Vísir - 12.04.1939, Blaðsíða 2

Vísir - 12.04.1939, Blaðsíða 2
2 V I S I R Miðvikudaginn 12. apríl 1939. VÍSIR DAGBLAÐ Útgefandi: BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H/F. Ritstjóri: Kristján Guðlaugsson. Skrifstofa: Hverfisgötu 12. Afgreiðsla: Hverfisgötu 12. (GengiS inn frá Ingólfsstræti). S í m a r : Afgreiðsla 3400 Ritstjórn 4578 Auglýsingastjóri 2834 (kl. 9—12 5377) Verð kr. 2.50 á mánuði. Lausasala 10 aurar. Félagsprentsmiðjan li/f- Gengis- lækkunin. E'INS og kunnugt er, varð á- ^ greiningur innan Sjálf- stæðisflokksins á Alþingi um gengismálið. Greiddu 9 af þing- mönnum flokksins atkvæði með gengislækkunarfrumvarpinu, en 8 á móti. Á Alþingi hafði Gísli Sveinsson aðallega orð fyrir þeim hluta flokksins, er lagðist á móti málinu, og hefir ræða sú, er hann flutti um það þar, verið birt hér í blaðinu áður. Formaður flokksins, Ólafur Thors, hafði orð fyrir þeim lilutanum, sem málinu var fylgjandi, og birtist hér í blað- inu i dag ræða sú, sem hann flutti um málið í útvarpsum- ræðunum á dögunum. Hefir Vísir þannig gert háðum máls- pörtum jafnt undir höfði, og er því þó ekki að leyna, að hann er sjálfur þeim meginn, sem minni hlutinn var. Taprekstur útgerðarinnar á undanförnum árum stafar að- allega af tvennu. I fyrsta lagi af fjármálaóstjórninni í landinu, sem leitt hefir af sér síhækk- andi álögur á almenning, í sköttum og tollum, vaxandi dýrtið og auknar kaupkröfur. í öðru lagi af versnandi afla- brögðum og lækkandi verði á saltfiskinum á erlendum mark- aði. Til þess að bæta úr þessu var talið að aðallega gæti verið um tvær Ieiðir að velja: að Iækka gengi krónunnar, og hækka þannig verð útflutningsafurð- anna í innlendum gjaldeyri, eða að veita útflutningsverðlaun. Það var nú samhuga álit Sjálf- stæðisflokksins á Alþingi, að ef gengislækkunarleiðin yrði val- in, þá yrði að gera ráðstafanir til þess, að tryggja það að hið nýja gengi, sem ákveðið yrði, gæti lialdist, og girða fyrir þá liættu, að hver gengislækkunin ræki aðra. Til þess þurfti fyrst og fremst að dórni minni hluta flokksins, átt-menninganna, að minsta kosti, að koma viðskift- unum við útlönd á heilbrigðan grundvöll, og jafnframt að létta af innflutningshöftunum, til þess að lialda dýrtiðinni i land- inu í skefjum. Án slíkra ráð- stafana er þess engin von, að unt verði að festa hið nýja gengi krónunnar, heldur hlýtur þá gengislækkunin að halda áfram og dýrtíðin í landinu að vaxa, svo að ekki verður í veg fyrir það komið, að óðara sæki í sama horf og áður um afkomu útgerðarinnar. Nú er það að visu rétt, að ekki var unt að koma þeim ráðstðf- unum, sem hér um ræðir, í framkvæmd, i einni svipan. En til bráðabirgða, meðan verið var að koma þeim í fram- kvæmd, hefði þó að minsta kosti mátt grípa til hins úrræð- isins, að veita útflutningsverð- laun. Og þar sem það er nú vit- anlegt, að það er aðallega eða jafnvel eingöngu saltfiskfram- leiðslan, sem rekin er með tapi, þá hefði átt að nægja, að veita verðlaun fyrir útfluttan salt- fisk, eins og Norðmenn gera. Verðlaunin hefðu vafalaust orð- ið að vera allhá, en „útlilutun“ þeirra hefði hinsvegar orðið mjög auðveld í framkvæmd og engin hætta á hlutdrægni, fjár- drætti eða annari „spillingu“ í sambandi við þau. Til þess að standast straum af kostnaðinum, hefði fyrst og fremst átt að spara önnur út- gjöld ríldssjóðs, nota til þess útflutningsgjaldið af öðrum sjávarafurðum og að því leyti, sem það Iiefði ekki hrokkið til, að afla nýrra tekna. Reynslan hefði svo átt að skera úr því, hvort frekari aðgerða væri þörf, til þess að rétta við liag útvegs- ins, eins og hún verður nú að leiða það í Jjós, að liverju gagni það kemur til frambúðar að lækka gengi krónunnar, með þeim hætti sem það hefir verið gert. Maður druknari póstferd. Á páskadag' druknaði