Vísir - 24.10.1938, Page 2
VÍSIR
VÍSIR
DAGBLAÐ
Útgefandi:
BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H/F.
Ritstjóri: Kristján Guðlaugsson.
Skrifstofa: Hverfisgötu 12.
Afgreiðsla: Hverfisgötu 12.
CGengið inn frá Ingólfsstræti).
S í m a r :
Afgreiðsla 3400
Ritstjórn 4578
Auglýsingastjóri 2834
Verð 2 krónur á mánuði.
Lausasala 10 aurar.
Félagsprentsmiðjan h/f.
Einræði eða
lýðræði.
* LÞVpUFLOKKURINN vill
“ vera einráður í verkalýðs-
samtökunum. Samkvæmt lög-
um Alþýðusambandsins getur
enginn félagsmaður í verklýðs-
félagi orðið fulltrúi á Alþýðu-
sambandsþingi, nema bann sé
Alþýðuflokksmaður. Að því
leyti er stjórnskipulag verka-
lýðssamtakanna svipað því, sem
nú er í Rússlandi, hjá Stalin,
eða í Þýskalandi og Italíu, hjá
þeim Hitler og Mussolini. Svo
mjög sem Jóhann og Haraldur
og fylgismenn þeirra, elska lýð-
ræðið í landinu, þá vilja þeir
hvorki heyra það né sjá i verka-
lýðssamtökunum eða Alþýðu-
sambandinu. Þar á Alþýðu-
flokkurinn að vera einráður,
eins og Kommúnistaflokkurinn
í Rússlandi, Nazistaflokkurinn í
Þýskalandi og Fasistaflokkur-
inn í Ítalíu.
Héðinn Valdimarsson var Al-
þýðuflokksmaður. Hann liefir
nú verið rekinn úr flokknum og
um leið sviftur fulltrúaréttind-
um á Alþýðusambandsþingi og
kjörgengi til þess. Nú ætlar
hann að stofna annað „Alþýðu-
samband“ og bjóða þangað öll-
um, sem til hans vilja koma, og
þar eiga allir að vera kjörgengir
til þings, i hvaða flokki sem
þeir eru. alla leið frá kommún-
istum „vinstra“ megin til Sjálf-
stæðismanna „hægra“ megin.
Þar á að rikja „fylsta lýðræði“
fyrir alla, jafnvel „nazista“, ef
þeir eru einhverjir til og þeim
ofbýður ekki alt þetta „lýðræð-
is“-brölt.
Um kommúnista er það alveg
vist, að lieir eru engu síður
fylgjandi lýðræðinu innan
verkalýðssamtakanna en Héð-
inn. Þeir segja að það sé blátt á-
frain „krafa verkalýðsins um
alt land, að Alþýðusamband-
inu verði breytt í óliáð verka-
lýðssamband að dæmi verka-
lýðshreyfingarinnar í nágranna-
löndunum“ (en ekki i Rúss-
landi). Alþýðublaðið hefir verið
að reyna að liræða þá með því,
að svo gæti farið, að Eggert
Claessen, eða aðrir „burgeisar“
„tæki að sér forystuna“ í verka-
lýðshreyfingunni, ef hún verði
þannig algerlega ofurseld lýð-
ræðinu. En kommúnistar eru
hvergi liræddir við það, enda
segir blað þeirra, að ekki liafi
„verkalýðssamböndunum á
Norðurlöndum“ orðið hált á
slíku, og hefði blaðið vel mátt
bæta því við, að svo væri þeim
Stauning, Per Albin-Hanson og
Nygaardsvold fyrir að þakka.
Hinsvegar hafa kommúnistar
til skamms tíma sótt sér for-
dæmin lengra . auslur, en til
Norðurlanda, og lítt heitið á
áðurnefnda „þrenningu“ til
stórræðanna.
