Vísir - 21.12.1938, Blaðsíða 3

Vísir - 21.12.1938, Blaðsíða 3
VISÍR Björgólfur Stefánsson kaupmaður, Á miðvikudaginn var þ. 14. þ. m. féll í valinn einn af mæt- ustu og vinsælustu kaupsýslu- mönnum þessa bæjar, Björg- ólfur Stefiánsson, kaupmaður. Fáum dögum áður liafði mér borist fregnin um andlát ann- ars ágæts borgara og vinar míns og nú var þessi indæli og lifs- glaði vinur horfinn líka. Við Björgólfur kyntumst fyrst vorið 1913, þegar eg var að lesa undir stúdentspróf, og hann var þá, eins og bann reyndist mér jafnan síðan ,glaður og skemt- inn, en jafnframt athugull og ákveðinn, laus við fjas og flysj- ungshátt, tryggur, trúr og hjálpsamur, þegar þess þurfti með. Mér jiótti vænt um að bafa kynst lionuin og mér þykir ennþá vænna um það, að hafa átt hann að kunningja og vin síðan. Björgólfur heitinn var liðlega fimtugur maður, fæddur 12. mars 1885, að Þverhamri í Breiðdal. Foreldrar hans voru hjónin Ragnheiður Aradóttir og Stefán Höskuldsson, er dó frá stórum barnalióp þegar Björg- ólfur var fjögra ára gamall. Fór Björgólfur þá að Höskuldsstöð- um í Breiðdal, en festi þar ekki yndi og fór þaðan fjórum árum síðar til Margrétar föðursystur sinnar, er var gift Kristjáni Þorsteinssyni í Stöðvarfirði. Ólst liann upp hjá þeim merkis- hjónum við gott atlæti til tvi- tugsaldurs og mintist þeirra jafnan síðan með hlýjum hug og þakklæti, sem sinna eigin- legu fósturforeldra. Á uppvaxtarárum sínum vandist Björgólfur bæði sjó- róðrum og venjulegum sveita- störfuní, og um tvítugt fluttist hann hingað suður og stundaði þá fyrst sjóróðra. Árið 1906 hóf hann nám í Verslunarskólanum og útskrifaðist þaðan með prýðilegri einkunn vorið 1908. Hafði hann, eins og fleiri urðu að gera á þeim árum, kostað sig alveg sjálfur til náms, og kom þá greinilega í ljós námshugur hans og námshæfileikar, ráð- deild og fyrirhyggja. Haustið 1909 gerðist Björg- ólfur starfsmaður við Leður- verslun Jóns Brynjólfssonar og var við hana þangað til hann baustið 1917 stofnaði sina eigin verslun, „Skóverslun B. Stefáns- sonar og Bjarnar“, í félagi við Tlieodór heitinn Bjarnar frá Rauðará. Féll jafnan vel á með þeim Jóni Brynjólfssyni, sem reyndist honum ávalt vel, enda naut Björgólfur jafnan fulls trausts og álits húsbónda síns. Veturinn 1910—-’ll útvegaði Jón honum starf hjá hinu þekkta verslunarfyrirtæki J. Ballins & Sönner í Kaupmanna- höfn, og varð dvölin þar Björg- ólfi til mikills gagns. Sem dæmi þess, hvers álits og trausts Björgólfur naut sem verslunarfróður maður, má nefna það, að Jiegar skólastjóri Verslunarslcólans haustið 1917 varð að láta af bókfærslu- kenslu, fékk hann Björgólf til þess að taka að sér kensluna þann vetur. Lengur gat hann ekki annað því vegna verslunar- fyrirtækis síns, en kendi þó síð- ar bókfærslu lárum saman í einkatímum. Þótt Björgólfur væri athug- ull og gætinn, þá var hann jafnframt bjartsýnn og fram- sækinn verslunarmaður. Þegar ófriðurinn mikli skall yfir 1914, fluttist verslun Islendinga fljótt að miklu leyti vestur um Iiaf, og var Björgólfur með þeim fyrstu, er þangað fóru í verslunarerindum. Og þegar farið var að beina verslun vorri til Suðurlanda vegna verslunar- liafta og annarar óáranar, var hann einnig með þeim fyrstu er þangað fóru, til þess að afla þar nýrra verslunarsambanda. Er það enn eitt dærni um atorku þessa látna merkismanns, vand- virkni hans og skilning á því, hvernig taka ber nýjum við- horfum og nýjum erfiðleikum, að áður en hann lagði í þá ferð, þá hóf hann að læra spænsku og komst svo vel niður í henni á fáum vikum, að hann gat gert sín viðskifti, munnlega og bréf- leg, á því máli, þar sem þess þurfti með. Var hann þó vel að sér í ensku, þýsku og