Vísir - 21.06.1939, Blaðsíða 7

Vísir - 21.06.1939, Blaðsíða 7
* Miðvikudaginn 21. júní 1939. VISIR S t j ó r n Eimskipafélagsins felur framkvæmdastjóra að undirrita samninga um smíði hins nýja skips. Ríkisstjórnin hefir heitið stuðningi á Alþingi, þannig að félagið verði styrkt til rekstursins. Eins og mönnum er kunnugt, hefir stjorn Eimskipafélags íslands h. f. undirbúið byggingu nýs og glæsilegs skips til milli- landasiglinga, en til skamms tíma hefir nokkur vafi leikið á því, hvenær unt yrði að ráðast í byggingu skipsins. Mál þetta hefir nú verið leyst á heppilegan hátt, með því að ríkisstjórnin hefir brugðist vel við og heitið félaginu stuðningi sínum. Eftirfarandi bréf barst Vísi í gærkveldi frá framkvæmda- stjóra Eimskipafélagsins, sem skýrir málið til fullnustu. Með bréfi voru lil yðar, dags. 25. nóv. síðastl., var yður til- kynt til birtingar í blaði yðar að Eimskipafélag Islands hefði leitað tilboða erlendra skipa- smíðastöðva um smíði farþega- og farmskips lianda félaginu, sem skyldi vera mildu stærra og hraðskreiðara en þau skip, sem nú eru í förum milli Is- lands og útlanda. Niðurstaða útboðsins var sú, að af 25 skipa- smíðastöðvum í 8 löndum, sem leitað var tilboða hjá, fengust 8 tilboð frá 3 löndum (Stóra- Bretlandi, Ilollandi og Dan- mörku). Lang hagkvæmasta tilboðið var frá skipasmíðastöð A/S. Burmeister & Wain og var það £: 168-400-0-0. Eftir að til- boðin voru komin fór fram- kvæmdastjóri félagsins til út- landa í byrjun febr. síðastl. fil nánari samningsumleitana og lánsútvegana. Dvaldi liann í þeim erindum nokkurn tíma í Englandi, Hollandi og Dan- mörku. Varð niðurstaðan af störfum hans í ferðinni að hag- kvæmast væri að semja við A/S. Burmeister & Wain um smiði skipsins, hæði að þvi er snerti verð og borgunarskil- mála. Eftir heimkomu fram- kvæmdastjóra, sneri félags- stjórnin sér á ný lil atvinnu- málajráðuneytisins uin málið, og' hefir ráðuneytið með bréfi, dags. í dag, lieitið félaginu ^því, að styðja að þvi við Alþingi, að félagið fái styrk til reksturs skipsins, annaðlivort sem fjár- slyrk á fjárlögum, sem svari rúmlega ríkissjóðsgjöldum af skipinu, eða sem gjaldfrelsi fvrir skipið umgreiðslur gjalda í ríkissjóð. Telur félagsstjórn- in, að ekki muni verða teljandi meiri reksturslialli á skipinu en nemur áætluðum gjöldum til ríkissjóðs. Auk þess hefir liafnarreglugjörð Reykjavíkur verið, samkvæmt tilmælum fé- lags vors, hreytt á þá leið, að liafnargjöld skipsins í Reykja- vík lækka um hér um bil 20 þús. kr. á ári frá því, sem á- ætlað var. Greiðsluskilmálar A/S. Bur- meister & Wain eru þannig, að gréiða skal 30% af skipsverð- inu meðan á smíði stendur. Hefir framkvæmdastjóri í ut- ainför sinni útveg>að félaginu afborgunarlaust reikningslán hjá Hambrosbanka í London með 5% ársvöxtum, að upp- hæð £: 50.000-0-0, sem varið verður til greiðslu téðra 30% af skipsverðinu. Eftirstöðvar lcaupverðsins, 70%, skal greiða A/S. Burmeister & Wain á tíu árum, talið frá afhending skipsins, sem gert er ráð fyrir að verði í mars/apríl 1941. Skal fyrstu 4 árin afborga ár- lega 5% af skipsverðinu, 5. og 6. árið 6%, 7. árið 8% og síð- ustu 3 árin 10%. Ársvextir skulu vera 5%. 