Vísir - 06.01.1939, Side 3
Föstudaginn 6. jan. 1939.
V í S ! H
yStfl ,K.S5 .0 rsttfJlfshttÍMffl
r
3
r *
Druknad tiafa 45 manns á árinu og er það
fypip ofan meðallag fpá því árið 1928.
1 skýrslum þeim, er erind- !
reki Fiskifélagsins í björgunar-
málum, Jón E. Bergsveinsson,
nú erindreki Slysavarnafélags-
ins, gerði, meðan hann vann
lijá Fiskifélaginu, um sjóslys
við ísland á árunum 1901—-
1925, taldist honum til að 1751
íslenskir menn og konur liefðu
druknað á; þessu tímabili, eða
rúmlega 70 manUs að meðal-
tali á ári. Þess er getið til, að
líklegt sé að þessar tölur séu
heldur of lágar, en ekki of
háar.
Á árunum 1926 og 1927 voru
einnig gerðar skýrslur um
þetta efni og sýiidu þær, að a
árinu 1926 höfðu 37 íslenskir
menn og 15 erlendir druknað
hér við land og 1927 52 íslensk-
ir og 29 erlendir, eða samtals
81. —
Eftir að Slysavarnafélag ís-
lands var stofnað 1928, hefir
það safnað skýrslum um þetta
efni, sem er tiltölulega að-
gengilegt í Árbókum félagsins.
Hvað innlendum mönnum við-
kemur eru niðurstöðutölurnar
þar þær er nú skal greina:
1928 .... 42 1933 81
1929 .... 32 1934 ...... 30
1930 .... 56 1935 44
1931 .... 20 1936 72
1932 .... 30 1937 ,,,,, 27
Þetta verða samtals 434
menn og' konur á 10 árum eða
43,4 að meðaltali á ári.
Druknanatalan 1938 liefir
torðið fyrir ofan meðallag eða
samtals 45 manns. Ber þar að
sjálfsögðu langmest á liinu
stórkostlega slysi, er togarinn
Ólafur fórst með 21 manni.
Það munu ekki vera til að-
gengilegar prenlaðar skýrslur
uin skipströnd og druknanir
hér við land á tímabilinu 1900
til þess tima, er Slysavarnafé-
lagið fór að birta skýrslur um
þetta efni i Árbókum félagsins
eftir að það var stofnað. Er
mjög nauðsynlegt, að slíkar
skýrslur yrðu prentaðar, ef
þær eru til i handritum, eða ef
það er ekki, þá þyrfli að láta.
semj a þær sem fyrst, svo að
almenningur liefði gréiðan að-V
gang að þeim. í öllum slíkum
skýrslum er margháttaðán
fróðleik að finna, sem atliug-
ulir menn geta margt lært af.
Árið 1938 byrjaði erfiðlegá,
þvi að 2. janúar strandaði einn
af bestu og nýjustu vélbátun-
um úr Reykjavík, „Þorsteinn“
RE. 21, 51 smálest að stærð, í
suðvestan ylgju og náttmyrkri,
skamt innan við Búðir á Snæ-
fellsnesi. Báturinn var í vöru-
flutningum og hafði aðeins 5
manna áhöfn. Björguðust þeir
allir ómeiddir í land, þótt tölu-
vert brim væri, og seinna náð-
ist báturinn út og var gert við
liann.
Hinn 18. janúar gerði mikið
austanrok og sjógang á Suður-
landi. Tvo vélbáta, „Reynir1
<og „Sæborg“ rak á land i
Keflavík og brotnuðu mikið.
Þeim varð þó náð út síðar og
við þá gert. Um þetta leyti
voru 3 bátar á leið frá Norð-
firði til veiðiskapar við Suður-
land. Fengu þeir afar vont veð-
ur og voru menn kvíðandi fvr-
ir afdrifum þeirra, þá veðrið
var sem verst, en allir komust
þeir heilu og höldnu í höfn
með óskerta áhöfn, einn til
Hornafjarðar og tveir til Vest-
mannaeyja.
