Vísir - 21.02.1939, Blaðsíða 2
VlSIR
VÍSÍ
DAGBLAÐ
Útgefandi:
BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H/F.
RitStjó'fiKristján Guðlaugsson.
Skrifstofa: Hverfisgötu 12.
Afgreiðsla: Hverfisgötu 12.
(GengiS inn frá Ingólfsstræti).
S I m a r :
Afgreiðsla 3400
Ritstjórn 4578
Auglýsingastjóri 2834
Verð 2 krónur á mánuði.
Lausasala 10 aurar.
Félagsprentsmiðjan h/f.
Hámarks-
álagning.
að var sýnt fram á það hér
i blaðinu á dögunum, hve
óheppilega hefði tekist til fyrir
verðlagsnefndinni, um ákvörð-
un hámarksálagningar á vefn-
aðarvörum. Tilgangurinn með
starfsemi nefndarinnar er að
sjálfsögðu sá, að koma í veg
fyrir það, að verðlag innfluttr-
ar nauðsynjavöru verði hærra
en góðu hófi gegnir, þrátt fyrir
innflutningshöftin. Sökum inn-
flutningshaftanna er í rauninni
ekki um það að ræða, að frjálst
framboð og eftirspurn geti ráð-
ið verðlaginu i landinu og liald-
ið því í skefjum, eins og á
venjulegum tímum.
Því eru nú, sakh’ innflutn-
ingshaftanna, lítil takmörk sett,
við hvaða verði innflytjendur
geta selt varning sinn, af því að
innflutningurinn er skorinn
svo við nögl, að framboðið
fullnægir ekki eftirspurninni.
Þess vegna hefir verið gripið til
þess, að heimila verðlagsnefnd
að hafa hemil á verðlaginu,
með þeim hætti, að ákveða há-
marksverð á innfluttum vör-
um, eða hámarksálagningu á
innkaupsverð þeirra. Nefndin
hefir tekið þann kostinn, að á-
kveða hámarksálagningu, en
með þeim hætti, að í því felst
engin trygging fyrir hæfilegu
' Verðlagi.
‘Hámarksálagning á vefnað-
arvörum má, samkvæmt regl-
um nefndarinnar, vera 50% í
smásölu, ef varan er keypt af
innlendum smásölubirgðum, en
74% ef hún er keypt „beint frá
útlöndum“, eða af erlendum
heildsölubirgðum. í innkaups-
verði smásalans er í báðum til-
fellum innifalin heildsöluálagn-
ing. Ef sú álagning rennur til
innlends heikfsala, má smásal-
inn að eins-leggja 50% á inn-
kaupsverðið, en renni hún til
útlends lieildsala má hann
leggja 74% á það. Þó að inn-
lendi heildsalinn geti selt vör-
una eins lágu eða jafnvel lægra
verði en smásalinn á kost á hjá
erlendum heildsala þá getur
það verið allálitlegur gróðaveg-
ur fyrir smásalann, að skifta
heldur við erlenda heildsalann.
-— En þó að heildsalaálagningin
renni þá til erlends heildsala í
erlendum gjaldeyri, þá virðist
svo sem verðlagsnefndinni þyki
ekki í það horfandi, þegar ann-
arsvegar er um það að ræða, að
innlendir heildsalar geti haft
hagnað af viðskiftunum. Og þó
að þessar ráðstafanir verði þess
valdandi, að verðlagið i landinu
hækki í stað þess að lækka, þá
er sama máli um það að gegna.
