Vísir - 10.01.1939, Blaðsíða 2
VÍSIR
VÍSIR
DAGBLAS
Útgcfandi:
BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR II/F.
Ritstjári: Kristján Guðlaugsson.
Skrifstofa: Hverfisgötu 12.
Afgreiðsla: Hverfisgötu 12.
(Gengið inn frá Ingólfsstrœti).
S í m a r :
Afgrei-.ðsla 3400
Ritstjórn 4578
Auglýsingastjóri 2834
Verð 2 krónur á mánuði.
Lausasala 10 aurar.
Félagsprentsmiðjan h/f.
Er þetta það
sem koma
skal?
lUlilliþinganefnd, sem skipuð
var til þess að rannsaka liag
og rekstur togaraútgerðarinnar,
hefir nú fyrir nokkuru lokið
þeirri rannsókn. Hefir nefndin
lcomist að þeirri niðurstöðu, að
útgerðin hafi verið rekin með
tapi, síðustu 5 árin að minsta
kosti, og nemi það tap saman-
lagt um 6 miljónum króna á
því tímabili. Svipuðu máli er
talið að muni gegna um afkomu
annara greina sjávarútvegsins á
sama líma, eða að þær hafi ver-
ið reknar með ekki minna tapi
en togaraútgerðin hlutfallslega.
Hlutverk milliþinganefndar-
innar var nú ekki það eitt, as
framkvæma þessa rannsókn,
heldur átti hún einnig að leggja
á ráðin um það, með hverjum
hætti útgerðinni yrði komið á
réttan kjöl, ef rannsókn leiddi
það i Ijós, að þörf væri sér-
stakra aðgerða til þess. Að svo
komnu er hinsvegar ekki kunn-
ugt, að nefndin liafi nokkurar
tillögur gert í þá átt. Og af lík-
um virðist mega ráða, að slíkra
tillagna, sem að nokkuru gagni
mætti verða, muni helst alls
ekki að vænta frá henni.
í ritstjórnargrein, sem birtist
í Tímanum s.I. laugardag, með
fyrirsögninni „viðreisn útgerð-
arinnar“, er rætt um þetta mál
á þann veg, að ekki verður ann-
að af þvi ráðið, en að Fram-
sóknarflokkurinn muni fram-
vegis eins og hingað til reyna að
liliðra sér hjá því, að gera nokk-
urar ráðstafanir, sem verða
mætti togaraútgerðinni til við-
reisnar. Þrátt fyrir það, þó að
hlaðið telji sannað, með rann-
sókn nefndarinnar, að togara-
útgerðarfyrirtæki landsins séu
einS og nú hagar til um afurða-
verð og reksturskostnað yfir-
leitt, rekin með halla og að halli
þessi verði ekki jafnaður nema
til komi veruleg breyting á afla-
brögðum eða einhverskonar
„opinber aðstoð“, þá virðist það
ekki telja þörf bráðari aðgerða
en svo, að það segir aðeins, að
slíkt ástand megi „ekki haldast
til lengdar“! Og þó að blaðið
viðurkenni að vísu, að „stöðvun
togaranna“, sem forsætisráð-
herrann talaði um 1. desember
sem fullkomna þjóðarógæfu,
„myndi rýra mjög gjáldeyris-
tekjur þjóðarinnar‘“, þá dylst
manni ekki, að það telur að það
varði meira „aðstandendur“
fyrirtækjanna og „aðra, sem
vilja að rekstúr þeirra haldi á-
fram“(!), en þjóðarheildina,
hvort lil slíkrar stöðvunar kæmi
eða ekki. Og ef nokkurar opin-
berar ráðstafanir eigi að gera,
útgerðinni til viðreisnar, segir
blaðið að „aðslandendur fyrir-
tækjanna“ og „aðrir, sem vilja
að rekstur þeirra haldi áfram“,
verði að „sýna í verki“, að þeir
trúi á framtið þeirra við hatn-
andi skilyrði“, og að þeir séu
reiðubúnir að „mæta fórnum
liins opinbera“ með því að gæta
ítrasta sparnaðar í rekstri fyrir-
tækjanna.