6 Á þeim grundvelli, sem nú hefir verið lýst, liefir félags- stjórnin samþykt að taka til- boði A/S. Burmeister & Wain um smíði skipsins, og falið frámkvæmdastjóra félagsins að undirrita héraðlútandi samning. Lýsing á fyrirhugiiðu farþegaskipi. Stærð skipsúns á að verða sem hér segir: Lengd 342 fet á þilfari, en lengd í dýpstu sjó- linu (b. p. p.) 320 fet, breidd 46% fet, dýpt 27 fet og djúp- rista þess 16 fet og 10 þuml. Til samanburðar má geta þess, að „GulIfoss“ og „Goðafoss“ eru 230 fet að lengd, en „Brú- arfoss“ og „Dettifoss" 237 fet. Skipið verður mólorskip með einni vél, 12 cylindra, með 5800 hestöflum. Hraði skipsins í reynsluför með fullfermi af stykkjavöru (% dw) á að verða \TV-z mila á vöku. Með þessari stærð skipsins og liraða í reynsluför, er gengið út frá að meðalsigl- ingahraði þess á hafi geti orð- ið rúmlega 16 mílur á vöku. Verður skipið þá rúma 2 sól- arhringa milli Re^dcjavíkur og Leith, rúman lVa sólarhring milli Leith og Kaupmanna- hafnar, en beina leið milli Reykjavíkur og' Kaupmanna- liafnar rúmlega 3 sólarhringa. Ferð milli Reykjavíkur og ísa- ljarðar mun taka um 11 tíma, milli ísafjarðar og Siglufjarð- ar um 8 tíma og milli Siglufj. og Akureyrar rúml. 2j4 tíma. Á 1. farrými verður pláss fyrir 114 farþega, á 2. farrými 62 og' 3. farrými 48, alls 224 farþega. Öll farþegaherbergi v'erða við útveggi. Útvarps- hlustunarlæki - verða við öll rúm á 1. farrými og firðtals- áhöld í öllum eins manns her- bergjum farþega þar, en auk þess firðtalsklgfar á hverju þil- fari, bæði á 1. og 2. farrými. Á efsta þilfari (A-þilfari) skipsins, verður stjórnpallur með lokuðu stýrishúsi. Þar verða liin fullkomnustu tæki til skipstjórnar, svo sem sjálf- ritandi bergmálsdýptarmælir, radio-stefnumælir og gyro- átlaviti, sem er óháður segul- magni, og verður því eigi fyr- ir áhrifum af hinum tíðu seg- ulstraumhvörfum. I sambandi við gyro-áttavitann verður sjálfstýris-útbúnaður, sem ræð- ur þvi, að stýrt er þá stefnu, sem er ákveðin, án þess að mannshöndin komi til. Aftan við stýrisliúsið er skip- stjórnarklefi, og er innangengt milli lians og stýrishússins. Þar eru einnig íbúðir skipstjóra, stýrimanna og loftskeyta- manna, svo og loftskeytastöð með afgreiðsluherbergi og klefa handa farþegum fyrir firðtöl. Á þessu þilfari er skýli fyrir farþega og pláss fyrir þá til göngu og leikja. Af sex björgunarbátum, verða þrír með mótor. Á næsta þilfari (B-þilfari, ,,Promenadedekki“) er alt framskipið yfirbygt. Fremst í liúsi miðskipa er revksalur fyrsta farrýmis, og nær hann út í borð báðum megin. Þar eru sæti fyrir 60 manns. Á aft- urvegg er opinn arinn. Fyrir aftan reyksalinn er bakborðs- megin veitingastofa (,,bar“) með 12 sætum, en stjórnborðs- megiii skrifstofa með 4 skrif- borðum. Þá tekur við stór for- salur. I honum er stigi upp á A-þilfar og niður á næsta þil- far fyr(ir neiðan. Fytrir aftan forsalinn eru við báða útveggi svefnherbergi og baðherbergi. Þar er einnig sérstök íbúð með dagstofu, svefnlierbergi og bað- lierbergi. Aftast í liúsi þessu er samkvæmissalur. Aftur á skipinu er á þessu þilfari reyk- salur fyrir 2. farrými, ásamt opnu skýli fyrir farþega. Á næsta þilfari (C-þilfari, A'wning-þilfari) eru fremst í skipinu íbúðir háseta i tveggja manna herbergjum, ásaml matstofu og baðherbergi fyrir