Vísir - 03.04.1939, Qupperneq 2
V ISIR
VÍSIR
DAGBLAÐ
Útgefandi:
BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H/F.
Ritstjóri: Kristján Guðlaugsson.
Skrifstofa: Hverfisgötu 12.
Afgreiðsla: Hverfisgötu 12.
(Gengið inn frá Ingólfsstræti).
Bimr:
Afgreiðsla 3400
Ritstjórn 4578
Auglýsingastjóri 2834
VerS 2 krónur á mánuði.
Lansasala 10 aurar.
Félagsprentsmiðjan h/f.
Sérréttindi
samvinnu-
félaga.
I hinni löngu fæðingarhríö
* þjóðstjórnarinnar, sem er
ekki enn lokið, hefir komið
glöggar fram en nokkru sinni
áður, að það sem mest skilur
stærstu flokkana, Sjálfstæðis-
flokkinn og Framsóknarflokk-
inn, er viðhorfið til verslunar-
málanna.
Framsóknarflokkurinn, sem
gerir að' skilyrði að viðskifta-
málin séu í hans höndum, hef-
ir látið í veðri vaka, að þvi er
virðist, að hann trúi ekki Sjálf-
stæðismönnum til að fara með
þessi mál. Kf flokkurinn vill
láta lita svo út, að' þetta sé gert
af umhyggju fyrir þjóðinni en
ekki af sérdrægum hvötum, þá
verður kaidhæðni staðreynd-
anna æði nöpur-
Undir sljórn Eysteins Jóns-
sonar hafa viðskiftamálin liall-
ast meira og meira á ógæfuhlið-
ina. Hann hefir skort viðsýni til
að' sjá nokkra lækningu aðra en
höft og ófrelsi til þess að ná
heilbrigðu gjaldeyrisástandi. —
Hann hefir gert alla verslunar-
stéttina fjandsamlega hinum
opinberu ráðstöfunum með þvi
að beita hana margskonar mis-
rétti við framkvæmd haftanna
og láta ótvírætt í Ijós persónu-
lega óvild í garð liennar. Gjald-
eyrisástandið hefir farið versn-
andi með hverju ári og nú er
svo komið, að viðskifti lands-
ins út á við eru að sigla í strand.
Yfirfærslur í bönkunum eru
stöðvaðar svo að segja alveg.
Geta nú ekki aðrir greitt vörur
en þeir, sem mega ráðstafa eig-
in gjaldeyri eins og til dæmis
Samhandið.
Það er nærri broslegt, að þeir
menn, sem þannig hafa stýrt
viðskiftamálunum undanfarið
og skapað núverandi öngþveiti,
skuli krefjast jjess að fá að fara
með þau framvegis vegna þess
að þeir trúi ekki öðrum fyrir
þeim!
En þetta er aðeins yfirskin.
Fastlieldni þeirra á þessum mál-
um stafar af öðrurn ástæðum.
Það veit öll þjóðin. Núverandi
f jármálaráðherra og væntan-
legur viðskiftamálaráðherra
Framsóknar, hefir með valdsað-
stöðu sinni látið framkvæma
liöftin kaupfélögunum í vil og
skapað þeim stórkostlega sér-
réttinda aðstöðu með hinni svo-
kölluðu höfðatölureglu. Slík
framkvæmd á verslunarhöftiun
þekkist í engu landi í lieimin-
um enda hefir sú lilutdrægni,
sem hér kemur fram, vakið
talsverða eftirtekt erlendis- Auk
þessa hefir Sambandið sérstöðu
með gjaldeyrinn, sem tvö und-
anfarin ár hefir talsvert verið
rætt um á Alþingi. Hefir þess
verið óskað að útgerðarmenn og
aðrir fengi hin sömu réttindi en
ekki her á því enn að slíkt hafi
fengist.
Allri þjóðinni er kunnugt um
þau sérréttindi sem samvinnu-
félögin liafa i sambandi við
verslunarhöftin. Það eru þessi
fríðindi, sem Framsóknarflokk-
urinn vill nú ekki sleppa. Hann
vill fá að fara áfram með þessi
mál og hann vill lialda þeim í
sama liorfi og þau hafa verið'-
Og þó er verslunarástandið
þjóðinni lil svívirðingar. Hann
vill halda öllu í hinum sömu
höftum af ástæðum, sem þjóð-
in er nú farin að skilja. Þó er
nú orðið öllum ljóst, að upp-
lausn liaftanna er lykillinn að
afnámi dýrtíðarinnar í landinu
að miklu leyti.