Daginn eflir að Visir gerði
þessar furðulegu ráðstafanir
verðlagsnefndar að umtalsefni, i
fór Tíminn á stúfana og reyndi
af veikum mætti að bera blak
af nefndinni, en gerði þó enga
tilraun lil þess að andæfa því,
að fyrirmæli hennar um há-
marksálagninguna væru ekki ó-
líklegri til þess að auka dýrtíð-
ina í landinu en að draga úr
henni. En „alt og sumt“, sem
blaðið hefir um þetta að segja
er það, að „auðvitað sé það
fjarstæða hjá Vísi, „eins og
reynslan muni sýna“, að með
þessari ákvörðun verðlagjs-
nefndar verði heildsalarnir „úti-
lokaður frá verslun með vefn-
aðarvörur“! Hefði þó að vísu
mátt ætla, að Tíminn teldi það
ekki beinlínis liöfuðatriði máls-
ins, að heildsalarnir yrðu ekki
„útilokaðir“ frá þessari starf-
semi, enda mundi þá öllu vel
borgið, ef það væri trygt! En
að öðru leyti virðist blaðið alveg
sammála Vísi um það, að margt
hefði mátt betur fara lijá verð-
Jagsnefndinni, en raun liefði á
orðið, t. d. það „að hafa sömu
hámarksálagningu á öllum teg-
undum vefnaðarvöru“, hvort
sem um er að ræða „luxus“-
vöru eða brýnustu nauðsynjar
almennings. Væntir blaðið þess
líka, að nefndin „sjái sér fært“
að gera einhverjar breytingar á
því, hvað svo sem „revnslan“
kann að „sýna“ um það!
ðn í Hkitðyii,
Akureyrá í morgun.
Ekki alls fyrir löngu gerðu
kommúnistar á Akureyri mik-
inn aðsúg að Sveini Bjarnasyni
fátækrafulltrúa þar í bænum,
fyrir að hann hefði kistulagt
þurfaling, Guðrúnu Oddsdóttur,
á götum úti, og birti Alþýðu-
blaðið^ og Þjóðviljinn greinar
um málið og tóku í sama streng
og kommúnistar nyrðra.
Sveinn Bjarnason höfðaði
meiðyrðamál gegn Jakobi Árna-
syni ritstjóra „Verkamannsins“
út af greinum þeim, sem hann
hafði rlitað um málið og var
ctómur uppkveðinn í bæjarþingi
Akureyrar hinn 14. þ. m. Var
Jakob Árnason dæmdur í sekt
fyrir hin meiðandi ummæli, en
til vara í 12 daga fangelsi, svo
og til að greiða allan málskostn-
að. Iiin umstefndu ummæli
voru að sjálfsögðu dæmd dauð
og ómerk.
Fréttaritari.
2189 dósir af fisk-
bollnm seldiistípr
frá verksm. 8.Í.F
Dagblöð hæjarins hvöttu
Reykvikinga til þess að neýta
fiskbolla frá Niðursuðuverk-
smiðju S.Í.F. á bolludaginn, og
með þvi að vörur verksmiðj-
unnar eru þegar orðnar kunnar
að frábærum gæðum, brugðust
bæjarbúar svo vel við þessum
tilmælum, að sala verksmiðj-
unnar nam í gær 1267 % kg. dós-
um og 922 kg. dósum, og er
það meiri sala á einum degi en
nokkuru sinni fyr.
Sýnir þessi mikla sala þann
almenna skilning, sem menn
hafa á hlutverki niðursuðuverk-
smiðjunnar, sem og hitt, að
framleiðslan líkar vel, og er það
aðalatriðið. Má vænta þess, að
hlöð og borgarar megi vera jafn
ánægð yfir árangrinum.
■u
segirfPittman, formaður utanríkismálanefndaí.
Hann bvetur Bandarlkjamenn til þess
að styðja Roosavelt.
EINKASKEYTI TIL VÍSIS.
London, í morgun.
Roosevelt Bandaríkjaforseti er sem stendur við-
staddur hinar miklu flotaæfingar, sem fram
fara á Atlantshafi, en hann er við því búinn
að hverfa aftur til Washington hið bráðasta, ef eitthvað
óvænt kynni að gerast á vettvangi alheimsmála, en um
alllangt skeið undanfarið hefir verið búist við, að stór-
viðburðir myndi gerast í yfirstandandi mánuði. Mun
því Roosevelt þykja öruggara að kunnugt sé, að hann
muni hverfa heim til Washington þegar í stað, ef nýja
ófriðarbliku skyldi draga á loft.