þá. Einnig verða þar herbergi fyrir þjóna. Næst tekur við 3. farrými. Þar fyrir aftan eru svefnherbergi fyrir 1. farrými. Siðan er forsalur þessa þilfars á 1. farrými. Þar er skrifstofa fyrir alla afgreiðslu, er snert- ir farþega. Úr þeim forsal eru stigar bæði upp á B-þilfar og niður á næsta þilfar. Fyrir aft- an forsalinn eru svefnherbergi og baðherbergi. Aftar á skipinu eru á þessu þilfari svefnlier- bergi fyrir farþega 2. farrýmis og íbúðir vélamanna. Á næsta þilfari (D-þilfari) er fremst lestarrúm. Miðskipa er borðsal- ur fyrir 1. farrými, er nær yfir þverl skipið. Geta þar verið 116 menn í sætum. Allir far- þegar á 1. farrými geta því borðað samtímis. Fyrir aftan borðsalinn er stjórnborðsmeg- in framreiðsluherbergi, en bak við það eldhús fyrir 1. farrými og ibúð framreiðslumanna og þjóna og matsalur þeirra. Bak- borðsmegin eru herbergi bryta og þjónustufólks. Þá eru tvö stór lierbergi, sem ætluð eru lil þess að vera sjúkraherbergi. og hjá þeim herbergi fyrir lækni. Er svo fyrirskipað í al- þjóðareglum, að fari skip, sem flytur yfir 100 farþega, lengra en 200 sjómílur frá landi, svo sem nauðsynlegt yrði í Ame- ríkuferðum, þá skuli vera slík- ir spitalar ásamt lækni i skip- inu. En annars má nota þetta pláss fyrir farþega. Fyrir aft- an spítalann eríbúð vélamanna og þjónustufólks, matsalur yf- irmanna og baðherbergi. Mið- skipa er forsalur við borðsal 1. farrýmis og stigar þar upp á C-þilfar og niður á næsla þil- far. Þar fyrir aftan tekur við vélarrúm og síðan eldhús fyrir 2. farrýníi og sérstök brauðgerð með rafmagnsofni. — Aftast á þessu þilfari er stjórnborðs- megin borðsalur fvrir 2. far- rými. Tekur hann um 60 manns í sæti, eða allar farþega 2 farrýmis samtímis. Báðir styrkleiki þess verður aukinn borðsalir og eldliúsin eru þann- ig á sama þilfari. Bakborðs- megin eru svefnherbergi á 2. farrými og þar fyrir aftan bað- lierbergi og íbúð þjónustufólks. Á neðsta þilfari (E-þilfari) eru miðskipa svefnherbergi fyrir 20 farþega á 1. farrými. Á sama þilfari er gej'msla fyr- ir matvæli, ásamt kæli- og frystirúmi fyrir þau. I lestum skipsins verða frystirúm að stærð samtals um 43.000 teningsfet, þar sem koma má fyrir 750 smálestum af flökuðum fiski eða 26.000 skrokkum af dilkakjöti. Skip- ið verður ca. 3300 bruttó-smá- lestir að slærð. Skipið verður mjög sterklega bygt. Á það að fullnægja kröf • um „British Lloyd“ og að suniu leyti jafnvel sterkara en svo. Sérstaklega verður það ís- styrkt að framan, þannig að T Mikil síM á IVorðfirði Fréttaritari Vísis í Neskanp- stað sendi blaðinu svohljóíiaiidí: skeyti um hádegið í dag; „Mikil síld hefir sést vaða úti fyrir Norðfirði í nótt og veíddu vélbátarnir Muninn og Þráinit 400 mál síldar í rnorgun. Gott útlit er talið fvrir að síld verði í sumar fyrir Austurlandi, og e*r það dregið af átunni, sem er mikil í sjónum. Óvenju mikil útgerð verður frá Austfjörðum í sumar, o§[ liafa mörg skip verið tekin £L leigu til Veiðanna.