Hinn 21. janúar fórst opinn
vélbátur með 2 mönnum frá
Norðfirði. Voru þeir við fugla-
veiðar. Ókunnugt er um or-
sakir slyssins.
Hinn 6. janúar gerði afar
slæmt veður af austan og suð-
austan um land alt. Var al-
ment róið á Suður- og Vestur-
landi og margir bátar á sjó þeg-
ar veðrið skall á. Með veður-
fregnum um kvöldið tilkynti
Slvsavarnafélagið i Ríkisút-
varpinu, að 4 báta vantaði.
Voru það bátárnir „Vísir“ frá
Flateyri, „Kári“ frá Kópaskeri,
„Álftin“ frá Akranesi og „Víð-
ir“ frá Vestmannaeyjum. -—
Komu 3 fyrst töldu bátarnir
heilu og höldnu til lands, en sá
síðasttaldi fórst með öllum
skipverjum, 5 að tölu, skamt
undan landi og skömmu seinna
rak bátinn mikið brotinn upp
á Landeyjasand.
Hinn 2. mars braut brimsjór
stýrisliúsið og fleira á vélbátn-
um „Inga“ frá Stokkseyri, þar
á sundinu og tók um leið út 2
menn, er báðir druknuðu, en
4X menn, sem eftir voru um
borð, komust af og bátnum var
bjargað án þess að hann brotn-
aði frekar.
Hinn 28, april sökk vélbátur-
inn „Skúli fógeti“ frá Vest-
mannaeyjum í fiskiróðri þar
við eyjarnar. Vélbáturinn
„Muggur“ frá Vestmannaejý-
um bjargaði skipshöfninni, 8
mönnum og flutti þá i land.
Hinn 2. mai sökk vélbáturinn
„Svanur“ frá Vestmannaeyj-
um í fiskiróðri, en skipshöfn-
inni, 4 mönnum, bjargaði vél-
báturinn „Maggy“ frá sama
stað, og flutti til lands. Hinn
19. maí druknaði Kristján
Rafnsson, bóndi í Flatey á
Skjálfanda, af opnum bút, með
liest og heyfarm, er dregin var
af vélbát frá Látrum á Látra-
strönd við Eyjafjörð, á leið til
Flateyjar. Féll Kristján og hest-
urinn út úr bátnum. Synti hest-
urinn lil lands, en maðurimi
druknaði.
Hinn 21. júní féll Þórarinn
Halldórsson út af vélbátnum
„Hvítirigur" og druknaði. Skip-
ið 'var við síldveiðar fyrir
Norðurlandi. 15. júli druknaði
Hanna Kristjánsdóttir, starfs-
stúlka á sjúkrahúsi Hvita-
bandsins, í höfninni í Reykja-
vík. Ókunnugt er um orsakir
slyssins.
Hinn 26. júli druknaði 19 ára
piltur, Sólmundur Vigfússon,
frá Þverá, í Veiðiós á Siðu. Var
hann ásamt öðrum manni við
silungsveiði þar i ósnum. Ilinn
14. ágúst féll Árni Björn Árna-
son, 6 óra gamall drengur frá
Reykjavik út af bryggju í
Ilúsavík og druknaði. Ilinn 20.
ágúst druknaði Guðrún Lárus-
dóttir alþingismaður ásamt 2
dætrum sínum í Tungufljóti og
21. ágúst druknaði Jón Sveins-
son i Stafholtsveggjalaug í
Borgarfjarðarsýslu.
Hinn 26. september drukn-
aði Baldur Magnússon, 4 ára
gamall drengur, er féll út af
bryggju, í Ytri-Njarðvík, og 9.
október druknaði 8 ára gamall
drengur er féll út af bryggju í
Sandgerði.
