Vísir - 17.12.1938, Blaðsíða 3
V I S III
I Bjarni Þorsteiosson
framkvæmdastj óri.
í dag er til moldar borinn einn
af ágætustu sonum þessa lands,
Bjarni Þorsteinsson, forstjóri
Yélsmiðjunnar Héðins.
Ilann var fæddur í Reykjavík
28. april 1897 og var því að eins
tæpra 42 ára að aldri, þegar
hann andaðist, þann 9 þ. m.
Foreldx-ar hans voru mei'kis-
hjónin Þorsteinn Jónsson járn-
smiður og Guðrún Bjai’nadóttir.
Þegar á unga aldri lærði
Bjarni að vinna og að skilja
hverja þýðingu vinnan liafði.
Laust eftir fei'mingu byrjaði
hann smíðanám hjá föður sín-
urn og öðlaðist með því undir-
stöðuna xmdir framtiðarstarfið.
Að loknu bóklegu og verk-
legu námi, bæði hér heima og
erlendis, byrjaði liami árið
1922 aðalstarf sitt, er hann á-
samt Markúsi ívarssyni keypti
smiðju Bjarnhéðins heitins
Jónssonar og stofnaði Vélsmiðj-
una Héðinn.
Undir hans stjórn er hin litla
smiðja á tiltölulega fáum ár-
urn orðin að stóru og öflulgu
fyrirtæki, sem márkar stefnu á
sviði málmiðnaðarins, en tak-
mai’kinu var ekki náð, hugur
hans stefndi hærra, að stærx-i og
yfirgripsmeiri viðfangsefnum.
Allar skipaviðgerðir og smíði
minni skipa vildi hann- láta
framkvæma innanlands.
Hann var sívakandi yfir
möguleikum til að aulca starfs-
svið iðnar sinnar og tók allar
framfarir tækninnar í sína þjón-
ustu, jafnóðum og þær komu
fram. Ilann var hinn stói'huga
bi’autryðjandi, sem fyrstur
rnanna hér á landi framkvæmdi
stórverk á sviði járniðnaðarins;
rná þar nefna smíði hinna stóru
olíugeyma og vei'ksmiðjur þær,
er hann reisti. Hann taldi að-
allilutvei'k sitt að skapa atvinnu
í landinu. Oft sagði hann:
„Hlutverk mitt er, að vekja á-
huga manna á þvi, að reisa fyr-
irtæki, til að liagnýta hráefni
þau, sem til eru í landinu“, —
og beindist liugur hans aðallega
að hagnýtingu sjávarafui'ðanna.
Aldiei varð eg þess var, að
hann réði viðskiftamönnum sín-
um annað en heilt, í hvaða efni
sem var, enda þótt oft mætti
sjá, að það væri til augnabliks,
fjárhagslegs óhagræðis fyrir
hann.
Um ti-aust manna til hans liér
á landi þarf ekki að fjölyrða,
það er svo alkunnugt, að því
máli þótti borgið, er hann hafði
tekið að sér. Þegar Færeyingar
fóru að hugsa um að í’eisa síld-
ai'vei'ksmiðju, leituðu þeir til
lians, þrátt fyrir miklu eldri
reynslu nágrannaþj óðarinnar,
Norðmanna. Þó vei'ksmiðja
þessi sé enn ekki reist, má full-
yi'ða, að engar heiltsteyptari og
betri tillögur fá þeir en þær,
sem hann gaf þeim.
í stai-fi sínu hafði Bjarni Þor-
steinsson marga nemendur, og
má með sanni segja, að leituðu
þeir til hans, sem oft vai', —
kom enginn að tómum kofan-
um. „Ef þú tekur að þér að
vinna verk, þá gerðu það vel og
gerðu það fljótt.“ Þetta voru
einkunnarorðin, sem mörkuðu
stefnu hans í starfinu og sem
hann kendi nemendum sínum.
Bjarni var óvenjulega glæsi-
legur í framkomu, — gleðimað-
ur í vinahóp og söngelskur
mjög. í honum var að finna hið
íágætasta af góðum eiginleik-
um, — óbilandi þrek og vilja-
festu, samfai'a barnslegri blíðu
og nærgætni.
Þeir, sem því láni áttu að
fagna, að eiga vináttu hans,
minnast lians eins og hann kom
hversdagslega fram, sem ímynd
þess stóra og trausta. — Þeir
xakka honum alt það, sem hann
veitti jxeim, og geta á engan
hátt betur launað það, en með
því, að vinna í anda þeirrar
tefnu, sem hann markaði.