En hvað sem því líður, liversu
líklegir kommúnistar muni vera
til þess, að verða trúir lýðræð-
inu innan verkalýðssamtakanna
til langframa, þá má gera ráð
fyrir því, að allir aðrir verka-
menn en þeir, sem meta meira
bagsmuni „yfirstéttarinnar“ í
Alþýðuflokknum en viðgang
verkalýðssamtakanna, kjósi
lieldur fult jafnrétti innan
þein-a en einræði Alþýðuflokks-
ins. Og þó að Sjálfstæðismenn i
verkalýðsfélögunum hafi stutt
að því að þessu sinni, að Alþýðu-
flokkurinn bæri hærri hlut í
viðskiftunum við kommúnista,
þá er þess ekki áð vænta, að þeir
uni því til lengdar, að fá ekki að
hafa önnur afskifti af yfirstjóm
verkalýðssamtakanna en þau,
sem þau geta liaft með þvi að
vera atkvæðaféndur þeirra Al-
þýðuflokksmannanna.
Sjáiiðfl veldur miklu
tjóni á Stokkseyri.
Bátar í yfirvofandi hættu, en
einn hefir rekið á land og er
hann mölbrotinn.
r RÉTTARITARI Vísis á Eyr-
1 arhakka skýrir blaðinu svo
frá, að þar hafi komið stórlcost-
legt sjávarflóð og hefði sjófinn
gengið yfir alla varnargarða og
langt upp á götur, bæði á Eyr-
arbakka og Stokkseyri í nótt.
Á Stokkseyri hefir sjávar-
gangm-inn valdið miklu tjóni.
M. a. slitnaði báturinn Sisi (12
tn.) frá Iegufærum sínum og
rak á land og er mjög brotinn.
Einnig eru bátarnir Haukur og
Inga í yfirvofandi hætlu, og má
búast við að þá reki einnig á
land, ef sjó lægir ekki, en á þvi
eru litlar líkur.
Vindáttin er að sunnan eða
suðvestan, en sjór er mjög úfinn
og ljótur. Fer veðrið frekar vax-
andi það sem af er, og lægi það
ekki má búast við stórflóðum
með lcvöldinu og miklum
skemdum á báðum þessum
stöðum. Molast liefir úr sjóvarn-
argörðum, en á húsum hafa
engar verulegar skemdir orðið
enn sem komið er.
Sjávarflóð eru tíð á Eyrar-
bakka og Stokkseyri og má
segja, að þau komi á hverjum
vetri, en að þessu sinni virðist
flóðið ætla að verða óvenjumik-
ið, nema þvi að eins, að skjót
veðrabrigði verði.
Leiksýning á
Akureyri:
Z »FródA“
eftir Jóhann Frímann
P RÉTTARITARI Vísis á Ak-
* ureyri símar blaðinu, að
Leikfélag Akureyrar hafi sýnt í
fyrrakvöld, í fyrsta sinni, sjón-
leikinn „Fróðá“, eftir Jóhann
Frímann skáld og skólastjóra á
Akureyri. Er leikurinn saminn
eftir Eyi’byggju og frásögn
hennar um viðburðina á Fróðá,
er Þórgunnur liin suðureyska
dvaldi þar, og er efnismeðferðin
írumleg og heillandi.
Leikstjórnina hefir Ágúst
Iívaran haft með hqjidum og
tekist mjög vel, enda fengu leik-
endur hinar ágætustu viðtökur
og var skáldið og leikendurnir
klappaðir fram á sjónarsviðið í
leikslok. Hvert sæti var skipað
í leikhúsinu.
FÚ-frétt skýrir svo frá, ag
leikurinn sé í fjórum þáttum og
f
PHankow er nfi mannlaas.
EINKASKEYTI TIL VÍSIS.
London í morgun.
Frá Hongkong er símað, að sex gríðarstórar jap-
anskar sprengjuflugvélar hafi flogið yfir
Changsa í morgun og gert árás á breska fall-
byssubátinn Sandpiper. Yfirbygging bátsins skemdist
afarmikið, en þó mun enginn maður hafa látist eða
særst. Sandpiper er að eins 185 smál. að stærð.
Breskir flotaforingjar, sem einnig voru staddir í
Changsa, segja, að ekki geti neinn vafi leikið á því, að
Japanir höfðu skipun um að gera árásina á Sandpiper,
eða að minsta kosti hefði þeir ekki verið varaðir við
því af yfirmönnum sínum, að breskir fallbyssubátar
lægi í Changsa. Alls hæfðu sex stórar sprengjur bátinn
og gereyðilögðu meðal annars nokkur herbergi yfir-
manna í yfirbyggingunni.
