Vísir - 04.04.1939, Blaðsíða 3
Þriðjudaginn 4. apríl 1939.
VISIR
3
Gengislækkunarfrumvarpið var
knúð i gegnum báðar deiidir
Alþingis i nött.
Lögin gengu í gildi á liádegi í dag.
Eins og Vísir gat urn í fregnmiða í gær, báru nokkurir þing-
mennfram frumvarp til laga um gengisskráningu og breyting-
ar á henni, sem aðallega voru í því fólgnar að verð sterlings-
punds hækkar um ca. 22%, en gengi íslenskrar krónu lækkar
um 18%, og að sjálfsögðu breytist verðlag á öðrum erlendum
gjaideyri í sambandi við það. •
Þá voru ýms önnur ákvæði í fruttivarpinu, sem koma skyldu
. í veg fyrir truflanir, sem leitt geta af þessari stórfeldu breyt-
ingu, svo og ákvæði um launahækkanir og kjarabætur fyrir
hina lægst launuðu, eða þá menn, sem hafa lægra kaup en kr.
o 3.600.00 á ári og koma eiga til framkvæmda 1. júlí 1939. Skal
• ^efni frumvarpsins ekki rakið að öðru leyti, með því að það er
lesendum blaðsins þegar kunnugt.
Bruni í Höfnum:
Um kl. 10 í gærkveldi kviknaði í bænum Kotvogi í
Höfnum og brann hann til kaldra kola á skammri stundu.
Tveir karlmenn, Helgi Jónsson, sem kendur er við Tungu,
vinnumaður hans, Guðjón Guðmundsson og dóttir Helga
Þórdís, sjö ára gömul, fórust í eldium.
Vísir átti í morgun viðtal við Jón Jónsson, kennara í
Höfnum og spurði hann um brunann. Fer frásögn Jóns
hér á eftir:
Það kom nokkuð á óvart, að
frumvarp þetta var borið fram
á þingi i gær, með þvi að al-
ment gerðu menn ráð fyrir að
það myndi ekki koma til um-
ræðu fyr en í fyrsta lagi i dag
eða á morgun. Öllum almenn-
ingi hafði að visu verið það
kunnugt nú um 6 vikna skeið,
að ríkisstjórn og ýmsir þing-
menn úr öllum flokkum höfðu
fullan hug á að lækka gengið,
og hafði það að sjálfsögðu
skapað allmikinn óróa i fjár-
málum þjóðarinnar og valdið
ýmsum erfiðleikum á því sviði.
Forsætisráðherra, Hermann
Jónasson, kvaddi sér fyrstur
hljóðs og gerði nokkra grein
fyrir þeim samningaumleitun-
um, sem fram höfðu farið milli
þriggja flokka þingsins, og
taldi að nú væri svo komið
málum, að ekki væri unt að
draga gengisskerðingu frekar
á langinn, hvað sem yrði um
stjórnarsamvinnu síðar.
Því næst tóku ýmsir flutn-
ingsmenn frumvarpsins til
máls og gerðu grein fyrir
frumvarpinu og þeim rökum,
sem til þess lægju, að það væri
borið fram. Er óþarfi að rekja
ræður þessara manna að öðru
leyti en því, að þeir röktu hið
ömurlega ástand sjávarútvegs-
ins og horfur um afkomu og
afurðasölu á þessu ári, og virt-
ist svo, sem þessir menn teldu
að um algert hrun væri þegar
að ræða hjá útveginúm. Ef það
er rétt, að svo sé komið liag
útvegsins, vekur það undrun
manna, að hinir ráðandi flokk-
ar skulu ekki fyr hafa komið
auga á þessa ömurlegu stað-
reynd, og hvað er það, sem
réttlætt getur að ekki hefir fyr
verið í taumana tekið?
Sjálfstæðisflokkurinn innan
Alþingis var á einu máli um
það, að nauðsyn bæri til að
hagur útgerðarinnar yrði rétt-
ur, en hins vegar voru menn
mjög á öndverðum meið um
þær leiðir, sem fara skyldi. —
Meiri hluti flokksins hallaðist
að gengisskerðingu, en minni
hlutinn, sem i eru 8 þingmenn,
líta svo á, að eins og málið
liggi fyrir, geti aðrar leiðir
komið að sama gagni og lief-
ir þá helst verið rætt um nið-
urskurð á fjárlögum og alhliða
sparnað i rekstri þjóðarbúsins,
svo og uppbót á útflutning, eft-
ir því sem nauðsynlegt og eðli-
legt getur talist.