Hinn 23. október fórst opinn
vélbátur frá Reykjavik með 2
mönnum, er druknuðu báðir,
voru þeir á fuglaveiðum. Sama
dag er talið að öldruð kona,
Katrín Jósefsdóttir, liafi
druknaði í Teitsvötnum í Rang-
árvallasýslu.
Hinn 2. nóvember fórst tog-
arinn „Ólafur“ frá Reykjavík
með allri áliöfn, 21 manni, í
aftaka veðri og sjógangi á
Halamiðum og um miðjan des-
ember fanst maður druknað-
ur við bryggju á Siglufirði.
Samtals eru þetla 45 menn
og konur, sem druknað bafa
við strendur landsins og í ám
og vötnum á árinu 1938,; skift-
ist druknanatalan þannig: 21
maður druknar af togara, sem
fórsl með öllu, 5 menn drukna
af vélbát yfir 12 smálesta, sem
fórst með öllu. Einn maður féll
út af vélbát yfir 12 smálesta
og druknaði. Tvo menn tók
brimsjór út af vélbát undir 12
smálesta. 5 menn drukna af
opnum vélbátum. 5 falla út af
bryggjum og drukna, og 6
drukna í ám og vötnum, þar af
4 konur.
Engirin erlendur maður
druknaði hér við land, svo vit-
að sé, því ekki er rétt að telja
slys færeysku skipanna 8. mars
í fyrravetur með slysum hér
við land, þar eð allar líkur
benda til, að slysin hafi verið
á rúmsjó langt á hafi úli, ef
til vill nær Færeyjum en ís-
landi.
Skipskaðar urðu þessir helsl
ir á árinu. Einn togari fórst
með öllu. Tveir vélbátar yfir
12 smálesta, tveir vélbátar
undir 12 smálestum og tveir
opnir vélbátar fórust á árinu.
Fjórir vélbátar yfir 12 smá-
lestir strönduðu á árinu, en
varð náð út aftur og gert við
þá. —
Einn erlendur togari strand-
aði á árinu, en náðist út aftur
og var gert við hann í Reykja-
vík lil bráðabirgða og' komst
hann svo heilu og höldnu lieim
til Englands, þar sem hann átti
heima.
Frá Eskifirði.
Fréttaritari Vísis á Eskifirði
skýrði blaðinu svo frá í gær, að
þar væri tíð erfið, og snjó hefði
kyngt þar niður síðustu dag:a,
þannig að jarðlítið væri orðið
fyrir skepnur. Ekkert hefir ver-
ið farið á sjó að undanförnu,
enda fara þrír stærstu bátamir
til Suðurnesja og stunda róðra
þaðan, og munu þeir leggja af
stað mjög bráðlega.
Ekki er þó víst nema að til
deilna dragi, með þvi að komm-
únistar liafa gert sig líldega til
að hanna sjómönnum að ráða
sig á batana, nem upp á mun
hærri kjör en i fyrra, og hafi
þeir varnað sjómönnum að
vinna við einn bátinn, Víði.
Annars var alt beldur tíð-
indalítið á Austfjörðum og
engar pólitiskar óeirðir svo
teljandi sé, síðan Benedikt Gutt-
ormsson var skipaður yfirboð-
ari bæjarstjórnanna i Eskifirði
og Neskaupstað. 1 Neskaupstað
er þó allmikill urgur í mönnum
einkum kommúnistum og só-
síalistum innbyrðis, þótt eigi
dragi til séretakra tíðinda.
FRAKKNESK IIERDEILD í MARSEILLE.
Mynd þessi var tekin vopnahlésdaginn, en þann dag liófst ú-
róðurinn í ítaliu gegn Frakklandi.
Laadkönnudupinii Miss
Boyd tieidjpud.
Flestir íslenskir blaðalesend-
ur munu liafa lesið um ame-
ríska landkönnuðinn Miss Boyd,
því að herinar hefir iðulega ver-
ið getið í íslenskum blöðum, en
liún hefir farið hverja rann-
sóknarferðina á fætur annari til
norðurhafa, og er liún, að þvi er
hið merka félag, Ameríska
landfræðifélagið telur, eina kon-
an, sem hlotið hefir lieimsfrægð
sem landkönnuður á norður-
hveli jarðar.