Af jæssuni bollaleggingum
hlaðsins virðist lielst mega ráða,
að það ætlist til þess, að „að-
standendum fyrirtækjanna“,
sem þegar hafa „fórnað þeim
öllum eignum sínum og öllu
lánstrausti sínu, í öruggri trú -á
framtíð þeirra „við hatnandi
skilyrði“, verði því aðeins gerð-
ur koslur.á aðstoð til viðreisn-
ar atvinnurekstri sínum, að þeir
geli lagt fram „nýtt“ fjármagn,
til þess að halda honum áfram.
Og við þetta væri í rauninni
ekkert að athuga, og vafalaust
mundu aðstandendur útgerðar-
fyrirtækjanna líka fúsir að upp-
fylla slík skilyrði, ef þeir væru
þess megnugir. En það er fyrir-
fram vitað, að það eru þeir ekki.
Þess vegna er það alveg það
sama og að neita um alla að-
stoð, að bjóða hana með slíkum
skilyrðum.
Þannig eru allar horfur á því,
að Franisóknarflokkurinn ætli
ekkert að liafast að, til þess að
l'orða togaraútgerðinni frá
liruni, en láta alveg skeika að
sköpuðu um það, hvenær hún
stöðvast með öllu, og sú ógæfa
skellur yfir, sem forsætisráð-
herrann sá „hilla undir“ 1. des-
ember, og liann taldi Jiá, að gæli
orðið þess valdandi, að sjálf-
stæði landsins glataðist.
fjárkaisáitim lar-
eyrar m\M á síöasta
iundi lyrir mm\.
Nokkrir gjaldaliðir
hækka allvernlega.
Fjárhagsáætlun Akureyrar-
kaupstaðar var endanlega sam-
þykt í bæjarstjórn á síðasta bæj-
arstjórnarfundi fyrir áramótin.
Heildartekjur bæjarsjóðs eru á-
ætlaðar kr. 972,310,00 samtals,
en þar af nema útsvörin ein kr.
446.860.00. — Gjöld bæjarins
hækka allverulega, en hækkun-
in kemur aðallega fram á eftir-
töldum liðum: Líftrygging og
lýðhjálp kr. 125 þúsund, hækk-
un frá í fyrra kr. 42 þús. Menta-
mál kr. 107.450, hækkun kr.
19.050. — í þessari upphæð er
falinn styrkur til samskóla-
býggingar kr. 5.000, og er það
fyrsta styrkveiting í þvi skyni.
Gagnfræðaskólinn og iðnskól-
inn eru nú báðir undir sama
þaki og há húsnæðisþrengslin'
þeim mjög í allri starfssemi.
Framlög til löggæslu hafa
hækkað um 9 þús. kr. og nema
nú kr. 20 þús. I þessari upphæð
er innifalið framlag til fanga-
húsbyggingar, að uppliæð kr.
5000,00
Önnur liækkun á gjaldaliðum
fjárhagsáætlunarinnar er ekki
svo teljandi sé.
Fréttaritari.
NORSKUR KOMMÚNISTI
HANDTEKINN.
Oslo 9. janúar.
Hinn kunni norski kommún-
isti, Arvid Hansen, liefir verið
handtekinn í Stokkhólmi. Er
hann sakaður um undirróðurs-
starfsemi fyrir Rússa. NRP—
FB.
Tvísýnar horínr vifl komn Chamberlains til Röm.
ítalir slaka ekkert til á Spánarkröfum sín-
um og telja Frakka bera að fjandskap við
sig, en alt öðru máli að gegna um Breta.
EINKASKEYTI TIL VÍSIS.
London, í morgun.
Morgunblöðin, sem út komu í Rómaborg í dag
ræða öll um væntanlega komu Chamberlains
og Halifax lávarðs til Rómar. Leggja þau á-
herslu á það, að för Daladiers til Corsicu, Tunis og
Algier hafi verið farin af fjandskap við ítali og hinar
góðu viðtökur, sem Daladier hafi fengið í Tunis, stafi
fyrst og fremst af því, að íbúarnir þar líti á Frakkland
sem voldugan f jandmann, sem þeir verði að beygja sig
fyrir. Hinsvegar telja blöðin að frá Breta hálfu megi
vænta alls góðs, og að þeir haf i f ullan skilning á þessum
málum, og muni gera sitt til að leysa úr öllum vandræð-
i WKfi
um.