Gisli sýslumaður Sveinsson
hafði aðallega orð fyrir minni
liluta Sjálfstæðisflokksins og
gerði ítarlega gtrein fyrir af-
stöðu hans til frumvarps þessa.
Sýndi hann með fullum rökum
fram á, að mjög væri kastað
höndum til afgreiðslu þessa
máls og einkum ætti þar rik-
isstjórnin hlut að máli. Deildi
hann fast á fjármálaráðherra
og atvinnumálaráðherra fyrir
það, að gersamlega ófullnægj-
andi rannsókn á öllum mála-
vöxtum lægi fyrir, og engin
leið liefði verið tekin til athug-
unar önnur en gengisskerðing-
arleiðin, sem þó væri allsendis
óvíst um live laaldgóð reyndist.
Taldi hann ekki séð, að minni
erfiðleikar yrðu á framkvæmd
gengisskerðingar, en t. d. upp-
bótarleiðinni, sem að ýmsu
leyti virtist hagkvæmari en
hin. Sýndi hann einnig fram á,
að samkvæmt tillögum milli-
þinganefndar í skatta- og tolla-
málum ætti enn að hækka toll-
ana verulega frá því, sem ver-
ið hefði áður lögum sam-
kvæmt, og bæri það ekki vott
um að horfið myndi að því ráði
að draga út útgjöldum ríkisins,
sem þegar væru orðin gjald-
þegnunum óbærileg.
Af hálfu minni hluta Sjálf-
stæðisflokksins töluðu þeir
einnig, Sigurður Kristjánsson
og Garðar Þorsteinsson, og
rölctu tildrögin að hruni sjáv-
arútvegsins og sýndu með
skýrum rökum, að miklir erf-
iðleikar myndu verða á fram-
kvæmd gengislækkunar.
Frumv. var afgreitt með af-
brigðum í gegnum allar um-
ræður i neðri deild og var um-
ræðum og atkvæðagreiðslu lok-
ið þar undir miðnætti.
Settist Efri deild á rökstóla.
Talaði fjármálaráðherra fyrir
frumv. og kvað þar mjög
við annan tón, en þekst hefir
frá þeim manni til þessa. Skein
að vísu í liinar kommúnistisku
tilhneigingar í gegnum alla
ræðuna, en nú þóttist ráðherr-
ann hafa lætrt það mikið af
Dönum, að ekki yrði unt að
halda áfram sömu skattastefnu
og gilt hefði liér í landi til
þessa, enda myndi lítt kleift
að ná öllu frekara fjármagni
frá auðmönnunum, þótt sú
leið yrði farin, að þeir væru
pindir til þrautar. Mælti hann
þvi mjög með þeirri leið, sem
liér væri valin, og sá engin ráð
önnur lil bjargar.
Þeir Árni Jónsson frá Múla,
Magnús Gíslason sýslumaður
og Bjarni læknir Snæbjörns-
son báru fram breytingartil-
lögur við frumvarpið, og var
aðalbreytingin í því fólgin, að
gengið skyldi lækkað um 10%>
og að 2. gr. frumv. skyldi feld
niður.
Gerði Árni Jónsson grein
fyrir breytingartillögunum og
rakti afstöðu þeirra flutnings-
mannanna til málsins. Sýndi
hann fram á að þessi lækkun
á genginu myndi nægja til þess
að rétta við hag útvegsins, ef
niðurskurður á fjárlögum væri
einnig framkvæmdur, en slík
breyting, að lækka gengið um
10%, myndi ekki hafa veru-
lega þýðingu fyrir afkomu
manna, og myndi auðvelda
stórlega framkvæmd lækkun-
arinnar.
Engar af þessum breytingar-
tillögum náðu fram að ganga
Knattspyrnan á
Englandi.
Á laugardag fóru leikar svo:
Arsenal—Middlesbrough 1: 2,
Aston V.— Preston 3: 0, Black-
pool—Liverpool 1:1, Brent-
ford—Leicester 2:0, Derby—
Leeds 1: 0, Everton—Stoke 1:1,
Grimsby—Bolton 1:1, Hudd-
ersfield—Manchester U. 1:1,
Portsmouth—Birmingham 2: 0,
Sunderland—Charlton 1:1 og
W olverhamp íon-—Chelsea 2:0.