Ef Framsóknarflokkurinn
heldur, að hann geti framvegis
eftir eigin geðþótta haldið við
ranglæti og hlutdrægni haft-
anna, þá gengur hann drjúgt
fram í dul. Ef liér eftir verður
ekki sýnd sanngirni og fullkom-
ið jafnrétti í þessum málum,
liver sem í hlut á, þá þarf ekki
Framsóknarflokkurinn að bú-
ast við að hljótt verði um þessi
mál. Það stoðar engum flokki
að halda í sérréttindi sér og sín-
um til handa sem öll þjóðin
fordæmir-
Það skal heldur aldrei verða
þolað.
Mfjrarasveinor krefjast
irnaiBi
bóta inusiii.
Meðan vinnustöðvunin stóð
yfir í byggingariðnaðinum þessa
dagana, samþyktu múrarasvein-
ar að vinna að eins að bygging-
um, sem teknar voru í ákvæðis-
vinnu af múrarameisturum,
þannig að tímavinna kæmi ekki
til greina. Mun hafa vakað fyrir
sveinunum að styðja málstað
múraranna í deilu þeirra við
trésiftiðina, en nú þegar deilan
er leyst virðist þessi afstaða
sveinanna geta leitt til nýrrar
vinnustöðvunar ef þeir halda
fast við þessa samþykt sína.
Hefir Vísir sannfrétt að
sveinarnir neiti að vinna, þann-
ig að ekki verður tekið til starfa
við byggingar i dag, eins og bú-
ist var við.
Þá hefir Vísir heyrt, að múr-
arasveinar muni halda fund í
dag, til þess að ræða vinnu-
stöðvun þá, sem ger var, og
krefjast bóta fyrir virtnutjón,
sem þeir hafa heðið vegna
stöðvunarinnar- Hyggjast þeir
að krefjast fulls kaups fyrir þá
daga, sem ekki var unnið, en
ekki er blaðinu kunnugt um
hvort slíkar kaupkröfur eiga að
ná til allra bygginga eða nokk-
urra, sem vinna var stöðvuð
við.
Á fundi, sem haldinn var i
fyrrakvöld, munu hafa komið
fram raddir um það, að vinna
skyldi stöðvuð við ýmsar bygg-
ingar, nema því aðeins að greitt
yrði fult kaup fyrir þá daga,
sem ekki var unnið, og hafði
einhver múrarasveinninn . við
orð að mætt skyldi með hundr-
að manna lið og þrjá hnefa-
LýOræðisflokkarnir sigruðu í Belgíu.
Fylgi Rexista stóplipakaðl*
Samsteypustjópn verdur
mynduð.
EINKASKEYTI TIL VlSIS.
London, í morgun.
Þingkosningar í Belgíu, sem fram fóru í gær,
vöktu mikla athygli, einkanlega vegna þess,
að kosningabaráttan var afar hörð milli Rex-
ista (fascista) og andstæðinga þeirra. Hafði og vitnast,
að Rexistar höfðu fengið fé til kosriingabaráttunnar
frá ítalíu og Þýskalandi, og vakti það hina mestu
gremju í Belgíu, og mun hafa spilt mjög fyrir Rexistum
Samkvæmt símfregnum frá Briissel eru kosningaúrslitin
kunn að mestu, og hefir verið gefin út hálf-opinber tilkynning
um þau. Þótt einhver brejding verði frá því, sem nú er kunn-
ugt, raskast heildarniðurstaðan ekkert. Samkvæmt fyrrnefndri
tilkynningu hafa kosningaúrslitin orðið þau, að kaþólski flokk-
urinn (íhaldsfl.) hefir fengið 73 þingsæti, bætt við sig 10;
jafnaðarmenn hafa fengið 64, tapað sex; frjálslyndir /liberalir)
fengið 33, unnið 10, flæmskir þjóðernissinnar 17, unnið 1,
kommúnistar 9, óbreytt; Rexistar 4, tapað 17; félag uppgjafa-
hermanna 1 og technokratar 1.
I öldungadeildinni hafa jafnaðarmenn fengið 62, tapað 4; ka.
þólski flokkurinn 61, unnið 4; liberalir 24, unnið 5; flæmskir
þjóðernissinnar 12, unnið 3; Rexistar 5, tapað 7; kommúnistar
3, tapað 1.
Það, sem langsamlega mesta
athygli vekur hvarvetna er það,
hversu gífurlegan ósigur Rex-
istar hafa beð,ið. Sumpart stafar
það af ágreiningi milli Rexista
sjálfra en eitt af blöðum Rexista
sakaði Degrelle, leiðtoga þeirra,
um að hafa þegið fé frá Ítalíu
og Þýskalandi til kosningabar-
áttunnar og notað í eigin þágu.
Þetta vakti feikna gremju í garð
Rexista. Ennfremur framkoma
þeirra út af Maertensmálinu,
sem varð orsök þess, að gengið
var til kosninga. Loks er talið,
að atburðirnir í Mið-Evrópu hafi
haft þau áhrif, að margir þeir,
sem áður höfðu stutt Rexista,
ánerust nú gegn þeim.