Miss Louise A. Boyd kom í
desemberbyi'jun til New York
úr sjöunda norðurhafaleiðangri
sínum. Gaf liún þá Ameríska
landfræðifélaginu skýrslu um
ferð sina og heiðraði félagið
hana þá með því að veita lienni
hinn svo kallaða Cullum heið-
urspening úr gulli.
í leiðangri sínum síðastliðið
sumar komst Miss Boyd lengra
norður á bóginn meðfram
Grænlandsströndum en nokkur
amerískur landkönnuður hefir
áður komist á skipi og álti að
eins ófarnar 30 niílrir enskar til
þess að komast eins langt norð-
ur og Duc d’Orleans 1905 (78.16
N og 16.21 V). — Með Miss
Boyd voru ýmsir vísindamenn,
landfræðingur, jarðfræðingur,
sérfræðingur í hafrannsóknum
og loflskeytamaður, sem rann-
sakaði sérstaklega stuttbylgju-
sendingar.
Miss Boyd var í norðurhöf-
um, þegar Amundsens var sakn-
að 1928 og fór skip hennar
10,000 sjómílur i leitinni, sem
Miss Boyd þegar hóf, við strend-
ur Spitzbergen og langt norður
á bóginn. Var það hættulegur
leiðangur, en bar því miður
ekki árangur. Fyrir þetta var
hún sæmd Olafsorðunni af
fjrrstu gráðu og er hún eina
konan, sem Noregskonungur
hefir veitt þetta tignarmerki.
Miss Boyd á heima í St. Raf-
ael í Ivaliforniu, en frá því liún
var barn að aldri, hefir hún
haft mætur á hinum norðlægu
löndum, og þess vegna fór hún
eitt sinn, er hún kom til Noregs
í skemtiferð, til Spitzsbergen,
og þá sannfærðist liún betur um
hvernig hún ætti að verja tíma
sínum, þ. e. með því að fara í
rannsóknarferðir norður um
höf til hinna norðlægustu landa.
Og nú er sjöunda leiðangurs-
ferðinni nýlega lokið, sem fyrr
var sagt, og í vetur mun Miss
Boyd að venju gefa sig að
hljómlistarstarfsemi sinni suð-
ur í Kaliforniu, en ef að likum
lætur leggur hún upp í áttunda
leiðangurinn næsta vor.
E(tirtekt<r»ert rnál
og viísjánert.
Mjög virtist mér það eftir-
tektarvert um hið skipulega er-
indi sem skáldið Grétar Fells
flutti í Útvarpinu í gær (29.12),
að framburður hans á orðinu
„líf“, var greinilega danskur.
Dönsk álirif á íslenska tungu
virðast undarléga mikil um
jiessar mundir, mun meiri en
fyrir nokkurum árum, og hlýt-
ur slíkt að vera áhyggjuefni
hverjum þeim sem nokkuð er
ant um íslenska framtíð.
Grétar Fells talaði mikið um
það sem liann nefndi ihugun
(meditation) og er það æfing
sem hinir svonefndu guðspeki-
nemar leggja mikla stund á.
Þess verður að gæta, að Jielta
sem nefnt er íhugun, er að
miklu leyti tilraun til að setja
sig í það sem nefna mætti sam-
bandsástand. Árangurinn af
miklum æfingum í þá átt getur
orðið sá, að menn fari að verða
varir við hugsanir annara.
Telja má vist, að það sé fram-
undan og verði algengt, að
hugsanasamband geti komist á
manna á milli. Hefir því jafn-
vel verið spáð að mikil breyting
i þá átt muni vei-ða áður á
löngu líður. Gæti þar að vísu
verið um mikla framför að
ræða, en þó má ekki gleyma
því, að sú leið er vandfarin, og
að hæfileikinn til að ,,lesa“
hugsanir náungans getur orðið
mjög til ills, ef hans er neytt til
að njósna á ódrengilegan hátt
um liagi annara og nota sér
þannig fengna vitneskju til að
skaða þá.
