Vísir - 04.02.1939, Side 2
VISÍR
„Irskí lýöveldisherinn"
úrslitakosti 12. janúar,
Maxin fékk 4 daga frest til
þess að kalla lieim keplið
Breta í Iplandi. Hótununum
vap ekki sint og 16« janúap
liófust hepmdapvepkin.
EINKASKEYTI TIL YÍSIS.
London í morgun.
Stórkostleg sprenging varð í gær í vopnaverk-
smiðju einni í Slough, sem er mikill iðnaðar-
bær, er liggur 18 mílur frá London. Verk-
smiðja þessi framleiðir aðallega ýmsa flugvélahluti.
Sprengingin varð kl. 4 e. h. í gær, en þvínæst kom
upp eldur mikill í verksmiðjunni og olli sprengingin og
eldurinn það stórfeldum skemdum á byggingu og vél-
um, að verksmiðjan verður að hætta framleiðslu sinni
fyrst um sinn og þar til úr verður bætt.
Leynilögreglumenn frá Scotland Yard í London
brugðu við og fóru til Slough til þess að rannsaka mál-
ið en auðsjáanlega er hér um framhald þeirra hermd-
arverka að ræða, sem írski lýðveldisherinn, — félags-
skapur Ira sem berst fyrir algeru sjálfstæði Irlands, —
hóf nú fyrir nokkru og getið hefir verið um i skeyt-
um að undanfömu.
Tíu þúsund leynilögreglumönnum var boðið út í gær
til þess að hef ja nákvæma leit að spellvirkjunum, sem
einnig hafa víðsvegar um landið orðið valdir að spreng
ingum í neðanjarðargöngum, m. a. á ýmsum járn-
brautarstöðvum.
Lögregluliðið leitar einnig að sprengiefnabirgðum, seni lik-
legt er að fólgnar séu víðsvegar um landið, enda hefir þegar
fundist mikið af slíkum sprengiefnum, sem lögreglan hefir
tekið í sínar vörslur.
í gær gerði lögreglan í London húsrannsókn hjá mörgum Ir-
lendingum, sem þar húa, og vitað er um að liallast hafa að bar-
áttu írska lýðveldishersins. Slikar liúsrannsóknir fóru einnig
fram í Liverpool og ýmsum öðrum borgum í Englandi, og
leiddu þær til þess, að allmarg;|r menn hafa verið teknir fastir,
og eru rannsóknardómstólar se-n óðast að rannsaka mál þeirra,
en margt hefir þegar upplýsts, sem bendir í þá átt að í vændum
séu enn fleiri og viðtækari hermdarverk bæði í Englandi og
einnig í írlandi sjálfu.
Daily Telegraph segir frá því í dag, að lögreglan í Ulster
hafi skýrt Scotland Yard frá því, að hún hafi komist yfir ýms
skjöl, sem skýri nákvæmlega frá ýmsum ákveðnum hermdar-
» verkum, sem fram eiga að fara og lýðveldisherinn hefir á-
kveðið fyrir löngu. Beri skjöl þessi með sér að spellvirkjarnir
hafi ákveðið að drepa ýmsa breska lögregluforingja í Ulster og
jafnvel á Bretlandi.
sendi Halifax lávaröi
VIÐ HERSKÓLANN í WOOLWICH
fór nýlega fram herskoðun er var svo langvarandi að sumir
nýliðarnir féllu í yfirlið. Á efri myndinni liefir þannig liðið
yfir einn þeirra, en annar gengur fram honum til hjálpar. Á
neðri myndinni eru foringjarnr komnir á staðinn þar, sem
byssurnar liggja í vegi þeirra, og virðist liðþjálfinn ekki vera
ánægður með slíkt báttalag.
Alvarlegar fregnir.
Portugalir stórauka
fiskiflota sinn.
Samkvæmt fregn, sem hingað hefir borist frá Portúgal, hefir
ríkisstjórnin þar í landi samið 4 ára áætlun um stóraukningu á
fiskiflota Portúgals. Er ráðgert að byggja fjölda togara og
mótorskipa á þessu tímabili. Er ætlunin að þessi floti framleiði
um 60% af saltfiskþörf landsmanna, en hingað til hafa Portú-
galir aðeins framleitt um 20% af þörfum sínum.
Nú þegar hefir ríkisstjórnin gefið út leyfi til að byggja 9
togara, sem styrktir verða mjög ríflega úr ríkissjóði.