Er nú búist við, að mynduð
verði samsteypustjórn í Belgíu,
og taki þessir flokkar þátt í
henni: íhaldsflokkurinn, Frjáls-
lyndi flokkurinn og Jafnaðar-
menn.
VIÐSKIFTASAMNINGAR
FRAKKA OG RÚMENA.
Um leið og samningurinn
mill Frakka og Rúmena um
menningarleg kynni og samhúð
var undirskrifaður í Bukarest,
undirskrifuðu þeir Bonnet og
Tatarescu sendiherra Rúmena í
Frakklandi nýjan viðskifta-
samning. Samkvæmt þessum
samningi levfa Rúmenar út-
flutning miljóna cwt. (1
cwt = 50.8 kg.) af olíuafurðum
til Frakklands. Tatarescu hef-
ir lýst yfir þvi, að ekkert erlent
veldi fái leyfi til einkasölu-við-
skiftareksturs í Rúmeníu.
Lebrun aftur ríkisfor-
seti Frakklands?
London í morgun.
EINKASKEYTI TIL VÍSIS.
Havas-fréttastofan tilkynnir,
að allmiklar líkur sé til þess, að
Lebrun ríkisforseti láti til leið-
ast að gefa kost á því, að hann
gegni ríkisforsetaembættinu á-
frairi*
BANDARÍKIN
VIÐURKENNA FRANCO.
Bandaríkin hafa viðui'kent
4
Franco og vopna- og skotfæra-
útflutningsbanninu til Spánar,
sem sett var samkvæmt hlut-
leysislögunum, hefir verið af-
létt-
MIKILVÆG YFIRLÝSING
VÆNTANLEG I BRESKA
ÞINGINU í DAG.
Chamberlain mun gefa mikil-
væga yfirlýsingu í neðri mál-
stofunn í dag — að líkindum
varðandi Rúmeníu.
leikamenn við ákveðnar bygg-
ingar til þess að knýja fram
kröfur þessar. Þetta mun þó
hafa verið maður, sem lítið á
undir sér og ekki er mark á
takandi, en hefir aðallega liaft í
frammi kommúnistiskan þvætt-
ing á mannfundum, sem enginn
tekur alvarlega, og svo mun
einnig liafa verið hér. Annars
mun það koma í Ijós á fundi
múrarasveina i dag hve mikið
fylgi rödd þessi á að baki sér.
lamUmðt skíðamanna.
Siglflrðingar áttn 8 af
fyrstu 10 mfinnnm
í gfingnnni.
Átján km. skíðagangan á
ísafirði fór fram í gær í besta
veðri, sólskini og logni, en full-
heitt var að ganga. Þátttakendur
í göngunni voru 31, en á Lands-
mótinu öllu eru 58 þátttakendur
frá 10 félögum.
Fara hér á eftir nöfn og tim-
ar fyrstu 10 manna í göngunni:
1. Magnús Kristjánsson
(Einh.) 1:04.57.
2. Jónas Ásgeirsson (Skíða.)
1:08.37.
3. Guðm. Guðmundss. (Sk.
Siglufj.) 1.09.01.
4. Jóhs. Jónsson (Skíðab.)
1 -.09.50.
5. Jóh. Sölvason (Skíðab.)
1:10.03.
6. KetiII Ólafsson (Skiðab.)
1:11.47.
7. Sig. Jónss. (Einh.) 1:12.02.
8. Alfr. Jónsson (Skíðab.)
1:12.46.
9. Ásgr. Kristj. (Skíðab.)
1:13.21.
10. Sveinn Sveinsson (Sk.
Siglufj.) 1:13.21.
Svigkepnin fer fram á
fimtudag.
Ferð Reykvíkinga
á Skíðavikuna.
Rúmlega 100 fai'þegar hafa
pantað far með Eddu til þátt-
töku í skíðavikunni á ísafirði,
sem verður haldin þar dagana
6.—10 þ. m.
Skipið fer héðan kl. 7 síð-
degis á miðvikudag og kemur
Franska eftirlitsskipið Ailette
kom hingað í gær.
Ailette við bryggju á Austfjörðum. — Skipslæknirinn fer
í heimsókn í togara. — Nýtísku franskur togari.
Franska eftirlitsskipið Aiel-
ette, sem komið hefir hingað í
eftirlitsferð á ári hverju, kom
hingað í gær.
Tíðindamaður blaðsins heils-
aði i morgun upp á yfirmenn
skipsins, en Jieir eru margir
hinir sömu og i fyrra.
Skipherra er M. Barbier og
var liann einnig með skipið í
fyrra. Yfirforingjar á skipinu
eru 6, að skipherra meðtöldum,
og eru fjórir þeirra hinir sömu
og í fyrra, en tveir nýir. Annar
þeirra er aðstoðar skiplierra.
