Vísir - 20.06.1939, Blaðsíða 2

Vísir - 20.06.1939, Blaðsíða 2
y isir VISIR DAGBLAÐ Útgefandi: BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H/F. Ritstjóri: Kristján Guðlaugsson Skrifstofa: Hverfisgötu 12 AfgreiðsIa:.Hverfisgötu 12 (Gengið inn frá Ingólfsstræti) S í m a r: Afgreiðsla 3400 Ritstjórn 4578 Auglýsingastjóri 2834 — (kl. 9—12) 5377 Verð kr. 2.50 á mánuði. Lausasala 10, 15 og 20 aurar. Félagsprentsmiðjan h/f. Ferðamanna straumurinn. perðamannastraumurinn til íslands eykst með ári hverju og komast þó færri að en vildu. Á þessu sumri er alt farrými frá Englandi löngu pantað. Vegna þessa skipaskorts verða sumir Englendingar að fara fyrst til Kaupmannahafnar eða Bergen, til þess að komast þaðan með skipum Sameinaða félagsins eða Bergenska. Hinir eru vitanlega miklu fleiri, sem láta íslandsferðirnar farast fyr- ir, vegna þess að SYQ erfitt er að fá far liingað. Flestir sem hingað koma Ijúka upp einum munni um það, að „landið sé fagurt og frítt“, Þektur danskur ferða- langur, sem farið hafði víða um lönd og skrifað fjölda bóka, kom fyrir nokkru til Nýja Sjá- | lands. Hann varð hugfanginn af j fegurð landsins. Slík fegurð er ekki til nema á einu öðru landi í heiminum — íslandi! Slíkur var dómur þessa víð- förla manns. Það er enginn vafi á þvi, að ísland á fáa jafningja að lirikalegri náttúrufegurð. En það er ýmislegt annað, sem lað- ar fólkið hingað. Loftið er ó- venju tært og skygni svo gott, að hvergi i Norðurálfunni er annað eins víðsýni, fyr en kom- ið er suður að Miðjarðarhafi. Loftið er líka heilnæmt og hressandi. Veiði í ám og vötn- um er óvíða betri en hér. Og svo höfum við eitt fram yfir flest önnur ferðamannalönd — jarðhitann. Lítil reynsla er komin á notkun jarðhita í lieilsubótarskyni. En það er spá manna, að á komandi árum muni það mjög færast í vöxt. Enginn éfast um það, að ferðamennirnir eiga eftir að verða landinu drjúg tekjulind í framtíðinni. Og það væri ófyrir- gefanlegur amlóðaháttur, ef við værum tómlátir um þá nýju at- vinnugrein, sem okkur er með þessu lögð á hendur. Hér verður að byrja á byrj- uninni. Hvað ætli að syngi i Norðmönnum, ef enskir ferða- menn yrðu að fara fyrst til Reykjavíkur, til þess að komast til Noregs, af þvi að ekki væri hægt að fá far þangað beint frá Englandi? Og hvað ætli þeir segðu við því, að þegar þessir ferðamenn loksins kæmu, væru þeir með íslensku skipi? Við Islendingar þurfum að eignast nýtísku farþegaskip, sem getur tekið upp samkepni við siglingar annara þjóða. Stærsta farþegaskipið okkar er orðið 25 ára gamalt. Á þessum tíma liafa kröfurnar mjög auk- ist á samgöngusviðinu. Þegar Gullfoss var smíðaður var hann veglegasta farþegaskipið, sem liingað sigldi í föstum ferðum. Á þann liátt markaði Eimskipa- félagið stefnuna. Þeirri stefnu vill félagið enn lialda. Enginn efi er á því, að allur þorri is- lensku þjóðarinnar er sömu skoðunar. Smíði hins nýja skips Eimskipafélagsins verður ekki tafinn með úrtölum og slagorð- um. a Verdur lögfræð- ingamófinu frest- að um eitt ár? Frá adalfundi M. F. í. Nýlega var haldinn aðalfund- ur í Málflutningsmannafélagi íslands og voru eftirtaldir mál- flutningsmenn kosnir í stjórn félagsins og varastjórn: Eggert Classen lirm., formað- ur. Meðstjórnendur: Lárus Jó- hannesson hrm. og Einar B. Guðmundsson hrm. Varastjóm skipa: Egill Sigur- geirsson lu—m., Tlieodór Líndal lirm. og Tómas Jónsson borgar- ritari. Svo sem getið hefir verið um hér í blaðinu var sennilegt tal- ið að um 800 lögfræðingar af Norðurlöndum myndu koma í heimsókn til íslands á árinu 1940, og var ætlunin að leigja sérstakt skip til fararinnar. Stjórn Málflutningsmanna- félagsins mun hafa allan undir- búning móttökunnar með hönd- um, og mun hið væ-ntanlega lög- fræðingamót hafa komið að einhverju