Vísir - 05.05.1939, Blaðsíða 4

Vísir - 05.05.1939, Blaðsíða 4
4 V I S I R Föstudaginn 5. maí. 1939.. ^ y ^ Vorklæðnaðir frá frægustu tískuhúsum meginlandsins. At- liugið að engir þeirra liafa „stoppaðar“ axlir. ^Jc/liújíaAeééi Hvenæp á aö vatna gluggablóm ? — Venjulega er nauðsynlegt að vatna gluggablómum, þegar maður sér að moldin er orðin þur, eða þegar maður heyrir klingjandi hljóð ef maður slær á pottinn með Imúunum. Er þá moldin þur og hefir dregið sig saman. Er það mjög mismunandi hve oft þarf að vökva gluggablóm- um, þvi tegundir eru mjög margar og mismunandi. Margar safamiklar plöntur, sem upp hafa alist á heitum, þurrum stöðum, þola ekki stöðugan raka um ræturnar. Burknar og líkar tegundir þola aftur á móti ekki þurk um of. — Til vökvunar skal helst nota vatn sem hefir staðið og orðið fyrir áhrifum loftsins. — Ef vatn rennur úr pottinum á undirskálina, ér nauðsynlegt að fleygja því strax. — Ef plantan verður lin og máttlaus, skulið þér setja hana í vatnsfötu og láta vatnið ná að efri brún pottsins. Eftir 1—2 tíma hefir blómið náð sér aftur. Drekkið pér te? f öllum bænum gleymið aldrei að hita tepottinn vendilega — þerra liann síðan og láta síðan te-blöðin í hann. Verið vissar um, að vatnið sjóði og hafið te- pottinn hjá katlinum, svo að ekki sé hætta á því, að suðan fari af því. — Notið ekki vatn, sem soðið liefir lengi, eða vatn, sem áður hefir soðið. — Ný- soðið vatn er nauðsynlegt, ef te- ið á að vera gott. — Sumir segja að gott sé að liafa þurkað- an appelsínubörk í te-púðanum, það bæti bragðið. Öðrum finst það aftur á móti ófært, því að teið er afar „áhrifagjarnt“ og sýgur appelsínubragðið og lykt- ina mjög vel í sig og 'þykir sumum það lakar. Ef þér hafið sjúkling á heim- ilinu, skuluð þér reyna að gefa honum te, búið til úr sjóðandi mjólk. Er það mjög hressandi og gott fyrir sjúka. Ef te-potturinn er með brún- um rákum, er ágætt að núa þær með salti. Hverfa rákirnar þá alveg. Ef þér notið silfur-tepott, skuluð þér ávalt hafa sykurmola í honum, þegar hann er ekki í Hrein húd er prýdi. Tökum burt öll óhreinindi í húðinni, fílapensa, húðorma, vörtur og svo frv. Hárgreiðslnst. Perla Bergstaðastræti 1. Sími 3895. notkun. Heldur það lionum þurrum og myglubragð kemur ekki í hann. Ef þér hafið höfuðverk skul- uð þér nota sítrónusneið í teið, í stað mjólkur. Er það ótrúlega hressandi. NA6LALAHH MINDAR FEGRANDI GLJÁA Á HVERRI NÖGL. VESTURGATA 2. SÍMI 4 78 7. Sparld peningal PIROLA-fegurðar og snyrtivörur fáið þið hjá okkur í tæmd- ar umbúðir verksmiðjunnar. — wm Creme og ltúdolía, tryggir lap oi liista i. MA TREIÐSLA. Tómatsúpa. 