Aielette er forystuskip eftir-
litsskipa franska flotans með
fiskiskipum í Ermarsundi,
Norðursjó og við ísland.
Kemur Ailetle hingáð til
mánaðardvalar liér við land og
eru þá, að venju, lieimsótt öll
frönsk fiskiskip liér við land.
hingað aftur snemma morguns
þriðja í páskum.
Farið í lest kostar kr. 25_báð-
ar leiðir, en þegaí' vestur er
komið mun skíðafélagið þar
hlutast til um að gestir geti
fengið ódýra næturgistingu
(dýnur 50 aura pr. nótt).
Vísir átti tal við Isafjörð í
morgun og er þar snjór mikill
og góður og skíðaland hið hesta
eins og' kunnugt er.
Þeir, sem ætla að fara vestur,
ætti að snúa sér til skrifstofu
Gunnars Guðjónssonar, skipa-
miðlara, sem fyrst.
Bæjar
fr&iíír
Veðrið í morgun.
1 Reykjavík 6 st., heitast í gær
io, kaldast í nótt 5 st. Sólskin í
gær 8.3 st. Heitast á landinu í morg-
un 6 st., hér; kaldast 1 st., Blöndu-
ósi, Dalatanga, Grímsey, Papey og
víÖar. —- Yfirlit: Djúp, en nærri
kyrrstæð lægð um 1000 km. suður
af Reykjanesi. —.Horfur: Suðvest-
urland: Austanátt, hvast undan
Eyjafjöllum. Víðast úrkomulaust.
Faxaflói: Austan kaldi. Úrkomu-
laust.
63 ára
er í dag Axel Martin Ström,
prentari í Félagsprentsmiðjunni.
Af veiðum
komu í morgun Belgaum með 140
smál. af ufsa og Bragi með 130
smál.
Skipafrejrnir.
Gullfoss er í Leith. Goðafoss
kom til Isafjarðar kl. 8 í morgun.
Væntanlegur hingað fyrri hluta
dags á morgun. Brúarfoss kom til
Leith í gær, fer þaðan í dag. Detti-
foss fer frá Hamborg í dag. Edda
ko mí nótt með sementsfarm.
Frú Rigmor Hanson
og Sigurjón Jónsson sýna nýj-
asta dansinn, Park Parade, í kvöld
kl. 11 að Hótel Borg. Dansinn
var fyrst sýndur í London í s.l.
mánuði.
Kristján Daníelsson,
búandi á Kirkjuvöllum á Akra-
nesi, er 80 ára á morgun. Er hann
Snæfellingur að ætt og uppruna, en
hefir búið á Akranesi í 50 ár sam-
fleitt og jafnan verið þar vel met-
inn borgari, enda er hann rnaður
traustur og áreiðanlegur, og reglu-
samur með afbrigðum. Hann er ern
eftir aldri og hress og glaður í anda,
þrátt fyrir miklar raunir og margs-
konar erfiðleika á langri lífsleið.
Vinir hans og samborgarar á Akra-
nesi færa honum alúðarkveðjur og
heillaóskir á afmælisdaginn.
Nágranni.
Næturlæknir.
Ólafur Þ. Þorsteinsson, Mánag.
4, sími 2255. Næturvörður í
Reykjavíkur apóteki og Lyfjabúð-
inni Iðunni.
Víðavangshlaup K.R.
Innanfélagsmót K.R. 1939 hófst
í gær með víðavangshlaupum fyrir
fullorðna og drengi innan 19 ára
aldurs. I eldri flokknum sigraði
Sverrir Jóhannesson og hlaut verð-
launagripinn, forkunnarfagra stjdtu
af lilaupara, til Jullrar eignar. Tími
hans var 13 mín. 49.4 sek. og er
það besti tími, sem náðst hefir á
þessari vegalengd, síðan hlaupið
hófst 1932. — 1 yngri flokknum
sigraði Guðbjörn Árnason á 7 mín.
15.4 sek. og er það einnig besti
tími, sem náðst hefir í því hlaupi.
Veður var ágætt, en færi þó sums
staðar þungt fyrir þá eldri.
Ármenningar,
sem hafa hugsað sér að dvelja í
Jósepsdal um páskana, vitji rniða
á skrifstofu fél. í kvöld kl. 9—10.
Kvennadeild
Siysavarnafél.
heldur fund á morgun (þriðju-
dag) kl. 8Vz í Oddfellowhúsinu.
STJÓRNIN.
roir
og nýlagnir í hús
og skip.
Jónas Magnússon
íögg. rafvirkjam.
Sími 5184.
Vinnustofa á
Vesturgötu 39.
Sækjum. — Sendum.