Mundi þessi markaðsskerðing í Portúgal hafa mjög ískyggi-
legar afleiðingar í för með, sér fyrir íslenska fiskframleiðslu.
Breskt Syf gegn lungna-
bólgu, sem reynist vel.
; •••-. ' , >.J, -v
Bretar hafa fundið upp nýtt lyf, sem þeir kalla M & B 693,
og er það notað með góðum árangri gegn lungnabólgu. Lund-
únablaðið „Daily Express“ segir svo frá þessu lyfi þ. 20. jan:
TtSIR
DAGBLAÐ
Útgefandi:
BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H/F.
Ritstjóri: Kristján Guðlaugsson.
Skrifstofa: Hverfisgötu 12.
Afgreiðsla: Hverfisgötu 12.
(GengiS inn frá Ingólfsstræti).
S í m a r :
Afgreiðsla 3400
Ritstjórn 4578
Auglýsingastjóri 2834
Verð 2 krónur á mánuði.
Lausasala 10 aurar.
Félagsprentsmiðjan h/f.
Lögbrot?
BÆJARSTJÓRNARFUND-
INUM í fyrradag, varð for-
seti að skera úr um það, hver
af varafulltrúum þeim, sem
kosnir liöfðu verið af sameigin-
legum lista Alþýðuflokksins og
Kommúnistafokksins í síðustu
bæjarstjórnarkosningum, skyldi
eiga sæti á fundinum í stað Jóns
Axels Péturssonar, bæjarfull-
trúa Alþýðuflokksins, sem var
veikur. Krafa um að taka sæti
Jóns var gerð af tveim vara-
bæjarfulltrúum, þeim Haraldi
Guðmundssyni og Héðni Valdi-
marssyni, sem báðir höfðu ver-
ið í kjöri af hálfu Alþýðuflokks-
íns í bæjarstjórnarkosningun-
um á samfylkingar-listanum og
náð kosningu sem varabæjar-
fulltrúar, Héðinn fyrstur í röð
varafulltrúanna en Haraldur sá
þriðji. AIIs náðu kosningu, sem
varabæjarfulltrúar af hálfu Al-
þýðuflokksins, þrír menn, en
tveir af liálfu konnnúnista. Síð-
an hafa tveir af varamönnum
Alþýðuflokksins, og er annar
þeirra Héðinn Valdimarsson,
gengið úr þeim flokki og stofn-
að nýjan flokk með kommún-
istum. Var þannig «ð eins einn
af varafulltrúum Alþýðuflokks-
ins eftir, þ. e. Haraldur Guð-
mundsson, og féll úrskurður
forseta á þá leið, að hann skyldi
taka sæti Jóns Axels Pétursson-
ar á fundinum.
Þennan úrskurð telur blað
kommúnista, eða hins nýja
flokks Héðins Valdimarssonar,
„fáheyrt lögbrot“ og segir að
bæjarstjórnarfundur þessi muni
„verða í minnum hafður fyrir
lagaleysur þær“, sem á honum
hafi verið framdar! En þó að
það sé engann veginn dæma-
laust, að kommúnistar fremja
lögbrot,. brjótist t. d. inn í hús
manna, til að misþyrma þeim,
þá er það kunnugt, að þeir una
þvi allra inanna verst, ef þeir
hyggja að lög hafi verið brotin
á sér, og þarf jafnvel ekki meira
til, en að þeir fái ekki fram-
gengt því sem þeir vilja, þó að
það hafi við engin lög að styðj-
ast, og láta þeir þá sem frek-
lega hafi verð brotin lög á sér,
ef vera mætti að enhverjir létu
blekkjast af því.
Það er enginn vafi á því, að
liöfuðtilgangurinn með þvi að
lögskipa kosningu varamanna
fyrir bæjarfulltrúa og hrepps-
nefndarmenn, er að tryggja
stjórnmálaflokkunum, að þeir
geti ávalt haft sömu áhrif á
meðferð mála þeirra, sem sveit-
arstjórnirnar eiga að fjalla um,
þó að einn eða fleiri aðalfull-
trúar fatlist frá. Varamennirnir
eiga þannig að sjálfsögðu að
vera yaramenn fyrir flokkana,
en ekki fyrir „listann“, sem þeir
eru kjörnir af. Hinsvegar er
augljóst, að lögin gera ekki ráð
fyrir því, að fleiri en einn flokk-
ur séu um sama lista, eins og
átti sér stað í siðustu bæjar-
stjórnarkosningum. Og þau
gera heldur ekki ráð fyrir því,
að það geti komið fyrir, að
kosnir varamenn „brölti á milli
flokka“ milli kosninga. En af
þessu leiðir, að þegar aðalfull-
trúi í bæjarstjórn forfallast, fná
fundarsetu, má ekki setja i
lians stað mann úr öðrum
flokki. Það bryti svo bert í bága
við tilgang laganna, að það
vaari í rauninni algert lögbrot.