ungur maður, Bjarni M. Jónsson frá Flögu í Skaftártungu, í Kúða- fljóti. Bjarni var 21 árs að aldri og hafði verið í póstferðum eystra. Daginn sem slysið varð'fór Bjarni með póst austur í Álfta- ver og Meðalland. Fór hann fyrst í Álftaver og þaðan austur yfir Kúðafljót og gekk þá alt vel. Gert var ráð fyrir að Bjarni gisti á Meðallandi um nóttina, en þar eð hann var fljótari í ferðum, en ráðgert hafði verið, hélt hann áfram heimleiðis. Fór Bjarni frá efsta bæ á Meðal- landi, Leiðvelli kf. 6 á páskadag. Morguninn eftir fundust svo hestar lians skamt frá Hrifu- nesi í Skaftártungu og var þá farið að spvrjast fvrir um hann og loks leita hans. Fanst lík Bjarna í Kúðafljóti, vestur af Leiðvelli. Björn á foreldra hér í bænum og eru það þau Kristin Guð- mundsdóttir og Jón Norðmann Jónsson, Hverfisgötu 62. Er að þeim mikill harmur kveðinn, því að Bjarni var dugnaðarpilt- ur og hvers manns hugljúfi. Hestar verða hryssn að bana. Túnið í krikanum milli Skot- húsvegar og Fríkirkjuvegar hefir ofl verið notað sem beiti- hagi fyrir hesta og í gærmorg- un voru geymdir þar þrír hest- ar. Um ellefu í gærmorgun var 5 vetra hryssu lileypt á túnið og virtust hestamir, sem fyrir voru ekki taka henni illa. En rétt á eftir gerðu tveir þeirra aðsúg að hryssunni, bitu liana og slógu og léku hana illa, en hún fór undan og reyndi að forða sér. Fór s'vo að lokum að liún féll dauð niður. Mun annar hesturinn hafa slegið hana nærri hjartastað, því að þar fanst blóðhlaupinn blettur, og það valdið bana. Hannes Thorarensen var eig- andi hryssunnar. Chamierlalii mnn krefjast að ítalskar hersveltlr á Spánl verðí tafarlanst kaliaðar keim, og telnr þá að loforð Mnssoiinis megl taka alvarlega. Frakkar gera víðtækar varúð- arráðstafanir i Miðjarðarhafl. EINKASKEYTI TIL VlSIS. London í morgun. ussolini hefir sent Chamberlain boðskap þess efnis, að ítalir, áformi ekki neinar frekari hernaðarlegar aðgerðir við Miðjarðarhaf. Er það blaðið Chronicle, sem birtir þessa fregn og kveðst blaðið þeirrar skoðunar, að Chamberlain hallist að því, að taka orð Mussolini trúanleg. Blaðið segir, að hér sé um einkaboðskap að ræða frá Mussolini til Chamber- lain og taki Mussolini mjög djúpt í árinni og fullyrði með kröftugum yfirlýsingum, að ítalir vilji ekki verða Vaxandi gremja í Frakklandi vegna seinlætis Breta. EINKASKEYTI TIL VÍSIS. London, í morgun. Frakkar hafa gripið til hinna víðtækustu varúðanúð- stafana vegna þcss hversu horfurnar eru ískyggilegar við Miðjarðarhaf. Hefir ríkisstjórnin tekið ákvarðanir um fjöldamargar leynilegar varúðarráðstafanir síðan er Mussolini hertók Albaniu. þess valdandi, að friður spillist við Miðjarðarhaf — ítalir hafi ekki í huga að beita hervaldi framar til þess að koma fram málum sínum þar. Tilgátur hafa þegar komið fram um það hvað valda mundi, að Mussolini hefir sent Chamberlain boðskap þennan. Bretar og Frakkar hafa gripið til víðtækra ráðstafana á Miðjarðarhafi, flotadeildir þeirra þar fengið leynilegar fyrirskipnir o. s. frv., og ætla menn, að Mussolini hafi ekki búist við, að hertaka Al- baniu myndi hafa þau áhrif, að Bretar og Frakkar gripi til slíkra ráðstafana. Þá telja aðrir, að mestu valdi, að heima fyrir á Ítalíu óttast menn mjög styrjöld og afleiðingar hennar. AFSTAÐA CHAMBERLAIN. í Bretlandi ríkir mikil grernja yfir hertöku Albaníu, sem er talin brot á bresk-ítalska sáttmálanum. Yfirleitt hallast menn að þeirri skoðun, að ein- ræðisherrarnir, Mussolini og Hitler, haldi uppteknum hætti, og haldi áfram útþenslubaráttu sinni stig af stigi, þrátt fyrir öll Joforð. Fregnirnar um liðsafnað Þjóðverja við landamæri Sviss- lands, Hollands og Danmerkur, sem að vísu er opinberlega neit. að í Berlín, hafa vakið nýjan ugg í Bretlandi og Frakklandi. í báðum löndunum er