Þá er símað frá Hankow, að þar hafi herlög verið
látin ganga í gildi í gærkveldi. Brottf lutningur íbúanna
hefir gengið svo fljótt og íiðugt, að þeir sem áttu að
sjá um hann, höfðu alls ekki búist við því, að starf
þeirra yrði svo auðvelt og snúningalítið og raun varð á.
Eru flestöll af þeim borgarhverfum þar sem engir
búa aðrir en Kínverjar, öll orðin mannlaus, en her-
menn eru allsstaðar á verði, því að þótt fólk hafi tekið
alt hið verðmætasta með sér. má altaf búast við því, að
ræningjar, sem eru fjölmennir í Kína, hagnýti sér að
allir hafa orðið að hverfa á brott frá heimilum sínum.
Þá hafa brennuvargar einnig reynt að kveikja í húsum,
en eru skotnir ef þeir eru staðnir að því.
Meirihluti lögreglunnar hefir einnig verið látinn
hverf a á brott, en hermenn komnir í hennar stað. Brott-
flutningum lauk í gær og hafði lögreglan sig á brott,
er honum var lokið. Japanir héldu uppi sífeldum loft-
árásum á borgina í allan gærdag.
United Press.
London 24. okt. FjÚ.
í fregnum frá Kína í morgun
segir svo, að ógurlegir eldar hafi
komið upp í Kanton á mörgum
stöðum, en borgin er nú í hönd-
um Japana. Hafa orðið stórkost-
legar sprengingar í borginni í
sambandi við eldana og segir
einn fréttaritari, að verslunar-
hverfi borgarinnar sé algjörlega
í rústum. Alþjóðahverfi borgar-
innar var um slceið i mikilli
hættu af eldinum, en þá sneri
vindur sér snögglega i áttina,
svo að því er ekki talin hætta
búin í bráð.
Japanir telja sig nu eiga eftir
ófarnar að eins 25 enskar mílur
til Hankow-borgar og að Kín-
verjar séu þar á almennu und-
anhaldi, bæði sunnan og norð-
an við Yangtse-fljót. Á Hankow
sjálfa voru fjórar loftárásir
gerðar í gær. Loftárás var einn-
ig gerð á breskt skip, „Sandpip-
er“, á einni af þverám Yangtse-
fljótsins, um 200 mílur suður
af Hankow. Skemdist skipið all-
verulega, en um manntjón er
ekki getið. Er talið að flugvél-
arnar hafi verið japanskar.
Kínverskur dollar hækkaði
skyndilega i Shanghai í gær. Or-
sökan var sú, að fregn hafði
lcomið um það, að Chiang Kai
,Shek hefði sagt af sér og að
friður mundi verða saminn
bráðlega.
I IJankow hafa dynamit-
sprengjur verið settar undir öll
japönsk hús og verða þau
sprengd i loft upp um leið og
Japanir stíga inn í borgina. Eitt
þessara liúsa stendur að eins 10
metra frá bústað breska aðal-
ræðismamisins.
hafi aðalhlutverkum verið skift
þannig milli leikenda:
Þóroddur skattkaupandi —
Ágúst Kvaran, Þuríður hús-
freyja að Fróðá — Guðrún Þor-
steinsdóttir, Þórgunnur suður-
eyska — Svafa Jónsdóttir, Þór-
ir Víðleggur — Jón Norðfjörð,
Þorgríma kona lians — Sigur-
jóna Jakobsdóttir og Björn
Breiðvíkingakappi — Hermann
Stefánsson.
Sorpbrenslnstððlí
Stokkhólmt.
W,.W6;» :Jí KX'Z.ll* -i'
Oslo. FÚ.
í Stokkhólmi var nýlega lok-
ið við að reisa afar mikla sorp-
brenslustöð, sem lcostaði rúmar
3 miljónir króna. Þar eru risa-
vaxnir ofnar, sem brenna alt að
3 þús. smálestum af sorpi á dag.
Reykliáfurinn er 60 metra hár
og hæsti reykháfur landsins.
Það er ráðgert að nota hita
brennistöðvarinnar — en hann
er 1200 stig — til einhverskon-
ar verksmiðjureksturs.
Benes veríur hálfan
mánnð á Englanál,
fer sto ttl Chicago.
EINKASKEYTI TIL VÍSIS.
London í morgun.
