Vísir - 04.04.1939, Blaðsíða 2
2
VÍSIR
VtSIR
DAGBLAÐ
Útgefandi:
BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H/F.
Ritstjóri: Kristján Guðlaugsson.
Skrifstofa: Hverfisgötu 12.
Afgreiðsla: Hverfisgöíu 12.
^Gengið inn frá Ingólfsstræti).
Bimr:
Afgreiðsla 3400
Ritstjórn 4578
Auglýsingastjóri 2834
VerS 2 krónur á mánuði.
Lausasala 10 aurar.
Félagsprentsmiðjan h/f.
Lækkað
gengi.
Pengi íslenskrar krónu hefir
” verið sett á nýjan grund-
völl, svo að 27 krónur jafngilda
nú einu sterlingspundi, í stað kr.
22.15, eins og verið hefir um
margra ára skeið.
ið aðaihlutverkin. Gengislækk-
unin er ekkert annað en
skuldaskil þeirrar fjármála-
stefnu, sem hér hefir verið
ríkjandi. Þjóðin verður nú öll
að taka á sig byrðarnar af því
að ráðsmenskan liefir verið í
lélegasta lagi. Stjórnarflokk-
arnir munu halda því fram, að
þessi ráðstöfun sé gerð til
styrktar útveginum, en það
væri sönnu nær að segja, að
hún sé gerð vegna þess, að
stjórnin sú sér ekki fært deg-
inum lengur, að forða spila-
borg sinnar misheppnuðu fjár-
mála- og haftastefnu frá hruni,
nema að grípa til gengislækk-
unar.
Sjálfstæðismenn hafa í ræðu
og riti haldið því fram, að
skynsamleg meðferð á opin-
beru fé, væri undirslaða þess
að gjaldeyrir þjóðarinnar
laéldi gildi sínu. Ef þessum að-
vörunum laefði verið sint og
vandræði útvegsins hefði ver-
ið leyst þegar sýnt var, að þess
var þörf, þá hefði .verið liægt
að komast lijá þeiri'i ráðstöf-
un, að fella nú gengið, og all-
ur fjárhagur þjóðarinnar væri
nú i betra horfi.
Þýsk blöd hafna pðksemd-
um Cliambeplains,
EINKASKEYTI TIL VlSIS
London, í morgun.
Viðræður Josephs Beck, utanríkismálaráðherra
Póllands, sem nú er kominn til London, við
Chamberlain og Halifax lávarð, byrja í dag.
Undirbúningsviðræður fóru fram í gær en opinberlega
hefjast samkomulagsumleitanirnar í dag, en það sem
um er samið er gagnkvæmur stuðningur Breta og Pól-
verja, ef til árásar kemur, og hefir af sumum verið tal-
ið, að ágreiningur kunni að verða um hversuvíðtæklof-
orð um stuðning skuli gefa. Þannig hefir verið dregið
í efa, að Chamberlain muni vilja fallast á, að Bretar
kæmi Pólverjum til aðstoðar, ef Þjóðverjar gerðu kröf-
ur til Danzig eða að f á að leggja bif reiðakbraut gegnum
pólska hliðið.
Daily Mail segir, að Pólverjar sé reiðubúnir til — vegna lof-
orða Breta um stuðning í árásarstyrjöld, að stofna til algers
bandalags með Bretum — og bætir því við, að algert samkomu-
lag með Bretum og Pólverjum gæti orðið grundvöllur víðtækr-
ar samvinnu gegn þeim ríkjum, sem fara fram með ofbeldi
og hótunum til þess, að koma fram kröfum sínum.
Frakknesku blöðin í morgun eru afar ánægð yfir um-
mælum Chamberlains og Halifax lávarðs á þingi í gær.
Eru blöðin á einu máli um það, að ummæli þeirra beggja
beri að skilja sem stranga aðvörun til Þjóðverja um það
að Bretar sé reiðubúnir til þess að verja þær þjóðir sem
verði fyrir því, að ofbeldi sé beitt við þær og á þær ráðist.