Það er enn ekki kunnugt hversu lengi Roosevelt
verður með flotanum. Þetta eru mestu flotaæfingar
Bandaríkjanna, sem fram hafa farið, og hafa verið
dregnar af því ýmsar álykanir, ekki síst í einræðisrík j-
unum, að svo stórkostlegar flotaæfingar skuli nú haldn-
ar, ekki síst þar sem Roosevelt hefir í hverri ræðunni
á fætur- annari hvatt til baráttu gegn stefnu einræðis-
ríkjanna, og heitið lýðræðisríkjunum í Evrópu marg-
víslegum stuðningi, ef til ófriðar kynni að koma.
Það er enn á huldu hvað Roosevelt hefir fyrir sér í því, að
þeir atburðir kunni að gerast þá og þegar, sem leiddi til þess
að Roosevelt yrði að hverfa til Washington aftur bráðlega.
Mussolini hefir ekki enn haldið ræðu þá, sem margsinnis hefír
verið gefið í skyn, að hann mundi halda þá og þegar, og menn
hafa búist við, að Hitler mundi fara á stúfana, jafnvel í þessum
mánuði, og bera fram nýjar kröfur. Þá er óvissan um Spán.
Það er ýmislegt sem bendir til, að Bandaríkjastjóm sé ekki
ánægð yfir stefnu Breta og Frakka gangvart Franco.
Það, sem mesta athygli vekur nú, eru ummæli Pittmans öld-
ungadeildarþingmanns, til stuðnings Roosevelt í baráttu hans
gegn einræðisríkjunum. Ummæli Pittmans eru að sjálfsögðu
mikilvægari vegna þess, að hann er forseti utanríkismálanefnd-
ar öldungadeildarinnar.
Pittman flutti ræðu í gærkveldi, sem útvarpað var um
öll Bandaríkin og hvatti hann þjóðina eindregið til þess
að styðja utanríkismálastefnu Roosevelts. Styðjum ríkis-
forsetann og með því styðjum við lýðræðisríkin í baráttu
þeirra gegn einræði og kúgun.
Pittman kvaðst þeirrar skoðunar, að markmið einræð-
isríkjanna væri að ná undir sig yfirráðum mikils hluta
heimsins. ítalir, Þjóðverjar og Japanir áforma að sölsa
undir sig yfirráð í Suður-Ameríku, Evrópulöndum víðast
og Asíu, sagði Pittman ennfremur. Hann afneitaði friðar-
stefnu, sem bygðist á því, að láta altaf undan fyrir ofbeldi
og hótunum.
Vér Bandaríkjamenn, sagði hann að lokum, óttumst
ekki það, sem koma skal. Vér munum óhikað leggja lífið
í sölurnar fyrir trú og siðferði, réttlæti og frelsi.
United Press.
Enn Avíst nm árangnr
af för Berards.
Osló, 20. febrúar.
Samkvæmt opinberri tilkynningu er Berard öldungadeildar-
þingmaður sé farinn frá Burgos. Hann fullyrðir, að förin
hafi borið ágætan árangur. Franco sé fús til þess að ábyrgjast,
að hinn nýi Spánn verði algerlega óháður öðrum þjóðum,
stjórnmálalega og fjárhags- og viðskiftalega. Ennfremur segir
Berard, áð Franco hafi endurtekið loforð sín um það, að allir
erlendir hermenn verði fluttir á brott frá Spáni þegar er borg-
arastyrjöldinni sé lokið. — NRP.-FB.
EINKASKEYTI TIL VÍSIS.
London í morgun.