frönsku og hefðu margir látið það nægja i bans sporum og á lians aldri. Árið 1925 keypti Björgólfur helming meðeiganda sins í versluninni og rak hana síðan sem einkaeign til dauðadags, undir nafninu „Skóverslun B. Stefánssonar“. Hefir verslunin blómgast svo vel í liöndum lians, að nú mun hún eitt af traustuslu verslunarfyrirtækj - um þessa bæjar, þrátt fyrir allar verslunarhömlur og aðra erfið- leika. Björgólfur heitinn var vel rit- fær maður og létt um mál, enda ritaði liami oft um menn og málefni í blöð bæjarins og víðar. Og þegar skókaupmenn bæjarins fyrir skömmu síðan stofnuðu til félagsskapar sin á milli kusu þeir hann fyrsta for- mann félagsins; og þótt þar sé um marga góða memi að velja, þá mun mega fullyrða, að þeir liafi ekki getað valið sér betri málsvara en Björgólf heitinn. Ái-ið 1916 kvæntist Björgólfur Oddnýju kenslukonu, dóttur Stefáns Árnasonar frá Ásunnar- stöðum í Breiðdal. Lifir liún mann sinn. Ekki varð þeim barna auðið en þrjú börn hafa þau tekið til fósturs og gengið ! þeim í foreldra stað. Var heim- [ ili þeirra lijóna hið ánægjuleg- asta og öllum til fyrirmyndarj enda viðmót heimilisfóllcsins hlýtt og alúðlegt, svo að öllum þótti þangað sólskin að sækja, þeim er til þektu. Þess vildi eg óska, að þjóð vor ætti sem flesta líka Björg- ólfs að manngildi og drenglund. Það mundi gefa nokkra glætu vonar. Ilitt verða menn að virða mér og öðrum til vorkunnar, þótt við kveinkum okkur, þegar missir þjóðnýtra drengja og góðra vina bætist við þokusúld hins sólarlausa skammdegis vor íslendinga. Vertu sæll, vinur. H. H. Eiríksson. Eggert Claessea 'iæstaréttarmálaflutningsmaður Skrifstofa: Oddfellovvhúsinu. Vonarstræti 10, austurdyr. Sími: 1171. ' Viðtalsími: 10—12 árd. Frönsk kommóða til sölu. Jón Halldórsson & Co. Lífstykkjabilðin HAFNARSTRÆTI 11 hefir yður að bjóða nytsaman, vand- aðan og ódýran varning til jólagjafa: ULLAR- og SILKISOKKAR, TÖSKUR og ILMYÖTN. NÆRFÖT, ýmsar gerðir, silki, ullar og bómull. SLÆÐUR, HÁLSKLÚTAR, SJÖL úr silku og georgette. VASAKLÚTAR, mikið úrval, PÚÐUR- DÓSIR, SLIFSI og KRAGA. Ekki að gleyma hinum ágætu viðurkendu LÍFSTYKKJUM, BELTUM og KORSE- LETTUM. — Lífstykkjabúflin H AFN ARSTRÆTI 11. Húsgögn 9 svo sem: Klapparskápur úr eik. Borð úr eik. Skrifborðsstóll. Mahogniborð. Ottoman og Dívan er fyrirliggjandi og selst með tækifærisverði nú fyrir jólin. Húsgag n avinnustofa Daviðs Ó Grímssonar Óðinsgötu 1. NÝ BÓK. Þarflegasta bók ársms. ‘Skipstjóra og stýrimannafélagsins Al dan verður haldinn að Hótel Borg 27. desember kl. 5 e. h. Aðgöngumiðar seldir í Yeiðarfæraversluninni Geysi og hjá Guðmundi Sveinssyni, Bárugötu 17. Heimilisbókin er sú bók, sem ekkert heimih miá vera án. Iíaldi'ð Heimilisbókina og fylgist með fjárhagslegri afkonm heimilisins. — Þá er velferð þess borgið. Heimilisbókin er því besta jólagjöfiiú wfttftí&ug Jfegk jfiuííuuf íicmisk fatahrcinsun og litun 0 j2sBs«t9 34 1300 .iíegliimúfc ATHUGIB! Á MORGUN er siðasta tækifæri til að tá tatnaö sinn hreinsaöan fypip jólin. SÆKJUM SENDUM eyKjaviKur verða lokaðir mánudaginn 2. janúar 1939. Atbygli skal vak- in á því, að víxlar sem falla í gjalddaga töstudaginn 30. des. verða afsagðir laugardag. 3 1. des. séu þeir ekki greiddir eða framlengdir fyrir lokunar- tíma bankanna þann dag. Landsbanki Islands. Útvegsbanki íslands h. f. Biínadarbanlci íslands. eru nii komnir £ fjölbpeyttn ilrvalL ^pCfÓÐRflniNN^ SIMI 4484. KOLASUNDI I, Börnin snotur og odyr myndabok fyrír og dýrin börnin. Hentug jólagjöf. — Slgurður Einarsson : Miklir menn Mjög fróðleg og skemtileg bókl Ágæt jóiagjöf. Verð: ób. ltr. 4.60, í góðu bandi kr. 6,25«.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.