leyti til athugunar innan félagsins. Samkvæmt síðustu fregnum, sem borist liafa hingað, lítur svo út, sem hin fyrirliugaða Is- landsför lögfræðinganna ínuai frestast urn eitt ár, eða til árs- ins 1941, með því að ekki hefir tekist að fá hentugt skip leigt til fararinnar á sumrinu 1940. Hestur fælist - stekkur á bíl. Fyrir liádegi í morgun fæld- ist vagnhestur hér í bænum. Sleit hann sig lausan frá vagn- inum, braut annan kjálkann og dró hann á eftir sér. Eftir því sem Vísir veit best, mun þetta hafa skeð skamt fyr- ir sunnan Mentaskólann, því að hesturinn stökk norður yfir skólalóðina og út á Bankastræti. Þar stökk hann á bíl og skemdi bann lítilsháttar, en tók síðan á sprett inn allan Laugaveg. Náð- ist hesturinn síðan inni hjá Lækjarlivammi og var fluttur að Tungu. Mun honum ekki hafa orðið neitt meint af þessu ferðalagi. Bæklingur á ensku um skipulag Reykja- víkurbæjar. Skipulagsnefnd hefir látið semja bælding um byggingar- mál Reykjavíkur og skipulags- mál og verður bæklingi þessum útbýtt á skipulagsmálaráðstefn- unni í Stokkhólmi í næsta mán- uði. Bæklingurinn er á ensku, saminn af Herði Bjarnasyni, fyrir liönd nefndarinanr. Upp- lagið verður um 1500 eintök, en fulltrúar á þessari skipulags- málaráðstefnu yerða væntan- lega um þúsund að tölu. Verða svipaðir bæklingar, um skipu- lags- og byggingamál annara höfuðborga Norðurlanda, lagðir fram á ráðstefnunni. BRETAR HAFA FYRIRGERT 0LLUM RÉTTINDUM f KÍNA, .. . , /: *“ - * -vív* - vegna stuðningsins við Chang Kai-Chek, segir Sugiyama herforingi Jap- ana í Norður-Kína. Hazm býður þó Bretum upp á samvinnu. EINKASKEYTI TIL VlSIS. London, í morgun. Eftir seinustu fregnum að dæma eru Japanir jafngallharðir og fyrr í kröfum sínum gagn- vart Bretum, en í gær síðdegis þóttust menn sjá þess merki, að þeir væru farnir að linast í afstöðu sinni. Fregn frá Shanghai í morgun hermir, að hálfopin- berar japanskar fregnir frá Peiping greini frá því að Sugiyama hershöfðingi, yfirforingi japanska hersins í Norður-Kína, hafi lýst yfir því, að Bretar hafi fyrirgert öllum sínum forréttindum í Kína, vegna þeirrar stefnu sinnar, að styðja Chiang Kai-shek eftir því sem þeim var auðið, án þess að fara sjálfir út í styrjöld. Japanir, sagði Sugiyama, herforingi, ætla sér alls ekki að leggja undir sig forréttinda- svæðin þegar í stað, en munu vera einbeittir og ákveðnir í framkomu sinni gagnvart Bret- 5 um, uns þeir viðurkenna hið nýja viðhorf í : Kína og taka ákvörðun um, að hefja sam- vinnu við Japani um hið nýja skipulag og að frainfylgja ÍÖgum og reglum í Austur-Asíu. .. Fregnir frá Tientsin í gærkveldi hermdu, að Japanir hefði leitt 225 volta rafrnagnsstráúm gegnum gaddavír- inn, er strengdur hefir vérið um forréttindasvæði Breta og Frakka. Gaddávírsgirðingarnar eru 30 enskar mílur á Iengd. Horfurnar vegna Tientsindeilunnar hafa dregið úr kauphall- arviðskiftum og' verðlag hefir lækkað á vissum verðbréfum og ekki náð sér upp aftur. Sveigði enn í þessa átt í gær. í gær varð ljóst, að breska stjórnin vill reyna til þrautar að jafna deiluna friðsamlega, en er jafnframt búin undir að láta hart mæta börðu, ef Japanir láta ekki undan, en þess þóttust ýmsir sjá merki í gær. Japanir virðast ekki hafa lagt neinn trúnað á það, að Bretar myndi beita viðskiftalegum þvingunarráðstöfunum, né nota aðstoð flota síns í Austur-Asíu til þess að rétta hlut breskra manna í Tientsin, sem áfram hafa sætt hinum hrak- smánarlegustu meðferð af Japönum. Breska stjórnin gerði ráð- stafanir til þess í gær að japönsku stjórninni jnrði gert alveg ljóst, að Bretum væri rammasta alvara, — þeir myndi grípa til alvarlegra meðala, ef annað dygði ekki. Sendiherrann í Tokio talaði við Arita og Halifax við sendiherra Japana í London. Samkvæmt áreiðanlegum heimildum