Röðin er þessi:
Leikir Mörk Stig
Everton 35 74—44 50
W’hampton 34 74—26 46
Derby C. 36 60-46 43
Middlesbrough 36 81—61 42
Bolton 35 60—49 38
Cliarlton 34 58—61 38
Aston Villa 34 62—44 37
Arsenal 35 45—35 37
Liverpool 36 54—56 36
Stoke C. 35 57—49 35
Grimsby 35 49—60 34
Preston 33 48—49 33
Leeds U. 34 51—58 33
Sunderland 35 47—55 33
Brentford 34 46—57 33
Manchester U. 35 44—59 31
Portsmouth 35 49—62 30
Blackpool 35 42—59 29
Huddersfield 35 47—43 28
Chelsea 34 48—67 28
Leicester 35 36—62 26
Birmingliam 35 53—76 24
og var frumvarpið afgreitt sem
lög frá Alþingi á þriðja tím-
anum í nótt.
Það skal að lokum tekið
fram, að þeir Sjálfstæðismenn,
sem greiddu atkvæði gegn frv.,
voru þessir. — í neðri deild:
Garðar Þorsteinsson, Gísli
Sveinsson, Jakob Möller, Sig-
urður Hlíðar og Sigurður Krist
jánsson. Greiddu þeir einnig
atkvæði með vantrauststillögu
á hendur ríkisstjórninni, sem
Héðinn Valdimarsson hafði
borið fram. I efri deild greiddu
atkv. gegn frumvarpinu þeir
Árni Jónsson, Bjarni Snæ-
björnsson og Magnús Gíslason.
I neðri deild var frv. samþykt
með 24: 8 atkv., en í efri deild
með 11:5 atkv.
Skemtiferðaskip
í sumar.
1 sumar koma hingað Í6
skemtiferðaskip, í stað 15 í
fyrra. —- Flest þeirra, eða 12,
koma hingað i júlí, þrjú í á-
gúst og eitt í júní.
Skipin eru þessi:
27/6: Strathenden frá London.
2/7: (Ónafngreint) f. N. York.
5/7: Rotterdam frá N. Y.
7/7: Columbus og Kungs-
holm frá N. Y.
9/7: Franconia f. N. Y.
12/7: Oslofjord frá N. Y. og
Arandora Star frá Lon-
don.
16/7: Gen. v. Steuben frá Bre-
men.
19/7: Atlantis frá London.
20/7: Milwaukee frá Hamborg.
30/7: De Grasse frá Le Havre.
31/7: St. Louis frá Hamborg.
4/8: Drottningliolm frá
Gautaborg.
13/8: Gen. v. Steuben frá Bre-
men.
16/8: Arandora Star frá Lon-
don.
Ferðskrifstofan Hekla fær 8
af skipunum, H. Zoéga & Sons
fær 5, en 3 eru á vegum K. K.
Thomsen.
Verið var að kveikja á ben-
sinlukt í eldhúsinu, en þar var
liiti mikill inni og orsakaðist
sprenging í eldliúsinu al ben-
singufunni. Skifti það engum
togum að liúsið varð alelda á
svipstundu.
Þannig hagar til að uppgang
ur á loftið er úr eldhúsinu en
þar niðri var ráðskona Ilelga og
vertiðarkona og tveir menn,
sem ætluðu að kveikja á bensin-
luktinni. Uppi á lofti voru þau
Helgi, Þórdis og Guðjón og auk
þess Ragnar sonur Helga, sem
var lasinn.
Var Ragnar sofnaður, en
Helgi mun eldci hafa verið bú-
inn að festa svefninn, því þegar
fólkið í eldhúsinu gerði aðvart
um að eldur væri kominn upp
vakti Helgi Ragnar. Fyrir fram-
an glugga þeirra var skúr, og
braut Ragnar gluggann, komst
hann út á skúrinn og vildi fá
föður sinn með sér, en hann
sneri aftur inn í húsið til að
bjarga dóttur sinni. Komst
hann að rúmi hennar en hné
þar niður og mmi þegar hafa
mist meðvitund vegna reyks.
Fórust þau þar bæði Helgi og
dóttir hans.
Guðjón Guðmundsson svaf
einn í hliðarherbergi og mun
Skíiavikan á Isaflrði.
Skíðavikan, sem Skíðafélag
ísafjarðar efnir til, hefst á skir-
dag og lýkur á annan dag páska.
E.s. Edda fer vestur með þátt-
takendur liéðan. Verður haldið
af stað héðan annað kvöld kl.
7 og komið aftur að morgni
þriðja í páskum. — 110—120
manns hafa þegar pantað far.
Verður búið um farþegana í
lestarrúmi skipsins, það klætt
innan og dýnur á gólfi. Fargjald
fram og aftur er kr. 25.00. —
Nokkrir farþegar fá rúm i borð-
sal skipsins á bekkjum og dýn-
um, kostar farið þar kr. 35.00.