I konmiúnistablaðinu er þvi
haldið fram, að úrskurðurinn
um að Haraldur Guðmundsson
en ekki Héðinn Valdimarsson
skyldi taka sæti Jóns Axels
Péturssonar i bæjarstjórninni,
brjóti í bága við 33. gr. sveilar-
stjórnarlaganna, því að þar sé
mælt svo fyrir, að varamenn
bæjarfulllrúa skuli „taka sæti í
bæjarstjórn eftir þeirri röð
sem þeir eru kosnir“. En Héð-
inn Valdimarsson getur ekki
verið varamaður bæjarfulltrú-
ans Jóns Axels, eins og nú er
komið, af því að þeir eru ekki
báðir i sama flokki. Hvar þeir
eru i röðinni á listanum sem
heild, kemur ekki málinu við.
Ef annarhvor hæjarfulltrúi
Kommúnistaflokksins eða nú-
verandi „Sameiningarflokks al-
þýðu -— socialistaflokksins“
fatlaðist frá, ætti Héðinn ský-
lausan rétt til þess að taka sæti
hans í bæjarstjórninni. En til
þess að taka sæti Alþýðuflokks-
fulltrúanna getur enginn annar
af varamönnum listans átt rétt
en sá þeirra sem er Alþýðu-
flokksmaður.
Alþýðuflokkurinn fékk þrjá
menn kosna í bæjarstjórn. Með
varafulltrúum átti að tryggja
honum það, að þau þrjú sæti
væru ávalt slcipuð flokksmönn-
um hans. En myndi því fylli-
lega borgið, ef Héðinn sæti í
einu jieirra?
Aflafpéttip af
Akranesi.
Akranesi 3. febr.
Róið er hér enn á hverjum
degi og er aflinn svipaður og
verið hefir. Jafnastur og mest-
ur afli, sem bátarnir hafa skilað
í land á eínum degi á þessari
vertíð, mun hafa verið á fimtu-
daginn. Bátarnir voru þá með
12—18 þúsund kg. hver, en all-
ur mun aflinn hafa verið um
350 skp.
Um mánaðamótin síðustu var
búið að salta hér rétt 3000 skip-
pund, en auk þess hafa verið
seldar 435 smál. af nýjum fiski
i janúarmánuði.
Vegna þess, hve gæftir hafa
verið frábærlega góðar og róðr-
arnir orðnir magfalt fleiri en
venja er til, eru surnir útgerð-
armenn að verða beitulitlir. En
mér er þó sagt, að ekki muni
borfa til neinna verulegra vand-
xæða fyrsta kastið, jafnvel þó
að gæftir verði góðar áfram, þvi
að beitu mun vera von að norð-
an til þeirra, sem minst hafa nú
af henni hér.
L.v. Ólafur Bjarnason seldi
afla sinn í Hull á þriðjudag,
1400 körfur, fyrir 550 stpd.
B.v. Sindri kom hér snöggv-
ast við á þriðjudagsmorgun til
þess að taka kol og vistir. Ilann
var með hlaðafla eða um 2500
körfur, eftir 10 daga útivist, og
lagði af stað til Englands með
fiskinn samdægurs.
Frjr.
Málfundafélagið óðinn.
Aðalfundurinn verður á morgun
kl. 2 í Kaupþingssalnum.
Daily Herald skýrir frá því,
að írski lýðveldisherinn — fé-
Jagsskapur hinna róttækustu
írskra skilnaðarmanna, sem tal-
inn er standa að hermdarverk-
unum — hafi þann 12. janúar
sent Halifax utanríkismálaráð-
herra Bretlands úrslitaorðsend-
ingn, og gefið honum fjögurra
daga frest til þess að koma því
til leíðar, að breska stjómin gæfi
fyrirskipun um að kalla heim
frá írlandi alla breska hermenn,
sem þar eru.