ætlar breska stjórnin enn að bíða átekta í von um, að japanska stjórnin skilji, að Bretland býr sig undir að vernda hagsmuni sína og þegna, og muni Japanir þess vegna slaka á kröfum sínum. Ef Japan Iætur ekki undan er þegar ákveðið hvað gert verður. Bresk herskip í Austur-Asíu bíða reiðubúin til þess að grípa inn í deiluna ef fyrirskipun kemur. /NRP—FB, fregn). Breski flugMtiiriiiii Connemara, gereyði- lagðist af eldi í gær. liaiiia var ætlaður til flugfcrða yfir VOantsliaf. EINKASIÍEYTI TIL VÍSIS. London, í morgun. Flugbátur Imperial Airways, Connemara, ætlaður til flugferða um Atlantshaf, eyðilagðist af eldi í gærkveldi. í símfregn frá Tythe í Hampshire segir svo: Flugbáturinn Connemara, sem er 24 smálestir að stærð, og nota átti í hinum fyrirhuguðu flugferðum Imperial Airways yfir Atlantshaf, eyðilagðist af völd- um elds í gærkveldi, er verið var að fylla bensíngeym- ana. Lá flugbáturinn við olíuflutningabát og var verið að dæla bensíninu í geyma flugbátsins er sprenging varð í vélarúmi flutningabátsins. Breiddist eldurinn örhratt út og kviknaði þegar í flugbátnum og gereyði- lagðist hann af eldinum á tíu mínútum. Einn maður brendist hættulega en annars er saknað. *' United Press. Bandaríkin. Þetta virðast Japan- ir óttast og hafa endurtekið yf- irlýsingar um, að banninu í Ti- entsin sé beint gegn Bretum einum. Itölsk og þýsk blöð segja, að viðskiftalegar refsiað- gerðir hafi verið reyndar í Abes- siníustríðinu og allir viti hver árangurinn hafi orðið. TIENTSIN og SAMKOMU- L AGSUMLEIT ANIRN AR í MOSKVA. Að svo stöddu verður ekki með neinni vissu sagt, hver á- hrif Tientsindeilan hefir á sam- komulagsumleitanirnar við Rússa. Sumir ætla, að deilan muni flýta fyrir þeim, þar sem Bretar verði tilleiðanlegri að ganga að kröfum Rússa, aðrir. að deilan muni tef ja fyrir þeim. Engir umræðufundir fóru fram í Moskva í gær og í fyrradag, og bíður Strang fyrirskipana frá London. United Press. Sameining Þýska- lands og Danzig. London í ffiorguif.’ Einkaskeyti til Vísis^ Þýsk blöð gera mjög að um- taslefni ræðú þá, sem dr. Göb- bels flutti í Danzig s.l. laugar- dag, en í henni livatti hann Þjóðverja í Danzig til þess að halda fast á kröfum sínum. — Þýsku blöðin gefa í skyn. að Þjóðverjar í Danzig muni herða sóknina og stofna til almennrar atkvæðagreiðslu í fríríkinu. — Deutsche Allgemeine Zeitung segir, að allir viðurkenni, að Danzig sé þýsk borg og þar sé þýsk menning rikjandi. Annað blað segir, að hinir 400.000 Þjóðverjar, sem búi i Danzig, muni fyrr en varir sameinast 80 miljónum þjóðverskra manna, sem byggja Stór-Þýskaland. United Press. Þýsk og ítölsk blöð halda á- fram að ræða um það, að Bret- ar hafi orðið fyrir hinum mestu móðgunum, en Parísar og Lundúnablöðin þykjast sjá þess merki, að Japanir sé komnir á undanhald og marka það meðal annars af því, að tvö bresk skip hafa farið upp ána hjá Tient- sin, án þess þau væri stöðvuð. Chamberlain gaf yfirlýsingu í þinginu í gær um það hvað gerst hafði og kvað bresku stjómina staðráðna í því, að sjá um að breskir þegnar í Tientsin fengi nóg matvæli. Japanir, sagði hann, hefði aukið kröfurnar frá því er þeir heimtuðu Kínverjana 4 framselda og kvað Chamber- lain bresku stjórnina gera sér að fullu ljóst, hver áhrif það hefði, að því er snertir önnur forréttindasvæði í Kína, ef Jap- anir hefði sitt fram þarna. Breska stjómin væri í stöðugu sambandi við Frakkland og Hér ritar Elisabelli Englandsdrotning nafn sitt í hina gullnu bók í ráðhúsinu í MonlreaL Georg konungur borfii' á á meðan, en hjá þeim stendur borgarstjórinn í Montreal, Camillieni Houde. Þegar þessum skrifum var lokið urðu konungshjónin að heilsa 160 — huridrað og. sextíu — embættismönnum með handabandi.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.