almenn- ingsálitið stöðugt að hallast meira á þá sveif, að samningum og loforðum Þjóðverja og ítala sé ekki að, treysta, og benda menn á hversu Hitler hafi kom- ið fram gagnvart Tékkum, þrátt fyrir fyrri loforð, og nú fari Mussolini eins að gagnvart Al- baníu, þrátt fyrir þau ákvæði bresk-ítalska sáttmálans, að ó- breytt ástand skyldi haldast við Miðjarðarhaf. Þrátt fyrir þær skoðanir, sem uppi eru í Bret- landi og Frakklandi um þessi mál og vaxandi óþolinmæði eft- ir athöfnum af hálfu Breta og Frakka, virðist Chamberlain hallast að því, að taka beri full- yrðingar Mussolini trúanlegar vegna ástandsins á Spáni aðal- lega. Mun hann, að því er Chro- nicle telur gera sér vonir um, að nú sé tækifæri til þess að taka málin öðrum tökum. FRANCISCO FRANCO, einræðisherra á Spáni, hefir gerst aðili að andkommúnist- iska sáttmálanum, ásamt Þjóð- verjum, Itölum og Japönum. — Mgndin hér að ofan er tekin af Franco, er hann var á her- skólanum í Tóledó, en þar hó/ hann nám, íb ára að aldri. Fregnir frá Marseille herma, að meginhluti Miðjarðar- hafsflota Frakklands sé lagður af stað frá Toulon, aðal- flotahöfn Frakka við Miðjarðarhaf, og vita menn ekki um hvert honum hefir verið skipað að halda. Bretar og Frakkar skifta með sér verkum. Tilgátur hafa komið fram um, að liann eigi að vera á varðhergi í vesturhluta Mið- jarðarhafs, en Bretar liafa auk- inn viðbúnað um miðhluta Miðjarðarliafs, við Malta og víðar, og eins austast í Miðjarð- arhafi, við strendur Grikklands, Korfu og víðar. Frönsku blöðin gröm yfir seinlæti Breta. í frönsku blöðunum er vax- andi óþolinmæði og gremja yfir seinlæti Breta. Telja þau með öllu óforsvaranlegt að draga á langinn, að talca fullnaðar- ákvarðanir um öryggisráðstaf- anir til þess að vernda sjálf- stæði smáríkjanna í álfunni, sem þau telja að öll óttist um framtíð sína vegna þess sem gerst hefir í Tékkóslóvakíu, ! Memel og Alhaniu. Telja ! frönsku hlöðin mikla nauðsyn knýja til, að undinn verði bráð- ur bugur að því, að ná sarti- komulagi um gagnráðstafanir gegn hverskonar ágangi ítala og Þjóðverja í garð annara þjóða. Frakkar gramir yfir hversu Chamberlain er i auðtrúa. Frönsku blöðin birta emnig í morgun fregnir um skeyti þau og orðsendingar, sem sagt er að nú fari fram milli Chamberlain og Mussolini. Láta blöðin í ljós gremju yfir því, að Chamber- lairi skuli enn af nýju ætla að trúa Mussolini, þrátt fyrir það að hann hafi sannað svo áþreif- anlega sem raun ber vitni, að hann virði ekki geröa samninga. United Press. Af veiðum komu í morgun Baldur og Haf- stein með góðan afla. Rafskinna er nú aftur komin á sinn gamla stað í sýningarskálanum við Aust- urstræti og eins og áður, dregur hún að sér fjölda manns. Auglýs- ingarnar eru með nokkuð öðrum blæ en áður, bjartara yfir þeim og fer betur á því. ALLSHERJAR MIÐ- JARÐARHAFSSÁTTMÁLI. Telur Chamberlain ekki ó- líklegt, að nú mætti takast að koma á laggirnar allsherjar- sáttmála um Miðjarðarhafsmál- in. Chamberlain og þeir, sem honum fylgja að málum, gera sér einnig vonir um, að Musso- lini verði fús til þess að sanna einlægni sína í þessum málum. Frh. erl. frétta á bls. 7. HERSVEITIR FRANCOS VIÐ LANDAMÆRI FRAKKLANDS. Frakkar eru mjög óróir yfir því að Franco hefir gerst aðili að andkommúnistiska sáttmálanum, og lialda því jafnvel fram að hann hafi gengið i hernaðarbandalag með Itölum og Þjóðverjum. Óttast þeir mjög að Italir fái aðstöðu til að brjótast inn í Frakkland yfir spönsku landamærin, enda er sagt að italskar hersveitir liafi verið fluttar unnvörpum lil Spánar síðustu dagana. Hér á myndinni sjást liersveitir Francos í landamærabænum Le Perthus, er þeir heilsa frönsku landa- mæravörðunum, eftir sigurgöngu sina um Kataloniu og fall Barcelona.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.