Það vekur nokkura athygli,
að þýsku blöðin lialda ekki
uppi neinum árásum á Cham-
berlain í tilefni af yfirlýsingum
hans, en hinsvegar lialda því
eindregið fram, að rökstuðn-
ingur hans sé á skökkum grund-
velli, því að fyrir Þjóðverjum
vaki ekki að ganga á rétt neinn-
ar þjóðar — þeir sé að vinna að‘
friðinum.
Til dæmis um ummæli blað-
anna má geta þess, að Völkisch-
er Beobacther segir, að leiðtog-
inn (þ. e. Hitler) starfi af ó-
þreytandi elju fyrir friðinn —
fyrir Þjóðverja, til þess að þeir
geti notið sín, starfað í friði
og náð þvi þjóðþroskamarki,
sem þeir hafi sett sér, og til þess
þurfi þeir frið og frið i Mið-Ev-
rópu fyrst og fremst, og sé það
því mjög fjarri, að Þjóðverjar
vilji ófrið.
Afskifti breskra stjórnmála-
manna og bresku blaðanna af
friðarstarfi þessu megi líkja við
stöðugar liermdarverkatilraun-
ir, með stöðugum dylgjum í
garð Þjóðverja, illkvitni og af-
skiftum.
United Press.
Áforma Þjdöverjar
jnnlimon Sviss?
London í morgun.
EINKASKEYTI.
Það hefir vakið mikla athygli,
að nokkurir nazistar í Bern í
Sviss hafa sagt í ræðum, sem
þeir hafa haldið þar, að tilgang-
ur nazista í SviSs væri að sam-
eina Svissland Þýsklandi.
Er búist við að þetta leiði til,
að frekari ráðstafanir verði
gerðar til þess að hindra undir-
róður nazista.
United Press.
lebrnn rikísforseti
áiram.
London í morgun.
EINKASKEYTI.
Daladier forsætisráðherra hef-
ir tillíynt, að Lebrun ríkisforseti
liafi fallist á að gefa kost á því,
að hann gegni ríkisforsetam-
bættinu áfram.
United Press.
Þessi breyting gengisins hlýt-
ur að leiða af sér mikla röskun
í þjóðfélaginu. Allir gjalda af-
hroð af þessum sökum í hækk-
uðu vöruverði á ýmsum svið-
um. Dýrtiðin hlýtur að aukast i
landinu meðan tekjur flestra
annara en joeirra lægst launuðu
standa í stað. Þó að liinir lægst
launuðu fái nokkura uppbót, þá
er augljóst að þeirra hlutskifti
verður erfiðara en annara með
vaxandi dýrtíð.
Öll þjóðin hefir verið sam-
mála um það, að útveginum
yrði að bjarga úr því öngþveiti
sem hann er nú í og hefir verið
um nokkurra ára skeið. En
þjóðin liefir verið skift um það,
livaða Ieið beri að fara í þessu
efni. Um tvær leiðir hefir aðal-
lega verið rætt, gengisbreytingu
og útflutningsstyrk. Nú hefir
fyrnefnda leiðin orðið þyngri á
metaskálunum. Er líklegt að
hún hafi ekki síst verið valin
vegna þess, að hún er hand-
hægari til framkvæmda í svip-
inn og vegna þess, að atvinnu-
og fjármál þjóðfélagsins voru
nú komin í slíkan eindaga, að
ekki varð beðið eftir að aðrar
leiðir væri rannsakaðar til
hlítar.
Gengislækkun á gjaldmiðli
landsins er mikið alvörumál.
Með slikri ráðstöfun, sem gerð
ei á einni nóttu, eru í raun og
veru lækkaðar lífskröfur þjóð-
arinnar um margra ára skeið.
Þetta er arfur frá stjórnar-
stefnu undanfarandi ára. Ár-
angurinn af sóunarstefnu
Framsóknarflokksins er nú að
koma í ljós. Gengislækkun
krónunnar mun verða upphaf
að lækkuðu gengi þess flokks,
sem hér hefir stjórnað undan-
farinn áratug.