DENES, fyrverandi forseti
Tékkóslóvaldu, er í heim-
sókn hjá frænda sínum, Bohus
Benes, en liann býr í lítilli villu
í Lundúnahverfinu Putney. í
viðtali, er Daily Express átti við
Bolius, sagði hann:
„Frændi minn mun búa hjá
mér um hálfs mánaðar tíma, en
siglir því næst til Ameríku. —
Hann tekur við prófessorsem-
bætti við háskólann í Chicago."
v::
Meimssýningin í New York.
Afsteypur af Leifsstyttunni og stytt-
unni ai Þorfinni karlsefni verða
reistar við hús fslandssýningarinn-
ar 1 New York.
Reykjavíkurbær leggur fram 12.000 kr. og styttan af
Karlsefni verður reist hér í bænum, að Heimssýning-
unni lokinni, en Yestur-íslendingar leggja fram fé til
afsteypunnar af Leifsstyttunni, sem svo verður reist á
viðeigandi stað í Bandaríkjunum.
Á síðasta fundi bæjarráðs, sem haldinn var s. 1. föstudag, 21,
þ. m., var rætt um erindi, sem framkvæmdarstjórn íslands-
deildar heimssýningarinnar í New York 1939, hefir sent bæjar-
stjórn.
Fer framkvæmdastjórnin fram á, að bæjarsjóður
leggi fram 12.000 kr. til sýningarinnar gegn því, að
stjórn sýningarinnar láti Reykjavíkurbæ í té líkn-
eski úr bronze af Þorfinni karlsefni, eftir Einar
Jónsson.
Mælti bæjarráð með því, að fjárveitingin verði tekin upp í
f járhagsáætlun næsta árs. Má því fullyrða, að bæjarstjórn sam-
þykki fjárveitinguna.
Tíðindamaður Vísis hefir snú-
ið sér til hr. Haralds Árnasonar
kauþmanns, sem á sæti i fram-
kvæmdarstjórn íslands-sýning-
arinnar, og bað hann um nán-
ari upplýsingar.
Kvað bann hugmyndina vera
þá, að taka afsteypu af líkani
Einars Jónssonar af Þorfinni
karlsefni, en það stendur i
skemtigarði í Filadelfiu.
Hefir verið ákveðið, að liafa
líkanið við sýningarhús Islands
i New York, en að sýningu lok-
inni verður það flutt hingað, og
tekur bærinn við því, er hingað
kemur, og ræður að sjálfsögðu
öllu um það eftir það, livar það
verður sett upp o. s. frv.
Sýningarhús íslands í New
York liggur milli tveggja gatna
og verður inngangur frá hvorri
götunni um sig. Við annan inn-
ganginn verður afsteypa af
Leifsstyttunni. Verður hún við
aðalinnganginn, en raunar er
hinn inngangurinn, þar sem
Þorfinnslíkanið verður, engu ó-
veglegri og umferð meiri þeim
megin.
Vestur-íslendingar hafa, seg-
ir Ilaraldur Árnason ennfrem-
ur, byrjað samskot til þess að
afla fjár upp í kostnaðinn við
afsteypuna af Leifsstyttunni.
Munu samskotin ganga mjög að>
óskum.
Ilugmynd Vestur-íslendinga
er, að afsteypan verði sett upp
á einhverjum viðeigandi stað í
Bandaríkjunum, t. d. í Wash-
ington D. C. Fullnaðarákvarð-
anir um það liafa þó ekki verið
teknar enn.
Þessi liugmynd, að liafa af-
steypu af Leifsstyttunni og
styttu Þorfinns karlsefnis við
inngöngudyr sýningarhússins,
er góðra gjalda verð, og inun
vafalaust hafa mildl álirif til
þess að draga menn að sýning-
unni. Það er og ánægjulegt, að
sú leið skuli hafa verið valin,
sem að framan getur, að liafa
afsteypuna af Leifsstyttunni á
völdum stað í Bandarikjunum,
er heimssýningunni lýkur. Það
mun vekja varanlega athygli á
Islandi - og þvi, hvaðan sá mað-
ur var, er fann Vínland hið
góða. Og þá má oss Islending-
um vera það ánægjuefni, að af-
steypa af Þorfinns-styttunni
verður sett hér upp.
Framvegis ætti að leggja
meiri stund á að prýða bæinn
með slíkum listaverkum.