Þ. R.
Eg vil með nokki'um orðum
minnast hins ágæta manns,
Bjarna Þorsteinssonar, fram-
kvæmdastjóra vélsmiðjunnar
Héðinn.
Eg ætla mér ekki að minnast
ættei-nis Bjarna heitins eða
þess margþætta og mikla starfs
hans á þessum fáu iárum sem
ættjöi’ðin fékk að njóta hins
djarfa, stórhuga víkings í land-
námi íslensks iðnaðar. Það veit
eg að gert vei’ður af öðrum sem
betur þekkja.
Eg hefi ekki leitast við að
afla mér ku n ningsskapar
manna, en mann eins og Bjarna
Þorsteinsson þótti mér vænt um
að heilsa sem kunningja. Hann
var einn af þeirn fáu mönnum
sem út frá streymdi lífsgleði,
þróttur og drenglyndi. Væri
maður í slæmu skapi vegna ein-
hvei'ra örðugleika og liitti
Bjarna, þá var fljótlega alt
gleymt en yfir mann fæi'ðist
sólskin og vorgróður nýira
hugsjóna, sem maður bjó að
lengi; fasta, trausta liandtakið
var vottur vináttu og stuðnings.
Eg hafði minst á það við
Bjarna heitinn, að hann skrif-
aði nokkur orð um mig, þegar
eg felli frá. Honum treysti eg til
að skrifa öfgalaust, en nú er
það eg sem verð að kveðja
Bjarna, með þakklæti fyrir góð-
an og göfugmannlegan kunn-
ingsskap.
Bjarna Þorsteinssonar er sárt
saknað af ástvinum og skyld-
menni. Þjóðin öll má syrgja
góðan dreng og ötulan braut-
ryðjanda, manninn sem elskaði
og studdi frjálst einstaklings-
framtak, en lítilsvirti einokun-
arfjötra.
Minning Bjarna Þorsteins-
sonar mun lengi lifa með þjóð
vorri.
Jóhannes J. Reykdal.
Grétar Fells:
Andlegt líf.
Heilbrigt, andlegt líf á erfitt
uppdráttar nú á dögum. Þeir,
sem vilja lifa því lifi, eru sladd-
ir á milli tveggja elda, ef svo
mætti segja. Öðru megin eru
æstir sértrúarflokkar, sem í
raun og veru misþyrma hugtak-
inu „andlegt lif“ og gera það að
ódýrri markaðsvöru, en hinu-
megin eru þeir, sem virðast
lialda, að það, sem lcallað er and
legt líf, sé alls ekki þess vert,
að því sé lifað, og hafa það í
fávíslegum flimtingum. Hversu
oft hafa ekki þeir, sem kalla
sig guðspekinema, rekið sig ó-
þyrmilega á báðar þessar teg-
undir manna. Og þó liggur við,
að hin síðarnefnda tegund
manna, þeir, sem gera’ öll and-
leg mál að gamanmálum, séu
ennþá verri viðureignar. Því
mótstaða þeirra er eins og ull-
arflóki, sem engin vopn bíta.
Þessi flóki þvælist fyrir — ó-
slcöp sakleysislega að vísu
stundum — en hleypur líka
stundum í hnykla áreitni og
jafnvel beinnar • andúðar. Svo
mögnuð er vanþekking þessara
manna á því, sem talist getur
heilbrigt andlegt líf, að þeir
virðast halda, að þeir, sem eru
að leitast við að lifa því lífi,
hljóti óhjákvæmilega að vera
einhverjir sérvitringar, —- ein-
liverjir „lijátrúar“- eða draum-
óramenn. Og háðglósur um
,,lieilagleika“ og annað slikt
fljúga ekki ósjaldan eins og
eitraðar örvar á móti „sérvitr-
ingunum“. Um hitt er ekkert
spurt og ekkert hirt, hvort
draumóramennirnir og „sér-
vitringarnir“ kunni nú ekki,
þrátt fyrir alt, að hafa töluvert
til síns máls, og hvort þeir séu
nú ekld í raun og veru að leit-
ast við að lifa skynsamlegu lífi,
að minsta kosti frá sínu eigin
sjónarmiði.