Um komu Chamberlains og Halifax lávarðs ræða blöðin einn-
ig mjög vinsamlega, og1 láta í Ijósi óblandna ánægju sína yfir
því, að þeir hafa tekið þessa ákvörðun. Hinsvegar nefna þau
að eins lítillega komu þeirra til Parísar, og fara þar fljótt yfir
sögu, og telja þá heimsókn þýðingarlitla.
Chamberlain og Halifax lávarður lögðu af stað í
Rómaborgarför sína frá Victoría-stöðinni kl. 11 ár-
degis í dag.
Lundúnablöðin í morgun
ræða öll um þessa för þeirra og
vara við öllum tilslökunum frá
hendi Breta við kröfum ítala.
í ritstjórnargrein í Daily Tele-
graph er lögð megináhersla á
það, að almenningur líti svo á
að engar tilslakanir megi gera
við kröfum ítala, og telur að
viðræðurnar muni einnig leiða
það í ljós. Blaðið ræðir um að
ítalir muni krefjast hernaðar-
réttinda til handa Franco-
stjórninni, en telur að slíkt
komi ekki til greina nema því
að eins, að haldið verði fast við
þá kröfu að sjálfboðaliðar þeir,
sem enn eru á Spáni verði flutt-
ir þaðan á burtu, enda verði
það gert áður, en hernaðarrétt-
indi eru veitt, og verði í því
efni farið að ráðum hlutleysis-
nefndarinnar.
Parísarblöðin draga það mjög
í efa að Mussolini muni verða
við þessum kröfum frá hendi
Chamberlains, og telja allar lík-
ur til að lítill árangur verði af
viðræðunum.
Leon Blum skrifar grein í
hlaði sinu Populaire, og kemst
svo að orði, að þótt Chamber-
lain setji þá kröfu fram að
ítalskar hersveitir verði fluttar
frá Spáni, muni Mussolini ekki
taka það í mál, en halda fast við
þær kröfur sínar að Franco
verði veitt hernaðarréttindi.
United Press.
ÞJÓFHELDA
MYNTSLÁTT AN!
Hin nýja myntslátta
Bandaríkjanna er í San Fran-
cisco og var, þangað til ný-
lega, talin algjörlega þjóf-
held. Fyrst og fremst er hún
úr eintómu stáli og steini, og
jVo gæti fjöldi varðmanna
hennar og öll hugsanleg varn
artæki. En þrátt fyrir þetta
brutust tveir fimtán ára
drengir inn þarna á dögun-
um. «
Þeir ætluðu að fara út aft-
ur, með koparþynnu til minn-
ingar um heimsóknina, þegar
varðmennirnir sáu þá. „Við
gerðum þetta að eins að
gamni okkar — til þess að
sjá hvort við gætum það
ekki,‘‘ sögðu drengirnir.
„Hvernig komust þið inn,“
spurðu varðmennírnir.
„Við klifruðum yfir garð-
inn og svo upp á efri hæðina
á rennu og þar fundum við
opinn glugga“.
Þannig var sagan um þjóf-
heldu myntsláttuna!
Að gefnu tilefni
hefir Vísir verið beðinn að geta
þess, að kensluflug færi aldrei fram
frá flugvellinum í Vatnsmýrinni og
altaf sé fullfær flugmaður við stýr-
ið. — '
Fimm foringjar Araba
látnir lausir.
Þeim er helmilað að eiga víðræðnr við stör-
múftaen i Jerúsalem.
EINKASKEYTI til vísis.
London í morgun.
Opinber fregn frá Jerúsalem hermir að fimm af foringjunt
Araba, sem verið hafa í haldi á Seychelles-eyjunum í Indlands-
hafi, en nýlega hafi verið látnir lausir, hafi fengið leyfi til að
hafa fimm daga viðdvöl í Syriu og Libanon, með því skilyrði
að þeir verði við þeim kröfum, sem breska stjórnin hefir sett
fram um þátttöku þeirra í Lundúnaráðstefnunni.
Þau skilyrði liafa þó verið sett
frá liendi breskra yfirvalda fyr-
ir þessu landgönguleyfi þeirra,
að þeir liafi meðferðis skilríki
og árituð vegabréf um að þeir
fái að fara aftur til Egyptalands,
og ennfremur að þeim sé skylt
að dvelja á þeim stöðum og í
þeim húsakynnum, sem breska
stjórnin tiltekur og lætur þeim
í té, og í þriðja lagi að þeim sé
með öllu óheimilt að eiga
nokkrar viðræður við stjórn-
málamenn nema stórmúftann í
Jerúsalem, en í þessu skilyrði
felst leyfi þeim til handa til þess.
að heimsækja hann. í fjórða
lagi er þeim bannað að eiga
nokkurar viðræður við blöðin
eða að gefa út nokkrar opinber-
ar yfirlýsingar stjórnmálalegs
eðlis.