Farþegar ættu að búa sig vel
og hlýlega og hafa með sér lök
og teppi, sæng eða svefnpoka.
Á ísafirði mun Sldðafélag
ísafjarðar sjá um, að gestir
skiðavikunnar fái gistingu.
Nokkur rúm (o: 25—30) eru
enn fáanleg og kosta þau kr.
1.25—2,00 um nóttina.
Dýnum verður komið fyrir i
Gagnfræðaskólanum og viðar
og kostar næsturgisting þar að-
eins 50 aura. Þeir, sem panta
dýnupláss og ekki hafa svefn-
poka, eru beðnir að hafa með
sér lök og teppi eða sæng.
Farþegar geta pantað nætur-
gistingu i dag og á morgun á
afgx-eiðslu skipsins eða hjá far-
arstjóra, Lúðvíg Guðmundssyni
(sími 5307, kl. 5—7 e. li. í dag).
Fæði fæst i 3—4 stöðum í
bænum og kostar kr. 2,50—3,00
á dag. Ennfremur er liægt að fá
keyptar einstakar máltíðir eða
nestispakka, sem kosta 1 kr.
Skíðasnjór er nú mikill og
y góður á Isafirði og skíðaland er
hann aldrei hafa komist, úr
rúminu. Hann var maður á
sextugs aldri, hafði verið á
Kotvogi um nokkurt skeið, en
var ættaður af Eyrarbalcka.
Eldurmn gi-eip svo skjótt um
sig, að þegar fólkið úr eldliús-
inu var komið út stóðu logarn-
ir út um glugga á efri liæðinni
norðan megin. Var ekki nokk-
urt viðlit að bjarga innan-
stokksmununum eða klæðnaði
úr liúsinu, og allir íbúar þess,
en þeir voru 25 að tölu, standa
uppi slyppir og snauðir.
Á neðri hæðinni bjó Vil-
lijiálmur Þorsteinsson og var
hann á sjó þegar slysið varð.
Kona hans bjargaði 4 bömum
þeirra hjóna með þvi að kasta
þeim út um glugga og sluppu
þau öll ómeidd. Vertiðarstúlkan
skarst ofurhtið á hendi.
Til allra hamingju var logn
er þetta vildi til, en að öðrum
kosti má ætla, að slysið hefði
orðið enn ægilegra. Báru menn
sjó á útihús til þess að verja
þau, þvi hitinn var óskaplegur.
Kúm var hleypt út úr fjósi til
frekari öryggis, ineð því að svo
var eldhafið mikið, að algerlega
var óvist hvort unt yrð’i að verja
útihúsin.
þar frábærlega gott, eins og öll-
um þeim Reykvíkingum er
kunnugt, sem áður hafa sótt ís-
firsku skiðavikurnar.
WILLIAM C. BULLITT,
sem var fyrsti sendiherra U.S.A. í
Rússlandi eftir strið, hefir nú ver-
ið gerður sendiherra í Paris.
Kaupfélagið og einkasðlurnar
hækkuðu verðlagið á vörum
sínum i dag.
Fypstu afleíðingar geng-
islækkunarinnaF.
Vísir hefir sannfrétt það, að KRON hefir þegar
hækkað verð á sykri um fimm aura hvert kíló, en ekki
er blaðinu kunnugt um hvort sambærileg hækkun hefir
verið ger á öðrum lífsnauðsynjum, en þó er það senni-
legt. i m ,i
Þá hefir blaðið einnig frétt að ríkiseinkasölurnar
munu hækka um hádegið verð á öllum þeim vörum,
sem þær hafa fyrirliggjandi.
Kaupmenn hafa hinsvegar enn ekki hækkað verð á
lífsnauðsynjum en væntanlega dregur einnig fljótlega
að því.
Þá hafa kolaverslanir bæjarins hækkað verð á kol-
um um kr. 8.00 tonnið, að því er sagt er, og mun sú
hækkun þegar hafa verið gengin^í gildi í morgun.
Fjöldi fyrirtækja verða mjög hart uti vegna gengis-
lækkunarinnar, með því að erlendar skuldir þeirra eru
miklar, og lítið sem ekkert hefir fengist yfirfært um
langt skeið.
Þess ber og að gæta að vegna ófriðarhættunnar hafa
ýmsir innflytjendur verið hvattir til að birgja landið
upp með vörur, eftir því sem unt hefir verið, og hafa
menn þessir notað lánstraust sitt til hins ítrasta. Bitnar
því gengislækkunin mjög þunglega á þeim.