í orðsendingu þessari var því
heitið, að grípa til víðtækra
gagnráðstafana, ef kröfunni
væri ekki sint.
Daily Herald leiðir athygli að
því, að hermdarverkin hafi
byrjað þ. 16. janúar, eða fjór-
um dögum eftir að fresturinn
var útrunninn.
Það er ekki lengur talið nein-
um vafa undirorpið, hver er or-
sök þess, að gripið er til þessara
hermdarverkatilrauna af írska
lýðveldishernum. Þessi félags-
skapur hefir verið lýstur ólög-
legur af ríkisstjórninni, sem vill
vinna áð sameiningu alls írlands
með friðsamlegu móti. En í
þessum róttæka félagsskap á
ekki slík stefna upp á pallborð-
ið. Hann krefst þess, að gripið
sé til róttækra ráðstafana, til
þess að koma á fót hinu írska
lýðveldi — reka á brolt alt
brekst herlið úr Irlandi og knýja
Norður-írland til þess að fallast
á sameininguna.
En í Norður-írlandi hefir
hreyfingin fyrir sameinúðu ír-
landi aldrei fengið mikinn byr.
í Norður-írlandi eru, sem kunn-
ugt er, sex greifadæmi af níu,
sem eru í Ulster. Þrjú tilheyra
Fríríkinu (Eire), en íbúar Norð-
ur-írlands eru yfirleitt konung-
hollir og vilja ekki breyta neinu
í sambúð Bretlands og Norður-
Irlands. Meðal almennigs eru þó
allmargir lýðveldissinnar, en
þeir hafa ekki bolmagn tii þess
að hafa sig mikið í frammi. —
Mestur Þrándur í Götu samein-
ingarinnar er andúð meirihluta
Norður-írlendinga gegn henni.
Norður-írland hefir sitt eigið
þing, með 52 þjóðkjörnum full-
trúum í neðri deild og efri deild
með 26 þingmönnum. Úrslit
seinustu kosninga í Norður-ír-
landi sýndu, að afstaða Norður-
Irlendinga til Bretlands er ó-
breytt frá því, sem áður var.
Er líklegt, að hermdarverka-
starfsemi írska lýðveldishersins
hafi slæm áhrif og algerlega
gagnstæð þeim, sem þeir sjálfir
búast við, að flýta fyrir samein-
ingu írlands í eitt lýðveldi.
United Press.
í desembermánuði bjargaði
þetta lyf tæpl. 200 mannslífum
í Lundúnaborg einni, og desem-
ber var versti lungnabólgu-mán-
uður um langan aldur.
Lyfið M & B 693 hefir ekki
verið notað neitt að ráði í
sjúkrahúsum Lundúna fyrri en
í vetur. Það hefir verið til
reynslu á ýmsum stöðum, þang
að til það var nolað alment.
Tilraunirnar fóru á þá leið,
að af hverjum 100 manns, sem
það var reynt á, létust að eins
átta. En af þeim, sem lyfið var
ekki í'eynt við, létust 27 af
hundraði.
Læknar voru injög ánægðir
með lyfið og umniæli þeirra
voru á þessa leið:
„Árangur tilraunanna hefir
sannfært okkur um það, að sé
lyfið nolað innan fjögra daga
frá því að lungnabólgan byrjar,
þá stöðvar það liana og orsakar
skjótan bata“.
Fimtiu töflur nægja að jafn-
aði til lækningarinnar og þær
kosta 15 shillinga (16—17 kr.).
Er það ekki lítill kostnaðarmun-
ur, þegar hlóðvatnslækningar,
sem áður tíðkuðust, kostuðu oft
áður alt að 30 stpd. (660 kr.).
Gamalmenni og börn.
Fólk, sem komið er yfir sext-
ugt, er oft mótstöðulítið fyrir
lungnabólgunni, svo að dánar-
tála þeirra er mjög há. Nýja
Iyfið var reynt á fimm gamal-
mennuin — eitt þeirra lést. Við
fjögur önnur gamalmenni voru
eldri lækningaaðferðir reyndar
— þrjú þeirra dóu.
Lyfið var reynt á 40 börnum
— aðeins tvö þeirra dóu. — Síð-
an hefir lyfið verið sent út um
allan heim, og eftir þvi sem
læknar æfast í notkun þess, fer
þeim fjölgandi, sem það forðar
frá bana.
Þeir, sem fundu lyfið, eru
Frh. á 4. síðu.