Helgi Pjeturss.
/egna ðtfðar er til-
fíananiegnr mjðlknr
skortnr á Sigínfirði.
Menn kamast varla nm
götnrnar nema á skíðnm
Fréttaritari Vísis á Siglufirði
skýrði blaðinu svo frá í gær-
kveldi, að þar væri stöðug ótíð
og allar samgöngur teptar að
heita mætti. Mjólk hefir sáralít-
il borist til bæjarins nú um langt
skeið og veldur það hinum
mestu vandræðum. Hafa mörg
heimili ekki séð mjólk svo dög-
um skiftir.
Mjólkurbáturinn Erlingur,
sem annast mjólkurflutninga
frá Sauðárkróki til Siglufjarð-
ai% varð að liggja ú Hofsós í
marga daga vegna óveðurs, en
er hann náði til Siglufjarðar
var mjólkin orðin ónýt og ekki
nothæf og varð að liclla lxenni
niður. Hinsvegar kom bátur frá
Akureyri fyrir tveimur dögum
með mjólk en ekki meiri en
svo að lieita mátti að kaupstað-
urinn væri jafn mjólkurlaus
eftir sem áður.
í Siglufirði eru tvö mjólkur-
bú, annað að Hóli, en liitt í
Skútu. Hefir Hólsbúið 20 kýr
en Skútu-búið 14, en mjólk frá
búunum er seld þeim mönnum,
sem hafa fasta samninga um
mjólkurkaupin, en fáum þess
utan. Þar, sem búin hafa svo fá-
ar kýr sem að ofan greinir, geta
þau að engu leyti bætt úr vand-
ræðum manna.
Mjólkurleysið kemur að sjálf-
sögðu öllum illa, en þó verst
þeim heimilum, sem hafa fyrir
börnum að sjá. Eru Siglfirðing-
ar mjög kvíðandi fvrir komandi
dögum, með þvi að engin leið
er til að bæta úr þessu, nema
tíðin breytist til batnaðar, bann-
ig að unt verði að taka upp að
nýju flutninga á sjó.
Snjó hefir kyngt svo niður að
varla er farandi um göturnar
nema á skiðum, enda gera það
flestir, sem ekki halda sig innan
dyra.
Islenskor ostur.
í blaði sem kemur út í
Vínarborg sá eg orðin „die læ-
rúhmte norwegische Kase“:
„Hinn frægi norski ostur.“ Méi
kom til hugar að slik ummæli
mundu vera norskum bændum
nokkurs virði, og eins, livort
nokkuð þyrfti að vera því til
fyrirstöðu, að íslenskur ostur
Hyti sama lof. íslenskur ostur
sem fæst hér í búðunum er
stundum ágætur, en stundum
miður góður, þótt sama sé
nafnið og verðið. En það er svo
sem auðvitað, að ef íslenskur
ostur á að hljóta shkt lof og álit
sem hinn norski, þá verða ost-
ar sömu tegundar altaf að vera
nokkurnveginn jafnir að gæð-
um, og vildi eg beina þein-i
spurningu til hlutaðeigandi,
hvort þessu hefir verið nægilejg-
ur gaumur gefinn og hvort
nokkuð þyrfti að vera því til
fyrirstöðu að ráðin yrði bót á
galla þessum.
29. des.
Helgi Pjeturss.
Donald Budge,
tennisleikarinn ameríski, er
nú orðinn atvinnuleikari í
tennis. Hann lék fyrir skemstu
við Amerikumanninn Jack.Tid-
ball og tapaði 6—2, 2—6, 6—4.
Var þetta síðasti leikur hans
sem áhugamanns.
I