Nú er það svo, að þeir, sem
gera hin andlegu mál að gam-
anmálum, eru vitanlega rnjöíf
fjarri því að vera sjálfir lausir
við alla sálarlega barnasjúk-
dóma, og gæti verið nógu gam-
on að athuga það nánar við
tækifæri. Einn af þeiin barna-
sjúkdómum kemur fram sem
glettin löngun til að gera lilægi-v
leg't það, sem ef til vill gerir of
miklar kröfur um göfugt og
skynsamlegt líf. Háðið er sjálfs-
vörn -— kattarþvottur dálítið
slæmrar samvisku. Svo er þetta
að minsta kosti stundum. En
hið versta við þessa fíflslegu
hugsunarleysisafstöðu gagnvart
andlegum málum er einskonar
sálarleg sljófgun, sem er eðli-
leg afleiðing þeiirar afstöðu;
fínir strengir í sálarlifinu missa
smám sáman mýkt sína og við-
kvæmni — og geta jafnvel
hrokkið í sundur.
Það er hefnd lífsins sjálfs ..
Grétar Félls.
Peningjagjafir
til Vetranhjálparinnar: N. N.
kr. ioo,oo, starfsfólk hjá Timbur-
versl. Völundur h.f. 105,00, N. N.
kr. 10,00, N. N. kr. 20,00, N. N.
kr. 1,00, S. V. Þ. kr. 10,00, P. IT.
ki 2,00, starfsfólk hjá L. Storr kr.
40,00, starfsfólk hjá Timburversl-
un Árna Jónssonar kr. 25,00, frk.
Jóhanna Magnúsdóttir kr. 100,00,
M. J. kr. 2,00, starfsmenn hjá H.
í. S. kr 5°,°o. Kærar þakkir, f. h.
Vetrarhjálparinnar. — Stefán A.
Pálsson
Næturlæknir:
ITalld. Stefánsson, Ránargötu 12,
sími 2234. Næturvörður í Reykja-
víkur apóteki og Lyfjabúðinni I'S-
unni.
aðeias Loftui*,
Það er eins og maður fái
betri spil, ef spilað er á íslensku
spilin. Þetta er lika svo. Litirnir
eru svo fagrir, pappírinn svo
góður og spilin svo liál og gljá-
andi.
íslensku spilin hans Tryggva
Magnússonar verða því ekki að
eins bestu spilin, heldur líka
þau ódýrustu, ef tekið er tillit
til gæðanna.
Látið ekki sjá annað á spila-
borði yðar en íslensku spilin.
Fást alstaðar.
Magnns Kjaran
Heildverslun.
Veðrið í morgun.
1 Reykjavík 6 st., heitast í gær
6, kaldast í nótt 2 st. Úrkoma í gær
og nótt 9.2 mm. Heitast á landinu
. í morgun 7 st., á Dalatanga, Fagur-
hólsmýri og Reykjanesi; kaldast 2
st., á Raufarhöfn. —■ Yfirlit: Djúp
læg'S suÖvestur af Reykjanesi, á
hreyfingu í nor'Öaustur. — Horfur: j
Suðvesturland—VestfjarÖa: SuÖ- j
austan rok og rigning í dag, en
gengur sennilega í suðvestanátt og
lygnir með kvöldinu.
Skipafregnir.
. Goðafoss var væntanlegur til ,
Vestmannaeyja um hádegi. Brúar- j
foss er á leiÖ til Grimsby frá Vest-
mannaeyjum. Dettifoss er á leið til
Vestmannaeyja frá Hull. Lagarfoss
er í Kaupmannahöfn. Selfoss er
væntanlegur til Vestmannaeyja í
kvöld.
Goðafoss
fór til útlanda í gærkveldi. Carl
Olsen, konsúll, og frú hans, voru
meðal farþega.
Styrkið og styðjið Vetrarhjálpina!
Unnsteinn Olafsson,
skólastjóri garðyrkjuskólans að
Reykjum i Ölfusi, flytur annað er-
indi sitt um garðyrkjumál í Kaup-
þingssalnum á mánudag kl. 9 e. h.
Aðgangur ókeypis og öllum heimill.
Aflasölur.
I gær seldu í Hull: Arinbjörn
hersir 1408 v. fyrir 910 stpd., og
Garðar 2372 v. fyrir 1372 stpd.
Jupiter seldi í Grimsby í gær 1103
v. fyrir 1250 stpd.
Póstferð
verður til Austf jarða á þriðjudag.
Dansleikur
er haldinn að Hótel Borg í kvöld
til ágóða fyrir Vetrarhjálpina. ITús-
næði og hljómlist er látin i té ó-
keypis. — Þeir, sem sækja dans-
leikinn, styðja þarfa starfsemi.
