ekkert annað en fullkomin uppgjöf fyrir hótunum nasista. Þær mundu ekki verða til að tryggja friðinn, en að eins auka á veikleika, ósamheldni og nið- urlægingu Bretlands og Frakk- lands. Hann sagði að stríðsund- irbúningur Þjóðverja væri nú rekinn af enn þá meira kappi en nokkuru sinni áður og loks krafðist hann þess að þingjð væri kallað saman þegar í stað. Anthony Eden flutti ræðu í gærkveldi og var lienni útvarp- að til Bandaríkjanna. Hann sagði, að ef ætti að ná friðsam- Iegri lausn, þá mætti hún ekki kosta það, að sjálfum lífs-liags- munum Bretlands væri fórnað. Slik lausn getur aldrei orðið varanleg. Breska þjóðin er mjög áhyggjufull um þessar mundir. Hún veit að það verður að taka í taumana og óttast að það yrði gert um seinan. Framkvæmdarráð verklýðs- félaganna hefir gefið út opin- beran boðskap, þar sem það segir, að hinn alda gamli hróð- ur Englands fyrir lýðstjórn og réttvísi hafi verið svivirtur með stefnu Chamberlains, og þessi smán gefur okkur ekki friðinn en liún gefur Hitler nýja sigra og betri aðstöðu til þess að undirbúa bina óbjákvæmilegu styrjöld. Boðskapnum lýkur með þvi, að krefjast þess að þing verði kallað saman. Pólland liefir sagt upp minni- hlutasamningi sínum viðTékkó- slóvakiu frá 1925. Með þessum sáttmála skuldbindur Tékkó- slóvakía sig til þess að Iáta Pól- verja njóta jafnréttis. Pólland telur sáttmálann hafa verið rof- inn og krefst þess, að héruðin verði látin af hendi á sama hátt ög Sudetahéruðin. Ennfremur að þessar kröfur verði lagðar SLÍÐRIÐ SVERÐIN. Kínverjar í Honan-fylki i Norður-Kína hafa tekið upp baráttu gegn ófriði, og hafa að eink- unnarorðum: „Slíðrið sverðin“. Sverð eins og þau, sem hér eru sýnd á myndinni, eru not- uð i návígi í Kína og eru talin hin hættulegustu vopn þar i landi, og liafa verið notuð frá ómunatíð i bardögum.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.