U. P.
250 milj. flóttamenii í Kína
Einn tíundi hluti þjóðarinnar á vid
hungursneyð að búa.
Kínverjar eru nægjusöm og
þolinmóð þjóð og gerir litlar
kröfur, og nú á styrjaldartím-
anum þykjast þeir vel sleppa,
sem hafa þak yfir höfuðið fyrir
sig og sína og eitthvað í sig og
á. Mestur hluti kínversku þjóð-
arinnar lifir á jarðrækt og þeg-
ar vel árar fæst uppskera tvisv-
ar á ári. En vegna styrjaldar-
innar hafa tugir miljóna Kín-
verja komist á flakk — á stór-
um landssvæðum eru menn
hættir að erja jörðina. Borgir
og þorp, sem staðið hafa með
tiltölulega litlum breytingum
áratugum og jafnvel öldum sam-
an, hafa gersamlega horfið.
Púðrið sem Kínverjar fyrst
fundu upp, hefir verið óspart
notað í eyðileggingarstarfsem-
inni. Það er talið, segir Norman
Stockton, fréttaritari Daily Ex-
press í Hongkong, að 250 milj-
ónir manna í Kína hafi orðið að
flýja heimili sín, eða meira en
helmingur allrar þjóðarinnar. I
tug-miljónatali hefir flótta-
*-í
FLÓTTAMENN, SEM HAFAST VIÐ I SKOTGRÖFUM.
Hús þeirra Iiafa verið skotin í rústir — og ekki í önnur „hús* að venda en skotgrafir, sem
hermennirnir liafa yfirgefið.
mannastraumurinn leitað vest-
ur á bóginn, til vesturhluta
landsins, þar sem hvítir menn
sjaldan sjást. í miljónatah hafa.
menn látið lífið. Fyrsta ár
styrjaldarinnar biðu bana af
hennar völdum á einn eða ann-
an hátt 20 miljónir manna, það
er helmingi meira en mannfall
varð í heimsstyxjöldinni. Eng-
inn þorir að spá um hversu
margir láta lífið á öðru — yfir-
standandi — ári styrjaldarinn-
ar. Hafnbann er lagt á allar
strandborgirnar og það var
giskað á, í árslok, að 1/10 hluti
þjóðarinnar ætti við hungurs-
neyð að stríða, en öll þjóðin við
meiri eða minni skort. Land-
svæði, sem er jafnstórt að flat-
armáli og Bretland, írland,
Belgía, Tékkóslóvakía, Austur-
ríki, Frakkland, Þýskaland,.
Ungverjaland, Ítalía og Holland
hefir verið lagt í auðn að mestu
leyti. Þar er nú hvergi rækt-
aður blettur. Með því að bæta
við íbúatölu fyrrnefndra landa
og að auki Svíþjóðar, Danmerk-
ur og Rúmeníu, fá menn nokk-
ura hugmynd um hversu margt
fólk hefir orðið að flýja heim-
ili sín, af því að, þau höfðu ver-
ið skotin í rústir eða alt land
upp urið og eyðilagt af skothríð.
Þetta er einhver mesta harm-
saga sem heimurinn nokkuru
sinni hefir haft af að segja. -—
Daily Express.
TVEIR MENN VERÐA ÚTI.
Oslo 9. janúar.
Tveir kunnir menn, Gustav
Blom skrifstofustjóri og Christ-
ian Hermanrud yfirréttarmála-
flutningsmaður, urðu úti að-
faranótt sunnudags í lmðar-
veðri á leið til hins nýja ferða-
mannagistihúss Ferðafélagsins í
Haugasundi. Tvær slúlkur, sem
einnig urðu að liafast við úti um
nóttina, komust lífs af, og þaklc-
að því, að þær voru með svefn-
poka. NRP—FB.
Hjónaefni.
Nýlega opinberuðu trúlofun sína-
ungfrú Tóhanna Guðmundsdóttir og
Snorri Láxdal', Bergstaðasræti io,