Leon Berard sagði í gær, að
afstoðnum viðræðum við utan-
ríkismálaráðherra Burgos-
stjórnarinnar: „Eg er þreyttur,
en ánægður“. — Berard er far-
inn til San Sebastian og þaðan
fer hann yfir frönsku landa-
mærin og talar símleiðis við
Bonnet. Áður en hann fór ræddi
hann við fulltrúa bresku stjórn-
arinnar í Burgos. — Jordana
hershöfðingi er farinn til Barce-
lona til þess að ræða við Fran-
co. — Jordana og Berard hittast
svo aftur á fimtudag.
United Press.
Oslo 20. febr.
ENSKUR TOGARI STRAND-
AR VIÐ NOREG.
Enskur togari, Loyal, strand-
aði í gær á Ramnesi. Skipið hef-
ir mikla slagsíðu og óvíst um
hjörgun. Skipverjar eru enn í
skipinu. NRP—FB.
NÆSTU KRÖFUR HITLERS.
Fyrir allmörgum vikum var því spáð, að Hitler mundi setja
fram næstu kröfur sinar í yfirslandandi mánuði. Var talið, að
herstjórnin þýska liefði þá fengið skipun um, að vera viðbúin
að framfylgja nýjum kröfum. (Sbr. og það sem segir i aðal-
skeyti Vísis i dag). — Myndin hér að ofan sýnir Iivernig Ber-
línarbúar hylla ríkisleiðtogann. Var myndin tekin við komu
Hitlers til Berlínar úr Rómaborgarförinni s. 1. ár. .
Rádherrafundur í
London úm Palestinu.
EINKASKEYTI TIL VlSIS.
London, í morgun.
Samkomulagsumleitanir á ráðstefnunni um Pale-
stinudeiluna fóru í algert strand í gærkveldi, er full-
trúar Gyðinga að afstöðnum þríggja klukkustunda
samkomulagsumleitunum neituðu algerlega að falla
frá kröfum sínum um, að leyfður yrði áfram innflutn-
ingur Gyðinga til Palestinu i hlutfalli við það, sem land-
ið gæti tekið við af innflyt.jendum, og ennfremur að
engar hömlur yrðu lagðar á sölu jarðeigna.
Vegna þessarar afstöðu fulltrúa Gvðinga tekur
breska stjórnin málið til meðferðar á næsta fundi sín-
um, sem haldinn verður i dag eða á morgun.
United Press.
lapanir oera loitarás á
breskar heHrí
Homkono nýleidu.
London í morgun.
Einkaskeyti til Vísis.
Frá Hongkong er símað, að
níu japanskar flugvélar hafi
varpað sprengikúlum á Schum-
shun, skamt frá landamærum
Hongkong-nýlendunnar. Flugu
tvær af hinum japönsku flugvél-
um yfir breskt landsvæði og
vörpuðu niður sprengikúlum í
nánd við Lowu-herbúðirnar, en
þar eru nú hersveitir frá Middle-
sex í Englandi. Ennfremur var
varpað sprengikúlum á farþega-
lest skamt frá landamærunum.
Þá varð gerð loftárás á eina
varðstöð breska hersins í nánd
við járnbrautina. Einn af lög-
reglumönnum Breta, indversk-
ur maður, beið bana, og nokk-
urir járnbrautarvagnar voru
eyðilagðir. Um tuttugu manns
úr alþýðustétt biðu bana.
Árásir þessar hafa vakiði
mikla gremju og mun þeim
verða mótmælt strengilega og
skaðabóta krafist.
United Press.
NORÐAR EN, NANSEN
KOMST Á FRAM.
Oslo 20. febr.
Rússneski ísbrjóturinn Se-
dov II., sem verið hefir inni-
frosinn norður í íshafi í tvo
vetur er nú kominn norðar
en Nansen komst á Fram í
hinum fræga leiðangri sínum
eða á 85 gráðu 59.1 mín.
norðlægrar breiddar, og rek:
ur ísbrjótinn áfram með ísn-
um norðvestur á bóginn í átt-
ina til norðurheimskautsins.
NRP—FB.