Hverja leið sem inenn telja
farsælasta til viðreisnar útveg-
inum, eru flestir hugsandi
menn á einu máli um það, að
liið raúnverulega gildi kiróh-
unnar er fyrir löngu fallið i
verði. Fjármálastefna ríkis-
stjórnarinnar undanfarin ár,
margvísleg eyðsla, sívaxandi
skattar og tollar hafa grafið
svo undan verðmæti krónunn-
ar, að gengi hennar eða kaup-
máttur var ekki í samræmi við
skráningu hennar. Gengislækk-
unin má því raunverulega
kallast þáttaskifti á leiksviði
þjóðmálanna, þar sem núver-
andi stjórnarflokkar hafa leik-
Sjálfstæðisflokkurinn er ein-
huga um, að útveginn beri að
styrlcja, en hann skiftist um
það, hverja leið eigi að fara
í þessu efni. Þess vegna er
nokkur hluti hans andvígur
gengislækkun, og telur að liún
komi ekki að tilætluðum not-
um, en annar hluti flokksins
vill reyna þessa leið, i von um
að hún geti orðið útveginum
til lijálpar. Þjóðin tekur líka
á sig byrðarnar nú í þeirri von
að þetta rætist. Gengislækkun-
in er komin. Héðan af getur
ekkert breytt þeirri staðreynd.
Þjóðin getur aðeins vonað, að
sú fórn, sem hér er færð, verði
útveginum sú hjálp, sem hon-
um er nauðsynleg.
Nú mun margur spyrja, sem
af nokkurri alvöru liugsar um
afkomu landsmanna: Er þetta
gengisfall aðeins fyrsti áfang-
inn á krossgöngu þjóðarinnar
til fjárhagslegrar glötunar, eða
markar það timamót að vitur-
legí’i íjáymálastejnu og heil-
brigðari stjórnarháttum? Ef
hér á að verða framvegis ráð-
andi hin sama stefna í við-
skiftamálum og verið hefir, þá
er þessi gengisfórn þjóðarinn-
ar færð til lítils gagns. Þá mun
sama ráðleysið verða ríkjandi,
sama hlutdrægnin, sama óreið-
an og sami ofurmenskubragur-
inn, meðan dýrtíðin er að vaxa
þjóðinni yfir höfuð.
Ef gengisfallið hinsvegar
verður undahfari betri tíma og
umfram alt bétra og réttlátara
stjórnarfars, þá mun þjóðin
möglunarlaust taka á sig byrð-
arnar.
Oslo, 3. apríl. FB.
Verðmætt skjalasafn frá dög-
um Kristjáns II. er þessa dag-
ana afhent Danska ríkisskjala-
safninu af norska ríkisskjala-
safninu. Með afhendingu þess-
ari hafa Norðmenn orðið við
óskum, sem Danir hafa alið í
hundrað ár eða lengur, og er
með þessu látin í ljós stöðugt
aukinn skilningur og velvild
milli þessara tveggja norrænu
þjóða. NRP.
Hátlðahðld á
á Spáni.
Oslo, 3. apríl. FB.
S. I. laugardag var útvarpað
opinberri tilkynningu frá Bur-
gos þess efnis, að Franco hefði
náð þvi marki, sem hann hafði
sett sér — borgarstyrjöldin
væri nú til lykta leidd og við-
reisnarstarfið byrjað.
Mikil hátíðahöld eru um allan
Spán. NRP.
Næturlæknir.
Páll Sigurðsson, Hávallagötu 15,
sími 4959. Næturvörður i Reykja-
víkur apóteki og Lyfjabúðinni 18-
unni.
Köbepmálid
enn,
Oslo, 3. apríl. FB.
Norska stjórnin liefir komist
að þeirri niðurstöðu, að liún
gæti ekki mælt með því, að frú
Köber, sem var við riðin liið
rnikla Köber-mál fyrir tveimur
árum, fái nokkurar skaðabæt-
ur. NRP.