“ FréttariiarL að mun frá stefni aftur fyrir | miðju fram yfir það, senr | venjulegt er. Sjálfstæðisflokkumtn held- ur fundi um alt land í sumar. Viðtal við íormann flokksins Ólaf Thors* Vísir hafði í morgun tal af formanni Sjálfstæðisflokksins, Clafi Thors atvinnumálaráð- herra og spurðist fyrir um fyr- irhuguð fundahöld flokksins á þessu sumri. „Nolckrir fundir hafa þegar verið lialdnir“, segir ráðherr- anii, „auk þeirra leiðarþinga og floltksfunda, sem einstakir þingmenn flokksins hafa haldið í kjördæmum sínum. Hafa flokksfundir með fulltrúum frá liálfu miðstjórnar t. d. verið haldnir bæði í Skagafjarðar- og Rangárvallasýslu. Um ákvörðun fundatíma fer miðstjórn flokksins fyrst og fremst að sjálfsögðu eftir ósk- um manna í viðkomandi héruð- um. Sumstaðar er fundarsókn miklu ógreiðari en menn liér í Reykjavík gera sér alment grein fyrir. Það mun t. d. fæst- um kunnugt, að Fjarðarheiði, sem liggur milli Seyðisfjarðar og Fljótsdalshéraðs, er ekki enn þá orðin bilfær á þessu sumri. Af þessum ástæðum hefir fram að þessu ekki þótt tiltækilegt að boða til almenns móts Sjálf- stæðismanna í Austfirðinga- fjórðungi, eins og gert var í fyrra. Nú fer Gunnar Thoroddsen austur með Súðinni annað kvöld, og mun halda fundi víðs- vegar um Austurland og Þing- eyjarsýslur, auk þess sem liann mun verða fulltrúi miðstjórnar á fyrirhuguðu almennu liéraðs- móti austur þar. Magnús Gísla- son sýslumaður mun verða á fundum með Gunnari, eftir því sem hann getur við komið vegna embættisanna. I fyrra var haldin afar fjöl- menn samkoma sjálfstæðis- manna úr Þingeyjar- og Eyja- fjarðarsýslum í Vaglaskógi liinn 10. júlí. Þessi samkoma hepnaðist svo vel, að hún varð lil fyrirmyndar um útifundi, ekki einungis Sjálfstæðisflokks- ins, heldur og annara stjórn- málaflokka. Nú hafa Eskifirðingar ákveð- ið að gangast fyrir slíkri sam- komu að nýju og verður hún sennilega á líkum tíma og í fyrra. Héraðsmót fyrir Snæfellsnes- sýslu, Dala-, Borgarfjarðar- og Mýrasýslu verður haldið í Borg- arnesi eftir heimkomu Thor Thors alþm. I Húnavatnssýslum er þegar ÓLAFt’R TIIORS. hafinn undírbúníngur undir aí- ment héraðsmót, en elcki er enm ákveðið hvenær það verður. Pá liefir verið rætt nm sameigin- legt mót fyrir Árness-, Rangár— valla- og Vestur-Skaftafells- sýslu. Nokkrum vandkvæðum er lmndið að koma á einni afls- herjar stefnu fyrir svo víðáttu- rnikið svæði. og enn þá. óvísS hvort það þykir tiltækilegf. Að þvi er viðvikur GuB- bringu- og Kjósarsýslu og.Vest- mannaeyjum veldur fjarveræ manna um sildveiðitímann þvf, að eldci verður hægt að koma þar á almennum flokksfundum fvr en með haustinu! Loks er ákveðið að halda al- ment héraðsmót fyrir sjálfsfæð- ismenn í Vestfirðingafjórðungi á Isafirði, en óákveðið er hve— nær það verður lialdið. Hér b Reykjavík byrjh samkomnr aS Eiði sunnud. 21 júli og yerðœ; haldnar þar ú t isamkoniur flesfa: sunnudaga, ef fært þykir vegnsu veðurs. Að endingu segir Ölafur Thors: Samkvæmt bréfum, sem mér berast daglega, og af viðtölum við menn, bæði lier í Reykjavík. og úti um land, get eg fullyrt, að innan Sjálfstæðisflokksihs hefir aldrei ríkt öruggarl né heitari áhugi um éflingu og við- gang' sjálfstæðisstefnunnar:. Miðstjórnin mun af sinní hálfi. gera það sem unt er til þess aíf hinir fyrirhuguðu fundir flokksins nái þessum tilgang; sínum. ----■—»*«—«'■■■------------ ICnattspyrna. í gær keptu Landsbankinn og Búnaðarbankinn. Lauk hinum bráð- skemtilega leik me'ð sigri Lands- bankans 7:0.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.