1 lítil dós Tomatpurée 1 laukur 1 matsk. smjör matsk. hveiti 7—8 dl. vatn Hrísgrjón eða macaroni. — Laukurinn er skorinn nið- ur og brúnaður í smjöri. Þegar liann er fallega brúnn, er hann tekinn upp úr. Tómatpurée og liveiti er látið saman við smjör- ið og það látið brúnast meðan hrært er í þvi. Vatni bætt í smátt og smátt. — Matskeið af hrísgrjónum eða dálítið af macaroni látið út í súpuna og hún soðin í 20 mínútur. Boston Beans. Réttur þessi er amerískur þjóðarréttur. Þeir, sem verið hafa í Bandaríkjunum eru mjög hrifnir af honum og hefir hús- móðir hér í bæ beðið Vísi að að flytja þessa uppskrift. — I réttinn eru notaðar hvít- ar baunir, tomatpurée, smjör- ögn og bacon. — % kg. hvítar baunir eru skolaðar og látnar liggja i bleyti í 2 sólarhringa.. Eru þær síðan látnar sjóða í rúma 3 klukkutíma í daufsölt- uðu vatni. Eldfast leirfat er smurt með srnjöri og baunir og tomatpurée lagt í það til skiftis. Látið vera í bakarofni í klukku- tíma og eiga þá baunirnar að hafa blandast tómötunum. — Ofan á réttinn eru settar ristað- ar baconsneiðar. Möndluhring-ur m. perum. 250 gr sætar möndlur 5 eggjahvítur 1 kg. perur. Sósa: 200 gr. sætt suðusúkkulaði 2 dl. vatn. — Möndlurnar eru hýddar, malaðar og blandaðar saman við stífþeyttar eggjalivíturnar. Bakað í vel smurðu hringformi í 40 mínútur við liægan eld. — Látið kólna. — Þegar ábætirinn er borinn fram, eru perurnar settar í miðjuna og safanum af þeim helt yfir röndina. — Heit súkkulaðisósa horðuð með. HÚSRÁÐ OG HEILLARÁÐ Raka í skápum er hægt að ráða bót á með því að setja kamfórupoka í þá og skifta við og við. • Kartöfluskræling er ágætt að brenna í eldavélinni eða ofnin- um, þvi að þá sest ekki sót að í þeim. Glertappar eru oft mjög fast- ir í flöskunum, en ef þér takið um þá með sandpappír, nást þeir fljótlega. Það er ekki eins erfitt að fægja gólfin, ef gljávaxið er borið á 20 mínútum áður en farið er að fægja gólfið. • Það koma fljótlega göt á vas- ana í drengjabrókunum, þvi þeir fylla þá með allskonar rusli, nöglum, skrúfum o. s. frv. — Þessu má ráða bót á með því að fóðra vasana með skinni og er þá ágætt að nota gamla skinn- hanska. Best er að gera þetta meðan fötin eru ný. er nauðsynlegt þeim, sem hafa viðkvæma húð. Það lieldur henni mjúkri og er vörn gegn sólbruna og óþægindum af kulda og stormi. Hið nýja mýkjandi ROSOL- CREAM er í bláum dósum, sem hta þannig út RÓSOL CREAM Ef Jiér Tiljlð Ifta vel út, M farið eftir Jessnm reglnm: m Gangið yður til hressingar ekki skemur en klukku* stund á dag. Sofið 8 klukkustundir af hverjum 24. JJ# Drekkið aldrei minna en líter af vatni á dag — soðnu eða ósoðnu. Reynið að hafa grænmeti eða ávexti á borðum yðar daglega. Hreinsið andlit yðar vel á kvöldin. Farið aldrei að sofa með duft og ryk á andlitinu. Munið að hör- undið þarf að anda um nætur. Gætið þess að meltingar- starfsemin truflist ekki. Slæm melting eyðileggur hörundið og sumir verða „rauðnefjaðir“ af því. Keep smiling! — Glöð og broshýr kona fær sjaldan hrukkur frá munnvikjum að nefi. 3, Berið höfuðið hátt og fall- ega! Ef þér eigið bágt með að standa bein, skulið þér ganga um með þunga bók á höfðinu nokkurar mín- útur daglega. 0§ Gleymið aldrei að hirða neglurnar. Snyrtileg kona leyfir sér aldrei að van- rækja neglur sínar. iOBaöið augun daglega. Það "egrar þau og styrkir sjón- ina. lömuhattar--------- í SUMARTÍSKU. Hvergi betri kaup. HATTASTOFA STðnu & Lárettu Hagan Austurstræti 3.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.