IÍ.R.-ingar,
sem lofað hefir veri8 dvöl i skála
félagsins um páskana, og enn liafa
ekki sótt miSa, gefi sig frarn á
skrifstofu félagsins í lrvöld kl. 8—9.
MiSarnir verSa annars seldir öSr-
um.
FRÁ HEIMSSÝNINGUNNI í NEW YORK.
Mynd þessi sýnir nokkur hluta af rafmagnsvélakerfi á heims-
sýningunni, ætlað til hljóðmögnunar í því skyni, að leiðbeina.
gestum um sýningarsvæðið.
Óspektir við
AlþfepsMsið
Tvelr menn handteknir.
Mannfjöldi safnaðist fyrir
framan þingliúsið í gærkveldi
og liófust jafnvel ræðuhöld. —
Tvær kommúnistasprautur,
Þorsteinn Pétursson og Vern-
liarður Eggertsson, létu Ijós sitt
skína. — Auk þess gaspraði
þarna mikið nasisti, að nafni
Sig. Sigurðsson.
Aðrir, sem létu ljós sitt skína
þarna, voru Héðinn, Einar Olg.
og Einar Jóhannsson.
Mannfjöldinn reyndi að hefta
bílaumferð um götuna og jafn-
vel að velta bílum, en tókst
ekki.
Tveir menn voru handteknir
í gær og var annar þeirra, Vern-
harður Eggertsson, liafður í
varðhaldi i nótt.
----- — 1 -----
Bifreiðasiys
i morgnn.
DpeRgui* stéF-
slasast.
Um kl. 10 1 morgun var lög-
reglunni tilkynt, að árekstur
liefði orðið á gatnamótum Berg-
staðastrætis og Bjargarstígs
milli vöruflutningabifreiðar
(útsendingarbifr.) og sendi-
sveins á reiðhjóli.
Áreksturinn varð milli bif-
reiðarinnar R 39, sem er útsend-
ingarbíll frá KRON og sendi-
sveins frá versluninni Freiju,
Laufásvegi 2. Var pilturinn,
Oddur Steinþórsson, Jónsliúsi,
| Grímsstaðaholti, á reiðhjóli. —-
Var liann fluttur á Landspítal-
ann. Laust fyrir liádegi var pilt-
urinn enn með vi tundarlaus.
Hann liafði meiðst mikið á
höfði, liöfuðkúpan brotnað og
blæddi úr eyrum og nefi.
Atliugunum lögreglunnar í
sambandi við slys þetta er ekki
lokið.
Þegar Vísir átti tal við Land-
spítalann ld. 2, var drengurinrt
mjög þungt haldinn.
Heildaraflicn á laodinn
er nn 14004 smáleslír.
Þann 31. mars að kveldi nam
heildarafli á öllu landinu 14.004
smál., miðað við þuran fisk. Á
sama tíma í fyrra var aflamagn.
ið 10.420 þurar smál.
Aflinn skiftist þannig á ver-
stöðvar: 1939 1938
Vestm. eyjar 2052 2013
Stokkseyri 64 77
Eyrarbakki 10 19
Þorl.höfn, Selvogur 94 90
Grindavík 315 448
Hafnir 206 200
Sandgerði 1347 1116
Garður, Leira 542 460
Keflav., Njarðvíkur 2546 1822
Vatnsleysustr., Vogar 100 98
Hafnarfj .-togarar 535 315
— önnur skip 253 452
Reykjavík, togarar 755 546
— önnur skip 707 344
Akranes 1942 1322
Sandur 184 163
Ólafsvik 175 98
Styklcishólmur 82 41
Vestfirðingafjórðungur
1925 7721/s
Aus 1 f irðingaf j órðungur
161 24
Sunnlendingafjórðungur
11918 9624
Dágóð veiði hefir verið i
Höfnum undanfarna daga á
loðnu, þangað til i dag. Veiði er
engin í net.