Styrkið og styðjið Vetrarhjálpina!
Ljóskastarakvöld.
hið siðasta á þessu ári, verður
í kvöld í Sundhöllinni; kl. 5—7 fyr-
ir börn og kl. 8—10 f. fullorðna.
Samkomu
heldur ungm.fél. Adventista í
litla salnum á morgun kl. 8 siðd.
Fjölbreytt efni. Allir velkomnir,
meðan húsrúm leyfir.
Peningagjafir til Vetrarhjálparinnar.
Helgi Magnússon & Co. kr.
300.00, N. N. kr. 5.00, J. Þorláks-
son & Norðmann kr. 100.00, J. O.
J. kr. 10.00, frá gömlu hjónunum
kr. 10.00, D. G. kr. 2.00, N. N.
kr. 5.00, 1. S. kr. 10.00, Starfsmenn
hjá h.f. „Hamar" kr. 132.00, N. N.
kr. 10.00, Starfsfólk hjá Steindórs-
prent -kr. 40.15, Starfsfólk í Her-
bertsprent kr. 26.00, Þ. G. kr. 10.00,
N. kr. 5.00. — Kærar þakkir. F. h.
Vetrarhjálparinnar. Stefán A. Páls-
son.
TILKTNNING
frá
Vikublaðlnu „FÁLKINNa:
Vegna óveðurs verður jólablað Fálkans ekki selt á g5fxmun&
í dag.
Sölubörn komi á mánudagsmorgun.
Barnabladid „Æskan“
Nýir kaupendur að næsta árgangi „Æskunnar", senæ
senda peninga með pöntun, fá síðasta árgang í kaup-
bæti meðan upplag endist. Árgangurinn kostar kr. 3-50-
Afgreiðsla Hafnarstræti 10—12 (Edinborg).
Sími; 4235.
Ást og knattspyrna
Ódýrasta bók ársins.
Timbupvill a
á Seltjamamesi með 912 fermetra eignarlóð er til sölra.
Verð kr. 25.000.00. Borgunarskilmálar eftir samkomra-
lagi.
Upplýsingar gefur
Lárus Jóhannesson,
hæstaréttarmálaflutningsmaður.
Suðurgötu 4. Símar: 4314 og 3294L
Endurminningar
Daníels Daníelssonar.
Tilvalin jólagjöf.
Til Vetrarhjálparinnar
berast nú beiðnir frá fátæku fólki
í hundraða tali. Er því bráð hjálp
alveg nauðsynleg, ef hægt á að vera
að gleðja alla fyrir jólin. Þess
vegna, Reykvíkingar, styrkið og
styðjið Vetrarhjálpina, og þess fyr
sem þér gerið það, því betra fyrir
starfsemi hennar. Síminn er 5164.
Skrifstofan er í Varðarhúsinu,
uppi.
Farsóttir og manndauði
vikuna 20.—26 nóv. (í' svigum
tölur næstu viku á undan) : ITáls-
bólga 77 (77). Kvefsótt 123 (108).
Iðrakvef 20 (6). Kveflungnabólga
1 (4). Skarlatssótt 2 (3). Hlaupa-
bóla 1 (o). Ristill 0(1). Munnang-
ur 3 (o). Mannslát 1 (3). — Land-
Vegna illviðris
verður Jólablað Fálkans ékki selt
á götunum fyrr en næstk. mánudag.
Styrkið og styðjið Vetrarhjálpina!
Hjónaband.
í dag verða gefin saman í hjóaa-
band ungfrú Ragnheiður Jóíiamies-
dóttir Lynge og Oddur Óíafssoiz
læknir á Vífilstöðumi 0g nngína
Elín Guðmundklóttír f’rá Óstmdi S
Höfnum og KetiII Ólafsson útvegs-
bóndi sama stað. BrúÖkatip þessara
tveggja hjóna fer fram að Óslandi
í Höfnúm. Síra Brynjólfur Magn-
ússon gefur þau saman..
Súðin
var á Isaíirði i gærkveldi'
Útvarpið í kvöld.
20.15 Leikrit: „Fúnir víðir", eft-
ir Noel Coward. 20.55 Strokkvart-
ett útvarpsins leikur.
Tekjur Dionne-fimmburanö&i
hafa verið um 800 þús. doSarE?
árlega frá fæðingu þeírra, 2R,
maí 1934.